Lögberg - 26.04.1945, Page 2

Lögberg - 26.04.1945, Page 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 26. APRÍL, 1945 Og dauðir munu upprísa Eftir DYSON CARTER Þýtt af Jónbirni Gíslasyni Frh. Fimtíu særðir menn í dauða- teigjunum, voru læknaðir á sama hátt; í sumum tilfellunum var öndunaraðferðin notuð í sam- bandi við inndælingu blóðs. Þeg- ar lofti var þannig þrengt út og inn um lungun, kom í Ijós að þessi þvingaða þensla og sam- andráttur lungnanna, framkall- aði æsingu vissra tauga og vöðva er stjórna andardrættinum og komu þannig hinni stöðnuðu vélasamsetningu líkamans í gang að nýju. Vakning hjartaslaganna samfara endurnýjun andardrátt- arins, framkallaði fulla meðvit- und. Af þessum fimtíu, komust 22 til heilsu um stundarsakir, en dóu síðar af afleiðingum sára sinna. Tólf læknuðust að nokkru leiti, en aðrir tólf læknuðust að fullu og öliu; tvö tilfelli mis- heppnuðust algjörlega. Eftir að þessar tilraunir höfðu farið fram á dauðum og deyj- andi mönnum, var dáinn her- maður, Ivan K. að nafni, vakinn til meðvitundar og lífs, en aðeins í 3y2 klukkustund: “Hvar er eg?” spurði hann. Að svo mæltu dó hann af alvarlegum sárum er hann hlaut á vígvellinum. Næsta tilfelli var endurlífgun Valentine Cherepanov, er var dauður, en nú heill heilsu eins og áður var getið um. Síðan hefir fjöldi manna verið “reistir upp frá dauðum.” ' f sambandi við sífelt endur- bættar rannsóknir í þessum efn- um, fórust Dr. Negovsky þannig orð: “Það gleður mig mjög ef þær niðurstöður, sem vér höfum fundið, vekja áhuga stéttabræðra vorra að ná tökum á fullkomn- ari aðferð við endurlífgun dá- inna líffæra.” Fyrsta spurning vor verður auðvitað þessi: Hve löngum tíma eftir andlát, mun Dr. Negovsky takast að vekja menn til lífsins? Nú á þessum tíma er ef til vill heppilegra að krefjast ekki á kveðins svars, vegna mikilvægis þessara hluta, meðan stríðið stendur yfir. En sjáanlega verð- um vér að endurskoða allar hin ar eldri kenningar um dauðann. Afstaðan breytist með hverri viku sem líður. Fyrir skömmu var það við- tekið sem staðreynd, að heili mannsins dæi jafnskjótt ýmsum öðrum líffærum líkamans. Aug- un lifa t. d. 30 mínútum lengur. Vissir vöðvar 10 klst. Blóðsell- ur 18. Bein 3 daga og hár og neglur heila viku. Hvað mein- um vér nú með hugtakinu “dauði” þegar svona er ástatt? Er það þegar heilinn er svo skaddaður af efnafræðilegum breytingum, að öll hugsun og skynjun er útilokuð? Læknavís indin svar því játandi. Nú er spurningin: Hvernig get um vér sett nokkurt tímatak- mark fyrir endurheimtri starf- semi heilans, með þau áhöld reiðubúin, sem nú eru fundin? Vér vitum nú að heilinn deyr ekki strax, í sumum tilfellum að minsta kosti. Læknarnir Rub- in, Hoff, Winkler og Smith, við Yale háskólann, hafa sannað að heilinn starfar löngu eftir það sem kallað er, að líkaminn sé dáinn. Það er auðvelt að trúa að kraftaverk geti skeð gagnvart dauðum heila, þegar aðferðar Dr. Negovsky er gætt, við dauð hjörtu og lungu. Hin skarpa merkjalína milli lífs og dauða, hefir í sannleika verið þurkuð út