Lögberg - 15.11.1945, Blaðsíða 5

Lögberg - 15.11.1945, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. NÓVEMBER, 1945 5 m 4IÍUGAHAL W rVENNA y\ Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Minningarorð um kæran vin Gnr. Pétur Hoffman Hallgrímson Háa skilur hnetti himingeimur, hlað skilur bakka frá egg. En anda, sem unnast fœr aldregi eilífð aðskilið. Viðtal við Ingibjörgu Sveinson hjúkrunarkonu Ingibjörg Sveinson Útþrá og löngun til að kanna ókunna stigu hefir jafnan verið ríkur þáttur í eðli íslendingsins. Nýlega er komin heim, eftir tíu ára fjarvist, vestur-íslenzk hjúkr- unarkona, Ingibjörg Sveinson; fór hún til íslands 1935; dvaldi þar í 61/2 ár, en í síðastliðin 3% ár var hún á Englandi. Miss Sveinson er fædd í Winnipeg; foreldrar hennar eru þau Bjarni Sveinson og kona hans Matthild- ur Þorvarðardóttir Sveinson, fyrrum búsett í Howardville, en síðastliðin 20 ár í Keewatin, Ont. Eg átti tal við þessa gáfuðu og víðförlu stúlku; svaraði hún öll- um spurningum greiðlega og hafði eg sérstaka ánægju af því að heyra hvað hún hefir náð hreinum íslenzkum málblæ með- an hún dvaldi á Islandi. Eg hafði líka gaman af að heyra hvað henni voru töm reykvísku orða- tiltækin, “altso” og “ábyggilega.” “Frá því eg var barn,” sagði Miss Sveinson, “hafði eg altaf haft sterka löngun til þess að ferðast til annara landa, en þó sérstaklega til íslands; eg hafði heyrt svo mikið rætt um ísland á heimili mínu, þar átti eg líka mörg ættmenni. Eg fór því til íslands árið 1935, en ætlaði að dvelja þar aðeins í nokkra mán- uði og leggja síðan stund á hjúkr- unarfræði. Þegar mér gafst kost- ur á að nema hjúkrunarfræði við Landsspítalann, tók eg því fegins- hendi, því þannig gafst mér meiri tími til að sjá landið og kynnast ættþjóð minni. Mér leizt nú samt ekki á blikuna þegar eg fór að blaða í námsbókunum; þær voru flestar á dönsku, en það tungumál kunni eg ekki. Þetta gekk þó alt vel; eg lærði dönskuna og útskrifaðist eftir þrjú ár, 1938.” Miss Sveinson mun vera fyrzta vestur-íslenzka stúlkan, sem út- skrifast hefir í hjúkrunarfræði á íslandi. “Ferðaðist þú víða um landið?” “Já, það held eg nú; meðan eg var við nám í Reykjavík ferðað- ist eg víða um Suðurlandið og umhverfi borgarinnar; eg komst þó aldrei til Öræfabygðar, en þangað langaði mig mikið til að koma. Að náminu loknu fékk eg stöðu við spítalann í Húsavík í tvö ár og við spítalann á Seyðis- firði í eitt ár; þannig gafst mér kostur á að ferðast um Norður- land og Austurland. Á sumrin notaði eg mánaðarfríið mitt til ferðalaga um landið. Eg get ekki lýst því hve eg var hrifin af feg- urð og tíguleik landsins einkan- lega Norður og Austurlandi. Eg ferðaðist um alt hið yndislega Fljótsdalshérað á hestbaki; kom á hið forna stórbýli Skriðuklaust- ur, þar sem nú ræður ríkjum skáldkonungur íslands, Gunnar Gunnarsson ásamt hinni dönsku frú sinni; mælir hún prýðilega á íslenzka tungu. Bústaður þeirra hjóna mun einn sá reisulegasti og veglegasti sveitabær á Islandi, það er ábyggilegt. Alstaðar þar sem leið mín lá um landið, átti eg alúðar gestrisni að mæta.” Miss Sveinsson gat ekki nóg- samlega lofað almenna gestrisni þjóðarinnar og þá vinsemd, sem hún varð aðnjótandi á íslandi. “Hvað eru spítalarnir stórir, sem þú starfaðir við?” “Spítalinn í Húsavík