Lögberg - 15.03.1945, Blaðsíða 8
$
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. MARZ, 1945
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands.
Sími 29 017.
Guðsþjónustur á sunnudögum.
Kl. 11 f. h. á ensku.
Kl. 12.15 sunnudagaskóli.
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Söngæfingar:
Yngri söngflokkurinn á fimtu-'
dögum kl. 8.
Eldri söngflokkurinn á föstu-
dögum kl. 8.
•
Lúterska kirkjan í Selkirk.
Sunnudaginn 18. marz.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Ensk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
•
Gimli prestakall.
Sunnudaginn 18. marz.
Messa að Betel, kl. 9,30 f. h.,
Húsavík, kl. 2 e. h., Gimli, kl. 7
e. h., ensk messa.
•
Messa að Langruth kl. 2 e. h.
surinudaginn 18. marz.
H. E. Johnson.
•
Guðsþjónusta í Vancouver.
Sunnudaginn 18. marz, kl. 7,30
e. h., fer fram rnessa á ensku í
dönsku kirkjunni á E 19th Ave.
og Burns St.
Allir velkomnir.
R. Marteinsson.
•
Prestakall Norður Nýja íslands.
18. marz — Riverton, ensk
messa kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
Úr borg og bygð
Samskot í útvarpssjóð
Fyrstu lútersku kirkju.
Mr. og Mrs. Jón Magnússon,
Winnipeg $1.00. Einar Sigvalda-
son, Baldur $1.00. Mr. og Mrs.
J. Josephson, Gimli $2.00. Torfa-
sons bræður, Lundar $3.00. Mrs.
H. Magnússon, Geysir, Man.
$2.00. Mr. og Mrs. Daniel Peter-
son, Gimli, Man. $1.00. Rebekka
Bjarnason, Camp Morton $1.00.
Kærar þakkir.
V. J. E.
•
Hús til sölu nú þegar. Spyrjist
fyrir um skilmála að 622 Victor
St., sími 39 971.
•
Hið árlega spilakvöld,“Bridge”
Jóns Sigurðssonar félagsins, verð
ur haldið í fundarsal Sambands-
kirkjunnar, Sargent og Banning,
á þriðjudagskvöldið þann 20. þ.
m., kl. 8. Góð verðlaun veitt;
samkomur þessar eru jafnan
fjölsóttar, og mun svo vafalaust
einnig verða að þessu sinni. Jóns
Sigurðssonar félagið hefir um
langt skeið unnið mikið nytja-
verk, og verðskuldar því óskipt-
an stuðning íslendinga.
•
Kvennfélagið “Sólskin” í Van-
couver, heldur tombólu og dans
í I.O.O.F., 1720 Gravely St., kl.
8, laugardagskvöldið 24. marz.
Einnig verður sala á íslenzkum
heimatilbúnum mat. Þessi sam-
koma er haldin til að afla pen-
inga fyrir hið fyrirhugaða elli-
heimili í Vancouver. Fólk ætti að
fjölmenna.
Magnús Elíason.
•
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
næsta fund á miðvikudagskvöld-
ið, 14. marz, að heimili Mrs. Chas
Nielsen, Ste. 19 Acadia Apts.,
Victor St.
Fundurinn byrjar kl. 8.
Kominn heim
(Frh. á bls. 5)
til Seattle, er það skemtileg sigl-
ing í gegnum sund og framhjá
eyjum, en þó er innsiglingin að
borginni sjálfri, sérstaklega að
kveldi til, ógleymanleg. Borgin
er byggð á hæðum er rísa frá
ströndinni, þegar siglt er inn til
hennar að kveldi dags, eins og
eg gerði, þá er eins og maður
sigli inn í sí stígandi ljóshaf.
Þegar eg steig á bryggjuna í
Seattle, var þar annar vinur og
kunningi að mæta mér, það var
Friðrik læknir Thorláksson, bróð
ir Hálfdáns í Vancouver, og Þor-
björns læknis Thorlákssonar í
Winnipeg. Tók þessi góði vinur
mig að sér, þrátt fyrir mikið
annríki og umsvif mikil störf,
sem hans biðu og skildi ekki við
mig fyr en eg var sestur. inn í
járnbrautarvagninn, sem eg fór
með frá Seattle til Los Angiles.
