Lögberg - 25.07.1946, Side 7

Lögberg - 25.07.1946, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. JÚLÍ, 1946. 7 Gísli Guðmundsson Lundal Hann var fæddur 5. marz 1868, að Arnþórsholti i Lundareykja- dal í Borgarfjarðarsýslu á Is- landi. Foreldrar ihans voru þau hjón- in: Guðmundur Bjarnason og Guðrún Gísladóttir, sem bjuggu þar í sveitinni. Gísli faðir Guð- rúnar var prestur að Hesti í Borg- arfirði. Foreldrar Gísla Lundal fluttu vestur um haf með fjölskyldu sína árið 1887; var hann þá á nitjánda ári. Fyrst dvaldi fjölskyldan 1 ár í Winnipeg, flutti síðan til Nýja Islands og bjó eitt ár i Breiðu- víkinni. er svo var nefnd. Þar reisti Guðmundur bæ, er hann kallaði “Finnrpörk,” flutti það- an til Geysirbygðar, reisti þar annan bæ, er hann nefndi “öxar- á”. Bera þessi nöfn það greini- lega með sér að þótt likamsvist- inni væri slitið við Island, þá var ^amt sálin og hugurinn heima. Seinna flutti Guðmundur til Narrows-bygða, og bjó þar til dauðadags. Hann andaðist fyrsta október 1901. Árið 1895 kvæntist Gísli Höllu Ingveldi Eggertsdóttur, systur Árna Eggertssonar fésýslumanns í Winnipeg og þeirra systkina. Var hún ekkja eftir Guðna Sig- urðsson, bróður Sigurðar frá Rauðamel; hafði Halla átt tvo syni með fyrra manni sínum: Eggert Friðri'k Sigurðsson, sem heima á á Swan River og Guðna Halldór Sigurðsson í Winnipeg. Þau hjónin Gísli og Halla áttu heima í Winnipeg um nokkurra 3ra skeið, en fluttu þá norður til Manitobavatns og dvöldu þar þangað til árið 1904, þá fluttu þau f þorpið Deer Horn; þar stofnaði Gísli iverzlun, sem hann stundaði á mörg ór; auk þess var hann þar pástafgreiðslumaður; það starf hafði hann með hönd- um í þrjátíu og þrjú ár. Þau hjón eignuðust fjögur börn: þrjá syni og eina dóttur. Hóttirin hét Lovísa og giftist Ein- ari Helgasyni. Þau Lovísa .og Einar eignuðust eina döttur, en Lovísa lézt árið 1936. Synir Gásla og Höllu eru: Vilhjálmur, Ingólf- ur Guðmundur og Edward. Þeir eru allir búsettir á Ghicago. Árið 1920 misti Gísli konu sína og eftir það var hann lengstum einbúi. Halla sál, var hinn mesti kvenskörungur og gæða kona. Auk sona sinna lætur Gísli eftir sig tvö systkini: Jón Lundal í Calgary í Alberta og Guðrúnu konu Björns Matthews að Oak Point, Manitoba. Gísli Andaðist á Grace spítal- anum í Winnipeg 20. janúar 1946, eftir langvarandi vanheilsu, sem aðallega var afleiðing af slagi. Hann var jarðaður 23. janúar af séra V. J. Eylands. “Segðu nú ekkert meira!” býst eg ivið að hinn látni segði, ef hann mætti mæla. Gísli Lundal átti yfir miklu meiri hæfileikum að ráða en flesta grunaði; en hann hélt þeim ekki hátt á lofti. Hann var frábærlega glaðlynd- ur, fyndinn og smáglettinn; en hann var einnig viðkvæmur og hluttekningasamur. Viðkvæmn- in kom bezt í ljós þegar samtalið barst að íslandi; þunfti hann þá venjulega að taka upp klútinn, áður en langt var liðið. Séra Eylands lýsti honum svo vel í fáum orðum við jarðarför- ina, að mér finst það eiga vel við að taka 'þau upp í þessar Línur: Honum fórust orð á þessa leið: “Það má segja að Gísli heitinn hafi unnið gott og mikið starf á lífsleiðinni. Hann ól upp sex myndarleg og vel gefin börn; hann skipaði trúnaðarstöðu fyrir stjórnina