hefir 20 sjúkrarúm; læknirinn heitir Björn Jósefsson, sonur Jósefs Björnssonar, fyVrum skólastjóra á Hólum. Eg naut framúrskar- andi alúðar af hálfu hinna mætu læknishjóna í Húsavík. Spítal- inn á Seyðisfirði hefir 30 sjúkra- rúm; læknirinn þar er Egill Jóns- son frá Egilsstöðum á Völlum. Eg var á Seyðisfirði þegar landið var hernumið. Herskip kom inn á Seyðisfjörð um sama leyti og til Reykjavíkur. Áætlað er að þangað hafi komið um eitt þús- und hermenn. Þeir tóku/ Egils- staði alveg yfir og ýmsar bygg- ingar á Seyðisfirði. Sem vænta mátti sló í fyrstu miklum óhug á fólkið.” “Hversvegna fórstu frá Is- landi?” “Eg fór aðallega frá íslandi vegna þess, að eg hefði orðið að gerast íslenzkur borgari, ef eg hefði dvalið þar lengur, en eg vildi ekki afsala mér mínum canadisku þegnréttindum.” “Eg fór frá Seyðisfirði alla leið til Reykjavíkur í bíl. Ferðin tók tvo daga; við vorum um nótt á Akureyri. 1 Reykjavík beið eg í tvo mánuði eftir skipsferð og fékk loks ferð til Englands með fiskitogaranum Snorra Goða. Við létum í haf í janúar 1941 og lent- um í stóra óveðrinu, sem orsak- aði afar mikinn skipsskaða. Við vorum tíu daga á leiðinni í stað- inn fyrir fimm og þegar við kom- umst til Fleetwood var aðeins eftir hálft tonn af kolum í skip- inu og við vorum öll fremur illa til reika.” “Hvernig stóð á því, að þú stað- næmdist á Englandi?” “Eg ímynda mér að æfintýra- þrá minni hafi ekki enn verið að fullu svalað, þar að auk var þar mikil þörf fyrir hjúkrunar- konur. Eg fékk fyrst stöðu við Waterloo-spítalann; hann er í ör- eigahverfinu í austurhluta Lon- don. Það voru nú viðbrigði að koma þangað úr sældarlífinu á íslandi! Ekki get eg lýst þeirri eymd og ómenningu, sem ríkir í þessu hverfi stórborgarinnar. Þarna var eg í sex mánuði; vann stundum fimmtán klukkustund- ir á dag; loftárásir voru tíðar, spítalinn laskaðist, þó aðeins lítilsháttar, en húsin umhverfis voru lögð meira og minna í rúst- ir. I kaup fékk eg 30 dollará á mánuði en af því tók stjórnin 2 dollara í skatt. Matarskamtur- inn var mjög naumur og ekki fanst mér eg eiga mikið sam- eiginlegt með hinum ensku hjúkrunarkonum. Vera mín við Waterloo-spítalann var mér því ekki að skapi. í London bjuggu þau Karl Strand læknir og frú hans; stundar hann þar geð- veikralæknisnám. Eg kom oft á heimili þeirra hjóna og reyndust þau mér sem beztu vinir. Með hans aðstoð fekk eg stöðu við norskan spítala í London, eg var þar í átta mánuði og svo á norsk- um spítala í Liverpool í 2xh. ár. Þessir norsku spítalar voru starf- ræktir af norsku flóttafólki, læknum og hjúkrunarkonum, sem sloppið höfðu frá Noregi yfir Norðursjóinn til Shetlandseyja og þaðan til Bretlands. Það var eins og að koma heim til sín að koma til Norðmanna. Þeir eru svo alúðlegir. Þegar eg sagði: “Eg er íslenzk,” sögðu þeir: “Já, þú ert norsk líka.” Oft heimsótti konungsfjöl- skyldan — Hákon konungur, Ólafur krónprins og Martha prinsessa — þessa spítala og einnig Hambro, fyrrum þingfor- seti; var þetta alt einstaklega al- þýðlegt fólk. Við norsku spítal- ana fekk eg 120 dollara á mán- uði í kaup, en vegna þess að eg var canadiskur borgari og brezk- ur þegn, tók landsstjórnin helm- inginn af kaupi mínu í. skatt. N o r s k u hjúkrunarkonurnar konurnar þurftu ekki að borga neitt af