Lögberg


Lögberg - 25.07.1946, Qupperneq 1

Lögberg - 25.07.1946, Qupperneq 1
PHONE 21 374 \Vu ss&*i fú* ** a i f*< »n» r A Complele Cleaning Inslilulion PHONE 21 374 aivA F1 ' LOti»l<ler A Complele Cleaning Inslilulion 59. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 25. JÚLÍ, 1946. NÚMER 30 FRETTIR DANMÖRK. Verzlunarsamningur hefir ver- ið fullgerður á milli Danmerkur annarsvegar en Rússa hinsvegar. Danir ganga inn á að kaupa fóð- urkorn, eldsneyti og hráefni frá rússnesku sambandsríkjunum. En Rússar lofast til að kaupa matvörur, fiskibáta, togara og nokkuð af verksmiðjuvarningi af Dönum. Fyrir stríðið síðasta seldu Danir mest af matvöru þeirri er þeir fluttu út, til Breta —sérsta'klega smjör, egg og svínakjöt. -Nú verða Bretar að snúa sér í aðra átt til þess að fá þær vörur. ♦ ♦ ♦ FRAKKLAND. Ellis Emmons Reed yfirmaður þjóðarflugvélanna á Frakklandi, hefir lýst yfir því, að sökum þróttmiklar framleiðslu Frakka á öllum sviðum athafnamála þjóð- arinnar, verði hún undir það búin að taka á móti fjölda ferða- fólks árið 1947. Um 60% af gistilhúsum Frakka eru tekin til starfa, og mest af járnbrautunum sem eyðilagðar voru í stríðinu endurbættar. •f -f -f Vdðtæk verkföll vofa yfir á Frakklandi, nú þegar þjóðin er óðum að ná sér eftir eyðilegging- una. Kolaframleiðsla Frakka vikulega, nemur nú 1,000,000 tonnum. Ullarframleiðsla þeirra er nú 68% af því sem hún var fyrir stríðið. Baðmullar fataefna- framleiðsla 72%. Járnframleiðsl- an nam 252,000 tonnum fyrri sex mánuðina af 1946 og má heita jafnmikil og hún var hjá þeim árlega fyrir stríðið. Stálfram- leiðslan nam 342,000 tonnum í ár, en hún nam 515,000 tonnum ár- lega fyrir stríðið síðasta. Verkfallshættan stafar frá kröfum verkamanna á Frakk- landi um 25% hækkun á vinnu- launum yfirleitt. Verkveitendur kváðust ekki með neinu móti geta mætt þeim nema því aðeins að hið opinbera hlypi undir bagga, eða þá að þeim yrði leyft að hækka verðið á vöru sinni. Stjórnin, sem óttaðist verðbólgu, neitaði að taka nokkurn þátt 1 kauphækkuninni. Verkamenn hafa gefið verkveitendum þangað til á sunnudag. Ef þeir þá neita, er alls herjar verkfalls að vænta. ♦ ♦ ♦ 2,500 námamenn í gull- og koparnámum í British Columbia hafa gjört verkfall. Þeir krefjast 29c kaupviðbótar í klukkutím- ann og 40 klukkustunda vinnu- viku. En rétt eftir að þetta verk- fall var hafið, kom yfirlýsingin frá Usley um að Canada dollar- inn hafi verið hækkaður í verði um tíu af hundraði, sem gjörir öllum gullnámum, sem ekki eru stór-auðugar, erfiðari aðstöðu. Gull seldist áður til Bandaríkj- anna fyrir $38.50, nú fyrir $35.00 únzan. Lítil líkindi til að verk- fallsmönnum á því sviði fram- leiðslunnar verði mikið ágengt. Verkfall gerðu 4,000 menn hjá Westinghouse félaginu í Toronto og 400 hjá grávöruverzlunar- mönnum í Hamilton, Ont. í báð- um tiMellunum var krafist kaup- hæbkunar og styttri vinnutíma en áður var. ♦ ♦ ♦ Right Hon. W. L. Mackenzie King er farinn áleiðis til friðar- þingsins í Paris, sem hálda á seint í þessum mánuði. Með honum fór-u Norman Robertson, aðstoðar utanríkisritari, og Arn- old Heeney, leyndarráðsritari. Hinir tveir umboðsmenn Kanada á þessu friðanþingi eru Hon Dana Wifgress sendiherra Kanada í Moscow, og Maj.