miklu lengur en alment gerist; sýndi hann í þvá starfi eins og öllum sínum verkum, mikla alúð og trúmensku. Hann hafði einnig hlotið gott vega- nesti á vöggugjöf. Hann var vel gefinn til sálar og líkama, gædd- ur miklu lífsfjöri og glaðværð, sem létti oft undir með honum sjálfum og öðrum, sem hann átti samleið með. Samferðamenn- irnir, sem eftir eru, blessa minn- ingu hans og þakka honum fyrir alt.” Þetta er falleg lýsing og sönn; eg enda þessar línur með því að taka traustataki á henni. Sig. Júl. Jóhannesson. DÁNARFREGN Vilhjálmur Jóhannesson ættað ur úr Vopnafjarðarhéraði andað- ist hér í Selkirk þann 2. júlí, eftir fárra daga lasleika; fæddur 11. september 1868. Hann var af- komandi gamallrar bændaættar er lengi mun hafa dvalið í Vopna- firði. Ungur að aldri fór hann í vinnumensku á héraði sínu, og dvaldi oft á góðum heimilum, síðustu árin hjá séra Jóni Hall- dórssyni, þá presti á Skeggja- stöðum á Langanesströndum; frá heimili hans fór hann til Ame- wku, árið 1904; — settist að í Víinneota, Minn., og vann í því umhverfi um nokkur ár. Um 1910 fór hann til Winnipeg og vann þar um nokkurra ára bil, en 1913 fór hann til Árborgar umhverfis í Nýja íslandi, og vann hjá bændum þar, til ársins 1940, að eg hygg. — Var þá veitt mnganga á Betel, og var þar ó þriðja ár; en 'hinztu æfiárin dvaldi hann hér í Selkirk. Á dvalarárum hans hér, kyntist eg honum allnákvæmlega, því frá sumrinu 1943, fram að hinzta degi, var hann vikulega, stund- Um °ftar en það, gestur á heim- lli mínu, og lét nærri að fjöl- skylda mín og eg skoðuðum hann sem heimilismann okkar. Varð hann okkur hugumkær, og hress- ing og fræðsla fylgdi samtali við þennan einmana aldurhnigna Is- lending. Hann var óvenjulega hókhneigður og lestrargjarn, rn-un helzta ánægja hans í lífinu hafa verið lestur áslenzkra bóka. Við nánari kynningu varð mér það ljóst hve óvenju vel að hann var að sér í sögu íslands og bók- mentum, bæði að fornu og nýju, fyrir mann með hans lífsafstöðu. Minni hans ábyggilegt og stað- bundið olli því. Hitt var þó meira um <vert, hve heilbrigða skoðun hann hafði til brunns að bera, á mönnum og málefnum; hann kunni góð skil á ættum manna, og var einkar mannfróður. Auð- ugur var hann af fornum sögn- um, og hafði glöggt auga fyrir því, sem að skringilegt var, og kunni vel fró að segja. Hann var maður háttprúður, einkar trygg- lyndur; mun honum jafn sein- gleymd verið hafa góðvild sem andúð manna, skapið stórt — og stundum ofurefli að hafa fulla stjórn á; einkum þá er hann rnætti óverðskuldaðri móðgun af annara hálfu. — Sennilega var litið niður á hann af sumum þeim, er meira máttu sín, og ekki gerðu sér far um að skilja hann. Mér var hann sýnilegt merki þess, hve haldgóð að íslenzk al- þýðumenning getur verið, og hve þroskaðir um margt, að íslenzkir alþýðumenn — er aldrei höfðu á SkóJa 'komið, — eru og geta ver- ið. Lág munu launin hans lengst af verið hafa, en trúr þjónn var hann talinn — og trygð allmikla sýndu honum sumir þeir, er hann þjónaði — endur fyrir löngu. Einmana var hann í lífinu og á- horfandi á heimilis gleði annara; átti hann þann innri stýrk trú- ar og glöggrar hugsunar, er tók lífinu eins og það var, var karl- mannlegur í