sínu kaupi í skatt. Á þessum spítölum var aðeins töl- uð norska; þetta var mér óþægi- legt fyrstu sex mánuðina, en eftir það var eg orðin nokkurn veginn fleig í málinu. Að stríðinu loknu var þessum spítölum lokað og starfsfólkið fór heim til Noregs. Eg átti kost á að fara þangað líka, en nú voru liðin tíu ár frá því að eg hafði séð foreldra mína og systkini og nú langaði mig heim. Eg var líka orðin fjarska þreytt; eg skildi því við þetta ágæta samstarfsfólk mitt. Eg er búin að kynnast mörgum þjóðum á þessu við- burðaríka ferðalagi mínu og eg verð að segja það, að mér finst íslendingar og Norðurlanda þjóð- irnar bera af öðrum hvað menn- ingu og manndóm snertir. Eg sigldi frá Liverpool 4. ágúst í sumar á norsku skipi til Can- ada. Mikinn fögnuð vakti það í brjósti mínu þegar eg steig aftur fæti á þetta friðsæla land mitt; hér er fólk mitt, hér er frjáls- mannlegt, hér er nóg af mat, nóg klæði. En þreytt var eg. Eg held eg hafi sofið nótt og dag í heila viku eftir að eg komst til systur minnar í Ottawa. Og nú er eg búin að dvelja hér hjá fólki mínu í tvo mánuði, mér til ósegjan- legrar ánægju, og er búin að safna kröftum á ný. “Hvað hefir þú hugsað þér að gera í framtíðinni?” “Mér hefir boðist hjúkrunar- starf við Norwegian Hospital í Brooklyn, New York, og þangað fer eg í næstu viku. Eg er þegar orðin óþreyjufull eftir því að taka aftur til starfa; mér finst að hjúkrunarstarfið vera eitt það mikilvægasta starf, sem hægt er að hugsa sér. Seinna meir ætla eg að ferðast til Noregs; þar á eg marga vini, og svo aftur ti.l míns kæra ættlands — íslands. Æskuminningar Efiir Krisiínu í Waíeriown Eitt árið á Hálsi kom sá happa atburður fram á ströndinni, að stóran hval rak á Syðsta-bæ í Hrísey. Þá var nú handagangur í öskjunni, eins og þar stendur. Slíkur mannfjöldi, sem þyrptist utan um hvalinn úr öllum nær- liggjandi sveitum, til að fá sér bita af skepnunni! Margur fá- tækur fekk gefins bita, því Svan- hildur kona Jörundar í Hrísey var mesta ágætis kona; hjálpaði og gaf öllum sem hún náði til. Blessuð sé minning hennar; hún var svo góð til foreldra minna. Mörgum þótti gaman að koma á hvalfjöru. Margir menn voru við skurðinn, þegar hvalurinn var stór. Fjórar tegundir af kjöt- meti voru á hvalnum; fyrst var spikið, það var brætt og rent í kvartel og kallað hvalsmjör. Næsta lag á hvalnum var hið ljúffenga rengi, sem allir sóttust eftir. Það var ljósgult og glans- aði. Þriðja lagið var ljósbrúnt; það var kallað megra. Enn var lag næst beinunum, það var kall- að undanflátta og var sambreysk- ingur og tók mikla suðu. Þetta kjöt var svo fylt með kryddi og pressað, og þótti afbragðs matur. Þessir kvaltúrar fólksins voru hin mesta upplyfting fyrir alla; vinir fundust úr fjarlægum sveitum og töluðu saman með ■ glaðværð, en á Syðsta-bæ var mesta góðgjörða-heimili, svo öll- um leið vel. Jörundur bóndi var mikill búhöldur og ákafa vinnu- garpur. Yngsti sonur Jörundar og Svanhildar kom til þessa lands; það er hann Loftur Jör- undsson, sem lengi hefir búið í Winnipeg. Hann var fermingar- bróðir minn. Eftir lýsingu af honum, get eg séð að hann hefir náð því bezta úr báðum foreldr- um sínum. Nú er Syðsti-bær orðinn mynd- ar kaupstaður með mörgum fögrum húsum og verzlunum. Á Yzta-bæ bjó einnig sæmdar- fólk, Kristinn