Lögberg - 26.02.1947, Side 7

Lögberg - 26.02.1947, Side 7
7 Arskýrsla forseta . . . (Frh. af bls. 4) tveim mönnum frá Karlakór Is- lendinga í Winnipeg, þeim Stein- dór Jakobssyni, og Halldóri Swan. Tókst koma kórsins hið bezta. Vara-féhirðir félagsins, séra Egill H. Fáfnis á Mountain, talaði fyrir félagsins hönd á sam- sætum á Garðar og Fargo, og ef til vill víðar, en í veizlu, sem flokknum var haldin hér að skilnaði var fararstjóra hans af- hent skrautritað ávarp frá félag- lnu- Hefir það, og frásögn um komu kórsins að öðru leyti birst 1 vikublöðum vorum og vísast til þess þar. Vert er þess þó að geta hér, sem er almannarómur, að fraonkoma kórsins varð íslandi °g íslenzku þjóðinni beggja meg- ln hafsins til hins mesta sóma. Hljómurinn af söng þessara manna ómar í sálum þúsund- anna mörgu, sem á þá hlustuðu, en þó hvergi eins skært og inni- lega, eins og í hugum íanda þeirra á dreifingunni miklu. En menn hafa ekki aðeins kom- ið vestur um haf, frá Islandi, keldur hafa margir á meðal vor farið austur þangað, og sumir dvalið þar langvistum. Er oss kunnugt um þessa: Arna Helga- son, ræðismann í Chicago; Sig- Urð Sigurdsson, kaupmann frá Calgary og frú; Sigríði Benónýs frá Berkeley, Califomia; Gunn- laug Björnsson, sbrautmunasala fró Chicago, George Ostlund, fui’ltrúa og Mariíu Markan, konu ^ans, dr. Helga P. Briem, ræðis- mann ÍSlands í New York og frú °S dóttur, og Birgir Halldórsson söngvara, sem nú dvelur á Is- iandi. Flest af þessu fólki mun hafa verið í prívat erindagjörð- Urn, eða blátt áfram að skemta sér. En einstæð í sinni röð var Is- landsför þeirra ritstjóranna, hér 1 Winnipeg, og ræðismanns Is- lands, ásamt konum þeirra. Þessu fólki var sem kunnugt er boðið af ríkisstjórn íslands og Þjóðræknisfélaginu þar, að sækja ísland heim á s.l. sumri. Boðs- gcstimir komu til íslands að á- liðnu sumri; voru viðtökurnar Þar frábæhlega vingjarnlegar og höfðinglegar, og ferðin í heild sinni ógleymanleg. Grettir ræð- isrnaður hafði með höndum ávarp til íslenzku þjóðarinnar frá fé- iagi voru, sem hann flutti þar; einnig leysti hann af hendi ýms önnur þýðingarmikil erindi fyr- lr félagið. Báðir ritstjórarnir frafa ritað um ferðina í blöðin, og alt þetta fólk hefir margvíslegri fræðslu að miðla um land og þjóð. Hyggjum vér gott til þeirr- ar kynningarstarfsemi, sem ,þess- lr heiðursgestir Islands munu vinna á meðal vor, og er hún þeg- ar farin að bera nokkurn árang- ur. Undir samvinnumál við Island beyrir einnig bréf, sem Grettir ræðismanni barst nýlega frá Jóni Emil Guðjónssyni, fyrir bönd Bókaútgáfu Menningar- sjóðs og Þjóðvinafélagsins. Er Vestur-lslendingum með bréfi þessu boðinn 20% afsláttur á öll- urn bókum þessara útgáfufyrir- tækja, sem ekki eru áður upp- seldar, og einnig vilyrði fyrir flutningi bókasendinga, endur- gjaldslaust vestur um haf. Ber að þakka þannig auðsýndan hlý- bug frá hálfu útgefenda þeirra, sem hér um ræðir. Astæða er einnig til að víkja í þO'Ssu sambandi að bréfaskiftum aem farið hafa á milli dr. Beck’s annarsvegar, og Mentamálaráðs íslands og Þjóðvinafélagsins hins vegar, varðandi söfnun sögu- gagna og þjóðlegs fróðleiks vest- an hafs. Er þessum málsaðilum a Islandi áhugamál að bjarga frá glötun sendibréfasöfnum frá ætt- landinu, og öðrum skrifuðum fróðleik. sem kynni að geymast 1 fórum manna hér. Villl forseti hUnna á, að í þessu máli er sér- stök miLliþinganefnd starfandi frá ári til árs, og ættu menn að na sambandi við þá sem þá nefnd skipa, ef þeir vita um eitthvað LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. FEBRÚAR, 1947 af þessu tagi, sem menn kynnu að vilja láta af hendi. Þá er ekki