af læknavísind- unum og áhrif þess á heimspeki- legar og trúfræðilegar hugmynd ir er ómælanleg. Hinir raunverulegu möguleik- ar fyrir algjörum sigri yfir dauð- anum, vekja ákaflega athygli Framkvæmdir læknanna við há- skólann í Michigan, gefa glæsi- legar vonir um aukna björgun mannlífa á sjúkrahúsum. Nákvæmar tilraunir hafa sannað að sjúklingar missa venju lega meira blóð á uppskurðar- borðíinu en jafnvel læknarnir sjálfir athuga. Blóðinndæling er því í öllum tilfellum varnar- meðal og getur fyrirbygt alvaf- leg eftirköst og flýtir afturbata. Ýmsir halda fram að blóðgjafir ættu helst að fara fram á undan hverjum læknisskurði, sem trygging gegn dauðanum. Líffræðingar hafa fært sönn- ur á mikilvægt atriði gagnvart blóðrás líkamans. Hvers vegna og hvernig deyjum vér úr sjúk- dómum, slíkum sem lungnabólgu og barnaveiki? Enn er til fólk, sem heldur að sjúkdóms baktería ráði niður- lögum líkatna vors á sama hátt og þegar t. d. maurar naga í sundur viðarbjálka. Slík skoðun er vissulega röng. Vér vitum ekki með vissu hvernig bakteríur drepa oss. Vér vitum jafnvel ekki hversvegna “microbes” valda veikindum. Amerískur sérfræðingur á “sulfa drugs”, Dr. M. L. Crossley að nafni, hefir stuðlað mjög að náinni rannsókn á' sjúkdómum og dauða. Hann hefir sannað að það er ekki bakterían sjálf sem gjörir oss veika, heldur efna- fræðilegar breytingar sem hún veldur í blóði voru og blóðvökv- um. Þannig t. d. á einu stigi lungnabólgu athyglisverð aukn- ing af “glucosamine” í blóði sjúkl ingsins. Það er einmitt þetta efni sem veldur óttaverðum sjúk- dómseinkennum, kvölum, hita og eymd. Á öðru stigi veikinnav leynist allmikið af “vitamin” í þvaginu, er því dýrmæta efni rænt af byrgðum þeim sem lifr- inni er ætluð að geyma. Berklabólga einkennist af of litlu saltefni í hryggvökðunum, og við framsókn veikinnar verð- ur vart aukinna byrgða af “protein” í blóðinu. Þessar staðreyndir virðast ef til vill þýðingarlausar, en Dr. Crossley og fleiri líffræðingar fundu í þeim vitnisburði um ýms sjúkdómseinkenni. Hiti, kuldahrollur, ógleði og bólga, or- sakast af einfaldri efnabreyt- ingu í blóðinu og geta að lokum leitt til dauða. Enn sem komið er, hafa vísindin ekki fengið sannanir fyrir hinum þýðingar- meiri efnabreytingum á þessu sviði, en þegar þær fynnast að lokum, verða áreiðanlega fundn- ar leiðir til að sigra sjúkdóm og dauða. Fyrst af öllu verður þá mögu- legt að vinna gegn þeirri efna- breytingu í líkama vorum, sem gjörir oss sjúka. Þegar það er framkvæmanlegt, getur líkam- inn háð sína eigin baráttu við. sjúkdóma bakteríur, án aðstoðar lyfja eins og penicillin og vér mundum ekki verða varir neinna sjúkdómseinkenna. Nú þegar geta læknar útilokað allar kvalir af liðskekkju með einfaldri inn- sprautun, en skemdin er ei að síður óbreytt og verður að taka sinn eðlilega tíma til að bætast að fullu. í öðru lagi eru vísindin í þann veginn að uppgötva þau efni í líkama sumra manna, sem gjöra þá óhæfa fyrir móttöku sjúk- dóma, jafnvel þó blóð þeirra og lungu séu full af bakteríum. Hinn frægi