Lögberg - 25.04.1946, Page 7

Lögberg - 25.04.1946, Page 7
LÖGBERG. FIMTUDAGLNN 25. APRÍL, 1946 7 DÁNARMINNING Stefán Hallson Stefán Hallson, bóndi að Oak View P.O., Man., andaðist að heimili sínu þann 3. apríl sJ. eftir allanga vanheilsu. Stefán var fæddur að bænum Hrærekslæk í Hróarstungu í Norður-Múlasýslu 20. apríl árið 1888 og var sonur Eiríks bónda Hallssonar, á Hrærekslæk og konu hans Önnu Jónsdóttiu:. Var hann fyrst með foreldrum sín- um en flutti til Ameríku seytján ára að aldri. Dvaldi hann fyrst nokkur ár í Lundarbygðinni unz hann kvæntist árið 1917 Unni Jónsdóttur Hörgdal. Fluttu þau þá á eignar bújörð sína að Oak View og þar bjó hann ásamt fjöl- skyldu sinni til æfiloka. Þeim hjónum varð sex bama auðið, sem lifa föður sinn, ásamt móður sinni. Þau eru þessi: (1) Gísli Byron; (2) Sigurður Páll; (3) Sæmundur Reginald; (4) Stefán Harold; (5) Anna Ei- ríka; (6) Hazel Jónína. ,011 eru þessi börn hin mann- vænlegustu. Þau eiga öll heim- ili hjá móður sinni, þótt sum þeirra stundi ýmsa atvinnu í Winnipeg. Stefán sál. var af öllum álit- inn hinn mesti heiðursmaður í hvívetna, er ekki vildi vamm sitt vita. Hann var hraustmenni með an honum entist heilsan og ó- trauður til starfa enda búnaðist honum vel þrátt fyrir nokkuð þunga ómegð. Þegar við horf- um yfir landið sem þessir hnignu eða hnígandi landnemar og frum- byggjar ræktuðu og heimilin, sem þeir reistu, fer okkur að skiljast hversu þýðingarmikið og þjóðnauðsynlegt þeirra starf hef- ir verið. Þeir sáðu en við upp- skerum, þeir bygðu en við njót- um. Með starfi sínu og fram- komu hafa þeir áunnið Islending- um heiðurssæti í hópi hinna f jöl- ættuðu innflytjenda svo nú þyk- ír það hvervetna sómi að teljast íslendingur. Þeirra vegna er ætt'landsins að góðu getið víða um Vesturheim. Þeir voru brautryðjendur, sem báru sigurmerki fórnfósrar starf- semi inn í landnámsbygðirnar. Þeir voru mennirnir, sem kyntu sig og þjóðflokk sinn að ráð- vendni, atorku og framfara á- huga. Þeir veltu mörgum stein- inum úr vegi fyrir æskuna og þeir breyttu villimörkinni í vel- sældar sveitir. Saknaðar tóm- leikinn grípur menn við hinzta legstað þessara starfsömu braut- ryðjendanna. Nágrennið verður fátæklegra þegar góður nágranni og velvirtur hverfur af leikvelli jarðlífsins þótt vonin og trúin bendi til hins nýja landnáms ein- hversstaðar guðs í geim, þar sem ný og ennþá glæsilegri störf bíða starfsmannsins. Stefán sál. var til grafar bor- inn frá bygðarbirkjunni að Vog- ar þann 7. apríl s.l. að viðstöddu miklu fjölmenni vina og ná- WORIO FOOÐ EMERGENCV A serious shortage of food in certain areas of the world was expected, but crop failures in many areas, and lack of distribution facilities, seeds, and tools in others crea- ted a food shortage of alarming proportions. Only im- mediate deliveries of staple foods can sustain the hungry millions. PRODUCE AND SAVE - MORE Since 1939, our per capita record of food exports has exceeded that of any other country. Food production has soared. Canadians have eaten well in spite of war. Today, the seriousness of the world’s food situation calls for even greater efforts. We can increase our food ship- ments and still have enough for our needs. \ # , THIS IS WHAT WE CAN DO We can ship more WHEAT, FLOUR, MEATS, CHEESE and EGGS if as great quantities as possible are made available for shipment during the next four