Lögberg - 12.04.1945, Qupperneq 1
Hans hágöfgi, landstjórinn í Canada,
jarlinn af Athlone, heimsækir Gimli á
fimtudaginn þann 26. þessa mánaðar,
ásamt landstjórafrúnni Alice prinsessu
Fylkisstjórinn í Manitoba, His Honor, R. F. McWilliams,
hefir tilkynt íslenzku þingmönnunum í fylkisþinginu, þeim
Skúla Sigfússyni, Paul Bardal og G. S. Thorvaldsyni, að
Hans hátígn, Jarlinn af Athlone, hafi, ásamt Alice prins-
sessu, ákveðið að heimsækja íslenzka landnámið að Gimli
á fimtudaginn þann 26. yfirstandandi mánaðar.
Gert er ráð fyrir móttökuathöfn, er standi yfir áminst-
an dag frá kl. 2 til 3.30 e. h.
Jarlinn af Athlone verður þriðji landstjórinn, sem
heimsækir íslenzka landnámið að Gimli; hinir voru þeir
lávarðarnir Dufferin og Tweedsmur.
Jafnskjótt og frekari upplýsingar verða við hendi,
varðandi undirbúning áminstrar móttökuathafnar, verða
þær birtar hér í blaðinu.
^ERSKYLDU
verður EKKI BEITT
Forsætisráðherrann, Mr. King,
ysti yfir því í þingræðu þann
Þ- ni., að við þátttöku Canada
stríðinu gegn Japönum, eftir
? ^jóðverjum hefði verið kom-
a kné, yrði herskylda ekki
^ttdir neinum kringumstæðum
eht; flokksbræður forsætisráð-
erra tóku yfirlýsingunni með
^ihlum fögnuði, og það gerðu í
rattninni allir flokkarnir, að und-
..ttskildupn Progressiv-Conserva-
IVum, sem ásett höfðu sér að
j*era herskyldumálið að megin
. óeitti í næstu sambandskosn-
lngum.
hfeð hliðsjón af því, að kjör-
tt^abil núverandi þings væri.svo
segja á enda, kvað Mr. King
^nina hafa gætt þess vand-
§a. að binda ekki hendur þess
JJa þings, sem saman kæmi að
stÖðnum kosningum með nein-
, jn þeim kvöðum, er ríða mundu
se yíiHýstan vilja þeirra,
s 111 þá færu með völd, hvernig
,v° sem flokkslegri afstöðu
Peirra yrði háttað.
SPÁIR VANDRÆÐUM
EF SAN FRANCISCO
STEFNAN MESTEKST
General Smuts, forsætisráð-
herra Suður-Afríku sambands-
ins, flutti ræðu í London á fundi
erindreka, sem valdir hafa .verið
til þess að sitja fyrirhugað þing
sameinuðu þjóðanna í San Franc-
isco, þar sem hann lét svo um
mælt, að í því falli að þingið
mistækist, horfði mannkvnið í
heild einungis fram á öngþveiti
og óútreiknanlegan háska; hann
kvaðst engan veginn vera eins
viss í sinni sök varðandi vitur-
legar niðurstöður áminsts þings,
heimsfriðnum til öryggis, eins og
ábyggileg vissa væri nú fengin
fyrr hernaðarlegum alsigri hinna
sameinuðu þjóða yfir möndul-
veldunum.
EKKN ASTYRKUR
HÆKKAÐUR
Fylkisþingið í Manitoba, hefir
samkvæmt tillögu frá C. Rhodes
Smith, Liberal þingmanni frá
Winnipeg, breytt þannig skaða-
bótalöggjöf verkamanna, að
ekknastyrkurinn verði hækkaður
úr fjörutíu upp í fjörutíu og
fimm dollara á mánuði.
