Lögberg - 04.07.1946, Síða 1

Lögberg - 04.07.1946, Síða 1
 PlioiNl! 21 374 , uWiot^ „n, ggí> A Coraplete Cleaning Institution PIIONE 21 374 v>".í* arv<i TÆ«n'ler " A Coti iplete Cl«udnc Institution 59. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 4. JÚLÍ, 1946 NÚMER 27 KVEÐJA FRÁ ÍSLANDI Flutt af dr. Richard Beck, vararœðismanni íslands í Norður Dakota, á íslend- ingadegi að Mountain, 17. júní 1946. Rétt fyrir helgina barst mér svohljóðandi símskeyti frá for- sætisráðherra íslends: “Gjörðu svo vel að bera ís- lendingum og öllum gestum á samkomu þjóðræknisdeildarinn- ar í Norður Dakota hinn 17. júní hugheilar kveðjur íslenzku þjóð- arinnar, sem á hátíðum sínum jafnframt minnist bræðra og systra vestan hafs með hlýhug og þakklæti.” Þessi drengilega kvgðja hæzt- virts forsætisráðherra íslands, herra Ólafs Thors. ber fagurt vitni þeim djúpstæða og einlæga hlýhug, sem heimaþjóðin ber í brjósti til vor Islendinga hérna megin hafsins. Um það get eg borið af eigin reynd. Aldrei gleymist mér, hversu frábær- lega vel þúsundir á Þingvöllum, á lýðveldishátíðinni 17. júní 1944, tóku kveðjunum frá oss íslend ingum hér vestan hafs. Og sömu ágætu viðtökunum áttu kveðj- urnar héðan að fagna alstaðar á landinu. Það er enn í dag hverju orði sannara, sem Guðmundur skáld Guðmundsson sagði í kvæði til Vestur-íslendinga fyrir mörg um árum síðan: Jeg veit, að yður sérhver íslenzk sál í samúð óskar gæfu, Ijóss og friðar. Ættþjóð vor minnist með þakk læti og virðingu hinna mörgu íslenzku landnámsmanna og kvenna, sem borið hafa merki íslenzks manndóms fram til sig- uþs í nýbyggðunum hérlendis og lagt grundvöllinn að félags- legri og menningarlegri starf- semi vorri. í jafn þakklátum huga geymir hún nöfn þeirra allra, sem einhver sérstök afrek hafa unnið, í bókmentum, vís- indum, listum eða éu öðrum at hafnasviðum, og með þeim hætti varpað ljóma unninna dáða á ættstofn sinn og ættarland. Sómi vor er sómi hennar, og hún fagn- ar heilhuga yfir því. hversu gott álit Íslendingar í Vesturheimi hafa almennt áunnið sér sem nýtir og hollir þegnar síns nýja fósturlands. Með vaxandi athygli og áhuga fylgist stofnþjóð vor, forráða menn hennar og almenningur með þjóðræknisviðleitni vorri hér í landi, og hafa sýnt það verki með mörgum hætti. ís lendingum heima fyrir, eigi síður en oss, er það hugstætt áhuga og alvörumál, að frændsemis böndin og menningarleg sam skipti milli þeirra og vor megi verða sem fjölþættust og varan- legust, að handtak íslenzkra bræðra og systra haldi áfram að brúa hið breiða djúp, og loftin blá, sem nú eru orðin stysta og greiðfarnasta leiðin milli heims álfanna. Landar vorir heima fyrir vilja láta reynast sannmæli FRÉTTIR NORÐAN ÚR ÓBYGGÐUM Svo nefni eg landið “Norður af The Pas,’ því þar finnast hvergi búlönd, hvorki fyrir kvikfjárrækt né akuryrkju, grashagar örlitlir, en alt landið fullt af vötnum og veisum, og >urlendið allt þakið skógi; ber- ar klappir sumstaðar á hæðun- um, og brattir klettar á milli, alveg eins og Isöldin hefði urg- að það allt fyrir þúsund árum síðan. Talsvert er þó af hreindýra mosa norður þar, og miklar hjarðir af cariboo dýrum, sem eru á stærð við hreindýr; einn- er þar mikið af hinum stóru moose-dýrum, og hjörtum. Hvítfiskur og silungur er þar hverju vatni, svo veiðimenn >urfa hvergi að svelta, ef þeir annars kunna að fLska og skjóta, sem er lífs-skilyrði veiðimanna. En mesta arðsemin er þó í loð- dýra veiðinni, “grávörum,” sem frá alda öðli hefir verið eftir- sótt stáss. Aðalsmenn, og auðmenn sækja fast að klæðast hinum fágæt- asta safala, og engin frú þykist geta horft hvössum augum