Lögberg - 22.05.1947, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FiMTUDAGINN 22. MAÍ, 1947
Úr borg og bygð
íslenzkir sjúklingar, sem iiggja
á sjúkrahúsum hér í borginni,
eða aðstandendur þeirra, eru
vinsamlega beðnir að síma Mrs.
George Jóhannesson, 89 208, ef
æskt er eftir heimsókn eða ís-
lenzku blöðunum.
Birt að tilstuðlan Djákna-
nefndar Fyrsta lút. safn.
♦
Flugferð til íslands
“Skymaster”-flugvélin íslenzka,
sem skýrt var frá í fyrri viku, að
fara myndi frá Winnipeg eða
Grand Forks, fyrstu vikuna í
júnímánuði beina leið til íslands,
fer nú, samkvæmt tilkynningu,
sem Gretti L. Jóhannson hefir
borist, annað hvort þann 6. eða
8. júní, um leyfi hefir þegar ver-
ið sótt til canadiskra stjórnar-
valda um að fá lendingarrétt
fyrir flugvélina í Winnipeg, og
verður nánar frá árangri skýrt
síðar. Sextán manns hafa þegar
trygt sér far með flugvélinni, og
er því enn rúm fyrir nokkra far-
þega í viðbót. Allar upplýsingar
þessu viðvíkjandi veitir Grettir
Leo Johannson, 910 Palmerston
Avenue, Símar 71 177 eða 28 637
(eftir kl. 6 e. h.).
Seinni part fyrri viku voru
staddir í borginni frá Mountain,
N. Dak., Kristján Guðmundsson,
Joseph Anderson, Árni Johnson
og Joe Thorfinnsson.
♦
Frá íslandi komu til borgarinnar
á miðvikudagskvöldið í fyrri
viku þau Ingólfur Sigurðsson
starfsmaður Eimskipafélags ís-
lands og frú, ungfrú Svafa Brynj-
ölfsdóttir, bróðurdóttir frú Rósu
Jóhannsson hér í borg og frú
Kristín Pálsson.
Ungfrú Svafa ráðgerir að dvelj-
ast hér um slóðir árlangt, en hitt
fólkið verðm- á ferðalagi hingað
og þangað um Islendingabygð-
irnar í Manitoba í nokkurn tíma,
og mun dvelja vestan hafs nálægt
tveim mánuðum; þetta fólk kom
flugleiðis frá Keflavík.
-f
Norðan frá íslendingabygðum
við Manitobavatn voru þessir
gestir í bænum í fyrri viku, Geir-
finnur Pétursson, John Johnson
frá Húsey, Grettir Freeman,
Indriði Eyford, Oscar Johnson,
B. Eggertson og David Eggertson
frá Vogar.
Síðastliðið laugardagskvöld
voru gefin saman í hjónaband í
sambandskirkjunni hér í borg-
inni þau Páll Haraldur Westdal,
B. Sc., og ungfrú May Gillis.
Brúðguminn er sonur þeirra Mr.
og Mrs. Páll Westdal, sem lengi
bjuggu í grend við Wynyard, og
nú eiga heima í þessari borg, en
brúðurin er dóttir Jósefs heitins
Gillis og eftirlifandi ekkju hans,
Snjólaugar Gillis, er einnig voru
búsett í Wynyardbygð; kiirkjan
var hið fegursta skreytt, móður-
bróðir brúðarinnar, Helgi Jó-
hannesson frá New Folden,
Minn., leiddi brúðurina inn
kirkjugólf til brúðgumans;
svaramenn voru tvö systkini
brúðgumans, þau Sveinn West-
dal og Sigríður hjúkrunarkona
Westdal. í kirkjunni söng frú
Elma Gíslason einsöngva, þar á
meðal “Hve gott og fagurt og in-
dælt er,” en Gunnar Erlendsson
varð við hljóðfærið. Séra Philip
M. Pétursson gifti.
Að lokinni vígsluathöfn var
setin vegleg og einkar rausnar-
leg brúðkaupsveizla í salarkynn-
um Caledonian klúbbsins, og
dans stiginn fram um miðnætti.
Heimili ungu hjónanna verður
i Brandon.
