Lögberg - 03.01.1946, Síða 1

Lögberg - 03.01.1946, Síða 1
PHONE 21374 \ VvvÚVeA V>U: ,r Stor^e Complete Cleaning Institution LAi'IDSBÓKASAFN PHONE 21374 \icA ctnr<i9e LOttn' ,rs DrVatO^P derer8* A Complete Cleaning- Institution 59. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 3. JANÚAR, 1946 NÚMER 1 Sambandi verði náð við alla Islendinga erlendis Aðalfundur Þjóðræknisfél.: AÐALFUNDUR Þjóðræknisfé- 'r* lagsins var haldinn í Tjarnar- cafe á fimtudagskvöld s.l. Á fundinum var mættur dr. Árni Helgason frá Chicago. Fundar- stjóri var Ágúst H. Bjarnason prófessor. Dr. Árni Helgason tók fyrstur til máls. Hann lýsti m. a. félagslífi íslendinga í Chicago- borg. Þar eru búsettir um 200 íslend- ingar og fólk af íslenzkum ætt- um. Þar hefir verið starfandi ís- lendingafélag í 21 ár og hafa 70 —80 verið í félaginu. Fundir eru haldnir mánaðarlega og eru 50— 60 manns venjulega á fundun- um. Ræðumaður nefndi ýmsa menn, sem verið hafa forgöngu- menn þessa félagsskapar á und- anförnum árum. Árlega er hald- in aðalsamkoma félagsins, var fyrrum 2. ágúst, en er nú næsta sunnudag við 17. júní. Mikill styrkur hefir það verið félagi þessu, þegar góðir ræðumenn hafa komið að heiman eða úr öðrum bygðum Ameríku. Taflfélag er starfandi innan félagsins og kvennadeild hefir starfað þar á stríðsárunum, til þess að veita ýmsa aðstoð vegna hernaðarins. 20 Vestur-íslend- i.ngar frá Chicago hafa verið kallaðir í herþjónustu og einn þeirra fallið. Ræðumaður gat um ýmsa Bandaríkjamenn, sem hann hefir hitt og kynst, er hafa lagt stund a að kynnast íslandi og borið landi og þjóð vel söguna. Meðal þeirra prestur að nafni Mr. Bradley, er kom hingað 1930. Ymsa hermenn hefir dr. Árni h^t. sem vel hefir fallið vistin hér á landi og vilja koma hingað 1 heimsókn. Að endingu lýsti ræðumaður því, hve erfitt það er í fjölmenn- inu fyrir Islendinga að halda °pinn. En er þag - Sagði hann, að Bandaríkjamenn eru hlyntir, að fólk, sem búsett e.r J-tra, haldi trygð við ætt- 10r Slna- Margt er líkt í skap- gerð fslendinga og Vesturheims- rnanna. Með því að vera góður s endmgur vestra, eftir því sem ong eiu á, eiga menn auðvelt borgaraV^3 gÓðÍr Þjóðfélags' Að endingu færði dr. Árni jo raeknisfélaginu kveðjur að vestan, m. a. frá forseta Þjóð- ræknisfélagsins, Richard Beck. Er dr. Árni hafði lokið máli Slnu> þakkaði fundarstjóri hon- um, ekki aðeins fyrir ræðuna, 6. Ur, fyrir mihil og margháttuð S 01 * Þágu íslendinga vestra. ann lýsti því, hve mikilsvirði það er, að ísland skuli hafa á að skipa öðrum eins ágætismönnum og dr. Árna í ræðismannsstöður viðsvegar um heim, en Árni er ræðismaður íslands í Chicago. Árni fór vestur árið 1912 með tvær hendur tómar, braust á- fram með einbeitni og fyrir- hyggju og hefir nú um alllangt árabil rekið verksmiðju, sem framleiðir rafmagnsvörur, er veitir 1000 manns atvinnu. 1500 manns hafði hann í þjónustu sinni á stríðsárunum. — Fundar- sitjóri lýsti frábærri gestrisni Árna, hjálpsemi hans og fyrir- myndar heimili í Chicago. Næsta mál á dagskrá fundar- ins var það, að formaður félags- ins. Árni G. Eylands, skýrði frá starfsemi þess á undanförnum tveim árum, 1944 og 1945, sem fyrst og fremst hefir beinst að því, að glæða samhug milli Is- lendinga beggja megin hafsins. Hann mintist með þakklæti komu sinnar á þjóðræknisþing Vestur-íslendinga í fyrravetur, hve vel honum var tekið þar og hve mikill áhugi var þar ríkj- andi á þjóðræknismálum. Af mistökum hafði ekki orðið úr því, að hann hefði getað flutt þau boð þar, að ritstjórum ís- lenzku blaðanna, Lögbergs og Heimskringlu væri boðið hing- að heim. Hann taldi, meðan hann var á þinginu, að hann hefði ekki haft til þess fulla heimild, að bera fram þetta heimboð. En