Lögberg - 15.02.1945, Blaðsíða 4

Lögberg - 15.02.1945, Blaðsíða 4
4 ♦—— JLögberg----------------------------- Gefiö öt hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS, LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LOGBERG, 695 Sargent Ave, Winnipeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba PHONE 21 804 F ramíærsluáty rkur barna Það laganýmæli frá sambandsþinginu í fyrra, sem lengst gekk í umbótaátt, má vafalaust telja frumvarpið um framfærslustyrk barna, sem stjórnin, í samstarfi við þingmeirihluta sinn, fékk hrundið í framkvæmd; tveir hinna þing- flokkanna hölluðust á sveif stjórnarinnar í þessu mikilvæga velferðarmáli, C.C.F. og Social Credit flokkarnir; um afstöðu Conservativa var það að segja, að hún var í rauninni hvorki fugl né fiskur, því sumir þeirra, er vegna ótta við al- menningsálitið, treystust eigi til að greiða at- kvæði gegn frumvarpinu, veittu því stuðning sinn með hangandi hendi, og vildu helzt hvergi við koma. Mr. Bracken, sem venjulega hleypur ekki af sér hornin, hafði í þessu máli verið nokkru fljótari á sér, en hans var von og vísa; hann hafði snemma, auðsjáanlega, haft eitthvert veð- ur af því, að Col. Drew, forsætisráðherra þeirra Ontario manna, myndi vera frumvarpinu mót- fallinn, eins og síðar varð raun á, og talið sér trú um það, að hér væri ef til vill pólitískur draugur á ferð, er svo mætti magna, að hann gæti riðið stjórninni að fullu; og eitthvað hlaut þá vitaskuld að vera á sig leggjandi fyrir annað eins og það; hin fulrðulega framkoma Mr. Bracken’s í þessu þjóðþrifamáli, setti Conserva- tiva í gapastokkinn, og þar dúsa þeir enn. Eins og þegar er vitað, er svo ráð fyrir gert, að greiðslur hins áminsta framfærslustyrks barna, hefjist þann 1. júlí næstkomandi, og að svo verði, þarf eigi að efa, sitji núverandi stjórn þá við völd. En komi önnur stjórn fyrir þann tíma til valda, getur auðveldlega svo farið, að þessi umfangsmikla menningar- og mannúðarlöggjöf komi aldrei til framkvæmda; en slíkan óvinafögnuð geta kjósendur því aðeins fyrirbyggt, að þeir tryggi núverandi sambands- stjórn endurkosningu með nægum þingmeiri- hluta. Einstöku menn spyrja sig sjálfa um það, hvort þess sé í raun og veru nokkur þörf, að hlutast til um greiðslu framfærslustyrk barna í jafn auðugu landi og Canada vitanlega er; hvort eigi megi verja þeim tvö hundruð miljónum dollara, sem ætlaðir eru löggjöf þessari til fram- kvæmdar, til einhvers, sem meir sé aðkallandi, til einhvers þarfara. Eru ekki heilbrigðir og vel uppaldir þegnar hin dýrmætasta eign sérhvers þjóðfélags? Og gildir þá slíkt ekki jafnt um canadisku þjóðina sem aðrar þjóðir? Slíkt getur ekki orkað tvímælis. Velmegandi fólk á vitaskuld auðvelt með að sjá börnum sínum farborða, veita þeim aðgang að lindum æðri menntunar, láta þau ganga vel til fara, og lifa á mjólk og hunangi; slíkt hefir hinum vinnandi stéttum oft og einatt orðið ofurefli; þær stéttir eru löngum fjölmennastar, og það eru jafnan þær, sem öðrum fremur, bera hita og þunga dagsins; innan vébanda þeirra fæðast engu síður gáfuð börn, en í flokki hinna svonefndu yfirstétta, og til þess að tryggja, að svo miklu leyti, sem auðið má verða, æsku landsins, án tillits