Lögberg - 26.07.1945, Side 4
4
LöGBERG, FIMTUDAGINN, 26. JÚLÍ, 1945
---------------------------löBtjers-----------------------------------------------------------------
QefiS út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LOGBERG,
695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Editor: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “Logberg” is printed and published by
The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba
PHONE 21 804
«■■ — --------------------------------------------------------------------------------------—4>
llilllllllil!lllillllll!lllllllllllllll!IIIIUIIIIIIilllllllllllllllllllll!l!lii!lllllllllllllllllllll!l!l!llll]|||||||||||||||||||||||||l!lllllllllllllllllllllllltl!l!!llllllllllllllllll
Orð að skilnaði
Flutt í kveðjusamsœti undir umsjón Hins ev.
lút. kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi,
19. júlí 1945.
Eftir próf. Ásmund Guðmundsson
lllllll!llllllll!llillllllllllllllll!llll[l[|IHIIIIIIIIIIIIIlll![|IIIIIIIIIIUIIIII!llllllll[lllllllllllllllllllllllUllllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllllllllllllli|llllllllllllllll
Herra samkvæmisstjóri. Herra kirkjufélags
forseti, aðrir starfsbræður og vinir.
Mér er mikil sæmd og gleði að því veglega
samsæti, sem þið haldið mér undir umsjón Ev.
lút. kirkjufélagsins, og að þeirri fallegu gjöf,
sem þið hafið gefið mér. En því meiri er sæmd-
in og ánægjan, sem eg veit, að það er ekki
fyrst og fremst eg sjálfur, sem þið sýnið þenn-
an ástúðarvott, heldur kirkjan á íslandi, þjóðin,
landið sjálft. Handtaki,ð ykkar hlýja, bæði hér
og víðsvegar um bygðir Vestur-Islendinga hefir
sannað mér það.
Enn meiri gleði var mér þcf að fá tækifæri
til að sitja ykkar kirkjuþing. Fundardagarnir
í kirkjunni verða mér minnisstæðir og eg hlakka
til að segja frá þeim heima. Mér er nær að
halda, að það sé eitt einkenni á okkar tímum,
hve lítið tillit menn taka til prédikana og
eggjunarorða, sem séu óstudd af framkvæmd-
um. En boðskapur í verki ér því áhrifameiri.
Eg get dregið fram dæmi af ykkar kirkjuþingi,
sem geta orðið þjóðkirkjunni á íslandi bæði
til hvatningar og fyrirmyndar.
Það var hátíðlegt að sjá mikinn hluta kirkju-
fólksins við þingsetningarguðsþjónustuna rísa
úr sætum og ganga til altaris. Mér fanst hrifn-
ing fara um kirkjuna og eg þráði það, að sam-
eiginlegir fundir presta og leikmanna á ísland'
byrjuðu eins.
Þessi nána samvinna leikmanna og presta á
kirkjuþinginu er yfirleitt til fyrirmyndar. Hér
er engin hætta á því, eins og sumstaðar, að kirkj-
an verði talin stofnun ákveðinna embættis-
manna, prestanna, þeir séu kirkjan. Nei, hér
sést þegar, að kirkjan er lifandi samfélag, sem
ætlað er að ná til allra, jafnt lærðra og leikra.
Hugmyndin um prestsdóminn almenna hefir
náð hér góðum þroska.
Þáttur kvenna í þessu starfi virtist mér veiga-
mikill. Hún var falleg skýrslan um starf Banda-
lags kvenna og mjög lærdómsrík. Enginn hefir
að líkindum skilið gildi þessa þáttar betur en
séra Jón Bjarnason, sem spurði undrandi,
hvernig mönnum gæti komið það til hugar að
ætla sér að útiloka helming mannkynsins frá
boðun fagnaðarerindisins. Mér sýndist þær vera
margar á kirkjuþinginu. Maríur og Mörtur, og
vísast oft báðar í sömu persónu. Skyldi eng-
inn vanþakka né misskilja Mörtu hjutskipti.
Menn töluðu um það, að gott væri að koma
til hinna neðri bygða undir kirkjunni. Og það
var satt. Þar var líka unnið kirkjulegt starf,
sem mikils var um vert, Kristur sjálfur mett-
aði einnig mannfjöldann, er hann hafði kent
honum. Hugmyndinni þörfu og góðu, um stofn-
un sumarheimilis barna við Winnipegvatn, hygg
eg að muni vel borgið í höndum kvenna, enda
veit eg ekki til annars en að konum hafi gengið
hið bezta að koma þeim málum í framkvæmd,
sem þær hafa tekið að sér á annað borð. Glögg-
skygni þeirra á það, hvar þörfin sé brýnust, og
þrautseigjan reynist hvorttveggja giftudrjúg.
