Lögberg - 22.02.1945, Síða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 22. FEBRÚAR, 1945
Einátaklingurinn
og heimilið
Þegar eg hugsa um það gildi,
sem hver einstakur maður hefur
fyrir heimili sitt, og þau áhrif,
sem hann kann að hafa á um-
hverfið, þá kemur mér í hug
hinn gamli málsháttur: “Dregur
hver dám af sínum sessunaut”,
og sú falslausa fullyrðing raun-
veruleikans, að ekki þurfi nema
“einn gikk í hverri veiðistöð”
Hvorutveggja virðist vera jafn
táknrænt fyrir þessi mál.
Þó að ein mannssál sé tiltölu-
lega veik og vanmáttug í hinni
hörðu lífsbaráttu, þá er henni
þó gefinn furðulega mikill mátt-
ur til að hafa áhrif á umhverf:
sitt, bæði til góðs og ills.
Auðvitað eru einstaklingarnir
misjafnlega máttugir til að móta
þá menn, sem þeir umgangast,
og setja sinn svip á þá staði, sem
þeir dveljast á, en flestum, ef
ekki öllum, mun þó vera gefinn
einhver möguleiki til slíks. Ein-
stöku manni er gefinn sá eigin-
leiki, að geta náð valdi yfir hin-
um ólíkustu persónuleikum, að
geta mótað þá eftir eigin geð-
þótta, svo að þeir fái á hugarfar
sitt, orð og athafnir þann blæ,
sem hvílir yfir honum sjálfum.
Sé þessi maður búinn glæsileg-
um kostum, þá verður heimili
hans, og alt hið nánasta um-
hverfi, eins og fagur skrúðgarð-
ur, þar sem hinar sundurleitustu
jurtir vaxa hlið við hlið, við
sama geislablikið og sama dögg-
svalann, og sérhver þeirra send-
ir frá sér allan þann ilm, sem
hún á yfir að ráða, svo að and-
rúmsloftið verður höfugt af ang-
an. Á slíkum stað er unaðslegt
að dvelja, þar verður öllum rótt
í geði og hlýtt um hjarta, mest
fyrir áhrif eins manns, sem hlaut
mikla verðleika í vöggugjöf og
eignaðist vilja, þrek og hæfi-
leika til að gera þá að sterku,
skapandi afli, um leið og hann
tók sér stöðu á leikvelli hins
starfandi lífs. — Þetta er fagurt
vitni um gildi hinna góðu áhrifa
einstaklingsins fyrir heimih
hans.
En því miður mætir oft aug-
um okkar önnur mynd, sem
hvorki er fögur né göfgandi, en
eftirtektarverð eigi að síður. —
Það er mynd af manni, sem hef-
ur sömu hæfileika til að vinna
menn, en sem neytir þeirra á
þveröfugan há,tt, vegna þess að
hugarfar hans og stefnumið er
bein andstæða hins fyrnefnda
manns. Þessi maður notar sér
undirgefni og tiltrú fólksins, sem
lýtur honum, aðeins sér í hag,
til þess að eins að upphefja sjálf-
an sig og auka sína dýrð. Verið
getur, að þessi náungi komi sér
vel í fyrstu, en brátt kemur það
í ljós, að áhrif hans hafa verið
á þann veg, að þau hafa rótnag-
að marga af þeim stofnum, er í
umhverfi hans standa, og vald-
ið því, að þær jurtir, sem áður
voru góðar og gagnlegar, eða í
það minsta meinlausar, eru alt í
einu orðnar að einskonar illgresi,
er smeygir rótum sínum inn í
hvern krók og kima, þar sem
því verður við komið. Þetta er
hin skýra og raunverulega mynd
áf “gikknum í veiðistöðinni” —
manninum, sem kom óþektur og
framandi inn í lýtalítið umhverfi,
og bar með sér áhrif, sem ollu
því, að þar varð von bráðar ó-
holt andrúmsloft.
