Lögberg - 06.06.1946, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINM 6. JNÚÍ, 1946
8
“Hvergi ánægjulegra að vera
náttúruskoðari en á íslandi”
Dr. Sigurður Þórarinsson segir
frá ferðum sínum og
öskulagarannsóknum
I sumar er leið mátti sjá grann-
vaxinn mann með rauða prjóna-
húfu á höfði, sveitast við að
grafa holur niður í jörðina á
hinum ótrúlegustu stöðum úti
um land. Það hefði í fyrstu get-
að hvarflað að kunnugum, er
sáu til ferða þessa manns, hvort
þar myndi kominn einn þeirra
álfa er þjóðsögurnar segja að
,gengið hafi ljósum logum héx* *
fyrr á öldum. Svo var þó eigi.
Þessi^ maður var Sigurður Þór-
arinsson jarðfræðingur í ákafri
leit að gömlum öskulögum. Eins
og kunnugt er hóf hann ösku-
lagarannsóknir sínar á árunum
fyrir stríð. Skrifaði doktorsrit-
gerð um þær í Svíþjóð á stríðs-
árunum og tók svo til óspilltra
málanna þar sem fyrr var frá
horfið þegar hann kom heim til
fslands í stríðslok.
Þjóðviljinn hefur beðið hann
að segja frá rannsóknum sínum
sl. sumar og fer frásögn hans hér
á eftir:
— Aðaltilgangurinn með ferð-
um mínum í sumar um landið
var að halda áfram þeim rann-
sóknum á öskulögum í íslenzkum
jarðvegi sem við Hákon Bjarna-
son höfðum unnið að sumurin
fyrir stríðið og byggja upp ösku-
lagatímatal (tefrokranologi) fyr-
ir ísland. Doktorsritgerð mín er
eg varði við háskólann í Stokk-
hólmi vorið 1944 var byggð á
þesum rannsóknum og var aðal-
efni hennar að reyna að sanna
að byggðin í Þjórsárdal hefði
eyðst af gosi úr Heklu eða Hekl-
usvæðinu sumarið 1300.
Öskulag það, sem þá myndað-
ist er Ijóst að lit, þ. e. líparítaska,
og teljum við Hákon að það sé
sama lag og finna má í jarðvegi
víðast um norðurland. Má telja
fullsannað, að um vesturhluta
Norðurlands er um sama öskulag
að ræða, í Þingeyjarsýslum þarf
nákvæmari rannsókn en hingað
til hefur verið gerð til þess að
úr því verði skorið með vissu,
hvort efsta ljósa lagið er hið
sama og í vestursýslunum.
Byggðin á Hrunamannafrétti
eyddist af sama gosi og
Þjórsdalur.
— Þar er ráða má af útbreiðslu
öskulagsins sem eytt hafði Þjórs-
árdal að það hefði lagst þykkt
yfir Hrunamannaafrétt lék mér
hugur á að athuga hvort byggð
sú er þar var til forna hefði sætt
sömu örlögum og Þjórsárdalur.
Eftir að hafa skroppið upp í
Þjórsárdal seint í júní, og athug-
að öskulögin þar að nýju, fór
eg upp á Hrunamannaafrétt og
hafði til fylgdar Guðna bónda á
Jaðri. Við athuguðum m. a. rúst-
irnar á Laugum og Þórarins-
stöðum og sýndi það sig, að bær-
inn á Þórarinsstöðum var hul-
inn sama vikurlagi og huldi bæ-
inn á Stöng og að rústirnar voru
álíka vel varðveittar. Fræddi eg
Kristján Eldjárn frænda minn á
þessu er eg kom til Reykjavík-
ur> og fór hann ásamt nokkrum
sjálfboðaliðum og éróf upp bæj-
arrústirnar síðar um sumarið,
naeð ágætum árangri. Má nú
telja nær fullsannað, að þessi
bær og að líkindum fleiri bæir
þarna hafi farið í eyði samtímis
og Þjórsdalur, eða árið 1300, ef
tímatal mitt er rétt.