hugsun, kvartaði kvergi, enda við engan að kvarta. Þakka eg fyrir hans hönd, þeim er sýndu honum góðvild og sanngirni. Eg kveð hann með orðum skáldsins Guðmundar á Sandi: “Útigenginn íslendingur oft á djúpan jarðveg grær.” S. Ólafsson. Er siðspillingin að eyðilleggja okkur ? Eftir Dr. W. R. INGE, D.D. Forfeður okkar á trúvissu- tímabilinu, hefðu ekki verið í minsta efa um, að and-Kristur væri laus í heiminum og að heimsendir væri í nánd. Það er ekki minsta vafa bundið, að and- Kristur er athafnameiri en að undanförnu, en engin ástæða er til þess að halda að heimurinn, sem við höfum umhverft svo sorglega muni líða undir lok. Aldous Huxley sagði á prenti fyrir stríðið síðasta: “I staðinn fyrir að þroskast í áttina til hins þráða fullkomnunar takmarks, þá hefir flest af fólkinu í heim- inum verið á hrarði ferð í burtu frá því.” Ef þetta var satt árið 1937, þá er það ekki síður satt árið 1946. Hvað getum við sagt, eða gjört í þessu sambandi? “Sönn framför,” sagði Dr. Marcett, er kærleiksþroskun, og sú dygð þróaðist og þroskaðist sýnilega á meða'l mannanna á átjándu og nítjándu öldinni. Nú höfum við verið sjónarvottar að pyntingum, að heildarmanndráp- um, að lygasamtökum, sem hrundið var á stað til þess *að eyðileggja með öllu mannúðar- tilfinning og viðleitni, að því er aiþjóða stjórnmál snertir og andstyggilegri hjáguðadýrkun á einni mannpersónu. Stríð, hvort heldur þau eru aLþjóðleg, eða innbyrðis eyða fleiru en lífum manna, og eign- um. Þau færa úr skorðum allar lögbundnar venjur og siði, og kollvarpa sameiginlegri tiltrú manna. Þau eyðileggja hina ná- lega óafvitandi siðferðis meðvit- und vora, en án hennar á mann- félagið sér enga framtáð. Við í landi þessu miklumst af því að við séum löghlýðið og mannúð- legt fólk. Við erum undir húð- inni -ekki minstu vitund betri en aðrir, en við höfum notið friðar og öryggis í langa tíð, sem að nú hefir verið rofið. Það getur orðið 'langur tími þar til að jafnvægi kemst á hjá okkur aftur, en það er ekki þar með nauðsynlegt að halda að við séum orðnir úr- kynjaðir. Ávextir stríða og ofbeldisverka eru meiri stríð og meiri ofbeldis- verk. Hatur mannanna er and- 'stætt réttlæti Guðs. Ef að menn- irnir leita friðar nær og fjær, þá náum við okkur aftur einhvern- táma. I millitíðinni eru merki sið- spillingarinnar mjög svo mikið áhyggjuefni. Eg tala ekki um hernaðarathafnir sem voru með ö'llu óhugsaníegar fyrir fjörutíu árum. En hinir sívaxandi hjóna- skilnaðir hljóta að vera hverjum rétthugsandi manni áhyggjuefni. Fyir kristna menn eru þeir ægi- legt hneyiksli. Victoría drotning leið aldrei neina persónu, sem skilið hafði við ektamaka sinn, við hirð sína. Á rákisárum hennar var fjármál- um ríkisins stjórnað með eins mikilli nákvæmni og varúð og ráðvandur umboðsmaður nú á dögum stjórnar eignum þeim, sem honum er trúað fyrir. Nú sýnast menn hafa þann ásetning, að sóa sem mestu af skattfé al- þýðunnar. Eg þókki til í litlu þorpi, þar sem þrjátíu og fjórum mönnurn er enn borgað 10 stpd. og 10 shilings á viku, til þess að vera á verði í sambandi við ó- vina sprengingar og aldsvoða; slíikt hið sama hefir máske átt sér stað um land alt. Stjórnmálin ganga kaupum og sölum í stórum