hann kvaðst vona, að það kæmist í kring á næsta ári, og ritstjór- arnir Einar P. Jónsson og Stefán Einarsson gæfist kostur á að koma hingað í boði félagsins. Félagar í Þjóðræknisfélaginu eru nú hér á landi 450—500. Þeir fá allir Tímarit Þjóðræknisfé- lagsins, sem gefið er út vestra. Og nokkru meira er selt hér af riti þessu. Svo útbreiðslan hér á landi er talsverður styrkur fyrir útgáfu ritsins. Formaður mintist á ýmislegt fleira viðvíkj- andi félagsstarfseminni. Gjaldkeri félagsins, Ingvi Bjarnason, gerði grein fyrir reikningum og fjárhag félagsins og voru reikningarnir samþyktir með samhljóða atkv. Hefir nokkurt fé safnast í sjóð félags- ins, sem ætlað er til að standa' straum af kostnaði við heimboð Vestur-Islendinga. Þá fór fram stjórnarkosning. Þeir þrír stjórnarnefndarmenn, sem áttu að ganga úr stjórninni, báðust eindregið undan endur- kosningu sakir annríkis. Voru það Árni G. Eylands, Jón Emil Guðjónsson og Valtýr Stefáns- son. Formaður bar fram þá til- lögu, að í stað þeirra yrðu kosnir í stjórn Sigurgeir Sigurðsson biskup, ívar Guðmundsson ritstj. og Hendrik Björnsson, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu. Voru þeir allir kosnir í einu hljóði. Því næst var til umræðu fram- itíðarstarfsemi félagsins. Tók Valtýr Stefánsson fyrst til máls. Sýndi hann fram á, hve æski- legt það væri, að félagið víkkaði verksvið sitt og gerðist athafna- meira á sviði þjóðræknismál- anna. Að það yrði miðstöð fyrir alla íslendinga erlendis, hvar í veröld sem þeir eru, gengist fyrir að stofnað yrði samband Islend- ingafélaga, annaðist fróttaflutn- ing til landa erlendis, og fengi sem fylstar upplýsingar um veru- stað þeirra og hagi. Sigurgeir Sigurðsson biskup og Ólafur Gunnarsson kennari tóku mjög í sama streng. Var samþykt til- laga frá V. Stef. um að óska eftir því, að félagsstjórnin tæki þetta mál til yfirvegunar og aðgerða sem fyrst. Ófeigur Ófeigsson læknir flutti félaginu kveðjur frá ýmsum merkum Vestur-íslendingum og talaði um hve mikla alúð þeir sýndu málefnum íslands og ís- lendingum, er dvelja um stund- arsakir vestra. Tók hann eink- um fram, hve mikilvirkur Grett- ir ræðismaður Jóhannsson í Win- nipeg væri í þeim efnum. Að endingu flutti Valdimar Björnsson ræðu um þjóðræknis- mál og las upp nokkur erindi úr hinu gullfallega kvæði til Gutt- orms J. Guttormssonar skálds, sem Örn Arnarson flutti honum, er Guttormur kom hingað í heim- sókn sumarið 1938. —(Mbl. 16. des.). Þiggur sæmd af konungi Gnr. Edwin Kristjanson Þessi ungi og frækni maður, er sonur þeirra Mr. og Mrs. Ottó Kristjanson, sem nú eru búsett í bænum Geraldton í vestanverðu Ontario-fylki; hann innritaðist í júní 1941 í 18. Medium Battery, en fór til Englands í marz árið eftir; 1 októbermánuði 1943 var Edwin sendur til Sikileyjar, þar sem hann tók þátt í miklum og geigvænlegum orustum; hann var á ítalíu þangað til í síðast- liðnum marz-mánuði, en var þá sendur til Hollands og dvaldi þar til stríðsloka. Gnr. Kristjanson kvæntist á Englandi 1943 og gekk að eiga stúlku af enskum ættum; nú er hann kominn heim af vígvelli, sifjaliði og öðrum vinum til ó- segjanlegs fagnaðar. Fyrir nokkru barst foreldrum þessa unga fullhuga tilkynning um það, frá hermálaráðuneytinu í Ottawa, að hann hefði verið, sakir frábærrar háttlægni og kjarks, sæmdur heiðursviður- kenningu af Hans Hátign Georg Bretakonungi, og að skírteini þar að lútandi, vrði sent þeim við allra fyrstu hentugleika. Foreldrar Edwins áttu um hríð heima í Winnipeg, en fluttu héð- an til Winnipegosis, en hafa nú um nokkurt ára skeið verið bú- sett í Geraldton, þar sem Mr. Kristjanson rekur verksmiðju- °g byggingaiðnað í stórum stíh LEGATION OF ICELAND WASHINGTON 6. D.C. 