Lögberg


Lögberg - 22.11.1945, Qupperneq 3

Lögberg - 22.11.1945, Qupperneq 3
LÖGBEKG, FIMTUDAGINN 22. NÓVEMBER, 1945 3 Dagur í Róm Innanhúss skraut Rómverja tók skrauti þeirra í klæðaburði langt fram. í húsum þeirra voru marmaragólf með glitsteina röð- um. Meistaralega gjörðar súlur úr marmara, alabastur og marg- litir steinar prýddu sali húsanna. Á veggjum húsanna voru fagr- ar myndir málaðar, og oft voru veggirnir settir glitrandi gim- steinum. Loftin í herbergjun- um voru lögð gulli og spegilgleri. Borðin í húsunum voru gjörð úr sedrusviði, en fætur þeifra úr fílabeinum. Legubekkir voru skreyttir með fílabeini, skelböku- skeljum eða gulli; yfirdekktir voru þessir legubekkir með for- láta dúkum frá Alexandríu eða Babylon, sem kostuðu rómversku miljónamæringana 800,000 sester- ces (einn sesterces um 4 cent — $32,000.00). Neró borgaði 4,000,- 000 seseterces ($640,000.00) fyrir kopar rúmstæði, með flugnaneti yfir. Ljósahjálmar úr kdpar, marmara eða spegilgleri. Mynda- styttur og málverk og aðrir list- rænir hlutir, svo sem skrautker frá Korintu, eða Murrhiníu, skreyttu heimili stóreignamann- anna í Róm í ríkum mæli, á tíð Nerós. Á slíku heimili var líkast því að búa í safnhúsi. Það varð að kaupa þræla til þess að gæta eignanna, og svo aðra þræla til að líta eftir þeim sem eignanna áttu að gæta. Á sumum heimil- um voru 400 þrælar til þjónustu utanhúss og innan. Einveru nutu húsbændurnir ekki á heimilum sínum. Þegar húsbóndinn neytti máltíða var þræll sitt við hvora hlið hans. Þegar hann gekk til rekkju, og drógu þrælar skó sinn af hvorum fæti hans, þegar hann hvíldist í legubekk sínum, gættu þrælar allra dyra. Slíkt var ekk- ert paradísar-líf, og til þess að fullnægja kröfum auðs og stöðu, þá urðu þessir auðmenn að fara á fætur klukkan sjö á morgnana til þess að taka á móti skjólstæð- ingum sínum og þurfamönnum og láta þá kyssa sig á kinnina og veita þeim viðtal í tvær klukku- stundir, að því loknu borðaði húsbóndinn vanalega morgun- verð. Næsta, verkefnið að morgun- verði afstöðnum var fyrir ákveð- inn tíma, að taka á móti vinum og kunningjum og þegar því var lokið, að heimsækja alla þá kunn- ingja og vini, sem komið höfðu, sem var fastákveðin kurteisis- skylda, og liðsinna þeim við eitt og annað, sem þeir þurftu bend- inga við, svo sem staðfesta erfða- skrár, leiðbeina þeim sem um opinberar stöður sóttu, vera við- staddur trúlofanir dætra kunn- ingjanna og lögaldursafmæli sona þeirra og hlusta á skáldskap þeirra. Þessar og aðrar mann- félagsskyldur uppfyltu þeir með veglyndi og höfðingskap, sem aldrei hefir verið yfirstíginn, og að þessu loknu fóru þessir höfð- ingjar til starfs í senatinu, ann- ara stjórnarsýslana, eða sinna eigin störfum. Lífskröfur þeirra, sem efna- minni ^ voru, voru ekki eins strangar, en að engu léttari. Eftir að þeir höfðu aflokið hinum þjóð- legu vísitasíum, sem þeir fram- kvæmdu snemma á morgnana, gengu þeir að starfi sínu hvert helzt svo sem það var; fram á miðjarl dag. Alment verkafólk varð að vera komið til iðju sinn- ar um sólaruppkomu og þar sem lítið var um næturfagnað á meðal Rómverj'a, þá enti verkafólkið daginn vel út. Um miðjan dag, neytti fólkið Iéttrar máltíðar, en miðdagsverð- ar kl. þrjú til fjögur. Heldra