Lögberg - 06.09.1945, Side 1

Lögberg - 06.09.1945, Side 1
PHONE 21374 A \ ÁW^te iwtA ^ lf^8toí' tfcöSÍSgsS^ f'VS®' ® A Complete Cleaning Institution aOe 58. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. SEPTEMBER, 1945 PHONE 21374 \ \AÍVV i A Conj'j «lete Cleanngr Institution NÚMER 36 Bræður leystir úrherþjónustu Pte. Guömundur V. Goodman Þessi ungi maður innritaðist í herinn 23. maí 1941 og var með R.C.A.S.C. í Canada unz hann var leystur úr herþjónustu vegna heilsubilunar 26. júní 1942; hann er fæddur á íslandi 9. nóvember 1920. Foreldrar Guðmundar eru þau Mr. og Mrs. Kristinn Good- man, Ste. A. Vinborg Apts., hér í borg, en heimili hans og fjöl- skyldu er við Lockport. Cpl. Kristján M. Goodman Hann er fæddur á íslandi þann 29. dag maí mánaðar árið 1921, ólst upp í Selkirk, fluttist það- an til Winnipeg, og innritaðist í Seaforth af Canada 15. maí 1943; hann tók þátt í orustum á ítalíu og Hollandi, og kom til baka heill á húfi 4. júlí 1945. Foreldr- ar hans, þau Mr. og Mrs. Krist- inn Goodman, eiga heima í Ste. A. Vinborg Apts., í þessari borg. Fellur sæmd í hlut íslendingurinn William Bene- dickson, Liberal þingmaður fyr- ir Kenora-Rainy River kjördæm- ið í Ontario, hefir orðið fyrir þeirri sæmd, að svara hásætis- ræðunni við setningu sambands- þingsins, sem fram fer í dag. Mr. Benedickson var fyrst kos- inn á þing í sambandskosning- um, sem haldnar voru þann 11. júní síðastliðinn; hann er út- skrifaður í lögum frá Manitoba- háskólanum, en gefur sig við málafærslustörfum í Kenora; hann er gáfumaður mikill og mælskur vel. Hinn nýi þingmaður er sonur Kristjáns Benedicksonar for- stjóra hér í borginni. Aukaþing kvatt saman Fylkisþinginu í Manitoba var stefnt til funda síðastliðinn þriðjudag; ekki mun þing þetta eiga langa setu, því í stjórnar- boðskapnum var það ótvírætt gefið í, skyn, að kosningar fari fram á næstunni; mun stjórninni það ríkt áhugamál, að fá nýtt um boð frá kjósendum til þess að ganga frá málefnum fylkisins á framhaldsfundi þeim, sem hald- inn verður seinna í haust milli sambandsstjórnarinnar og stjórna hinna einstöku fylkja; þá gerði og stjórnarboðskapur- inn ráð fyrir því, að fjölga þing- mönnum um þrjá, einn fyrir hverja grein stríðsþjónustunn- ar; einnig var vikið að því, að rýmkva svo um kosningarétt, að hermenn, þó þeir séu innan við tuttugu og eins árs aldur, fái að greiða atkvæði. SAMBANDSÞING KEMUR SAMAN í dag kom sambandsþingið í Ottawa saman til funda, bæði til þess að afgreiða ný fjárauka- lög, sem og til þess að ræða um væntanlegan stuðning við brezku þjóðina eftir að Bandaríkin námu úr gildi láns og leigulögin. Glæsileg menntahjón Þór Guðjónsson Elsa E. Guðjónsson Þór Guðjónsson er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Foreldrar hans eru Guðjón Guðlaugssop, trésmiður og kona hans Margrét Einarsdóttir. Þór lauk stúdents- prófi við Menntaskólann í Rvík. vorið 1938. Hann kom til Seattle haustið 1941 og hefur stundað nám í vatnafræði og fiskifræði við University of Washington. Hann lauk B. S. prófi í fiski- fræði þaðan í febrúar 1944 með góðri einkunn. í sumar lauk hann M. S. prófi, í sama fagi með góðri einkunn. Ástundun og reglusemi einkenna hann. Kona Þórs, Elsa E. Guðjónsson, er einnig frá Reykjavík. Foreldrar hennar: Halldór Eiríksson, for- stjóri, og Elly Eiríksson f. Schepler. Elsa útskrifaðist úr stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík vorið 1942. Fór til Ameríku um haustið og hóf nám við Univ. of Wash. í byrjun árs 