Lögberg - 04.04.1946, Blaðsíða 3

Lögberg - 04.04.1946, Blaðsíða 3
LOGBERG, FIMTUDAGINIM 4. APRIL, 1946 3 “Drottinn læknaði mig” Viðtal við Gísla Gíslason á elliheimilinu Grund Laugardaginn 9. þ.m. heim- sótti eg Gísla Gíslason, sem hinn 7. okt. þ. á. hlaut lækningu með skjótri svipan og með óvenju- legum hætti, í Elliheimilinu Grund í Reykjavík. Gísli er 67 ára gamall. Hann hefir hátt á þriðja ára- tug verið mikið olnbogabarn hvað heilsunni viðvíkur. All oft- ast sjúkur og oft sárlega þjáður. í mörg ár hefir hann staulast um á hækjum, þegar hann ekki befir verið rúmfastur. Oft hefir hann legið stórlegur. Tveir fingur voru fullkomlega kreppt- ir inn í lófann á annari hendi. Lengi hafði hann haft sár á £æti, sem ekki vildi gróa. Oft sótti hann mikil höfuðveiki Gísli var farlama maður, en reyndi þó til hins síðasta, er af honum bráði, að vinna að netagerð í rúmi sínu, sér til afþreyingar, því frá fyrstu tíð var honum rík starfs- þrá í brjóst lögð. Á síðastliðnu sumri var Gísli sjúklingur í Landakostsspítala um þriggja mánaða skeið. Hann var orðinn ákaflega þreyttur, þráin eftir hv-íld virt- ist fara vaxandi með hverjum degi. Hann trúði því, að upp mundi birta fyrir sér þegar yfir kæmi í nýjan heim og hlakkaði í raun og veru til þess eins, að fá að deyja. Oft varð honum hugsað um undursamlegt atvik, sem gerðist rétt fyrir heimsó- friðinn síðasta og þá hafði mjög sterk áhrif á hann. Það var í borðstofu Elliheimilisins. Þeir sátu þar ýmsir vistmenn, karlar og konur. Þá sáu þau samtímis byrtast mynd, sem þau álitu vera Jesúm Krist sjálfan og voru þau sex, er á sýn þessa horfðu. Frá þeirri stundu átti Gísli þá öruggu sannfæringu, að honum mundi opnast bjartari og betri heimur,, þegar jarðneskur þrautatími hans yrði á enda. — Umræddan dag er eg kom á Elliheimilið kom Gísli til móts við okkur, mig og prest elliheimilisins, séra Sigur- . björn Á Gíslason. Hahn var sýnilega heilbngður maður. Stakk að vísu dálítið við öðrum fæti en er þó mjög léttur í spori. Svipurinn var hreinn og heil- brigðislegur og yar Gísli himin- lifandi af fögnuði ag hamingju. “Eg er alveg heilbrigður,” sagði Gísli og sveiflaði sér létti- lega um gólfið og teigði fram henduirnar og rétti úr öljlum fingrunum. “Eg vildi helzt ekk- ert gera nema lofa Guð allan daginn.” Við gengum síðan þrír inn í herbergi þar sem samtal okkar Gísla átti að fara fram. Eg spurði Gísla allmargra spurninga og svaraði hann þeim Öllum viðstöðulaust og svo greindarlega, að ekki varð á betfa kosið, enda hygg eg að hann sé góðum andlegum hæfi- leikum gæddur. Læt eg hann nú segja frá: “Sunnudaginn 7. október, var stóri dagurinn,” sagði hann. “Daginn áður hafði eg verið nijög veikur og fór í rúmið, ó- venju slappur og máttlaus og í einkenrtilegu ástandi. Fól eg mig guði og leit út um gluggann upp til himins um leið og eg fór upp 1 rúmið mitt og óskaði mér að hið mikla þrautastríð mitt tæki nú enda og eg fengi að mæta Kristi. Skyndilega birtist mér niynd Frelsarans, þekki eg undir eifls að það var nákvæmlega sama veran og birtist okkur 6 í skýlinu í borðstofu Elliheimil- ^sins fyrir 6 árum. Veran var í eðlilegrj líkamsstærð. Yndislega goðlegur og fallegur var hann. ^er fanst hann titra ofurlítið, en geng út frá, að það hafi