Lögberg


Lögberg - 05.06.1947, Qupperneq 1

Lögberg - 05.06.1947, Qupperneq 1
60. ÁRGANGUR INNlPíilG. FIMTUDAGINN 5. JÚNÍ 1947 PHONE 21 374 Uv i«útc' rv’®1' e-r * A Complele Cleaníng Instilulion NÚMER 23. Dr. Richard Beck Fimtugsafmæli merks fræðimanns Þann 9. yfirstandandi mánað- ar á Df. Richard Beck, prófes- sor í norrænum tungum og bók mentum við ríkisháskólann í North Dakota, fimtugsafmæli, og fer það að vonum, að fslend- ingar austan hafs og vestan hugsi hlýtt til hans á slíkum tömamótum, því svo hefir hann með fræðimannlegri starfsemi sinni í bundnu máli og óbundnu, auðgað menningarlegan akur stofnþjóðar sinnar síðastliðinn aldarfjórðung; er hann ham- hleypa við störf, og að jafnaði vandvirkur að sama skapi. — Dr. Beck er mælskumaður mikill, og hefir flutt fyrirlestra svo mörgum hundruðum skiftir á ensku og íslenzku, og þó senni- lega margfalt fleiri á hinni fyrr nefndu tungu; fyrirlestrar hans jvafa fjallað um bókmentir ís- lenzku þjóðarinnar, tungu henn ar og sögu, og þar af leiðandi víkkað mjög landnám íslenzkrar menningar meðal hins ensku- mælandi lýðs í þessari álfu, og er hið sama um ritgerðir hans að segja, er birtst hafa hafa í merkum tímaritum og blöðum amerísku þjóðarinnar. Dr. Beck er fæddur að Svína- skálastekk í Reyðarfirði þann 9- júní 1897. Voru foreldrar hans Einar K. Beck óðalsbóndi í Litlu Breiðuvík og Þórunn Vigfússína Vigfúsdóttir, nú búsett í Winni- Peg, hátt á áttræðisaldri; bróðir Dr. Beck er Jóhann Þorvaldur, prentsmiðjustjóri í Winnipeg. — Snemma fór Dr. Beck að vinna fyrir sér, bæði við sjómennsku °g önnur störf; hann lauk prófi við gagnfræðaskóla Akureyrar 1918, en útskrifaðist tveimur ár u,m síðar af mentaskólanum í Reykjavík með fyrstu einkunn, eu fluttist vestur um haf 1921. Meistaraprófi í norrænum fræð- um lauk Dr. Beck við Cornell- háskóla 1924, en varð doktor í heimspeki við sömu mentastofn un 1926. Fjallaði meistararitgerð kans um Byron og áhrif hans á islenzkar bókmentir, en doktors ritgerðin um Jón skáld Þorláks- son á Bægisá og þýðingar hans eftir Pope og Milton. Dr. Beck er tvíkvæntur; er síðari kona hans Bertha Samson hjúkrunarkona frá Winnipeg, frá k®r atkvæðakona; þau eiga Ivö mannvænleg börn. Lögberg stendur í djúpri Pakkarskuld við Dr. Beck fyrir augan og drengilegan stuðning ans við blaðið, og nú flytur það °num hugheilar árnaðaróskir 1 tilefni af áminstum tímamót- um í nytsamri og giftusamlegri ^vi hans. TIL Á. P. GUDJOHNSEN Þú háðir með oss tímans tafl með táp um margra ára skeið. með bróður hug og andans afl, sem ætíð merkti þína leið. Nú svífur þú með sifja lið að sögu frægri móður strönd, þar fjöllin blá þér brosa við og bræður rétta vinar hönd. Þín heimför snertir hlýjan streng með hjartans þökk um liðin ár. En minning glöð um góðan dreng er geymd þó freyði tímans sjár M. MARKÚSSON. t-f-f-f-f-f-f-f-f -f-f-f-f^ Rýmkvað um innflutning fólks Þess er getið í fréttum frá Ottawa, að innflutningur fólks hingað til lands frá hinum ýmissu Norðurálfuþjóðum, muni fara talsvert í vöxt á yfirstandandi ári, þó takmarkaður skipakostur' hamli að vísu verulegum straumi innflytjenda; er áætlað, að tala innflytjenda það, sem eftir er árs, muni eigi iara fram úr 25 þús- undum. Þrjú stærstu pappírs- gerðarfélögin í þessu landi, hafa farið fram á það við sambands- stjórn, að fá leyfi til innflutn- ings fyrir fjórtán þúsundir manna til þess að vinna að skógarhöggi næstkomandi vetur. -f -f -f Útskrifast í læknisfræði Við nýlega afstaðin vorpróf útskrifaðist með fyrstu ágætis- einkunn í læknisfræði, Thomas John Speakman, sem er íslenzk- ur í móðurætt; hann er sonur Mr. og Mrs. Joseph Speakman, sem nú eru búsett í bænum Field í British Columbia; móðir þessa unga læknis er Rebekka, dóttir Mr. og Mrs. Guðmundur John- son, sem áttu heima í East Kildonan, en bæði eru látin. ■f -f ■♦ Ungf. Hildigunnur Eggertsdóttir Lýkur prófi og fær gull- medalíu Þessi unga stúlka, sem fædd er á Skúfum í Vindhælishreppi í Húnavatnsssýlu, kom >til Winni- peg í byrjun september, s.l., og hóf þegar nám við Success Busi- ness College í Winnipeg; hún