Lögberg - 15.03.1945, Side 5

Lögberg - 15.03.1945, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. MARZ, 1945 5 ÁHlieAMÁL IWCNNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Móðir hinna frægu Compton systkyna Fyrir nokkrum áru.m var kona nokkur að nafni Otelia Compton s®md heiðursdoktors nafnbót af háskóla í Ohio ríkinu, fyrir frá- baera- frammistöðu, sem eigin- kona og móðir. Að lokinni at- höfninni hraðaði hinn nýji dokt- °r sér heim aftur, í gamla, frem- Ur fátæklega heimilið sitt, því Otelia Compton hefur aldrei langað til að verða fræg, og hún er það heldur ekki. en börnin hennar öll, fjögur, hafa fyrir jöngu öðlast mikla viðurkenn- ingu og jafnvel heimsfrægð fyr- ir lærdóm og afrek á ýmsum sviðum. Karl, elsti sonur þeirra Comp- fon’s hjóna, er víðkunnur eðlis- íraeðingur og veitir forstöðu hinni miklu vísindastofnun, Massachusetts Institute of Tech- nology; ,Mary, dóttir þeirra er skólastjóri við trúboðsskóla á Indlandi og gift forseta Allah- had Christian College; Wilson er kunnur hagfræðingur og lög- fræðingur en Arthur, yngsti son- Ur þeirra er heimsfrægur vís- indamaður og hefur hlotið Nobel Verðlaunin í eðlisfræði (Phys- lcs). Compton systkinin hafa verið sæmd nafnbótum við ^arga háskóla og kjörin heiðurs- ^hlagar í mörgum vísinda og naenningar félögum. h’egar móðirin, Otelia Comp- t°n var heiðruð með doktors Uafnbót, fór blaðamaður einn á fund hennar til þess að grensl- ast eftir því hvaða uppeldisað- ^erð hún hefði viðhaft, sem bar svona glæsilegan árangur. Fað- lrinn Elias Compton var kenn- ari 1 heimspeki við Wooster Col- e§e, í 45 ár. Laun hans voru af skornum skamti eins og venju- ie§a á sér stað um kennara. Þeg- ar þau voru að ala upp börn sín, naihu laun hans aðeins um 1400 hollurum á ári. Og Elias Comp- f°n sagði að hann væri aðeins einn af drengjunum hennar OteUu og það væri mest henni a® þakka hve börnin hefði heppn ast vel. Otilia Compton, neitaði því að un hefði nokkra sérstaka að- erð til þess að ala upp afburða- ^nn og konur en við þrálátar aPurningar blaðamannsins, varð Un þó að kannast við að hún Uefði ákveðnar skoðanir í sam- oandi við uppeldi barna, og hér er á eftir útdráttur úr viðtalinu Vlð hana: ^ið notuðum biblíuna og al- ^enna skynsemi”, sagði Mrs. 0rnpton, en hún er kona trú- r®kin og veitti forstöðu í 35 ár, veimur trúboða barnaheimilum yrir Presbyerian kirkjuna og . e^ur þannig haft áhrif ekki að- ems á líf sinna eigin barna, held- Ur a hundruð önnur börn. Mrs. Compton fanst að langt °f margir hefðu þá trú nú á „ °§um, að börn þeirra hefðu ekkert tækifæri”. Þetta fannst enni afturhvarf til miðalda Ugsunarháttur, þegar lægstu sfóttir mannfélagsins áttu ekki uPpreisnarvon. “Ef að foreldrar trúa því að börn þeirra hafi ekki ækifaeri, þá er ekki líklegt að Pau veiti þeim .