Af merkum nýmælum þessa afmælis þótti
mér mest til koma ákvörðunarinnar um það að
stofna nýtt elliheimili í Norður Dakota, svo að
kirkjufélagið hafi þá á sínum vegum tvö gamai-
mennahæli. Eg hefi séð það eigin augum, hver
fyrirmyndarstofnun Betel er eða réttara sagt,
hvert fyrirmyndarheimili; þetta er vafalaust
kirkjufélaginu ómetar.lega mikils virði að það
eigi sjálft sínar líknarstofnanir og starfræki
þær. Þetta skortir þjóðkirkjuna heima mjög
tilfinnanlega, en vonar.di verður ráðin bót á því
hin næstu ár undir fcrystu biskups.
Þá gladdi það mig sérstaklega, hve hlý bróð-
urorð fóru á milli Lúterska kirkjufélagsins og
Sameinaða kirkjufélagsins, alveg eins og vera
átti. Öldurnar sem risu hátt og ógnandi fyrir
30—40 árum, hefir aftur lægt. Eg heyrði Þór-
hall biskup á þeim árum segja, að sig langaði
vestur um haf til að reyna að koma í veg fyrir
klofning. Og ef til vill hefði hinum vitra og
góðgjarna manni orðið mikið ágéngt. Síðan
hefir það altaf verið löngun forystumanna kirkj-
unnar á íslandi, að eining vestur-íslenzkrar
kirkju verði sem mest, samstilt tök og sam-
vinna'og í rauninni hlýtur það sérstaklega nú
að vera áhugamál allra þeirra, sem skilja vitj-
unrtíma kirkjunnar um víða veröld, að deildir
hennar verði að vinna saman að kristilegri
menningu og bræðralagi, ef að hvorttveggja á
að haldast á jörðinni. Mér verður ljúft að lýsa
fyrir biskupi okkar þessum bróðuranda, sem
hverskonar áreitni á að skríða í felur fyrir.
Eg veit, að' það mun gleðja hann hjartanlega,
því að stefnu hans, sem £ið hafið kosið heið-
ursverndara kirkjufélags ykkar, verður bezt
lýst í þessum efnum með orðum Páls postula
til safnaðarins, er hann unni heitast: “Ef nokk-
uð má sín upphvatning vegna Krists, eg kær-
leiksávarp, ef samfélag andans, ef ástúð og með-
aumkun má sín nokkuð, þá gjörið gleði mína
fullkomna, með því að vera samhuga, hafa
sama kærleika og hafa með einni sál eitt 1
huga. Gjörið ekkert af eigingirni né hégóma-
skap, heldur metið með lítillæti hver annan
meira en sjálfan sig, og hver og einn líti ekki
einungis til þess, sem hans er, heldur líti og
sérhver til þess, sem annara er. Verið með
sama hugarfari, sem Jesús Kristur var.” Eg
mun aldrei gleyma þeim anda, sem þeir töluðu
í, séra Haraldur Sigmar, forseti kirkjufélags
ykkar, og séra Filip Pétursson fyrir hönd Sam-
einaða kirkjufélagsins. Mér fanst hann vera vor-
boði gróandi sumars, vaxandi samúðar og sam-
starfs.
En í baksýn þess, er gerðist í kirkjunni á
kirkjuþinginu, sá eg mynd hans, er breiðir út
hendur og segir: Komið til mín. Og eg vona,
að eg hafi séð meira en altarismyndina eftir
Thorvaldsen, því að enn standa orð Krists í
sama gildi og forðum: “Án mín getið þér alls
ekkert gjört.” Mér skilst, að einlægni og hjarta-
hlýja ykkar Vestur-Islendinga muni vera góð-
ur farvegur anda hané. Eg minti á Jónsmessu-
kvöld hér í kirkjunni á orð séra Jóns Bjarna-
sonar um hina daglegu umgengni við drottinn
vorn Jesúm Krist. Það er þessi samfélagsvitund,
sem þarf að vera vakandi hjá okkur — okkar
rétta líf, svo að eg viðhafi orð Hallgríms Péturs-
sonar. Þá er öllu borgið. En við mennirnir er-
um oft svo undarlega sljóir. Þið hafið senni-
lega heyrt frásöguna um það, þegar skotið var
á línuveiðarann Fróða fyrir nokkrum árum.