Sem betur fer, er margt bæði,
karla og kvenna, sem breytir
samkvæmt hinni betri mynd, en
andstæðan, “gikkurinn í veiði-
stöðinni”, skýtur hinsvegar ónota"
lega oft og óþarflega víða upp
kollinum og veldur breytingun-
um til hins verra. Oft er það
svo, að þeir menn, sem mest
völd hafa á heimilinu, svo sem
húsbændur og húsfreyjur, era
máttugri til áhrifa en hinir, sem
lægra eru settir, vegna þess að
oftast er tekið meira mark á
orðum og gjörðum þeirra, er of-
ar standa. Engu að síður er það
staðreynd, að tæplega mun txl
sá maður, sem ekki hefur ein-
hver áhrif, annaðhvort góð eða
ill, á þá, sem með honum starfa
og stríða að staðaldri. Ekki þarf
hann ætíð að hafa svo mikil og
mótandi áhrif á samstarfsmenn
sína, að þeir breyti fyrir það
raunverulega störfum sínum og
stefnum, en hann kemur þó að
minsta kosti inn hjá þeim ein-
hverjum hugblæ, sem er ein-
kennandi fyrir hann og sem ræð-
ur miklu um það, hvernig þær
minningar verða, sem við hann
eru bundnar. — Við finnum það
öll, að við erum ekki nokkurrx
manneskju samtíða, sem nokkru
nemur, svo, að við gerum okkur
ekki einhverjar hugmyndir um
hana, annaðhvort góðar eða ill-
ar. Annaðhvort fer okkur, með
vaxandi viðkynningu, að þykja
vænt um hana, eða þá, að okk-
ur fellur hún ekki betur í geð
en það, að við sneiðum heldur
hjá henni, þegar okkur er það
unt.
Þeir persónuleikar eru aðvitað
til, sem eru svo óákveðnir og
sviplitlir að varla er hægt að
myncja sér um þá nokkra á-
kveðna skoðun, eða eignast um
þá nokkra varanlega minningu.
En eigi getur þó hjá því farið,
að þeir eigi sín séreinkenni, sem
við tökum eftir við nána kynn-
ingu og sem valda því, að við
minnumst þeirra, þegar við mæt-
um skyldum manntegundum
seinna á lífsleiðinni. — Öll rök
virðast því hníga að því að gefa
málsháttunum, sem eg nefndi í
upphafi, sannleiksgildi, sem ekki
verður véfengt. — Tökum eitt
dæmi: Ef maður, sem er mjög
spaugsamur og hæðinn kemur
Hugheilar árnaðaróskir
flytjum vér hér með öllum vorum mörgu, íslenzku
viðskiptavinum, í tilefni af Frónsmótinu og ársþingi
Þjóðræknisfélagsins. Vér höfum, enn sem fyr við
hendi byrgðir af ágætasta byggingarefni, og getum
því ávalt fullnægt þörfum íslendinga í þeirri grein.
u.Wjnnhrcgpjijnt
&GIass cíu.
inn á ókunnugt heimili og dvel-
ur þar lengi, fer oft svo að lok-
um, að flestir, ef ekki allir, á
heimilinu fylgja honum í því að
glotta að því, sem broslegt ér í
fari náungans og draga dár að
því, sem aflaga fer í umhverf-
inu, enda þótt þetta fólk hafi
ekki áður verið hæðnara en al-
ment gerist. — Einkum verður
þetta áberandi, ef maðurinn er
í mjög miklu dálæti á heimili
sínu, þá verða áhrif hans eðli-
lega tvöfalt sterkari.