♦
Rétt um það leyti, sem blaðið
var fullbúið til prentunar, barst
þv sú fregn, að nýlátin væri að
heimili sínu 922 Sherburn Street,
Mrs. Jónna Andrésson, ekkjá
Andrésar Andréssonar plastrara,
83 ára að aldri.
-f
Mr. og Mrs. Víglundur Vigfús-
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Valdimar J. Eylands, prestur.
Heimili: 776 Victor Street,
Sími: 29 017.
Harold J. Lupton, organisti og
söngstjóri.
308 Niagara Street.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: á ensku kl. 11 f. h.,
á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h.
Söngæfingar: Yngri flokkur-
inn—á fimtudögum. Eldri flokk-
urinn — á föstudögum.
♦
Árborg-Riverlon prestakall—
25. maí—Hnausa, messa og
safnaðarfundur kl. 2 e. h. River-
ton, ensk messa og safnaðarfund-
ur kl. 8 e. h.
1. júlí—Framnes, messa kl. 2
e. h.; Geysir, messa og safnaðar-
fundur kl. 8.30 e. h.
B.A. Bjarnason.
Ú T V A R P
Á sunnudaginn kemur, Hvíta-
sunnudag, 25. maí, kl. 11 f. h.
(Winnipeg tíma) fer fram ferm-
ingarguðSþjónusta í Fyrstu lút-
ersku kirkju. Þessari athöfn,
sem fer fram á ensku, verður út-
varpað frá stöðinni CKY.
-♦•
Lúterska kirkjan í Selkirk—
Hvítasunnudag:
Ensk messa, ferming ungmenna
klukkan 11 árd. — Islenzk messa
og altarisganga kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
-♦•
Þann 26. maí (ánnan í hvíta-
sunnu) verður messað í Guð-
brandssöfnuði. í grend við Mor-
den, Man. Messugjörð hefst kl.
3 síðd. Central Standard Time).
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
Gimli prestakall—
Sunnudaginn 25. maí — ferm-
ingar guðsþjónusta og altaris-
ganga fer fram á Gimli, kl. 2
e. h. (D.S.). Guðsþjónusta í Húsa-
vick, kl. 8 e. h.
Allir boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirson.
son, sem nú eru til heimilis á
elliheimilinu Betel á Gimli, komu
til borgarinnar á föstudaginn
var; létu þau hið bezta af aðbúð-
NOW is the TIME
to order your
PIONEER
"Bred for Produciion"
CHICKS
for early fall eggs
Canada 4 Star Super Quality
Approved R.O.P. Sired
100 50 Breed 100 50
14.25 7.60 W. Leghorns 15.75 8.35
29.00 15.00 W.L. Pullets 31.50 16.25
3.00 2.00 W.L. Ckls. 4.00 2.50
15.25 8.10 B. Rocks 16.75 8.85
15.25 8.10 N. Harrps.
26.00 13.50 B. Rock Pull 29.00 15.00
26.00 13.50 N. Hamo. Pull.
10.00 5.50 Hvy. Breed Ckls. 11.00 6.00
18.50 9.75 L. Sussex
Pullets 96% acc.—100% live arr. gtd.
—TSROWRR TWIN-BLAST
OIL BROODERS
give great satisfaction
300 chicks, «24.50, 500 chick»
— while the^ last. __
ORDER TODAY
n
PIONEER
■mATCHEBV*
1PMDUCWS OfHIÍH OUAUTY CWCKS JIIKI I9IO \
4161 Corydon Ave. Winnipeg
inni á Betel. Mr. Vigfússon leit
sem snöggvast inn á skrifstofu
Lögbergs glaður og ræðinn að
vanda; þau hjónin dvöldu hér
fram í fyrri part yfirstandandi
viku.
•♦
Séra Rúnólfur Marteinsson
ferðast til Piney á föstudaginn,
og flytur þar guðsþjónustu á ís-
lenzku og aðra á ensk’u næsta
sunnudag, hvítasunnu.
-♦■
Þeir P. N. Johnson og J. J.
Samson komu heim á fimtu-
inn var úr því nær vikuferða-
lagi um íslenzku bygðarlögin í
North Dakota.
