Lögberg - 26.04.1945, Síða 1
PHONE 21374
XA'irl
der^*
, wV
avvc
st°r'
a0e
A Complete
Cleauing
Institution
58. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 26. APRIL, 1945 NÚMER 17
VEITIÐ ÁTTUNDA S1 IGURLANINU ALT HUG ISANLEC iT FULl LTINGI
NÝR RÁÐHERRA
llllllllllllllllllllllllllll>lll!l!llllllllllllllll!!lllll!lllllllllllllllll!lllllllllllllll!lll!llllllllllllll!!!!l!l!lllll>lll'
illlll!lllllll!llllllll!llllllIIIII!lllillll!!lll!!!!!!lllllll!l!IIIIII!l!inillll!llll!!!lll!lll!l||||||||Il|||!ililll»||»|Ull!
Hon. J. Allison Glenn
Þeim, sem láta sér umhugað
um íslenzkukennslu í landi hér,
og þá ekki síst íslenzkukennur-
um við æðri skóla hér í álfu, voru
það góð tíðindi, er það fréttist
fyrir nokkru síðan, að dr. Stefár.
Einarsson hefði í undirbúningi
kennslubók í íslenzku fyrir ensku
mælandi menn. En hann er sér-
fræðingur í íslenzkri hljóðfræði,
hefir gert merkilegar rannsókn-
ir á því sviði, og árum saman
kennt forníslenzku (norrænu)
við Johns Hopkins háskólann.
Sökum erfiðleika yfirstand-
andi tíðar, varð þessi bók hans
síðbúnari frá prentsmiðjunni
heldur en ráð var fyrir gert; en
nú er hún nýkomin út, og hefir
The Johns Hopkins Press ann-
ast útgáfuna. Nefnist bókin
Icelandic, Grammar, Texts,
Glossary, og er þar um mikið
rit að ræða (500 bls. í stóru broti)
og vandað að sama skapi, sem
ber lærdómi höfundarins, elju
hans og vandvirkni órækt vitni.
Þau eru tildrög bókarinnar, að
Fulltrúaráð Amerískra Fræði-
félaga (The American Council of
Learner Societies) efndi til náms
skeiðs í erlendum málum við
Johns Hopkins háskólann skóla-
árið 1941—42; var íslenzka eitt
þeirra, og gert ráð fyrir, að ame-
rískir herforingjar, sem til ís-
lands áttu að fara, leggðu stund
á íslenzkunám. Var bókin sam-
in með slíka menn sérstaklega
í huga og sniðin við þarfir þeirra
um þekkingu á daglegu máli og
lifnaðarháttum hinnar íslenzku
þjóðar.
Fyrir þessu gerir höfundur-
inn meðal annars grein í for-
mála síhum, jafnframt því sem
hann tekur það fram, að undir-
tektirnar um þátttöku í íslenzka
námsskeiðinu við Johns Hopkins
háskóla hafi bent til þess, að
bókin myndi aðallega verða not-
uð af tveim hópum manna: —
hermönnum eða öðrum á íslandi,
og þeim, sem leggja stund á
tungumálanám (linguistic stud-
ents) í landi hér og annarsstað-
ar, sérstaklega kennurum, er
einnig hafa áhuga fyrir norrænu.
''Bókin er í fjórum aðalköflum.
Fyrst er málfræðin, sem tekur
yfri 180 bls., og fjalla 30 þeirra
um hljóðfræðina eina saman.
NÝR SENATOR
Hon. J. A. Crerar
Gefur blaðsíðutalið eitt sér
glöggt í skyn, hversu • nákvæm-
lega er þar í sakirnar farið; enda
er hér, eins og höfundurinn dreg-
ur athygli að í formálanum, um
að ræða ítarlegustu íslenzka mál-
fræði að því er snertir framburð,
beygingafræði og setningafræði,
jafnhliða því, að mæltu máli er
sérstakur gaumur gefinn.
Annar aðalhlutinn (Texts I,
bls. 181—246) eru æfingar með
málfræði. bæði á íslenzku og
ensku. Hefir höfundur gert sér
far um, að kaflar þessir til æf-
ingar í málfræðinni væru sem
samfeldast lesmál, fremur en
sundurlausar setningar, og er
það bæði eðlilegra og aðgengi-
legra fyrir nemendur. Leskafl-
arnir eru einnig flokkaðir eftir
efni, og er það mjög til hægðar-
auka.
Þriðji kafli ritsins (Texts II,
bls. 247—273), “Daglegt líf og
daglegt tal”, er nákvæm og næsta
alhliða lýsing á íslenzku mál-
fari, háttum og venjum þjóðar-
innar. Eru sumir af lesköflum
þessum að mestu upptalningar,
en allir eru þeir fróðlegir mjög.