stíl. Það var sú tíð, að orð og loforð Englendinga voru í heiðri höfð um heim allan. Nú berum við allir þjófsmark- ið. Öllu er stolið; jafnvel ljósa- perunum úr járnbrautarvögnun- um. I Cambridge sá eg auglýs- ingu frá lögreglunni um að hjól- hestum svo hundruðum skifti, hefði verið stolið þar, á árinu liðna. Sum af verkföllunum, sem gerð hafa verið í heimildarleysi, hafa ekki í eðli sínu verið neitt annað en tlraun til ráns-áhlaupa á mannfélagsheildina. Getur stjórnin gjört nokuð til að bæta úr þessu ástandi með löggjöf? Hún getur ekki komið miklu til leiðar. Það er enginn stjórnar- farslegur lífs-elixír til, sem getur framleitt dygðum prýtt líferni, úr hugsunarhætti, sem er þrot- inn að dygðum. En stjórnin hef- ir þegar hafist handa til þess að breyta þunga freistinganna. Breytingin mikla, sem á er orðin er sú, að Mammon hefir ekki lengur yfirráð yfir fé, til að ginna fólk. Auðmenn eru ekki lengur til á Englandi og verða ekki, að má- ske undanteknum nokkrum ráðs- mönnum hjá stór-verzlunarfélög- um og mönnum og konum, sem fram úr skara með að skemta fólki. Afleiðing breytingarinnar er þegar sýnileg. Unga fólkið okkar og þegar eg tala um ungt fólk, á eg við það af æskufólki voru, sem tilheyrir sömu stétt í mannfélaginu og eg — hugsar ekki fyrst og fremst um peninga. Það giftir sig án þess að á heim- anmund sé minst, byrjar búskap sinn í húsakynnum, sem eru ein- lyft með þremur og fjórum her- bergjum, kaupa sér Baby Austin bifreið til að, byrja með. Önnur börn fara á eftir. Æskufólkið á Englandi vill ekki lifa í barn- lausu.hjónabandi. Vængir einnar af dauðlegustu syndum mannanna, ágirndarinn- ar hafa verið klipptir. Tilbiðj- endur gullkálfsins hafa snúið við honum baki, en hann hefir fé- laga, sem geta legið í leyni fyrir oikkur. Chaucer nefndi höfuð- synd klaustranna Acadia, sem meinar “deyfð”, en sem virkilega meinar alment skeytingarleysi. “Það er ekkert nýtt; enginn á- reiðanlegur sannleikur til, svo þetta eða hitt gerir ekkert til.” Þessi afstaða getur orðið til þess að kollvarpa kenningu sósíalista um alþýðu-eignarréttinn. Eins oð Tíberíus keisari spáði: “Iðn- aðurinn verður dottandi óbeit manna að vinna eykst þegar eng- inn hefir neitt að óttast, eða eftir neinu að vona frá einstakl- ings atorkunni. Allir reiða sig á framfærslu frá öðrum, verða lat- ir og linir og að'síðustu ómagar ríkisins. Það verður ekki mikið um framsókn þegar í sLíkan blindings leik er komið. Huxley og Lipmann — allir okkar mestu spámenn nú, eru leikmenn og kemur öllum sam- an um að sinnaskiftin verði að koma innan að frá hverjum ein- staklingi. Það er auðvitað eins og Carlyle bendir á, kenning Krists. Mótsetning við þá kenn- ingu er kenning Rousseau, og svo verður niðurstaðan, afskiftaleysi. Þeir ta'ka það fram að þeir undanskilji þetta afskiftaleysi frá trúarbragðaflokkum, kirkju- dei'ldum, flokkum, sem fyrir sér- málum berjast eða þjóðræknis- tilfinningu, eigi aðeins við af- skiftalaust fólk, sem enga stað- festu eigi. Huxley mundi segja ópersónulega hneigð til virki- legra verðmæta þess sem gott er, satt og fagurt og við trúum að Guð hafi opinberað mönnunum sjálfum sig í. Huxley lítur von- ar augum til Austurlanda — Ind- lands — að þaðan megi okkur vísdómur berast, en afskiftaleysi meinar ekki að hætta með öllu að hafa óhuga fyrir jnönnum og málefnum. Að hverfa frá og hall- ast svo að aftur, er lífsvegur vor, en ekki fráhvarf eingöngu. iimniiiiBiiinniffiiiiiiiiiiiiiiiiiminiiiiiiiiiiiiinniHiniiiiiiiiiiinniHiiiiininnimiiiBiiiiiiiiiiiimBiiiiiiiimiiiiiiiiiniiiiiiiiiniiiniiifflHininiimiiBiBiwinmniwiiiiniinwi....................... iiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiy AÐ FÖLVUÐUM FJÖRUTÍU ÁRUM Engu vænna veit eg af í vorum hjartaslögum, en það sem að æskan gaf okkar morgundögum. Ó hve eg vildi’ að eg ætti einn einasta dag af þeim fagnandi sæg, er óðfluga æskuna kætti, og áttum við draumana og vorgullin næg. Við hoppuðum, lékum og hlóum um holtin og fjörurnar léttstígan dans, og tíndum í túnum og móum og tröðunum fífla og sóleyja krans. Við klifuðum urðir og klungur og könnuðum heiða og landjökla sýn, og svifum um svellaðar bungur með sigrandi þrá móts við kvöldroðans lín. í feluleik okkur við földum % und f jörustein, bökkum og álfkonu hól við glampa frá gullinu á öldum er glóði við skínandi miðnætursól. Ó, hve það var dýrlegur dagur og draumarnir margir og víðsýnin ber, og himininn heiður og fagur og hreinn eins og bjartasta morgunsins er. Við sköpuðum okkur þar skjólin er skrýddu með vonum hinn komandi dag og buðu okkur börnunum jólin með bjartari drauma og fallegra lag. En er það þá gleymt þetta gengna, og gleðinnar saklausa hamingju full? Og alt þetta fullorðins fengna svo fagurt að máð sé hvert barnæsku gull? Nei! Enn í þeim ódáins lundum jafn indælli er gróður og skrúðugri laut, við eigum þar ennþá á stundum að enduðu dagsverki, svalandi skaut. Að fölvuðum fjörutíu árum er fagurt að litast um minnanna heim. Ef sinnið er þungt og í sárum er sólskinið bjartast og hlýjast hjá þeim. — En ó, hve eg vildi að eg ætti einn einasta dag af þeim fagnandi sæg, sem óðfluga æskuna kætti með óskir og fyrirheit mannsæfi næg. T. T. KALMAN. HARPAN HEYGÐ Eg er búinn! harpan heygð! Tónavaldið tekur enda. Tökuljóðin heiman venda. Kvöldin inn í blámann benda, Dísin flúin. - - Harpan heygð. Þú varst söngvinn þröstur góður‘ Þá var glatt um vorsins rjóður. Nú á grein þú hnípir hljóður harpan feigð. Varstu líka léttur fundinn? Ljóðin fögru tímabundin? Liðin sæla söngva stundin, sælan búin, — harpan heygð. T. T. KALMAN. ...............................................llilllllllllllllllllilllllllllliilllHIIIMHB^ iiiiliðiiiillðl..............Illlll................................................. .......................... KLUBBAR, KIRKJUR, VERSLUNARFÉLÖG! Látið EATON’S Kaupdeildina velja verðlaunahluti fyrir ykkur Það eru soddan snúningar við að kaupa, búa um og merkja fjölda af verðlauna bögglum, þegar um fjölmennar útiskemtanir er að ræða, —að vita hvað bezt á við og svo að finna tíma til að kaupa það. En þar kerr.ur kaupdeild EATON’S þér að góðu liði. Sendið okkur aðeins eintak af skemtanaskrá yðar, aldur þátttakendanna, o. s. frv. Látið okkur vita hvað miklu fé þið viljið eyða og trúið okkur svo fyrir öllu hinu. —Útiskemtana kaupdeildin á sjötta lofti. T. EATON C? LIMITED

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.