Lögberg - 16.08.1945, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. ÁGÚST, 1945
5
ÁHIjeAM/ÍL
rVENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Merk vestur-íslenzk kona
Ein þeirra kvenna er staðið
hafa framarlega í menningar og
framsóknarbaráttu Islendinga
vestan hafs, er frú Andrea John-
son (Mrs. Eddie Johnson), sem
búsett er í grend við Árborg,
Manitoba. Hún hefir sýnt
kvennadálkum Lögbergs þá vel-
vild að senda þeim til birtingar
fyrsta kafla af íhugunarverðri
ritgerð um heilsufar, sem allan
almenning varðar. Ritgerð þessí
hefir víðtækan fróðleik til
brunns að bera og hvetur til
umhugsunar og framtaks á vett-
vangi heilbrigðismálanna.
Andrea Johnson er dóttir
Tryggva heitins Ir.gjaldssonar,
sem um langt skeið var braut-
ryðjandi í Árborg og umhverfi,
en systir Inga heitins fylkisþing-
manns, sem stóð í fremstu röð
samvinnumanna sinnar tíðar og
naut almennra vinsælda; hún
hefir verið virkur þátttakandi
bændasamtakanna í Manitoba í
24 ár; hún var forseti United
Farm Women of Manitoba í sex
ár og þegar sá félagsskapur leyst
ist upp og sameinaðist Manitoba
Federation of Agriculture var
hún kjörin vara-forseti þess
félagsskapa'r, sem er jafnt fyrir
konur og menn.
Andrea Johnson var í nokkur
ár meðlimur í “Advisory Board
of Education” í Manitoba, en nú
er hún forseti heilsufars nefnd-
arinnar í Bifröst sveit. Hún hef-
ir ferðast víðsvegar um fylkið og
unnið að skipulagningu sam-
vinnumálanna á mörgum svið-
um; hún hefir jafnan verið í
fararbroddi þar sem um var að
ræða aukna alþýðumentun og
endurbóta ráðstafanir varðandi
heilsufar almennings.
Áður en Andrea Johnson gift-
ist, gaf hún sig að kennslustörf-
um og ávánn sér þar sem annar
staðar hinn ágætasta orðstýr.
Forustu starf hennar í þágu
mannfélagsmálanna er þegar orð
ið næsta merkilegt, og er von-
andi að henni endist heilsa og
líf til þess að halda því áfram
um langt skeið enn.
Heilsufar
Eftir Andreu Johnson
Er hættulegt að fæðast í Can-
ada?
Þetta virðist e. t. v. einkenni-
leg spurning. En ef við athugum
skýrslur landsins þá sjáum við
að árið 1937 dóu 76 börn af
hverjum 1000 börnum áður en
þau náðu 1 árs aldri; þetta ár
voru barnadauðsföll í Canada
hærri en í nokkru öðru landi
brezka veldisins, sem byggt er
hvítu fólki. Ef betri heilsutæki
hefðu verið við hendi, hefði
sennilega mátt bjarga 10.000
barnslífum á einu ári.
Ástandið er ekki eins í öllum
fylkjunum; í British Columbia,
dóu aðeins 46 börn af hverju
þúsundi; í sléttufylkjunum 61 og
í strandfylkjunum 80. I Quebec
var dánartalan hæzt, eða 98 af
þúsundi.
Árið 1943 dóu 717 ungbörn
innan árs aldurs í Manitoba; 150
fæddust fyrir tímann; 131 dóu
úr bronchitis, lungnabólgu og
inflúenzu, en 72 af meiðslum við
fæðingu.
1 Brandon var minst um barna-
dauða; þar dóu 30 af þúsundi.
Winnipegborg var sjöunda í röð-
inni með 41 ungbarna dauðsfall
af þúsundi, en í Quebec komst
dánartalan upp í 297 af þúsundi.
Út um landsbyggðirnar voru
á einu ári 33 af þúsundi fleiri
barnadauðsföll en í bæjum og
þorpum.
Árið 1936 voru dauðsföll
mæðra mjög há, af 26 löndum
var Canada 21. í röðinni. Meðal
aldur mæðranna var 31 ár; þær
voru á því skeiði, sem lífsánægj-
an venjulega blasir við konunni.
