Lögberg


Lögberg - 04.04.1946, Qupperneq 2

Lögberg - 04.04.1946, Qupperneq 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. APRÍL, 1946 Guðmundur Daníelsson: WASHINGTON Eg man ekki hvað klukkan var, þegar við ókum inn í Balti- more, en það var ekki komið kvöld. Það var enn bjart og heitt af solu, síðdegishitasvækja. Eg sá fólk og hús og mikil stræti, en eg hafði takmarkaðan áhuga fyrir staðnum. Eg vissi að dr. Stefán Einarsson og Margrét kona hans voru enn uppi í íþöki*-, og hvað var Baltimore án þeirra? — Ekkert — að minnsta kosti ekkert fyrir mig, og eg hreyfði mig ekki úr sætinu. Eg sat graf- kyrr hjá kerlingunni minni, sem nú var sofnuð með hökuna niðri í hnjám. Og er fór að raula mér til dægrastyttingar, — ekki neitt sérstakt, bara svona eitthvað út í bláinn, söngla íslenzk orð undir gömlu íslenzku lagi. Sum þeirra tóku á sig vísnaform, röðuðust þannig saman óviljandi. Svosem þessi : Þykknar í lofti þoka og mor, þýtur og ýlir í trjánum. Byrjað að rigna í Baltimore, bráðum mun vaxa í ánum. Syndir í móðu sólin rauð, sífellt hann eykur hitann. 1 Halifax liggja hænsnin dauð, í Harlem þeir drekka svitann. Bítur í fingur og bítur í tær, bólinu verð eg feginn. 1 Florida sögðu þeir fjúk í gær og farið að ganga á heyin. Þetta mætti kannske kalla amerískar veðurvísur, annars hafa þær ekki vitjað nafns til neins. — 1 Washington Við komum til Washington klukkan tæplega átta. Fru Mek- kín Perkins Johnson tók á móti mér á stöðinni. Hún er Vestur- íslendingur, gift Ameríkumanni og mörgum kunn, því hún hefir þýtt íslenzkar smásögur á ensku. Hún var búin að útvega mér herbergi á Hótel Emery. Það hús er númer 18 í G-stræti. Eg taldi frúna nú þegar hafa gert það, sem eg framast gat búizt við af manneskju, sem eg hafði aldrei fyrr séð og ekki var mér á neinn hátt vandabundin, en eg komst brátt að því, að hún ætlaði ekki að láta hér við sitja. Nú yrði eg að koma heim til hennar og fá að borða, sagði hún. — Eg hafði þá ánægju þetta kvöld að kynnast Mr. John Perk- ins, sem er löggiltur skjalaþýð- ari í þjónustu ríkisstjórnarinnar. Hann er mikill tungumálamaður, les meðal annars íslenzku, þó að rómönsk mál séu annars sér- grein hans, fyrst og fremst spænska. Hann hafði setið ráð- stefnu mikla í San Francisco og var kominn þaðan fyrir skömmu, þegar eg hitti hann. — Heimili þeirra hjóna kom mér fyrir sjón- ir sem vermireitur manngöfgi, lista pg lærdóms. Hér átti hljóm- listin óðal og bókmenntirnar að- setur sitt. Frúin hafði breytt svölum hússins í blómsturlund. Þar ræktaði hún animónur og rósir að ógleymdu hinu dular- fulla mjallhvíta mánablómi. Hún færði mér eitt þeirra og sagði mér söguna af því, — hvemig það sofnaði við morgunsárið og svaf allan daginn. Síðan var dag- urinn liðinn, og það varð rökkur, og tunglið kom upp yfir húsþök- in og skögarkrónurnar og fyllti garðana sína bleika — bleiku Ijósi. Það var þá, sem mána- blómið lauk krónu sinni upp, því að það var blóm næturinnar og gaf nóttinni allan sinn ilm. “Þetta er nokkuð til að yrkja um,” sagði frúin, og því gat eg ekki neitað. “Eg skal yrkja um það, þegar eg er farinn,” sagði eg. Síðan fylgdl Mr. Perkins mér heim. Innan sviga Hér kemur dálítill pistill innan sviga, og bað eg vin minn Hall- dór Stefánsson velvirðingar á því. (Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, mun telja