RÚSSAR SEGJA UPP
HLUTLEYSISSAMNINGNUM
VIÐ JAPAN
Síðastliðinn fimtudag gaf utan
ríkisráðherra rússnesku ráð-
' stjórnarríkjanna út yfirlýsingu
þess efnis, að stjórnin hafi þeg-
ar afráðið að segja upp hlutleysis
samningi þeim við Japan, sem
undirskrifaður var í aprílmán-
uði 1941, og lét það þar með
fylgja, að Japanir væru land-
ránsþjóð, sem ráðist hefði með
undirferli á bandamenn rúss-
nesku þjóðarinnar. Molotov utan
ríkisráðherra, gerði sendiherra
Japana 1 Moskvu, persónulega
aðvart um þessi málalok. Af þess
ari niðurstöðu rússneskra stjórn-
arvalda, mun nokkuð mega ráða
hvaða afstöðu þau taki til Kyrra-
hafsstríðsins, að fengnum fulln-
aðarsigri yfir Þjóðverjum.
Rússar hafa auðsjáanlega vilj-
að ganga að fullu og öllu frá
þessu máli, áður en sendinefnd
þeirra kæmi til San Francisco
stefnunnar.
SENDINEFND CANADA
A SAN FRANCISCO
STEFNUNA
Nú hefir það verið gert lýðum
ljóst, hvernig sendinefnd sú verði
samsett, er sækja á fýrir hönd
Canada þing sameinuðu þjóð-
anna, sem hefst í San Francisco
þann 25. yfirstandandi mánaðar.
Formaður sendinefndarinnar
verður forsætisráðherrann, Mr.
King; honum til aðstoðar verða
Gordon Greydon, framsögumað-
ur íhaldsflokksins í sambands-
þinginu, M. J. Coldwell, foringi
C.C.F. flokksins, St. Laurent
dómsmálaráðherra, Mrs Cora
Casselman, Liberal, Edmonton
East, senator J. H. King, Liberal,
og senator Lucien Maraud, Kon-
servativ. Auk þess verða í förinni
sjö sérfræðingar frá hinum ýmsu
st j órnardeildum.
SEYTJÁN
FÖÐURLANDSSVIKARAR
HANDSAMAÐIR
Franska lögreglan hefir að
fyrirboði stjórnarinnar, látið
handsama seytján pólitíska stiga
menn, sem sakaðir eru um land-
ráð, óleyfileg mök við Nazista,
og samsæri gegn de Gaulle
stjórninni; þeir bíða nú allir
dóms, og fá vafalaust á sínum
tíma makleg málagjöld.
700,000 HAFA INNRITAST
í CANADISKA LANDHERINN
Mr. Douglas C. Abbott, aðal-
málsvari hermálaráðuneytisins i
sambandsþinginu, gerði þing-
heimi kunnugt á föstudaginn í
vikunni, sem leið, að frá því í
septembe* 1939, hefðu um 700
þúsund innritast í canadiska
landherinn, þar af 20 þúsund
stúlkur.
Árið, sem leið, voru 80 þúsund
hermenn sendir héðan úr landi
austur um haf, og var bað því
nær helmingi meira, en í fyrstu
hafði verið áætlað.
Rúmlega 30 þúsundir úr land-
hernum eru komnar heim aftur,-
að því er Mr. Abbott segist frá,
en um vara- eða styrktarliðið
hafði hann að það segja, að tala
þess væri nú 75 af hundraði hærri
en í fyrra.
FÁGÆTUR GULLFUNDUR
Á 2.100 fet§ dýpi í Merkers
saltnámunum þýzku, fundu
Bandaríkjahermenn nýverið,
sennilega allan gullforða Þýzka-
lands, sem nam að sögn 50 smá-
lestum; alls fundust þarna frek-
lega 4000 pokar með gulli í, og
vóg hver þeirra um sig til jafn-
aðar 25 pund, og var innihald
hvers þeirra virt á 14 þúsund
dollara; sérhver smálest var tal-
in miljón dollara virði; ekki átti
nú að slá í fjársjóðu Hitlers, þar
sem þeir voru geymdir í salti
yfir tvö þúsund fet niðri í jörð-
inni; miklu af gullkyngi þessu
hafa Nazistar rænt og stolið frá
ýmsum hinna hernumdu þjóða.
í saltnámunni fundust einnig
kynstrin af margra þjóða pen-
ingum.
Á öðrum stað, einnig langt
niðri í þýzkri mold, fundu ame-
rískir hermenn einnig mikið af
handritum og merkum málverk-
um, sem stolið hafði verið frá
Gyðingum, því þau lutu mest-
megnis að menningarsögu þess
þjóðflokks.
