Lögberg - 26.07.1945, Side 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 26. JÚLÍ, 1945
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
•
Mr. og Mrs. Jónas Björnsson
frá Seattle, Wash., hafa dvalið
í borginni nokkra undanfarna
daga í heimsókn til ættingja og
vina.
•
Frú Sína Ólafsson frá Seattle,
Wash., kom í heimsókn hingað
til borgar um síðustu helgi; hún
fór héðan suður til North Dakota
á mánudagskvöldið.
•
Síðastliðinn laugardag lézt hér
í borginni Guðrún Pétursdóttir
Sölvason, ekkja Sigurðar Sölva-
sonar fyrrum póstmeistara í
Westbourne, Man.; hún var fædd
að Felli í Biskupstungum 26.
marz, 1866, hin mesta ágætis-
kona, prýðis góðum gáfum gædd;
hún var jarðsungin frá Fyrstu
lútersku kirkju á þriðjudaginn
af séra Valdimar J. Eylands.
Þessarar mætu konu verður frek
ar minst á næstunni.
•
Gefin voru saman í hjónaband
í Fyrstu lútersku kirkju þann
14. þ m. Lloyd Ralph Sigurð-
son frá Árborg, og Joyce Eveline
Chant. Séra Valdimar J. Eylands
framkvæmdi hjónavígslunna.
•
Sú fregn hefir nýlega borist
hingað í bréfi frá Reykjavík, að
hinn ágæti tenorsöngvari, hr.
Birgir Halldórsson, hafi sungið
þar tvisvar við mikla aðsókn og
geysi hrifningu; er þess jafn-
framt getið, að Birgir sé þá í
þann veginn að leggja upp í’
söngför til ýmissa stærstu bæja
landsins; hann heldur söngsam-
komur sínar á vegum hljómlist-
arfélags Islands. Birgir er vin-
margur hér um slóðir, og það
þar af leiðandi mörgum mikið
ánægjuefni, að frétta af velgengi
hans.
•
Ingólfur Johnson og Margaret
Ciaire MacQueen, voru gefin
saman í hjónaband 6. júlí s. 1.,
að heimili foreldra brúðgumans,
ísaks og Jakobínu Johnson. Við-
staddir voru um 75 vinir og
vandamenn, þar á meðal Mr. og
Mrs. D. MacQueen, foreldrar
brúðarinnar, frá Vancouver, B.
C. Heimili ungu hjónanna er í
Seattle, Wash.
Lögberg flytur ungu hjónun-
um innilegar hamingjuóskir.
•
Gefið í Minningarsjóð
Bandalags Lút. Kvenna
1 hjartfólginni minningu um
Stefán Dauglas Pálmason $50.00,
frá foreldrum hans og systkin-
um, Mr. og Mrs. S. Pálmason,
Winnipeg Beach. Kvenféla^
Sambandssafnaðar, Hecla, Man.
$15.00. Mr og Mrs. C. Paulson,
Gerald, Sask. $20.00. Mrs. H. G.
Henrickson, Winnipeg $10.00, í
minningu um systurson hennar
P.O. Leonard Drysdale. Mr. og
Mrs. A. H. Gray, Winnipeg $5.00.
Með innilegu þakklæti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
•
Mr. Bergur Johnson frá Bald-
ur, Man., dvaldi í borginni
nokkra daga í vikunni, sem leið,
í heimsókn til kunningja sinna.
Kaupendur á íslandi
Þeir, sem eru eða vilja ger-
ast 'kaupendur Lögbergs á
Islandi snúi sér til hr. Björns
Guðmundssonar, Reynimel
52, Reykjavík. Hann er gjald-
keri í Grænmetisverzlun
ríkisins.
Messuboð
Séra B. Theodore Sigurðsson,
prédikar á eftirgreindum stöð-
jum, sunnudaginn 29. júlí:
Silver Bay, kl. 2 e. h.
Vogar, kl. 4 e. h.
•
Prestakall Norður Nýja íslands
29. júlí—Framnes, messa kl. 2
e. h.
Árborg, ensk messa kl. 8 e. h.