months. PRODUCERSI — DELIVER TO MARKET. CONSUMERSI — BUY LESS OF THESE FOODS — BUY ONLYFOR IMMEDIATE NEEDS—WASTE NOTHING — PLANT A GARDEN — SUBSTITUTE VEGETABLES FOR AS MANY OF THESE VITAL FOODS AS YOU CAN. This will increase supplies at storage depots, thus freeing additional needed foods for the world’s hungry. There can be no permanent prosperity for us . . ,,or anyone . . . while hunger and despair afflict large areas of the world. granna þrátt fyrir óhagstætt veð- ur og illa vegi. Séra H. E. John- son jarðsöng. Guð blessi minningu þessa mæta manns og gefi að fyrirdæmi hins umhyggjusama föðurs og góða granna verði bæði niðjum hans og nágrönnum hvöt til góðra dáða. Ekkjunni og öðrum ástvinum er sár harmur kveðinn við fráfall þess er kvaddi þetta líf, að manni virðist fyrir aldur fram. Þakklætið ætti þó að verða ennþá meira að njóta samvist- anna svona lengi við trúlyndan eiginmann, ástríkan föður og á- gætan nágranna. H. E. Johnson. KARLAKÓRINN syngur í Goodtemplara- húsinu 6. maí, 1946 Karlakórinn hefir nú verið starfandi í full tuttugu ár. Hann hefir átt sterkan þátt í viðhaldi (íslenzkrar þjóðræknisstarfsemi, vestan hafs, með kynning ís- lenzks ljóðs og lags; hefir oft getið sér góðan orðstýr og skemt þúsundum manna með hljóm- leikum sínum, og samkomum ár- lega. Og þrátt fyrir það þó Karlakórinn hafi ekki uppfylt allar þær kröfur, sem listin heimtar, þá hefir hann viðhald- ið og eflt félagsviðleitni vor á meðal og verið sterk stoð ýmsum félagslegum samtökum meðal ís- lendinga hér í landi. Kórinn hefir átt við. ýmsa erfiðleika að stríða, sérstaklega síðustu árin, og stundum legið við, að hann hafi ekki getað hald- ið uppi starfi sínu, sökum þess hve margir meðlimir kórsins voru kallaðir í stríðið. En það hefir ekki verið gefist upp. Kór- inn hefir barist góðri baráttu og haldið í horfinu, með stuðning samlanda sinna. Mundi eflaust margur sakna vinar í stað, ef Kórinn hætti að starfa á sviði söngmálanna. 1 vetur hefir Kórnum aukist mikill styrkur, frá gömlum og inýjum félögum, sem komið hafa í Kprinn aftur. Hefir því Kór- inn von um að geta starfað með fullum krafti og betri árangri næsta vetur, með endurnýjuð- um krafti og áhuga. Að þessu sinni efnir kórinn til skemtisamkomu í Goodtemplara húsinu, mánudagskvöldið þann 6. maí næstkomandi. Gefst fólki þar tækifæri að heyra hann enn og fullvissast um að engin dauða- mörk eru yfir honum. Á sam- komu þessari verður margt til skemtunar, og mim eg ekki telja það alt hér, því sérstök auglýs- ing um það verður í blöðimum. Þó má geta þess, að sú nýjung verður þarr að sungnar verða gamanvísur eftir Ragnar Stef- ánsson, sem hitta vel markið og koma mörgum til að hlæja. Að öðru leyti vísa eg til aug- lýsinga, sem birtar verða í blöð- unurn. Aðgöngumiðar kosta að- eins 50 cent, og fást hjá öllum Karlakórsmeðlimum og Bjöms- son’s Book Store, 702 Sargent Ave. Fjölmennið á samkomu Karla- kórsins 6. maí. Þið gjörið með því tvennt í senn: styrkið starf kórsins í framtíðinni, og verðið aðnjótandi skemtunar, sem þið munuð minnast með gleði. D. B. Þriggja marka drengur fæðist hér í bænum og dafnar vel Minsta barn, sem mun hafa fæðst á íslandi, ól frú Sigríður Gunnarsdóttir, Vesturgötu 10 hér í bæ. — Það var 31. maí s.l. sem frú Sigríðulr fæddi sveinbarn, sem var tæpar þrjár merkur. Ljósmóðir barnsins var frú Helga Níelsdóttir og læknir frú Kristín ólafsdóttir. — Drengur- inn fæddist um það bil þrem mánuðum fyrir tímann. — Hann var 700 grömm að þyngd. — Vantaði því 50 grömm á til þess að hann væri þrjár merkur. — Hann var 36 cm. á lengd. Frú Helga Níelsdóttir skýrði blaðinu svo frá í gær, að þetta mundi vera minsta barn, sem fæðst hefir á íslandi, svo að vitað sé. Þegar drengurinn fæddist var hann lagður í bómull, sagði frú Helga, og olía borin á líkama hans.