STJÓRNARSKIPTI
íJAPAN
Koiso-ráðuneytið í Japan, hef-
ir orðið knúið til þess að láta
af völdum, vegna þess hve þung-
lega Japönum sækist róðurinn í
stríðinu; fór andspyrnan gegn
stjórninni í þinginu dagvaxandi
unz þar kom, að hún sá þann
kost vænstan að biðjast lausn-
ar; nú hefir keisarinn falið
Susuki aðmíráli myndun nýs
ráðuneytis; hann hefir lítt gefið
sig að stjórnmálum, en verið
yfir fjörutíu ár í þjónustu Jap-
anska flotans; hann er sagður að
hafa verið mótfallinn yfirgangi
japanskra hernaðarvalda, og
borið kvíðboga fyrir því, þegar
eftir árásina á Pearl Harbor, að
þjóðin myndi kollhlaupa sig áð-
ur en yfir lyki í stríðinu; hinn
nýi forsætisráðherra er 72 ára að
aldri.
Þess er getið til, að Suzuki
muni ef til vill beita sér fyrir
um einhverskonar málamyndar
friðartilboð við sameinuðu þjóð-
irnar, þó vitað sé að slíkt yrði
tilgangslaust, þar sem skilyrðis-
lausrar uppgjafar hefir þegar
verið krafist af Japönum, engu
síður en Þjóðverjum.
VEL AF SÉR VIKIÐ
Danskir föðurlandsvinir unnu
mikið afrek 30. des. s. 1. Þá
frelsuðu þeir 15 pólitíska fanga
úr ríkisfangelsinu í Horsens.
Þennan eftirmiðdag birtust
nokkrir föðurlandsvinir uppi á
múrnum umhverfis fangelsið.
Meðan fangavörðunum var ógn-
að með skammbyssu, var stiga
rennt til jarðar og áður en
fangaverðirnir gætu aðhafst
nokkuð, klifu 15 fangar og
hjálparmenn þeirra upp stigann
og óku á brott í nokkrum vöru-
bifreiðum, sem voru til taks fyr-
ir utan.
•
GÖTUBARDAGAR
í TVEIMUR STÓRBORGUM
Hersveitir bandamanna eru
nú komnar inn í þýzku stórborg-
ina Hannover og Bremen; stóðu
yfir, er síðast fréttist, ákafir
götubardagar í hvorri borginni
um sig, og er nú víst talið, að
þær falli báðar innan sólarhrings
eða svo.
VÍNARBORG
í ÞANN VEGINN AÐ FALLA
Að því er síðustu fregnir
herma, hafa rússnesku herirnir
tvo þriðju Vínarborgar á valdi
sínu, og mun það aðeins vera
tímaspursmál, unz borgin fellur
þeim í hendur; andspyrnan af
hálfu Þjóðverja innan vébanda
borgarinnar, reyndist langtum
veikari, en búist var við í fyrstu.
BLAÐ EVRÓPUDEILDAR
GUÐSPEKINGA RÆÐIR
UM ÍSLAND
Blaðið “Theosophy in Action”,
málgagn Evrópudeildar Guð-
spekifélaganna, flutti í desember
grein um ísland eftir Yiggu
Jónsdóttur hjúkrunarkonu. Segir
þar frá sögu íslands og sjálf-
stæðisbaráttu, og lýkur henni
með þessum orðum: “Þegar horft
er um öxl yfir sögu íslands, verð
ur það ljóst að framfarir hafa
orðið því meiri sem kyndill
frelsisins hefur logað bjartar.
Því trúa íslendingar á mátt
frelsisins og héldu hátíðlegan
fæðingardag lýðveldisins 17.
júní að Þingvöllum, þar sem
þjóðþing vort var fyrst sett.”
“LOFTLEIÐIR” H.F. HAFA
FLOGIÐ 97750 KM.
Frá því að félagið Loftleiðir
h. f. hóf flugferðir í apríl síðastl.
hafa verið flognir 97750 km., en
alls hafa verið farnar 408 flug-
ferðir.
Sjúkraferðir hafa verið farn-
ar 20 og 907 fárþegar fluttir. Af
pósti og öðrum flutningum voru
flutt 6520 kg.
Þá annaðist félagið síldarflug
um tveggja mánaða tíma í sum-
ar.