tæpa milljón íbúa. Hún er skipulögð af frönskum manni, Charles L’Enfant major, snemma á 19. öld. Hahn hafði tekið þátt í frönsku stjórnarbyltingunni og var sérfræðingur í því að verja borgir gegn óvinaliði. Hann mið- aði skipulag Washingtonborgar að nokkru við það, að auðvelt yrði að verja hana, ef á hana yrði ráðizt. öll aðalstrætin voru lögð út frá miðkjarna hennar, þinghúsbyggingunni, (The Capi- tol) eins og geislar í allar áttir. í þessháttar strætum mátti koma fyrir fallbyssum og skjóta þaðan á óvinina löngu áður en þeir kæmust að úthverfunum. — Mörg torg I Washington eru fleiri torg en í nokkurri annari borg Banda- ríkjanna, sum hringmynduð önn- ur ferhymd. öll eru þau prýdd trjám og blómum og flest þar að auki líkneskjum frægra manna, sem mikið hafa komið við sögu landsins. Fólkinu þykir vænt um þessar fögru gróður- vinjar, að einni stétt undanskil- inni. Bílstjórarnir bölva þeim og heimta þær lagðar í auðn. Þeir heimta malbik, meira svigrúm fyrir hjól sín og hraða, og mér var sagt, að þeir hefðu þegár fengið nokkra áheyrn frá þeim, sem með völdin fara. Landfræði- lega er borginni skipt í fjóra hluta, sem nefnast: Norðvestur, Suðaustur, Norðaustur og Suð- vestur, og skerast merkjalínurn- ar allar um þinghúsbygginguna. Norðvestur er aðalhlutinn og er alltaf átt við hann, nema annars sé getið, þegar hús eða mann- virki eru staðfærð. Hver borgar- hluti hefir sitt eigið gatnakerfi merkt með bókstöfum og tölu- númerum, sem byrja við þing- húsið. Bókstafastrætin liggja austur og vestur, númeruðu strætin norður og suður. Enginn kosningarréttur Þó undarlegt sé, tilheyrir Washington engu hinna 48 ríkja Bandaríkjanna. Hún er Wash- ington, D. C., en það merkir Dist- rict of Columbia, — Kolumbiu- hérað. Hún liggur á landamær- um Virginiaríkis og Marylands, á austurbakka Potomac-fljóts- ins. Landið í kring er dálítið mis- hæðótt, en fjallalaust. Mér virt- ist það mjög frjósamt. Skógar og akrar skiptast á hvarvetna. Ýmislegt er skrítið í lögum Washington, D. C. íbúarnir hafa til dæmis engan kosningarétt, enda er enginn þingmaður fyrir borgina, og enginn borgarstjóri reldur. Stjórn borgarinnar er í höndum þriggja manna borgar- ráðs, sem þingið útnefnir. — Mörgum þykir sem von er hart að vera sviptir jafnmikilvægum mannréttindum og kosningarétt- urinn er, og hafa því tekið það til bragðs að eiga heimilisfang í einhverju nágranna ríkinu, þó að peir búi í Washington og hafi aar atvinnu. Roosevelt sálugi fór til dæmis alltaf til Hyde Park í New York-ríki til þess að kjósa sjálfan sig; og Perkins hjónin láta skrifa sig í Indiana og kjósa par. Það hefir enginn neitt við slíkt að athuga, enda er þetta fullkomlega löglegt. — Engir pólitískir borgarafundir eru leyfðir í Washington og starfs- lið stjórnarinnar, sem skiptir júsundum, má ekki taka opin- beran þátt í stjórnmálum nokk- urstaðar í landinu. Þessi ákvæði eiga sennilega að koma í veg fyrir að stjórnin geti keypt sér fylgi með bitlingum, og áð fyrir- byggja að Washington borg geti vegna aðstöðu sinnar haft óeðli- lega mikil áhrif á gerðir þings- ins, og þar með stjórnmál lands- ins í heild.) Hér loka eg sviganum og held áfram að útmála mína persónu- legu reynslu í þessari mannrétt- indalitlu borg, sem telur sig heimsmiðstöð mannréttindanna og höfuðstað frjálsustu þjóðar meðal þjóðanna. — Hugsað heirn