-General George Vanier, sendiherra Kanada í Paris. Mr. King og þeir félagar sigldu þann 20 þ. m. frá Halifax með skipinu Georgic. ♦ ♦ ♦ Stuart S. Garson forsætisráð- t herra er á förum til Ottawa til þess að semja fyrir hönd Mani- tobafylkis um skatta og fjármála- sakir Manitoba við stjórnina í Ottawa. ♦ ♦ ♦ Tíu bakarí í norður parti Win- nipeg borgar hafa orðið að loka dyrum sínum sökum verfalls sem vinnufólk þeirra gerði. ♦ ♦ ♦ Brotist var inn í Járnbrautar flutninigsvagna C.N.R. í Montreal á föstudags nóttina var, og frá $100—$200,000 virði af vörum er sagt að stolið hafi verið úr þeim. ♦ ♦ ♦ Mr. J. S. Wood, bóndi í Oak- ville, var útnefndur af hálfu Lib- erala í Portage kjördæminu sem þingmannsefni flokksins við í hönd farandi kosningar til þjóð- þingsins á Kanada, sem fram þurfa að fara sökum dausfalls fyrverandi þingmanns þess kjör- dæmis, Harry Leader. Tveir aðr- ir hafa verið útnefndir til þing- sóknar á Portage kjördæminu; annar af hálfu afturhaMsmanna. Hinn af C.C.F. flokknum. ♦ ♦ ♦ Konunglega rannsóknarnefnd- in sem var að rannsaka spæjara athafnir Commúnista i Kanada, hefir nú skilað af sér því verki til landstjórnarinnar. Er skýrsla þeirra mikið mál, en aðal atrið- in eru: 1. S°V|í,et (Stjórnin á Rúss- landi hélt uppi í Kanada nokkrum spæjara félögum á sam- bandi við fimtu-deildar starf- semi þeirra. 2. Viðtæk leyndarmál Kan- ada voru seld í hendur Sovíet stjórnarinnar. 3. Spæjara liðsauki í Kan- ada var nærri eingöngu fenginn úr Commúnista flokknum. 4. Fölsuð vegabréf voru gefin út af vegabréfaskrifstofu Kan- ada. 5. Undirbúningur undir þriðja aiheimsstríðið var hvers- dagslegt umtalsefni á meðal sendiráðsmanna Rússa i Kanada. 6. “The Cimmitern” heldur enn uppi comimúnistiskum á- róðri um víða veröld. 7. Níu Kanadamenn, sem áð- ur höfðu ekki verið nefndir, eru ásakaðir um þátttöku í spæjara samtökum í Kanada. 8. Stórkostlega aukið starfs- svið undir forustu Col. Nicolai Zabotin var ákveðið. 9. Sendiberra Rússa í Kan- ada, Georges Zaroubin, var frí- kendur með öllu. 10. Leynilögreglu starfsemi hefir verið haldið uppi og áfram af Rússa hálfu síðan árið 1924. 11. Mest af upplýsingum þeim sem Rússar voru umfram um að ÚTSKRIFAÐIR f LÆKNISFRÆÐI FRÁ HÁSKÓLANUM í MANITOBA. Sveinbjörn Stefán Björnson sonur þeirra Sveins læknis Björnsonar í Ashern, Man. og konu hans frú Maríu Björnson. Hinn ungi og efni- legi læknir fer fyrst um sinn til Ashern, og stundar lækn- ingar með föður sínum. Lögberg óskar þessum Sveinn Halldor Octavius Eggertsson sonur Árna G. Eggertssonar lögfræðings í Winnipeg og frúar hans Maju Eggertsson. Dr. Eggertsson tekur stöðu í bili við spítala í Steinback, Man. En 'hefir ákveðið að halda til Lundúnaborgar í haust til framhaldsnáms. nýútskrifuðu læknum til gæfu og gengis, unni sem leið snéru hinir nýju herrar bakinu við öllum fornum minningum í sambandi við Kön- igsberg, með því að skíra borg- ina upp. Hið nýja nafn hennar er Kaliningrad. ♦ ♦ ♦ KANADA Spánverjar og Portúgalsmenn eru að gerast nærgöngulir á fiski- miðum Nova Scotia. Diesel mótorskip frá þeim löndum, sém eru tíu til tólf sinnum stærri og miklu hraðskreiðari