á herra sinn, nema hún sé í góðum gráfeldi og með mjúkan mel- rakka belg um hálsinn. Nú í nokkur ár, eru loðdýra- föt í tízku í heiminum, og því ránsverð á allri grávöru; til dæmis er nú skinn af fullorðn- um Beaver (bjór) $85.00, og muskrotta $5.00, og hefi eg ekki heyrt að slíkt verðlag hafi nokk- urntíma átt sér stað í þessari álfu heimsins, en líklegt þó, að það haldist alllengi enn. Alstaðar eru Iníánar norður þar, við veiðivötnin, með fulla vasa af peningum, nú í ár, og vel ánægðir með lífið; þeir gátu dálíttð talað ensku, og hissa voru þeir yfir að fólk skyldi vera að berast á banaspjótum í heim- inum, meðan svona lætur vel í ári hjá þeim. Á járnbrautarstöðinni Thick- et-Portage, á Hudsonsflóa braut- inni, settust að nokkrir hvítir menn, flest Islendingar frá Man- itobavatni, og stunda þar bæði fiskiveiðar, dýraveiðar, skógar- högg, og verzlun, og brátt sett- ust þar að nokkrar Indíána fjöl- skyldur. Svo þar er bæði Barna- skóli, og 2 kirkjur og von á þeirri þriðju bráðum. Tíðarfar er er mikið kaldara þar en hér suðurfrá. Eg kom ekki norður til Thicket Portage fyr en í febrúar næstl., en hygg þó að frost sé nálægt 12 stigum meira þar en í Winnipeg, sam- kvæmt radio skeytum. íslendingar virtust una sér all- vel þarna, voru glaðir og reifir, og kvörtuðu ekki um kuldann, og er þar þó stundum svalt á seltu á fiskiveiðum, en of kalt fyrir kvef, og krankleika. Einn íslendingur kvadii þó heiminn þar, án þess að dragast upp í pest; hann hét Siggeir Torfason, vel gerður maður, ættaður úr Reykjavík, og kominn að heiman fyrir nokkrum árum; giftur var hann >ar, og lætur eftir sig laglegann son. Islendingar söknuðu hans. Nú hafa þeir Freeman & Johnson selt verzlun sína við Thicket Portage, og Kári Balvins- son keypt hana, og tekur við henni 1. júlí; hann hefir fleiri ismáverzlanir norðurfrá, 300 mílur lengra norður á H. B. brautinni er þorpið Ilford, þar hafa tekið bólfestu tveir synir Jóns Líndals, Ólafur og Duke. Þeir stunda verzlun og veiðiskap. 270 mílur þar suður af er gull- náman kend við Lýman Lake, þar er verið að byggja mikla gróttu,” sem þeir voru að flytja efni til, synir skúla Sig- fússonar, Sveinn og Skúli, Fred Þorkelson og Björn Baldvins- son næstliðinn vetur. Aðra gullnámu er verið að opna austur af Sheridan 50 míl- ur, en 80 mílur norður af Wa- bowden; sú er kend við “Snow Lake.” Við báðar þessar námur er mikil vinna nú strax, svo það er óþarfi fyrir hrausta íslend- inga að kvíða atvinnuleysi í ár. Eitt snjallræði hefir Manitoba- stjórnin gjört norðurfrá, það er að mæla veiðilöndin út í 20 mílna langar og nálægt 10 mílna breiðar spildur, sem hún svo leigir til veiðimanna og skuld- bindur þá að hirða, og verja, einnig er þeim bannað að drepa meira en einn beaver úr hverju beaver-húsi á einu ári, sem bor- ið hefir þann árangur, að þeim hefir fjölgað stórkostlega. Einn veiðimaður tjáði mér að hann hefði 70 Beaverbú á sinni veiði stöð. Þessi beavieiþbúskapur hefSr því gefist vel, og getur orðið arðsamur, því hann fæðir sig sjálfur, kjöt hans er gott til neyzlu, en skinnið afar verðmætt. —Ritað 1. júní 1946. S. Baldvinson. sem lengst þjóðræknishugsjón skáldsins á Víðivöllum við ís- lendingafljót: Stetrkar greinar haldist fast í hendur, handabandi saman tengi strendur. Upp úr jarðvegi peirrar rækt- arsemi heimaþjóðarinnar í vorn garð er sprottinn hlýhugurinn í virðulegri kveðju forsætisráð- herra íslands til þessarar sam- komu, og í þeim anda flyt eg yður öllum kærar kveðjur og blessunaróskir bræðra og systra heima á ættjörðinni. Eg er þess fullviss, að þær kveðjur finna bergmál í hugum yðar allra. nt urumuzfa. iiiiiiiiiiiiBiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiifflii ATVIKAVlSUR ANDVAKA Þó eg hafi um gleði grun, girtur nætur serki; það er aðeins upphrópun!