Lögberg - 01.08.1946, Blaðsíða 5
mun. Mun það ekki vera lögmál
allrar þróunar, að einstaklings-
eðlið leysist meir og meir úr
viðjum hópmennskunnar, unz
allir fá notið frelsis þess, sem
þeim var ætlað, er höfðu með
siðferðisþreki sínu áunnið sér
þann rétt.”
í lífsskoðunum sem listskoðun-
um fer Einar því sínar eigin göt-
ur, en þó að hann fylgi þar eigi
neinum hefðbundnum trúar-
bragðakenningum, fær engum
diulizt, sem þessa bók hans les,
eða kynnist listaverkum hans,
hve trúaður maður hann er, í
beztu og fegustu merkingu þess
orðs, og gagntekinn af kenning-
um Krists.
Lotning höfundar fyrir Kristi
og lífrænum boðskap hans er
fagurlega skráð á spjöldum þess
arar bókar, en opinberast þó enn
betur sem sterkur undirstraum
ur göfugrar og víðfeðmrar lífs-
skíoðunar iistamannsins, það
heita hjarta, sem slær að baki*
hennar. Hann er sannfærður um
það, að mannkynið komist aldrei
út úr “þessu villugjarna völund-
arhúsi,” fyrr en það hefir tekið
sér Krist að leiðtoga og konungi.
En þá sannfæringu sína orðar
hann, meðal annars, á þessa leið:
“Eins og áður er nefnt, þykist
eg ekki í neinum efa um það, að
á meðan mannkynið ekki hefir
uppalið með sér hið sanna Krists-
eðli, er öll barátta fyrir auk-
inni heimsvelferð og til allrar
lífsþróunar, hverju nafni sem
nefnist, algjörlega til einskis. Án
hins guðdómlega lífs mannsins
verður aldrei að eilífu neins sig-
urs að vænta, og þar sem hið
guðdómlega líf er grundvöllur
alls lífs, ætti þetta ekki að vera
torskilið fyrir neinn, og engin
menning, sem því nafni getur
nefnzt, getur verið möguleg án
þess. Ef ekki er tekið tillit til
þess, þýðir það aðeins aukna
HAMINGJUÓSKIR til íslendinga á
þjóðminningardag þeirra á Gimli
Með þökk fyrir greið og góð viðskifti og vinsemd
Lyfja-afgreiðsla ábyggileg og greið.
JACK ST. JOHN
DRUG STORE
894 Sargent Avenue Sími 33 110
(Við Lipton St.)
EG ÓSKA ÍSLENDINGUM TIL BLESSUNAR
MEÐ ÍSLENDINGADAGINN Á GIMLI
5. ÁGÚST 1945
United Stores
HAROLD BJARNASON
kaupmaður
— Við sjáumst á Gimli —
P H O N E 2 8
G I M L I, M A N.
Höndla General Motors bifreiðar og
flutnings eða kassabíla.
GIMLI MOTORS
LIMITED
Allar tegundir af akuryrkjuverkfærum
CLETRAG CRAWLER TRACTORS
WESTINGHOUSE ELECTRICAL
APPLIANCES
Fljót afgreiðsla, vingjamlegt viðmót.
CENTRE STREET
Gimli, Man. — Sími 23
Riverton, Man. —^ Sími 7
7. S. MARTIN, forstjóri
sorg og sár og þrælkun í blindni
óendanlega. Því meir sem
mennirnir ásælast hver annan,
því fátækara verður lífið og
heildin yfirleitt; því meira sem
einstaklingurinn styrkir sinn hag
á kostnað annars, því fátækari
verður hann og aðrir i framtíð-
inni, að undanskilinni þeirri
bitru og dýrkeyptu reynzlu, sem
hann verður síðar meir að ganga
í gegnum og þola.”
