Lögberg - 05.06.1947, Blaðsíða 8
LOGBERG, FIMTUDAGINN 5. JÚNÍ 1947
Ur borg og bygð
Islenzkir sjúklingar, sem liggja
á sjúkrahúsum hér í borginni,
eða aðstandendur þeirra, eru
vinsamlega beðnir að síma Mrs.
George Jóhannesson, 89 208, ef
aeskt er eftir heimsókn eða ís-
lenzku blöðunum.
Birt að tilstuðlan Djákna-
nefndár Fyrsta lút. safn.
♦
Rósetiujárn
eru nú til sýnis á þriðju hæð
í verzlun' T. Eaton Co., Ltd.
Winnipeg. Þessi ágætu Rósettu-
járn fást einnig keypt á þriðju
•hæð í járnvöruverzlun J. H.
Asdown Co.. Ltd, Main Street
og Bannatyne í Winnipeg.
Miss Agnes Sigurðsson, sem
stundað hefir undanfarin tvö ár
píanónám í New York við mik-
inn orðstír, kom heim síðastlið-
inn laugardag í heimsókn til for-
eldra sinna, þeirra Mr. og Mrs.
Sigurbjörn Sigurðsson.
í ritgerð J. G. Oleson, sem birt
var í Lögbergi í fyrri viku, slædd
ust þessar inn þessar missagnir:
Fljótsstaðir fyrir Ljótsstaðir; —
„hljóp eins og kind“, en átti að
vera hind. Dagfríður, en átti að
vera Dagbjört.
-♦
Mr. Páll Einarsson, kaupmað-
ur frá Oak Point, var staddur í
borginni í fyrri viku.
•f-
Miss Snjólaug Sigurðsson
fyrrum organleikari Fyrsta lút-
erska safnaðar, sem stundað hef
ir undanfarið píanónám í New
York með ágætum árangri, er
væntanleg heim á föstudaginn 1
heimsókn til móður sinnar, frú
Jónu Sigurðsson.
-♦
Hr. Jóhann Pálsson frá
Reykjavík, sem í síðastliðinn 4
ár hefir stundað nám við Winni-
peg Sshool of Art, hefir nýlokið
þar fullnaðarprófi, og er nú í
þann veginn að hverfa heim til
ættjarðar sinnar.
•♦
Miss Jenny Johnson frá Pasa-
dena, California, sem dvalið
hefir hér um slóðir nokkuð á
annan mánuð. og heimsótt ætt-
menni og vini í ýmissum íslenzku
byggðunum, lagði af stað vestur
til Vancouver í gær; hún bað
Lögberg að flytja vinum sínum í
Manitoba og North Dakota alúð-
arkveðjur, og þakklæti fyrir
ástúðlegar viðtökur.
-♦
Þau Sigurður Einarsson tin-
smiður frá Arborg og frú, eru í
þann veginn að leggja af stað
austur til Geraldton, Ont., þar
sem þau ráðgera að dvelja fram
á komanda haust.
*
•♦■
Hr. Ingólfur Sigurðsson starfs-
maður Eimskipafélags íslands
frá Reykjavík, lagði af stað flug-
leiðis vestur til Vancouver, á-
samt frú sinni síðastliðinn
sunnudagsmorgun.
-♦
Silfurbrúðkaup í Mikley
Föstudaginn, 16 f. m. var
þeim Mr. og Mrs. Sigurði John-
son haldið silfurbrúðkaups-
samsæti í samkomusal bygðar-
innar. Vinir og vandamenn þess
ara mætu hjóna stóðu fyrir sam-
sætinu. Um tvö hundruð manns
sóttu þetta gleðimót. Helgi K.
Tómasson hafði veizlustjórn
með höndum, og afhenti heið-
ursgestunum rausnarlega pen-
ingagjöf frá bygðarbúum. Mrs.
Beggi Jones færði Mrs. Johnson
einnig peningagjöf frá Lúterska
kvenfélaginu. Til máls tóku
Helgi K. Tómasson, Mrs. Beggi
Jones og séra Skúli Sigurgeirs-
son. — Að endingu talaði Mrs.
Johnson og þakkaði fyrir þann
heiður sem þeim hjónimum
hafði verið sýndur.
Fyrir hönd heiðursgestanna
vil ég færa öllum þeim, sem
þátt tóku í samsætinu, þeirra
innilegustu þakklæti fyrir þessa
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Valdimar J. Eylands, prestur.
