Lögberg - 22.02.1945, Blaðsíða 1
PIIONE 21374
4 vA
» i -»»i“l 1'
^Vuvvv^ i)ry cu.01
lM^CrC
A Complete
Cleaning
Institution
58. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 22. FEBRÚAR, 1945
NÚMER 8
Aðalræðumaður á
Islendingamóti
deildarinnar <Trón,,
Dr. Helgi P. Briem
Eins og frá er skýrt á öðrum
stað í blaðinu, flytur Helgi P.
aðalræðismaður íslenzku
rikisstjórnarinnar í New York.
r*ðu á íslendingamóti Þjóð-
r*knisdeildarinnar “Frón”, sem
ífam fer í Fyrstu lútersku kirkju
á þriðjudagskvöldið þann 27.
Þ- m.; verður þar einnig margt
annað til skemtunar og fróðleiks.
Pr- Helgi er fæddur á Akureyri,
f8- júní 1902, og er sonur þeirra
Eáls Briem amtmans og Álfheið-
ar Helgadóttur, Hálfdánarsonar
iektors; hann lauk stúdentsprófi
1 júní 1921, en embættisprófi í
hagfræði og stjórnlagafræði við
Kaupmannahafnar háskóla í
janúarmánuði 1928. Hann hefir
fengist all-mikið við ritstörf, og
arið 1938, sæmdi Háskóli íslands
hann doktorsnafnbót fyrir bók
hans Sjálfstœði íslands 1809
i&yltingin 1809), sem Þjóðvina-
f^agið gaf út. .
£*r- Helgi er kvæntur enskri
agaetiskonu, Doris Mildred Park-
er, og eiga þau eina dóttur barna.,
Áð,Dr. Helga standa göfugar
^ttir; enda kippir honum auð-
sJaanlega í kyn; hann er lærður
^naður vel, og eldlegur áhuga-
naaður á vettvangi mannfélags-
^alanna, eljumaður hinn mesti,
°§ spriklandi af lífsfjöri.
Lögberg býður Dr. Helga hjart
anlega velkominn til borgarinn-
ar.
leikhús LOKUÐ
Vegna VERKFALLS k
Una miðja fyrri viku, lokuðus:
i8 kvikmyndahús hér í borginni,
Vegna ágreinings um samtaka-
rett þess fólks, sem í þjónustu
eikhúsanna er; féll borgarbú-
Um það illa að geta ekki' farið
5 bíó.
HEIMSÆKIR aþenu
Áð lokinni þríveldastefnunni í
alta, brá Churchill forsætis-
raðherra sér til Aþenu, og flutti
par ræðu á megintorgi borgar-
lnnar fyrir miklum mannfjölda,
Vr auðsjáanlega fagnaði komu
nans.
Vér gerum allir mistök,” sagði
r- Churchill, “en af þeim höf-
^ vér jafnframt margt og mik-
laert; nú roðar fyrir nýjum
egi, eigi aðeins á framtíðar-
lrnni grísku þjóðarinnar, heldur
°§ allra annara þjóða, er frelsi
8 lýðræði unna.
SKIPULAGNING
FRIÐARÞINGS
Fregnir frá Washington á
fimtudaginn, telja það nokkurn-
veginn víst, að á hinum nýaf-
staðna fundi milli þeirra Churc-
hill, Stalins og- Roosevelt, sem
haldinn var í bænum Yalta á
Krímskaganum, hafi verið lagð-
ur grundvöllur að allsherjar
friðarþingi, að lokinni yfirstand-
andi heimsstyrjöld; það er jafn-
framt staðhæft að fullnaðarsig-
ur yfir Þjóðverjum flýti að
engu fyrir kvaðning slíks þings;
því verður ekki stefnt til funda,
fyr en Japönum hafi einnig ver-
ið komið á kné; en í millitíðinni
er ráðgert, að föst nefnd úr
flokki sameinuðu þjóðanna,
vinni að sátta- og viðreisnar
málum, þar sem brýnust sé
þörf slíkrar starfsemi, og stuðli
með því bæði beint og óbeint,
að undirbúningi friðarþingsins
sjálfs.
Þess er getið til, að væntan-
legt friðariþing verði haldið í
Versölum, þó það sýnist í raun-
inni nokkuð ólíklegt, vegna þess
hve margar dapurlegar endur-
minningar eru tengdar við friðar
þingið, sem þar var háð 1919.
Telja margir það fýsilegra, að
London, París eða WaShington,
verði fyrir valinu.