— Gekk svo lengi, að barnið var eingöngu þvegið upp úr olíu. Þá var fengin frjóstmjólk handa drengnum utan úr bæ. Neytti hann hennar eingöngu í 2 og hálf- an mánuð og var þá orðinn 10 merkur. Þaðer sjaldgæft, að svona lítil börn fæðist. Eg vann við fæð- ingardeild við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn árið 1926—27, segir frú Helga. Þar kom einu sinni slikt fyrir. Það voru tví- burar, sem fæddust, drengur og stúlka. Annað þeirra var 3 merkur og 100 grömm, en hitt 4 merkur. Þau voru fædd 10 vik- um fyrir tímann. — Er ekki vandfarið með svona börn? — Vissulega er það. — Þau hjónin frú Sigríður Gunnars- dóttir og maður hennar Guðjón Jóhannesson, sem er verkamað- ur hjá Eimskip, hafa sýnt ár- vekni og dugnað. Þau fóru al- gjörlega eftir þeim fyrirmælum, er voru gefin. Þau geta vel verið hreykin af þessum dreng, því hann er stórmyndarlegur. Tíðindamaður blaðsins fór heim til þeirra hjónanna um dag- inn. Lá þá drengurinn í rúmi sínu og var hinn sprækasti. Gat móðir drengsins þess, að hánn hefði dafnað vel og verið skírður, er hann var 6 vikna: Sigurður G/Uðjónsson. — Þegar hann var tæjlega 7 mánaða, fékk hann kíg- hóstann. — Átti hann í honum í 7 vikur, og var mikið veikur. Þá var hann orðinn 26 merkur. Þetta er 8. barn þeirra hjóna. Þar af eru 4 á lífi, tvö uppkomin, piltur og stúlka, 5 ára drengur og Sigurður litli. Mbl., 21. febrúar. ÍSLENZK LISTAKONA FÆR GÓÐA DÓMA í tilefni af málverkasýningu ungfrú Nínu Tryggvadóttur í New York fyrra hluta nóvember 1945, birtu mörg blöð gagnrýni á list hennar, og fer hér á eftir út- dráttur úr ummælum merkustu blaðanna: The Times— íslenzk listakona, Nína Tryggvadóttir, sýnir um þessar mundir hálf-expressjóniskar og hálf-abstrakt myndir, karlmann- lega gerðar, í New Art Circle. Svo öflugar eru myndirnar, að það er erfitt að hugsa sér að þær séu verk listakonunnar sjálfrar, sem er ung, ljóshærð stúlka. Verkin bera vitni um sjálfstæð- an listasmekk og persónulega af- stöðu til viðfangsefnanna. Herald Tribune— R Nína Tryggvadóttir, íslenzk listakona, sem komin er hingað til lands til að þroska hæfileika sína, sýnir nýlega olíumáiverk sín í New Art Circle. Hún byggir myndir sínar upp með einföldum formum . . . og bera þær vitni um hæfileika til að skapa hálf- abstrakt mynztur . . . auðlegð í litameðferð ber listasmekk henn- ar gott vitni. Art News— Sýning Nínu Tryggvadóttur á 'landslagsmyndum,—kyrramynd- um og lifandi verum lofar góðu um framtíð hennar. Hún hefir unnið í Kaupmannahöfn og París og lært að nota aðferðir kúbisma og frumstæðrar listar í röskleg- um, stuttaralegum samstilling- um. Ann hún mjög löngum pensilstrykum og grófgerðum flötum í óvæntum litum . .'