Um miðjan júlí fór eg snögga
ferð til Norðurlands í öskulaga-
rannsóknir. Eg komst ekki aust-
ar en í Fnjóskadal og á því eftir
að fyigja ljósa laginu um mest-
311 hluta Þingeyjarsýslna.
Gosið árið 1300 kom úr Heklu-
toppi eða Sauðafellsvatni.
— Eins og eg áður nefndi, er
vitað að ljósa öskulagið sem
eyddi Þjórsárdal er frá Heklu-
svæðinu, en eftir var að athuga
hvort það væri úr toppgígum
Heklu eða öðrum gígum. Á
Heklusvæðinu er, sem eðlilegt
er, fjöldi öskulaga, bæði ljósra
og dökkra, og létt að rugla þeim
saman ef ekki er vel að gáð. Eg
fór í sumar hringferð kringum
Heklu, frá Landi upp í Land-
mannahelli, þaðan yfir Laugar
og Torfajökul niður á Þórsmörk
og svo upp um Rangárvelli. Á
þessari ferð sannfærðist eg um
að ljósa öskulagið sem eyddi
Þjórsárdal er ekki komið austan
frá Torfajökulssvæðinu, eins og
sumir hafa getið sér til. Upptök
þess eru annaðhvort í Heklu-
toppi eða Sauðafellsvatni, sem
liggur um 7 km. norður—norð-
austur af Heklutindi. I kring-
um Sauðfellsvatn eru tvö ljós
lög ofarlega í jörðu, eru þau
geysiþykk. 1 Ófærugili eru þau
tveggja til þriggja metra þykk
og í því efsta finnast vikur-
kögglar sem eru um hálfur metri
í þvermál. Geta því gosstöðv-
arnar ekki verið þar langt frá,
en austur af Bjöllum, nær miðja
vegu milli Heklutinds og Sauða-
fellsvatns, hafa fallið ennþá
stærri vikurstykki og getur því
alveg eins verið að gosið hafi
komið úr Heklutoppi. Verður
ekki fyllilega úr þessu skorið
nema með nánari rannsókn.
Rannsókn á
afbrotum öræfajökuls.
— Fórstu ekki fleiri rannsókn-
arferðir í sumar?
— Þann 10. ágúst flaug eg til
Hornafjarðar og fór síðan land-
veginn vestur yfir Skaftafells-
sýslur.
— Hver var tilgangur þeirrar
farar?
— Sú ferð var farin bæði til
að athuga breytingar þær sem
orðið hafa á jöklunum síðan
eg dvaldist austur þar 1936--
1938, og svo til að athuga ösku-
lög, einkum öskulög frá Öræfa-
jökli. — í fylgd með mér var
Þórhallur Þorgeirsson banka-
maður og var hann mér góð
hjálp við öskulagarannsókninn-
ar.
— Hvað hefurðu svo um Ör-
æfajökul að segja?
— Öræfajökull hefur gosið
tvisvar í stórum stíl síðan sögur
hófust. Hið fyrra gosið var um
miðja 14 öld og er talið að þá
hafi Litla-hérað og Ingólfshöfða-
hverfi lagzt að mestu í eyði. Síð-
ara gosið var 1727 og olli mikl-
um skaða í Öræfum. Um alla
Skaftafellssýslu má ofarlega í
jarðvegi sjá ljóst vikurlag. Við
Hákon höfðum talið sennilegt að
það væri frá gosinu 1727, en at-
huganir mínar í sumar sýndu að
svo er ekki. Þetta ljósa lag er
frá gosinu um miðja 14. öld. Eru
margra metra þykkir skaflar af
þessum vikri sums staðar í Öræf-
um, og er gosið áreiðanlega eitt
hið allra mesta öskugos sem orð-
ið hefur hér síðan sögur hófust.
Óvœnt athugun.