Heimili: 776 Victor Street,
Sími: 29 017.
Harold J. Lupton, organisti og
söngstjóri.
308 Niagara Street. *
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: á ensku kl. 11 f. h.,
á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h.
Söngæfingar: Yngri flokkur-
inn—á fimtudögum. Eldri flokk-
urinn — á föstudögum.
•♦
Lúierska kirkjan í Selkirk
Sunnudaginn 8. júní—
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12 á hádegi.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
•♦
Gimli preslakall
Sunnudaginn 8. júní — messa
að Husavick kl. 2 e. h. Ensk
messa að Gimli kl. 7 e. h.
Allir boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirsson.
-♦
Arborg-Riverion presiakall
8. júní — Arborg. ferming og
altarisganga kl. g e. h.
B. A. Bjarnason
kvöldstund, sem verður Mr. og
Mrs. Johnson ógleymanleg.
S. S.
-f
17. júní í Blaine
Þjóðræknisdeildin “Aldan”,
heldur hátíðlegan 17. júní, eins
og að undanförnu, með almennri
samkomu í City Hall. Reynt hef-
ir verið að vanda sem bezt til
skemtiskrárinnar og kvenfólk-
ið sér um veitingar. Eru allar
horfur á því, að hvorftveggja
yerði með ágætum.
A. E. K.
-f
Merkishjónin Kristján Krist-
jánsson og Svanfríður Jónsdóttir
að Mountain, N. Dak., eiga 70
ára hjónabandsafmæli á laugar-
daginn kemur, og er þá búist við
að fjölment verði á heimili
þeirra; er þess vænst, að börn
þeirra öll verði viðstödd, ásamt
fjölda barnabarna og vina. Lög-
berg árnar þessum öldruðu heið-
urshjónum allrar blessunar í til-
efni af þessum merka áfanga í
lífi þeirra.
-f
Mr. John Guttormsson, kaup-
maður á Lundar, var staddur í
borginni á mánudaginn.
-f
Hr. Helgi Einarsson frá Lake
St. Martin, var í borginni á
mánudaginn á leið til verstöðva
norður á Winnipegvatni.
-f
Frú Valborg Ailwyn frá Ot-
tawa, er nýkomin hingað til
borgarinnar ásamt tveimur dætr-
um sínum, í heimsókn til foreldra
sinna, Mr. og Mrs. Charles Niel-
sen.
f
Hr. Guðmundur E. Eyford er
nú nýfluttur, og er heimilisfang
hans að 691 Sherburn Street.
Sími 23.253.
f
Til safnaða kirkjufélagsins
Vér viljum mælast til þess við
alla söfnuði kirkjufélagsins, að
þeir gjöri svo vel að senda nöfn
fulltrúa sinna sem allra fyrst til
okkar, svo mögulegt verði að
ráðstafa húsakosti og dvalarstað
fyrir alla, sem koma. Einnig ef
gestir, sem búast við að sækja
bygðina heim vildu segja vinum
sínum, sem þeir ætla að heim-
sækja, að þeir væru væntanlegir,
svo ekki verði fult hús þar sem
þeir koma að dyrum. Fulltrúa-
nöfn skyldu sendast til skrifara
Mountain safnaðar, Mrs. S. A.
Björnson, Mountain, N. Dakota.
Mætumst heilir á þingi.
E. H. Fáfnis.
f
Gift í Fyrstu lútersku kirkju
á mánudaginn 2. júní voru þau
Kennelh Edward Porter 275
Beverley St. hér í borginnni og
Olivia Helga Johnson, dóttir
þeirra Einars Johnson og Sol-
veigar konu hans að Steep Rock.
Er brúðurin hjúkrunarkona að
mentun og hefir dvalið nokkur^
síðustu árin i Winnipeg, og hér
verður, einnig framtíðarheimili
ungu hjónanna. Að lokinni at-
höfninni í kirkjunni, sem sókn-
arpresturinn, séra Valdimar J.
