Lögberg - 02.10.1947, Blaðsíða 1
PHONE 21374
iot
,Vtoiie<
r,l£>atVeTS
Clca
ot
V0***?#. cfröft- A Complele
Cleaning
'Inslilulion
«
PHONE 21 374
. rA
.-rt\\0^ , pr\) c
, Ctea'
4 D’-V
.ncrt
A C< mplele
Cl< aning
• Insl iiulion
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGIN.n 2. OKTÓBER, 1947
NÚMER 39
Canada og ísland stofna
til stjórnmálasambands sín á milli
Hon. Thor Thors verður fyrsti
sendiherra íslands í Ottawa
Sérstæður og gagnmerkur at-
burður gerðist í þróunarsögu
íslenzka lýðveldisins, er forsæt-
isráðherrann í Canada, Rt. Hon.
W. L. Mackenzie King, gerði það
lýðum ljóst yfir canadiska út-
varpið á föstudagskvöldið var,
að Canada og ísland hefðu ákveð
ið að stofna til stjórnmálasam-
bands sín á milli og skiptast á
sendiherrum. Mr. King lét þess
jafnframt getið, að Hon. Thor
Thors, sendiherra íslands í Was
hington, yrði fyrstur íslenzkur
sendiherra í Ottawa, og myndi
gegna slíku embætti hjá ná-
grannaþjóðunum tveimur; ekki
er enn vitað hver verði hinn
fyrsti sendiherra Canadastjórn-
ar á íslandi.
Ekki verður efað, að ríkisstjórn
íslands hafi vel tekist til um
Thor Thors.
valið, þar sem í hlut á jafn vitur
ágætismaður, sem hr. Thor
Thors er.
Þunglegar horfur
Á föstudaginn í vikunni, sem
leið áttu með sér fund í Toronto
verkamálaráðherrar canadisku
fylkjanna, að undanskildum
British Columbia og Prince
Edward Island fylkjunum, með
það fyrir augum, að ræða um
hið mikla verkfall hjá þremur
stærstu sláturfélögum í landinu,
og reyna að komast að einhverri
málamiðlun, en hér fór á annan
veg; niðurstöður fundarins urðu
aðeins þær, að verkfallið frá
byrjun væri ólöglegt, að verk-
fallsmenn hefðu gengið á gerða
atvinnusamninga og þar fram
eftir götunum; verkamálaráð-
herra Saskatchewan-fylkis lagði
fram minnihluta álit,'og kvaðst
eigi geta fallist á, að verkfallið
væri ólöglegt, enda skipti það að
sjálfsögðu meira máli, hvernig
tækist til um lausn þess.
Það væri synd að segja, að
horfurnar í þessu alvarlega verk
fallsmáli færi batnandi, því nú
hafa verkamenn hinna minni
og óháðu sláturfélaga, tilkynt
atkvæðagreiðslu um verkfall
innan vébanda þeirra, sem gera
má ráð fyrir að einnig verði já-
kvæð.
Smjörlíkisgerð
James Sinclair, Liberal þing-
maður fyrir Vancouver-kjör-
dæmið hið nyrðra, hefir lýst yf-
ir því, að á næsta sambandsþingi
ætli hann sér að flytja frumvarp
til laga, er heimili smjörlíkis-
gerð í Canada; fram að þessu
hefir það verið lögbannað að búa
tij smjörlíki í landinu eða flytja
það inn; telja má víst, að frum-
varp Mr. Sinclairs sæti nokk-
urri mótspyrnu, ems og frum-
vörp sama efnis, sem áður hafa
verið flutt á þingi og hlotið
skjótan aldurtila.
Tala kjósenda í Winnipeg
Þann 22. þ. m. fara fram bæj-
arstjórnarkosningar í Winnipeg,
og samkvæmt endurskoðaðri
kjörskrfj nemur tala atkvæðis-
bærra manna og kvenna 166,546.
Ferðir til íslands
Ferðamannaskrifstofan í New
York, er gengur undir nafninu
Viking Travel Service og Gunn-
ar Paulson veitir forustu, biður
þess getið, að þeir, sem hafi í
hyggju að heimsækja Island
næsta ár, ættu að gefa sig fram
við skrifstofuna sem allra fyrst
og tryggja sér þannig far, því
eftirspurn sé geysimikil varð-
andi flugferðir milli New York
og höfuðborga Norðurlanda.
Áminst ferðamannaskrifstofa
sér að öllu leyti um ferðalög
yðar frá heimili yðar og til
baka; hún hefir umboð fyrir
American Overseas Airlines, er
fljúga farþegaflugvélum sínum
um ísland báðar leiðir þrisvar í
viku.