-♦•
Hingað komu til borgarinnar
flugleiðis frá New York á aðfara-
nótt þriðjudagsins, tveir Reyk-
víkingar, þeir Gísli Sigurbjörns-
son, framkvæmdarstjóri elli-
heimilisins Grund í Reykjavík,
og Oddur Jónasson forstjóri
Efnalaugarinnar Glæsis í
Reykjavík. Gísli er sonur séra
Sigurbjörns Ástvaldar Gíslason-
ar og konu hans frú Guðrúnar
heitinnar Lárusdóttur. Oddur er
ættaður frá Brautarholti í Bráð-
ræðishverfinu í Reykjavík. Þeir
félagar skruppu til Gimli í gær
í för með J. J. Swanson, til þess
að litast um á elliheimilinu
Betel.
-♦
Þann 13. maí var haldið silfur-
brúðkaup fyrir þau Mr. og Mrs.
S. O. Jonasson, að heimili þeirra,
370 Arlington St. Þar var saman-
komið um 50 manns, skyldfólk
og vinir. Séra V. J. Eylands
stýrði samsætinu og þeir Árni
Eggertson, Páll Reykdal og Nor-
man McLeod héldu stuttar ræð-
ur. Edward Borgfjord, bróðir
brúðarinnar, mælti nokkur orð
við afhending gjafarinnar, sem
var silfurdiskur fullur af silfur-
peningum. Mrs. Elma Gíslason
söng sólós á milli ræðanna.
Silfurbrúðhjónin þökkuðu bæði
fyrir sig.
Eftir það voru veitingar fram-
reiddar og allir fóru heim glað-
ir og ánægðir.
♦
Hjónavígslur framkvæmdar í
Fyrstu lútersku kirkju á laugar-
daginn 17. maí 1947 af sóknar-
prestinum, séra Valdimar J. Ey-
lands.
Sylvia Kristín Guðnason frá
Baldur, Man., dóttir Páls heit.
Guðnasons og Guðnýjar konu
hans, giftist Kenneíh Thomas
Mason, frá Vancouver, B.C. og
munu þau eiga þar heima.
Berlha Björnson, dóttir Jónas-
ar Björnson umsjónarmanns á
Elliheimilinu Betel og látinnar
konu hans Veigu Anderson, gift-
ist Albert Alexander De Keruzec
frá Vancouver, B.C. og munu
þau setjast að þar í borg.
Geraid Keith Slephenson,
einkasonur þeirra G. K. og Jón-
ínu Stephenson (f. Friðfipnson),
1061 Dominion St., giftist Edith
Joan Darnell, 810 Garfield St.
Að lokinni hjónavígslu athöfn-
inni, sem fór fram í viðurvist
mikils fjölda fólks, fór fram veg-
leg veizla á Royal Alexandra
hótelinu, þar sem um hundrað
og fimmtíu manns sátu að borð-
um. — Ungu hjónin munu setj-
ast að í Winnipeg.
♦
Gjafir til "Sunrise Camp”
Frá Senior Ladies Aid of the
First Lutheran Church, Winni-
peg, arður af Te-samkomu,
$190.44. Frá Junior Ladies Aid,
$60.00.
Með innilegasta þakklæti,
Clara Finnson.
♦
Falleg bók
Þegar ritstjóri Lögbergs kom
úr íslandsförinni í fyrra, afhenti
hann mér bók, sem hann var beð-
EATON'S skreytir
VOR-SVIÐIÐ
• Meö sólríkri tizku fyrir alla
fjölskylduna.
• Meö nýjum húsgögnum fyr-
ir hvert herbergi.
i
• Meö cndurnýjun máls og
gljákvoöu.
• Meö fræi fyrir garösáningu.
— fleiri uppðstungur eftir því
sem þér flettið fleiri blaðslðum
í Vor og Sumar Verð-
skránni — Alt yðar með hinni
frægu ábyrgð.
Ánægðir með vörur, eða
peningum skilað aftur að
flutningskostnaði
inniföldum.
•f'T. EATON C°-.„.