fólkið neytti miðdagsverðar kl. fjögur, og hæst settu stéttirnar oft síðar. Eftir miðdagsverð og miðdagsblund, sem allir nutu, gengu bændur og verkalýðurinn til iðju sinnar aftur og unnu til sólarlags. Hinir, sem ekki þurftu að þræla fyrir sínu daglega brauði, fóru þá til leikja, eða til baðstöðvanna almennu. Róm- verjar sýndu böðum sínum meiri hollustu en guðunum. Það var með þá eins og Japana að svita- lykt almennings var þeim bæri- legri en þeirra eigin, og engar fornþjóðir jöfnuðust á við Róm- verja, að því er hreinlæti snertir að Egyptum einum undanskild-- um. Þeir báru vasaklúta (sudaria) á sér til að þerra af sér svitann, og þeir tóku tannlaugar á degi hverjum. Á fyrri árum róm- verska ríkisins, létu menn sér nægja að taka laugar áttunda hvern dag, en nú urðu þeir að taka laugar daglega, eða eiga á hættu andúð og aðfinslur kvenna sinna. Jafnvel allra búralegustu karlarnir urðu að baða sig á hverjum degi,” segir Galen. Böð voru á langflestum heimilum. Á ríkismanna heimilunum voru baðsalir skreyttir marmara og spegilgleri, með ljósahjálma og vatnskrana úr silfri, en langflest- ir frjálsir Rómverjar á þeirri tíð reiddu sig þó á almennu baðstað- ina. Vanalega voru þessir þaðstaðir eign einstaklinga. Árið 33 B.C. voru 170 baðstöðvar í Róm. Á fjórðu öld eftir Krist, voru þau 856, auk 1352 sundlauga. En svo komu ríkisböðin, sem strax urðu miklu vinsælli og var þeim stjórnað af umboðsmönnum rík- isins og mörg hundruð þræla unnu við þau. Þessi böð, ^em nefnd voru þermae, heita vatns- böð, voru bygð af Agrippa, Neró, Títusi, Trajan, Caracella, Alex- ander, Servus, Diocletían og Constantínusi og voru glæsileg- ur minnisvarði ríkis og sameign- ar hugsjónarinnar. í böðum þeim sem Neró lét gjöra, voru 1600 marmarasæti og í þeim gáftt 1600 manns baðað sig samtímis. í böð- um þeim, sem þeir Caracalla og Diocletian reistu, gátu 3,000 manns baðað sig í senn, í hvoru þeirra. Aðgangur var seldur að böðum þessum, og nam hann einum quadran (1% centi). Fyrir þá borgun gátu menn notið allra hlunninda, sem í sambandi við böðin stóðu til boða, svo sem smurningar-olíu og annarra nauðsynlegrar þjónustu, en ef reksturshalli varð, borgaði ríkið. Böðin voru opin frá dagrenn- ing til nóns fyrir konur, og frá kl. 2 e. h. og til klukkan 8 að kveldi fyrir karlmenn, en sam- eiginleg böð karla og kvenna, voru þó leyfð í flestum þeirra. Vanalega fóru menn fyrst er þeir komu á baðstaðina til klæða- skálanna til að skifta um föt, svo inn í leiksalina, eða inn á leik- svæðin, til að iðka allskonanæf- ingar og leiki, helzt yngra fólkið, hið eldra líkamsþyngra og latara, lagðist upp í legubekki í þar til gjörðum herbergjum, og létu þræla nudda af sér spikið. Þegar menn gengu til baðanna, komu þeir' fyrst inn í herbergi, sem nefnt var “tepidarium”, þægi- lega hlýtt herbergi, svo var hald- ið áfram og inn í annað, sem þeir nefndu “calidarium”, heita her- bergið, og ef þeir voru ekki á- nægðir með það, en vildu fá sér reglulegt svitabað, fóru þeir inn í “laconicum” — inn í sjóðandi gufuhita, þar sem menn ætluðu naumast að geta andað. Þegar menn voru búnir að svitna að vild, tóku þeir þægilega heit vatnsböð, og þvoðu sér með sápu sem Frakkar voru þá nýbúnir að finna upp, og búin var