AUÐUGASTA TEKJULINDIN
Mr. W. R. Clubb, fyrrum ráð-
herra opinberra verka, og nú-
verandi forstjóri Áfengisverzlun-
ar Manitoba fylkis, skilaði rekstr
arskýrslu sinni stjórninni í hend-
ur í lok fyrri viku, og kom það
þá í ljós, að hreinn ágóði Áfengis-
verzlunarinnar á síðastliðnu fjár-
hagsári, nam fjórum miljónum
dollara; þegar áminst skýrsla
kom til umræðu í þinginu, kvaðst
Mr. Stubbs, sem er einn af þing-
mönnum Winnipegborgar, furða
sig á, að stjórnin skyldi ekki
verja einhverjum hluta þessara
feikna fjárhæðar til þess að
hækka vitund ellistyrkinn, því
nú væri síður en svo, að tóma-
hljóð væri í skuffunni; að þessu
loknu fór Mr. Stubb nokkrum
orðum um kosninguna í North
Grey, og úthúðaði Conservativ-
um fyrir smánarlega framkomu
á þeim orustuvettvangi, og tjáð-
ist þeirrar skoðunar, að þar hefði
verið um innantóman sigur fyrir
Mr. Bracken að. ræða.
ROOSEVELT FER TIL RÓM
Frá því var skýrt seinni parr
fyrri viku, að Roosevelt forseti
hefði ákveðið, að afloknum þrí-
veldafundinum á Krímskaga, að
heimsækja Róm, heilsa upp-á
páfann, og leita véfrétta hjá
sendiherra sínum við páfahirð-
ina, Mr. Taylor.
Eins og vitað er, var Mr.
Roosevelt mótfallinn íhlutun
brezkra stjórnarvalda um stjórn-
arfarið á ítalíu, og taldi það ríða
að einhverju leyti í bága við
grundvallarstefnu Atlantshafs-
sáttmálans, varðandi sjálfs-
ákvörðunarrétt þjóða; hefir hann
því komist að þeirri niðurstöðu
með sjálfum sér, að hyggilegast
væri, að kynnast með eigin aug-
um, stefnum og straumum í þjóð-
lífi Itala eins og nú hagar til,
og geta með því síðar meir veitt
þjóðþingi Bandaríkjanna óvil-
hallar upplýsingar viðvíkjandi
ítölsku málunum, ef svo byði við
að horfa.
Þá er það og fúllyrt, að Mr.
Roosevelt heimsæki einnig Frakk
land, ’og þá einkum og sér í lagi
með hliðsjón af því, að byrgja
frönsku þjóðina upp með iþær
lífsnauðsynjar, er hana, eins og
sakir stánda, mest vanhagar um.
Væntanlegur
á þjóðrœknisþing
ÞÝZKIR NJÓSNARAR
DÆMDIR TIL DAUÐA
Samkvæmt fregnum frú New
York þann 15. þ. m., hafa tveir
njósnarar fyrir Þjóðverja,
William Curtis Colenaugh, 26
ára, og Erich Gimpel, 35 ára að
aldri, verið fundnir sekir' um
andstyggilega njósnarstarfsemi
fyrir þýzku stjórnina víðsvegar
í Bandaríkjunum, og dæmdir til
lífláts; hinn fyrnefndi er fæddur
í Ameríku en sá síðarnefndi er
þýzkur þegn; höfðu þeir báðir
dvalið um hríð á Þýzkalandi, en
verið skotið á land í Bandaríkj-
unum af þýzkum kafbát.
Herra Árni G. Eylands
Samkvæmt símskeyti frá Dr
Richard Beck til séra Valdimars
J. Eylands, er væntanlegur hing-
að á næsta Þjóðræknisþing,
herra Árni G. Eylands, forseti
Þjóðræknisfélagsins á íslandi,
ritstjóri, ráðunautur og skáld;
hann kom hingað 1939, ásamt
frú sinni og á hér margt vina
frá þeirri heimsókn; herra Ey-
lands hefir á margan og mikil-
vægan hátt sýnt í verki velvild
þá, er hann ber í huga til Is-
lendinga vestan hafs, svo sem
með útbreiðslu Tímarits Þjóð-
ræknisfélagsins á Islandi, og
stuðningi við vestur-íslenzku
vikublöðin; fyrir þetta, meðal
annars, stendur íslenzka mann-
félagió í'þessán álfu við'hann i
djúpri þakkarskuld.
Lögberg býður herra Eylands
innilega velkominn á Þjóðræknis
þing.
LEITAR KOSNINGA
I SASKATCHEWAN
frá
HÖGGVA SKARÐ
í SKIPASTÖL JAPANA
Amerískir kafbátar hafa ný-
lega höggvið eitt skarðið enn í
skipastól Japana, og sökkt þrjá
tíu og tveimur skipum af ýmiss
;um stærðum, þar á meðal all
stóru beitiskipi.
Samkvæmt nýjustu skýrslum
frá flotamálaráðuneyti Banda
ríkjanna, hafa amerískir kafbát-
ar sökt í alt freklega þúsund
Japönskum skipum, síðan stríðið
braust út milli þessara tveggja
þjóða.