þau og börnin sJalf smitast af þessum uppgjaf- ar hugsunarhætti.” Hin ungu °mpton systkini hefðu aldrei engið tækifæri, ef foreldrar þeirra hefðu álitið að fjárskort- ,Ur yæri óyfirstíganlegur örðug- eiki, því eins og fyr er getið var ekki ríkidæminu til að dreyfa Ja Comptons hjónunum. Mrs. Compton lagði sterka á- erzlu á það, að heimilið og eimilislífið ætti að vera aðal áhrifavaldið á uppeldi barnanna. “En hið sorglega við lífið í Ameríku er það, að heimilið er að verða að aukaatriði, nú þegar jörfin fyrir heilbrigt heimilislíf er meiri en nokkru sinni fyrr. Foreldrar gleyma því að hvorki skólinn né heimurinn getur um bætt eða betrað þau börn, sem koma fullmótuð úr slæmu heim- ili; þau gleyma því að þeirra fyrsta skylda er skyldan gagn- vart börnunum.” Fyrst af öllu ættu foreldrar að * hafa það í huga að ekki er lík- legt að börnin verði betri en þau eru sjálf. Mæður og feður sem jagast eða svalla, þurfa ekki að furða sig á því ef börnin taka það eftir þeim. í öðru lagi ættu foreldrar að reyna á allan hátt að ávinna sér tiltrú barnanna, svo þau verði þeim ekki sem ókunnug, og fari til drengjanna úti á strætinu eft- ir ráðleggingum. Foreldrar ættu að útskýra fyr- ir barninu alt það, sem þau gera, sem því viðvíkur, jafnvel þegar barnið er kornungt. Á þann hátt kemst sú hugsun inn hjá barn- inu að því hafi verið sýnt rétt- læti og við það þroskast rétt- lætistilfinning þess gagnvart öðr um. Sú móðir eða sá faðir, sem hlær að hinum “flónskulegu” hugmyndum barnsins, gleymir því að barninu finnst ekki þessar hugmyndir flónskulegar. Þegar Arthur var 10 ára gam- all, skrifaði hann ritgerð og deildi á sérfræðinga um ástæð- una fyrir því að sumir fílar hafa þrjár tær en aðrir fimm. Hann kom með ritgerðina til mín til þess að láta mig lesa hana. Eg átti bágt með að verjast hlátri, en eg vissi hve alvarlega hann tóH hugmyndir sínar svo eg sett- ist hjá honum og fór að athuga þessar hugmyndir með honum. Arthur, sá er vann Nobel verð- launin var viðstaddur. Hann greip fram í: “Ef þú hefðir hleg- ið að mér þann dag, þá held eg að þú hefðir kæft löngun mína til rannsókna.” “Ástæðan fyrir því, að margir foreldrar hlægja að börnum sín- um,” sagði Mrs. Compton, “er sú að þau hafa engan áhuga fyrir þeim málefnum, sem barninu er efst í huga. Það er ekki nóg að hvetja barnið til að læra; for- eldrarnir verða að taka þátt í áhugamálum þess. Þau verða að vinna og læra með barninu. Ef foreldrarnir hafa ekki þekkingu á þeirri námsgrein, sem barnið hefur áhuga fyrir, þá er það skylda þeirra að menta sig í þeirri námsgrein. Ef þau gera það ekki og barnið kemst að þekkingarskorti þeirra, þá tapar það virðingu fyrir þeim”. Þegar Karl var 12 ára þá skrif- aði hann “bók” um bardagaað- ferðir Indíána. Á sama tíma hafði Mary mikinn áhuga fyrir mál- fræði; Wilson hafði allan hug- ann á boltaleik en Arthur á stjörnufræði. Alt þetta til samans, bardaga- aðferðir Indíána, málfræði, bolta leikur og stjörnufræði hefði sennilega komið lítHhæfri konu til að örvænta, en Otelia Comp- ton kynnti sér allar þessar ó- líku námsgreinar, til þess að geta fylgst með börnum sínum í á- hugamálum þeirra. Þegar börnin voru ung, fór móðir þeirra með þau á sumrin út í ríki náttúrunnar í Norður- Michigan og bjó þar með þeim í tjaldi Þar lærðu þessi borgar börn að lifa einföldu lífi, og vinna. Þar námu þau leyndar- dóma náttúrunnar. Þegar drengirnir stálpuðust þá fengu þeir sér atvinnu á sumrin og einnig í frístundum sínum, þegar þeir gengu á há- skólann og öðluðust þannig hald- góða reynslu. Þeir höfðu sína eigin