Formaðurinn særðist og bróðir hans. Þegar átti
að binda um sár formannsins bað hann þess, að
fyrst yrði bundið um sár bróður síns. Það
voru síðustu hetjuorð þessa manns. Ef einhver
hefði með slíkri fórnfýsi bjargað lífi okkar, þá
myndi það trauðla ganga okkur úr hug fram í
rauðan dauðann. Og þó hefði það aðeins lengt
líkamslíf okkar um nokkra daga eða ár. En
hver ætti þá að vera afstaða okkar til hans,
sem lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir sálarheill
okkar um alla eilífð? Ætti hann að hverfa okk-
ur úr hug nokkuru sinni? Það er samfélagið
við hann, sem er lífæð alls kristindóms eins
og hver blaðsíða N. t. vottar. Eg óska kristni
Vestur-íslendinga og Austur-Islendinga þess
samfélags síðast og fyrst og að eining þeirra á
komandi árum og öldum verði runnin af þeim
djúpu rótum.
Eg hefði ef til vill átt að tala persónulegar
um ykkur og sjálfan mig á þessari kveðjustund,
um vináttu ykkar, samstarf og góðgirni við
mig, um fornvin minn forseta kirkjufélagsins
og hvernig við lifum samtímis mikla merkis-
atburði í okkar æfi og blessunaróskir mínar
fylgja honum og fjölskyldu hans í starfinu
nýja. En eg hefi alt þetta í huga. Um sjálfan
mig finst mér harla lítið hjá því verkefni, sem
eg á að leitast við að vinna. Og þegar eg skil
við góða vini, þá finst mér svo mikið um gildi
vináttunnar, að þegar eg kveð þá, ómar ein-
hversstaðar í huganum eins og undiralda: Kom-
ið þið blessaðir og sælir.*
Eg þakka ykkur hjartanlega vináttu ykkar og
vinargjöf. Og ljúft verður mér að skila kveðju
ykkar heim.
Guð varðveiti ykkur alla og blessi vini mína,
starfsbræður, forseta kirkjufélagsins, Kirkju-
félagið, kristni Vestur-íslendinga. Hann tengi
sjálfur bræðraböndin yfir hafið.
Meðan sumarsólir bræða
svellin vetra um engi og tún,
skal vor ást til íslands glæða
afl og fjör und krossins rún,
djúp sem bláminn himin hæða
hrein sem jökultindsins brún.
Lobo konungur í
Currumpaw
(Erenest Thompson segir frá)
+++
Fyrir mörgum árum síðan átti
vinur minn grípahjörð og hjarð-
lendur í Currumpaw dalnum í
Nýja Mexeco. Hann vissi að eg
fékst við úlfaveiðar á mínum
yngri árum og þótti slingur við
þá veiðimensku. Einu sinni fékk
eg boð frá þessum vinu mínum
þess efnis, að hann bað mig að
koma og ráða af dögum flokk af
úlfum, sem mikinn óskunda
höfðu gert í nautahjörð hans, og
engum hafði tekist að yfirvinna,
þó dýraveiðamenn, og hjarð-
menn hefðu reynt alt sem þeir
gætu.
Þegar að eg fékk boðin var
eg staddur í Suðvestur ríkjun-
um og tók boði hans tveim hönd-
um. Eg lagði strax á stað til
Currumpaw á vagni með tveim-
ur hestum fyrir, með tvo menn
með mér, mér til aðstoðar og
nokkra úlfaboga,
Þegar að eg kom til Currum-
paw var mér sagt að foringi
úlfaflokksins væri gríðarstór
úlfur, grár á lit og að Mexico
menn kölluðu hann Lobo gamla
úlfakonung. Allir hjarðmenn-
irnir sögðust þekkja hann, þó
fæstir þeirra hefðu séð hann.
Að honum lægi lægra rómur,
en hinum úlfunum, sem með hon
um voru. Að spor hans væru
stærri en vanaleg úlfaspor, sem
eru 4Y2 þumlungur. Hans væru
að minsta kosti 5% þumlung-
ur og að það væri ómögulegt
að villast á honum. Þessi gamli
útlagi var eins slunginn eins og
hann var stór. Margt hafði ver-
ið reynt til þess að eyðileggja
hann og félaga hans. Bogar
höfðu verið settir fyrir þá, eytri
stráð á veg þeirra, og skotmenn
legið í leyni til að ná þeim, en
við öllu ráðabruggi mannanna
og öllum þeirra brögðum sá Lobo
konungur úlfanna.