vísindamaður, Dr. C. A. Elvehjem frá Visconsin, spáði því fyrir skömmu að nýtt tímabil væri að renna upp í sögu lyfjanna og læknisfræðinnar, þar sem ný og nú óþekt vitamíns, er læknuðu og fyrirbygðu sjúk- dóma af öllum tegundum, yrðu í fullkominni notkun. Á sama hátt og vitamin D lækn ar beinkröm, vitamin B “pell- agra” og vitamin C skyrbjúg, svo munu nýjir lífgjafar finn- ast, er lækna jafnvel enn verri manna mein. Kvennsjúkdóma læknirinn enski, Haden Column og hol- lensku læknarnir Roger og Van Gúinterthad, hafa fyrir skömmu fundið nýja og undraverða hæfi- leika í vitamin C. Þetta undra- efni hefir eftir amerískum rann- sóknum, reynst áhrifamikið gegn asthma og hayfever í mörgum tilfellum, auk þess hefir það djúp áhrif á ófrjósemi og kynferðis- lega hæfileika og ef til vill á lífsafl manna og kvenna yfirleitt og einkum á tvo þýðingarmestu kirtla líkamans. Niðurl. Sá sig um hönd. Hún: “Ef eg á að giftast þér, verður þú að hætta að drekka.” Hann: “Já.” Hún: “Og hætta að reykja.” Hann: “Já.” Hún: “En segðu mér nú. Er það ekkert, sem þig langar til að hætta við af eigin hvötum?” Hann: “Jú, eg held eg hætti við að giftast þér.” FYRIRHEIT SEM ALDREIHEFIR NDKKRU SINNIBRUGÐIST yrirheitna landið ... Þannig er Canada nefnt af öðrum þjóðum heims. Spyrjið þá, sem hafa ferðast. Eða spyrjið heimkomnu hermennina; þeir segja yður frá hve fólk annara landa þyrstir eftir fróð- leik um þetta unga land. Miljónir stríðsþjakaðra manna dreymir um Canada ... þar sem draumar rætast. Þannig hugsuðu feður vorir; og þess vegna erum vér — canadiskir borgarar. Arfleifð vor er mikil þeirra vegna. Fá lönd jafnast á við Canada að námuauðlegð, skógum, góðum bújörðum, vatnsorku og öðrum fríðindum, sem einkenna Canada. Já, Canada er auðugt land — ekki einungis af efnislegum gæðum. Landið er líka auðugt í sonum sínum og dætrum, full- komnum alþýðuskólum, háskólum, og stofnunum varðandi heilsufar þjóðarinnar; hér er land tæki- færanna. Vegna áminstra fríðinda og skipulagningar, hefir Canada ávalt fullnægt öllum skyldum sín- um. 1 öllum viðskiptum við annað fólk, önnur stjórnarvöld, hefir Canada ávalt efnt loforð sín. Og slíkt verður einnig gert í framtíð allri. Canada með öll náttúrufríðindi sín og fólkið að bakhjarli, heldur loforð sín um endurgreiðslu hvers dollaras, er þér leggið í Sigurlánsveðbréf. Og stjórnin lofar að greiða yður $3 ár hvert fyrir $100, sem þér lánið. Og vegna þess að Canada berst til þess að vernda alt, sem canadiskt er, eru íbúar Canada staðráðnir í að kaupa eins mikið af Sigurláns- veðbréfum og þeir framast orka. Vér verðum að koma Áttunda Sigurláninu í örugga höfn, alveg eins og raun varð á um öll hin fyrri lán. Hér er tækifæri til þess að láta dollara yðar þjóna Canada . .. og yður sjálfum. Og með því að þjóna, sparið þér jafnframt fyrir aukin tækifæri, sem þér verðið hluthafar í, varðandi bjarta framtíð fyrirheitna landsins ... Canada. Leggið fé í það bezta— KAUPIfl SIGURLANSVEBBREF \ 8-65 NATIONAL WAR FINANCE COMMITTEE

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.