Á járnbrautarstöðinni í Los
Angiles, mætti Jón Sigurðsson
mér, var hann kominn alla leið
frá Los Vegas í Nevada, í bíl sín-
um til þess að mæta mér, 300
mílur vegar og taka mig heim
með sér. Ferðin austur yfir
Californiu-ríkið var í bíl, með
fróðum og skemtilegum manni
ógleymanleg. Fram hjá bæjum
og bændabýlum, eftir rennislétt-
um akvegum, með fjallasýn í
fjarlægð til beggja handa, og
Sierrafjallgarðinn framundan,
sem við óðum færðumst í áttina
til. Bíllinn brunaði áfram, eftir
steinsteyptum veginum. Landið
hækkaði smátt og smátt, þar til
við vorum komnir inn í heim-
kynni hárra hálsa og djúpra
dala, þar sem við ýmist brunuð-
um áfram eftir djúpum dalbotn-
um, eða utan í snarbröttum hlíð-
um, því aldrei linaði Jón á ferð-
inni og aldrei þagði hann lengi
í einu, hann var alltaf að fræða
mig, segja mér frá örnefnum,
sýna mér merkis staði, sem á
leið okkar voru og segja mér
frá merkisatburðum, sem gerst
höfðu á hinum eða þessum staðn-
um.
Eftir sjö klukkustunda keyrslu
komum við heim til Jóns og var
þá klukkan orðin tíu að kveldi,
þakkarhátíðar dags Bandaríkja-
þjóðarinnar, og beið okkar þar
á borðum hin ríkmannlegasta
þakkarhátíðar máltíð, sem við,
eða að minsta kosti eg gerði góð
skil.
Heimíli Jóns í Los Vegas er
ríkmannlegt og prýðilegt í alla
staði og svo heilbrigð og höfðing-
leg gestrisni ríkir þar, að naum-
ast er hægt að hugsa sér, að
annarsstaðar geti manni liðið
betur, utan síns eigin heimilis.
Jón hefir átt heima í Los Vegas
í 14 ár og hefir á þeim tíma kynt
sig þannig, að hann nýtur
trausts og virðingar allra, sem
hann þekkja og efnalega rutt
sér braut, svo að hann má nú
kalla stórefna mann.
Eg tók fram áður að þegar Jón
kom frá íslandi þá hafi hann
verið fullnuma trésmiður. Við
þá iðn hefir hann alltaf haldið
sig. Þegar hann kom til Los
Vegas, keypti hann álitlega
landspildu á góðum stað í bæn-
um, 200 ferfet af landi, því landi
skipti hann sjálfur í bygginga-
löðir á mjög smekkvíslegann hátt
og byggði á þeim 3 stórhýsi og
18 smærri hús er hann leigði
ferðafólki, sem alltaf er mesti
urmull af þar í fjalllendinu.
Þessar byggingar standa allar
saman og mynda dálítið þorp,
sem ekki aðeins stendur öðrum
pörtum bæjarins jafnfætis, held-
ur tekur þeim fram, að smekk-
vísi og fegurð, og er Jón vak-
inn og sofinn í því, að halda bygg
ingum sínum við, og prýða í
kringum þær, sem þó er ekkert
áhlaupaverk, sökum þess hve
jarðvegurinn er grýttur og ófrjór
svo sérstaka þekkingu þarf, og
nákvæmni mikla til að halda við
gróðurfegurð á þeim stöðvum.
Vel hefði eg getað unað mér
heima hjá Jóni allan típiann,
sem eg var gestur hans, en við
það var þó ekki komandi. Hann
uppástóð, að eg yrði að sjá allt
það sem merkilegt þætti og sér-
stakrar eftirtektar væri vert þar
í fjöllunum og hann lét ekki sitja
við orðin tóm, því hann fór með
mig í bíl sínum, nálega hvern
dag á meðan eg dvaldi hjá hon-
um, en það var í tvo mánuði,
upp um fjöll, út og ^uður um
engi og auðnir. Veðrið var altaf
indælt, sólskin á hverjum degi
og heiðríkur himinn og var því
undurhressandi að ferðast um
fjöll og dali í mátulega hlýjum
fjallasvalanum og sjá alltaf eitt-
hvað nýtt og brevtilegt.
Ekki er nokkur kostur á að
telja hér upp allt hið einkenni-
lega og eftirminnilega er eg sá
á þessum ferðum. Hina óendan-
lega margbreyttu náttúru og
náttúrufegurð. Gistihús uppi í
miðjum fjallshlíðum, þar sem
fólkið, sem var að skemta sér í
bifreiðum sínum á alauðum ak-
brautum, kom að neðan og mætti
skíðafólkinu sem að ofan kom úr
snjónum. Boulder Dam í Colar-
ado ánni, þetta geysilega mann-
virki, og verkfræðilega meistara-
verk, sem engum líður úr minni
er séð hefur. Dauðra manna dal-
inn (The dead mans Valley),
sem er sumstaðar meira en 400
fet fýrir neðan sjávarmál og
dregur nafn sitt frá 45 mámu-
mönnum, sem í fyrndinni lögðu
út á hann til að reyna að ná til
mannabyggða, en létu lífið.
