Lögberg - 01.08.1946, Blaðsíða 9

Lögberg - 01.08.1946, Blaðsíða 9
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. ÁGÚST, 1946 25 LIFI FEGURÐIN ! (Saga af njósnara). Fegursta kona í heimi (að dómi allra þeirra, sem sáu hana) hoppaði í failhlíf út úr rússneskri flugvél og lenti í skógi nálægt Helsinki 1942. Saga hennar var þess eðlis, að ekki var hægt að segja hana fyrr en eftir að stríð- inu lauk. En það atvikaðist svona: Eitt vorkvöld í annari finnsku styrj- öldinni við Rússa, kom ljómandi falleg kona, sem talaði ágætlega finnsku, til frú Helle Vuolijoki, sem á heima á bæ, skammt fyrir norðan Helsinki. Frú Vuolijoki er þekktur leik- ritahöfundur og ein af leiðtogum róttæka vinstriflokksins. Það var hún, sem fyrst komst í talfæri við rússnesku fulltrúana í Stokk- hólmi meðan stóð á vetrarstríð- inu milli Finna og Rússa 193'—’40 og sá fundur varð til þess að vopnahlé komst á. Frúin, sem er 59 ára og veitir finnska ríkisútvarpinu forstöðu, vissi fljótlega deili á gestinum og var glöð yfir að sjá hana. Þetta var dóttir gamals vinar hennar, Santeri Nuorteva, en hann hafði verið formaður sendinefndar þeirrar, sem þáverandi kommún- istastjórn Finna gerðu út til Bandaríkjanna 1918. Þegar finnsku kommúnistunum var steypt af stóli flýði Santeri til Rússlands með fjölskyldu sína. Þessi fallegi njósnari heitir Kerttu Santeri. Hún hafði fréttir að færa frú Vuolijoki frá hinum mörgu vinum hennar í Rúss- landi, sem líka þráðu frið milli landanna. Kerttu fór nú til Hel- sinki, en frú Vuolijoki til Stokk- hólms til að hitta þar rússneska sendimenn. Lögreglumenn eltu hana á röndum og þegar hún kom heim aftur var hún hand- tekin á járnbrautarstöðinni í Helsinki. Sat hún inni í tvær vik- ur, en af því að ekki tókst að hafa neitt upp úr henni var hún látin laus aftur. Kerttu var látin vita að lögreglan óskaði ekki eftir henni, og svo hvarf hún. Þremur mánuðum síðar heim- sótti Kerttu frú Vuolijoki í Hel- sinki. Þær skiftust á fréttum og svo hvarf Kerttu aftur í mán- aðar tírna. Einn góðan veðurdag var hún tekin föst. Hún hafði sent fötin sín í hreinsun og gleymt að taka úr vasanum öskju, sem varahlut- ar til útvarpstækis voru í. 1 maí 1943 fór lögreglan að hramsa Finna, sem höfðu haft samband við fallegu stúlkuna með svörtu augun.” Frú Vuolijoki og fram- kvæmdastjóri einn, sem ekki má nefna að svo stöddu, voru hand- tekin. — Manno Dekkala, her- málaráðherrann, var líka riðinn við þetta mál, en hann var ekki handtekinn. Hann lét síðar af embætti. Nú er hann fjármála- ráðherra í nýju stjórninni. Því var haldið fram í máli framkvæmdarstjórans, að Rúss- um væri kunnugt um að hann stæðist illa fallegar konur, og að hann ætti búgarð fyrir utan Helsinki. Þangað hefði Kerttu ætlað að komast þegar hún hopp- aði út úr flugvélinni, en það hefði mistekist. Idestam hét verjandi fram- kvæmdarstjórans. “Eg sá þessa stúlku í nóvember, nokkrum dögum fyrir dóminn,” sagði hann, “og eg gat varla dregið andann, svo falleg var hún.” Hann spurði hana hvort hún óskaði ekki að fá sér skipaðan verjanda, en hún svaraði: “Það duga engir verjendur gagnvart Gestapó- réttlætinu.” Kerttu var rólegust allra þeirra ellefu, sem ákærð voru fyrir njósnir. Við dauðadóminum, “með rétti til möguleika fyrir náðun, ef hún segði frá öllu,” sagði hún: “Eg er liðsmaður í rauða hernum, og eg bið aldrei fjandmenn mína um náð!” Frú Vuolijoki var dæmd i æfi- langt fangelsi en framkvæmdar- stjórinn sýknaður . Hinir voru ýmist sýknaðir eða fengu væga refsingu. Kerttu sat í gæsluvaðrhaldi í marga mánuði. Þó að hún neit- aði enn að tala, urðu lögreglu- fyrirliðarnir æ fíknari í að “yfir- heyra” hana en að fullnægja dauðarefsingunni. Frú Vuolijoki telur að Kerttu hafi verið “drep- in með dálæti”. Síðar var hún flutt í annað fangelsi, þar sem fangaverðirnir voru kvenfólk og ekki haft vín um hönd. En einn daginn fékk hún “taugaáfall” og fór að segja ferlegustu njósnara- sögur. Var hún þá send í gamla fangelsið aftur. Skáldkonan, sem kallar þenn- an atburð “mesta harmleik æfi sinnar,” álítur að Kerttu sé 34 ára. Verjandinn telur aftur á (Frh. á bls. 26) Sinclair’s Tea Toom ámar öllum íslendingum heilla og góðs gengis á þjóðminningardegi þeirra á Girnli 5. ágúst. SlNCLAIR’S TEA %00M SELKIRK, MANITOBA • BESTU HAMINGJUÓSKIR MEÐ ÍSLENDINGADAGINN Á GIMLI 1946 © * McDonald-Dure Lumber COMPANY, LIMITED “One Piece or a Carload” PHONE 37 056 \ 812 Wall Slreet Winnipeg. Manitoba SHRAGGE METALS LTD. “We Buy and Sell Scrap Material of Every Description” also Second-Hand Machinery - Pipe - Shafiing - Rail Reinforcing Iron - Boilers and Flues - Belling Dealers in Cotton and Wool Waste - Lead Fish Net Sinkers • Manufacturers of Shragge's Kleen Kwality Wiping Cloths and Cheese Cloth Dusters PHONES 57 101 - 57 102 WINNIPEG, MAN. HugheiJar árnaðaróskir til íslendinga á þjóðminningardegi þeirra á Gimli 1946 Sjúkravagnaþjónusta ávalt á reiðum höndum LANGRILLS FUMER4L HOME W. F. LANGRILL 435 Eveline Street Selkirk, Manitoba THE MANITOBA exists specifically to train young men and women for the duties and re- sponsibilities of commercial life and to assist them in obtaining profitable positions with responsible firms where there is opportunity for advancement. THE COURSES AT THE MANITOBA make it possible for every student to be separately considered and individually advanced. Each student is permitted to progress as rapidly as his personal ability will allow. REGISTRATION AT THE MANITOBA may be made at any time. Classes are held the year ’round in both Day School and Evening School. AT THE MANITOBA, trained, experienced executives will help you select a course. When you enroll, trained, experienced teachers will give you personal, courteous instruction. Wrlíc, Call or Phone for our Prospectus ! R. W. MacLEAN, Principal 300 ENDERTON BUILDING — 334 PORTAGE AVENUE (4 Doors West of Eaton’s) Telephone 98 518 The Bnsiness College of To-Norrow TO-DAY! flniTOBfl comm€RcmL COLL€G€ I

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.