Lögberg - 28.08.1947, Page 8

Lögberg - 28.08.1947, Page 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. ÁGÚST, 1947 Or borg og bygð Islenzkir sjúklingar, sem liggja á sjúkrahúsum hér 1 borginni, eða aðstandendur þeirra, eru vinsamlega beðnir að síma Mrs. „George Jóhannesson, 89 208, ef æskt er eftir heimsókn eða ís- lenzku blöðunum. Birt að tilstuðlan Djákna- nefndar Fyrsta lút. safn. -f Þann 21. þ. m., lézt að heimili dóttur sinnar í Steveston, B. C., Mrs. Elín Elizabeth Anderson, því nær sjötíu og eins árs að aldri; hún átti um hríð heima í Mikley; hún lætur eftir sig tvær dætur, Mrs. S. H. Sigurgeirsson í Steveston og Mrs. Townsend í Vancouver; ennfremur tvo sonu Jónas í Aldergrove, B. C., og Thorstein í Steveston; einnig eina systur og fjóra bræður. Út- för þessarar vinsælu konu fór fram í Steveston. Dr. Haraldur Sigmar jarðsöng. -f Síðastliðinn laugardag lézt á Gimli Árni Bjamarson, er um langt skeið hafði átt heima í Ár- borg, 78 ára að aldri; hann var ættaður úr Þingeyjarsýslu; út- förin hófst með kveðjuathöfn í lútersku kirkjunni á Gimli á mánudaginn, en síðan var líkið flutt til Árborgar og lagt þar til hinstu hvíldar. Við útförina töl- uðu þrír prestar, þeir séra E. H. Fáfnis kirkjufélagsforseti, séra Bjami A. Bjarnason og séra Sig- urður Ólafsson; auk Sólveigar ekkju sinnar, lætur Árni heitinn eftir eina dóttur, Mrs. J. W. Sim í Winnipeg. 4- Stúkan Skuld heldur fund á þriðjudaginn, 2. september á venjulegum stað og tíma. Mr. Gísli Jónsson ritstjóri Tímarits Þjóðræknisfélagsins, iagði af stað suður til Minne- apolis, Minn., þann 23. þ. m., í för með dóttur sinni og tengda- syni, þeim Mr. og Mrs. William Hurst; þaðan ætlaði Gísli flug- leiðis suður til New Jersey, þar sem Helgi sonur hans er prófes- sor við Ruthger háskólann; á heimleið ætlar Gísli að heim- sækja dóttur sína og tengdason í Montreal, þau Mr. og Mrs. Hugh Robson. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Sunnudaginn 31. ágúst: íslenzk messa kl. 7 e. h. Séra Eiríkur Brynjólfsson. Messur í prestakalli séra Hall- dórs E. Johnson: — Reykjavík sunnudaginn 31. ágúst kl. 2 e.h. — H. E. Johnson. -f Sunnudaginn 31. ágúst: Messa á Oak View, kl. 1 e. h., og að Sil- ver Bay, kl. 3 e. h. Allir boðnir velkomnir. Skúli Sigurgeirsson. -f Séra Kristinn K. Ólafsson flyt ur guðsþjónustur í Vatnabygðun um í Saskatchewan, sunnudag- inn 24. ágúst, sem fylgir: kl. 11 f.h. að Kristnesi, á íslenzku. Kl. 2 e. h. í Foam Lake, á íslenzku. Kl. 7.30 e. h. í Leslie, á ensku. — Sunnudaginn 31. ágúst flytur hann guðsþjónustur í vestur Jiluta bygðanna er verða nánar auglýstar í næsta blaði. -f Arborg-Riverton prestakall 31. ágúst. Hnausa, ferming og altarisganga kl. 2 e.h. — 7. sept. Vidir, ferming og altarisganga kl. 2 e.h. B. A. Bjarnason Messur í preslakall Lundar 7. september kl. 2 e.h. — Vog- ar 14. september kl. 2 e.h. — Lundar 21. september kl. 2 e.h. — Piney 28. september kl. 2 e.h. -♦• Lúlerska kirkjan í Selkirk Sunnud. 31. ágúst: íslenzk messa kl. 7 síðd. — Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson. -♦• Argyle prestakall Sunnudaginn 31. ágúst: Grund kl. 11 f.h. — Baldur klukkan 7. e. h. — Allir boðnir velkomnir. ■♦■ Eric H. Sigmar. ATHUGASEMD Þýdda greinin í Lögbergi sem Heimskringla minnist á í síðasta blaði, var ekki þýdd úr Canadían Tribune, heldur úr Manitoba Commonwealth — ekki kommún ista málgagn heldur C. C. T blaði. Þýðandinn sér ekki eftir nein um góðum cþ-eng til nokkurs þess starfa, er miðar til þess að gjöra þennan auma heim betri og byggilegri, en