Tvö þúsund og sex hundruð
mílna flugferð sfrá New York
til Islands, stendur ekki yfir
nema hálfan fjórtánda klukku-
tíma. Fargjald aðra leið $271.00,
en báðar leiðir $489.50.
Nýjar flugsamgöngur
Hermálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Mr. Claxton, hef-
ir kunngert, að á næsta ári hefj
ist reglubundnar flugferðir
milli Canada og Ástralíu; verð-
ur íTrans-Canada flugfélagið,
sem tekur að sér ferðirnar; flog
ið verður frá Vancouver til San
Francisco, en þaðan til Sydney
í Ástralíu; hafa stjórnarvöld
Canada og Ástralíu orðið á eitt
sátt um það, að framkvæmdir
í máli þessu þyldi ekki lengri
bið.
Hámarksverð
lífsnauð synja
Verkalýðssamtök í flestum
hinna stærri borga í Canada,
krefjast að hámarksverð lífs-
nauðsynja í landinu verði
innleitt að nýju; er á það bent,
að með afnámi hámarksverðs-
ins skapist að óþörfu harðrétti
meðal almennings; að hækkun
verðlags leiði til óhæfilegs gróða
fyrir stóriðjufyrirtækin og dragi
að sama skapi úr kaupgetu
fjöldans; að slíkar aðstæður
hljóti fyrr en síðar að leiða til
ískyggilegs atvinnuleysis innan
vébanda þjóðarinnar.
Aðalfundur Karlakórs
Islendinga í Winnipeg
var haldinn 30. sept. s. 1. í sal-
arkynnum Sambandskirkjunnar.
Hófst fundurinn kl. 8.30. — For-
seti Guðm. Stefánsson setti
fundinn og skýrði frá störfum á
árinu. — Var síðan gengið að
aðalfundastörfum og ýmis önnur
mál tekin fyrir og afgreidd með
mikilli lipurð. — Var síðan geng
ið til stjórnarkosninga. Guðm.
Stefánsson og Davíð Björnsson,
er báðir áttu sæti í fyrrv. stjórn
báðust undan endurkosningu. —-
Þakkaði fundurinn þessum tveim
mönnum frábærilegt og óeigin-
gjarnt starf í þágu kórsins.
Hina nýkjörnu stjórn skípa nú
eftirtaldir menn:
Forseti: Óli Björnsson. Ritari:
Tryggvi Thorsteinsson. Gjald-
keri: Guðm. Mýrdal, endurkjör-
inn. —
1 varastjórn eiga þessir menn
sæti:
Forseti: Stanley Skagfeld. Rit-
ari Páll Hallsson. Gjaldkeri:
Valdi Guðmundsson. — Bóka-
vörður var kosinn örn Þorsteins
son. — Kosin var nefnd er ákveða
skal viðfangsefni fyrir kórinn.
Nefndina skipa: Ragnar Stefáns-
son og Guðm. Stefánsson. —
Endurskoðendur voru kjörnir
þeir Chris Einarsson og Steindór
Jakobsson.
Áður en fyrrv. forseti vék úr
sæti, þakkaði hann kórmönnum
góða samvinnu og óskaði kórnum
. heilla. — Ríkti mikill áhugi kór-
manna um að efla kórinn eftir
beztu getu.
Minna má nú gagn gera
Samkvæmt fregnum frá Par-
ís þann 29. september, s. 1., er
fastaher rússnesku ráðstjórnar-
ríkjanna um þessar mundir
hvorki meira né minna en
1.800.00 manns; staðhæfir fregn-
in, að ekkert annað ríki hafi
annan eins mannfjölda undir
vopnum.
Aðalfundur
Um tuttugu prestar sátu aðal-
fund Prestafélags Suðurlands,
er haldinn var að Þingvöllum
s.l. sunnudag og mánudag.
Á sunnudagskvöld gengu prest
ar til kirkju og hlýddu á messu
er séra Sveinn Víkingur flutti,
en síra Garðar Svavarsson þjón-
aði fyrir altari. — Um kvöldið
flutti síra Valdimar Eylands er-
indi um kirkjulíf meðal Vestur-
Islendinga, en síra Sigurður
Pálsson að Hraungerði flutti
fréttir af kirkjuþinginu í Lundi,
en þar var hann einn af fulltrú-
um íslenzku kirkjunnar.
Á mánudag var tekið fyrir að-
alumræðuefni fundarins: —
Fermingin og fermingarundir-
búningur. Málshefjendur voru
síra Arngrímur Jónsson í Odda,
og síra Jakob Jónsson. — Urðu
miklar umræður um erindið og
stóðu þær lengi dags. Síra Jó-
hann Hannesson flutti kafla úr
fyrirlestri Karls Barth guð-
fræðipróf. við háskólann í Bern.