Þó að menn verði að sjálf-
sögðu að kynnast lífsskoðunum
höfundar í heild sinni til þess
að átta sig á þeim og meta þær
til fulls, gefa ofannefndir út-
drættir nokkra hugmynd um
það, hve merkilegar þær eru,
djúpstæðar og vekjandi tál um-
hugsunar. Þessi bók hans skipar
einnig að ýmsu leyti sérstöðu í
íslenzkuim bókmenntum, því að
það er hverju orði sannara, sem
Sveinn ritstjóri Sigurðsson segir
um hana í fyrrnefndum ritdómi
sínum:
“Nokkrir merkir Islendingar
hafa bæði fyrr og síðar ritað æfi-
minningar sínar og gert það í
svipuðu formi og Minningar
Einars Jónssonar birtast í. Sár
fáir íslendingar hafa aftur a
móti opinberað í riti hugsana-
og sálarlíf sitt, baráttu sína fyrir
mótaðri lífsskoðun, eins og gert
er í Skoðunum. Við lestur þeirr
ar bókar minnist maður ósjálf-
rátt manna eins og Ágústínusar
kirkjuföður og Játninga hans,
og af hinum fáu innlendu ritum
svipaðs eðlis einna helzt Sþgu
hugsunar minnar eftir Brynjólf
Jónsson frá Minnanúpi.”
Uim stíl höfundar í þessari síð
ari bó'k hans má yfirleitt hið
sama segja og um þá hliðina á
fyrri bók hans, nema hvað hið
hugsana-þr.ungna efni geri mál-
farið á köflum í síðari bókinni
dál'ítið þungstígara, enda er hér
höndum farið um þau mál, sem
krefjast nokkurrar andlegrar á
reynzlu, vilji menn fylgja hugs-
anaferli höfundar, svo að fullu
gagni komi; en hverjum, sem
það gerir, mun lesturinn marg
borga sig í dýpri skilningi á til-
verunni og víðari útsýn yfir
hana. Hitt er einnig jafn satt,
að með að lesa þessar bækur
höfundar gaumgæfilega, eins og
þær verðskulda að vera lesnar,
glöggvast mönnum skilningur á
list hans, eins og hún birtist í
hinum táknrænu snillingsverk-
um hans.
| En fjölmörgum ágætum mynd-
um þeirra, auk margra annara
mynda, eru báðar bækumar
prýddar, og ytri frágangur þeirra
með þeim hætti, sem hæfir slik-
um merkisbókum, Bókfellsútgáf
unni til verðugs sóma.
W. J. L 1 N D AL
Beiðni um borgarabréf
FIMTA GREIN.
skrifarans sem afhendir það svo
umbiðjanda, þegar hann hefur
svarið trúnaðar eiðinn. Sem
stendur, tekur dómari eiðinn í
opnum rétti.
1942 var stjórnarákvörðun
samþykkt, sem gerði það nauð-
synlegt fyrir umbiðjanda um
Ferðamaður kom í þorp eitt,
þar sem friður, ró og fegurð
I ríkti; ávarpaði aldraðan mann
sem varð á vegi hans og mælti:
“Það er vissulega satt, að helm
ingurinn af fólkinu veit ekkert
I um lifnaðarháttu hins helm-
| ingsins.”
Aldraði maðurinn svaraði:
“Ekki hvað fólkið í þessum bæ
snertir, herra minn. — Ekki
| fólkið í þessum bæ.”
•f -f f *
Drengur einn ungur fékk að
fara með föður sínum á fund
öldungaráðsins. Þeir settust með
öðrum gestum á áhorfendapall-
ana. Drengnum varð starsýnt
á öldungaráðið og athugaði það
um stund, svo snéri hann sér að
föður .sínum, benti á mann niður
í salnum og spurði: “Hver er
þessi herramaður?” “Það er
prestur öldungaráðsins,” svaraði
faðir drengsins.
“Biður hann fyrir öldungum
(Senators),” spurði drengurinn.
Faðir drengsins hugsaði sig um
í mínutu, eða tvær og svaraði
svo: “Nei, drengur minn. Þegar
að hann kemur inn í öldunga-
ráðssalinn, lítur hann á öldung-
ana, og biður fyrir fólkinu.”
f- -f f-
Fólk, eins og gufubátar, hafa
I hæst þegar þokan grúfir yfir.
Það greinist í tvennt. Fyrri
parturinn áhrærir persónuleg
skilyrði og heimilisfang, sem
krafist er af umbiðjanda um
borgarabréf. Hinn parturinn er
um þá aðferð sem fylgja ber, þar
á meðal þá viðhafnarsiði sem
eru viðhafðir þegar umbiðjanda
er afhent borgarabréfið.
•
Fyrri venjur.
Samanburður á venjum fyrir
og eftir 1914, ætti að vera gerður.
Áður en lögin frá því óri gengu
í gildi, var mjög auðvelt að fá
borgarábréf, ef skilyrðum inn-
flutningalaganna um heilsu, o.