og Kristín hétu þau, foreldrar séra Stefáns á Völlum. Kristín var ein af hinum mætu Krossa-systrum; Kristinn var sonarsonur séra Baldvins á Upsum. Eftir fimm ár á Hálsi, fluttu foreldrar mínir inn að Kleif á Árskógsströnd; þar bjuggu þau þar til þau fluttu til Vesturheims árið 1876. VI. Á mínum æskuárum voru börn- in vanin við vinnu eins snemma og aldur leyfði; fimm og sex ára var þeim kent að prjóna og jafn- framt að þekkja stafina í staf- rófskverinu, líka kendi mamma okkur bænir og vers, sem við lásum kvöld og morgna og fund- um í því gleði og styrk. Stund- um gleymdi eg að lesa á morgn- ana, en þá fann eg að eitthvað vantaði, eg var ekki ánægð, svo eg fór bak við hurðina og las bænir mínar í hljóði og signdi mig; þá fann eg að Drottinn var með mér, og dagurinn varð hýr og bjartur í huga mínum. Eg hafði mikið gaman af að setja saman orðin úr stöfunum, svo eg var orðin vel lesandi, þeg- ar,eg var átta ára; þá líka var eg orðin fljót að prjóna, gat prjón- að sokkhæðina á dag, en sú hæð var áreiðanlega alin og kvart. Þetta var kallað prjónles og selt til útlanda; var okkur sagt að þessir sokkar væru fyrir her- mennina. Við hin eldri pössuðum yngri börnin; þvoðum fötin þeirra, skúruðum gólfin; þvoðum skál- ar og diska; hlupum á næstu bæi í ýmsum erindagjörðum. Við vorum látin passa kýr pg kindur á sumrin; sækja fisk í fjöruna; tína fjallagrös uppi á öræfum; rífa lyng í holtum og klifum og bera það heim á bakinu til eldi- viðar. Við höfðum fjörugan tíma á þessum túrum og settum saman hendingar um hitt og þetta, sem fyrir augað bar, og aldrei man eg eftir að okkur leiddist vinnan. Við álitum sjálf- sagt að vinna og þegar eitt verk- ið var búið, var það næsta til nS byrja á. Móðir mín var mesta dugnaðar kona og kallaði ekki alt mikið, og svo var það alstaðar á þeim tíma, að unglingar þurftu að vinna og þaðan er dugnaður og þrautseigja íslendinga þann dag í dag. Æskan kendi þeim vinnuþrá og að finna gleði í verk- urium. Stöku sinnum höfðum við tíma til leikja. Feluleikur var nú ekki lítið gaman og að búa til hálsfest- ar úr fíflaleggjum og leika við gullin okkar — kussa og skeljar sem við tíndum saman í fjör- unni. Krínolíur voru þá í tízku hjá ungu kvenfólki. Við litlu stúlkur vildum líka vera fínar, svo við tíndum holta-tágir til að gera kjóla okkar létta, hlupum svo um túnið og sungum gleði- söngva og kyrjuðum gamla kvæðið: Sem léttur lax í straumi, í lífsins ölduglaumi vér líðum áfram æginn um æsku- dagana; ha - ha - ha. Þá einhver gleði annars eykur, því andi vor er hvergi smeikur. Vort æskulíf er leikur, sem líður tra - la - la. (Framh.) Megin átökum styrjaldarinnar var lokið, stríðshetjur okkar í þúsundatali komnar heim, og mikilla fylkinga enn von, þótt þúsundum vitaskuld yrði eigi heimkomu auðið, er fórnað höfðu lífi sínu fyrir frelsi og fóstur- jörð; enn skipaði eftirvæntingin öndvegi innan vébanda fjölda heimila víðsvegar um landið, ásamt öruggri fullvissu um það, að tryggt væri úr þessu með öllu um hag þeirra, sem enn dveldi fyrir handan; þeir kæmi þá og þegar heilir á húfi heim; einn þeirra manna, sem von var bráðum á úr krossferðinni miklu, kom ekki heim, og var sá Pétur Hoffman Hallgrímson, er nú verður hér stuttlega minst; hann lézt af slysförum á Hollandi þ. 