Allt þetta sýndi Jón mér og
sagði mér ótal margt um aðra
söguríka staði, sem Nevada ríkið
er svo auðugt af og sem hann
auðsjáanlega er svo kunnugur.
Jón Sigurðsson er 62 ára að
aldri og er ekkjumaður. Kona
hans hét Sigurborg ólafsdóttir
Thorlacíusar, sem flestir Mani-
toba íslendingar kannast við,
ágætis kona, eins og hún átti
ætt til. Þeim hjónum var ekki
barna auðið.
Eg fór frá Los Vegas 10. jan.
s. 1. og fór Jón með mig í bíl
sínum alla leið til Los Angeles,
svona eins og til áherzlu og upp-
bóta á allt annað, sem hann hafði
fyrir mig gjört.
Þegar til Los Angeles kom,
þessa sælunnar reits, sem eg er
sannfærður um að Guð hafi skap
að til þess að vera paradís á
jörðu, en mennirnir hafa gjört
að ræningjabæli tók góðkunn-
ingi minn, Skúli Bjarnason og
frú hans á móti mér og báru mig
á örmum sér, eru þau hjón bæði
gestrisin og góð heim að sækja.
og búa við glaðhug og góð efni,
þar suður í landi sólarinnar og
sumarsins.
Annan kunningja frá fyrri tíð
hitti eg í Californiu, Guðjón
Jónsson, á hann heima nálægt
Long Beach, og er ekki aðeins
gott að heimsækja Guðjón og
konu hans, sem er systir konu
Jóhannesar Sigurðssonar og
þeirra systkina, heldur er það
líka stór merkilegt. Guðjón hefir
plantað fjölda sjaldgæfra og
sjaldséðra trjáa á bak við hús
sitt og hefur aflað sér mikilla
upplýsinga um hvað af útlend-
um og nýjum aldinum og ávaxta
trjám geti vaxið í skógarreit
hans. Þar áfast við lundinn litla
en fagra hefir ungur sonur þeirra
hjóna verkstæði sitt, þar sem
hann hnoðar alla hugsanlega
hluti úr leir, sumt prýðilega af
hendi leyst.
Frá Los Angeles hélt eg aftur
norður með ströndinni á heim-
leið. Kom eg við aftur í Seattle,
var þá vinur minn, Friðrik lækn-
ir ekki heima, en í hans stað
tók á móti mér séra Haraldur
Sigmar, hinn ungi og efnilegi
prestur Islendinga í Seattle og
frú hans og naut eg hjá þeim
mikillar alúðar og gestrisni. I
Blaine stansaði eg lítið, en hitti
þó þá Jóhann Straumfjörð og
Andrew Danielsson, sem báðir
sýndu mér mikla alúð og vildu
allt fyrir mig gjöra.
Ferðin frá Blaine og hingað
til Winnipeg gekk vel og tíðinda-
laust og á eg því ekki eftir ann-
að, en að þakka Jóni Sigurðssyni
fyrir hans rausnarlegu ógleym-
anlegu viðtökur og vinsemd —
þakka vinum mínum er eg hitti,
fyrir tryggð þeirra rausn og vel-
vild og öllum öðrum er eg mætti
fyrir hlý handtök og vingjarn-
legt viðmót.
Guðjón Ingimundsson.
frá Draumbæ í Vestmannaeyjum
Wartime Prices and
Trade Board
Spurningar og svör.
Spurt. Hvaða toll verðum við
að borga í Canada á landbúnaðar
vélum og varastykkjum frá
Bandaríkj unum ?
Svar. Vélar, sem aðeins má
nota til landbúnaðar, svo sem
akuryrkju eða til heyskapar eru
tollfríar, varastykkin líka. En
þær vélar, sem hægt er að nota
við byggingavinnu eða vegagerð
eins og “traktors”, eru allar háð-
ar tollheimtulögunum.
Spurt. Eg á von á gestum frá
Bandaríkjunum, sem ætla að
vera hjá mér fram yfir Páskana.
Get eg fengið aukaskamt handa
þeim?
Svar. Eg gestir eru hér fimm
daga eða lengur, geta þeir fengið
bráðabirgða skömmtunarspjöld á
næstu skrifstofu Local Ration
Board.
Spurt. Þegar hermenn, sem
hafa fengið úrlausn, sækja um
skömmtunarbækur, hvernig er
skamturinn reiknaður út. Er
hann talinn frá dagsetningunni á
úrlausnarskjalinu, eða frá um-
sóknardeginum?
Svar. Hann er talinn frá um-
sóknardeginum. Það er álitið að
umsækjandi hafi ekki þarfnast
seðlanna fyr en beðið var um
þá. Það er því best að biðja um
bók, sem allra fyrst, því lengur
sem það dregst, því meiru tapar
maður.