. Hún sýnir frumleg tök á efninu og ó- venjulega tilfinningu. Art Digest— íslenzk stúlka, Tryggvadóttir, sýnir málverk í New York Art Circle í New York. . . . Á sýn- ingunni gætir mest abstraktra og hálf-abstraktra mynda af líf- verum og kyrralífi. Hún er ekki rög við litina, notar þá óspart og þó viturlega, skapar rúm og form með djörfum pensilstrikum. Lit- irnir . . . eru ýmist fínlegir eða í hörkulegri mótsögn. Forstjóri sýningarskálans, J. B. Neumann, getur þess að íslenzka ríkið hafi kostað listakonuna til náms hér í dandi. — B. W. The New Yorker— .... Og rétt til að sýna ykkur hve listaheimurinn er stór, má geta þess að í New Art Circle er sýning á málverkum íslenzkrar stúlku, sem heitir Nína Tryggva- dóttir, og er nýlega komin hing- að. Þó að verk hennar eigi að mörgu skylt við forystumenn þýzka expfessjónismans, þá get- ur þarna að líta hófsemi í tilfinn- ingum, sem eg ímynda mér að sé norrænt einkenni. Þegar þess er gætt að hér er um fyrstu sýningu að ræða, þá verð eg að segja að hún gefur mjög góðar vonin — v • Robert M. Coates. The New York Times flutti 27. des. s.l. langa og fróðlega grein um Háskóla Íslands undir fyrir- sögninni “Háskólanám kostar ÍS- lendinga 2 dollara.” Er þar sagt frá starfstilhögun háskólans og happdrætti hans og loks minst á nám íslenzkra stúdenta vestan hafs. Greinin er eftir fréttaritara fréttastofunnar Associated Press í Reykjavík. —Vísir 30. jan. SPARIÐ/ PERTH’S Geymsluklefar loðföt yðar og klæðis- yfirhafnir PHONE 37 261 Eftir trygðum ökumanni PERTH’S 888 SARGENT AVE. Clever Spring Coiffures AT OLD LOW PRICES Here are some of the most sensational beauty values ever offered to the women of Win- nipeg ... you’ll be wise to take advantage of them at once! Cream Oil Wave PERMANENT Regular $5.00 Value including Shampoo and Smart New Hairdo OUR LEADER Feather Bob Special •50 Includes Shampoo and Set Ladies’ and Children’s Personality Hairculling by Nu-Fashion Experis PHONE 97 703 Shampoo and New Style FIHGER WAVE Smartest Halr-Do in town. 60c COLD WAVES are given scientifically and with the greatest skill by our special- ized staff of profes- sional operators. OPEN ALL DAY SATURDAY No Appointment Necessary Wlnnlpeg’s Leadlng Permanent Wavers IVr-FASHION 18 Professional Operalors — 327 Portage — Opp. Eaton's Innköllunarmenn LÖGBERGS Amaranth, Man. ........... B. G. Kjartanson Akra, N. Dak. B. S. Thorvarðson Árborg, Man ........... K. N. S. Fridfinnson Árnes, Man. .................. M. Einarsson Baldur, Man................... O. Anderson Bellingham, Wash. .........Árni Símonarson Blaine, Wash.............. Árni Símonarson Cavalier, N. Dak. B. S. Thorvarðson Cypress River, Man...................... O. Anderson Churchbridge, Sask S. S. Christopherson Edinburg, N. Dak Páll B. Olafson Elfros, Sask. Mrs. J. H. Goodmundson Garðar, N. Dak. Páll B. Olafson Gerald, Sask. C. Paulson Geysir, Man. K. N. S. Friðfinnson Gimli, Man. O. N. Kárdal Glenboro, Man ................ O. Anderson Hallson, N. Dak............ Páll B. Olafson Hnausa, Man.............K. N. S. Fridfinnson Husavick, Man. .............. O. N. Kárdal Langruth, Man. .......... John Valdimarson Leslie, Sask. Jón Ólafsson Lundar, Man.................... Dan. Lindal Mountain, N. Dak. Páll B. Olafson Point Roberts, Wash. S. J. Mýrdal Riverton, Man. ...... K. N. S. Friðfinnson Seattle, Wash. J. J. Middal Selkirk, Man. Mrs. V. Johnson Tantallon, Sask............. J. Kr. Johnson Vancouver, B.C. F. O. Lyngdal Víðir, Man. K. N. S. Friðfinnson Westbourne, Man. Jón Valdimarson Winnipeg Beach, Man. O. N. Kárdal

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.