Loks eru nokkur sýnishorn af
íslenzkum þjóðsögum, og stuttur
inngangur' að þeim um íslenzka
þjóðtrú.
Kemur þá að fjórða aðalhluta
bókarinnar, en það er íslenzkt-
enskt orðasafn, fullar 200 bls. að
lengd, og samið af mikilli nær-
færni. Við allnákvæma yfirferð
hefi eg eigi fundið nema sára-
fáar orðaþýðingar, þar sem mér
þættu aðrar heppilegri, svo sem
sumar þýðingarnar á staðanöfn-
um; en slíkt er jafnan álitamál,
enda mun það hafa verið ríkast í
huga höfundar, að þýða þau sem
bókstaflegast. Hinn íslenzki fram
burður er sýndur með hljóð-
fræðitáknum, að miklu leyti hin-
um sömu, sem notuð eru í
íslenzk-dönsk orðabók dr. Sig-
fúsar Blöndals.
Auk formála og meginmáls
bókarinnar, sem þegar hefir verið
rætt um, er þar að finna bend-
ingar um notkun hennar, ítar-
legar efnisskrár og ritskrá yfir
bækur um íslenzka tungu, sögu
íslands og bókmenntir, á ýms-
um málum. Verður löngum
skoðanamunur um það, hvaða
bækur beri að taka og hverjum
að sleppa í ritskrá sem þessari.
Sakna eg þar t. d., að Pioneers
of Freedom eftir prófessor Svein
björn Johnson er eigi tekin með
í skrána.
RÁÐUNEYTISBREYTINGAR
Skömmu áður en forsætisráð-
herrann, Mr. King, lagði af stað
áleiðis til San Francisco til þess
að sitja þar þing sameinuðu þjóð
anna, er hófst síðastliðinn mið>
vikudag, gerði hann alþjóð
manna kunnar breytingar á ráðu
neytinu, sem mælst hafa almennt
vel fyrir, hvar sem til hefir
spurst.
Náttúrufríðinda ráðherrann,
Hno. T. A. Crerar, hefir hlotið
senatorstign; eftirmaður hans
verður Hon. J. Allison Glenn,
sem verið hefir um all-mörg ár
forseti neðri málstofunnar.
Brooke Claxton, heilbrigðismála-
ráðherra, tekur við ríkisritara-
embætti. Flotamálaráðherrann,
Hon. Angus L. MacDonald hefir
Bókina prýða landabréf af ís-
landi og all-margar mjög vel
gerðar teikningar eftir Halldór
Pétursson, ungan íslenzkan lista-
mann. Mjög er einnig vandað til
hennar að öðru leyti hvað frá-
gang snertir. Kostar hún $5.50 í
góðu bandi, og má það lágt verð
kallast, miðað við stærð hennar,
hinn ágæta frágang og núver-
andi bókaverð almennt.
Eins og þegar er vikið að, er
kennslubók þessi einkum ætluð
þroskuðum nemendum, svo sem
námsfólki í tungumálum á æðri
skólum og kennurum í íslenzku
og norrænu. Sérstaklega ættu
allir þeir, sem við íslenzku-
kennslu fást, í hvaða skólum sem
er, að útvega sér hana, því að
hún mun reynast þeim mikil-
vægt hjálparrit, jafn yfirgrips-
mikil og hún er og áreiðanleg.'
Byrjendum mun hún hinsvegar
verða nokkuð erfið; en við
kennslu slíkra nemenda er sjálf-
sagt a0 fara að bendingum höf-
undarins þar að lútandi.
En nú er því þannig farið, að
í landi hér er fjöldi yngra og
miðaldra fólks af íslenzkum
stofni, sem talar og les íslenzku
vel, en hefir eigi átt þess kost
að læra hana málfræðilega. Þeim
ætti þessi bók að geta komið að
miklu gagni, því að í henni geta
þeir aflað sér staðgóðrar og við-
tækrar þekkingar á íslenzkri mál
fræði, fundið sér skrifleg við-
fangsefni og aukið orðaforða
sinn. Slíku fólki væru kaflarnir
um “Daglegt líf og daglegt tal”
sér í lagi mikilsverðir, ekki síst,
ef þeir ætla sér einhverntíma,
eins og vonandi er að margir
þeirra hafi í huga, að heimsækja
svipfrítt og söguríkt land feðra
sinna og mæðra.
