Lögberg - 22.03.1945, Page 1

Lögberg - 22.03.1945, Page 1
PHONE 21374 A Complete Cleaning Institution Uu«'iot u*aerer ' IjO.UT' 58- ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 22. MARZ, 1945 ira0« PIIONE 21 374 , , . rA \>UVC \\ott^0tr» “ LttU«derer A Complete Cleaning Institution NÚME-R 12 Dettifoss sokkinn í saltan mar; tólf skipverjar og þrír farþegar týna Iífi HARMFREGN hefir nú verið staðfest, að hið prýðilega far- Þegaskip Eimskipafélags Islands, Dettifoss, hafi sætt hlið- £tæðum örlögum og Goðafoss, og sé sokkinn í saltan mar; fimmtán manns, tólf skipverjat og þrír farþegar, hafa týnt lífi; enn sem fyr, hefir hið fámenna, íslenzka þjóðfélag verið sært holundar- Sari af völdum hinnar miskunar-______________________________ lausu herneskju þýzkra Nazista, °§ enn sem fyr, mun það taka hinum þunga harmi með því þreki, sem einkennir norræna skapgerð, og láta ekkert það ó- gert, er draga megi úr sársauka syrgjandi ástvina. Hér fara á eftir nöfn þeirra, Sem fórust með Dettifossi: Havíð Gíslason, 1. stýrimaður. ^ón Bogason, bryti. Eiríkur Ólafsson, 3. stýrimaður. Hallgrímur Jónsson, vélamaður. Hafliði Hafliðason, vélamaður. Ásgeir Magnússon, vélamaður. Geir J. Geirsson, vélamaður. Valdimar Einarsson, loftskm. Bogi Þorsteinsson, loftskm. Erlendur O. Jónsson, háseti. Kristján Símonarson, háseti. Sigurjón Sigurjónsson, kyndari. Kolbeinn Skúlason, kyndari. Guðmundsson, bátsmaður. Hlöðver Ásbjörnsson, háseti. yagnar Ágústsson, háseti. °n Bjarnason, háseti. ^uðmundur Eyjólfsson, háseti. ^li Andrésson, háseti. tefán Hinriksson, kyndari. ÍJelgi Laxdal, kyndari. agnar Jakobsson, kyndari. °hannes Sigurðsson, matsveinn. ertha Zoega, farþegi. ilborg Stefánsdóttir, farþegi. uðrún Jónsdóttir, farþegi. Ált var fólk þetta úr Reykja- vík. ^essir komust lífs af: °nas Böðvarsson, skipstjóri. lafur Tómasson, 2. stýrimaður. Sigurgeir Svanbergsson, kyndari Gísli Guðmundsson, matsveinn. Anton Lindal, matsveinn. Tryggvi Steingrímsson, þjónn. Nikolína Kristjánsdóttir, matselja. Baldvin Ásgeirsson, sendisveinn. Ólafur B. Ólafsson, farþegi. Páll Bjarnason Melsted, farþegi. Skúli Pétursson, farþegi. Bjarni Árnason, farþegi. Sigrún Magnúsdóttir, farþegi. Eugenie H. Bergin, farþegi. Davíð Sigmundur Jónsson, farþ. Lárus Bjarnason, farþegi. Erla Kristjánsson, farþegi. Ragnar Guðmundsson, farþegi. Theodór H. Rósantsson, farþegi. — - .... . .... mrnmmm Frá sendiráði íslands í Washington þátttöku Canada í fundi samein- uðu þjóðanna, sem hefst í San Francisco þann 25. apríl næst- •komandi. GLÆSILEGUR MENNTAMAÐUR I HERÞJÓNUSTU Lieut. Ronald S. Hafliðason Þessi ungi og glæsilegi maður, er sonur þeirra Mr. og Mrs. Jón Hafliðason að Bissett, Man. Hann útskrifaðist með ágætiseinkunn í námuverkfræði frá Queens há- skólanum í maí-mánuði 1944, og innritaðist samstundis í Royal Canadian Engineers; hann er fæddur í Langruth, þann 14. jan. 1919. Lieut. Hafliðason var ný- lega staddur hér í borginni á leið austur til Bissett í heimsókn til foreldra sinna. • Finnlandi, og féllu þær vinstri flokkunum mjög í vil; þing- mannafjöldi finska þingsins nem- ur tveimur hundruðum; þó fulln- aðartalning atkvæða sé enn eigi lokið, þykir sýnt, að kommún- istar og sosíalistar í sameiningu, njóti nægilegs þingsstuðnings til þess að mynda ábyrga meiri- hluta stjórn. Úr borg og bygð Samkvæmt yfirlýsingu verka- málaráðherra sambandsstjórnar- innar, hefir W. J. Lindal héraðs- réttardómari í Manitoba, verið skipaður meðlimur Selective Service nefndar; hann er einnig forseti Regional atvinnutrygg- inganefndarinnar. • Giftingarathöfn