Lögberg - 20.11.1947, Side 1
PHONE 21 374
ð Vcle»"«'s
,úVeA
xd
A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21 374
\\tt"'^vÍ0l^'.
w lS
v\eA
?rs
A C< mplete
Cl< aning
Ins1 ílulion
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 20. NÓVEMBER, 1947
NÚMER 43.
Elizabeth ríkisarfi Lieut. Philip Mountbatten
Rt. Hon W. L. Mackenzie King
forsætisráðherra Canada
Mr. King, sem staddur er í London um þessar mundir í
tilefni af brúðkaupi Elizabetar ríkisarfa og Lieut. Philips
Mountbatten, hefir af hans hátign konunginum verið
sæmdur Order of Merit, sem er hæsta virðingargtig, sem
unt er að veita án aðalstignar, og bundið er við 24 persónur.
Mr. King hefir gegnt við vaxandi orðstír forsætisráðherra-
embætti í 20 ár, og hafi nokkur Canadamaður verið
áminstrar sæmdar verður, þá var það hann; Mr. King er
meira en Canadamaður, hann er í rauninni alheimsborgari,
einn af fáum.
í dag voru gefin saman í
hjónaband í Westminster Abby,
ríkisarfi Bretlands hins mikla,
Elizabeth prinsessa og Lieut.
í sjóhernum, Philip Mountbatten
að viðstöddu miklu stórmenni;
þrír konungar voru viðstaddir
Rússar og kjarnorkan
Frá París bárust þær fregnir
þann 11. þ. m., að Rússar hefðu
státað af því á nýlega afstöðnu
þrítugsafmæli rauðu byltingar-
innar, að þeir hefðu fundið upp
og þaulreynt kjarnorkusprengju
sem að engu stæði amerísku
sprengjunni að baki nema síður
væri; við hvað fregn þessi
styðst, mun að mestu leyti enn
á huldu; þá þykjast Rússar einíi-
ig hafa fundið upp helgeisla,
sem í sér hafi fólgið margfalt
meira tortímingarmagn en
kj arnorkusprengjan.
Skipting Palestínu
Frá London koma þær fregn^
ir, að Bretar séu ófúsir, eða jafn
vel ófáanlegir til að fallast á
uppástungu meirihluta samein-
uðu þjóðanna um stofnun
tveggja fullvalda ríkja Palest-
ínu, þar sem annað verði fyrir
Araba, en hitt fyrir Gyðinga;
um skiptingu íandsins eru
Bandaríkin og Rússland að
mestu leyti sammála; vilja
Bretar ógjarna vera aðiljar að
neinni þeirri ráðstöfun, er hvor
aðiljinn um sig, Gyðingar og
Arabar, geti ekki skynsamlega
sætt sig við; þá vilja Bretar
heldur- ekki taka einir á sig þá
ábyrgð, að viðhalda í Palestínu
mikilvægum og kostnaðarsöm-
um herafla meðan verið sé að
fyrirsögn hinna samemuðu
þjóða að koma á fót í landinu
tveim andvígum ríkjum og
skipuleggja stjórnarfar þeirra.
Palestína
Svo mátti heita, að alt væri
nokkurn veginn með kyrrum
kjörum í Palestínu undanfarinri
mánaðartíma, þar til alt fuðraði
upp á ný síðástliðinn fimtudag,
og voru skotnir til dauðs þrír
brezkir lögregluþjónar, fimm
Gyðingar og tveir Arabar.
Skæruliðar úr hópi Gyðinga eru
sakaðir um tilverknaðinn.
vígsluathöfnina, konungarnir í
Rúmeníu, Danmörk og Noregi;
fyrir hönd Svía mætti sænski
krónprinsinn,; meðal forustu-
manna, er viðstaddir voru við
þessa veglegu og söguríku at-
höfn, voru þeir Mr. King for-
Magnús Sigurðsson
bankastjóri látinn
Sú fregn hefir nýlega borist
hingað til borgarinnar, að bráð-
kvaddur hafi orðið í Svisslandi
Magnús Sigurðsson bankastjóri
við Landsbanka Islands, 67 ára
að aldri, hæfileikamaður hinn
mesti og vinfastur sem þá, er
bezt gerist; hhnn var fæddur í
Bráðræði í Reykjavík, og útskrif
aðist í lögfræði frá Kaupmanna-
hafnarháskóla.
Vilja slíta
Stjórnmálasambandi
Hin pólitíska nefnd samein-
uðu þjóðanna hefir méð 26 at-
kvæðum gegn 6, endursamþykt
að slíta stjórnmálasambandi við
Franco-Spán eins fljótt og því
verði viðkomið og trygging sé
fengin fyrir því, að lýðræðis-
stjórn komist á í landinu; tutt-
ugu þjóðir, þar á meðal Canada
og Bandaríkin greiddu ekki at-
kvæði.
Kjörin í öryggisráð
Eftir margþætta togstreitu,
sem staðið hefir yfir innan vé-
banda sameinuðu þjóðanna síð-
an þanrt 1. október, s. 1., hefir
Ukranía hlotið sæti í öryggisráð-
inu í strangri samkeppni við
Indland; féllu atkvæðiy á þann
veg, að 35 fylgdu Ukraníu að
málum en 2 Indlandi. Fimtán
þjóðir greiddu ekki atkvæði.