Fyrir þessa vönduðu og gang-
legu bók sína, sem er honum að
öllu leyti til sóma, á höfundur-
inn miklar þakkir skilið, og
einnig aðrir þeir, er studdu hann
að þörfu verki. En í þeim hóp er
hinn ágæti fræðimaður og ís-
landsvinur, prófessor Kemp
Malone við Johns Hopkins há-
skólann, sem bókin er að verð-
leikum tileinkuð.
Jafnframt skal þess þakklát-
lega getið, að kennslubók þessi
er einn þátturinn í útbreiðslu-
starfi því, sem höfundurinn hef-
ir á undanförnum árum unnið í
þágu íslenzkra fræða með öðrum
ritum sínum og fjölda ritgerða,
sem birst hafa í merkum tíma-
ritum í Ameríku og annarsstað-
ar, um tungu vora, menningu og
bókmenntir.
(Kennslubók þessa má panta
frá The Johns Hopkins Press,
Baltimore 18, Maryland, U.S.A.)
Vönduð kenslubók í íslenzku
Eftir próf. Richard Beck
látið af embætti, en eftirmaður
hans verður Dauglas C. Abbott,
þingmaður St. Antoine-West-
mount kjördæmisins. Dr. J. J.
Cann, Renfrew South, verður
heilbrigðis og velferðarmálaráð-
herra. Hon. Alexander S. Mac-
Millan verður Solicitor-General,
en Lionel Chewrier tekst á hend-
ur forustu tekjumálaráðuneytis-
ins. Paul J. J. Martin Essex East,
verður samgöngumálaráðherra,
en Joseph Jean Mercier, Montrial
tekur við af Maj.-Gen. L. R.
Lafleche, sem War Services ráð-
herra; flestir hinna nýju ráð-
herra eru á bezta aldursskeiði,
um eða innan við fimtugt.
Fimtán nýir senatorar hafa ver
ið skipaðir, flestir úr hópi þing-
manna, og eru tveir þeirra frá
Manitoba, M. Crerar og Dr. J. P.
Hawden, þingmaður St. Boniface
kjördæmisins.
HÁMARK
SVÍVIRÐINGARINNAR
Við Eisenwald og á tveimur
öðrum stöðum á Þýzkalandi,
náði Bandaríkjaherinn fyrir
nokkru haldi á fangabúðum, þar
sem svo var umhorfs, að naum-
ast verður með orðum lýst; tug-
þúsundum fanga af ýmsum þjóð-
ernum, höfðu Nazistar hrúgað
saman í þrælakvíum þessum;
þúsundir höfðu orðið hungur-
morða, líkin svipt klæðum og
andstyggilegar limlestingar átt
sér stað; í þessum vistarverum,
var enn all-margt fólk á lífi, þó
mjög væri það aðfram komið,
og tvísýnt um afdrif þess. Rauði
kross Bandaríkjanna hóf þegar
hjúkrunarstarfsemi meðal þessa
þjakaða og aðframkomna fólks;
er svo alment litið á, að í með-
ferð áminstra fanga, hafi sví-
virðing þýzkra Nazista náð há-
marki.
Til þess að taka af öll tví-
mæli um það, að hér væri ekki
um hviksögur að ræða, heim-
sótti áminstar fangabúðir fyrir
atbeina Gen. Eisenhowers, sendi,-
nefnd úr brezka og ameríska
þinginu, ásamt fjölda blaða-
manna.
DANSKUR ÞINGMAÐUR
ÁVARPAR VIKING CLUB
Robert Staermose, þingmaður
frá Danmörku, var gestur Viking
Club við miðdegisverð hjá Hud-
son’s Bay, þann 17. þ. m. Mr.
Staermose slapp frá Danmörku
með fiskiskútu til Englands síð-
astliðið haust. Lýsti hann nú-
verandi ástandi í Danmörku, og
mótspyrnu þeirri er Danir hafa
veitt þýzka hervaldinu. Liðlega
hálft annað hundrað manns
hlýddu á ræðumann með athygli
og samúð.
Það er sjaldan að okkur, sem
dveljum í fjarlægð gefst kostur
á jafn glöggri mynd frá her-
numdu löndum Evrópu.
Fimm er eru liðin frá því Þjóð-
verjar hertóku Danmörku. Fyrst
eftir hernámið var kostur Dana
betri en kostur Norðmanna eða
annarra þjóða undir hervaldi
Nazista, en seinni árin hefir
grimmd hervaldsins vaxið. í
stað þess að láta kúgast hafa
Danir veitt sívaxandi mótspyrnu
og staðið í einu sambandi við
“The Underground Movement”
sem hefir átt mikinn þátt í að
yfirvinna Þjóðverja. Danir hafa
GJÖRVULEG BRÚÐHJÓN
Mr. og Mrs. Benedikt B. Benediktson
Brúðurin er dóttir Dr. Sveins E. Björnsonar og frú Marju
Björnson í Árborg, en brúðguminn sonur þeirra Mr. og
Mrs. Gísli Benediktson í Wynyard, Sask.
tekið virkan þátt í þessu stríði,
og hefur margt af þeirra ung-
mennum látið lífið í baráttu
frelsis og mannréttinda.