20. október, s. 1., og var jarð- sunginn daginn eftir. Það er ekki sársaukalaust, að eg minnist vinar míns Péturs; hann var mér, og okkur hjónun- um handgenginn og kær; hann kom oft á heimili okkar, og við nutum ósegjanlegrar ánægju af heimsóknum hans, en nú er þeim með skjótum og óvæntum at- burðum lokið. Pétur Hoffman Hallgrímsson var fæddur* í Riverton þann 7. dag apríl mánaðar árið 1920; eru foreldrar hans þau sæmdarhjón- in, T. L. Hallgrímson fram- kvæmdarstjóri og kona hans Elín borg Hoffman Hallgrímson. Pét- ur naut alþýðuskólamenntunar í fæðingarbæ sínum, en lagði skömmu síðar leið sína til Win- nipeg, og stundaði nám við Success verzlunarskólann; sóttist honum námið vel, því hann var hvorttveggja í senn, góðum gáf- um gæddur, og ástundunarsam- ur að sama skapi; að loknu námi, réðist Pétur í þjónustu Drum- mondville veiðarfæra verzlunar- innar hér í borginni, og starfaði þar fram til þess tíma, er hann gekk í stórskota sveit canadiska hersins í desember mánuði 1942; var hann við heræfingar á ýmiss um stöðum í Canada, en dvaldi um all-langt skeið á Newfound- land, og fór austur um haf í marz mánuði 1-945. Þann 24. ágúst 1944, kvæntist Pétur, og gekk að eiga ungfrú Svövu Sigurbjörgu Pálmason, dóttur Jóns og Stefaníu Pálma- son, er lengi áttu heimili í Riverton, en nú eru búsett við Athalmer í- British Columbia fylkinu; er frú Svava hin 'friesta ágætisjíona, trygglunduð og heilsteypt í skapgerð; hún hefir mist mikið; foreldrar Péturs og bróðir hafa mist mikið, og það hafa allir mist mikið, er áttu því láni að fagna, að kynnast Pétri og eiga hann að vini. Pétur Hoffman Hallgrímson var, eins og segir í fornsögum okkar, fyrir flestra hlpta sakir afbragð annara manna; hann var fríður og hetjulegur, og mikill að vallarsýn; skoðanir hans á líf- inu og hinum mikla tilgangi þess, voru óvenju skýrmótaðar hjá svo ungum manni; hann var spaugsamur og hláturmildur, en í undirvitundinni ómaði við- kvæmur og draumrænn streng- ur sjaldgæfrar ástúðar, og það var sá strengurinn, sem verður vinum hans með öllu ógleyman- legur. Pétur skaraði snemma langt fram úr jafnöldrum sínum við hvers konar íþróttir, og var jafn- vígur í hockey sem boltaleik; í hverju, sem hann tók sér fyrir hendur, var hann jafnan í fremstu röð, og hlífði sér lítt; hann var framúrskarandi nær- gætinn við ástmenni sín; öll ár- in, sem hann dvaldi í þessari borg, fór hann að jafnaði norður til Riverton um helgar í heim- sókn til foreldra sinna, og öll ár- in, sem hann var í stríðinu, skrif- aði hann venjulega konu sinni, foreldrum og bróður, annan hvorn dag; síðasta bréfið heim, skrifaði Pétur þann 19. október, eða daginn áður en dauða hans bar að og tjaldið félh við lok síðasta þáttarins í stuttri, en ó- venju fagurri ævi. Mannlegum söknuði verður aldrei með orðum lýst, svo til hlýtar megi teljast; fullnaðar- skilning í þeim efnum öðlast þeir einir, er tæma til botns bikar heitra harma, en styrkjast jafn- framt í lífsbaráttunni við með- vitundina um það, að anda, sem unnast, fái eilífð eigi aðskilið. Við kveðjum Pétur Hoffman Hallgrímson með djúpum trega, þökkum honum unaðslega sam- fylgd, og minning hans, hlý og hrein, verður okkur vinum hans, samferða fram á brautarenda. E. P. J.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.