en fiskiskip Nova Scotiu manna, eru nú kom- in til veiða á hin svonefndu Quero-mið, en þau liggja aðeins 160 mílur undan ströndum Nova Scotia fylkis, og eru ekki aðeins þau næstu, heldur láka þau arð- mestu fiskimið sem Nova Scotia menn eiga. Útlendingar þessir Ullllllll eru svo nærgöngulir Nova Scotia ifiskimönnum á þessum miðum, að þeir spilli ekki aðeins veiði þeirra, heldur eyðileggja þeir veiðafæri þeirra og hafa hrakið þrjú hundruð fiskimenn alveg af þessum fiskimiðum. Fiski- málaráðherra Kanada hefir skip- að rannsóknarnefnd á mál þetta, og er vonandi að bót verði ráðin á yfirgangi þessara útlendinga. ♦ ♦ ♦ CNTARIO Ný aðferð til að finna gull og aðra málma, er hr. Hans Lund- enberg að reyna. Hann lét gera nýja flugvél, helicopter, sem hann og sérfræðingar hans eru að fljúga á yfir norðunhlutann af Ontario. Þeir hafa með sér raf- tæki, sem mælt geta þéttleika jarðarinnar, sem þeir fljúga yfir. (Frh. á bls. 5) GESTAKOMA Kveðin Vigfúsi J. Guttormssyni (Þetta kvæði var flutt í fámennu góðvina boði hjá höfundinum) ná í, vour í sambandi við hernað- arimál. 12. Upplýsingum mj-ög þýð- ingarmiklum í sambandi við V.T. kveikju hefir verið ljóstað upp. 13. Sýnishornum af úraníum hefir verið stolið og þau send með flugvélum til Moscow. 14. Von var á auknu liði af umboðsmönnum Sováet stjórn- arinnar, til athafna í Kanada. Þrír af þeim 9 sem sakaðir eru um njósnar þátttöku í Kanada hafa verið teknir fastir nú alveg nýlega. ♦ ♦ ♦ HVAÐ HEFIR KOMIÐ FYRIR? •Frétt frá Moscow segir að hers- höfðingja George K. Zhukov hafi verið vikið úr tign sinni og sendur til Odessa. Zhukov var foringi landhers Rússa i stríðinu síðasta og gat sér frægð mikla fyrir framgöngu sína í hvívetna. ♦ ♦ ♦ NIÐURSETT VÖRUVERÐ Á RÚSSLANDI Hlut aðeigandi yfirvöld á Rússlandi hafa lækkað útsölu- verð á vörum sem nemur 40%, en samt berjast fjölskyldur sem að meðal inntektir höfðu i bökk- um efnalega — kjörkaup í búðum eftir niðurfærsluna. Lérefts kjól- ar, sem við hér í landi kaupum fyrir $4.80 seljast fyrir 1500 rúb- lur í Moscow ($125.00). Karl- manna fatnaðir sem voru settir niður um 43%, $133.33 ódyrast skór settir niður um 42 % seldust yfir hundrað dollara parið að jafnaði. Sápustykki sem við borgum 10 cent fyrir var sett niður um 46%, en seldist samt fyrir $2.80. ♦ ♦ ♦ PÓLLAND Það þarf ekki nema einn gikk í hiverja veiðistöð. Drengur 9 ára gamall sem heima á í bænum Kielce á Póllandi, kom til föður síns dag einn í vi'kunni sem leið og sagði ihonum, að Gyðingur þar í bænum hefði tekið sig nauðug- an og farið me sig ofan í kjallara þar sem verið höfðu 1500 börn kristinna foreldra. Saga þessi var heimskuleg og eins gamul og Gyðingasagan sjáltf, en hún var samt nóg til að kveikja hatur. Drengurinn fór meðríöður sínum og um 5,000 bæjarbúum, sem safnast höfðu saman á örstuttum tíma, til miðstöðva Gyðinga þar í bænum. Hópurinn réðist að Gyðingunum og brutu upp hús þeirra og varnarskjól og náðu 120 manns á vald sitt, sem þeir börðu miskunnarlaust með ólum og bareflum, og sumir höfðu járn- stangir að vopni. Þegar þetta hörmungar-æði breiddist út komu pólskir menn í hermanna- búningum og brutust inn í hús Gyðinganna og buðu þeim að sjá þeim