bankareikninga. “Ekki vegna þess að við vildum að þeir dýrkuðu peninga”, sagði móðir þeirra, “en við vildum að þeir lærðu að peningum, hvort sem þeir eru miklir eða litlir, á ekki að eiða í óþarfa.” Ástundunarsemi taldi Mrs. Compton vera fyrsta skilyrðið til frama, ástundunarsemi, sem beitt er í rétta átt, þannig að barnið eða unglingurinn vinni að verkefninu vegna áhuga fyr ir sjálfu verkefninu. “Hvað er rangt við það að vinna fyrir peninga?” spurði blaðamaðurinn. “Alt”, sagði Mrs. Compton og hvesti málróminn, “að kenna barninu að vinna fyrir peninga vegna peninganna sé virðingar vert, er það sama og að kenna því, að það eina sem sé nokkurs virði sé það, sem heimurinn kall ar að komast áfram eða að verða ríkur. Slíkt á ekkert skylt við nytsemi eða hamingju. En foreldrar kenna börnunum þetta og skólarnir kenna þetta og afleiðingin er sú að fólk, almennt, heldur að peningar þýði það sama og hamingja. Sá maður, sem lifir fyrir peninga, fær aldrei nóga peninga og hann heldur að það sé þess vegna að hann sé óánægður. En hin raunverulega orsök óánægju hans og vansælu er sú, að honum hefur verið sett rangt stefnumið í lífinu. “Hvað áttu við með því að for eldrar og skólarnir “kenni” börnum að peningar þýði það sama og hamingja?” spurði blaða maðurinn. “Eg á við alt þetta skraf um ‘arðvænlegar stöður’, og lærdóm sem sé ‘praktiskur’ ” sagði Mrs. Compton. Það á að kenna börn unum að hugsa en hugsunin er ekki ávalt “praktísk”. Það á að hvetja börnin til að þroska sér gáfur sínar en ekki þröngva þeim til þess að velja sér ein- hverja arðvænlega stöðu til þess að keppa að. “Þegar börnin okkar voru í mið skólanum, spurði einn kunningi okkar, Elias að því, hvað þau ætluðu sér að verða. Svar hans var: ‘Eg hefi ekki spurt þau að því’. Sumum nágrönnum okkar fannst það flónskulegt, þegar við keyptum kíkir handa Arthur og lofuðum honum að sitja uppi um nætur við að lesa stjörnurnar. Þetta athæfi var ekki ‘prakt- iskt’ En það var þessi ‘praktiska’ ást hans á stjörnunum, sem ávann honum Nobel verðlaunin um $20,000, og til þess að hann geti haldið áfram rannsóknum sínum viðvíkjandi cosmic geislunum hefur Chicago háskólinn varið alt að $100,000 til þess að byggja og útbúa rannsóknarstofur handa honum. Þegar blaðamaðurinn hugsaði til Compton systkinanna fjögra, þá komst hann að þeirri niður- stöðu að þessir ópraktisku for- eldrar væru í raun og veru prakt- iskari eða hagsýnni en flestir aðrir. máls og voru allir ræðumenn því nauðsynjamáli mjög með- mæltir. Það sýnist eindreginn vilji allra meðlima deildarinnar að þessu elliheimilismáli sé gefinn sérstakur gaumur, og að slíkt heimili verði reist í Blaine, sem allra fyrst, að heimilið verði fyr- ir alla aldraða íslendinga og að heimilið verði reist með hjálp allra góðra landa, sem fúslega vilja leggja hönd á plóginn, að heimilið verði vistlegt og í alla staði eins fullkomið og frekast verður unt að hafa það. Eftir ítrekaðar umræður sam- þykkti fundurinn að kjósa 5 manna nefnd til þess að sjá um undirbuning og framkvæmdir í máli þessu, í nefndinni eru þess- ir: Séra Guðm. P. Johnson, for seti nefndarinnar, séra Albert Kristjánsson yara-forseti, Mr Andrew Danielson skrifari, Mr