ófyrirsynju að minn- ast á það, að enn hefir enginn Vestur-lslendingur notað hið glæsilega tækifæri, sem H'áskóli Islands hefir boðið, og enn stendur, um styrk til dvalar og náms á Islandi fyrir námsmanh eða mær héðan að vestan. Upp- haflega var styrkurinn eingöngu bundinn við fyrirhugað norrænu nám við Háskólann, en nú mun kostur á að fá þau ákvæði rýmk- uð svo fleiri námsgreinar geti komist að, ef Þjóðræknisfélagið og Vestur-lslendingar óska þess. Á fundum stjórnarnefndar hefir það oft verið fært í tal, að samvinnan milli vor og Islands sé um of einhliða, að eitthvað ákveðið þurfi á móti að koma frá vorri hálfu hér. Rætt hefir verið um möguleikana á því að bjóða einhverjum góðum gesti að heim- an til sumardvalar hér, og ferða u'm bygðir vorar. Vitanlega er hér um svo stórt mál að ræða að nefndin getur ekki ein úr því skorið. Væri því æskilegt að þetta mál væri tekið til umræðu á þinginu, svo vilji fólks komi í ljós í þessu efni. Til samvinnumála við Island má ennfremur telja, að fyrir til- stilli Grettis Jóhannssonar ræð- ismanns í samvinnu með Cana- dian Broadcasting Corporation, var kveðja á hljómplötu, frá Þjóðræknisfélaginu og Vestur-Is- lendingum, eða í nafni þeirra, send útvarpsstöðinni í Reykja- vík, og var hún spiluð þar á gamlársdagskvöld. Á plötunni voru, fyrst nokkur ávarps og kynningarorð frá ræðismannin- um, tvö lög sem^frú Pearl Thor- ólfsson Johnson söng með undir spili bróður síns, Frank Thor- olfsson’s, og gvo stutt ávarp frá forseta. Ávarp þetta er prentað í Tímariti félagsins sem nú er ný- útkomið. Um nokkur undanfarin ár hef- ir Ríkisstjórn Islands sent full- trúa á Þjóðræknisþing vor, og sendiferða hafa, eins og að lík- um lætur, aðeins valist hinir á- gætustu menn, og í þetta smn hefir heldur ekki brugðið frá þeirri venju. I þetta skifti njót- um vér þeirrar einstæðu ánægju að fá sem sendiboða frá Islandi, mann, sem einnig er heimamað- ur hér hjá oss, en þannig viljum vér skoða Valdimar Björnsson, blaðamann og útvarpsþul frá Minneapölis. Um og eftir stríðs- árin dvaldi hann langvistum á íslandi. og skipaði þar ábyrgð- armikla stöðu fyrir stjórn þjóð- ar sinnar. Sem hermaður er hann Lieutenant Commander í sjóher Bandaríkjanna, og var hann einnig sérstakur erindreki við sendiráðsskrifstofuna í Reykjavák. Að Valdimar leysti af hendi glæsilegt starf á Islandi er á allra vitorði. Island hefir gefið honum það bezta, sem það átti til: yndislega konu og stór- riddarakross. Vér bjóðum þau Valdimar Björnsson og frú Guð- rúnu konu hans hjartanlega vel- komin til þings. Agnesarsjóöurinn Eins og kunnugt er, stundar ungfrú Agnes Sigurdson frá Winnipeg, hljómlistarnám hjá heimsfrægum kennara í New Yonk. Ungfrú Sigurdson býr yfir miklum hæfileikum og er frá- bærlega iðjusöm við námi^, enda miðar henni áfram til mikils þroska að dómi þeirra, sem til þekkja. Stjórnarnefnd Þjóð- ræknisfélagsins hefir beitt sér fyrir opinberum samskotum námsmærinni til styrktar. Hefir það verið henni mikil hjálp að þessu. En nú er samskotaféð út- runnið, en námskostnaður stúlk- unnar heldur áfram. Vill forseti benda á þetta mál, og væntir af- greiðslu þingsins á því. Um helgina barst forseta bréf frá kennara ungfrú Sigurdson, Madame Olga Samaroff Stokow- sky. Er bréfið dagsett í New York, 19. febrúar og hljóðar svo í lauslegri þýðing: “Forseti Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi. Kæri herra: Mér er mikil ánægja að því að geta sagt yður að Agnes Sigurd- son, hin imga hljómlistanrmær, sem félag yðar hefir svo vel og viturlega tekið að sér að styðja til náms, er að taka framúrskar- andi framförum. Það er enginn vafi á því að hún