ver- í augunum á sjálfum mér. Þó Voru þau lokuð, þegar eg sá sýn- 'na. Hann var svo bjartur. Mér fannst sem eg sæi eðlilega alla andlitsdrætti eins og á öðrum mönnum, en bara þessi yndis- leikur og ósegjanlegur ljómi. Þegar hann var mér hor'finn, var eg í þann svipinn frískur og fór á fætur og til vinnu, reyndi þó ekki að ganga hækjulaus. Hélt eg með sjálfum mér, að eg væri feigur. — Svaf eg svo um nótt- ina, þó ekki vel, því líkast var því, sem eitthvað vildi stríða á mig. Um morguhinn fór eg á fætur, var þó fremur máttlítill. Gekk eg til a^ltaris hjá presti Elliheinfilisins sóra S&gurbirni Á. Gíslasyni, ásamt 22 öðrum um kl. 10.30. Þegar búið var að útdeila grét eg, en man ekki til að eg hafi grátið í mörg ár.” (Hér spurði eg séra Sigurbjörn: “Varst þú var við óvenjulega geðshræringu hjá Gísla við alt- arisgönguna?” Séra Sigurbjörn svarar: “Eg tók eftir að hann þeraaði tárin af augum sér). “Þó var mér eiginlega miklu léttara í huga,” hélt Gísli áfram, “enda hefir mér æfinlega fundist alt- arisgangan svala mér. Eg hefi mikla trú á altarisgöngunni og í þetta skifti, eins og raunar alt- af, var eg með það í huga að fela mig Guði og mæta Kristi. Hefi eg verið fimm sinnum til alt- aris síðan á nýjári. Eftir altaris- gönguna var sem eg hefði feng- ið hugfró, fann þó ekki að hönd- iin réttist eðia fóturinn missti þrautir. Lagðisl? eg upp í rúmið mitt þegar útvarpsguðþjónusta frá Fríkirkjunni, þar sem séra Árni Sigurðsson átti að prédika, hófst. Eg hlustaði á fyrsta sálm- inn, sem sungin var — og þegar fram í ræðuna kom, bað her- bergisfélagi minn, sem er blind- ur, mig að hækka útvarpið. (Þessi blindi maður heitir Björn Jónsson faðir Péturs skipstjóra sem var á Dettifossi. Var Björn einn í hópi þeirra 6, sem sáu sýnina í borðstofu Elliheimilis- ins fyrir ófriðinn og staðfesti hann það í viðtali við mig og séra Sig. Á. Gíslason. Fór eg fram úr, því eg var því vanur og þá fann eg, að eg var venju fremur með mikinn storm í höfðinu. Gekk eg fram fyrir rúmið mitt, hækka útvarpið, sit svo á “varkinum,” sem þar er, á meðan þessi orð eru sögð, að Frelsarinn sé altaf að lækna og geri það enn 1 dag. Þá leit eg til himins og bað föður, son og heilagan anda að líta til mín í Drottins Jesú Krists blessaða náðarnafni. Þessi orð hafði eg yfir um leið og eg leit til himins. Þá finn eg allt í einu að storm- urinn á höfði mér fer að lin- ast. — Þegar þar að kemur, að guðsþjónustan líður á enda, syng eg undir með ávarpinu síðasta sálminn: “Víst ertu, Jesú, kong- ur^klár,” og held eg að lækning- in hafi gerst (fullkomnast( með- an verið var að syngja og eg sjálfur söng með. Sálmurinn ver ekki á enda, þegar kallað var í kaffi, en eg fór ekki fyrr en hann vár búinn. En þegar eg stend upp og legg af stað, finn eg, að eg þarf ekki að taka í rúmið til stuðnings eins og vant er, og finn engar þrautir, og rétt eftir geng eg hækjulaus og staf- laus upp um alla stiga í húsinu, þrautalaust, og hendur mínar voru heilar og fingur allir rétt- ir, en þeir höfðu árum saman verið krepptir. Ennfremur var sárið á líkama mínurn, sem hafði verið svo þrálátt, algróið og er á því fallegur holdslitur. En þessu tók eg fyrst eftir tveim eða þrem dögum seinna. Tilfinn- ingarnar sem ríkastar eru í sál minni, segir