hann harmar hvern blóðdropa hraustra og ágætra æskumanna, semúthelt er í framandi löndum, fyrir enn hæpnari málstað en erindisleysu eina, eins og greinin í Manitoba Commonwealth bar með sér. Látum þá, sem slík erindi uppgötva, taka sér mal á bak -♦ Séra K. K. Ólafsson flytur guðsþjónustur sem fylgir í Vatna byggðunum í Saskatchewan sunnudaginn 31. ágúst: — Kl. 11 f.h. í Kandahar á ensku. — Kl. 2 e.h. í Wynyard á íslenzku og kl. 4 e.h. í Mozart á íslenzku. og staf í hönd og reka þau sjálfir og afgreiða að fullu. Jónbjörn Gíslason. Síðastliðna þriðjudagsnótt varð bráðkvaddur á heimili sínu Ste. 11 Corinne Apts., hér í borg inni, Mr. Larry Davies, þrítugur að aldri; hafði hann gegnt her- þjónustu í fimm ár. Mr. Davies var kvæntur Thoru Goodman, dóttur þeirra Mr. og Mrs. Krist- inn Goodman frá Selkirk; auk ekkju sinnar lætur hann e|tir sig tvö ung börn. -♦ Alfred Þórðason kaupmaður frá Reykjavík, lagði af stað héðan í fyrri viku til New York, ásamt frú sinni, Theodóru Ey- jólfsdóttur, ættaðri úr Hafnar- firði; þau hjónin dvöldu hér í fylkinu um nálega'þriggja vikna skeið, mest megnis í Swan River, en þar er búsettur faðir Alfreds, Þórður Thompson; — fundum þeirra feðganna hafði ekki borið saman í full þrjátíu ár. Ritstjóri þessa blaðs og frú, áttu rausnarlegum viðtökum að mæta í Reykjavík í fyrra sum- ar af hálfu þessara ágætu hjóna, sem ljúft er að minnast. Þau Alfred kaupmaður og frú, biðja Lögberg að flytja öll- um vinum sínum hér um slóðir, innilegar þakkir fyrir gestrisni. -♦ Mr. Kristján Þorsteinsson starfsmaður sporvagnafélags Winnipegborgar, kom heim á fimtudaginn var, eftir nálega tveggja mánaða dvöl á íslandi; hafði hann ósegjanlega ánægju af heimsókninni til ættlands síns og ferðaðist víða um landið. Lögberg mun á næstunni segja nokkuð frá ferðalagi hans um ísland. -f # Hans Fridrik Ágúst Thomsen, frá Árborg en áður búsettur í Winnipeg, andaðist á sjúkrahús- inu í Gimli 3. ágúst s. 1., á öðru ári yfir sjötugt. Hann var fædd- ur að Skálanesi í Seyðisfirði 6. okt. 1875. Fyrri kona hans, Sig- ríður Hjaltalín, dó 1923; en seinni kona hans, Jóna Marín Sigurbjörg Austman, lifir mann sinn. Börn á lífi eru: Ágúst, í Gimli; Hans Joseph, Bandaríkj- um; og Guðrún Friðrika í Winni peg. Systkini hins látna eru þau: Christiana O. L. Chiswell og Lorenz Thomsen í Winnipeg; María Borgford, Gimli; Gott- fred Elis Thomsen og Guðbjörg Hildur Oddson í Blaine, Wash. Friðrik sál. var í herþjónustu í fyrra heimsstríðinu frá 1916 til 1919. — Jarðarförin fór fram 7. ágúst frá útfararstofu Bardals, en greftrun var í Brookside graf- reit. Séra B. A. Bjarnason jarð- söng. -f Jón Sigurðsson Chapter I. O. D. E. will hold its first meeting of the season at the home of Mrs. L. E. Summers, 204 Queenston St. on Thursday Eve., Sept. 4th at 8 o’clock. Mrs. E. H. Gardiner The FINEST of ALL "rfí/pie Acr/OAf,, Celiótórte MOST Suíts or DressesO J CASH AND CARRY For Driver PHONE 37 261 Perth’s 888 SARGENT AVE. NÝJAR BÆKUR OG NOTAÐAR SKÓLABÆKUR keypl ar og seldar fyrir alla bekki frá 1-12—með sanngjörnu verðL Einnig eru til sölu flestar nýjcir baekur um frelsi og nútíðar málefni. Þær bækur eru einnig til útlána fyrir sann- gjarna þóknun. THE EETTEE CLC 548 Ellice Ave. bet. Furby & Langside Ingibjörg Shefley THE ICELANDIC CANADIAN SCHOLARSHIP FUND Presents Snjolaug Sigurdson in PIANO RECITAL Wednesday, September lOth, at 8:30 p.m. FIRST LUTHERAN CHURCH Admission 75 Cents f-f-f-f-f-f-f-f-f -f -f -f -f ♦ -f TIL KAUPENDA LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein- dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði. Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn. Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur. THE COLUMBIA PRESS LIMITED THE VIKING PRESS LIMITED -f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f ÞEGAR ÞÉR BYGGIÐ , . . Þá nolið ávalt CITY HYDRO RAFLEIÐSLU Ábyggilegasta og ódýrasta rafleiðslan SIMIÐ - CITY HYDRO - 848 124 KAUPENDUR LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU Á ISLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfinstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað. Dragið ekki að greiða blöðin. Það lé'ttir innheimtuna. Æskilegt að gjaLdið sé sent í póstávístm. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, enu vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐM UNDSSON HOLTSGATA 9, REYKJAVÍK Municipal Regent will give a report of the National Conven- tion in Toronto. Members are urged to attend. -f Mr. Sigirrður Emerson frá Madison, Wis., er nýlega kominn til borgarinnar úr heimsókn til ættingja og vina í Pembinabygð arlögunum í North Dakota; hann brá sér norður til Gimli í gær. -f Tvö eða þrjú herbergi fást til leigu frá 1. september næstkom- andi, í hlýju og stóru húsi. Upp- lýsingar að 637 Maryland Street. Sími 27 685. — Lifir á hvítum músum Kona ein í Berlín, frú Kopkau, var að verða máðursjúk vegna þess að íbúð hennar fyltist af hvítum múspm. Hvað sem hún gerði til þess að reyna að út- rýma þeim, kom það fyrir ekki, þeim fjölgaði altaf. Núna er kon an aftur á móti orðin hin ánægð asta með þessa friðarspilla, þar sem hún selur þær til sjúkrahúsa Berlínarborgar. Hún hefir þegar selt 3000 og „framleiðslan“ virð- ist ekkert vera í rénum. The Swt»n Manufacturíng Company Manufacturers of SWAN WEATHER BTBIP Halldor Methusalem* Swaa Eigandi 281 James St. Phone 22 641 Ungfrúin — vaknar af svæf-. ingu eftir botnlangauppskurð. — Ó, læknir, haldið þér að það sjáist ör? Læknirinn: — Ekki ef þér far- ið varlega. Minnist BETEL í erfðaskrám yðar On and After September 1st Drive Your Car Into ALVERST0NE M0T0RS SARGENT AND ALVERSTONE For COMPLETE MOTORING SERVICE K. N. J U L I U S: KVIÐLINGAR % Fyrsta útgáfan af ljóðsafni þessa sérstæða kýmni- skálds Vestur-Mendinga, og raunar íslenzku þjóðar- innar í heild, sem Bóklfellsútgáfan í Reykjavík sendi frá sér fyrir rúmu ári, seldist upp á svipstundu, og nú er 2. útgáfa komin á markaðinn; þetta er stór bók, prentuð á úrvals pappír og í fyrirtaks bandi. Bókina, sem kostar $7.50 að viðbættum 25 centa póstgjaldi, má panta hjá MRS. B. S, B'ENSON c/o THE COLUMBIA PRESS, LIMITED Winnipeg, Manitoba JVindbreaker Weather Abead Summer weather now — but jvhen the first chilly days of Fall come creeping up, you’ll be glad you anticipated them with one of these windbreak- ers — suitable for the golfer, fisherman, the motorist or just for casual wear around town. "Byrd” Cloth ÍVindbreakers Wind and shower-resistant, fawn cotton windbreakers, tailored by “Northmount”. Full zipper front, choice of raglan or set-in sleeves. Two patch pockets with flaps, and elastic waist band. Collective sizes, "I ^ Q f medium and large. Each Sr ■*- 4 ods Cotton Twill JVindbreakers Fawn cotton twill windbreakers that have a zipper front. Two set-in pockets with flaps and adjustable straps at waist. Sizes for the stout man as well as the regular., $6.95 Sizes 38 to 52. Each Men’s Clothing Section, Hargrave Shops for Men, Second Floor. T. EATON C?, LIMITED f

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.