1943. Lauk B. A. prófi í Home Economics í sumar, með góðri einkunn. Bæði eignuðust hér marga vini. Þessi ungu hjón lögðu af stað heimleiðis 1. ágúst. Þau ráðgerðu að heimsækja helztu rannsóknarstöðvar, til- heyrandi fagi Þórs, og kynna sér fræga og fagra staði í landinu, áður en þau kveðja. íslendingar á þessum slóðum þakka þeim veruna hér og þann ágæta orðstír, sem þau áunnu sér í hvívetna. Beztu framtíðar- óskir fylgja þeim á braut. Jakobína Johnson. HEIÐREKUR GUÐMUNDSSON: Frá Höfninni Þú hafðir árla í morgun af gömlum vana gengið þá götu fram að sjónum, sem lýir okkur mest. En hliðholl reyndist gæfan, þú hefir reyndar fengið að hamast tíu stundir að moka í kolalest. Svo varðstu ögn að bíða. En vinnunótu fékkstu. Þú vildir hraða göngu, því dagur liðinn var. Og betri manna leiðir á götustéttum gekkstu með gleðibros á vörum og þakklátt hugarfar. 1 ös á miðju stræti þig nálgast gamall granni, sem glæsilega búinn og frjálsmannlegur er. Og víst í sínum augum hann orðinn er að manni. Um yfirburði látbragð hans fagurt vitni ber. Hann lítur snöggvast á þig. En lipurt hálsinn sveigir og léttum orðum beinir að sínum förunaut. Með heimsborgarafasi til hliðar síðan beygir og horfir niðursokkinn á búðargluggaskraut. — Á sunnudaginn bjóstu þig beztu klæðum þínum og barst þig vel og gekkst svo í takt við kvöldsins dyn. Og þá var hann svo ljúfur að lyfta hatti sínum. — Nú læst hann ekki þekkja sinn gamla æskuvin. Og álútur við gluggann í stundarkorn hann stendur, unz stikar þú á burtu og hættan líður frá. 1 kolalörfum þínum þú kreppir báðar hendur. — Og kvöldið færist yfir. Og myrkrið dettur á. Óánœgðir við Spánverja Norðmenn eru næsta óánægðir við einvaldsstjórn þá á Spáni, er General Franco veitir forustu; hafa mörg verkamanna og bænda félög í Noregi skorað á norsku stjórnina, að slíta þegar fulltrúa sambandi við Spán, því það sé bæði grátlegt og hlægilegt að ein- ræðisstjórn Francos verði ein eftirskilin óáreitt, þegar allar aðrar einræðisstjórnir Norður- álfunnar séu úr sögunni. Innsetning í embœtti Dr. Haraldur Sigmar Næstkomandi sunnudag, 9. sept, er ákveðin innsetningar- guðsþjónusta í íslenzka lúterska söfnuðinum í Vancouver. Guðs- þjónustan fer fram í dönsku kirkjunni á E. 19th Ave. og Burns St., og hefst kl. 7 e. h. Séra Haraldur Sigmar, D.D.; kosinn prestur safnaðarins verð- ur þá settur í embætti af séra Rúnólfi Marteinssyni, frá Winni- peg. Honum til aðstoðar þar væntanlega: Dr. E. A. Tappert frá trúboðsnefnd Sameinúðu kirkjunnar lútersku, séra Harald S. Sigmar frá Seattle, séra Guð- mundur P. Johnson frá Blaine, og og séra T. A. Hartig frá Van- couver. Allir velkomnir. / Mikil hafísbreiða út af Horni Engin síld hefir komið til Siglufjarðar í dag. — Síld var uppi í nótt við Horn, en aðeins í eina klukkustund. Fengu fá- ein skip eitthvað lítilsháttar. — ísafjarðar-björninn fékk 250 tunnur, sem hann lætur í íshús á ísafirði. Ekki hefir enn verið hægt að salta, en söltun hefst strax og eitthvað berst að. Flugvélin fór í síldarleit í morgun. — Er flogið hafði ver- ið um það bil 25 kvartmílur út af Horni, var komið að ís- breiðu svo mikilli um sig að hvorki sá út yfir breiðuna til austurs eða vesturs. Þá kom upp síld á Grímseyj- arsundi í nótt sem leið, en skip in náðu engu af henni. — Var síldin mjög stygg og afar þunn. Engin síld hefir sést þar um slóðir í dag. — Fyrir austan sást síld, en lítið náðist. í dag er lygnt og gott veiði- veður á miðunum. Mbl. 27. júlí. Vopnahlé samið Síðastliðinn