ÞRENGT AÐ BLAÐAÚTGÁFU
Svo hefir þrengt að blaðaút-
gáfu á Þýzkalandi upp á síð-
kastið, vegna manneklu, að ein-
ungis eitt kvöldblað kemur reglu
bundið út. í Berlín; einkablað
Goebbels, upplýsingaráðherra,
varð að hætta útkomu.
Samkvæmt áskorun
Liberal samtökunum í Qu-Ap-
pelle kjördæminu í Sask., má
telja víst, að hermálaráðheria inn
sambandsstjórnarinnar Gen#-ai
McNaughton, bjóði sig þar fram
við næstu sambandskosningar;
hann er innfæddur sonur þess
kjördæmis, og nýtur þar, sem
annars staðar, mikilla vinsælda;
kosningamoldviðrið ný afstaðna
í Grey North, varpaði að engu
leyti skugga á nafn hans; hið
sama verður naumast sagt um
ýmissa þá aðra, er að þeirri al-
ræmdu aukakosningu stóðu; þess
er vænst, að útnefningarfundur
Liberala í Qu-Appelle, verði
■haldinn í Grenfell þann 15. marz
næstkomandi.
ÁKAFAR ÁRÁSIR
ÁTOKYO
Seinni part vikunnar, sem leið,
gerði Bandaríkjaherinn eina ár-
ásina annari meiri á Tokyo, bæði
úr lofti og af legi, er orsökuðu
gífurlegt tjón; í viðureign þess-
ari mistu Japanir 32 skip og 528
flugvélar.
RAUÐI KROSSINN
íslendingadagurinn
Ýmsir hafa orð látið falla við
mig, um það, að þeir hefðu löng-
un til að vita, hverjir eiga sæti
í Islendingadags nefndinni í ár,
og óskuðu eftir að eg segði eitt-
hvað um það í blöðunum. Hér
með verð eg við þeirri ósk og
hér fara á eftir þeir, sem kosnir
voru í nefndina á síðasta árs-
fundi, ásamt þeim, sem ár áttu
eftir að starfa í nefndinni. Þessir
eiga sæti í nefndinni þetta ár.
Sigurbjörn Sigurðson.
Jochum Ásgeirsson.
Albert Wathne.
Snorri Jónasson.
Skúli Backman.
Hannes J. Pétursson.
G. F. Jónassoru
Mrs. S. E. Sigurðsson.
Steindór Jakobsson
E. A. ísfeld.
Davíð Björnsson.
E. P. Jópsson.
Stefán Einarsson.
W. J. Árnason, Gimli.
Th. Thordarson, Gimli.
Síðastliðið mánudagskvöld hélt
nefndin fund, og skipti með séc
verkum, þannig:
Forseti, G. F. Jónasson.
Vara-forseti, Hannes J. Péturs-
son.
Ritari, Davíð Björnsson.
Vara-ritari, Albert Wathne.
Féhirðir, Jochum Ásgeirsson.
Vara-féhirðir, Skúli Backman.
Eignavörður, W J. Árnason,
Gimli.
I einstakar nefndir, til undir
búnings hátíðahaldinu, var skip-
að, sem hér segir:
Programsnefnd.
Sigurbjörn Sigurðsson.
Steindór Jakobsson.
Albert Wathne.
Snorri Jónasson.
Upplýsinganefnd.
Einar P. Jónsson.
Stefán Einarsson.
Davíð Björnsson.
Auglýsinganefnd.
Snorri Jónsson.
Jochum Ásgeirsson.
Hannes J. Pétursson.
Medical Research
Council of Canada
Meðan eldur haturs og heiftar
brennir til agna vingjarnleg
þorp og fagrar borgir, eru ávalt
einhverjir á ferð með blys hugg-
unar og líknar í hendi; má þar
fremst í flokki telja Rauða Kross-
sem hefir bækistöðvar út
um allan heim, og er sýknt og
heilagt þar í nálægð, sem þörfin
er mest.
Með byrjun næsta mánaðar
hefst almenn fjársöfnun fyrir
Rauða Krossinn í þessu landi,
og þótt þörfin hafi oft verið
harla aðkallandi, hefir hún aldrei
verið brýnni en nú.
Fólkinu í Manitoba, er ætlað
að leggja fram $600,000 í þetta,
sinn, og það lætur vafalaust ekk:
sinn hlut eftir liggja, er til söfn-
unarinnar kemur; það hefir
ávalt brugðist vel við, og mun
svo enn gera.
ÞÚSUND
ATVINNULEYSINGJAR
SENDIR AUSTUR
Samkvæmt tilkynningu frá
aðstoðarverkamálaráðherra sam-
bandsstjórnarinnar, Mr. Mc-
Namara, verða 1,000 atvinnu-
leysingjar í Winnipeg, sendir
til Toronto og annar stórborga
eystra, þar, sem atvinna er
nægileg.