Eg vaknaði klukkan 9 næsta morgun og sé hvíta sólskinsrák á veggnum gegnt glugganum. Það var sem sé enn ekki lát á þurrkinum. Nei. Drottinn minn, hvað eg óskaði þessum indæla heyþurrki heim til íslands, — heim til hans Jóns vinar míns úr Flóanum, því nú var eg búinn að sannfrétta, að þar hefði varla þornað af bæjarstéttinni í allt sumar. — Eg lá lengi kyrr og hugsaði um hrakið hey og fólk blautt í fæturna, um stóra — stóra mýrarteiga með bliknuðum flekkjum og drýli, um gegndrepa sláttumenn í úlpum, og rakstrar- konur í lopapeysum með bekk. Og það var mikil ljá, og það gerði bullandi hryðju meðan varið var að borða skyrið, svo engjafólkið var búið að fá hroll löngu áðu'r en mál var að standa upp. Þetta var eg að hugsa morguninn 5. sept. upp á Hótel Emery. — Unz allt i einu að síminn hringir. Það var hótelmaðurinn, sem talaði, hann tilkynnti mér, að frú Per- kins biði í forsalnum. — Æ, nú hafði eg hugsað of lengi um ís- land og gleymt því að eg ætti von-á gesti. Farið í sendisveitina “Eg kem niður eftir augna- blik,” svaraði eg. — Eg kom ofan eftir tuttugu mínútur og frúin hafði enn ekki misst þolinmæð- ina, heldur spurði hún mig hvort eg hefði sofið vel og hvernig eg hefði nú hugsað mér að verja deginum. — Eg sagðist hafa sof- ið eins og mánablóm í sólskini, en dagurinn væri eins og hið ó- kveðna ljóð um það, án forms í meðvitund minni. “Við skulum fá okkur að borða,” sagði frúin. Klukkan eitt vorum við stödd á skrifstofu ís- lenzka sendiráðsins. Þar hitti eg Svövu, og þar var Þórhallur Ás- geirsson. Þar var sendiherrann sjálfur og bauð mér ásamt Per- kins hjónunum til kvöldverðar á mor^un. — Þegar við kvödd- um hafði eg á brott með mér nöfn og heimilisföng allra ís- lenzku ræðismannanna í Amer- íku, og skrifa eg þau hér niður, ef einhver, sem les þetta, kynni að hafa gagn af því: . Prófessor Richard Beck, 801 Lincoln Drive, Grand Forks, North Dakota. 2. Rev. S. O. Thorláksson, 258 Stanford Avenue, Berkeley, Cali- fornia. 3. Mr. Grettir Jóhannsson, 910 Palmerston Avenue, Winni- peg, Manitoba, Canada. 4. Mr. Stanley T. Ólafsson, Los Angeles Chamber of Com- merce, Los Angeles, California. 5. Dr. Árni Helgason, 359 Addi- son Street, Chicago, Illinois. 6. Barði Skúlason, Public Ser- vice Building, Portland, Oregon. Eftir þetta fór frúin með mig niður að Potomac fljótinu, sem rennur hér til suðausturs vest- an við borgina. Nú skyldi halda til Mount Vernon í Virginia, og ferðast þangað með fljótabát. Þetta er ekki langt, einir 25 km., en það er í öðru ríki og það er heimili fyrsta forseta Banda- ríkjanna, — George Washing- tons. — Mount Vernon á sér mikla sögu, en hún verður ekki sögð hér, aðeins þetta skal tekið fram : Lawrence hálfbróðir Washington reisti húsið árið 1743. Áður hafði staðurinn heit- ið Hunting Creek (Veiði á), en var nú skírður upp til heiðurs Vernon flotaforingja, sem Law- rence hafði þjónað í stríðinu við Spán. — 1747 flutti Washington til bróður síns að Mount Vernon og settist þar að, en 5 árum seinna var staðurinn opinberlega skráður á nafn hans, því Law- rence var þá dáinn. Mount Ver- non var upp frá þessu í eign Washingtons og hann dvaldi þar jafnan, nema þegar störf hans í þágu þjóðfélagsins kröfðust ann- ars. Hann dó árið 1799. — Einkennilegt er það, hvað mannkynið hefir gaman af að ganga að dauðra manna gröfum. Rússar