28. desember, 1945. Herra ritstjóri Einar P. Jónsson, “Lögberg,” 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada. Herra ritstjóri: — í gær, hinn 27. desember, gekk ísland formlega að samningum um alþjóðagjaldeyrissjóð og al- þjóðabanka (Internatioríal Mone- tary Fund and International Bank of Reconstruction and De- velopment), sem undirbúnir voru á Bretton Woods ráðstefn- unni. Undirskriftar athöfnin fór fram í State Department í Wash- ington, og gengu samtals 28 ríki að samningunum þann dag. Fyr- ir hönd íslands skrifaði undir sendiherra Islands í Washington. Virðingarfylst, Thor Thors. ÍSLENZKIR ÍÞRÓTTA- MENN LÁTA TIL SÍN TAKA VETRAR-SÓLRIS iiiiiiiiiiiiiihiiiiiii Með geislasverði sólin myrkrið klýfur og sökkvir því í dagsins bjarta haf, úr fjötrum nætur foldu bleika hrífur og fléttar henni mtrgunroða-traf. En álög húms af hugum manna falla og fléttar henni morgunroða-traf. hin týndu draumalönd af djúpi stíga, með dýrð um brá, við nýja röðulsýn. Richard Beck. iiiiiiiih ■ ■iiiiiiiiiiniii I nýlegri Curling-samkepni hér í borginni, létu íslenzkir íþrótta- menn allverulega til sín taka, og unnu sér og þjóðflokki vorum mikinn heiður; er gott til þess að vita, er menn af íslenzkum stofni í þessu landi, skara fram úr á sem allra flestum sviðum. Eftirgreindir canadiskir Is- lendingar unnu verðlaun í á- minstri samkepni: Leo Johnson, þjóðkunnur Curling - kappi, Tucker Trophy — City of Win- nipeg Championship. George Sigmar, Blue Ribbon Trophy — Commercial Travellers Associa- tion. Herman Árnason, Gimli, Free Press Trophy, og Paul Sig- urdson, Morden, Man., Calhoun Trophy — High School Competi- tion. FUNDI LOKIÐ Fundinum í Moskvu milli utanríkisráðherra Bretlands, Rússlands og Bandaríkjanna, lauk rétt fyrir jólin, og er ekki annað sjáanlegt, en samkomu- lag milli þessara þriggja aðilja hafi náðst um flest meginmál. Varðandi gæzlu atómsprengj- unnar, eða þar að lútandi varúð- arráðstafanir, var fundurinn því hlyntur, að fyrirgreiðsla þess máls yrði falin ellefu þjóðum, er mynda eiga öryggisráð hins vænitanlega þjóðabandalags, og er svo til ætlast, að canadiska þjóðin eigi þar sæti; með hlið- sjón af hernámi Japans, félst fundurinn á það, að fjórar þjóð- ir, Bandaríkin, Bretland, Rúss- land og Kína, skyldu í samein- ingu vinna að skipulagningunni í Japan, í stað þess að amerísk stjórnarvöld yrði þar framvegis ein um hituna; þá var það og samþykt, að Korea yrði fyrst um sinn undir umsjá sameinuðu þjóðanna, þar til endanlega yrði gengið frá stjórnarfari lands- manna, og þeim veitt fullkomið sjálfstæði. 0r borg og bygð Samkvæmi fyrir hermenn kvæmið fer því fram í Royal Alexandra hótelinu, mánudags- kveldið 18. febrúar n.k., en það er fyrsta kveldið, sem þar var fáanlegt. Með því að þessi-breyt- ing var gerð, gefst almenningi tækifæri að koma þetta kveld og gleðjast með unga fólkinu okkar og láta í ljósi gleði sína yfir heim- komu þess. Boðsbréf (sem gilda fyrir tvo gesti), verða send til allra þeirra af íslenzkum stofni, sem hafa verið í herþjónustu í hinu ný- afstaðna stríði, og sem staddir verða í Winnipeg þetta áminsta kveld, svo framarlega sem nefndin fær vitneskju um nöfn >eirra og heimilisfang. Veitið athygli breytingu á deginum, og gleymið ekki að senda nöfnin sem fyrst til Mrs. J. B. Skaftason, 378 Maryland St. * lcelandic Canadian Evening School Mr. G. L. Johannson flytur erindi, “Industrial Progress in Iceland,” þriðjudagskveldið, 8. janúar, kl. 8, í neðri sal Fyrstu lútersku kirkju. Islenzku kensl- an byrjar kl. 9. Aðgangur fyrir þá, sem^ekki eru innritaðir, 25c. * Gefið í byggingarsjóð Bandalags lút. kvenna Immanuel Mission Society, Wynyard, $10.00; Mrs. H. S. Bar- dal, Winnipeg, $2.00. Kærar þakkir, Hólmfríður Daníelsson. 