Játar á sig íkveikju
Þýzkur nazisti, sem nú er
kærður fyrir morð í Þýzkalandi,
hefir að sögn játað á sig, að hafa
verið valdur að íkveikju í
franska viðhafnarskipinu Nor-
mandie á höfninni í New York
þann 9. febrúar 1942. — Áminst
ur nazisti, sem enn hefir eigi
verið nafngreindur, er sagður að
hafa verið viðriðinn víðtæka
njósnarstarfsemi af hálfu naz-
ista innan vébanda Bandaríkj-
anna, en komist undan til
Þýakalands, þar sem hann nú
bíður dóms og laga.
sætisráðh. Canada og Mr. Smuts
forsætisráðh. Suður.-Afríku.
Þegnar hins víðlenda brezka
ríkjasambands, hvar sem þeir
eru í sveit settir, óska hinum
konunglegu brúðhjónum bless-
unar guðs í bráð og lengd.
Sæmdur doktorsnafnbót
Forfeætisráðherrann í Canada,
Mr. King, sem verið hefir á
ferðalagi um meginland Norður-
álfunnar undanfarna daga, var
síðastliðinn þriðjudag kjörinn
heiðursdoktor í lögum við há-
skólann í Brussel í Belgíu;
flutti hann við það tækifæri
ræðu, þar sem hann lagði mikla
áherslu á alþjóða samvinnu og
fór hlýjum orðum um það djúpa
vinarþel, sem löngum hefði ríkt
milli Canada óg belgísku þjóð-
arinnar; frá Brussel lagði Mr.
King af stað í heimsókn til Hol-
lands; áður hafði hann dvalið
um hríð í París, heilsað upp á
lýðveldisforseta Frakka og rætt
við franska forustumenn á vett-
vangi stjórnmálanna um sam-
eiginleg áhugamál. — Til Lond-
on verður Mr. King kominn þ.
20. þ. m. ,til þess að sitja brúð-
kaup Elizabetar ríkisarfa og
Lieut. Philips/'Mountbatten. —
Mr. King verður kominn heim
nokkru fyrir þingsetningu, sem
fram fer þann 5. desember næst-
komandi.
Uppþot í Marseille
1 Marseille, sem er önnur
stærsta borg Frakklands, logar
um þessar mundir alt í verkföll-
um, er Ramadier forsætisráð-
herra staðhæfir að kommúnistar
hafi stofnað til með það fyrir
augum, að steypa núverandi
jafnaðarmannastjórn af stóli og
koma í framkvæmd rauðri bylt-
ingu, væri þess nokkur kostur;
herlið hefir verið kvatt á vett-
vang, og hafa nokkrar brýnur
átt sér stað milli þess og kom-
múnista; er síðast fréttist höfðu
tveir menn verið drepnir, en
sextán fluttir á sjúkrahús’meira
og minna særðir.
Fjármálaráðherra Breta,
Hugh Dalton, hefir orðið að
láta af embætti vegna laus-
mælgi; hafði hann gloprað því
út úr sér við blaðamann, hverra
breytinga mætti helzt vænta, er
hin nýju fjáraukalög yrðu lögð
fyrir þing, og tíðindin komust
Úr borg og bygð
Föstudaginn, 7. nóv., varð
Stefán Haraldur Bergson fyrir
slysi á horninu á Bannatyne
Ave., og Albertstrætis. — Hann
var fluttur á Almenna sjúkra-
húsið í Winnipeg og andaðist
þar daginn eftir. Mr. Bergson
var 57 ára að aldri er hann lézt.
Hann átti heima mestan hluta
æfinnar í Winnipeg, síðast í
Elsinore Apartment. Foreldrar
hans voru þau hjónin Jón Berg-
soil og Margrét Sigfúsdóttir, en
kona hans war Bertha Gísladótt-
ir Johnson, fædd í Reykjavík,
alin upp í Seyðisfirði. Fóstur-
son áttu þau hjónin, Stephan
Philip Bergson. Hinn látni var
lengi starfsmaður hjá Artic
Ice félaginu. — Hann þjón-
aði í hinum tveimur veraldar-
styrjöldum. Mr. Bergson var
góður Jiermaður, prúður í fram-
gangsmáta, stiltur maður og
hjartagóður. Hann var jarðsung
inn af séra Rúnólfi Marteinssyni,
miðvikudaginn 12. nóv. og fór
athöfnin fram í útfararstofu
Bardals, miðvikudaginn 12. nóv.
og í Brookside-grafreit. Allstór
hópur fólks var viðstaddur.
Rósa Sigurðardóttir frá Rvík.,
er stödd í borginni um þessar
mundir; hún hafði dvalið nokk-
ura mánuði í Bandaríkjunum og
heimsótt ættingja og vini í ís-
lenzku bygðarlögunum í North
Dakota; mun brátt leggja af
stað suður aftur á leið til íslands.