WINN1PEG CANADA
EATONS
KVEÐJUSAMSÆTI
Efnt verður til kveðjusamsætis fyrir Asgeit Guðjohnsen
og fjölskyldu hans, á Marlborough hótelinu á mánu-
dagskvöldið þann 26. þ. m., stundvíslega klukkan 7.
Fjölskyldan er í þann veginn að leggja af stað alfari
til Islands.
Aðgöngumiðar til sölu á skrifstofu Lögbergs, og
þuirfa að verða sóttir þangað fyrir hédegi á laugar-
daginn.
The Following Doctors Wish to Announce They
Are Now Associated with the
KOBRINSKY CLINIC
216 KENNEDY STREET
SOLOMON KOBRINSKY. M.D.
Maternity and Diseases of Women
LOUIS KOBRINSKY, M.D., F.R.C.S.. (Edin.)
General Surgery
SIDNEY KOBRINSKY, M.D.
Internal Medicine
M. TUBBER KOBRINSKY, M.D.
Physician and Surgeon
SAM KOBRINSKY. M.D.
Physician and Surgeon
SAMUEL RUSEN. M.D.
Physician and Surgeon
Telephone 96 391 — If iVo Anstver,
Call Docior’s Directory — 72152
inn að koma á framfæri við mig
til elliheimilisins Betel. Bókin
heitir “1 áföngum”, og er samin
af Daníel Daníelssyni. einum
þjóðkunnasta hestamanni Islands
í seinni tíð; bókin er gefin af
dóttursyni höfundar, Kristjáni
Þórarinssyni.
Með kæru þakklæti,
J. J. Swanson,
, féhirðir Betel.
-t-
Mr. P. N. Johnson frá Rose-
town, Sask., sem dvalið hefir hér
í borg síðan í haust, lagði af stað
vestur á miðvikudagsmorguninn;
í för með honum var Gunnar
Grímsson til stuttrar heimsóknar
í Vatnabygðum.
The Swon Manufacturing
Company
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
281 James St. Phone 22 641
Leikfélag Sambandssafnaðar
sýnir tvö stutt leikrit
I. “DAGSETUR”
2. “I BORGARAFÖTUM”
22. og 23. MAÍ
í SAMKOMUSAL SAMBANDSSAFNAÐAR
horni Banning og Sargenl
Inngangur 50c Hefst klukkan 8:15 e.h.
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 eindíálka
þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á þumlunginn;
þetta er að vísu ekki mikill tekju auiki, en þetta getur
dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
♦-♦♦♦♦♦♦♦-♦-♦♦•♦■•♦••♦•■♦■
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLANDl
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvont blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það lé’ttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, enu vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐMUNDSSON
HOLTSGATA 9, REYKJAVÍK
Manitoba feitebi
MAGPIE—Pica pica
A large appearing, very long-tailed bird, speotacularly
coloured in blaok and white.
Distinctions and Field Marks. With large size, long,
sweeping tail, and intense black and white contrasts,
mistakable for no other Canadian bird.
Nesting. An enormous mass of sticks in lower branches
of trees or bushes, with nest in centre, entrance and
» exit in opposite sides.
Distribution. Europe, northern Asia and western North
America. In America, west of the Great Lakes from
middle Yukon to New Mexico. In Canada, common on
the southern prairies, in the bluffy country adjacent,
and in southern British Columbia, except the coast dis-
trict. Occurs erraticálly north and eastward. Apparent-
ly extending its range in these directions.
Economic Sialus. Next to the Crow, and possibly before
it, the Magpie is the most persistent nest robber in the
bird world. No eggs or young birds are safe from it,
and where it is numerous it is one of the important
determining factors in limiting the increase of the
smaller birds. It even enters poultry yards and hen-
coops, timing its visit nicely when tbe owners’ eyes are
turned elsewhere, and chicks and eggs are its prey.
Occasionally it attacks horses and cattle, even to their
death, perching on the foolishly unresisting animals’
backs and enlarging saddle galls, fresh brand marks,
or other open sores to serious proportions. A few Mag-
pies may be a picturesque accompaniment of the land-
scape, but even those can only be enjoyed at a price,
and oertainly any great number of them in a neighbor-
hood are to be discouraged by the use of gun and trap.
This space contributed by
THE DREWRYS LIMITED
MD190