869 Garfield St., Wpg. ustuna í Fyrstu lútersku kirkju á sunnudaginn var, er hann hinn mesti efnismaður, eins og hann á kyn til. Foreldrar hans eru þau Dr. Haraldur Sigmar, for- seti íslenzka lúterska kirkjufé- lagsins, og frú Margaret Sigmar. + Séra Sveinbjörn Ólafsson frá Duluth, Minn., kom stil borgar- innar rétt fyrir nýárið, í heim- sókn til rrjóður sinnar, frú Önnu Ólafsson og systkina. I för með séra Sveinbirni var ungur son- ur hans. * Herra ritstjóri: Viltu vera svo góður að leið- rétta prentvillu, sem orðið hefir í greinni: “Nokkur orð frá Nýja íslandi”; þar stendur “Mrs. H. Halldórsson” en á að vera Mrs. H. Hallson. Óska ykkur hjónum gleðilegs nýárs. Vinsamlegast, Anna Austman. Víðir, Man. + Laugardagsskólinn! Fólk er beðið að veita því at- hygli, að Laugardagsskólinn byrjar kenslu sína í Fyrstu lút- ersku kirkju nwsta laugardags- morgun, kl. 10. Vonandi er, að foreldrar hlutist til um það, að senda börn sín stundvíslega í skólann. + Mr. B. J. Lifman, fyrrum sveitaroddviti í Bifröst kom itil borgarinnar á jniðvikudaginn; sagði hann snjóþyngsli mikil í norðurbygðum Nýja íslands. + Mr. Th. Thordarson, kaupmað- ur á Gimli, var staddur í boi'g- inni síðari hluta jólavikunnar. + Þess var getið fyrir skömmu að Jón Sigurdsson félagið, með aðstoð Icelandic Canadian Club er að efna til samkvæmis til þess sað heiðjp þá af íslenzkum stofni sem hafa verið í herþjónustu, og til þess að bjóða þá velkomna heim. Það er mjög ánægjulegt hve undirtektir almennings þessu viðvíkjandi hafa verið alúðleg- ar og uppörvandi á allan hátt. íslendingum finst sjálfsagt að gera alt sem í þeirra valdi stend- ur til þess að láta þetta fólk finna hlýleikann, þakklætið og gleðina, sem ríkir í hugum allra við heimkomu þeirra. Enda er það óefað áform félaganna og almennings yfirleitt að gera þetta mót virðulegt og ánægju- legt í alla staði, því “ekkert er of gott fyrir þetta fólk, sem hef- ir þjónað og barist fyrir land og þjóð,” hljómar á hvers manns vörum. 1 fyrstu var ákveðið að halda samsætið í Marlborough Hotel, 15. jan., en sökum þess hve fjölda margir hafa látið í ljósi ósk sína að taka þátt í þessari heiðurs- viðurkenningu, hefir nefndin tekið það ráð að leigja stærsta veislusal Winnipegborgar. Sam- + Mr. Eric Sigmar, stud. theol., prédikaði við morgunguðsþjón- Mr. og Mrs. Sigurður Thord- arson frá Gimli, dvöldu í borg- inni um hátíðirnar. iilliiiiliiiliiiillliiiliiilliiiliiiiliiiillliiiilillliuiiiiiiiliiliii liilliiiliiiiillillliilillillliiiilililllllllllilllliiiliiiiiiiiliiillil iliiiiill Guðmundur Daníelsson: SPÁ Þú segist geta lifað lífum tveim. Hve lengi munu orð þín reynast sönn; —Hvern dag til nóns að dýrka kyrrð og önn og dansa síðan inn í kvöldsins heim? — En vinur sæll, mín spá er köld og klúr: — þú kvænist senn á bak við skuggans múr! Þar lyftum örmum lendar sveigir hún með ljóðsins mýkt, — og straumur um þig fer, því konuvöxt, en klæði fá hún ber og kvikum leiftrum slöngvar undan brún og blandar ilmi hið rauða rökkurvín, og rós hún kastar yfir borð til þín. — Þá brjálast glóð þín — brjóstið fyllist reyk, og brunalykt að vitum þínum slær. En þú ert guð, — og þín er jörð og sær! — Unz þú sérð hönd, sem dregur vofubleik í myrkri ró sín merki á tjöldin þín: “Ó, mene mene tekel úfarsín!” llllllllllMMimilllllllllllllllllllllllllillllllllllllIIMIIi ....Illllllllllllllllllllllll.Illlllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllli IIMIIIIIIWIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIillllllllllllllllllilllllllllllllllllllliílHlliíilll'illlllllllllllllllllBllilllliillliljlllllllllllllimiIMIIllllllllilllllM

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.