Árið 1727 hefur öræfajökull
gosið svörtum vikri, þ. e. basalt-
vikri. Hefur það talverða vís-
indalega þýðingu að geta fært
sönnur á þetta, því að það var
áður álit jarðfræðinga að sama
eldfjall gysi ekki bæði ljósum
og dökkum vikri. Er nú engin
ástæða til að efa að Hekla hafi
einnig getað gosið bæði ljósum
og dökkum vikri og að ljósa lag-
ið frá árinu 1300 geti verið úr
Heklu-toppi, enda þótt. fjallið
síðan hafi aðeins gosið dökkum
vikri.
1 Öræfum er fjöldi öskulaga
og munu flest stafa frá Vatna-
jökuls gosum, en mest ber, auk
ljósa lagsins, á tveimur dökkum
lögum ofarlega í jarðvegi. Eru
þau grófari en önnur lög þar. Hið
efra er frá Skaftáreldum 1783,
hið neðra frá gosinu 1727. Hef
eg fylgf þeim báðum vestur á
Síðu og þynnist neðra lagið eft-
ir því sem vestar dregur og fjær
öræfajökli.
Gildi öskulagarannsóknanna
til skilnings á sögu þjóðarinnar.
— Hvaða þýðingu hafa slíkar
öskulagarannsóknir ?
— Jú, þar er því til að svara,
að þær hafa margskonar þýðingu,
bæði jarðfræðilega, sögulega og
fornfræðilega.
Fyrir eldfjallafræðing er þýð-
ingarmikið að geta rakið gosferil
hinna einstöku eldfjalla sem
lengst aftur í tímann. Með hjálp
öskulagarannsóknanna er t. d.
hægt að ganga úr skugga um
’hvort útsloknað eldfjall eins og
Snæfell, hefur gosið eftir Jökul-
tímann eða eigi.
Einn af meginþáttum í sögu
okkar þjóðar er barátta hennar
við náttúruöflin, við eld og ís
og óblíða veðráttu. öskulögin
eru mjög þýðingarmikil “doku-
ment” um þessa baráttusögu. Af
þeim getum við ráðið nokkuð
um stærð hinna einstöku gosa
og um það hverjum skaða þau
muni hafa valdið byggðum lands-
ins. Við getum fundið gos sem
hvergi er getið í skrifuðum heim-
ildum, o. s. frv.
Því fleiri öskulög sem hægt
er að aldursákvarða því betri
möguleika höfum við til aldurs-
ákvörðunar á bæjarrústum og
hverskonar öðrum fornleifum
sem íslenzk mold geymir. Finn-
ist t. d. í Austur-Skaftafellssýslu
ljósa vikurlagið úr Öræfajökli
ofan á bæjarrúst, þá er þar með
vitað að sú bæjarrúst er frá því
fyrir miðja 14 öld.
Aldursákvarðanir á öskulög-
um skapa og möguleika til að
rekja sögu jarðvegsmyndunar og
uppblásturs, þ. e. sögu barátt-
unnar um gróðurmoldina, síðan
land vort byggðist. Það er þeg-
ar komið í ljós að jarðvegsmynd-
un var víða um land mörgum
sinnum hægari framan af þjóð-
veldistímanum en nú, og að hún
hefur aldrei verið hraðari en
síðustu öldina. Þetta þýðir að
landið var til forna jarðvegi og
gróðri hulið að miklum meiri
hluta en nú er og að uppblástur
var þá mjög lítill, en jókst svo
smátt og smátt og hefur aldrei
verið meiri en síðustu öldina.
Þess má og geta að aldurs-
ákvarðan íslenzkra öskulaga
gæti haft þýðingu fyrir rann-
sókn á jarðvegsmyndunum á
Færeyjum, Bretlandseyjum og
Skandinavíu. Vitað er um átta
íslenzk gos síðan sögur hófust,
þar sem askan hefur borizt til
einhverra áður greindra lands-
svæða. Árið 1783 féll svo mikið
af Skaftáreldaösku í Skotlandi
að hún spillti uppskeru. Væri
hægt að finna það öskulag þar
í jarðvegi gæfi það góða hug-
mynd um hraða jarðvegsmynd-
unar þar um slóðir.