Alls hefur verið flogið til 40
staða víðsvegar á landinu, en
einkum hefur félagið þó haldið
uppi ferðum til Vestfjarða.
ÍTALIR VIÐURKENNA
ÍSLENZKA LÝÐVELDIÐ
ítalska stjórnin hefir viður-
kent stofnun lýðveldis á íslandi
og borið fram heillaóskir hinu
íslenzka lýðveldi til handa. Seg-
ir á þessa leið um það í frétta-
tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu.
“Utanríkisráðuneytinu hefir
borist orðsending frú utanríkis-
ráðherra ítalíu, sem er svar við
orðsendingu íslenzka utanríkis-
ráðuneytisins frá 17. júní um
stofnun lýðveldis á íslandi og
kjör forseta íslands.
Viðurkennir ítalska stjórnin
með orðsendingu þessari íslenzka
lýðveldið og sendir forseta þess
og þjóðinni allri hlýjar árnað-
aróskir með von um góða sam-
vinnu og samkomulag beggja
landannh.”
Mbl. 11. jan.
0r borg og bygð
Fyrirlestur sá um Hallgrím
Pétursson og skáldskap hans,
sem séra Valdimar J. Eylands
flutti á fræðslumóti Icelandic
Canadian Club í Fyrstu lútersku
kirkju síðastliðið mánudags-
kvöld, var bæði snildarlega sam-
inn og ágætlega fluttur; áheyr-
endur hefðu vel mátt vera nokk-
ru fleiri.
•
Síðastliðinn föstudag lézt að
heimili sínu 627 Agnes Streei
hér í borginni, Árni Johnson, 74
ára að aldri; hann kom ungur
til þessa lands, og tók þátt í
fyrri heimsstyrjöldinni; í hinni
hrikalegu orustu við Somme,
misti Árni annan fótinn; eftir að
Árni var gróinn sára sinna, réðst
hann í þjónustu landbúnaðar-
ráðuneytis Manitobafylkis, og
starfaði þar í aldarfjórðung.
Árni lætur eftir sig ekkju,
Sesselju, eina dóttu^ Mrs. J. J.
Robinson í Chicago, og þrjá
sonu, Hermann í Winnipeg,
Conrad í herþjónustu austan
hafs, og Edgar í Bandaríkjahern-
um.
Útför Árna fór fram frá Bar-
dal síðastliðinn þriðjudag. Séra
Philip M. Pétursson jarðsöng.
•
Hið árlega Tea og sala á mun-
um eftir blint fólk, til hagnaðar
fyrir Blind Institute, byrjar á
6. hæð T. Eaton- búðarinnar á
mánudaginn þann 16. þ. m., og
helst út vikuna. Báðar deildir
Kvenfélags Fyrsta lúterska safn-
aðar, leggja fram skerf sinn
þessu nytjamáli til fulltingis.
•
Danish Member of Parliament to
speak in Winnipeg.
Robert Staermose, member of
the Danish Parliament, who
escaped from Denmark in a fish-
ing boat to Sweden, and later
was flown to England, is now
touring this coutinent under the
auspices of the Danish Informa-
-tion Service, New York. He
addressed the Canadian Club and
the Institute of International
Affairs in Montreal, and in
Toronto the University and the
Empire Club.
The Danish Relief Fund, Mani-
toba Branch, has arranged for a
meeting for Mr. Staermose in the
Danish Church, Bannerman Ave.
on Tuesday, April 17, at 8 p.m.
And at 12.15 The Viking Club
will sponsor a luncheon meeting
in the Hudson’s Bay Co restaur-
ant, 5th floor. also on Tuesday,
April 17. It is the hope that as
many as possible can manage it
will be present on this occasion,
where Mr. Staermose will speak
on the present political situation
in Denmark and post-war Recon-
struction. Specially invited
guests are also members of the
Empire Club, and Rev. Dr. W.
G. Martin will express the
thanks of the audience.
Við útför svarta kattarins
Ætíð var hann, efalaust,
einn af þessum smáu,
en fölskvalausa trygð og traust,
túlkuðu augun gráu.
Um metorð trauðla’ eg togast á
að tíðarandans hætti,
hunda og katta hylli ná,
hálfu betra þætti.
Jónbjörn Gíslason.