Jóhann J. Straumfjörð féhirðir og Mr. Guðjón Johnson vara féhirðir. Nefnd þessi hefir nú þegar tekið til starfa, og ætlar sér, að öllu forfallalausu að hrinda þessu göfuga og lífs- nauðsynlega þjóðræknis starfi til framkvæmda eins fljótt og skil- yrðin leyfa. Þriðja málið var, að Aldan skyldi halda hátíðlegan þann 17. júní n. k., og vildi þá efna til myndarlegrar gleði og skemti- samkomu í Blaine, og að hátíða- haldið fari fram í bezta sam- komusal Blaine bæjar, og að vandað verði til þessa hátíða- halds af fremsta megni, svo eft- ir nokkrar fjörugar umræður var kosin 5 manna nefnd til þess að undirbúa og sjá um hátíða- haldið 17. júní. Formaður þeirr- ar nefndar er Mr. Sigurður H. Helgason tónskáld og söngstjóri, hinir í nefndinni eru Mr. Gestur Stefánsson, Mr. J. J. Straum- fjörð, Mr. Helgi Steinberg og frú Margrét Johnson. Því næst var gengið til kosn- inga nýrra embættismanna fyr- ir árið 1945, og hlutu þessir kosn- ingu: Séra Albert Kristjánsson forseti, Mr. Guðjón Johnson vara forseti, séra Guðm. P. Johnson ritari, frú Margrét Johnson vara- ritari, Mr. Andrew Danielson fé- hirðir, Mr. Sveinn Westfjörð, vara-féhirðir. Skjalavörður Mr. Gestur Stefánsson. Mrs. Helgason, Mr. E. Breið- fjörð og Mr. Júl. Samúelson, var þá sezt að ágætum veitingum. Margt fólk sótti ársfundinn og ríkti þar gleði og ánægja, fund- urinn var haldinn í Lúterska kvennfélags húsinu. Líka var samþykkt á fundi þessum að allir fundir deildarinnar skyldu haldnir í báðum íslenzku kirkju- legu samkomuhúsunum til skipt- is. Nú er líka friður og eining í öllu okkar félagslífi í Blaine. Fyrir hönd þjóðræknisdeildar- innar “Aldan”. Guðm. P. Johnson, ritari. Kominn heim Því næst fór fram hin ágæt- asta skemtun, undir leiðslu Mr. S. H. Helgasonar, og sem nokkr- ir listamenn tóku þátt í með söng og hljóðfæraslætti, og voru það aðallega S. H. Helgason, Nú þegar ferðinni er lokið, og eg er aftur sestur um kyrt á heimastöðvum mínum, hvarflar hugur minn yfir farinn veg — til snævi þakinna slétta, risavax- inna fjalla, blikandi hafs, sól- rænna suðvesturlanda og til vina nýrra og gamalla, sem eg hitti og eignaðist í þessari ferð minni. Tildrögin til ferðar minnar eru næsta einkennileg og því óvenju- leg. Árið 1912, kom maður að nafni Jón Sigurðsson frá íslandi, ættaður úr Vestur-Skaftafells- sýslu, til Winnipeg. Hann var útlærður trésmiður og þurfti eins og flestir aðrir, sem að heiman komu, að fá sér atvinnu. Eg hafði þá nokkra trésmíða vinnu til umráða, svo eg réði Jón. Þetta í sjálfu sér er nú ekkert einkenni legt né söguríkt, því það unnu fleiri landar mínir hjá mér við smíðar á þeirri tíð, duglegir menn og drengir góðir. En Jón vakti sérstaka eftirtekt á sér þegar í byrjun. Hann var ákveð- inn og fastur í skoðunum, trúr og skyldurækinn í öllu, sem hann gerði og svo vinhollur, að eg hefi fáa slíka þekkt. Svo liðu dagar og ár. Jón hætti að vinna hjá mér og fór í burt frá Winnipeg og settist að eftir nokkurn tíma í bæ einum í Nevada ríkinu í Bandaríkjunum er Los Vegas heitir og telur um þrjú þúsund íbúa og er hinn prýðilegasti. Bær þessi stendur hátt upp til fjalla og má heita inniluktur tilkomumiklum og tignarlegum fjallahring