Öskulagarannsóknirnar og
rannsóknir á botnlögum
hafanna.
— Þess skal að lokum getið að
særiski haffræðingurinn, pró-
fessor Hans Petterson, hefur
bent á það í ritdómi um ösku-
lagaritgerð mína, að öskulaga-
tímatalið muni geta haft mikla
Þýðingu við rannsókn á botnlög-
um úthafanna. Nýlega hefur
hann, ásamt sænskum verkfræð-
ingi, búið til tæki sem getur
tekið upp allt að 20 metra langa
kjarna úr botnlögum djúphaf-
anna. Er það geysimikil fram-
för frá því sem áður var, því allt
fram yfir 1930 var ekki hægt að
ná nema nokkurra desimetra
löngum kjörnum. Með sérstakri
tegund grunnsökku, sem amer-
íski jarðeðlisfræðingurinn Pig-
got konstrúeraði í kringum
1930, náðust 2—3 m. langir kjarn-
ar úr botni Norður-Atlantshafs-
ins, og í þeim voru greinileg
öskulög. Eru líkur til að sum
þeirra a. m. k. séu úr íslenzkum
eldfjöllum, og væri hægt að á-
kvarða aldur einhverra þeirra
fengjust þýðingarmiklar upp-
lýsingar um hraða jarðlagamynd-
unar á botni Norður-Atlanzhafs.
Tíminn og tækin af
skomum skammti.
— Hvað viltu segja fleira um
rannsóknarferðir þínar og úr-
vinnslu efnisins.
Náttúrufræðirannsóknir verða
ekki framkvæmdar eingöngu
með því að viða að sér efni sum-
armánuðina. Meginhluti jarð-
fræðirannsóknanna, sem og ann-
ara náttúrufræðirannsókna, er
úrvinnsla, sem þarf að fara fram
að vetrinum. En til þess þarf
bæði tíma og tæki.
— Og hvernig er með tímann?
— Tíminn fer mest í að vinna
fyrir daglegu brauði og okur-
leigu.
— Og tækin?
—Ekki til. Varla nokkur tæki
til jarfræðirannsókna eru fyrir
hendi í landinu eins og stendur.
Vonandi er að í sambandi við
byggingu náttúrugripasafns verði
eitthvað bætt úr þessari þörf.
Hvergi ánœgjulegra að vera
náttúruskoðari en á Islandi.
— Hvernig er viðhorf fólksins
úti um landið til “náttúruskoð-
ana” eins o gþín?
— Fólkið lítur mann góðu
auga — nema þegar spáð er gosi.
Hér er t. d. miklu meiri áhugi á
slíkum málum en í Skandinavíu
þar sem eg hef ferðazt á sumrin.
íslenzk alþýða er miklu forvitn-
ari og áhugasamari um náttúru-
fræði en alþýða annara Norður-
landa. Einnig er hún miklu
fróðari um þau mál.
— Hverjar telur þú ástæður
til þess?
— Hér á landi hafa menn orðið
að berjast við óblíða náttúru, og
íslenzk náttúra er miklu áhrifa-
ríkari skóli en í veðurblíðari
löndum. Að öllu samanlögðu
hygg eg að hvergi sé ánægju-
legra að vera “náttúruskoðari”
en einmitt hér á íslandi.
Sunnudagur, febr. 1946
GAMAN 0G
ALVARA
Ölvaður maður stoppaði leigu-
bíl, steig upp í hann, féll út um
hinar dyrnar, sneri sér að bíl-
stjóranum og sagði: “Og hvað
verður þetta mikið?”
*
Síðustu orð merkra manna
eru ósjaldan skráð og geymd í
bókum og blöðum. Hér fylgja
síðustu orð óþektra náunga úr
ýmsum löndum:
“Réttu mér eldspýtu, eg held
að benzíndúnkurinn sé tómur.”