til úr tólg og álmviðarlaufa ösku. Þessi hitaböð Rómverja voru langsam- lega vinsælustu blöðin, og þeir hafa máske með þeim hugsað sér að varna gift og liðaveiki. Eftir að þessum vatnsböðum og sápuþvotti var lokið, fóru menn enn í eitt herbergi, “frigi- darium”, þar sem þeir tóku köld böð, og létu svo smyrja sig með olíu viðar smyrslum, sem strokin voru af rneð þar til gerðu verk- færi, eða þerrara, en aldrei þerr- uð með handklæði, svo hörundið var olíu-rakt, til að bæta upp fyrir skinnfituna, sem svitaböð- in pressuðu út. Eftir að þessum böðum var lokið, fóru baðgestirnir lang sjaldnast heim til sín, vegna þess að það var um fleira að ræða á baðstöðvunum en böðin ein; þar voru allskonar aðrar stofnanir (klúbbar) þar sem menn gátu kastað teningum, teflt, mynda- söfn, lestrarsalir og ágæt bóka- söfn. Einnig voru til hliðar við þessa almennari sali hliðarher- bergi þar sem menn gátu setið og skeggrætt mál sín. Salir þar sem skáldin gátu flutt kvæði sín fyrir fjölmenni, heimspekingar ráðið vandamálum sínum og annara til lykta í heyranda hljóði, og söng- fræðingarnir látið list sína hljóma daglega. Það var eftir að þessum athöfnum og böðunum var lokið og degi tók að halla, að félagslífið rómverska náði há- marki sínu. Þá mættust allir, menn og konur, og töluðust við. Æskufólkið rendi hýrum augum hvort til annars, brosti og roðn- aði ofurlítið eins og það gjörir enn í dag við ýms tækifæri. Þá ræddu áhugamennirnir mál sín af kappi. Fólk reikaði um listi- garðana og frá einum stað til annars svalaði málskrafsþrá sinni, lagði eyrun við fréttum dagsins og hneykslismálum. Þeir sem vildu gátu fengið máltíðir keyptar við baðstaðina, því þar var gnægð góðra matsöluhúsa, en flestir fóru heim til sín, til mál- tíða. í öllum hinum ríkmannlegri húsum Rómverja var sérstakur borðsalur, eða “triclinium” svo kallað, sökum þess, að legu- bekkjunum sem í borðsalnum voru, var raðað þannig við mat- borðið að þeir mynduðu smekk- lega ferhyrnu. Á þessum bekkj- um, sem hver um sig rúmaði þrjá menn, lágu Rómverjar, er þeir neyttu máltíðar, þannig, að höfuðin vissu að matborðinu og þeir hvíldu það á vinstri hendi sér. _ Fram eftir árum neyttu karl- mennirnir máltíða sinna einir, síðar neyttu konur þeirrsr mál- tíðanna með þeim og hvíldu þá menn og konur hlið við hlið á bekkjunum og neyttu máltíð- anna sameiginlega. Kosti var mjög misskift á meðal Rómverja á tíð Nerós. Fátækara fólkið bjó aðallega við kornmat, mjólkur og kál mat og hnotur. Efnaðra fólkið neytti kjöts í ríkum mæli og var svína- kjöt uppáhalds kjötréttur þess. Þegar stórveizlur voru haldn- ar, áttu menn von á sjaldgæfari fæðutegundum en ella. Veizlurn- ar byrjuðu vanalega kl. 4 e. h. og stóðu langt fram á nótt og stundum alla nóttina. Matborðin voru skreytt blómum. Loftið í veizlusölunum ilmandi. Legu- bekkirnir settir mjúkum sessum, og þjónarnir boðnir og búnir til að annast atvik hvert, svo gest- irnir þurftu naumast að taka hendi til. Á milli fyrsta réttarins, sem ávalt var borinn fram til að auka matarlistina, og eftirmat- arins, sem Rómverjar kölluðu “secunda mensa”, voru uppá- haldsréttirnir bornir fram, og að þeir væru sem allra fullkomn- astir og sjaldgæfastir var metn- aðarmál húsráðendanna og