Tökum annað dæmi: Maður
sem er mjög bölsýnn, haldlyndur
og eigingjarn, hefur von bráðar
áhrif á þá, sem hann er dag-
lega samvístum við, þeir verða
vantrúaðir á gæfuna og göfgina
og sjóndaprir á fegurðina í hvaða
mynd, sem hún birtist. Þéir verða
óþýðir í viðmóti og kaldir fyrir
tilfinningum annara, en þungt
hugsandi yfir krónum sínum og
aurum og öllu því, er snertir
tímanlega velgengni hinnar líð-
andi stundar. Afleiðingin er sú,
að þessu fólki hættir til að vera
haustsálir í myrkvastofu óá-
nægju og úlfúðar í stað þess að
’vera vorsálir í ríki friðar og kær.-
leika.
Heimili! Það er hljóðlátur un-
aður, friður og hlýja í því orði,
og hugtakinu, sem það túlkar.
Heimilið er vermireitur einstakl-
ingsins, eins og gróðrarstöð eðlis-
þátta hans. Það er mesta gæfan,
sem nokkrum manni getur hlotn-
ast, að eiga gott heimili, sóx-
(Frh. á bls. 7)
Kveðjur til fulltrúa
þjóðræknisþingsins!
UNITED GRAIN GROWERS
LIMITED '
Hamilton Bldg., Winnipeg
/Zoo&taod fylcHueSi SluÞp.
Roses, Orchids, Floral designs and Decorations
Choice flowers and plants
253 Notre Dame Ave., Winnipeg
Shop Phone 27 989 Res. Phone 36 151
C-I-L SVARAR SUMUM
SPURNINGUM YÐAR
VARÐANDI
\
1. HVAÐ ER IÐNAÐAR EFNA-
FRÆÐI? Iðnaðar efnafræði táknar
það. að tiltölulega fá grunnefni eru
tekin I notkun, og þeim breytt með
töfrum efnavísindanna, að þau taka
á sig nýjan blæ, og hafa djúp áhrif
á iðju og heimilishald.
3. 1IVAÐA' NOT GERA PESSIR
HLIJTIR? Úr sodium fæst snarpt
soda, sem notað er í sápu, viss
sprengiefni, smurningsar og “Cel-
lophane”. Chloraine er vnotað við
dúka- og pappírsiðnað, við þurhreins
un fata, málmiðju og eins til að
hreinsa neyzluvatn.
5. IIVAÐA ÁHRIF HEFIR pETTA
Á EINSTAKLINGINN? pað þýðir,
að með tilstyrk vísindanna eru búin
til hráefni, sem verksmiðjur vinna
úr f stórum stíl, en við það skapast
atvinna fyrir mörg hundruð manns.
Nær, sem vera vill geta ný fyrirtæki
risið upp í Canada vegna efnavfs-
indanna.
2. GETIÐ pÉR SÝNT DÆMI UPP
Á PETTA? Já. Tökum til dæmis
salt; þvf er dælt upp úr jörð í
lagarformi; sumt af þvf er þurkað,
hreinsað, og notað með mat, en
nokkuð leysiSt upp í sodium og
chlorine.
4. HVAÐ ER UM SKYLDLEIKA
VlSINDALEGRA .......VÖRUTEG-
UNDA? I mörgum tilfellum, þar sem
um iðnaðarefnagerð ræðir, koma
fram hliðstæðar tegundir, sem reyn-
ast vel. pær má nota í sprengiefni,
og f þeim felst brennisteinssýra, sem
hotuð er f áburð. Efnavísindin hata
ðhðf.
6. HVAÐ ER CANADIAN INDUST-
RIES LIMITED? C-I-L er iðnaðar
efnavfsindafðlag. Starf þess er að
framleiða hvað, sem unt er, úr cana-
diskum hráefnum þær efnategundir
sem nauðsynlegar eru iðnaðarlífinu
í Canada. C-I-L hefir átt frumkvæði
að mörgum nýjum iðngreinum f
Canada, svo sem framleiðslu “Cel-
iophane” og nylon. '
t
y
CANADIAN INDUSTRIES LIMITED
Þjóna Canada
með efnavísindum