Þegar að hjarðmennirnir fengu
með engu móti unnið Lobo,
lögðu þeir fé til höfuðs honum,
að upphæð þúsund dollara, og
er það víst meira fé en lagt
hefir verið til höfuðs nokkrum
öðrum úlfi. En það virtist ekki
hafa hin minstu áhrif á Lobo,
eða félaga hans, þeir héldu á-
fram uppteknum hætti, og á
fimm árum drápu þeir tvö þús.
nautgripi flest af því ársgamlar
kvígur.
Lobo og þeir félagar voru
mjög vandir að mat sínum. Eft-
ir að þeir höfðu drepið vetrung
og það gjörðu þeir nálega á
hverri nóttu, átu þeir aðeins það
sem þeim þótti bragðbest af
kjötinu, hitt skyldu þeir eftir.
Lobo var mjög hugrakkur.
Hann hræddist aðeins eitt, og
það var byssa, og af því að hann
vissi að allir karlmennirnir í
Currumpaw héraðinu báru ávalt
býssur með sér, þá forðaðist
hann þá og passaði að félagar
sínir gjörðu það líka. Þeir földu
sig því á daginn og voru aldrei
á ferli fyr en, dimma tók af
nóttu. Mér varð því ljóst að til
lítils var að leggja bogana, sem
eg hafði tekið með mér fyrir
slíkann óvin, svo eg reyndi að
eytra fyrir hann. Eg fékk mér
nýrnamör úr nýslátruðum vetr-
ung og sauð hann saman við ost.
Lét samsuðuna kólna, skar hana
svo í hæfilega stóra bita og lét
strychnine í hvern bita og fylti
svo gatið, sem eg varð að gjöra
í bitana með osti. Eg passaði
meg með að anda ekki á þessa
beitu, á meðan að eg var að
búa hana út, og á höndunum
hafði eg fingravetlinga, sem eg
hafði dýft ofan í volgt vetrungs-
blóð svo að eg snerti hana ekki
með berum höndunum, síðan
fékk eg mér nýja vetrungshúð
sem eg rauð í blóði, setti beit-
una innan í húðina, batt hana
svo saman, festi snæri í böggul-
inn, fékk mér svo hest, settist
á bak honum og dró böggulinn á
eftir mér í hring, um tíu mílna
víðann, og skildi eftir einn eytur
bita á hverjum fjórða parti úr
mílu og passaði mig með að
snerta ekki neitt, sem eg skildi
eftir, með berum höndum, og
fór svo heim.
Daginn eftir fór eg að vitja um
hvað Lobo hefði gjört við eytr-
ið. Eg sá fljótlega að hann og
félagar hans höfðu veitt farinu,
sem húðin er eg dró beituna í,
skildi eftir; eftirtekt og fylgt
slóðanum og þegar eg kom þang
að, sem eg skildi fyrsta eytur-
bitann eftir, var hann horfinn
og hugsaði eg með mér, að nú
væru dagar Lobo taldir. Eg hélt
áfram slóð mína frá deginum
áður og kom þangað, sem eg
skildi eftir annan og þriðja bit-
ann, og voru þeir líka horfnir,
en engir úlfaskrokkar sáust. En
þegar eg kom að staðnum, sem
eg skyldi fjórða bitann eftir á,
sá eg bitana fjóra þar. Lobo hafði
fært þá alla saman, en engann
etið, og áður en hann skildi við
þá, hafði hann gjört sín stykki
á þá ofan, mér til storkunar og
fyrirlitningar á allri minlú^veiði-
kænsku.
Mér varð undir eins ljóst, að
Lobo var of kænn til þess að
láta ginnast á minni eyrtunar-
aðferð, svo eg keypti þá beztu
stálboga, sem eg gat fengið og
eg ásamt hjálparmanni, sem mér
var fenginn, unnum að því í
heila viku að leggja bogana á
brautir úlfanna, sem að vatns-
bólum þeirra láfu og á aðra staði
þar sem umferð þeirra þótti lík-
legust. Við festum bogana við
trjáboli, sem við fólum sitt hvoru
megin við braut þeirra, svo gjör-
samlega, að enginn maður hefði
getað merkt að þar væri um
nokkurn farartálma að ræða, og
svo drógum við dauðann jarð-
smýgil um þar sem við jörðinni
var rótað og þar sem við höfð-
um stígið.