mat- reiðslumannanna. Sjaldgæfar fisktegundir, kjöt af sjaldgæfum fuglum og fágætar tegundir á- vaxta, voru ekki aðeins gómsæt- ar, heldur vöktu þær líka sprikl- andi forvitni manna. Fyrir eina fisktegund borguðu Rómverjar eins mikið og 40 cents fyrir pund- ið, við slíkt tækifæri. Asiníus Celer borgaði $320.00 fyrir einn Mullet og fóru gárungarnir þá að glensa með, að fiskarnir væru orðnir verðmeiri en fiskimenn- irnir. Stundum voru þessir dýru og dýrmætu fiskar látnir lifandi í soðpottinn í augsýn gestanna, svo þeir gætu skemt sér við dauðateygjurnar og litbreytingar þær er þeir tóku við fjörbrotin. Þessi veizluhöld á meðal Róm- verja voru alltíð, en þessi sér- staka fisktegund, Mullet, sjald- gæf; tóku menn sér Jþá fyrir hendur og gjörðu sér að atvinnu að framleiða hana, bygðu Mullet klök. Er þar sérstaklega getið um mann, sem Vidius Pollio hét. Lét hann gjöra vatnsker mikið, oar sem hann klak út Mullets, fisktegund, sem var og er 18 þml. á lengd og ól þá á kjöti þræla Deirra er útslitnir og ónýtir voru orðnir, eða illa þokkaðir. Einnig voru sniglar og álar í miklu uppá haldi, en músasteik var með lögum forboðin. Á meðal hinna fínni og eftirsóttari rétta var kjöt af strútsvængjum, tungur úr flamingoes, söngfugla kjöt og gæsalifur. 1 þessum veizlum neyttu menn réttanna og sælgætisins óspart, ekki sízt fyrir þann sið, sem var ekki aðeins leyfilegur, held- ur viðtekinn, að þegar menn gátu ekki, sökum magafylli, borðað meira, máttu þeir létta á sér með því að selja upp og ganga svo til matborðsins aftur. Um þann sið fórust Seneca svo orð: “Vom- unt ut edant, edunt ut vomant.” (Þeir eta til að spú, og spú til að eta). Þó er sjálfsagt að taka fram að slíkt háttalag var ekki alment, öllu fremur undantekning, og var í rauninni lítið verra heldur en raupara fylliríisveizlurnar, sem eru svo tíðar á vorum dög- um. Tilkomumeiri var hinn forni siður, að leiða gestina út með gjöfum, skemta þeim við músík, skáldskap, eða drama- tíska sjónleiki, og að ilmrík blómadreifa féll yfir þá úr lofti salanna, á meðan að þeir stigu dans, eða hvíldu á legubekkjun- um. Og svo var deginum eða nóttinni lokið með skemtilegum og fjörugum samræðum, sem konur og menn tóku þátt í, jöfn- um höndum. Við megum ekki slá því föstu, að allir dagar hafi endað með slíkum veizluhöldum hjá Róm- verjum, ekki einu sinni að þær hafi verið almennari en ræðu- halda veizlurnar eru nú, vor á meðal. Sagan eins og blöðin falsa viðburði lífsins þannig, að hampa og halda á lofti því sér- kennilega, en þegja í hel við- burða minni feril hins heiðvirða manns. Flestir Rómverjar voru líkir oss og nágrönnum vorum. Þeir vou latir að fara á fætur á morgnana, þreyttu sig um og á vinnu, léku sér of lítið,, elskuðu mikið, hötuðu sjaldan, töluðu mikið, dreymi dagdrauma og sváfu. —(Lauslega Jpýtt úr bók Will Durant, Ceasar og Kristur.). J. J. B. Minniál BETEL í erfðaskrám yðar Greiðið Atkvæði með CCF í BÆJARKOSNINGUNUM 23. NÓVEMBER 1 bæjarráðið: VICT0R B. ANDERS0N HOWARD V. McKELVEY Greiðið 1 og 2 í þeirri röð, sem yður þóknast. I skólaráðið: PHILIP M. PETURSS0N HARRY A. CHAPPELL Greiðið 1 og 2 í þeirri röð, sem yður þóknast. Fyrir framtaksemi og j'ram- sækni greiðið atkvæði með CCF Business and Pro fessional Cards