Lögberg - 06.02.1947, Blaðsíða 8

Lögberg - 06.02.1947, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. FEBRÚAR, 1947 Or borg og bygð Prentnemi óskast íslenzkur piltur á aldrinum frá 15 til 18 ára með nokkra und- irstöðuþekkingu í Menzku, getur fengið aðgang að prentnámi nú þegar, verður að hafa lokið að minsta kosti 10. bekkjar barna- skólaprófi. The Columbia Press, Ltd. 695 Sargent, Winnipeg J. Th. Beck, forstjóri. ♦ ÞAKKARÁV ARP Við undirrituð viljum hér með votta hið innilegasta þakklæti til þeirra vina okkar og vanda- manna, er komu saman á 'heimili okkar, laugardagskvöldið 25. jan s.l. til minningar um 60 ára giftingarafmæli okkar hjóna og sæmdu okkur gjöfum Ennfrem- ur þökkum við þeim mörgu fjar- verandi vinum, er sendu heilla- óskaskeyti og gjafir. Síðast en ekki sízt, viljum við beina þakklæti okkar til Mrs. Sigríðar Sigurðson og Mrs. Ellis- ton^ er stóðu fyrir þessum mann- fagnaði og báru mestan hluta af hita og þunga dagsins. Hér bresta orð til að lýsa til- finningum okkar, sem vera skyldi. en við vonum, kæru vinir, að þið vitið hvað við vildum sagt hafa. Einu sinni enn: Kærar þakkir. Mr. og Mrs. Eyjólfur Sveinsson. 562 Victor Stræti. ♦ Hið 28. ársþing Þjóðræknisfé- lags Islendinga í Vesturheimi, fer fram í Good Templara húsinu á Sargent Avenue í Winnipeg dagana 24., 25. og 26. febrúar, og hefst með þingsetningu á mánu- daginn þ. 24., kl. 10 f.h. — Að- fkomandi til ræðuhalda í sam- bandi við þingið og samkomur þess verða þeir Valdimar Björn- son frá Minneapolis, Carl Free- man frá Fargo, og dr. Richard Beck frá Grand Forks, N.D. ♦ The annual meeting of the Jon Sigurdsson Chapter, I.O.D.E. will be held in Board Room 2, Free Press Bldg., at 8 o’clock on Thursday Eve., February 6th Mrs. E. C. Cowan Provincial President will be our guest Members are urged to attend. ♦ Hið eldra kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar heldur fund samkomusal kirkjunnar á fimtU' daginn þann 6. þ. m., kl. 2.30 e.h ♦ Mrs. Birgitta Halldorson-Peter- son frá Park River, N.Dak.^ var stödd í borginni í viikunni, sem leið. -f Mrs. Maria Danielson, 84 ára gömul, andaðist 23. þ. m., að Gimli. Daniel maður hennar dó árið 1936. Fjótir synir lifa móð- ur sína: Guðjón, í Árborg; Hettgi, búsettur skamt fyrir vestan Gimli og Benjamín og Magnús í Árboxg. — Hún var jarðsungin frá lútersku kirkjunni á Gimli, 30 þ. m., af séra Skúla Sigur geirsyni. -t- This Is News! The Amateur Concert being sponsored by the Gimli Board of Trade, in the drive for funds for a “Mobile T. B. Clinic” will be broadcast over CJOB (1340), from the stage of the Gimli Theatre, at Gimli, on the 8th of February, frorn 10:10 to 11:,00 p.m. The concert begins at 8 p.m. Come and vote for your favorite con- testant; the ten highest perform before the microphone. Support a worthy cause. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Valdimar J. Eylands, prestur. Heimili: 776 Victor Street, Sími: 29 017. Harold J. Lupton, organisti og söngstjóri. 308 Niagara Street. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: á ensku kl. 11 f. h., á íslenzku kl. 7 e. h. Sun'hudagaskóli kl. 12.15 e. h. Söngæfingar: Yngri flokkur- inn—á fimtudögum. Eldri flokk- urinn — á föstudögum. ♦ Gimli prestakall— Sunnudaginn 9. febr. messa á Husavick, kl. 2 e. h.; messa á Gimli, kl. 7 e. h.; og við þessa messu fer fram minningarathöfn fyrir F.O. Freeman Kristinn Guðmund Johnson, sem lét lífið í loftárás yfir Siam 9. febrúar, 1945. Allir boðnir velkomnir. Skúli Sigurgeirson. + Lúterska kirkjan í Selkirk— Sunnudaginn 9. febrúar— Sunnudagaskóli kl. 11 árd- íslenzk messa k!l. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson. The Junior Ladies Aid of the First Lutheran Churoh will hold a Telephone Bridge on the even- ing of -Tuesday, February llth. Wie Conveners are: Mrs. B. H. Olson and Mrs. J. Eager. Heimilisiðnaðarfélagið heldur fund á miðvikudaginn þann 12. þ. m., kl. 8 e. h., að heimili Mrs. Oharles Nielsen, Ste. 19 Acadia Apts. -f ÁRSFUNDUR The Columbia Press Limited, verður haldinn á fimtudaginn þann 27. febrúar; 1947. Hluthöfum verður tilkynt bréflega um stund og stað. ♦ Þann 15. janúar síðastiiðinn lézt að heimili dóttur sinna, Mrs. W. H. Dermody, Ste. A Chelten- ham Court, Langside Street hér í borg, Mrs. Kristín Thorsteins- son; 'hún var fædd þann 14. sept- ember 1865 í Markúsarseli í Suð- ursveit; auk eiginmanns síns, lætur hún eftir sig 5 börn og 2 stjúpsonu. Rev. Martin, prestur við Grace kirkjuna í þessari borg, sýnir í Fyrstu (lútersku kirkju að kveldi þess 18. þ. m., 1600 feta filmu í litum, af Ástralíu, sem tekin var í nýlegri för hans þangað til lands; á undan sýningunni skemtir Mr. Alvin Blöndal með einsöng -f Látin er fyrir skömmu Mrs. Thorbjörg Johnson, kona Johns Johnson, Ste. 2 Broadway Place hér í borg; hún var jarðsungin frá Fyrstu lútersku kirkju af séra Valdimar J. Eylands. Síðastliðinn laugardag lézt Thórdur SóHm-undsson, er um mörg ár starfaði í þjónustu Win nipegborgar; hann hafði verið veill á heilsu síðustu æviárin: útför hans fór fram á miðviku- daginn undir íorustu séra Valdi- mars J. Eylands. -♦- Mr. Björn Ólafsson frá Dafoe, Sask., hefir dvalið í borginm nokkra undanfarna daga. Miðvikudaginn 18. desember 1946, voru gefin saman í hjóna- band þau Stefán Sigurðsson vertksmiðjueigandi í Blaine og ekkjufrú R. Fay Martin. Brúðguminn er sonur merkis- konunnar Sigriðar Paulson að Blaine, frá fyrra hjónabandi hennar, en brúðurin er af ’hér- lendum ættum. Að afstaðinni vígslu var setin vegleg veisla iheima hjá frú Sig- ríði Pau'lson og var hún aðstoð- uð af dætrum sínurn Dr. Ninnu, sem nú rekur sína eigin tann- lækningastofu í Bremerton, Wash. og Ólöfu, heima hjá móð- ur sinni, einnig Mrs. A. Daniél- son að Blaine. Framtíðarheimili þessara ný- giftu hjóna verður að Blaine, þar sem Stefán hefir keypt ei-tt hið myndarlegasta hús Blaine-bæjar. Séra Guðm. P. Johnson fram- kvæmdi hjónavígsluna. Ham- ingja og blessun Guðs veri með þessum myndar hjónum alla æfi. —G P. J. Þiiðjudaginn 7. janúar þessa árs, urðu þau góðu hjón Mr. og Mrs. Halldór Jóhnson að Blaine, Wash. fyrir þeirri sáru sorg, að missa sitt eina barn John Theo- dor, 8 ára að aldri, hann hafði verið alímikið veikur hin tvö síðastliðnu ár af innvortis sjúk- dómi sem leiddi hann til dauða. Theodor litli var fjarska in- dæll drengur, bæði fallegur, góður og blíður í viðmóti. Hann var jarðsunginn föstu- daginn 10. janúar frá heimili for- eldra sinna og útfararstofu Mc- Kinney að viðstöddu mörgu fólki, eitt var það sem setti sér- stakan blæ á útför Theodors að 4 frændur hans á líkum aldri og hann var sjálfur, báru kistuna til grafar. Rev. E. P. Thomas og séra Guðm. P. Johnson jarðsungu. Við öll, sem þekkjum þessi vel- látnu hjón, Mr. Halldór Johnson og konu hans, samhryggjumst þeim innilega í þeirra miklu sorg. Nú er Theodor litli laus við veikindin, hann fagnar með englum Guðs í himinhæðum hjá Jesú Kristi, frelsara vorum, þvá hann trúði á Guðssoninn. “Horfum ei niður í helmyrkrið grafar hið svarta, huggun þar finnur ei dapurt og angurvært hjarta. Upp, uþp, mín önd, upp í Guðs sólfögru lönd, lifenda Ijósheiminn bjarta.” —G. P. J. Mr. Gunnar Eggertson, sonur Árna heitins