5. ágúst—Geytsir, fermingar-
messa kl. 2 e. h.
Riverton, ensk messa kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
•
Guðsþjónustur í Argyle presta
kalli, sunnudaginn 29. júlí.
Grund, kl. 2,30 e. h. Kveðju-
guðsþjónusta.
Glenboro, kl. 7,30. Kveðju-
guðsþjónusta.
E. H. Fáfnis.
•
Cand. theol. Pétur Sigurgeirs-
son, S.T.M., flytur guðsþjónustu
í Fyrstu lút. kirkju, sunnudaginn
29. júlí kl. 7 e. h.
Spakmœli
Guðm. Finnbogason: “Það er
enginn galli á hugsjón, að hún
er langt fyrir ofan veruleika
líðandi stundar. Hugsjónir eru
til þess, að stýra þeim, og enginn
hefur fundið það að leiðarstjörn-
ufanji, að hafskipin geta ekki
rekið stefnið í hana.”
•
Henry Ford: “Ef einhver leynd
ardómur er í því, að láta sér
farnast vel, þá er hann fólginn
í hæfileikanum til þess, að sjá
hlutina frá annarra sjónarmiði
ekki síður en okkar og í því, að
fallast á það sjónarmið þeirra.”
•
Owen D. Young: “Maðurinn
sem getur sett sig í annarra spor,
sem getur skilið hugsunarhátt
þeirra, hann þarf aldrei að ör-
vænta um framtíð sína.”
•
Publ. Syrus: “Við kærum okk-
ur um aðra, þegar þeir kæra sig
um okkur.”
Napoleon I.: “Jósefína, mér
hefur farnazt flestum betur í
heiminum, en samt ert þú nú
eina mannveran í veröldinni,
sem eg get reitt mig á.”
•
Lincoln: “Flest fólk verður
nokkurn veginn eins hamingju-
samt og það kærir sig um að
vera.”
Ferð til Vancouver
(Frh. af bls. 1)
að starfið og lífið geti án hindr-
unar haldið áfram, og sér mað-
ur hvergi glöggari mynd af
þessu heldur en á hinni löngu
fjallaleið í British Columbia eða
á hinni miklu eyðimörk milli
Winnipeg og Toronto. Stöðvar
þjónarnir í hinum eyðilegu smá-
þorpum, fráskildir að miklu
leiti öllu mannlegu félagi og
þægindum lífsins, mennirnir,
sem sjá um það og vinna að því
nætur og daga að brautin sé í
lagi svo alt gangi hindrunarlaust
eru mannfélaginu eins nauð-
synlegir eins og þeir, sem æðstu
embætti skipa og ættu að njóta
sömu virðingar ef þeir eru sinni
köllun trúir. Lestarþjónarnir frá
hinum lægsta til þess hæsta, sem
dag eftir dag og ár eftir ár vaka
yfir lífi þeirra, sem með járn-
brautum ferðasta, eru í mínum
augum aðdáanverðir, þeirra á-
byrgð er mikil og þeir bregðast
sjaldan sinni köllun, járnbraut-
arslys eru sjaldgæf vegna þess
að það ber sjaldan við að þeir
sofni á verði eða bregðist sinni
köllun, annars er C.P.R. frábært
flutningakerfi, sem mun jafnast
á við það sem best er í heimi.
Árla morguns þegar við komum
á fætur mættum við á lestinni
þeim Mr. og Mrs. Valdi Jackson
frá Elfros, Sask., höfðu þau ver-
ið um tíma í heimsókn í Van-
couver, ásamt 2 ungum dætrum
sínum, en voru nú á heimleið.
Mr. Jackson tók þátt í spurninga
samkeppni á fyrstu samkomunni
sem við vorum á þar vestra, og
stóð sig vel. Hann rekur bú-
skap í all-stórum stíl í Vatna-
bygðunum. Þetta fólk voru á-
gætir ferðafélagar. Á leiðinni
austur les eg “Mother Russia”
eftir Maurice Hindus, sem mér
var gefin að skilnaði þar vestra,
eftirtektarverð bók, mér hefur
ætíð þótt Hindus góður höfund-
ur.