DR. A. BLONDAL Phyaioian A Surgeon «02 MEDICAL ART8 BLDG. Slmi 93 996 Helmili: 108 Chataway Stmi <1 023 Dr. S. J. Johanneeeen 215 RUBT 8TRBBT (Beínt suður af Bhnnlng) TaMml 80 977 • VlBtalstlml 1—6 e. k. DR. A. V. JOHNSON Dentlet • »•« SOMER8BT BLDO. Thelephone 97 932 «*» Home Telephone 202 SM Dr. E. JOHNSON 304 Evellne St. Selklrk Offlce hrs. 2.30—6 P.M. Phone office 26. Res. 330 Dr. K. J. Austmann Specialist Eye, Ear, Nose and. Throat 704 McARTHUR BLDG. Cor. Portage and Main Office hours: Tuesdays and Thursdays 5—8 Saturdays 2—5 Office 96 731 Home 53 893 Ófíice Phone Res. Phona 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDQ. Offlce Houra: 4 p.m.—6 «ja and by appolntment DR. ROBERT BLACK SérfraOinrur I Augna, Eyrna, nef Off hfrleajúkdömum 416 Medlcal Arta Building, Oraham and Kennedy 8t. Skrlfstofuslmi 93 861 Helmaslmi 42 164 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar • 40« TORONTO QBN. TROBTg BUILDINQ Cor Portage Ave. og Sfulth f*V PHONE 96 952 WINNIPBQ EYOLFSON'S DRCG PARK RIVER, N.D. latenekur iyfaali Fftlk getur pantaO meOul oc annaS meS pSsU. Pljðt afgrelSsla. Dr. J. A. Hillsman SURGEON 308 Medical Arts Bldg. PHONE 97 329 A. S. BARDAL 848 8HERBROOK ST. Selur llkkietur og annast um *t- farir Alfur Atl»lnaSar et beeti Bnnfremur selur hann aTlakonar mlnnisvarSa o* legatelna Skrifstofu talslml 27 324 Heimllls taLriml 28 444 L«giteln»r aem skara framúr Orvals blá.gryti og Manltoba marmarl BkrtfiO efttr verOahré GILLIS QUARRIES. LTD. 14 00 Spruce St. Slml 18 ttt Wlnnipeg, Man. HALDOR HALDORSON ’byootnoaaneiatari 23 Muslc and Art Bulldlng Broedway and Hargrave Winnipeg, Canada Phone 93 056 J. J. SWANSQN A OO. LIMITED 303 AVENUE fiLDQ, WPQ. • Fasteignaaalar. Leigja hús. Ot- vega penlngalán og eldeÍbyrgB, bifreiða&byrgð, o. s. frr. Phone 97 538 IN8URE your property wlth HOME SECURITIES LTD. 468 MAIN ST. Leo E. Johnson A. I. I. A. Mgr. Phonee Bus. 23 377 Res. 39 433 ANDREWS. ANDREW* THORVALDSON AWD EGGERTSON UiOfrceOlnoar 309 Bank of Nova ðcotl* BM» Pbrtagj Og QWTZ •*- Sfmi 18191 J TELEPHONE 94 358 H. J. PALMASON & CO. Chartered Áccountanta 1101 McARTHUR BUIL.DINQ WINNIPEQ, CANADA Blóm siundvíslgga aigraiM THIROSERY t™ Stofnað 1106 4 27 Portage Ave. Simt 97 499 Wlnnipeg. Phone 49 489 Radlo Service Speciallsts ELEGTRONIO LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Bkjulpment System. 1M OIBOBNI ST., WINNIPRO GUNDRY PYM8RE LTI. Brltleh Quality — Flah Nettlag 60 VICTORIA BTRBFr Phone 98 211 Wlnnipeg Manaoer, T. R. THORTADDKOBB Tour patronage wtJ! be ippreciated Q. F. Jenaaaon, Prea. 6 Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Slml 95 217 Wholeaale Dlatrtbutori af rnJBBH and froZkn riam CANADIAN FI8H PRODUCERS, LTD. I. H. Taoe. Uanaotno DtraaOer Wþolesale DUtrtbutor* eí Fresh and Froeen Fteh. Sll Chambere 94- Office Phone 26 329 Res Phone 71917. MANITOBA FISHERIES WINNIPEO, MA«. T. Beroovttch, framhv.atf. Verela I heíldeölu meS nýjan og froeinn flek. 106 OWENA 8T. Skrlfatofustml 16 666 Heámaalml 66 482 Argue Brothers Ltd. Real Estate — Plnanclal — and Insurance Lombard Building, Wlnnipeg J. DAVIDSON, Rep. Phone 97 291 TT HAGBORG U n fuel co. n • Dial 21 331 21 331 1

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.