farborða á óhulta friðar- staði, en undir eins og út var komið sleptu þeir hendi sinni af Gyðingunum, sem þeir höfðu lof- að að vernda, í hendur upp- hlaupsmanna. Afleiðingarnar voru þær, að 36 Gyðingar voru drepnir og 40 meiddir. ♦ ♦ ♦ BRETAR Á NÝJUM VERZLUNARBRAUTUM Samkeppnin um framtíðar- markaði í hinum ýmsu löndum heims er þggar hafin og sækja Bretar þar fram með nýjum og nýtízku aðferðum. Þeir hafa lát- ið gera sérstaka tegund flugvéla; í þeim fljúga þeir til Austur- landa, Afrí'ku eða hvert á land sem þeir helzt kjósa sér, með sýnishorn af varningi sínum, og sýna hann þar sem væntanlegir kaupendur eiga greiðastan að- gang að flugvélum þeirra og semja um sölur og verð. ♦ ♦ ♦ EIRE Forsætisráðherra í r 1 a n d s Eamon de Valera fórust þannig orð á fjölmennum þingfundi: “Að því er Englendinga snertir, þá vekur það undrun allra 'hve dásamlega að þeir sjálfir neita sér um alla 'hluti til þess að geta veitt nauðstöddu fólki í Evrópu björg.” ♦ ♦ ♦ KÖNIGSBERG Königsberg hefir frekar öðrum borgum Þjóðverja verið minn- inganna borg. Þar voru níu síð- ustu konungar Prússa krýndir; þar fæddist Kant, þar lifði hann og dó og þar er hann grafinn. Stórmenni Þjóðverja hafa haft þar aðsetur sín síðan 1255. í vik- Öldum fyr en blöð og bækur beindu landans fræðaþrá, Fréttaþulir — söngs og sagna — samtíðinni lýstu hjá. Voru þá í heiðri hirðskáld • höfð, er drápur fluttu gram. —Nútíð býr að fyrntri fortíð. — Fólkifj óð og ræðu nam. Frægðarorð — í góðú gengi — gátu sér og juku hróð Frónbúans, í Háva-höllum, höfuðskáld með vorri þjóð. Farmenn þá og ferðalangar fluttu þeirra orðstýr heim. Löngu seinna, leturgerðin lifandi bauta reistu þeim. Þá, er bar að garði góðann gest, var heimamönnum stefnt • saman( til að heyra hann. Til hófs var eftir getu efnt. Dreifbýlisins drunga-höfga dreifði, af fólksins hrjúfu brá. Manns gamanið, maður, sem að mörgu kann að greina frá. Vel er enn um vegfaranda: —Víðförull er gestur hér. — Yfir þeirri héraðs-heppni heimasætum dillað er. Vita af reynd og frásögn fjölbreitt fyrir-bærið, mannlífið. Sínar farir segi ’ann sléttar sízt af öllu búast við. Kveð þér hljóðs, vor góði gestur. Geninunum skírðu frá. Við — sem erum öll að hlustum orðin — munum hlýða. Á tungu þinni er oss áður óður þinn og ræða kunn. Mál, sem eins og okkar væri ort og talað fyrir munn. Heill þér, Vigfús, vel er kveðið. Vitund er þess grunvís mín, þá, er framtíð merkra manna minnist, getið verði þín. Þó veltur á litlu viðurkenning; varðar meiru Hitt, að það héraðsfleygt og heyrum kunnugt, höfundinn lifi, það hann kvað. Ei hava þeir til einskis lifað — athyglina til sín heimt — sem hafa gullöld glæsilegra guðsríkja á jörðu dreymt. Gleymd eru nöfn, þess sefa’ er samdi sögur( æfintýr og ljóð. Sultar lífs, svo, bölið las ei bana orð, af vorri þjóð. Á. B. WIUIIjlllilllllllIIIIIIMHIIIIIIM lliiilliiiiiliilliiilliillillliilllliliiliiiiiiiiiliiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiii[iiiiiiiiiíiiiil!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiwiii!iiiuiiiiiiiiii:iiiiiiiiiiiiii;iii:iiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii{|iniiii

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.