Mr. Ari Johnson frá Árborg
var nýlega staddur hér í borg-
inni, og kom þá vestan frá
Wynyard, Sask.
•♦•
Mrs. Josep Johnson er nýlega
farin suður til Long Beach, Cal.,
þar sem hún ráðgerði að dvelja
um sex mánaða tíma.
■♦•
Fólk er beðið að veita því at-
hygli, að hinn góðkunni, lög-
giíti endurskoðandi, H. J.
Pálmason, sem undanfarandi
hefir starfað hjá War Assets
Corporation, er nú byrjaður á
endurskoðun á ný í eigin nafni
í Confederation Life bygging,-
unni; þess skal einnig gætt, að
hið nýja símanúmer Mr. Pálma-
áons, 94 686, kemst ekki í síma-
skrána fyr en í næstkomandi
janúarmánuði.
♦
The Icelandic Canadian Club
Evening School
The reading Circle of the Ice-
landic Canadian Club Evening
School will meet November
26th at 8.30 p.m., at the home
of H. F. Danielsson 869 Garfield
Street. — The Author” Johann
Magnús Bjarnason will be the
subject of the evening.
•♦
Mr. Th. Bergman frá River-
ton lagði af stað vestur til Van-
couver, B. C., síðastliðinn föstu-
dag.
•♦■
Dr. P. H. T. Thorlakson lagði
af stað síðastliðinn sunnudag í
ferðalag vestur um Kyrrahafs-
strönd.
þegar á prent. — Eftirmaður
Hugh Dalton, er Sir Stafford
Cripps. — Samkvæmt kröfu frá
Winston Churchill, var skipuð
þingnefnd úr öllum flokkum til
þess að rannsaka orsakirnar, er
til lausmælgi hins fráfarandi
ráðherra leiddu.
Frá Laugardagsskólanum
Vegna Santa Claus skrúð-
göngu verður engin kensla næst
komandi laugardag, en börnin
eru beðin að koma stundvíslega
í skólann kl. 10 á laugardaginn
29. nóvember.
♦
The Junior Ladie’s Aid of the
First Lutheran Churcþ will
meet Tuesday, November 25th.
at 2.30 p.m. in the church
parlors.
♦
Mr. Guðjón Ingimundsson
byggingarmeistari frá Riverton,
leit inn á skrifstofu Lögbergs á
mánudaginn, glaður og alúðleg-
ur að vanda.
•♦•
Mr. Grettir Eggertson, raf-
magnsverkfræðingur frá New
York, dvelur í borginni þessa
dagana í heimsókn til ættingja
og vina.
Mr. og Mrs. Caryl Byers, Port
Arthur, Ont., urðu fyrir þeirri
sáru sorg, að missa einkar efni-
legan 11 mánaða gamlan son,
Norman Caryl, síðastliðinn laug
ardag; útförin fór fram frá
Bardals hér í borginni á þriðju-
daginn. Séra Eiríkur Brynjólfs-
son jarðsöng. — Móðir hins látna
drengs er Helga, dóttir þeirra
Mr. og Mrs. A. S. Bardal. — Lög-
berg vottar syrgjendunum inni-
lega hluttekningu.
Stúkan Skuld heldur fund á
venjulegum stað og tíma
þriðjudaginn þann 25. þ. m. —
Fjölmennið!
Athyglisverð skemtun
Að því hefir áður verið stutt-
lega vikið hér í blaðinu, að
Karlakór íslendinga í Winnipeg
hefði á prjónunum skemtisam-
komu, er íslendingar hér í borg,
og jafnvel nærliggjandi byggð-
um, mundu hlakka til að sækja;
samkomur karlakórsins teljast
til meiri háttar þjóðræknislegra
viðburða í félagslífi okkar, enda
hefir þeim jafnan verið tekið
með óblöndnum fögnuði; nú er
ákveðið að karlakórinn efni til
skemtisamkomu í Goodtemplara
húsinu næsta mánudagskvöld
þann 24. þ. m. Hin fjölþætta
skemtiskrá er birt á öðrum stað
hér í blaðinu, og ætti fólk að
kynna sér hana gaumgæfilega;
söngstjórn hefir með höndum
Sigurbjörn Sigurðson, sem kunn
ur er fyrir löngu vegna rögg-
semi sinnar og nákvæmni í
túlkun tóna; einsöngvari verður
Elmer Nordal, sem hrifið hefir
tíðum áheyrendur sína með
sinni blæfögru og karlmannlegu
rödd; við hljóðfærið verður
Gunnar Erlendson píanókennari;
til nýlundu má það teljast, að á
söngskránni er undurfagurt, ný
samið lag, Vor, eftir einn af með-
limum kórsins, Halldór M.
Swan, verksmiðjueiganda. En
mesta aðdráttaraflið að sam-
komunni verður þó það, að all-
ur arðurinn rennur í námssjóð
Agnesar Sigurðson, hins frá-
bæra píanósnillings, er nám
stundar í New York um þessar
mundir, og virðist vera á ör-
uggri leið til víðfrægðar.
Víkur úr embætti vegna lausmælgi