Þá fór fram kosning stjórnar
Prestafélagsins og var stjómin
öll endurkosin, en hana skipa
Síra Hálfdán Helgason formað-
ur, síra Sigurður Pálsson ritari
og síra Garðar Svavarsson gjald
keri. — i
Fundinum lauk með altaris-
göngu í Þingvallakirkju.
Mbl., 3. sept.
Eitt verkfallið enn
Svo að segja í sömu andránni
samskonar verkfall á Skotlandi,
og verkfallinu í kolanámunum á
Englandi lauk, hófst annað
og stendur það enn yfir; að því
verkfalli standa 'tíu þúsundir
námumanna, er krefjast bættra
vinnuskilyrða og hækkaðs
kaups. Brezkar kolanámur
hafa eins og vitað er, verið
þjóðnýttar, og nú er það ríkið,
sem er vinnuveitandinn og á-
byrgð ber á lífskjörum starfs-
manna sinna.
♦ ♦ ♦ ♦ ♦ <
Kvæðið um hana Kötu
%
I sælli bygð við svanavötnin bláu,
Er sólin blessuð kysti blómin smáu,
Eg kyntist Kötu .fyrst
En hún var augna yndi, allra fríðra sveina,
Eg ástfanginn varð líka, því ber ekki að leyna.
Hún var svo góð og gleði þyrst.
Og ungmeyjuna dreymir, um skraut og silki-sokka,
Um sjafnarlíf á vorin, og kannske litla hnokka,
Um lífsins unað: grund og græna skóga,
Þá riddara, er koma ríðandi yfir fjöllin
I rómantískri hrifning þeir spora heimavöllinn.
Þeir færa henni gull og gæfu nóga.
Þeim seinkar kanske á sumri og sóldögunum fækkar,
Senn að hausti líður og vonar ljósið smækkar. —
Eðlilega leiðist þeim, er lengi verða að bíða.
Þú átt að kveikja ljósin áður en skuggar falla
Og ástin kyndir vita, er lýsa veröld alla. —
En æskunni er eðlilegt að elska bæði og líða.
Seinast gengur Kata í sæng með gömlum manni
Sýndist gullið skína í þessum myrkva ranni.
Að komast inn í bergið hún kafaði vötn og snjóa,
En kalt varð henni næsta í þessum brúðarsal
- Og kuldavetur lífsins hjartanu úr henni stal.
Hún gekk um hjarnið, urð á báða bóga.
Mér er Kata minnisstæðust kvenna
1 mínu hjarta logasárin brenna
Eftir glöpin, örlögin og synd,
En aldrei var ég þessum kulda kvalinn
Og komast má úr logunum niður í heiða dalinn
Hver þíðir hjartans klaka mynd? #
H. E. Johnson.
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦-»•♦♦♦♦
G. L. Jóhannsson
Sæmdur
heiðursmedalíu
Samkvæmt tilkynningu frá
sendiherra Dana í Canada, Hon.
G. B. Holler, hefir G. L. Jó-
hannsson ræðismaður Islands og
Danmerkur í Sléttu-fylkjunum
þremur, verið sæmdur Liberty
medalíu hans hátignar Kristjáns
konungs hins tíunda, í viðurkenn
ingarskyni fyrir dygga þjónustu
meðan á hernámi Danmerkur
stóð.
Saltfiskúr seldur
Kristján Einarsson framkvstj.
Sölusambands íslenzkra fiski-
framleiðenda hefir skýrt Morg-
unblaðinu frá því, að samningi
sé nú lokið milli SlF annarsveg-
ar og Commodity Credit Cor-
poration, Washington, hinsveg-
ar, þar sem þeir kaupa 3400 smá-
lestir af íslenzkum saltfiski og
fer greiðsla fram í dollurum.
Fyrir rúmri viku kom hingað
til lands Mr. Robert W. Tyson,
sem var fulltrúi Bandaríkja-
stjórnar í þessum efnum, og
samdi hann um kaup þessi fyrir
þeirra hönd. Afskipun á fiski
þessum fer fram í október og
nóvember.
Verð það, er vér fáum fyrir
fiskinn, er mjög hliðstætt því
er vér höfum náð annars stað-
ar á sama tíma, en hér er um
dollaragreiðslu að ræða, eins og
áður segir.
Með þessari sölu mun láta
nærri að seld hafi verið um 20
þús. smálestir af saltfiskfram-
leiðslunni, en hún nemur alls
um 30.000 smálestum á þessu ári.