hefir nú nýlokið þar prófi og hlotið fyrir frábæra tækni í vél- ritun, gullmedalíu The Business Educators’ Association of Can- ada. Ungfrú Hildigunnur vann á skrifstofu Eimskipafélags ís- lands í Reykjavík, og hverfur þar til síns fyrra starfs að haustinu. Beinar ferðir milli íslands og Noregs hefjast í sumar Lyra — endurbeett — verður í förum milli landanna. Norska skipið „Lyra“, eign Bergenska gufuskipafélagsins, sem var á förum milli Noregs og íslands fyrir stríð, mun hefja ferðir að nýju milli Bergen og Reykjavikur í sumar. Samkvæmt upplýsingum, sem “Vísir” hefir aflað sér hjá af- greiðslu félagsins hér, mun “Lyra” fara fyrstu ferð sína héð- an 1. júlí, síðan 19. ágúst en þar næst 9. september. En um mið- bik júlí mun “Lyra” koma hing- að á vegum Snorraneftidarinn- ar norsku og flytja hingað Snorralíkneski hins kunna norska myndhöggvara, Gustavs Vigelands, sém afhjúpað verður í Reykholti í júh', en sú athöfn hefir, eins og kunnugt er, tafist vegna styrjaldarinnar. Nánari ferðaáætlun hefir ekki verið gerð um ‘,Lyru”, nema um þær þrjár ferðir, ér að framan getur. “Lyra” hefir verið í förum á styrjaldarárunum, rheðal ann- ars á vegum bandamanna, milli Bretlands og Islands. Auk þess hefir skipið siglt nokkurum sinnum milli Bretlands og Bandaríkjanna á styrjaldarár- unum. Eftir ófriðarlokin var skipið í strandferðasiglingum við Nor- eg, enda mikill hörgull á strand ferðaskipum þar. Síðan hefir far ið fram gagngerð viðgerð á skip inu og ýmsar endurbætur verið gerðar á því. Meðal annars hefir verið komið fyrir í því olíukynd- ingu í stað kolakyndingar áður. Ennfremur hafa verið gerðar ýmsar umbætur á farþegarúmi skipsins. Vísir,2. maí. ■f -f -f Spjöll af völdum landskjálfta í nýkomnum bréfum frá Reykjavík, er þess getið, að landskjálftar hafi valdið nokkr- um spjöllum í Hveragerði í Ölfusi, og hafi þetta leitt til brottflutnings fólks úr því um- hverfi; þess er og getið, að nýir hverir hafi myndast á stöðvum þessum. Hervarnir í norðurhöfum Yfirforingi ameríska lofthers- ins, Carl Spaatz, mætti nýverið á fundi fjárlaganefndar þjóð- þingsins í Washington, og lagði áherzlu á það, að um norðurhöfin stafaði Bandaríkjunum mest á- rásarhætta, og þar af leiðandi riði mest á því, að koma þar upp öflugum hervörnum eins fljótt og auðið mæti verða; slíkar vam- ir yrðu vitaskuld dýrar, en eins og nú hagaði til, væri ekki viðlit að horfa í kostnaðinn. -f -f -f Friðarsamningar við Japan Utanríkisráðh. Breta, Ernest Bevin, hefir stungið upp á því, að þeim ellefu þjóðum, er tóku þátt í stríðinu gegn Japan, verði falið á hendur það hlutverk, að leggja grundvöll að friðarsamn- ingum við japönsku þjóðina, því þær séu kunnari öllum aðstæð- um en þeir aðiljar, er hvergi komu nærri; kvaðst hann vilja koma í veg fyrir, að mál þetta yrði lagt fyrir utanríkisráðherra fund, því reynslan hefði leitt í ljós, hve treglega hefði gengið á þeim vettvangi, að samræma fjarskyldar og ólíkar skoðanir. KIRKJUÞING Hins evangelíska lúterska kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi MOUNTAIN. NORTH DAKOTA 13.—17. júní 1947 , ÞINGSKRÁ: Föstudag, 13. júní 1947. kl. 7.30 e.h. (Standard Tími): Guðsþjónusta, altarisganga, þingsetning. Vígsla kirkju og orgels. Sr. S. Ólafsson prédikar. Fimtudag, 14. júní kl. 9—12 og 1.30—5.30: Þingfundir í Hallson kirkju. Kl. 8 e. h. Address: Dr. Reinartz, skrifari United Lutheran Church in America, í Mountain kirkju. Einnig söngprogram. Sunnudag, 15. júní, kl. 11 f. h.. Vígsluguðsþjónusta í Víkur kirkju, Eric Sigmar og Arthur Hanson. Sr. H. S. Sigmar, prédikar. Kl. 3 e. h. Guðsþjónustur í öðrum kirkjum prestakallsins. Kl. 8 e. h. Æskulýðssamkoma í Víkur kirkju. Ræðumenn: E. H. Sigmar og A. Hanson Söngprogram. Mánudaginn, 16. júní, kl. 9—12 og 1.30—5.30: Þingfundir í Garðar kirkju. Kl. 8 e. h. íslenzkt kvöld. Ræðumaður Sr. Runólfur Marteinsson. S.ngprogram. Þriðjudaginn, 17. júní, kl. 9—12: Þingfundir í Vidalíns kirkju Kosningar, þingslit. Dagsett að Mountain, N.