Lögberg - 22.02.1945, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 22. FEBRÚAR, 1945
7
FLJÓTVIRKIR
^ithöfundar
Enginn mælikvarði er til um
það, hve fljótir rithöfundar séu
yfirleitt að semja bækur sínar.
Sumir eru afar lengi og ma'rg-
velta hverri setningu fyrir sér,
en aðrir hafa ekki við, að festa
hugsanir sínar á pappírinn. Lík-
lega hefir Alexander Dumas,
eldri, hraðamet meðal rithöf-
unda, því að hann samdi 52 bæk-
ur á einu einasta ári. En að vísu
notaði hann þá aðferð að segja
aðstoðarmönnum sínum fyrir
og láta þá skrifa, en leiðrétti svo
sjálfur á eftir. En þetta var vel
af sér vikið samt. — Sir Arthur
Conan Doyle, hinn frægi höf-
undur að Sherlock Holmes-sög-
unum, skrifaði einu sinni 12.000
orða sögu í einni lotu, án þess
að standa upp frá skrifborðinu
á meðan. Og um hann er einnig
sagt, að eitt kvöld hafi kunningi
hans setið hjá honum og verið
að segja honum frá glæp, sem
hafði verið drýgður þá um dag-
inn. Morguninn eftir sýndi
Conan Doyle kunningjanum
nýja Sherlock Holmes-sögu, sem
hyggðist á þessum glæp. Hann
hafði skrifað hana áður en hann
fór að hátta. — H. G. Wells hefir
oft skrifað um 10.000 orð á dag.
NAFNSPJALDIÐ
á rót sína að rekja til Kín-
verja. Þeir hafa jafnan haft í
heiðri ítrustu kurteýsissiði í sam
bandi við heimsóknir, og það
hefír sannast að meira en tvö
þúsund ár eru liðin síðan farið
var að nota nafnspjöld við heim-
sóknir í Kína. Á síðustu árum
oota þeir mjög stór nafnspjöld,
hárauð að lit. Kínverjar haía
yfirleitt verið langt á undan vest
urlandabúum um ýmiskonar sið-
uienningu og hugvit. Þeir gerðu
fyrsta áttavitann árið 1122 f. Kr.
Pappír voru þeir farnir að gera
ú fyrstu öld e. Kr. og gler
skömmu síðar. Þeir þekktu prent
hst árið 932 og höfðu snemma
vit á læknalyfjum. Og árið 2852
f- Kr. voru málmpeningar í um-
forð í Kína. Og fleira mætti telja
því til sönnunar, að Kínverjar
voru til forna langt á undan
vesturlandabúum. Til dæmis
smíðuðu þeir hljóðfæri, sem eng-
um hefir tekist að eftirlíkja á
síðari öldum.
góður SKILDINGUR
f ríkisstjórnartíð sinni lét
Napoleon slá mynt, 5 franka
Pening. Til þess að gera þennan
Pening vinsælan og að keppi-
hefli tilkynnti stjórnin, að innan
1 einum peningnum væri ofur-
lítill seðill með undirskrifl;
Napoleons sjálfs, og yrði hand-
hafa hans greiddar fimm miljón-
lr franka úr ríkissjóði. Þetta þarð
fil þess að margir vildu eignast
þessa peninga og hjuggu þá í
tvent til þess að leita að seðlin-
yua, en aldrei fannst hann. Sum-
lr telja, að rétti peningurinn hafi
lent á einhverju myntsafni.
Hann hefir aldrei komið fram
°g heldur ekki eftir að þessi
^ynt var innkölluð og tekin úr
umferð. En talið er að fanska
stjórnin myndi enn standa við
§efið loforð ef peningurinn
hmmi fram.
Einstaklingurinn og
heimilið
(Frh. af hls. 2)
^ht, sviphreint og ilmandi um-
verfi, þar sem hann getur not-
skjóls og hvíldar eftir storm-
PUnga og áreynslu utanaðkom-
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðar
andi umsvifa og anna. Sá mað-
ur, sem á ekkert varanlegt heim-
ili, verður festulítill og rótlaus
og fer margs á mis.
Þegar við hyggjum vandlega
að því, hvers virði heimilin eru
okkur, þá ættum við að reyna að
leggja okkur fram um það að
gegna trúlega hinni helgu skyldu
sem hverjum einstaklingi er á
herðar lögð, skyldunni að reyna
að vanda þannig dagfar okkar,
að það verði heimilum okkar ti!
sæmdar og prýði, en ekki hið
gagnstæða. Okkur finst, ef til
vill, æði oft að heimilum okkar
sé í mörgu ábótavant, og okkur
hættir til að gera óánægjuna yf-
ir því nokkuð áberandi, og við
látum hana stundum bitna á
þeim, er síst skyldi. En við gæt-
um ekki að því, að um leið og
við dómfellum annmarkana og
fárumst yfir þeim, gerum við
heimilislífið enn þungbúnara,
þurrara og kaldara en það var
áður, í stað þess að bæta það og
fegra með því að leita í kyrþey
að meinsemdinni og reyna að
lækna hana. Það væri auðvitað
hin eina rétta leið, en hún er
stundum talsvert torsótt, eins og
flestar þær leiðir, sem réttastar
eru og hamingjudrýgstar.