Eylands framkvæmdi, fór fram
vegleg brúðkaupsveizla í salar-
kynnum Blacksfone Cafe að við-
stöddu fjölmenni.
f
Mrs. Kofbeinrt Thordarson frá
Seattle. er stödd í borginni um
þessar mundir, í heimsókn til
systra sinna og annara vina.
f
Mrs. Jónasína Jóhannesson
lagði af stað á laugardaginn var
vestur til Seattle, Wash., í heim-
sókn til dóttur sinnar; gerði hún
ráð fyrir að dvelja þar vestra
mánaðartíma.
f
Mr. og Mrs. G. J. Oleson frá
Glenboro voru stödd í borginni í
vikunni, sem leið.
f
Samskol í Útvarpssjóð
Fyrstu lútersku kirkju
E. J. Breiðfjord. Upham, N.
Dak., $1.00; Mrs. G. F. Gislason,
Bredenbury, Sask., $1.00; Ben.
Sigurdson, Bredenbury, Sask.,
$2.00; Rebekka Bjarnason, Camp
Morton, Man.. $2.00; Mr. og Mrs.
C. Paulson, Gerald, Sask., $2.00;
Mr. og Mrs. Thordur Thordarson,
Gimli, Man., $1.00; Mr. og Mrs.
Sig. Thordarson Gimli, Man.,
$1.00.
Kærar þakkir,
V. J. E.
f
Vígsla minningarskála
Sumarbúða Banadalags
Lúterskra Kvenna.
Sérstök athygli er hér með
dregin að því að sunnudaginn 22.
júní fer fram guðsþjónusta og
vígsluathöfn í sambandi við þing-
setningu í hinum nýbygða minn-
ingarskála í Sunrise Lutheran
Camp í Husavick, Manitoba. Alt
verður gert til að gera þessa at-
höfn tilkomumikla til að heiðra
minningu þeirra, sem skálinn
verður helgaður, hinna mörgu
íslendinga, sem líf sitt létu í
hinum tveimur heimsstríðum.
Öllum aðstandendum þeirra er
sérstaklega boðið að vera við-
staddir.
Allir eru hjartanlega velkomn-
ir. Munið daginn — sunnudaginn.
22. júní, kl. 2.30 e. h.
Ingibjörg J. Ólafsson.
f
Eins og sjá má á öðrum stað í
blaðinu, verður hinn vinsæli
gamanleikur Páls J. Árdals,
“Happið” sýndur á eftirgreind-
um stöðum:
Riverton, föstudaginn 6. júní;
Víðir, mánudaginn 9. júní og að
Geysir, miðvikudaginn 11 júní.
Var leikurinn sýndur af þess-
um sama flokk að Geysi, tvisvar
sinnum á síðastliðnu vori, við
ágætis aðsókn og framúrskar-
andi góðar viðtökur, að öllu leyti
og er það að ósk f jölda manns, að
hann er nú endurtekinn.
Það má benda Norður-Ný-ís-
lendingum á, að þarna fá þeir
ágætasta tækifæri að slá tvær
flugur með sama högginu, hlæja
og skemta sér eina kveldstund og
hjálpa hinu ágæta listamanns-
efni bygðarinnar, með því að
fjölmenna á leiksýninguna að
Geysir. 11. júní. E. B.
T
Gefið í Minningarsjóð
Bandalags lúlerskra kvenna
Frank Arnason, $5.00; John
Arnason, $5.00, í minningu um
kæran skólabróður, Freeman
Johnson; Sunnudagaskóli lút-
erska safna^jarins á Gimli, $10. 00,
í minningu um fyrverandi nem-
endur, er létu líf sitt í hinu ný-
afstaðna heimsstríði: Einar T.
Wilkinson, Björn J. Johnson,
Sigurjón Einarson, Oscar Sol-
mundson, Freeman Johnson.
Með innilegu þakklæti,
Anna Magnússon,
Box 296 Selkirk.
f
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
fund á miðvikudagskvöldið 11.
júní, að heimili Mrs. K. Oliver,
Whittier St., Kirkfield Park.
Fundurinn byrj ar kl. 8.
— Eg vona, að þér óttist ekki
sóttkveikjur, sagði gjaldkerinn
um leið og hann greiddi kennar-
anum laun sín í óhreinum pen-
ingaseðlum.
— Það er engin hætta á ferð-
um, sóttkveikjur gætu ekki
lifað af kaupinu mínu.
HAPPIÐ
Gamanleikur, eftir Pál J. Ardal, verSur sýndur að
RIVERTON, föstudaginn, 6. júní, 1947, kl, 9 e. h.