til stétta, jafnan aðgang að undirbúningi undir lífið, lagði stjórnin, eftir langar og ítarlegar rannsóknir, grundvöll að hinni þörfu, og í raun og veru alveg sjálfsögðu löggjöf um framfærslustyrk til barna, til þess að útiloka úr þjóðfélaginu misrétti, sem orðið var langt of gamalt í hettunni, og nýji tíminn gat ekki undir neinum kringumstæðum, sætt sig lengur við. Ýmsir gefa áminstri nytjalöggjöf hornauga, vegna þess, að því er þeim skilst, að hún sverji sig um of í ætt við jafnaðarmennskuna. En hefir þá ekki mannkynið á hinn bóginn, fengið sig fyrir nokkru fullsatt af misréttinu, og ójafn- aðarmennskunni ? Aðrir horfa í kostnaðinn; þeim hrýs hugur við þessum tvö hundruð dollara útgjöldum, sem framkvæmd áminstrar löggjafar óhjákvæmi- lega hlýtur að hafa í för með sér; hvorug mót- báran styðst við veruleg rök, því það liggur í augum uppi, að engin stjórn fái betur varið því fé, sem almenningur fær henni umráð yfir, en með því að ávaxta það í heilsu og manndóms- aukning þegnanna. Frá því í byrun yfirstandandi aldar, hafa kröfurnar um félagslegt öryggi þjóðanna, farið jafnt og þétt í vöxt, þótt vitanlega hefði mátt LOGBERG, FIMTUDAGINN, 15. FEBRÚAR, 1945 betur vera, því við slíkum kröfum mega þjóðirn- ar ekki undir neinum kringumstæðum dauf- heyrast; raddir mannúðarinnar verða aldrei að eilífu þaggaðar niður, og þessvegna er það fávizka, að spyrna á móti broddunum. Miðalda þröngsýni og miðalda nánasarskapur, eiga ekk- ert erindi inn í þjóðfélagsskipun nútímans, sem það markmið hefir, að leysa fjötrana, í stað þess að herða á þeim. Þó félagslegu örygyi í þessu landi, sé vita- skuld enn í ýmsum efnum ábótavant, hefir þó þegar allmikið unnist á; má þar meðal annars minnast á lágmarkslauna löggjöfina, lögin um sættir í ágreiningsmálum varðandi iðnrekstur- inn, lögin gegn einokunarsamtökum, skaðabóta- lög verkamanna, svo og lögin um mæðra styrk, atvinnuleysistryggingarnar, ásamt margvísleg- um umbótum á vettvangi heilbrigðismálanna; en langróttækasta löggjöfin, er þó vitaskuld sú, um ríkisstyrk til barnaframfærslu, sem vikið hefir verið að hér að framan, og um þá löggjöf ber oss öllum, að standa dyggilega vörð. Raunverulegt mannúðargildi hins félagslega öryggis, hefir Mr. King jafnan verið manna ljósast, eins og sjá má af ræðu, sem hann flutti í Toronto þann 9. október 1942, þar sem hann meðal annaTs lét þannig um mælt: “Hinu langþráða takmarki varanlegs frelsis, verður einungis náð með því, að þjóðirnar láti sér skiljast, að velferð þegnanna, allra jafnt, sé fyrsta og æðsta boðorðið.” Lífið er oft erfitt og þungskilið. “Sól og skuggi skiftast á skilja lífið enginn má fyr en eftir frost og hel fegra birtist himinhvel.” Og því er vorkunn, þótt vinir gráti hér á kaldri strönd. Þeir, sem hermdarverkið unnu mega vita það, að þótt vér séum langt í burtu, Islendingar, frá stóra heiminum, fáir og smáir, þá vak- ir einnig ástin við hin ystu höf — og að hér býr þjóð. sem getur fundið til. * * * Hinir látnu, er voru með Goða- fossi, hafa fundið nýja höfn og nýjan heim. “Eilífðin breiðir út faðminn sinn djúpa.” Og Guð mun koma í náð til allra sorgarbarnanna. Hann mun rétta þeim hönd sína, máttuga og kærleiksríka hönd, strjúka þeim tárin af kinn og gefa þeim líkn, huggun og frið. Kærleiksríki faðir. “Vertu oss fáum, fátækum, smáum líkn í lífsstríði alda.” Sigurgeir Sigurösson. Kirkjubl. 