Mér finst, að það muni vera
gott fyrir okkur öll að festa okk-
ur í minni þessar gullfögru ljóð-
línur skáldsins vestur-íslenzka:
Hvert sem leiðin þín liggur,
þá líttu æ hýr,
þar sem sárdöpur sorgin
í sinninu býr —
sérhvert hugtak og handtak
sé hlýlegt og þýtt,
sérhvert orðtak og andtak
sé ástlegt og blítt.
Sérhvert vinarorð vermir
sem vorsólarljós,
sérhver greiði og góðvild
er gæfunnar rós. —
Hvort sem leiðin þín liggur
um lönd eða höf
gefðu sérhverjum sumar
og sólskin að gjöf.”
Þetta er holl og fögur lífs-
regla, sem allir myndu hafa gott
af að hugleiða og reyna að breyta
eftir. Hver einstaklingur á mein
þátt í því en hann heldur, að
skapa sinn heimilisbrag og sína
heimilishamingju. — Önuglyndi
og eigingirni — já, ein óþýðleg
hugsun, eitt kuldalegt, ógætið
orð veldur þunga og kulda í and-
rúmsloftinu, en
“sérhvert vinarorð vermir
sem vorsólarljós,
séhhver greiði og góðvild
er gæfunnar rós.”
Eftir því sem við sjálf erum
hlýrri og prúðari í umgengni á
heimilum okkar, eftir því hljót-
um við þar líka meira af “sumri
og sól”, og eignumst þannig auð,
sem aldrei að eilífu verður frá
okkur tekinn. — Göfgi einstakl-
inganna eykur unað og öryggi
heimilanna, og góð heimili skapa
fegurð og gróanda þjóðlífsins í
heild, og eru því einskonar fjör-
egg þjóðfélagsins.
Einstaklingurinn á yfir mikl-
um og margvíslegum rétti áð
ráða, og ef hann notar þann rétt
vel og viturlega, eignast hann
sterkan og virkan þátt í því að
skapa “gróandi þjóðlíf með þverr
andi tár, sem þroskast á guðs-
ríkisbraut”.
Jórunn ólafsdóttir,
Sörlastöðum í Fnjóskadal.
Hlín.
GUNDRY-PYMORE
LIMITED
300 Years Experience As Net and Line Makers
Agent: T. R. THORVALDSON — Phone 98 211
Your Patronage Will Be Appreciated
60 VICTORIA ST., WINNIPEG, MANITOBA
Notið
HAPPY GIRL
HVEITI
í alla yðar bökun
SOO LINE MILLS LIMITED
HIGGINS OG SUTHERLAND, WINNIPEG
itiulií|»li* taxe$
II your estate contains foreign
assets, they may be subject to foreign taxation as well
as to Dominion and Provincial Succession Duties.
Similarly, some of your Canadian assets may be
liable to taxation in more than one of our own
Provinces. An agrecment has just been completed
between Canada and the United States, to avoid this
overlapping taxation between thé two countries.
Other reciprocal agreements are pending or under
consideration. Why not consult our Officers on
these multiple taxes; they will be glad to give you the
benefit of their information and experience, looking
towards a well-considered plan for your estate. A
consultation will place you under no obligation.
T0R0NT0 liENERAl TKUSTS
CORPORATION WINNIPEG: PORTAGE AVE. AT SMITH ST.
VELKOMNIR
íslenzku vinir /
Samvinnustefnan á enga hollari stuðningsmenn og vini, en horgara
af íslenzkum stofni, sem hér húa meðal vor; forfeður þeirra lœrðu snemma
að meta gildi samstarfsins, og með því lögðu þeir grundvöll að þjóðfélagi,
sm vakið hefir athygli vítt um heim, vegna menntunar- og menningar-
legs þroska; landi voru varð mikill gróði að innflutningi fólks frá Islandi.
Nú hefir verið ráðist á samvinnustefnuna í þessu landi, og vér vitum,
að fáir komi henni til traustari varnar en Islendingar.
CANADIAN CO - OPERATIVE
WHEAT PRODUCERS
WINNIPEG
. \
MINITOBA POOL ELEVATORS, WINNIPEG, MAN.
SASKATCHEWAN CO-OPERATIVE PRODUCERS,
REGINA, SASK.
ALBERTA WHEAT POOL, CALGARY, ALBERTA
Hugheilar árnaðaróskir
s
til íslenzka mannfélagsins
í tilefni af
Hinu tuttugasta og sjötta ársþingi
Þjóðrœknisfélags ísl. í Vesturheimi
Keystone Fisheries
LIMITED
SCOTT BLOCK - - - WINNIPEG
i
— S í M I 95 227 —
G. F. JÓNASSON, forátjóri
J