er að verða frá- bær píanó-leikari, og hún ætti að verða tilbúin að koma fram opin- berlega næsta ár. Eg vona að Þjóðræknisfélagið sjái sér fært að lúka við hið lofsverða fyrir- tæki að styðja hana við námið, og aðstoða hana er hún hefur göngu sína á listabrautinni.” Minnisvarðamál. Snemma á árinu var því hreyft af vinum og velunnurum skálds- ins, Jóhanns Magnúsar. Bjarna- sonar hvort eigi væri unt að reisa honum og konu hans minnik- ■varða, á svipaðan hátt og áður hafði gjört verið fyrir skáldin Stephan G. Stephansson og K. N. Júllíus. Mun kvenfólagið og deildin í Elfros hafa átt frum- kvæðið að þessari hugmynd. Atti hinn nýlátni félagsbróðir vor Jón Jóhannsson nokkur bréfa- skifti við stjórnarnefnd vora um þetta mál, og leitaði álits hennar og liðveizflu í iþví sambandi. Stjórnarnefndin tjáði sig malinu vinveitta, og hét því stuðningi sínum, en leit svo á að best færi á þVí að heimamenn og sveit- ungar skáldsins héldu áfram frekari undirbúningi, og legðu f r a m ákveðnar tillögur í því. Mun heimanefndin hafa unnið eitthvað frekar að rmdirbúningi málsins í samráði við Dr. Krist- ján Austmann. Enn sem komið er þafa engar tillögur í málinu verið lagðar fyrir nefnd vora. Myndastytta Lei& Eiríkssonar hefir lengi verið í geymslu. Er nú gott útlit fyrir að henni verði fenginn virðu'legur staður í Washington, D.C. Frumvarp til laga um það efni er nú til athug- unar í efri málstofu þingsins i Washington. Framsögumaður frumvarpsins er Senatör Milton R. Young. Hefir Guðmundur Grímsson dómari haft mál þetta með höndum sem formaður milliþinganefndar í því. Hefir hann falið einum meðnefndar- manna sinna, hr. Ásmundi P. Jó- hansson að gefa frekari skýrslu um málið, og mun hann gera það á þessu þingi. Útgáfumál. Útgáfumál félagsins hafa ekki verið margbrotin á árinu. Er þar eingöngu um að ræða tímarit fé- lagsins, en ritstjóri þess er sem kunnugt er, Gísli Jónsson, fyr- verandi prentsmiðjustjóri. Hefir honum ávalt farið ritstjórnin prýðilega úr hendi, og má félag- ið telja sig lánsamt að njóta starfskrafta hans á þessu sviði. Sú breyting hefir orðið á í sam- bandi við útgáfu ritsins, að frú P. S. Fálsson, sem undanfarin ár hefir annast söfnun auglýsinga fyrir ritið hvarf frá því starfi samkvæmt eigin ósk, en 1 henn- ar stað var Carl Hallson, formað- ur Icelandic Canadian Club ráð- inn til þess verks. Er gott til þess að vita að vinsældir og út- breiðsla tímaritsins fer vaxandi, einkum á IsHandi. I þetta sinn eru 2200 eintök prentuð af ritinu, en af því upplagi verða 750 eintök send útisölumönnum á íslandi samkvæmt pöntun þeirra. Eins og kunnugt er hefir sér- stök sjálfboðanefnd annast ritun og útgáfu á “Sögu Islendinga í Vesturheimi”, en bækurnar hafa komið út undir nafni félagsins, og hefir félagið eins og sjálfsagt var, stutt að útbreiðslu þeirra. Þrjú bindi sögunnar hafa komið út, og hefir söguritarinn, skáld- ið Þorsteinn Þ. Þorsteinsson nú fjórða bindið í smíðum. Von- andi verður sjálfboðanefndinni unt að halda áfram þessu þarfa útgáfufyrirtæki unz því er lok- ið með frásögu um allar helztu bygðir vorar hér í landi. Breyting á þingtíma. Eitt þeirra máía, sem stjórnar- nefnd félagsins var falið á hendur að athuga á síðasta Þjóð- ræknisþingi, var um breytingu á þingtíma. I þessu máli leggur stjórnamefndin fram rökstutt á'lit, sem hljóðar svo: “Að athuguðu máli sér nefnd- in sér ek'ki fært að leggja til að breyta þingtímanum að svo stöddu. Liggja til þess ýmsar á- stæður, en þó þessar fyrst og fremst: (1) Undirtektir deildanna á síðasta ári, sýndu yfirieitt, að þær eru því mótfallnar að nokk- ur breyting verði gerð, enda þótt tvær deildir