Gísli, “eru fögnuð- ur og þakklæti t^il Guðs. Því í sál hans er engin efi um það, að hér hafi honum komið hjálp að ofan. Gísli minnir mig á lækn- uðu mennina á dögum Krists, þá sem Jesús Kristur gaf aftur heilsu og líf, — þá þeirra, sem áttu þrá eftir því að segja öðr- um fagnandi frá því, sem gerzt hafði og gefa Guði dýrðina. “Mér finnst eg helzt altaf þurfi að vera að syngja sálma,” sagði Gísli, “og lofa Guð.” — “Eg hefi nú bara,” segir hann, “hugsað, síðan þetta gerðist, að eg ætti stutt eftir.” “En nú kvíðir þú ekki fyrir því að fara héðan?” — “Nei, — Nei, nei! — Eg fagna því af öllu hjarta og hlakka inni- lega til. Þó eg ætti að deyja í dag, er eg rólegur.” En mér líð- ur nú svo yndislega vel og hefi svo góðan svefn, að líðan mín getur ekki verið betri, en hún er nú.” — “Hefir nokkur læknir séð þig síðan þetta gerðist?” “Já,” sagði Gísli. “Þar á meðal Matthías.” “Sagði hann nokkuð við þig um þetta sem gerzt hefir?” — “Nei, eiginlega ekki. En hann bað mig að fara vel með hinn nýja styrk, sem eg hefði fengið og hvaddi mig hlýlega.” Eg veit ekki hvað læknar vor- ir kunna að segja um þenna at- burð. Þegar þetta er ritað, þá hefi eg ekki átt tal við neinn þeirra um hann. — Eg sá Gísla einu sinni á ganginum í Elli- heimilinu meðan hann var sjúk- ur og öllum hinum rnörgu, sem sáu þenna krossbera, blandást ekki hugur um, að breytingin er svo stór, að því geta í raun og veru engin orð lýst. “Ástandið var ekki allt,” sagði Gísli við mig um- heilsu sína. “Það er óhætt að segja. Mér datt aldrei í hug að eg fengi lækning, nema ef almættið liti til mín í náð sinni.” Eg hygg, að enginn, sem kem- ur til Gísla og talar við hann um hið mikla hamingjuefni hans, fari frá honum ósnortinn, Eg hygg ennfremur, að varlega ætti að fara í það að rengja frásögn hans um þessa undursamlegu reynslu hans. Maðurinn sjálfur og alt sem hann segir, ber þann blæ, að auðvelt er að ganga úr skugga um, að hann.er eins og saklaust barn, hjartahreinn og einlægur. Hefir allt þetta, sem gerzt hefir í sambandi við hann, haft sterk trúarleg áhrif á hann. Þessi lækning Gísla, sem gagn- tekur hjarta hans gleði og þakk- læti og nú veldur því að hann horfir trúaraugum til himins hverja stund — mun vissulega beina sjónum margra í hæðir. En hún er ekkert einsdæmi ýg þótt menn réyndu að sanna, að Guð hefði ekki komið honum til hjálpar á þann hátt, sem hann lýsir hjálpinni, þá er það eigi að síður víst, að kraftaverkin ger- ast enn þann dag í dag. Innan íslenzku kirkjunnar hefir á und- anförnum árum og öldum gerzt margt undursamlegt, einnig á sviði lækninga, sem ekki hefði farið fram — ef hjálp Guðs hefði ekki komið til. Flest af því ligg- ur í þagnargildi, eða er aðeins á vitorði fárra manna. Hygg eg, að margir, ef ekki flestir prestar landsins, hafi frá merkilegri reynslu að segja í þessu efni úr starfi sínu — og fjöldi annara einstaklinga. Þessir atburðir, um undursamlega lækningu og aðra hjálp frá Guði á erfiðustu stundum lífsins fyrir bæn, eins eða fleiri samtímis, eða við sér- stakar lækningaguðsþjónustur (sbr. lækninga - guðsþjónustur enska prestsins, Dr. Lesslie Weatherhead) eru enn að gerast víðsvegar um heiminn. — Það er alkunnugt, hve oft hefir brugð- ið til bata í heilagri skírn á veik- um