ganga að gröf Lenins, Is- lendingar að gröf Jóns Sigurðs- sonar, og þennan dag gekk eg að gröf Washingtons. Marmarakist- an hans hvíta, og kista Mörtu konu hans eru geymdar í graf- hýsi upp á hæðinni við fljótið og má sjá þær gegnum járn- grindumar á framgafli hússins. Allt í kring hvíla ættingjarnir í moldinni. Skammt frá standa útihús forsetans, vagnhús hans með vagninum í, reykhúsið, þrælahúsið, o.s.frv., að ógleymdu íbúðarhúsinu sjálfu. Allt er þarna með sömu ummerkjum og það var yfirgefið að húsbænd- unum látnum. — I eldhúsinu standa en eirpottar frú Mörthu, og pönnur hennar, ausur og sleifar hanga á veggnum yfir eld- stæðinu, og skín á aldagamlan málminn. Sömu myndirnar og húsgögnin skreyta enn stofurn- ar, og á gólfunum eru teppin, sem fætur forsetahjónanna slitu. — Utanhúss er gróðrinum hald- ið við í sama formi og fyrr. En drjúgir grátviðurinn við gafla, og kálgarðurinn v.ar í hirðu og blómabeðin í rækt. — Það er kvenfélagið Mount Vernon, sem á heiðurinn af viðhaldi staðar- ins og varðveizlu hinna merki- legu minja, sem hann hefir að geyma. Kostnaðinn fær það upp- borinn með aðgangseyri þeim, sem tekinn er af ferðamönnum, 25 cent af hverjum. — Það er víðar en á íslandi, sem kven- félögin inna af höndum mikil- væg menningarstörf í þágu lands og þjóðar. — Næsta dag, 6. sept., var eg að mestu einn míns liðs. Eg hafði keypt mér kort af borginni og komst með hjálp þess til þeirra staða, sem eg hafði ákveðið að skoða. — Fyrst lagði eg leið mína að minnismerki Washing- tons. Það er 555 feta hár .upp- mjór turn byggður úr granít og málaður hvítur. Hornsteinn hans var lagður árið 1848, en þræla- stríðið seinkaði framkvæmd verksins* svo því var ekki lokið fyrr en árið 1885. Vindustígi með 900 tröppum liggur upp í þak turninum, en þar er einnig lyfta, sem gengur upp og niður á hálftíma fresti. — Meðan eg beið eftir lyftunni hitti eg írsk- ættuð hjón með fjögur börn sín á aldrinum 6—12 ára. Þau voru búsett í Baltimore. Öll fjölskyld- an var rauðhærð. Konan hafði orð fyrir þeim öllum. Hún var fædd hér og var að sýna börn- um sínum og manni æskustöðv- arnar. Nánustu ættingjar henn- ar voru búnir að taka þátt í tveim heimsstyrjöldum, sagði hún, en svo var Guði fyrir að þakka, að enginn þeirra hafði fallið, ekki svo mikið sem særzt. Eg spurði hana hvort maðurinn hennar hefði verið í stríðinu. Nei, hann hafði verið of ungur til þess að fara í gamla stríðið, en of gamall til þess að fara í það nýja. Hann hafði unnið í verksmiðju í Baltemore og í fjögur ár hafði hann ekki fengið einn einasta frídag, nema jóla- dagana, þangað til núna. — Eg leit með hluttekningu á mann- inn, sem sat þögull við hlið kon- unnar. Hann hneigði höfuðnð til samþykkis við því sem hún sagði, en hélt áfram að þegja. — “Hann er búinn að vinna svo lengi,” hélt hún áfram óg klapp- aði honum á handarbakið, — “að rann trúir því tæplega, að hann sé allt í einu búinn að fá frí — að. hann megi sitja svona á bekk úti í sólskininu og horfa á trén og blómin. — Hann hrekkur stundum við, þegar hann heyrir í verksmiðjuflautu, og minnir að hann sé að verða of seinn í vinn- una. — Já, þetta hafa verið ósköp erfiðir og ófrjálsir tímar, en það er ekki hægt að vinna stríð nema leggja eitthvað í sölurnar, og nú fer þetta alt að lagast.” — Hún klappaði honum aftur á handar- bakið og leit framan