Eggertsonar fast- eignakaupmanns og eftirliíandi ekkju hans frú Þóreyjar Eggert- son, söng við mikla hrifningu, einsöng við morgunguðsþjónust- una í Fyrstu lútersku kirkju síð- astliðinn sunnudag; hefir hann óvenju djúpa og karlmannlega oaritónrödd. The Earliesl Chicks PAY The Quickesi Reiurns Pariicularly when they are PIONEER "Bred for Produciion" CHICKS 37 of Good Chicks YEARS RECORD— Your Assurance iAH for Every year since 1910 more and more poultry raisers have built profitable poultry and egg produc- tion on tne solid foundation of Pioneer Chicks. Your 1947 produc- tion will be maintained at a high level, if you start your flock with Canada 4 Star Super Quality Approved R.O.P. Sired 100 50 100 50 14.25 7.60 W. Leghorns 15.75 8.35 29.00 15.00 W.L. Pullets 31.50 16.25 3.00 2.00 W.L. Ckls. 4.00 2.50 15.25 8.10 B. Rocks 16.75 8.85 15.25 8.10 N. Hamps 16.7* 8.85 26.00 13.50 B. Rocks Pull 29.00 15.00 26.00 13.50 N. Hamp Pull. 29.00 15.00 10.00 5.50 Hvy. Breed Ckls. 11.00 6.00 18.50 9.75 L. Sussex Pullets 96% acc. 1004» live arr. gtd. Ask for our NEW CATALOG Demand will be Btrong. Order Now. A small deposit will assure your priority. ueri & PIONEER ■mATCHERv** %Pimuaiis oni6M quautv ch/cks j//vci /s»o\ 416 I Corydon Ave. Winnipeg Mr. og Mrs. J. Jóhannsson frá Edmonton, komu til borgarinnar í vikunni, sem leið. Þrjú þúsund smálestir af hraðfrystum fiski til Bandaríkjanna í ár Með e.s. Brúarfoss, er fór í gærkvöldi áleiðis til New York, sendi Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna ca. 1000 tonn af hrað- frystum fiski til sölu í Banda- ríkjunum. Farm þenna sendir Sölumiðstöðin til umboðsmanns síns í New Yotfk, sem mun selja fiskinn víðsvegar um Bandarík- in. Hinn hraðfrysti fiákur er frá ýmsum hraðfrystihúsum, sunnan, vestan og norðanlands. Mestur hluti þessarar sendingaí' er þorskur og ýsa, en auk þess nokk- urar fleiri tegundir. Að þessum farmi meðtöldum hefir Sölumið- stöðin sent ca. 3000 tonn af hrað- frystum fiski til Bandaríkjanna. Umbúðir hraðfrysta fiskjarins Mjög er vandað til umbúða hi-ns hraðfrysta fiskjar, sem seldur er á erlendan markað. Fiskur sá, er seldur er til Bandaríkjanna, er pakkaður í pappaöskjur, en innan í öskjurn- ar eru fiskflökin sérvafin í cello- þhane-pappír. Öskj ur þessar eru af þrem stærðum, þ. e. 1.2 og 5 lbs. Þessar öskjur eru síðan látnar í stærri pappakassa, er hver innilheldur 50 Ibs. Þessar ytri umbúðir eru síðan girtar með járnböndum. Á meðan hraðfrysti fiskurinn var einkanlega seldur til Bret- lands, var honum paklkað í 7 Ibs. pafcka, vafða pergament-pappír. Og á yfirstandandi ári hefir næstum öllum fiski verið pakk- að í 7 lbs. umbúðir (að undan- töldum þeim, er seldur hefir ver- ið til Bandaríkjanna), þ. á m. fiskur, er fór til Rússlands. Á n.fc. ári verður gerð nokkur breyting á umbúðunum fyrir Evrópumarkaðinn, þannig að veru'legum hluta framleiðslunnar For Fast Service on DRY CLEANING DYEING - REPAIRING use Carry and Save Store In Your L#ocality or Phone 37 261 Perth’s 888 SARGENT AVE. Dagshríðar Spor Ný bók eftir GUÐR0NUH. finnsdóttur KOSTA í BANDI $3.75 EN ÓBUNDIN $2.75 er til sölu í Bjornjsonrs Book Sfore 702 SARGENT AVENUE WlNNIPEC Allir, sem keyptu “Hillingalönd” æ 11 u a ð eignast þessa bók. Pantanir afgreiðir einning GÍSLI JÓNSSON 906 Banning Street, WINNIPEG, MANITOBA verður pákkað í Vt. og 1 kg. pappaöskjur. Fiskurinn verður þó efcki vafinn á öskjurnar eins og gert er fyrir Ameríkumark- aðinn. Það, sem pakkað verður í pergament, verður að miklu leyti í þriggja kg. pökkum, en nokkuð mun Iþó verða framleitt í 7 lbs. pökkum eins og áður. Hefir