fór fram 17. marz, að heimili þeirra Mr. og Mrs. Wilhelm Anderson, 11123 83rd Ave., Edmonton, Alta, þar sem yngri dóttir þeirra Kristín og Sub. Liuet. Richard Phillips R.C.N.V.R. voru gefin saman í hjónaband af séra Ramsey, presti Garneau United Church. Brúð- urin er útlærð hjúkrunarkona og hefur starfað sem “Public health Nurse” á ýmsum stöðum í Alta. Ungu hjónin lögðu af stað dag- inn eftir, í skemtiferð vestur að Kyrrahafi. Heimili þeirra verður fyrst um sinn í Victoria, B.C. • Mr. og Mrs. Einar Guttorms- son frá Poplar Park, voru stödd í borginni í byrjun vikunnar. DREGUR HREINAR LÍNUR Forsætisráðherra Manitoba fylkis, Hon. Stuart S. Garson, flutti nýverið útvarpsræðu, þar sem hann lýsti yfir því, að hann myndi láta næstu samhandskosn- ingar með öllu afskiptalausar; á hinn bóginn fór hann heldur ekki dult með það, að næsta ár, þegar almennar fylkiskosningar færu fram, væri samvinnustjórn sú, er hann veitti forustu, ein- ráðin í því, að leita endurkosn- ingar óskipt í því horfi, sem hún nú væri; stjórnin er samsett af þremur flokkum. Frú Stefanía Helgason frá Hecla dvelur í borginni um þess- ar mundir sér til heilsubótar. • Mr. og Mrs. Ingvar Gíslason frá Steep Rock, hafa dvalið í borginni undanfarna daga. • Mr. Oddur H. Oddson bygginga meistari frá Chicago, sem dvalið hefur um hríð að Lundar, lagði af stað suður á þriðjudagskvöld- ið var. • Mr. Gunnar Tomasson fisk- kaupmaður frá Hecla, var stadd- ur í borginni um síðustu helgi. 15. marz, 1945. Hér með leyfi eg mér að skýra yður frá því, að Mr. F. K. . arren var þann 3. febrúar skipaður vararæðismaður íslands 1 -Halifax, Canada. , Mr. F. K. Warren er umboðsmaður Eimskipafélags íslands 1 Halifax. Virðingarfyllst, Thor Thors. yARNARVIRKI ÞJÓÐVERJA saardalnum hrynja TIL GRUNNA iðnám Þjóðverja í Saardaln- Utnj er brotið með öllu á bak aft- r> herstyrkur Þjóðverja á þess- , °rustuvettvangi, nam eitt- Va^ um 80 þúsundum; nú hafa Sameinuðu herjirnir undir for- . u Hsttons hins ameríska, ým- j Saert, drepið eða itekið til ^anga um 50 þúsundir af jjess- , Þýzka her, og munu vera í ann veginn að ráða niðurlög- ^m þeirra 30 þúsunda, sem eftir ^ru> hin svonefnda Sigfried , narlína á þessum vígstöðvum, k^llast fokin út í veður og ’ Svo að þar stendur í raun- síð1 ^^1 lengur steinn yfir steini að »U ^re§nir frá Berlín herma, Pýzk hernaðarvöld hafi þeg ar afskrifað Saardalinn með öll- um þeim náttúrufríðindum, sem hann hefir til brunns að bera. SAMBANDSÞING KEMUR SAMAN Síðastliðinn mánudag kom sambandsþingið í Ottawa saman til skammrar setu, því eins og vitað er, rennur kjörtímabilið út þann 17. apríl næstkomandi; að þessu var vikið í stjórnarboð- skapnum með þeim ummælum, að almennar kosningar færi fram eins fljótt og því yrði viðkomið, eftir hinn ákveðna þingrofstíma. Fjárhagsáætlun vegna stríðs- sóknarinnar, var lögð fram í þing byrjun, og verða ákvæði hennar vafalaust afgreidd umræðu lítið. Þess er vænst, að Mr. King skýri við fyrstu hentugleika fyrir þingheimi, undirbúninginn af hálfu stjórnarinnar varðandi HERTOGINN AF WINDSOR LÆTUR AF EMBÆTTI Hertoginn af Windsor, sem gegnt hefir landsstjóra embætti á Bahamas hátt á fimmta ár, gerði lýðum ljóst þann 16. þ. m., að hann hefði ákveðið að láta af embætti við allra fyrstu hent- ugleika; eftirmaður hans verður W. L. Murphy, sem haft hefir með höndum fyrir Breta yfir- stjórn í Bermuda. Hinn fráfarandi landstjóri, sem um eitt skeið var konungur Bret- lands hins mikla, en lét af kon- ungdómi vegna ástar á konu, er að sögn maður auðugur af fé, lét þess getið í viðtali við