Að jafnaði deyja í Canada dag-
lega 3 mæður, 24 hvítvoðungar,
42 börn innan árs aldurs, og 54
börn áður en þau ná 5 ára aldri.
Þetta er átakanlegt, daglegt tap.
Vafalaust hefði mátt koma í
veg fyrir mikið af þessum dauðs-
föllum ef nauðsynleg heilsu-
verndartæki hefðu verið við
hendi á heimilum, í skólum og
upp til sveita.
Við læknaskoðun í skólum,
kemur það brátt í ljós hvemig
heilsufari barnanna er háttað og
sé um að ræða augnaveiklun,
sýkta hálseitla, tannskemdir eða
jafnvel beinkröm, má fljótt fá
bót við slíku ef að því er gert
í tæka tíð, það er því áríðahdi
að reglubundin læknisskoðun
barna fari fram engu síður í af-
skektum sveita skólum en í borg-
um og bæjum, og ráðstafanir séu
gerðar til þess bæta heilsufar
þeirra.
Við eyðum miklum peningum
fyrri mentun og ber slíkt sízt
að lasta, þó á hinn bóginn sé
það varhugavert að láta heil-
brigðismálin sitja á hakanum.
Heilsan er dýrmæt og það fólk,
sem stríðir við heilsuleysi getur
ekki notfært sér tækifærin til
mentunar.
Spurning, sem fólk almennt
spyr er sú: Hver borgar lækn-
inum og hver greiðir spítala-
kostnaðinn? Vafinn um þetta
hvorttveggja hefir oft verið or-
sök þess að hjálp hefir ekki ver-
ið fengin í tíma, með því að
stór hluti af þegnum landsins er
ekki aflögufærir um fram það,
að fullnægja brýnustu lífsnauð-
synjum. önnur orsökin er vönt-
un á læknum og hj úkrunarkon-
um. Fyrir stríðið var aðeins einn
læknir fyrir þúsund manns, en
þurfti að vera fyrir 700. Og ejnn
tannlæknir fyrir 2,500 manns en
ætti að vera einn fyrir þúsund.
Með þetta fyrir augum er ljóst
hve brýn þörf er á því að fjölga
læknum.
Fólkið í bæjunum hefir mikið
betri aðstöðu varðandi læknis-
hjálp en fólk til sveita. Hér um
bil Y\ hluti af íbúum Canada
dvelja í borgunum, og þar er
helmingur lækna, tannlækna og
hjúkrunarkvenna; verður svo
hinn helmingurinn að hlynna að
% af íbúum landsins.
Frá Seattle, Wash.
Dánardœgur.
Jón A. Sigurðsson var meðal
þeirra fjögurra manna, sem fór-
ust með vofveiflegum hætti 22.
maí, er vélskip þeirra sprakk í
loft upp nálægt Vancouver eyju.
Þeir voru á heimleið til Seattle.
Útför Jóns fór fram 7. júlí, en
séra Kolbeinn Sæmundsson jarð-
söng. Jón dó frá eiginkonu, Olgu,
af norskum ættum. og þrem
börnum í æsku, syni og tveim
dætrum. Hann fæddist að
Svelgsá í Helgafellssveit, Snæ-
fellsnesi, 1882 og ólst þar upp.
Fór vestur til Canada 1911 og
var þar í landi þangað til 1932,
að hann fluttist til Seattle. Stund
aði hann ýmsa vinnu, eftir því
sem til féll. Systkini Jóns eru
fjögur á lífi, Halldór trésmíða-
meistari í Seattle, Sigurður hús-
gagnakaupmaður í Calgary, Al-
berta, Guðmundur bóndi að
Svelgsá, Helgafellssveit, og
Hólmfríður í Stykkishólmi.
* * *
Eybjörn Eyjólfsson lézt, 72 ára
að aldri, 13. júní og var jarðsung-
inn 16. júní af séra Kolbeini
Sæmundssyni. Hann hafði verið
ekkjumaður um nokkur ár, lét
eftir sig fimm börn uppkomin.
Eybjörn var ættaður úr Staf-
holtstungum, Mýrasýslu. Fluttist
hann vestur um haf fyrir rúmum
fjörutíu árum og hafði lengst af
verið búsettur í Seattle.
* * *
Brúðkaup.