það þótt heppilegra, að hverfa frá enskum þyngdareiningum, þar sem hér og á meginlandinu er vegið í kg. eða 500 gr. pundum. Ennfremur hefir komið í ljós að neytendur vilja fá fisfcinn á smá- umbúðum og þess vegna hefir verið ákveðið að pákka í Vz og 1 kg. öskjur, eins og að framan getur. Auk þess eru öskju-um- búðirnar mun þægilegri og enn- fremur Ihafa þær mikið auglýs- ingagildi. Gæði fiskjarins rómuð erlendis. Hraðfrysti fiskurinn er nú orð- inn ein helzta útflutningsvara þjóðarinnar Framleiðslugeta frystihúsanna fer stöðugt vax- andi. Ennfremur er stöðugt unn- ið að endurbótum og framför- um, hvað snertir umbúðir, verk- un og alía meðferð fiskjarins. Á erlendum mörkuðum líkar hraðfrysti fiskurinn hvarvetna vel, og ósjaldan berast Sölumið- stöðinni bréf frá neytendum (prívatmönnum) og þá helzt frá húsmæðrum úti í löndum, þar sem vörunni er hælt mikið. —Morgunbl. 12. des. Ertu hræddur við að borða ? Attu við að stríða meltingarleysi, belgtng og náblt? pað er óþarfi fyrir þig að láta slíkt kvelja þig. Fáðu þér New Discovery “GOLDEN STOMACH TÖFLUR.” 360 töflur duga I 90 daga og kosta $5.00; 120 duga I 30 daga, $2.00; 55 I 14 daga og kosta $1.00; Til reynslu, 10 centa dðs — fæst 1 öllum lyfjabúðum. TIL KAUPENDA LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU Frá því var nýlega skýrt i báðum íslenzku blöðunum vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 eindálka þumlunga, yrði framvegis reilknað 20 cents á þumlunginn; þetta er að visu ekki mikill tékju auki, en þetta getur dregið si-g saman og fcomið að dálitlu liði. Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindállka þumlungur. THE COLUMBIA PRESS LiMITED THE VIKING PRESS LIMITED ORÐSENDING TIL KAUPENDA LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU A ISLANDI: Munið að senda mér áskriftargjöld a< blöíunum fyrir Júnllok. Athugið, að blöðin kosta nú kr. 26.00 árangur- Inn. Æskilegast er að gjaldið sé sent I póstávlsun. BJÖRN GUÐMUNV8SON. Reynlmel 62, Reykjavlk. FUEL SERVICE . . . We invile you lo visit us at our new, commodious premises at the corner of Sargent and Erin and see the large stocks of coal we have on hand for your selection. Our principal fuels are Foothills, Drumheller, Greenhill Washed Furnace, Briquetles. Coke and Saskatchewan Lignite. We specialize in coals íor all types oí stokers. MC fURDY CUPPLY f Ó., LTD. V/BUILDERsL/ SUPPLIES and COAL Phone 37 251 (Priv. Exch.) H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AÐALFUNDUR Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafél-ags íslands, verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 7. júní 1947 og hefst kl. IV2 e.h. D A G S K R Á : I. Stjórn fólagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd- um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yiir standandi ári, og ásitæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1946 og efnahagsreikninig með at- hugasemdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skift- ingu ársarðsins. 3. Kosning fjögra manna í stjóm félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt félagslögum. 4. Kosninig eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á reglugjörð Eftirlaunasjóðs H.f. Eimskipafélags íslands 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgönðumiðar að fundinum verða afhentir hlut- höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félags- ins í Reykjavík, dagana 4. og 5 júní næstk. Menn geta fenigið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Reykjavík, 10. janúar, 1947. STJÓRNIN.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.