mæltu með slíkri breytingu. • (2) Það myndi erfitt að velja tíma fyrir þingið sem öllum væri hentugur. Annir eru sumstaðar mestar, þegar bygðarbúum ann- arsstaðar veitist nokkur hvíld frá störfum. (3) Að sumarlagi, sérstaklega fyrri part sumars, myndi slíkt þinghald koma í bága við allan fjölda af skógargildum og sam- komum sem víðsvegar eru haldn- air, svo sem kirkjuþing, þjóð- ræknissamkomur, og svo fram- vegis. Önnur mál. Óþarft er að ræða héf um f jár- hag félagsins þar sem prentaðar skýrslur féhirðis, fjármálaritara og skjalavarðar bera þess vott hvernig hann stendur, og hann er bezta lagi. Milliþinganefnd í húsbygging- armálinu, sem kom til umræðu á þingi í fyrra, mun leggja fram skýrslu sína. Er sú nefnd skip- uð þeim Ólafi Péturssyni, Jóni Ásgeirssyni, og Árna G. Eggert- son, K.C. Er sá fyrstnefndi for- maður nefndarinnar. Minjasafnsmálið og söfnun þjóðlegs fróðleiks, sem áður hef- ir verið drepið á, þyrftu að koma til umræðu og frekari fram- kvæmda á þessu þingi. Að því er snertir málið um af- ganginn af vamarsjóði Ingólfs Ingólfssonar, sem á þingi í fyrra var vísað til stjórnarnefndar, að hún héldi áfram að afla sér frek- ari upþlýsinga um það hjá lög- fróðum mönnum, er þess að geta að nefndin hefir í því efni gert eins og fyrir hana var lagt. Er nefndin viðbúin að leggja fram lögfræðilegt álit um meðferð máls þessa, ef þingið krefst þess að það sé enn að nýju tekið til umræðu. Á þinginu í fyrra var því hreyft hvort ekki væri ákjósan- legt að meðlimir Þjóðræknisfé- lagsins bæru félagsmerki á brjósti, eins og tíðkast um ýms önnur félög. Var stjómarnefnd- inni falið að athuga það mál. Hefir nefndin fengið þær upplýs- ingar í málinu að hægt er að fá slíkt merki búið til, er beri inn- sigli féiagsins í litum, eins og það sem prentað er á bréfsefn- um þess. Mundi merki þetta með hnapp eða nælu, eftir því sem við á, kosta $1.50 stykkið. Geta menn nú rætt málið sam- kvæmt þessum upplýsingum. Niðurlagsorð. Með skýrslu þessari hefi eg leitast við að gefa yfirlit yfir starfsmál félagsins, þarfir þess, og þau mál, sem mest eru aðkall- andi að því er framtíðina snertir. Ætti það að vera ljóst af lestri þessum, að “starfið er margt,” megi hitt Mka reynast satt er til umræðu kemur og afgreiðslu málanna, að “eitt er bræðraband- ið” á meðal vor. Setjum oss þá það mark, háttvirtu þingmenn og konur, að vinna að úrlausn allra mála vorra, með elju og alúð, með það eitt fyrir augum hvað oss er til sóma sem félagi, og þjóðarbroti voru hér yfirleitt til sæmdar. Vil eg vinsamlega mælast til þess að erindrekar og fulltrúar veiti störfum þingsins óskifta athygli þessa daga, að menn sitji alla fundi þingsins og hverfi ekki frá störfum nema brýna nauðsyn beri til. Áfram þá til starfs og sóknar í naíni íslenzks manndóms og þ j óð er niskendar! Annual Report. . . (Continued from Page 3) disposed of and sold for $65.00. Mrs. Skaptason reports 55 pairs of socks, 10 baby jackets, three sweaters, were made and' do- nated. Mrs. Nordal and our good old friend, Mrs. Sigurdson, doing much of the work. WELFARE WORK Miss Vidal and Mrs. Skaptason. Three boxes of clothing have been disposed of as follows: One box to a needy ex-service man’s family at Lundar. One box sent overseas and the third box sent through the Municipal Welfare cónvener to Beren’s River. HOSPITAL VISITING M rs. Nicholson and Mrs. Kristjanson. These two ladies continue from year to year to give gener- ously of their time and service to hospital and home visiting. To these people they carry com- fort and cheer. Patients in St. Boniface Sanatorium have been visited regularly each month. Our