VIÐIR, mánudaginn 9. júní, 1947, kl. 9 e. h.
GEYSIR, miðvikudaginn 11. júní, 1947, kl. 9 e. h.
INNGANGUR 50c
Arðiu: af leiksýningunni að Geysir verður notaður til að
styrkja ungan listamann byggðarinnar til áframhaldandi
náms.
TILKYNNING
Þann 30. júní n.k. eiga þau séra Sigurður og frú Ingi-
björg Ólafsson í Selkirk, tuttugu og fimm ára giftingar-
afmæli. Vinir þeirra í Selkirk-söfnuði bjóða kunningjum
þeirra og vinum að heimsækja þau þann dag að 305 Superior
Ave., Selkirk, frá kl. 2—5 e. h. og frá kl. 7.30—10 að kvöldi.
Allir, sem á þennan hátt vildu heiðra þau, eru beðnir
að tilkynna einhverri af eftirfylgjandi nefndarkonum fyrir
20. júní.
MRS. (Dr.) EYJOLFUR JOHNSON—Box 394
MRS. GRIMUR EYMAN—Box 233
MRS. ANNA MAGNUSSON—Box 296
Nýtt ráðuneyti myndað
Samsteypustjórnin 1 Ungverja-
landi hefir neyðst til að leggja
niður völd, og hafa nú kommún-
istar tekist á hendui myndun nýs
ráðuneytis. Brezk stjórnarvóld
eru þeirrar skoðunar, að stjórn-
arskiftin stafi frá rússneskum á-
róðri, er elt hafi ungversku þjóð-
ina á röndum undanfarna mán-
uði; það fylgir sögu, að kommún-
istar vilji óðir og uppvægir
hrekja Tildy forseta af valdastóli.
| Læknirinn: — Jæja, hvernig
lýsir það sér? Sér hann hvítar
' mýs eða eitthvað slíkt?
— Nei, það er nú það sem að
er, og þó er T íbúð okkar fullt af
þeim.
♦
Presturinn: — Hvers vegna
ertu hættur að sækja kirkju,
Jón?
Jón: — í fyrsta lagi líka mér
ekki ræðurnar yðar. I öðru lagi
líkar mér ekki söngurinn og í
þriðja lagi var það í kirkjunni
hjá yður, sem ég sá konuna
mína í fyrsta sinn.
— Eg er hræddur um að bróð-
ir minn sé með „deleríum tre-
mens, læknir!
The Swa-n Manufacturing
Company
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
281 James St. Phone 22 841
For Lasting Relief
from
• ACID INDIGESTION
• GAS DISTURBANCES
• HEARTBURN
• NERVOUS SOUR STOMACH
wlth
GOLDEN
STOMACH TABLETS
360 tablets, $5.00
120, $2.00 55, $1.00
AT ALL DRUG STORES AND
DRUG DEPARTMENTS
-f -f
♦
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 eindálka
þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á þumlunginn;
þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en þetta getur
dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
-f
-0~
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLANDl
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheirrrtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, enu vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐM UNDSSON
HOLTSGATA 9, REYKJAVÍK
Farþegarflutningar milli
WINNIPEG og ASHERN
Tveir ungir menn, þeir John Mills og Roy Halldorson
í Eriksdale, hafa nú iekið að sér fólksflutninga milli
Winnipeg og Ashern, og nota til þess fyrsia flokks
langferðabíla, sem fara eftir Sargenf Avenue, vesiur
að Dominion Streel; bílar þessir staðnæmast á stræt-
4 inu og taka farþega, séu gefin merki.
Færið yður þessi nýju samgöngutæki í nyt!
The Following Doctors Wish to Announce They
Are Now Associated with the
KOBRINSKY CLINIC
216 KENNEDY STREET
SOLOMON KOBRINSKY, M.D.
Maternity and Diseases of Women
LOUIS KOBRINSKY. M.D., F.R.C.S., (Edin.)
General Surgery
SIDNEY KOBRINSKY, M.D.
Internal Medicine
M. TUBBER KOBRINSKY, M.D.
Physician and Surgeon
SAM KOBRINSKY, M.D.
Physician and Surgeon
SAMUEL RUSEN. M.D.
Physician and Surgeon
Telephone 96 391 -- If ]Vo Answer,
Call Doctor’s Directory — 72 152