Þegar eg eftir nokkra daga fór
að vitja um bogana, sá eg fljótt
að sú aðjferð mundi að litlu
haldi koma. Lobo hafði að vísu
komið að bogunum, en eg sá á
förum hans að hann á einhvern
óskiljanlegan hátt, hafði haft
grun um að alt væri ekki með
feldu. Þegar hann var rétt kom-
inn að fyrsta boganUm hafði
hann stansað og tekið að rífa
upp jörðina hér og þar og færa
sig áfram smátt og smátt unz
hann fann keðjuna, sem boginn
var festur við trjábolinn með.
Svo hafði hann haldið áfram og
viðhaft’ sömu aðferð við eina
ellefu boga aðra. Eg sá að hér
var ekki við lambið að leika sér
og fór því að athuga för og
feril Lobo nákvæmlega, veitti eg
því þá eftirtekt að í hvert sinn
og hann varð boganna var, þá
vék hann ávalt framhjá þeim
undan vindstöðu. Mér datt þá í
hug, að breyta til um bogalagn-
inguna. I staðinn fyrir að leggja
þá hvern fram af öðrum, lagði
eg nú einn ofan í úlfaslóðina og
svo þrjá boga sitt hvoru megin,
svo að þegar frá þeim var geng-
ið mynduðu þeir stafinn H, svo
að boginn sem í slóðinni var,
myndaði miðlegginn og þóttist
eg nú vera viss um að þegar
Lobo kæmi að boganum, sem í
slóðinni var, þá mundi hann
hljóta að lenda í einhverjum af
hinum bogunum, sem utan við
hana voru. En Lobo var ekkert
ginningarfífl, því er hann varð
boganna var, þá stansaði hann
og í staðinn fyrir að sneiða fram
hjá þeim, eins og hann var van-
ur, þá gengur hann aftur á bak
frá þeim og hæfir nákvæmlega
sömu sporin og hann hafði stígið
þegar að hann kom, þar til að
hann var úr allri hættu, þá gekk
hann í víðum hring allt í kring-
um bogana og hélt svo nokkrar
mílur út í hóla og drap þar vetr-
ung.
Eg eltist við Lobo og félaga
hans í fjóra mánuði árangurs-
laust og var orðinn ráðþrota,
svo hann hefði að líkindum get-
að útent sinn eðlilega ránsaldur
af hann hefði ekki misséð sig
með því, að taka að sér unga
og ógætna úlfalæðu.
Eg hafði ekki séð þessa nýju
konu Lobo, en Mexikanar, sem
fylgdu hjörðum sínum á Mesa
sléttunum höfðu stundum séð
Lobo og félaga hans í tungls-
ljósi á kveldin, sögðu mér að
hún væri hvít sem snjór og að
þeir kölluðu hana Blanka.
Þetta þótti mér góðar fréttii
og mér fanst að þessi ráða-
breytni Lobo mundi gefa méi
tækifæri á honum. Eg hugsaði
því ráð mín, sem voru í þvi
fólgin að eg tók vetrung og
slátraði honum þar sem að eg
vissi að Lobo og félagar hans
yrðu varir við hann, lagði svo
boga meðfram skrokknum, svo
að þeir voru nokkuð áberandí,
svo tók eg höfuðið af og lagði
það nokkra spöl frá, eins og
því hefði verið hent þangað í
hirðuleysi, tók tvo boga, sem eg
hafði gjört lyktarlausa og faldi
þá sitt hvoru megin við höfuðið
og festi þá við það, gekk svo
vandlega frá öllu saman og tók
að síðustu úlfaskinn og nuddaði
holdrosanum yfir jörðina alt í
kringum höfuðið og gjörði spor
með úlfafótum er fastir voru
við skinnið, yfir bogana og í
kringum höfuðið.
Morguninn eftir að eg kom að
(Framh. á bls. 5)
“ESCORT” SKOR
FVRIR ELDAI DR VHGRI HENN
Jafn vinsælir með yngri sem eldri eru þessir
fallegu “Escort” oxford-skór, sem fá má úr
svörtu eða brúnu kálfsskinni og svörtu kið-
lingaskinni.
Balmoral og Blucher snið með Goodyear
sólum. Má velja úr stærðum og vídd frá 6 til 11.
$5.95 til $8.95
Karlmanna og drengja skódeildin, The Hargrave Shops íor Men,
Aðalgólfi.
JT. EATON C?,M,TEo