í hann um leið eins og hún væri fremur að tala við hann en mig, og hann hneigði á ný höfuðið til sam- þykkis. — Eg sá að nú streymdi fólkið út um turndyrnar og hóp- urinn, sem úti beið, reis á fætur og bjóst til þess að ganga inn. “Ætlið þið ekki upp í turn- inn?” spurði eg írsku hjónin. “Nei,” svaraði konan og brosti. “Hann afi minn var með að byggja hann og eg kom sjálf upp í hann fyrir 15 árum, — við vilj- um heldur sitja hérna og hvíla okkur.” Börnin voru öll hlaupin út á grasflöt til þess að leika sér svo eg gat ekki hvatt þau, en eg kvaddi hjónin með- handabandi og konan bað guð að fylgjs^mér, hvar sem eg færi um veröldina. í þriðja sinn hneigði maðurinn höfuðið til samþykkis. Síðan fór eg upp í turninn og horfði út um alla gluggana á honum. — Næst skoðai eg listasafnið hans Treer’s (Treer Gallery), var þar lengi að lóna, skoðaði mynd- skreytt blöð úr Kóraninum skrif- uð í Arabíu á 14. öld, blöð úr persneskum bókum frá 15. öld, blöð úr egypzkum bókum frá 14. öld, persneska leirkerasmíði frá dögum Omar Kajáms og eldri, indverska list forna og nýja, meðal annars myndskreytt handrit ritað á pálmaviðarblöð. Þama mátti og sjá kristna list frá Armeníu og Grikklandi, svo og amerísk málverk frá seinni öldum. — Eftir að eg hafði dvalið nokkra klukkutíma í'Treer listasafni fór eg að skoða þjóðminjadeild safns eins mikils sem heitir Smith- son Institution.” Uppruni þess er sá, að James Smithson, Englend- ingur, sem aldrei hafði komið til Ameríku, og dó 27. júní 1829, gaf allar eigur sínar, fimm hundruð og fimmtíu þúsund dollara, til Bandaríkjanna, og kvað svo á, að þeim skyldi varið þar að aukningu og útbreiðslu á þekkingu meðal manna. Tvennt var það, sem eg hafði mesta ágirnd á að sjá í þessu safni: “The Spirit of St. Louis” og kjóla forsetafrúnna. “Andi heilags Louis” er flugvél sú, sem Lindberg flaug í austur yfir At- lantshaf í fyrsta sinn og varð heimsfrægur fyrir, en á kjólum forsetafrúnna stendur þannig að þegar forseti yfirgefur Hvíta- húsið, þá gefur kona hans kjól af sér á þetta safn. Síðan er bú- ið til líkan af henni og líkanið klætt í kjólinn. — Þarna skiðaði eg'nú fyrst flugvélaskríflið, en þvínæst allar forsetafrúrnar í gömlu kjólunum þeirra, og var það fögur sjón að sjá — Á safni þessu sá eg litlar koparstyttur af mörgum helztu mönnum Banda- ríkjanna fýrr og nú, herklæði frægra herforingja og vopn þeirra, eldfornar leifar mann- kynsins á frumstígi þess, til dæm- is hauskúpubrot Neanderdal- mannsins, Javamannsins og Cro- Magnon mannsíns, svo nokkrir hinna frægustu af forfeðrum okkar séu nefndir. Þá gaf þarna að líta geysistórt líkan af orustu- svæðinu í Frakklandl þar sem Þjóðverjar voru sigraðir haustið 1918. Sást vígstaðan nákvæm- lega, allar byggingar á svæðinu og byggingarústir, vegir, skógar, akrar og hver einasti sprengju- gígur. Sundurskotnir gunnfánar ótal orusta héngu á snúrum í loftinu og uppi á veggjum. — Þessum degi lauk með sérstak- lega ánægjulegu kvöldverðar- boði hjá Thor Thors sendiherra og frú Ágústu konu hans. Föstudaginn 7. september naut eg enn handleiðslu frú Mekkínu Perkins. Við byrjuðum daginn með því að skoða “Thé National Gallery of Art.” Það er nýtt. Það var stofnað með lögum frá þing- inu 24. marz 1937, er fullgert og opnað almenningi þrem árum seinna, 17. marz 1940. Það kost- aði 15 milljónir dollara