“Mikið eru þessar kökur harð-
ar, ástin mín.”
“Við skulum sjá, hvort hún
sé hlaðin.”
“Þér 'liggur ekkert á, járn-
brautarlestin fer lúshægt.”
“Heyrðu, tengdamamma, —
heldurðu ekki að tími sé kom-
inn >til að fara að fara heim til
þín.”
“Réttu mér flöskuna, eg skal
gá hvað það er.”
“Auðvitað var eg úti með kon-
unni þinni, þér kemur það ekk-
ert við.”
“Sjáðu þegar eg steypi mér
af brúnni.”
“Líttu út um gluggann. Ef
þú hallar þér örlítið lengra,
hlýturðu að sjá hana.”
Business and Professional Cards
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDINQ
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Talslml 95 826 Heimills 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfrœ/Hngur i ausrna, eyma, nef
og kverka sjúkdómum.
704 McARTHUR BUIL.DINQ
Cor. Portag-e & Main
Stofutlmi 4.30 — 6.30
Laugardögum 2 — 4
DR. ROBERT BLACK
SérfrœSingur ( augna, eyma,
nef og hálssjúkdómum.
416 MEDICAL ARTS BLDG.
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusimi 93 851
Heimaslmi 42 154
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK*
íslenzkur lyfsali
Fólk getur panta(5 meCul og
annað með póstl.
Fljót afgreiðsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaöur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarBa og legsteina.
Skrifstofu talsími 27 324
Heimilis talsimi 26 444
DR. A. BLONDAL
Physician and Surgeon
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Slmi 93 996
Heimili: 108 CHATAWAY
Slmi 61 023
Dr. S. J. Jóhannesson
215 RUBY STREET
(Beint suður af Banning)
Talslmi 30.877
Viðtalstlmi 3—5 efUr hádegi
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Offiee hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Office Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
116 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
Phone 31 400 DR. J. A. HILLSMAN
Electrical Appliances and Surgeon
Radio Service
Furniture and Repairs
Morrison Electric 308 MEDICAL ARTS BLDG
674 SARGENT AVE. Phone 97 329
Dr. Charles R. Oke
Tannlœknlr
For Appointments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
283 PORTAGE AVE.
Winnipeg, Man.
TELEPHONE 94 358
H. J. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
1101 McARTHUR BUILDING
Winnipeg, Canada
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG.
Fasteignasalar. Ledgja hús. Ot-
vega peningalán og elds4byrgð.
bifreiða4byrgð, o. s. frv.
PHONE 97 538
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfrœOingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Sími ”98 291
------------------------1
GUNDRY PYMORE
Limited
British QuaUty Fish Netting
60 VICTORIA ST., WINNIPEG
* Phone 98 211
Manager T. R. TIIORVALDSON
Your patronage will be appreciated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAQE, Managing Director
Wholesale Distributors of Fresh
and Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
Phone 49 469
Radio Service SpeciaUsts
ELECTRONIC LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST., WINNIPEG
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.stj.
Verzla 1 helldsölu með nýjan og
frosinn fisk.
303 OWENA STREET
Skrifst.slmi 25 365 Heima 55 462
Argue Brothers Ltd.
Real Estate, Financial, Insurance
LOMBARD BLDG., WINNIPEG
J. Davidson, Representative
Phone 97 291
Legsteinar, sem skara fram úr.
Úrvals blúgrý'ti og Manitoba
marmari.
Skrifiö eftir veröskrá
Gillis Quarries, Limited
1400 SPRUCE ST. SlMI 28 893
Winnipeg, Man.
PRINCEÍÍ
MESSENGER SERVICE
Við flytjum kistur og töskur,
húsgögn úr smærri íbúðum,
og húsmuni af öllu tæi.
58 ALBERT ST. — WINNIPEG
Simi 25 888
C. A. Johnson, Mgr.
I