— andvökunnar merki. í GREMJU Sannleik týna sumir menn, sízt þar skína bætur; perlum sínum ýta enn undir svína fætur. FEIGÐ Andans ríki á ótal stig, eitt þér vil eg segja: Ef þú svíkur sjálfan þig, sál þín er að deyja! Mis-sögn illa ýmsum fer, eyrum samkvæmt mínum; ljúg þó sízt að sjálfum þér sannleikanum þínum. iiiiiiiiiiiiiimiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiHiinmiiimiiiiiiiiwimw^ UUmillUIIIIUmillllllUUllllllllUlllUIHIHUIlllUIHIIIIIllllllllllUIIHIIIIIUIHIIHIIIIIHllHUllimillHIIIHtf Nýjustu fréttir Svo mátti segja, að heimurinn stæði á öndinni síðastliðinn sunnudag vegna þess að þá átti að fara fram við Bikini-ey í Kyrrahafinu atómsprengjuárás á sjötíu og þrjú aflóga, amerísk herskip, en með þessu átti að færa alþjóð manna heim sann- inn um það, að atómsprengjan væri eins konar Surtarlogi, er brendi upp allan hnöttinn; en hvernig svo sem öllum undir- búningi og aðstæðum var háttað urðu leikslok þau, að einungis tveimur af hinum áminstu her- skipum var sökt, en tíu löskuð- ust meira og minna; eldtungurn- ar náðu um 50,000 fet í loft upp, að því er nærstaddir vísinda- menn herma; ekkert af þessu, sem þarna fór fram. var nándar- nærri eins geigvænlegt og fólk hafði gert sér í hugarlund; jörð- in hvorki skalf, né heldur klofn- uðu björgin; margt af því, sem gerðist á stöðvum þessum er hernaðarlegt leyndarmál, og er mannkynið því litlu nær um tor- tímingarmagn atómsprengjunn- ar, en það áður var. * * * Við aukakosninguna, sem fram fór í Morse kjördæminu þann 27. júní, s.l. til fylkisþingsins í Saskatchewan fóru leikar þann- ig að frambjóðandi C.C.F. flokks- ins gekk sigrandi af hólmi með allálitlegum meirihluta; næstur honum að atkvæðamagni varð >ingmannsefni Liberala, en for- ingi íhaldsmanna, Mr. Ramsay frá Saskatoon ,er leitaði kosn- ingar í áminstu kjördæmi, tap- aði tryggingarfé sínu. * * * Það er síður en svo að ástand- ið í Landinu helga fari batnandi; má svo segja að enn logi þar alt eldi og brennisteini; brezk hernaðarvöld hafa nýverið tekið 3,000, Gyðinga fasta, en alt kem- ur samt sem áður fyrir ekki, og oendir nú flest til þess, að til raunverulegs borgarastríðs geti >á og þegar komið í landinu. * * * Á fimtudaginn þann 27. júní síðastliðinn, lagði fjármálaráð- herrann, Mr. Ilsley, fram fjár lagafrumvarp sitt í sambands- þinginu fyrir tímahilið 1946 1947, og flutti við það tækifæri hálfs þriðja klukkutíma ræðu; fjármagn það, sem hann kvaðst þurfa að ráða ^fir til stjórnar starfrækslunnar og greiðslu vaxta, nemur þremur og hálfri biljón dala. Nokkurar breytingar eru fyrir hugaðar á persónulegum tekju- skatti, er ganga í gildi 1. janúar 1947; verða eftir þann tíma ein hleypir með $750 tekjur og kvæntir menn með $1500 tekjur undanþegnir áminstum skatti bændum og fiskimönnum verð ur heimilað að dreifa tekju skattsgreiðslu sinni yfir þriggj ára tímabil. íhaldsmenn á þingi tjást óánægðir yfir því, að á minstar tekjuskattsbreytingar skuli ekki ganga nú þegar í gildi * * * U tanríkisráðherraf undinum París er enn eigi lokið, og virðist samkomulagið upp á síðkastið hafa fremur farið batnandi en hitt; meðal annars hefir sam- komulag náðst um, samkvæmt uppástungu franska utanríkis- ráðherrans, að hafnarborginni Triest við Adriahafið, skuli um næstkomandi tíu ár verða stjórn- að af sérstakri nefnd úr hópi hinna sameinuðu þjóða. VEITT MAKLEC SÆMD Garnet Coulter Borgarstjórinn í Winnipeg, Mr. Garnet Coulter, hefir