27. nóv. Harmfregn Goðafoss-slysið, stendur oss, mönnum og kon- um af íslenzkum stofni í þessu landi, vitanlega enn í fersku minni; við það er tengdar sárar minningar, sem seint fyrnist yfir. Grein sú, sem hér fer á eftir, samin af höfuðsmanni íslenzku þjóðkirkjunnar, herra Sigurgeir biskup Sigurðs- syni, mælir á göfugan og drengilegan hátt, hugg- unarorð til þeirra allra, sem syrgja, og hún á engu síður erindi til sorgarheimilanna mörgu hér, en heima á íslandi. Ritstj. Gyðja sorgarinnar fer um landið. Öll hin íslenzka þjóð er harmi lostin. í landi bíður fjöldi manna eftir því, að vinir þeirra úr fjar- lægð komi heim, stigi á land. , Þjóðin beið öll eftir Goðafossi úr Ameríku- förinni. Árum saman hafði hann flotið fyrir landi og fært “varninginn heim”. Árum sam- an hafði hann farsællega flutt farþega milli landa — milli hafna. — Enn var hann á heim- leið. Island var fyrir stafni. Vinirnir voru í þann veginn að rétta út heilsandi hendur. — En Goðafoss kom ekki að landi. Tuttugu og fjórir þeirra, sem með honum voru, hurfu skyndilega fyrir hafsbrún dauða. Það var ekki hin mikla brimalda, sem reið Goðafossi að fullu. Það var gnýr þeirrar heiftar og þeirra elda, sem nú brjóta niður borgir, gróðurlönd og dýrar vonir í brjóstum manna víðsvegar um heim. Vinirnir standa grátandi á ströndinni. Eitt hið þyngsta áfall hefir hent þjóð vora. Hver má hugga og binda um þessi sár? Syrgjandinn á athvarf. Hann fer þá leið, er skáldið talar um, er það segir: “Nú til þín faðir flý eg á föðurhjartað kný eg, um aðstoð eg bið þig. Æ, vert með mér í verki, eg veit þinn armur sterki í stríði lífsins styður mig.” Eg veit að við þitt hjarta, er vonarlindin bjarta, sem svalar særðri önd ...”. Valdine Nordal Condé Valdine Nordal Condé Þann 14. desember s. 1. hafði eg þá ánægju að vera gestur ungfrú Valdine Nordal Condé, þar sem hún lék á píanó í Waldorf Astoria. Það var í hinu svo nefnda Starlight Roof á 18. gólfi. Sá salur er skreyttur á mjög listrænan hátt með tindr- andi stjörnum á blárri hvelfingu. Valdine lék af svo mikilli snild, að allir stóðu á öndinni, og er hljóðfærið þagnaði, ætlaði lófaklappi aldrei að linna. Valdine leynir því ekki að hún er íslendingur, bæði lætur hún þess jafnan getið, hvar sem hún kemur fram, enda er kyn- bragðið norrænt. Hún er há vexti og tignarleg. þótt enn sé hún barn að aldri. Bláeyg og ljóshærð er hún og framkoman öll mjög látlaus og eðlileg og hin prýðilegasta. Mér var svo mikil forvitni að fá að vita meira um þennan íslenzka tónsnilling, að eg bað kennara hennar, Sigríði Nordal Helgason um upplýsingar. Sagði hún mér, að Valdine hefði leikið fyrir marga heimsfræga lista- menn í New York, sem allir væru á einu máli um, að hún væri færasti kvenn píanóleikari, sem nú væri uppi. Af þeim er þenna dóm höfðu kveðið upp, nefndi hún Isadore Phillip, frá París, Pólverjann Artur Rubenstein, sem nú er talinn frægastur allra píanóleikara, fiðlusnillinginn Fritz Kreisler, Rudolf Ganz, sem stjórnar Philharmonic Symph- ony. Valdine hefur leikið í mörgum hinum allra stærstu