Mánudaginn 25. júní voru gef-
in saipan Elaine Margaret Frede-
rick og Louis Jack Vorhaus Jr.,
bandaríkjahermaður, að heimili
foreldra brúðarinnar, Karls for-
stjóra Frederick (Fridrikssson-
ar) og Maríu konu hans. Rev.
L. H. Steinhoff framkvæmdi
vígsluna.
Föstudaginn 13. júlí, giftu þau
Kristinn trésmíðameistari Þor-
steinsson og Elín kona hans einka
dóttur sína, Elísabet, Novil Leo
Warley, bandaríkja sjóliða. Séra
Kolbeinn sæmundsson gaf sam-
an.
* * *
Námsfólk frá íslandi
heldur heim.
Ung hjón frá Revkjavík, Þór
og Elsa Guðjónsson, luku námi
við University of Washington i
júní-lok og eru lögð af stað heim-
leiðis. Þór, sem tók B.A.-próf i
vatnafiskafræði fyrir ári, varði
nú meistararitgerð (M.A.) sína
í sömu grein. Elsa skrifaði B.A.-
ritgerð um fatnað Norðurlanda-
þjóða fyr á öldum. Fengu bæði
ágætan vitnisburð. Á heimleið-
inni ferðast þau víðsvegar um
Bandaríkin, og mun Þór heim-
sækja allar helztu fiskirannsókn
arstöðvar á þeirri leið.
Áður var farinn heim, Styrmir
Proppé sem lokið hafði B.A.-
prófi í utanríkisverzlun við
University of Washington.
1 júní-lok lauk einnig Þor-
björg Árnadóttir frá Skútustöð-
um meistaraprófi í hjúkrun við
sama skóla. Hún vinnur nú við
Heilsuvernd Washington-ríkis.
Gunnar Bergmann.
Þar sem svo fá góð sjúkrahús
eru út um landið, hlýtur fólkið
að þyrpast til bæjanna til þess
að leita sér lækninga.
Árið 1941 voru skoðuð af heil-
brigðisráði 31 sjúkrahús í sveit-
um Manitoba fylkis; niðurstaðan
var sú; að 9 voru talin góð, 15
í meðallagi en 7 mjög léleg.
Eg hefi leitast við að sýna fram
á með rökum, hve nauðsynlegt
það sé að koma á fót bættum
heilsutækjum upp til sveita, og
eg veit að þetta er hægt ef við
tökum höndum saman og stefn-
um að því marki af alhug að
byggja upp í landinu andlega og
líkamlega heilbrigða þjóð.
Frh.
DÁNARFREGN
Aðfaranótt sunnudagsins 29.
júlí andaðist Margrét Thorláks-
dóttir Laxdal á heimili sínu j
Milwaukee, Oregon, eftir stutta
legu. En lengi undanfarið hafði
hún þó verið mikið lasin. Fullu
nafni hét hún Margrét Steinunn.
Foreldrar hennar voru Þorlákur
og Anna Björnson frá Fornhaga
í Eyjafirði á Islandi. Og þar fædd
ist Margrét sál., 5. aktóber 1872.
Margrét sál. fluttist með for,-
eldrum sínum til Ameríku mjög
snemma á árum, dvöldu þau um
skeið í Nýja Islandi, en fluttu
þaðan til Mountain, North Dak-
ota um eða fyrir 1880.
Margrét giftist eftirlifándi
eiginmanni sínum Ludvig Her-
mann Jóni Laxdal, sem fæddur
var á Húsavík á íslandi, 7. marz
1867. Þau giftust í Winnipeg,
Man., 23. maí 1897. Bjuggu þau
því saman í ástríku hjónabandi
í 48 ár. Er nú heilsa Ludvigs
Laxdal mjög biluð og hefir svo
verið síðustu 6 árin.
Þau Ludvig og Margrét eign-
uðust 3. syni, og heita þeir:
Árni Björn; Eggert Albert Sig-
urður og Thorlákur Ludvig Guð-
brandur. Eiga þeir allir heima í
grend við föður sinn í Milwaukee
Oregon.
Margrét sál. Laxdal, var mesta
ágætiskona, vel gefin og vel að
sér. Hún vildi ávalt koma fram
öllurp til aðstoðar og hjálpar og
leggja fram krafta sína til vernd-
ar og blessunar sínum nánustu
ástmennum og öðrum. Er það af
öllum, sem til þekktu dáð hve vel
og ástúðlega hún annaðist eigin-
mann sinn og hjúkraði honum
öll árin síðustu, sem hún lifði
og heilsa hans.var svo biluð.