Annars bar fátt til tíðinda,
ferðin gekk vel austur yfir fjöll-
in blá mót sól og morgni og yfir
sléttuna endalausu. Á lestinni
var maður við aldur, sem eg
veitti sérstaka athygli, stór mað-
ur bjartur yfirlitum og höfðing-
legur, eitt sinn er eg sat og var
að lesa í Readers Digest ávarp-
aði hann mig og spyr mig hvert
eg hafi lesið ritgjörð Mr. White
Kansas um Rússlands ferðina,
og kvað eg já við því, sagði hann
“þar er hvert orð sannleikur”.
Kom það upp úr kafinu að þessi
maður var fæddur á Rússlandi
og var gagnkunnur þar, hann
var þar í gegnum byltinguna
1917 og 8 ár eftir það, var um
tíma í fangelsi oý komst í hann
krappann, kunni hann frá mörgu
að segja, lét hann hið versta af
Bolsivismanurn og ófrelsinu í þá
tíð, og vildi hann leggja lítinn
trúnað á það að ástandið hefði
mikið batnað. Hefur þó óefað
orðið mikil breyting til batnað-
ar frá því sem áður var eftir
því sem Hindus segir. Þessi
maður hafði verið í Mexico og
víðar, nú var hann bóndi í
Manitoba, og sagði hann að sér
hefði farnast vel, taldi hann hik-
laust þetta land og mannfélags-
fyrirkomulagið eitt hið allra
besta í heimi og lauk miklu lofs-
orði á þjóðina og landið, og var
þó sérstaklega einstaklingsfrels-
ið, sem hann mat mest, enda er
það, það dýrasta sem mennirn-
ir hafa sóst eftir um liðin ár,
og aldir, og ef að því kemur að
menn missi það, þá getur komið
fyrir að margur fyndi hvað hann
hefur mist.
Eftir góða og rólega ferð að
vestan komum við til Winnipeg
að morgni þess 15. marz, þar
vorum við í góðu yfirlæti til
þess 17. þá fórum við seinasta
áfangann, allt var í góðu lagi
heima, sólskinsdagarnir í Van-
II
ISLENDINGADAGURINN
i GIMLI PARK
Mánudaginn, 6 ágúst, 1945
Forseti, Mr. G. F. Jónasson. Fjallkona, Frú Ólína Pálsson.
Hirðmeyjar.
Ungfrú Pauline Marion Einarson, Frú Margaret Pálsson Ramsey
Skemtiskrá byrjar kl. 2 e. h. íþróttir byrja kl. 12 á. h. '
SKÉMTISKRÁ
/
1. O, Canada.
2. Ó, Guð vors lands.
3. Forseti, Mr. G. F. Jónasson, setur
hátíðina.
4. Karlakór íslendinga í Winnipeg.
5. Ávarp Fjallkonunnar, Frú Ólína
Pálsson.
6. Karlakórinn.
7. Ávarp gesta.
8. Frú María Markan östlund, ein-
söngur.
9. Minni Islands, ræða Pétur Sigur-
geirsson.
10. Minni íslands, kvæði, Gunnbjörn
Stefánsson.
11. Frú María Markan Östlund, ein-
söngur.
12. Minni Canada, ræða, Dr. P. H
Thorlákson.
13. Minni Canada, kvæði, Dr. S.
Björnsson.
14. Karlakórinn.
T.
E.
God Save the King.
Kl. 4 Skrúðganga. Fjallkonan leggur blómsveig á landnema minnisvarðann.
Kl. 6. Almennur söngur, undir stjórn Mr. Paul Bardal
Kl. 9. Dans í Gimli Pavilion. Aðgangur að dansinum 25 cent.
O. Thorsteinsson Old Time Orchestra spilar fyrir dansinum.
Aðgangur í garðinn 35 cent fyrir fullorðna, 10 cent fyrir börn innan 12 ára.
Gjallarhorn og hljóðaukar verða við allra hæfi.
Sérstakur pallur fyrir gullafmælisbörnin og gamla fólkið á Betel.