sönghöllum Ameríku. Tíu ára gömúl var hún sólóisti í Carnegie Hall með New York Philharmonic Symph- ony og lék þar Grieg Piano Concerto í A minor. Níu ára gömul var hún sólóisti í Massey Hall í Toronto með Toronto Symphony Orchestra, þar sem Þegar örlagaríkustu atburðirnir mæta oss, er Kristur oss næstur. Hann sagði við sorgbitinn föður, er lítil dóttir hans var látin: “Vertu ekki hræddur, trúðu aðeins.” Eg hef séð hjá þeim, sem nú ganga stigu sorgarinnar, undursamleg áhrif nálægðar Guðs og máttar hans, hvernig hann hefir hjálpað og gefið kraft til að bera hina þyngstu harma. — Það er margt sárt og tilfinnanlegt, þegar hugsað er um þenna sorgaratburð. Lítil saklaus börn, verða að sæta þessum grimmu örlögum. Eg veit að margir, jafnvel þeir, sem ella eru sterkir, gráta í hljóði er um þetta er hugsað. En einnig hér kemur Kristur til hjálpar. Vér getum verið örugg barnanna vegna. — Þótt vér ekki skiljum þessi rök lífsins, þá hljómar til vor fögur rödd: “Og hann tók þau sér í fang, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.” — Vér sjáum marga þunga skugga yfir þess-um atburði. — En líka ógleymanlegar myndir, sein benda hærra en allir skuggar ná. Mynd læknisins, með litla barnið sitt á öðr- um handlegg sér, og þar sem hann með hinni hendinni, er að gera að sári sjúks manns. Lækn- irinn hafði sett bjarghring á barnið sitt, en um sjálfan sig gaf hann sér ekki tíma til að hugsa. Sú mynd er fögur og getur aldrei gleymst. Sir Ernest MacMillan stjórnaði. Þar lék hún í hinu mikla Liszts Concerto í E flat majoyr. Átta ára gömul var hún sólóisti með New York Civic Symphony, sem Joseph Littau stjórnaði. Lék hún Concerto í G minor eftir Saint-Saens. Vakti leikur henn- ar mjög mikla eftirtekt. Til dæmis sagði New York Times að þessi afburða snillingur hefði leikið svo dásamlega að á eftir hefði lófatakið dunið í tíu mín- útur. Þessi sama hljómsveit lék við heimssýninguna miklu í New York. Níu ára gömul lék Valdine Concerto í B flat minor eftir Tschaikowsky með Nassau Phil- harmonic Symphony. Tólf ára var hún sólóisti með Ohicago Symphony Orohestra í Grant Park, þar sem sjötíu þús- undir manna hlýddu á leik hennar. . Tíu ára gömul var Valdine sólóisti með Hartford Symph- ony Orchestra undir stjórn hins unga, fræga Leon Barzin. Valdine er talin eini íslending- urinn, sem hefur verið sólóisti í þessum frægu sönghöllum. Þegar hér var komið upptaln- ingu, þótti mér nóg komið fyrir blaðagrein. Kvað frú Sigríður þá enn fjölmargt ótalið svo sem þátttöku í hljómleik með Em- manuel Liszt, Tito Sohipa, John Gurney og mörgum fleiri, einnig leikur hennar í fj ölmörgum sam- sætum og á heimilum. T. d. hef- ur Valdine leikið fyrir Mrs. Roosevelt og ekkju Tómasar Edisons svo að eitthvað sé nefnt. Félag nefnir sig “Professional Men’s Club”. Forseti þess er hinn frægi höfundur Clarence Buddington Kelland. Valdine var heiðursgestur þessa félags og var sæmd heiðursmerki fyrir framúrskarandi afrek í heimi hlj,ómlistarinnar. Fór þetta fram í Park Lane Hotel við Park Ave. í New York. Þegar eg horfði á leifturhraðar hreyfingar fingranna og hlustaði á töfratónana komu mér í hug orð Matthíasar: “ógurleg er and- ans leið upp í sigurhæðir”. Spurði eg