eða níu- tíu og sjö og hálfa mliljón ís- lenzkra króna. Það er að mestu gert af marmara og hefir eink- um að geyma höggmyndir og málverk, — ameríska og evróp- íska list eingöngu. Einn salur þess er' oft notaður sem hljóm- leikasalur, og það var í þeim sal, sem Rögnvaldur Sigurjónsson vann sinn stóra sigur sem píani- leikari síðastliðið vor (1945). — Næsti viðkomustaður var “Þing- bókasafnið” (Library of Con- gress), fyrst opnað í nóvember 1881, en fullgert 1897. Það er fegursta bygging, sem eg hefi nokkru sinni séð, það er að segja hið innra. Mosaik-myndir skreyta lofthvelfingarnar og veggina, og í gólfið eru greypt öll stjörnu- merkin og aðrar dýrindis mynd- ir úr kopar. Milli bókasafns- byggingarinnar og þinghússins liggur neðanjarðarjárnbraut, — hin eina í Washington — og er eingöngu notuð af þingmönnun- um og starfsliði þeirra. Hver sem er getur notað bækurnar í lestrarsal safnsins, en útlána njóta ekki aðrir en þingmenn- irnir, forsetinn, hæstaréttardóm- ararnir og opinberir starfsmenn stjórnarinnar. Þarna sá eg eitt verðmætasta pappírsplagg í heimi — eða kannske það hafi verið úr skinni — frumrítið af stjórnar skrá Bandaríkjanna. Tveir vopnaðir hermenn gættu þess. — Eg sneri hálfnauðugur út úr þessu húsi, því að fegurð þess, kyrð og hátignarleiki hafði þegar náð á mér sterkum tök- um. Hvergi hefi eg fundið jafn skýrt, hver geysiáhrif umhverf- ið hefir á hugarástand manns og líðan. Þegar við yfirgáfum þing- bókasafnið fórum við að skofa “The Supreme Court”, hæsta- réttarhús Bandaríkjanna. Það er alveg ný bygging, öll gerð af hvítum marmara í forngrískum stíl, — hinum svonefnda Korin- þustíl. Tvær styttur halda vörð um innganginn, önnur kven- kyns, hin karlkyns. Kvenstyttan á að tákna lýgvísina, karlstyttan myndugleika laganna. Heldur fannst mér þeir kuldalegt og al- vörugefið innan veggja, en stól- arnir níu fyrir gaflinum stóðu auðir, og það var enginn sak- borningur né ákærandi í stúkun- ni fyrir framan þá. Rétturinn hafði frí þennan dag. Hæstirétt- ur Bandaríkjanna er skipaður 9 dómurum, og hefir nýlega kom- ið út ákærurit um tilhögun rétt- arnis eða þá löggjöf, sem hann er sniðinn eftir. Bókin var af mörgum talin runnin undan rif- jum Roosevelts forseta og heit- ir á ensku “The nine old meh” (Gömlu mennirnir níu). Eitt er að minnsta kosti víst: Roosevelt reyndi að koma í gegn lögum, sem fólu í sér mikla breytingu á réttinum, jafnvel skerðingu á valdi hans, en þingið felldi það frumvarp. Næst var þinghúsið skoðað. Því miður stóðu engir þingfund- ir yfir þessa dagana, svo að mér gafst .ekki tækifæri til þess að hlusta á neitt merkilegt. Eg varð að gera mér að góðu að horfa á auð sætin og þögul málverkin á veggjunum. Þing Bandaríkjanna (The Con- gress) er, eins og flestum mun kunnugt, í tveim deildum, sem nefnast fulltrúadeild (T h e House) og öldungadeild (The senate). Fulltrúarnir eru kosn- ir fjórða hvert ár, en öldung- arnir til 6 ára í senn. — Þetta verður að nægja um þingið. Eg hafði ekki tíma til þess að koma í Shakespeare-bóka- safnið, en eg starði á það og starði, þaðan sem eg gekk um strætið, og undraðist frægð þess skálds, sem svo fögur bygging var reist um. Því að í þessu safni eru einungis bækur eftir Skakes- peare, bækur um bækur hans og (Frh. á hls. 3) 4 f / $ *

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.