Spurt. Hvaða sannana er kraf-
ist þegar beðið er um bók handa
nýfæddu barni?
Svar. Það má sýna fæðingar-
skírteini, læknisvottorð eða
spítala reikninginn, sem fæðing-
arsönnun.
Values in New
PERMANENTS
New
Feather
Bob
Perm.
$4* .50
■z
Includes
Shampoo
and Set
Genuine $5.00
Cream
Oil
Perm.
$4.50
3
Includes
Shamfoo
and Set
OUR
NEW
PHONE
97 703
NU FASHION SERVICES
er ðviðjafnanleg að prýði, gæðum og þægindum.
Tuttugu ttskusérfræðingar veita skjðta af-
greiðslu. Engin bið, engin fyrirfram ráðstöfun
nauðsynleg. Aðeins úrvals efni notað við snyrt-
íngu. — Tvær tslenzkar stúlkur, Margrét Einars-
son og Villa Anderson, með* langa æfingu í
snyrtingu.
Winnijieg Leading Pcrmanent Wavers
NU - FASHION
20 sérfræðingar,
327 Portage, gegnt Eaton’s
Spurt. Eg leigi herbergi þar
sem húsráðandi leggur til rúm-
fatnað, þurkur og þvott. Á eg
heimtingu á Landlords Rental
Statement þar sem leigan er á-
kveðin af W. P. T. B?
Svar. Nei. Þar sem húsráðandi
leggur alt til sjálfur er svona
skjal ekki nauðsynlegt.
Spurt. Húsið, sem við búum í
hefir verið selt og nýji eigand-
inn vill flytja inn fyrsta maí.
Verðum við að flytja út fyrir
þann tíma?
Svar. Nei. Þið eigið tilkall til
sex mánaða flutningsfrests. Og
uppsögnin verður að vera á
prentuðu eyðublaði* frá W. P.
T. B.
Spurt. Hve marga sætmetis-
seðla verður maður að láta af
hepdi til þess að fá að kaupa
eitt gallón af Maple sírópi?
Svar. Miði fyrir eitt gallón af
Maple sírópi fæst hjá Local
Ration Board fyrir fjóra sæt-
metisseðla.
Spurt. Hvað er verðið á Maple
sírópi í gallóns ílátum þegar
keypt er af framleiðanda?
Svar. $2.90 fyrir Medium
Grade, 3.15 fyrir High Grade.
Við þetta bætist svo flutnings-
gjaldið.
Sykurseðlar 54, 55. Smjörseðl-
ar 99. Sætmetisseðlar 41, 42, 43
og 44 ganga allir í gildi 15. marz.
Spurningum svarað á íslenzku
af Mrs. Albert Wathne, 700
Banning St., Winnipeg.
Ambassador Beauty Salon
Ní/tízku snyrtistofa
Allar tegundir af Permanents.
íslenzka töluð 4 staðnum.
257 KENNEDT STREET,
fyrir sunnan Portagp
Sími 92 716
S. H. Johnson, eigandi.
“CELLOTONE” CLEANING
SPECIALS
SlIITS - - - 59c
(Mens 2 or 3 piece)
DRESSES - - 69c
(Plain 1 piece)
CASH AND CARRY
Other Cleaning Reduced
PHONE 37 261
PERTH’S
The Swan Manufatturmg Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-8TRIP
Winnipeg.
Halldór Methusalems 8wan
Eigandi
281 James Street Phona 22 #41
Minniát
BCTCL
í erfðaskrám yðar
NÝ BÓK
“Björninn úr Bjarmalandi”
EFTIR ÞORSTEIN Þ. ÞORSTEINSSON
Útgefendur: J. Th. Beck, Ásg. Guðjohnsen
Yfirlit yfir þroskasögu Rússlands og helstu heimsviðburði
í síðastliðin 25 ár.
Verð: saumuð í góðri kápu $2.50 — í bandi $3.25.
Burðargjald 10 cent
Pantanir sendist til
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVE.
WINNIPEG MANITOBA
\/erum samtaka um stuðning við allar líknarstofnanir
hverju nafni, sem þær nefnast, og látum ekki undir
höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini.
HOUSEHOLDERS
ATTENTION --
We have most of the popular brands of coal in
stock at present, but we cannot guarantee that
we will have them for the whole season.
We would advise that you order your fuel at
once, giving us as long a time as possible for
delivery. This will enable us to serve you better.
MCfURDY CUPPLY fO. LTD.
V^BUILDERS'VJ SUPPLIES V/ and COAL
Phone 23 811—23 812 1034 Arlington St.