þvl. var fullnægt; eina skilyrðis
ins sem var krafizt, var þriggja
ára vera í Canada. Aðferðin var
mjög einföld, svo einföld, að
það gat leitt til sviksamlegrar
brúkunar. Hollustu eiðar og eið-
ar um heimilisfang, voru svarnir
fyrir eiðtöku umboðsmanni, frið'
dómara eða öðrum, sem rétt
höfðu til að taka eiða. Þetta er
lík aðferð og viðhöfð er þegar
svarin er yfirlýsing, eða vottorð.
Maðurinn sem tók eiðinn, skrif-
aði undir vottorð sem var sen.t
til réttarskrifara hlutaðeigandi
sýsluréttar. Listi yfir nöfn allra
umbiðjenda var lagður fram til
sýnis á skrifstofu réttarskrifar-
ans í þrjár vikur, og ef engin
mótmæli voru lögð fram á þeim
tíma, var borgarabréfið veitt.
Þetta meinti, að allir sem höfðu
verið löglega þrjú ár samfleytt
í Canada, gátu fengið borgara
bréf og orðið brezkir þegnar.
Þess má geta, að á þeim timum
voru engin ákvæði um aftur
köllun borgarabréfs.
1 lögunum frá 1914, sem eru,
sem stendur, gildandi lög, eru
skilyrðin strangari og reglurnar
formbundnari. Verutíminn hef-
ur verið lengdur, og tveggja per-
sónulegra skilyrða bætt við: Að
umbiðjandi hafi óskert mann-
orð, og að hann sé sæmilega að
sér í ensku eða frönsku máli.
Beiðnin verður að vera til sýnis
í þrjá mánuði, og umbiðjandi
verður að koma persónulega fyr-
ir dómara, nema hann sé hindr-
aður af góðum og gildum ástæð-
um. Hann er þá yfirheyrður af
dómaranum. Fram til þessa hef-
ur yfirheyrslan, að mestu leiti,
verið takmörkuð við þekkingu
umbiðjanda á ensku eða Frönsku
Engrar skýrslu um mannorð hef-
ur verið krafizt, nema skýrslu
sjálfs hanns í umbeiðninni. Ef
dómarinn er ánægður með svör
hans, gefur hann þann úrskurð
að umbiðjandi sé hæfur og vel
fallinn til að gerast borgari, og
hafi þau skilyrði sem krafizt er
Þessi úrskurður er sendur ráð
gjafanum, sem gefur borgara
bréfið, sem svo er sent til réttar
borgarabréf, að leggja fram yfir-
lýsingu um ætlun.sína, einu ári
áður en hann sendir inn beiðn-
ina. 1 yfirlýsingunni, sem er eið-
svarir\, se,gir umbiðjandi að það
sé áform sitt að verða brezkur
þegn, og taka sér stöðuga fram-
tíðar búsetu í Canada, og að
hann ætli, áður en hann gerist
borgari, að segja upp ho’llustu
sinni við það ríki, hvers þegn
eða borgari að hann var.
Beiðni um borgarabréf undir
nýju lögunum.
Það sem að framan er sagt, er
(Framih. á bls. 24)
PERTOATlEnTS
PAHEYRÐ KOSTABOÐ I
HARSNYRTINGU
Hin nýja
“ALERT” $rt.50
WAVE A
Innifelur hárþvott og greiðalu
Simi 97 703
EINSTAKT TILBOÐ
RJÓMA-OLtU $3.50
WAVE ^
Fullkomin $5 virði
Opið til kvelds laugardaga
Professional Operators
nu-FASHion
327 Portage — Gegnt Eaton’s
GREETINGS . .
The Winnipeg
Cabinet Factory
LIMITED
EVERYTHING 1N STORE FIXTURES
WINNIPEG
MANITOBA
Blggar Bros
Limited
HIGHWAY FREIGHTING
FUEL DEALERS
LOCAL CARTAGE
425 GERTRUDE AVE., PHONE 42 844
Reg. Bluebird Diamond
and Wedding Rings
Bulova Watches
1847 Silverplate
Marriage Licenses Issued
Adorna Jewellery
Wm. Rogers Holloware
Community Plate
Souveniers
Phone 86
G. H. THORKELSON
P. O. Box No. 188
66 FIRST AVENUE
GIMLI, MAN.