blaða- menn, að hann hefði í síðastlið- in fimm ár vanrækt sín eigin viðskipti vegna embættisins; taldi hann líklegt, að þau her- togahjónin myndu dvelja um hríð í Bandaríkjunum, heim- sækja síðan England, en taka sér svo því næst varanlega bólfestu í Frakklandi. ÞINGKOSNINGAR í FINNLANDI Síðastliðinn mánudag fóru al- mennar þingkosningar fram í íslendingadagsnefndin í norð- urbygðum Nýja íslands, heldur fund á sunnudaginn þann 25. þ. m., í skrifstofu sveitarstjórnar- innar í Árborg, kl. 2.30 e. h. Á fundi þessum skilar núverandi nefnd af sér skjölum öllum og skilríkjum varðandi hátíðahald- ið á Hnausum í fyrra; á fundin- um verður kosin ný nefnd til undirbúnings næsta hátíðahaldi, og er því hér með skorað á ís- lendinga í Norðurbyggðunum, að fjölmenna á fundinn. G. O. Einarsson, skrifari. • Hið eldra kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar, deildir nr. 3 og 4, efna til Silver Tea og solu á heima- tilbúnum mat í fundarsal kirkj- unnar, seinni part miðvikudags- ins 4. apríl næstkomandi, undir forustu þeirra Mrs. F. Stephen- son og Mrs. J. S. Gillies. Nánar auglýst síðar. • Samkoman, sem Viking Club hélt á Marlborough Hotel, föstu- dagskvöldið 16. þ. m., var hin virðulegasta og skemtilegasta í alla staði. Um 250 manps settust að borðum en svo bæ#ust fleiri við hópinn þegar farið var að dansa kl. 10, svo að í allt munu um 300 gestir hafa sótt samkom- una. Áður en sezt var að borðum Glœsileg brúðhjón Mr. og Mrs. Bragi Thorgrímsson Þann 13. desember síðastliðinn, voru gefin saman í hjóna- band af Rev. Griffiths í St. Barnabas kirkjunni í Bell stræti í London á Englandi, þau Rose A. Messpnger, dóttir Mr. og Mrs. J. H. Messenger, Penfold Place Edgware Rd, London, og W. O. Bragi Thorgrímsson. Brúðmeyjar voru Reta Lewis og Emily Sios, en svaramaður brúðgumans var bróðir hans, Freyr Thorgrímsson. Brúðguminn, sem er hinn glæsilegasti efnismaður, er sonur séra Adams heitins Thorgrímssonar, og eftirlifandi ekkju hans, frú Sigrúnar Thorgrímsson, sem búsett er í Winnipeg. flutti séra Philip M. Pétursson borðbæn. Carl S. Simonson forseti Vik- ing Club, bauð alla velkomna. Heiðursgestir voru Hon. R. F. McWilliams, fylkisstjóri og frú, hans og flutti herra McWilliams stutta tölu með sinni venjulegu lipurð. Hann sagði að skandinav- ar væru með hinum allra ákjós- anlegustu innflytjendum, sem hingað hefðu komið og vonaði hann að sem flestir kæmu hingað frá skandinavisku löndunum að stríðinu loknu. Aðalræðumaður var séra C. E. Hoffsten, D.D., prestur sænska lúterska safnaðarins hér í borg- inni. Erindið var aðallega lýsing á Norðmönnum á Víkingaöldinni trúarbrögðum, o. s. frv. Var á- nægjulegt að hlusta á hann. W. J. Lindal, dómari, þakkaði ræðu- manni. Þjóðsöngvar hinna ýmsu Norð- urlanda voru sungnir undir stjórn þeirra P. G. Magnús, Arthur Andersen og Adne Haines. Einsöngva söng Mrs. Elma Gíslason og þakkaði sam- koman henni með dynjandi lófa- klappi. Miss Thora Ásgeirsson og herra Gunnar Erlendsson aðstoð- uðu við hljóðfærið. Vísur eftir Pálma HVERS VEGNA? Skilnings vandur vegur er, valda grandar kifsins; vísum anda’ eg oft frá mér yfir sanda lífsins. ALT JAFNAR SIG. Lífs þó gallar glepji önd, Guð á allar hafnir. Þegar halla skuldir skjöld skoðast fallnir jafnir. í GAMNI. (Á eftir kvennfélags fyrirlestri). Hrífi’ eg kvenna hjarta-stað, hrygðar kenning tíni; hýrum renni augum að andans “brennivíni!” ÁFRAM. Heims um kletta’ klyfra eg hljótt, kjarkur rétt mig styður; upp því sprett eg undra fljótt ef að dett eg niður.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.