börnum, eða við bæn fyrir sjúkum í almennum guðsþjón- ustum. Og því er fullkomlega óhætt að treysta, að bænin og trúin við sjúkrabeðinrt flytur fjöll enn þann dag í dag, og mun svo verða meðan sárum sært mannkyn horfir til himins og bænirnar stíga upp um líkn í þraut. Sigurgeir Sigurðsson. —Kirkjublaðið, 12. nóv. 1945. WASHINGTON (Frh. af bls. 2) bækur um hann sjálfan. — Aftur 'á móti kom eg í “The National Museum,” þar sem gamlir og nýir meistarar tala til manns í litum og línum frá ótal veggjum, og saman eru komin kynstrin öll af gyipum náttúrufræðilegs, landfræðilegs og menningar- sögulegs eðlis. — Ekki vil eg skiljast svo við þessi fátæklegu orð um Wash- ington, að eg minnist ekki á þá byggingu, sem víðfrægust er og sögulegust af þeim öllum: Hvíta húsið. — Ekki auðnaðist mér þó að koma þar inn, því síðan stríð- ið brauzt út hafði engum óvið- komandi verið hleypt þar inn fyrir dyr, og þeirri varúðarráð- stöfun var enn ekki af létt, þegar eg var í Washington, enda þó friður væri kominn á. En það bannaði mér enginn að horfa þangað heim, og við frú Per- kins gengum í kringum staðinn eins og börn í kringum jólatré, gættum þess að koma ekki of nærri, svo að við “brenndum okkur ekki á ljósunum.” Hvíta húsið stendur við höf- uðgötu borgarinnar — Pennsyl- vaníu Avenue — og 16. stræti. Höfuðeinkenni þess er tiginn einfaldleiki. Það* er 170 fet á lengd og 86 fet á breidd, tvær hæðir, aUk riss. Byggingarmeist- arinn, sem reisti húsið, var James Hoban, og sneið hann húsið mjög eftir höll hertogans af Leinster, nálægt Dublin á Ir- landi. Washington sjálfur lagði að því hornsteininn 13. okt. 1792 og lifði það, að sjá bygginguna fullgerða. Það er sagt, að hann hafi gengið í gegnum sali þess og herbergi ásamt konu sinni fáum dögum fyrir andlátið 14. des. 1799. — John Adams var fyrsti forsetinn, sem bjó þar. Hann varð forseti 1797 og bjó í húsinu síðasta forsetaár sitt, árið 1800. — Árið 1814, á forseta- árum Madisons, kveikti brezkur herflokkur í húsinu, og brann það þá allt, nema múrveggirnir. Þegar það var endurreist, voru veggir þess málaðir hvítir, til þess að hylja merki eldsins. Þetta réði nafngift þess, enda hefur það æ síðan verið málað hvítt. — Eg fór frá Washington að kvöldi hins 7. sept. og lagði leið mína til suðurs. Um það er önnur saga, en í dimmunni þá nótt orti eg kvæðið um mána- blómið hennar frú Mekkín: Langt er til landa í suðri, en lengra til Washington. Þangað eg kom í þurrki, Þórhallur Ásgeirsson. Æ, manstu nú ekki hana Mekkín og mánablómið hvítt, sem grær í garðinum hennar með gullhár furðusítt? Það sefur á daginn og dreymir, unz dimmán úr austri fer. Það er brúður hins bleika mána, blessaðir verið þér. Hún Mekkín á mánarblómið. Margt býr í Washington. Þaðan eg sneri þögull, Þórhallur Ágeirsson. —Vísir, 29. jan. TIL Þ. K. K. \ Leirflekkóttann ljóða stert, leiði eg alveg hjá mér. Allir telja einskis vert, alt, sem kemur frá þér. S. Guðmundsson. En hvað fólkið er kyrrlátt úppi á loftinu hjá ykkur. Eru einhver veikindi hjá því ? Nei, þau eru alltaf syona hlóð- lát. Þegar hann bað hennar, sýndi hann henni demantshring og sagði: “Ha ?” og hún svaraði: “Uhu !” Business and Professional Cards DR. A. V. JOHNSON DR. A. BLONDAL Physician and Surgeon Dentist 602 MEDICAL ARTS BLDG. 506 SOMERSET BUILDING Slmi 93 996 Telephone 97 932 Heimili: 108 CHATAWAY Home Telephone 202 398 Sími 61023 Talstmi 95 826 Heimilis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN Dr. S. J. Jóhannesson Sérfræöingur í augna, eyrna, nef 215 RUBY STREET og kverka sjúkdómum. 