Hin látna var lögð til hvíldar
í fögru steinhúsi, sem til þess er
bygt, þar í grend vði Milwauk^e.
Útfararathöfninni stjórnaði séra
Haraldur Sigmar, sem fyrr á
árum var til heimilis hjá þess-
um merkishjónum í Kandahar,
Sask. Flutti hann þar stutta út-
fararræðu. Mrs. Lilja Hammer-
sted, sem heima á í Milwaukee
söng tvo einsöngva, annan á ís-
lenzku, hinn á enskj. Islending-
ar þar í grendinni vcru viðstadd-
ir útfararathöfnina.
Blessuð sé minning hinnar
látnu.
H. Sigmar.
Ferðamaður, sem lagði leið
sína um afskekkt hérað, hitti
einn af íbúunum, tók hann tali
og spurði m. a.:
— Er ekki erfitt fyrir ykkur
hérna uppi í afdölum að ná í
lífsnauðsynjar?
— Jú, blessaðir verið þér, og
þegar maður loksins nær í þær,
þá eru þær oft ekki drekkandi.
•
— Hvað hétu hinir 12 synir
Jakobs?
— Bræðurnir Jakobsen.
Canada og Bandaríkja menn af
íslenzkum átofni, er fórnuðu lífi
í heimsátyrjöldinni frá 1 939
yaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim
Þesi gjörvulegi og prúði piltur
lét líf sitt fyrir frelsi og föður-
land, þann 16. nóvember, 1943,
aðeins 23. ára að aldri; hann var
sæmdur Distinguished Flying
Cross vegna hugprýði og fræki-
Iegrar framgöngu; foreldrar hans
eiga heima að 151 Ferndale Ave.
í Norwood hér í fylkinu.
Móðir hinnar látnu flughetju,
er Jóhanna, dóttir Finns heitins
Stefánssonar, sem bjó hin síðari
ár ævinnar að 544 Toronto St.
Pilot Officer Eager stjórnaði
um hríð sprengjuflugvél, sem á
600 flugklukkustundum gerði 72
árásir á varnarvirki óvinanna;
hann innritaðist í canadiska flug-
herinn í ágústmánuði 1941, en
fór austur um haf í september
árið eftir.
Pilot Officer W. H. Eager
Þessi fallni, prúði sveinn, var
útskrifaður af Norwood Collegi-
ate, og stundaði um hríð nám
við Manitoba háskólann; hann
var í þjónustu Sherwin Williams
félagsins áður en hann gekk í
flugherinn; ævi hans var stutt,
en hún var fögur og lærdóms-
rík.
"Learn More and You’ll Gel More”
“I’ve been here two years now, Mr. Smith,
and I think I should have more money.”
“What makes you think you’re worth
more? You’re still doing the same work you
started on two years ago, aren’t you Miss
Brown?”
“Yes, but—”
“Then my advice to you is: ‘Learn more
and you’ll get more’.”
The above conversation is a reality. If
happens every day to someone in business. IT
DOES NOT NEED TO HAPPEN TO YOU. If
you are now employed—train anyway. A busi-
ness course at Day School if you are free during
the day—or at Night School if you are employed
during the day, is AN INVESTMENT in yourself
WHICH WILL PAY STEADY DIVIDENDS every
year of your life.
Classes in all business subjects are now
being organizer for the new term. Experienced,
individual guidance will be given you in selecting
your course. For information telephone 97 002
or write to:
The Manitoba Commercial College
300 ENDERTON BUILDING, WINNIPEG
(4 doors west of Eaton’s)
“T/ie Businss College oi Tomorrow -- Today!”
ST. JOHN’S COLLEGE
BROADWAY AND HARGRAYE
Hinn sameiginlegi
mentaskóli enskn
kirkjunnar
Ein af samhands
mentastofnunum
Manitobaháskólans
Tólfti bekkur — Arts og Science
Verðmæt námsverðlaun.
Þægileq heimavist.
Leitið frekari upplýsinga með því að skrifa til The Warden, St. John’s College,
BROADWAY AND HARGRAVE, WINNIPEG,
eða tálið við hann í síma 97 639