þá hvort ekki væri löng og erfið þroskabraut bak við þessa undralist. Var mér sagt að Valdine hefði helgað líf sitt alt að kalla þessari list frá þriggja ára aldri. Var hún svo heppin að eiga góða móður, sem skildi undrabarnið og vakti yfir andlegum þörfum þess. Þá var það og hepni, að hún átti móður- systur, semv sjálf hafði tilbeðið tónlistina frá því hún mundi eftir sér. Taldi hún ekki eftir tím- ana til kenslunnar dag eftir dag, ár eftir ár, enda varð þar ekki unnið fyrir gýg, því að fjögurra ára lék hún fyrir útvarp í Win- nipeg, var það á vopnahlésdag- inn árið 1934. Þá var Valdine svo lítil, að kennari hennar og móðursystir, Sigríður Nordal Helgason, varð að lyfta henni upp í sætið. Tvö næstu árin lék Valdine reglulega tvisvar í viku fyrir útvarp í Winnipeg, sem S. N. Helgason stjórnaði. Sjö ára gömul var Valdine sólóisti við Concert Orchestra í Winnipeg. Lék hún þá tónverk eftir Mozart. Voru það sjötíu blaðsíður er hún lék utanbókar. Þegar Valdine var fimm ára elskaði hún Back mest allra tón- skálda. Lék hún tónverk hans öllum stundum. Sex ára fluttist Valdine til New York ásamt móður sinni og móðursystur. Lék hún þá þegar fyrir National Broadcast- ing Company. Árið eftir lék hún einnig fyrir útvarpstöðina N.B.C. Einhver kann nú að spyrja, hvort þetta barn hafi ekki orðið af æskugleði, mentun og líkams- þroska annara barna. Þeirri spurningu er óhætt að neita. Á síðastliðnu ári tók hún gagn- fræðapróf (High Scihool Gradu- ation). Hin frjálslega framkoma hennar og líkamslþroski, sem er mjög mikill eftir aldri, sýna að hún hefur ekki farið á mis við íþróttir og leiki og félagsskap jafnaldranna. Frá því hún komst á legg hefur hún verið öflug í leik sem starfi. Stundar hún ýmsar íþróttir, einkum tennis, skautahlaup og útreiðar. Steingrímur Arason. Hinn heimsfrægi, þýzki leik- stjóri Max Reinihardt, sem nú er nýlátinn 1 útlegð í Bandaríkjun- um, var ekki vanur að lesa sjálf - ur handrit að leikritum þeim, er honum voru send. Slíkt fól hann leikritalesendum sínum. Hins vegar las Reinhardt sjálfur leik- rit eftir allmarga gersamlega ó- þekkta höfunda. Hánn var van- ur því að sitja frá miðnætti og fram undir morgun í uppáhalds- veitingahúsi sínu í Berlín og ræddi þá leikhúsmál við kunn- ingja sína. Ungir og óþektir leik- ritahöfundar vissu um þetta. Voru þeir vanir að læðast inn i fatageymslu veitingahússins og spyrjast fyrir um það, hvar yfir- höfn Reinhardts héngi. Að fengn um upplýsingum um það, laum- uðu þeir leikritahandritum sín- um í frakkavasa Reinhardt’s. Á hverri nóttu fann hann alla vasa sína úttroðna af leikritum. “Þetta eru einu leikritin, sem eg les,” sagði Reinhardt. • Sagt er, að menn hafi ekki gaman af að reykja í myrkri, af því að þá sjá þeir ekki reykinn, sem þeir spúa út- úr sér. Þessi rótgróna skoðun virðist ekki rétt, því að fjölmargir blindir menn eru sólgnir í reykingar. Nýgerðaf SPORTJÖKKUM í þessu úrvali er að finna sport- jakka fyrir unga menn, miðaldra menn, og þá, sem þarfnast víðra' fata. Búnir til úr ull og baðmull. VERÐ: $13.95 !2Í!50 Men’s Clothing Section, The Hargrave Shops for Men, Main Floor. * T.EATON C? WINNIPEG LIMITED CANADA

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.