704 McARTHUR BUILDING (Beint suður af Banning) Cor. Portagre & Main Stofutími 4.30 — 6.30 Talsími 30 877 Viðtalstími 3—5 eftir hádegi Laugardögum 2 — 4 DR. ROBERT BLACK \ DR. E. JOHNSON Scrfrœðingur í augna, eynna, nef og hálssjúkdómum. 416 MEDICAL ARTS BLDG. 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 93 851 Office hrs. 2.30—6 p.m. Heimasími 42 154 Phones: Office 26 — Res. 230 EYOLFSON’S DRUG Office Phone Res Phone PARK RIVER, N. DAK. 94 762 72 409 islenzkur lyfsali Dr. L. A. Sigurdson Fólk getur pantað meðul og 116 MEDICAL ARTS BLDG. annað með pósti. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. Fljót afgreifSsla. ánd by appolntment A. S. B A R D A L Drs. H. R. and H. W. 848 SHERBROOK STREET TWEED Selur llklcistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. Skrifstofu talsiml 27 324 Y Heimilis talsími 26 444 PHONE 96 952 WINNIPEG Phone 31 400 DR. J. A. HILLSMAN Electrical Appliances and Surgeon Radio Service Furniture and Repairs Morrison Electric 308 MEDICAL ARTS BLDG 674 SARGENT AVE. Phone 97 329 PCINCE// Dr. Charles R. Oke MESSENGER SERVICE Tannlœknir Við flytjum kistur og töskur, For Appointments Phone 94 908 húsgögn úr smærri íbúðum, Office Hours 9—6 og húsmuni af öllu tæi. 404 TORONTO GEN, TRUSTS 58 ALBERT ST. — WINNIPEG BUILDING Sími 25 888 283 PORTAGE AVE. C. A. Johnson, Mgr. Winnipeg, Man. TELEPHONE 94 358 Legsteinar, sem skara fram úr. H. J. PALMASON Úrvals blágrýti og Manitoba marmari. and Company Skrifiö eftir veröskrá Chartered Accounta-nts Gillis Quarries, Limited 1101 McARTHUR BUILDING 1400 SPRUCE ST. SIMI 28 893 Winnipeg, Canada Winnipeg, Man. Phone 49 469 J. J. SWANSON & CO. Radio Service Specialists LIMITED ELECTRONIC LABS. 308 AVENUE BLDG WPG. H. THORKELSON, Prop. Fasteignasalar. Leigja hús. Út- The most up-to-date Sound vega peningalán og eldsábyrgð. Equipment System. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. 130 OSBORNE ST., WINNIPEG PHONE 97 538 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Andrews, Andrews, Keystone Fisheries Thorvaldson and Limited Eggertson 404 SCOTT BLOCIC SlMI 95 227 Lögfrœöingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG. Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH Portage og Garry St. Sími 98 291 Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj. Verzla 1 heildsölu með nýjan og frosinn fisk. 303 OWENA STREET Skrifsrt.slmi 25 355 Heima 55 462 u HAGBORG ff il FUEL co. n GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting • Dial 21 331 noF11) 21 331 60 VICTORIA ST., WINNIPEG Phone 98 211 y Manager T. R. THORVALDSON Your patronage will be appreciated Argue Brothers Ltd. CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. Real Estate, Flnancial, Insurance J. H. PAOE, Managing Director LOMBARD BLDG., WINNIPEG Wholesale Distributors of Fresh J. Davidson, Representative and Frozen Fish. Phone 97 291 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.