-Dakota 2. júní 1947 Sr. Haraldur Sigmar D.D., forseti Sr. E. H. Fafnis, skrifari Wilhelm Kristjánsson Tekst á hendur sagnaritun Sögufélag Manitobafylkis hef- ir komið því til leiðar, að Wil- helm Kristjánssyni, sem gegnir ábyrgðarstöðu við mentamála- deild fylkisins, verði veitt um hríð lausn frá því starfi með það fyrir augum, að semja í höfuð- dráttum, sögu íslenzkra frum- herja innan vébanda Manitoba- fylkis; er þetta hið þarfasta verk og Mr. Kristjánsson manna best til þess fallinn; hann er útskrif- aður á Manitoba-háskólanum og hefir gefið sig nokkuð að rit- störfum. Styrkurinn, sem Mr. Kristjánsson fær til áminstrar sagnaritunar, nemur $1.500. ■f -f -f % Þurð á kolum Kolakaupmenn í Winnipeg, eru nú í óða önn að hvetja borgarbúa til þess að birgja sig upp með kol fyrir næsta vetur, að svo miklu leyti, sem auðið megi verða, með því að sýnt sé, að þurð á kol- um bíði framundan. Birgðamála- ráðherra sambandsstjórnar, C. D. Howe, tekur í sama streng, en bætir því jafnframt við, að líkur séu á, að olía til upphitunar hús- um, verði einnig af skornum skamti. Hörmulegt (lugslys á Islandi Síðastliðinn fimtudag flutti útvarpið í Winnipeg þá fregn, að stór og mikil flugvél, eign Flugfélags ís- lands, hefði farist á leiðinni milli Reykjavíkur og Norð- urlands, og að 25 manns hefðu af völdum slyssins látið líf sitt; að því er ráða mátti af fregninni, hafði flugvélin rekist á fjallshlíð og brotnað í spón; eftir nokkura leit, höfðu leyfar flugvélarinnar sézt úr lofti, en engin merki um lifandi mannveru, enda lét síðari útvarpsfregn þess getið, að allir, sem með vélinni voru, hefðu týnt lífi. Eins og nærri má geta, er þungur harmur kveðinn að íslenzku þjóðinni vegna þessa sorgaratburðar, og til hennar, og þeirra, sem um sárast eiga að binda, streymir samúðarrík hlut- tekning íslendinga vestan hafs. í smágrein, sem dagblað- ið Winnipeg Free Press flutti um slysið, er sagt, að ímeðal þeirra, er fórust, hefði verið Garðar Þor- steinsson alþingismaður, á- samt konu sinni og barni þeirra. -♦ -f f Sykurskamtur Fjármálaráðherra sambands- stjórnarinnar, Douglas Abbott, lýsti yfir því, í þinginu á fimtu- daginn var, að enn sem komið er, yrði ekki réttlætanlegt að af- nema sykurskamt í Canada, en á árinu yrði skamturinn hærri en í fyrra sem svaraði 9 pundum á mann. Alda Palsson Piano Recítal Breath-Taking The senior school of the To- ronto Conservatory of Music offered another breath-taking exhibition of piano playing Tuesday night in the Conserva- tory concert hall. The event was the graduation recital of Alda Palsson. The program was one with special reference to the character of the occasion — one to prove that the pianist can play major music: Schubert, Four Impromptus Op. 90; Havel, three of the Miroirs; Beethoven, Op. 101; Bemeau, Gavotteo and Variations; Schumann, Toccata Op. 7; Bach, Toccata in E minor; Prokofieff, Toccata Op. 11. Such a list represents such terrific demands in technique that, halfway through, this listener began to have the same feeling experienced at a high- jump feature of a horse show, hoping they won’t raise the bars another inch. However, Miss Palsson came back after the intermission to take her last hurdles easiest of all. The Rameau and the toccatas were the best part of the program. Recognizing this utterly re- markable playing, it is no dis- paragement of this musician to say that her senior graduation Miss Alda Pálsson may be the bgeinning of mature artistry. At present, she feels the horizontal elements of the music beautifully and so, while other pieces showed as able technique, the Bach was her most artistic offering. Any play- ing of a singing line was graci- ously done. As yet, she has not developed to equal extent an architectural sense of using tone and volume to relay the form of composition. But she has the foundation on which a decade of thought on such matters will have a chance to flower. She at least has no false emotionalism to clear away before she con- tinues her personal investiga- itons of aesthetic qualities.— Pearl McCarthy, Globe and Mail, May 23rd, 1947.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.