verið kjör- inn forseti borgarstjóra sam- bandsins í Canada; þetta gerðist á-fundi, sem haldinn var nýlega í Vancouver; heTir Mr. Coulter með þessu fallið makleg sæmd í skaut, því hann er um alt hinn ágætasti maður. AFSTAÐAN TIL KRISTS ÍPrédikun flutt í Hallgrímssókn 3. sunnudag í föstu, 24. marz 1946). Lúk. 11: 14-28. C A R L F. FREDERICKSON Fæddur 1886 — Dáinn 1946 Þegar örlög þín í upphafi spunnu öfl þau hin leyndu sem alt mun hlýða, runnu í þráðinn þættir duldir sárra sjúkdóms rauna. Runnu jafnt í þráðinn rauna bætur: hlý og vintrygg lund og listrænn andi; —samfylgt ástvinar sí-starfandi þér til hags og heilla. Aðdáun vakti, ást og gleði, staðfast viðnám þitt í stormum lífsins. — Þakkar fjölmennt lið frænda og vina hefðar og hetju dæmi. Hér er söknuður sælu blandinn. —Ljómar langþreyður lausnar dagur. —Opnast æðra svið og ástvinir horfnir fagna frelsi þínu. Allmargir hafa óskað þess, að ðftirfarandi ræða Sigurbjöms Einarssonar, dócents, birtist ein- hversstaðar í blöðum. Kaupend- ur Einingarinnar hafa einnig komið þessari ósk á framfæri við ritstj. blaðsins. Hefur því séra SigurbjÁrn Einarsson látið blaðinu ræðuna góðfúslega í eé. Sé vel að gáð, mun það sann- ast, að þeir menn hafa unnið öindindismálinu mest gagn fyr og síðar, sem byggt hafa allt ífsviðhorf sitt og starf á siðgæð- isgrundvelli kristninnars á bræðralagshugsjóninni, á grund- velli föðurhugtaksins, á kenn- ingunni um fórnfýsina, þjónustu- viljann, Kristlundina, hreinleik, sannleika og réttlæti, kærleika, von og trú, þar sem hver og einn réttir bróðurhönd til stuðnings og ber ábyrgð á velfarnaði ná- ungans. Á slíkum■ grundvelli þarf að byggja allt siðbótastarf, ef það á að bera góðan árangur og verða mannkyni til varan- legrar blessunar —Ritstj. Hvar sem harmþreyttur hugur geymir örugga von um endurfundi, þar eru sólmyrkvar sorgar og dauða ræntir regin tökum. —Jákobína Johnson. Seattle, í maí, 1946. í guðspjallinu er lýst þrenns konar afstöðu til Jesú, bent á þrjá flokka manna. Fyrstir — og líklega fjölmennastir — eru skeytingarleysingjarnir. Þeir undrast, verða snortnir í svip, dást að honum í bili, viðurkenna hann í orði, a. m. k. þessa stund- ina, sem almannarómuirinn er honum hhðhollur, en þeir ljá honum aldrei neitt lið, sem gagn er í, skipa sér aldrei í hans flokk. Þá eru næstir andlegir lausingj- ar, sem eru sífellt á hnotskóg eftir einhverju furðulegu og (Frh. á bls. 8) iiiiiiiniiiiiiiiHHiiiiiimiiHiiiiiiiTiiiiiiiiiiiiiHnmiiiiiiiiiiiniiiiiiiHiiiiiiiiiiiniiiiiii’miiiiiiiiffliiiiiimiiiiiiiuiiiiiiiiHBHniiiiHiiiimiiiiiHiiniiiiiniiiniiHiiiniiiniiimiiinwiiWWtBWiBWiiPWM—i UlllinilllllHinillHIHHHIIIIIIHHHIIIIIIIHIHIIIIIIIHHHIIIIinHIHHHIIIHHHIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIHiailllllllllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIIHIlHHIUIIIIIIHUIHIIHHIIinillllinHlimM TRIBUTE TO OUR HEROIC DEAD By Richard Beck Nobly you died that we might live and breathe The air of freedom without which our life Is worse than death. — Of tender words a wreath We offer you, who bore the cruel strife. Humbly, in gratitude we raise our song And bless your name, wherever you may sleep, In lands beyond the tumult and the throng Of busy streets, or in the silent deep. Proudly, the stars which grace our banner gleam And write in gold your deeds and cherished name. Your spirit lives in mankind’s noblest dream Of peace on earth — an ever-shining flame. (Kvæði þetta hefir þegar birtst á ýmsum stöðum, meðal annars í “Grand Forks Herald” og sunnudags- útgáfu “Minneapolis Tribune”).

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.