Karlakórinn syngur undir stjórn Mr. Sigurbjörns Sigurðssonar.
Sólóisti Karlakórsins verður, Pétur G. Magnúss.
Miss Snjólaug Sigurðson aðstoðar Maríu Markan, en G. Erlendsson kórinn.
íslenzkar hljómplötur verða spilaðar að morgninum og milli þátta.
Takið eftir “Traina”-ferðum milli Gimli og Winnipeg hér í blaðinu.
ISS
couver lifðu nú bara í endur-
minningunni, en nýjir sólskins-
dagar hafa runnið upp, því flest-
ir dagar eru bjartir og þó stund
um dragi ský fyrir sól, skín sól-
in altaf björt á bak við skýin.
Þetta er nú orðið nokkuð langt,
en af ásettu ráði hefur þetta
komið í smáskömtum svo það
yrði ekki eins bráðdrepandi fyr-
ir blaðið eða lesendurna.
Lobo konungur
(Frh. af bls. 5)
var leit á Lobo þar sem hann lá
og mælti:
“Þú gast ekki án hennar ver-
ið. Héðan af aðskilur ykkur
enginn að.” J. J. B.
The Swan Matwfactwmg C«.
Manuíacturera of
SWAN WEATSneK-STRIP
Winnipeg.
Halliér M»thu»alema Swan
Ellganii
281 Jamea Street Phene 22 841
með félögum sínum, og þannig
lá hann daginn allann, fram til
sólarlags.
Það er sagt að ljón svift mætti
sínum, örn frelsi og dúfa maka,
deyi úr sorg. Hverjum mundi
detta í hug að þessi Víkingur
sléttunnar mundi geta afborið
allar þær raunir. Eg veit aðeins
að morguninn eftir var Lobo í
sömu stellingum og fiann var
kveldið áður þegar eg skildi við
hann; á honum var hvorki skurð
ur né skeina, en hjartað var
brostið. — Úlfakonungurinn í
Currumpaw dalnum var dauð-
ur.
Við bárum hann tveir inn í
kofann, þar sem Blanka lá, og
lögðum hann við hliðina á henni,
og hjarðmaðurinn sem með mér
Ambassador Beauty Salon
Nýtízku
snyrtistQfa
Allar tegundir
af Pcrmanents
Eslenzka töluð á st.
257 Kennedy St.
sunnan Portage
Sími 92 716
S. H. JOHNSON, eigandi
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðar
HOME CARPET
CLEANERS
603 WALL ST„ WINNIPEG
Vi5 hreinsum gólfleppi yðar
svo þau líta út eins og þegar
þau voru ný. — Ná aftur tétt-
leika sfnum og áferðarprýði.
— Við gerum við Austurlanda-
gðlfteppi á fullkomnasta hátt.
Vörur viðskiptamanna trygð-
ar að fullu. — Abyggilegt
verk. Greið viðskipU.
PHONE 33 955
MOST
SUITS - COATS
DRESSES
“CELLOTONE” CLEANED
72c
CASH AND CARRY
FOR DRIVER PHONE 37 261
PERTHfS
888 SARGENT AVE.
Styrkið líknarstofnanirnar!
Þótt margt sé breytt frá því, sem áður var, og Norður-
álfustyrjöldinni lokið, þurfum vér enn á öllum vorum
liknarstofnunum að halda, og jafnvel bæta fleirum við.
Styðjið Rauða krossinn og aðrar mannúðarstofnanir.
This space contributed by
TH'
DREWRYS
v
LDV ITED
Ný ljóðabók
Nokkur eintök af “Sólheimum”, ljóðabók, sem ísafoldar-
prentsihiðja gaf út eftir Einar P. Jónsson rétt fyrir síðustu
jól er nú komin hingað vestur. — Bókin hefir hlotið góða
blaðadóma á Islandi; hún er prentuð á ágætan pappír og
kostar í bandi $5.00, póstfrítt.
-f-M-
Pantanir ásamt andvirði, sendist til
Grettis L. Johannsonar, 910 Palmerston Ave., Winnipeg.