Chapter is indeed indebted to these two ladies who carry the banner of cheer and hope to the many confined to sick beds. UNORGANIZIED TERRITORIES Mrs. Sivertson, Convener. This report shows 7 sweaters, 3 scarves, 13 pairs mittens, 3 pairs baby booties, 3 pairs socks, 3 baby jackets and 1 baby bon- net, rnaking a total of 35 articles sent to unorganized territories. THE SEWING ROOM Mrs. Summers, Convener. % Sixufternoons have been given to this work with an average attendance of three workers, totalling 64 hours and complet- ing 70 articles. ECHOES Mrs. Wilson, Convener. Ten subscribers — Now that “Echoes” is bought along with the annual fee the work of sell- ing “Echoes” has been simpli- fied considerably. The following officers were elected: Hon. Regents: Mrs. J. B. Skap- tason, Mrs. B. J. Brandson. Hon. Vice Regents: Mrs. B. B. Jonsson, Mrs. R. Peturson, Mrs. V. J. Eylands, Mrs. P. M. Peturson. Regent, Mrs. B. S. Benson, re-elected; lst Vice Regent, Mrs. E. Isfeld; 2nd Vice Regent, Mrs. J. S. Gillies; Secretary, Mrs. H. F. Danielson; Treasurer, Mrs. W. E. Perry; Educational Sec., Mrs. J. B. Skaptason; Empire Study Convener, Mrs. A. F. Wilson; Echoes Secretary, Mrs. T. E. Thorsteinson; Standard Bearer, Mrs. J. Nordal; Hospital Visiting, Mrs. H. G. Nicholson, Mrs. J. Kristjanson; Unorgan- ized Territory Convener, Mrs. P. J. Sivertson; Welfare Con- vener, Mrs. S. Johnson. In conclusion may we extend our heartfelt thanks to all our members and friends who have given us support in our efforts throughout the year. Our sincere thanks to individuals, to busi- ness firms, to the two Icelandic weekly papers, “Logberg” and “Heimskringla”, and to the Ice- landic Canadian Club. May contentment and pros- perity bring happiness through- out the year to all. Thjodbjorg Henrickson, Secretary, Jon Sigurdson Chapter, February 15, 1947. EYÐIMERKUR-ÆFINTÝR Árið 1899 lagði deild af frakk- neska nýlenduliðinu af stað, und- ir forustu Voulets majórs, og 5 aðrir herforingjar, ti'l að kanna héruðin í kringum Tsad-vatnið í Sahara. Leiðangurslið þetta var 1000 þarlendra fótgöngumanna, auk foringjanna. — Svo liðu þrjú ár og engar fregnir fóru af þeim. En í oktöber 1902 komu 2 herfor- ingjarnir aftur til 'herstöðvanna í Senegal og sögðu þá voðasögu, að Voulet hersihöfðingi hefði snögg- lega orðið brjálaður og hefði skipað að ráðast á aðra frakk- neska herdeild, en þá hefði hann verið skotinn og liði hans tvístr- að í allar áttir. — En þetta reynd- ist nú ekki satt. — Lettneskur herforingi, Zeltir að nafni, frétti af þarlendum manni, að Voulet hershöfðingi og herforingjarnir 5 hefðu orðið missáttir; sagði þá Voulet af sér herstjóminni og fór á brott með 200 liðsmanna. Eftir ógurlegar svaðilfarir komust þeir I sandey eina í Targuai-héraðinu og þar kvæntist Voulet dóttur höfingjans yfir eynni og hefir verið þar ^áðan. og er nú höfðingi ættarinnar, sem byggir sandey þessa, og nefnist ‘hvíti höfðing- inn”. — Æfintýr þetta er eitt af þeim draumórakendustu og svip- ar til amerískra kvikmynda- æfintýra. Verzlunarmenntun! Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf- ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks, krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól- arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn- um og konum fer mjög vaxandi. Það getur orðið ungu fólki til verulegra hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn- lega eða bréflega, varðandi námskeið við helztu verzlunarskóla borgarinnar. THE COLUMBIA PRESS LTD. COR. SARGENT AND TORONTO ST., WINNIPEG i

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.