"'Mbl. 6. sept.
Kveðja lið sitt heim
Umboðsstjórn Breta í Pale-
stínu, er nú í þann veginn að
syngja sitt síðasta vers. Attlee-
stjórnin hefir nýverið gert al-
þjóð manna kunna þessa ráð-
stöfun sína, og falið sameinuðu
þjóðunum lausn hinnar svo-
nefndu Palestínu-deilu; gera
má ráð fyrir, að það taki nokk-
urn tíma þar til alt áminst setu-
lið verður horfið á brott úr land-
inu helga.
Valin í öryggisráð
Svo hefir skipast til að Cana-
da hefir hlotið kosningu í ör-
yggisráð sameinuðu þjóðanna
til tveggja ára; mun þetta frá
því, er alþjóðaþingið kom sam-
an, hafa þótt nokkurn veginn
sjálfsögð ráðstöfun; í næstu
tvö ár, verður Candada þar af
leiðandi, að eiga fastan erind-
reka í New York til þess að sinna
þeim störfum, er öryggisráðið
kann að krefjast frá degi til
dags.
Kosinn í ritstjórn
Dr. Richard Beck, prófessor
í Norðurlandamálum og bókment
um við ríkisháskólann í Norður-
Dakota, hefir verið kosinn að-
stoðarritstjóri ársfjórðungsrits-
ins Scandinavian Siudies, en
er gefið út af hálfu fræðafélags-
ins The Society for the Advance
ment of Scandinavian Study,
sem vinnur að eflingu nor-
rænna fræða vestan hafs.
Hefir dr. Beck á undanförn-
um árum birt margar ritgerðir
og fjölda ritdóma um íslenzkar
o gnorskar bókmenntir í þessu
kunna fræðiriti, nú seinast í
febrúarhefti þess í ár ítarlega
ritdóma um síðasta bindi
“Islandica”-safns Halldórs pró-
fessors Hermannssonar og fyrsta
bindið af “íslenzkri menning”
eftir dr. Sigurð Nordal, eins og
áður hefir getið verið hér í
blaðinu. Dr. Beck hefir einnig
um langt skeið átt sæti í stjórn
arnefnd fyrrgreinds fræðafélags
og er fyrrv. forseti þess.
Aðalritstjóri ofannefnds tíma-
rits er prófessor A. M. Sturte-
vant, við ríkisháskólann í
Kansas, en aðrir ritstjórar, pró-
fessor A. L. Elmquist, við ríkis-
háskólann í Nebraska, prófessor
Gösta Franzen, við Chicago-há-
skóla og prófessor Walter John-
son, við ríkisháskólann í Suður-
Dakota.
Ur borg og bygð
Gefin saman í hjónaband, að
heimili lúterska sóknarprestins
í Selkirk þann 27. september:
Sigursleinn Halldór Magnússon,
Hnausa, Man., og Jóna Kristín
Johnson, Geysir, Man. — Brúð-
guminn er sonur Mr. og Mrs.
J. V. Magnússon, Hnausa, en
brúðurin er dóttur Guðmundar
Magnúsar Johnson, og Rannveig
ar Einarsdóttir konu hans, Geys-
ir, Man. Við giftinguna aðstoð-
uðu Lilja Soffía Johnson, systir
brúðurinnar og Gunnsteinn
Magnússon, bróðir brúðgumans.
Heimili ungu hjónanna verður
Hnausa, Man.
♦
Jón Sigurdson félagið heldur
“Silver Tea” og sölu á heima til-
búnum mat á laugardaginn 4.
október í T. Eaton Assembly hall
frá kl. 2,30 til 4,30. Mrs. B. S.
Benson forseti félagsins hefir
aðal umsjón með sölunni. Vinir
og velunnarar félagsins eru
beðnir að muna eftir stað og
stund.
♦
Mr. og Mrs. S. B. Johnson frá
Glenboro voru stödd í borginni
á þriðjudaginn.
♦
Látin er nýlega hér í borginni
Mrs. Thorlákur Johnson, hin
mætasta kona, er átt hafði við
langa og stranga vanheilsu að
búa; auk manns síns lætur hún
eftir sig eina dóttur.
♦
Gefið iil Sunrise Lulheran
Camp
Immanuel Missionary So-
ciety Wynyard $10.00. Kvenn-
félag Herðabreiðarsafnaðar —
$25,00. — Gefið í minningarsjóð-
inn $10,00 frá Thorbirni Magnús
syni, Gimli, í minningu um Srgt.
Leonard Norman Jónasson og
Oscar Goodman. — Meðtekið
með innilegu þakklæti.
Anna Magnússon
Box 296, Selkirk, Man.
I