laugardag voru uppgjafarsamningar Japana form lega undirskrifaðir um borð í ameríska beitiskipinu Missouri í Tokyo flóanum að viðstöddum mörgum erindrekum sameinuðu þjóðanna og japönskum herfor- ingjum, er stjórn Japana hafði sérstaklega til þess valið. Gen. Douglas Mac Arthur undirskrif- aði uppgjafarsamningana fyrir hönd Bandaríkjanna og samein- uðu þjóðanna í heild. Hernámi Japans er haldið uppi dag frá degi, og er nú vel á veg komið, án þess að blóðsúthell- inga hafi orðið /vart. ÞINGKOSNINGAR General de Gaulle leiðtogi hins endurreista Frakklands hef- ir lýst yfir því, að almennar þing- kosningar fari fram á Frakk- landi þann 31. október n. k. Farin heim á leið Dr. Hallgrímur Björnson Þessi ágætu og mikilsmetnu læknishjón, sem dvalið hafa ár- langt hér í borginni, lögðu af stað suður til Bandaríkjanna á mánudaginn var; ætluðu þau fyrst til Californiu, en svo þaðan til New York, þar sem þau að líkindum dvelja í tvo til þrjá mánuði áður en þau hverfa al- farin heim. Þau Dr. Hallgrímur og frú Frú Helga Björnsson Helga, hafa aflað sér fjölda vina hér um slóðir sakir ljúfmennsku og prúðmannlega framkomu; hefir Dr. Hallgrímur stundað framhaldsnám á vegum Winni- peg Clinic, sem Dr. P. H. T. Thorlakson veitir forstöðu. Læknishjón þessi biðja Lög- verg að flytja hi)num möirguj vinum á þessum slóðum alúðar- þakkir fyrir ógleymanlegar sam- verustundir. Lýkur meistaraprófi Þorbjörg Dýrleif Árnason Ungfrú Þorbjörg Dýrleif Árna son, lauk meistaraprófi í hjúkr- unarfræði með ágætri einkunn, við University of Washington. Hún er fædd og uppalin á ís- landi, en hefur átt heima hér vestra um nokkur ár. Foreldrar hennar: Árni Jónsson, prófastur á Skútustöðum við Mývatn, og seinni kona hans, Auður Gísla- dóttir Ásmundssonar, bróður Einars alþingismanns frá Nesi. Frú Auður á nú heima í Reykja- vík. Séra Árni sál. var fyrrum landnemi í Canada, en hvarf aft- ur heim til ættjarðarinnar. Þorbjörg útskrifaðist sem hjúkrunarkona frá Bispebjerg spítala í Kaupmannahöfn, Dan- mörku, árið 1923. Árið 1924 fór hún til Canada og var þar 1 ár við hjúkrunarstörf. Til Seattle kom hún 1925. — Hún er ein af þeim úrvals persónum sem vinn- ur, lærir, eða ritar eitthvað stöð- ugt. Áhuginn og einbeitnin eru sí-vakandi. Árið 1928 hlaut hún Certificate in Public Health nursing, við Univ. of Wash. Fór svo til íslands, og beitti sér þar fyrir heilsuvernd, aðllega berkla vörnum. Hún kom til Seattle aftur 1937, og vann um tíma á berklahæli. Árið 1941 lauk hún B. S. prófi við Univ. of Wash. — Síðan hélt hún áfram starfi sínu, — og ferðaðist um Bandaríkin; þegar hún hafði lokið meistara- prófi í sumar, fékk hún stöðu hér í borginni sem Public Health supérvisor, hjá Seattle Health Dept. Hún nýtur trausts og virð- ingar 1 stöðu sinni, hvar sem hún fer, og ,í viðkynningu einlægrar vináttu. Jakobína Johnson. Herlög afnumin í Argentínu Argentínustjórn hefir gefið út tilkynningu þess efnis, að her- lög, sem sett voru í Argentínu eftir árásina á .Pearl Harbor, hafi verið afnumin. Einnig eru úr gildi felldar all- ar hömlur á stjórnmálastarfsemi, fundafrelsi, málfrelsi og prent- frelsi. Við stríðslok Vondan lægir vopnagný, Veldi stríðsins falla, Friðarljósin lifna’ á ný Og lýsa’ upp veröld alla. Friðarljóðin líða’ um geim Ljósvakans á bárum. Birtir yfir hugarheim; Harmi léttir sárum. Þakkarfórnir færum nú Friðarhöfðingj unum. Elska, vizka, von og trú Vaxi’ í manshjörtunum. Kolbeinn Sæmundsson.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.