og kem ur íslendings eðlið skýrt fram hjá Jóni með þessu heimilis vali, því í hvaða átt sem hann lítur frá heimili sínu, blasa við hon- um himinhá fjöll og snæviþaktir tindar. í slíku umhverfi, og þegar við það bætast mannvirðingar og ágæt efni, hefði maður haldið að flestir mundu una glaðir við sitt, og láta sig litlu skipta hvern- ig veltist á meðal landa hans norður á sléttunum í Manitoba. En eg hefi sagt að Jón sé ein- kennilegur maður og bæði vin- hollur og vinfastur. Þegar konan mín lá við dauð- ans dyr a heimili okkar í Winni- peg á síðastliðnu ári, kom Jón flugleiðis alla leið frá Los Vegas til þess að vitja okkar, og sjá hvort hann mætti okkur að liði verða og er slík umhyggja, vin- skapur og drenglund sjaldgæf, að eg ekki segi einsdæmi. Jón dvaldi nokkra daga hér í Winnipeg og varði öllum stund- um heima hjá mér, mér til ó- segjanlegrar gleði og ánægju, en vera hans hér varð styttri en eg vildi, og hann hafði ætlað sér, þvi hann var kallaður heim aftúr eftir fáa daga og Dferð hann að gegna því kalli, en áður en hann fór hét eg honum því, að ef heilsa mín leyfði, eg er orð- inn 79 ára gamall, þá skyldi eg sitja næstu jól og nýár hjá hon- um í Los Vegas, og það var til að halda heiti það, að eg tókst þessa ferð á hendur. Eg lagði af stað frá Winnipeg og vestur yfir slétturnar miklu og frjósömu, sem um þetta leyti árs eru að fölna og fella skrúð. Vestur yfir Klettafjöllin tignar- legu og töfrandi og vestur á ströndina hafsins kyrra, þar sem grasið grær, blómin vaxa og sól- skinið vermir um hávetur. Um þá strönd væri margt gaman að segja — Um veðurblíðuna, um náttúrufegurðina, um fólkið og um borgina Vancouver, sem fyr- ir skömmum tíma var aðeins lítið þorp, en er nú þriðja stærsta borgin í Canada, með ómælan- lega vaxtar og þroskamöguleiká og horfir bæði til hafs og fjalla. í Vancouver átti eg vinum að fagna, sem báru mig á höndum sér, var það sérstaklega hinn efnilegi og ágæti landi vor Hálf- dán Thorláksson, sem er, eins og menn vita, hátt settur starfsmað- ur Hudson Bay verzlunarfélags- ins, og athafnamikill starfsmað- ur í öllum félagsmálum íslend- inga þar í borginni, hæfileika- maður hinn mesti og hvers manns hugljúfi. Það var indælt að kynnast Hálfdáni á ný, og frú hans, og rifja upp e.ndur- minningar frá liðinni tíð. Frá Vancouver fór eg sjóleiðis (Frh. á hls. 8) Frá Blaine, Washington Þjóðræknisdeildin “Aldan” hélt sinn fyrsta ársfund sunnu- daginn 7. janúar s. 1., eins og til stóð. Séra Albert Kristjánsson, for- seti deildarinnar, stjómaði fundi. Ýms mál lágu fyrir fundinum, sem öllum var veitt hin bezta skil. Þrjú mál voru þó þeirra merkust, og sem vert er að minn- ast á. Það fyrsta var að íslenzku kennsla skuli hafin svo fljótt, sem mögulegt verði í Blaine-bæ og er í því máli starfandi þriggja manna nefnd, séra Albert Krist- jánsson, frú Herdís Stefánsson og séra Guðm. P. Johnson. Annað mál á dagskrá var um stofnun elliheimilis í Blaine, það mál var rætt með djörfung og miklu fjöri, margir tóku til DOMINION TEXTILE tOMPANY LIMITED . NJAKERS OF MAGOG FASTEST FABRICS • COIONIAI SHEETS AND PILIOW SLIPS • COLONIAL TOWELS

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.