FYRRUM BORGARSTJÓRI
LÁTINN
Nýlátinn er hér í borginni Mr.
Frank O. Fowler, sá, er kjörinn
var borgarstjóri í Winnipeg árið
1922, hinn mesti atorku og sæmd-
armaður. Mr. Fowler var lengi
við kornkaup í þessari borg,
og gengdi, auk borgarstjóra-
embættisins, ýmsum öðrum trún-
aðarstörfum í þágu bæjarfélags-
ins; hann var 83 ára að aldri;
hjartabilun varð honum að bana.
íþróttanefnd.
E. A. ísfeld.
Skúli Backman.
Hannes J. Pétursson.
Snorri Jónasson.
Garðs- og flutningsnefnd.
Jochum Ásgeirsson.
Mrs. S. E. Sigurðsson.
Steindór Jakobsson.
Davíð Björnsson.
W. J. Árnason.
Þessar nefndir taka til starfa
strax, sumar af þeim. Má búast
við að vel og hyggilega verði
starfað að. til undirbúnings
hátíðahaldi íslendingadagsins
sem fram fer að Gimli næst
komandi 6. ágúst, sem er Civic
Holiday, og 56. þjóðhátíðardagur
íslendinga í Vesturheimi.
Davíð Björnsson.
TUTTUGU MILJÓN DOLLARA
FJÁRLÖG
Mr. Garson forsætisráðherra
Manitoba-fylkis, sem jafnframt
er fylkis féhirðir, hefir lagt
fram í þinginu frumvarp sitt til
fjárlaga fyrir næsta fjárhagsár,
og eru útgjöldin áætluð nálega
tuttugu miljónir dala; er þetta
nokkru hærri upphæð, en fjár-
lög síðasta árs.
Dr. P. H. T. Thorlákson
Fyrir nokkrum árum síðan,
var að tilhlutun leiðandi lækna
í Canada, og með aðstoð lands-
stjórnarinnar rannsóknarnefnd í
læknisfræði sett á stofn með
rannsóknarstofur að aðal aðsetri
í Ottawa.
I þessa nefnd voru valdir
menn fengnir. Flestir nafnkunn-
ir læknar úr Austurfylkjum
landsins. Einn héðan úr Vestur-
fylkjunum, landi vor Dr. P. H.
T. ThQrláksson og hefir hann
starfað í nefnd þessari nú í sjö
ár-og hefir það þýðingarmikla
starf verið ýmsum erviðleikum
bundið. Fyrst er fjarlægðin mikii
því fundir allir, sem oft hafa ver-
ið tíðir, verið haldnir í Austur-
fylkjunum, vanalegast í Ottawa
og hefir hann orðið að sækja
þá fu^di þegar kallið kom, og
vera í burtu frá hinu umfangs-
mikla starfi sínu í Winnipeg svo
dögum, og í sumum tilfellum vik-
um skipti. Á fundi aðalnefndar-
innar í nóvember í haust, benti
hann nefndinni á erviðleikana og
kostnaðinn, sem þessar ferðir sín-
ar hefðu í för með sér, og líka
það, að Vesturfylkin væru í svo
mikilli fjarlægð frá rannsóknar-
stofunni og rannsóknar nefnd-
inni í Ottawa að þau nytu naum-
ast áhrifa stofnunarinnar til
fulls, og gjörði tillögu úm að
sérstök rannsóknardeild, sem
stæði í sambandi við aðal Medi-
cal Research Council of Canada
yrði sett á stofn í Vesturfylkj-
unum.
Nú rétt nýlega fékk Dr. Thor-
láksson tilkynningu frá aðal
rannsóknarnefndinni um að
nefndin í Ottawa hefði aðhyllst
uppástungu hans um að mynda
Medical Research deild í Vestur-
fylkjum Canada og að hann
hefði verið kjörinn til að skipu-
leggja og mynda hana með að-
stoð tveggja manna. Prófessor
J. B. Collip, forseta Medical
Research nefndarinnar í Ottawa,
fyrrum samverkamanns Sir.
Frederick Banting, sem nú er
Prófessor við McGill háskólann
í Montreal og Professor G. H.
Etting, frá Queens háskólanum i
lingston, Ont., sem er og'ritari
aðal rannsóknar nefndarinnar.
Dr. Thorlákson og þessir fél-
agar hans lögðu upp í þessa
embættisferð á laugardaginn var
frá Winnipeg. Var ferðinni fyrst
heitið til Regina í Saskatchewan
þar sem fyrsti fundur þeirra
verður haldinn, ánnan fund
halda þeir í Edmonton og þann
þriðja í Vancouver.
Dr. Thorlákson bjóst við að
þeir yrðu að minsta kosti viku
í ferðinni.
J. J. B.