J. Th. J.
FYRRUM DÓMFORSETI
LÁTINN
Nýlega lézt á sjúkrahúsi í St.
Boniface, fyrrum dómforseti
Manitobafylkis, Hon. J. E. P.
Prendergast, 87 ára að aldri; var
hann lærður vel, og, flestum
mönnum háttprúðari; hann var
mannvinur hinn mesti, og dáður
hvarvetna af samtíðarmönnum
sínum; hann átti um hríð sæti
í Manitoba þinginu fyrir Laber-
andrye kjördæmið.
FRÁ ÍTAlflU
Sameinuðu herjirnir sækja um
þessar mundir fram af kapp:
miklu á ítalíu, er veðurfar þar
mjög tekið að batna, og greiðara
umferðar, en áður var; þeir hafa
nú nýverið tekið borgina Bol-
ogna, og fara áfram hröðum
skrefum um Pódalinn, og hafa
víða þar um slóðir stökt herskör-
um Nazista á flótta.
BARÁTTAN
ÚM BERLIN
Rússar hafa nú gersamlega
umlukt Berlín, og er þar nú háð
grimmúðugasta orusta; höfðu
rauðu hersveitirnar, er síðast
fréttist, eitthvað um tvo þriðju
borgarinnar á valdi sínu, og
höfðu dregið rússneska fánann
að hún á hinni miklu þingbygg-
ingu Þýzkalands. Sennilega verð-
ur það úr þessu tímaspursmál,
jafnvel aðeins nokkurra klukku-
stunda, unz yfir líkur, og mót-
staða Þjóðverja í borginni verð-
ur með öllu brotin á bak aftur.
Borgirnar Leipzig og Stutt-
gart, hafa fallið herjum Banda-
þjóðanna í hendur.
Nú þykir víst, að herir Rússa
að austan, taki senn höndum
saman við liðssveitir sameinuðu
þjóðanna að vestan, í námunda
við Leipzig.
Þess er vænzt, að Hamborg
muni þá og þegar gefast upp.
Ur borg og bygð
1 kvæðinu “Systurminning”
eftir Böðvar H. Jakobson, er
birt var í Lögbergi í fyrri viku,
vantaði orðið “lifir” í fyrstu
hendingu síðasta erindis; ljóðlín-
an á að vera þannig:
“Um það lifir vonin þó enn í
brjósti mér.”
Áminst orð vantaði í handrit-
ið.
•
Edward George Peterson, son-
ur þeirra Mr. og Mrs. Magnús
Peterson, sem særðist og var
tekinn til fanga af Þjóðverjum
í orustunni við Dieppe, er nú
kominn til Englands og líður vel,
samkvæmt símfregn til foreldr-
anna; þau Mr. og Mrs. Peterson
eru búsett að 313 Horace Ave.,
Norwood.
•
Mr. G. F. Jonasson forstjóri
Keystone Fisheries Limited, kom
heim í fyrri viku úr því nær
þriggja vikna ferðalagi suður um
Bandaríkin, þar sem hann heim-
sótti New York og ýmissar aðrar
stórborgir í viðskiptaerindum.
•
Mr. Grettir Eggertson, rafur-
magnsverkfræðingur frá New
York, var fyrir skömmu staddu."
hér í borginni í viðskiptaerind-
um, og eins til að heimsækja
ættmenni og vini.
•
Mr. Einar Johnson, ríkislög-
maður frá Lacota, N.-Dak., var
nýlega á ferð hér um slóðir, á-
samt frú sinni og tveimur börn-
um; með honum fór suður til
sumardvalar móðir hans, sem
dvalið hefir hér í vetur hjá
tengdasyni sínum og dóttur,
þeim séra Valdimar og frú Lilju
Eylands.
•
Dr. Richard Beck, forseti Þjóð-
ræknisfélagsins, kom flugleiðis
sunnan frá Grand Forks á mánu-
daginn, og flutti á vegum Ice-
landic Canadian Club þá um
kvöldið, ágætan og fræðimann-
legan fyrirlestur í Fyrstu lút.
kirkju, sem hann nefndi “The
period of awakening and enlight-
enment.” Ennfremiír hélt Dr.
Beck fund með framkvæmdar-
nefnd Þjóðræknisfélagsins; hann
lagði af stað heimleiðis á þriðju-
dagsmorguninn.