Lögberg - 20.11.1947, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN20. NÓVEMBER, 1947
Sendifulltrúar Islands fiytja ræður
Eflirfarandi ræðum sendifulltrúa íslands á þingi samein-
uðu þjóðanna, var nýlega útvarpað yfir íslenzka Ríkisút-
varpið; ræðurnar eru eftir Thor Thors sendiherra, og
fyrrverandi forsætisráðherrana þrjá, Ásgeir Ásgeirsson.
Hermann Jónasson og Ólafs Thors.
Ræða Thor Thors.
Góðir íslendingar!
Allsherjarþing hinna Samein-
uðu þjóða, sem var sett hinn 16.
september, á í dag, hinn 30. októ
ber, í miklum önnum og fjölda
mörg erfið og hættuleg vanda-
mál eru ennþá óleyst og raunar
óhreyfð. Þess er því ekki að
vænta, að þinginu ljúki fyrr en
seinni hluta nóvembermánaðar.
Eins og kunnugt er, eru hér
mættir 4 fulltrúar fyrir íslands
hönd, það eru þrír fyrrverandi
forsætisráðherrar Islands, þeir
Ásgeir Ásgeirsson, Hermann
Jónasson og Ólafur Thors, auk
mín. Islenzka sendinefndin er
ein hin fámennasta hér á þing-
inu. Stærri þjóðirnar hafa tugi
og jafnvel hundruð manna til
þess að fara með mál sín. — Ef
takast ætti að sinna öllum störf-
um þingsins, er nauðsynlegt að
hafa nokkuð fjölmennar sendi-
nefndir, því að störf þingsins
fara aðallega fram í 7 nefndum,
sem halda fundi alla daga þegar
ekki er allsherjarþing, og eru
fundartímar hinna einstöku
nefnda samtímis. Eg þykist þess
fullviss, að íslendingar yfirleitt
telji það vel og vit'urlega ráðið
að þrír fyrrverandi forsætisráð
herrar og núverandi forystu-
menn flokkanna, skuli sækja
þingið fyrir Islands hönd. Það
munu íslendingar telja mikið
mannval af okkar hendi. En við
skulum ekki gleyma því, að hér
á þessu mikla þjóðanna þingi
erum við íslendingar smæstir
þeirra smáu, og það verður ekki
til þess ætlast, né heldur yrði
því hlýtt, að við tökumst á hend-
ur þann vanda að frelsa hefm-
inn og segja öðrum þjóðum fyr-
ir verkum. Þess ber einnig að
gæta, að það hefir orðið ljóst —
alvarlega, ískyggilega og óbifan-
lega ljóst — á þessu þingi hinna
sameinuðu þjóða, miklu ákveðn-
ar og greinilegar en á fyrri þing-
um, að þetta er ráðstefna siór
veldanna, þar sem þau tefla
fram skoðunum sínum og deila
hiklaust og vægðarlaust um
mestu vandamál nútímans. Það
er raunaiega eftirtektarvert,
hversu ræðurnar á þinginu nú í
ár eru sneyddar venjulegri
diplómatiskri kurteisi. Beinar
aðdróttanir og þyngstu ásakan-
ir fjúka milli borða og oft virð-
ist sem bilið milli aðal stórveld-
anna tveggja, Bandaríkjanna og
Rússlands, sé óbrúanleg. Á slíku
þingi er erfitt fyrir minnstu þjóð
heimsins áð kunna fótum sín-
um forráð, en við íslendingamir
reynum, þegar þess er nokkur
kostur, að fara bil beggja, en
látum þó sannfæringu og mál-
stað ráða hverju sinni hvernig
fer um atkvæði okkar. Oft höf-
um við átt samleið með Vestur-
veldunum, stundum með Rúss-
landi; öðru hvoru, en ekkfaltaf,
höfum við verið í samfylgd með
hinum Norðurlandaþjóðunum.
Við höfum gætt þess að varast
það, að ísland yrði dregið í dilk
með nokkru öðru ríki eða ríkja-
samtökum.
in var því einróma hlynnt, að
slík rannsóknarnefnd yrði send
á vegum hinna Sameinuðu
þjóða til þess að fullskýrt yrði
alheimi sem fullvalda, sjálfstætt
lýðveldi, og atkvæði þess gildir
hér á allsherjarþinginu jafnt og
atkvæði mestu stórvelda heims-
ins. Hvað sem framtíðin kann
að bera í skauti sínu um örlög
íslands og annara smáþjóða, þá
er það óhagganleg staðreynd, að
í dag njótum við viðurkenningar
alheims sem sjálfstæð þjóð.
Stæðum við utan samtaka
fyrir alheimi hvers vegna órói
ríkir í Grikklandi, og hvernig hinna Sameinuðu þjóða, er ekki
Störfum þingsins hefir verið
á þann veg háttað, að fyrstu 10
dagarnir fóru í almennar um-
ræður á allsherjarþinginu, síð-
an tóku hinar 7 nefndir þings-
ins til starfa, og ganga nefndar-
störfin greiðlega í ýmsum nefnd-
um, en lengst munu þau drag-
ast, enda erfiðust, í pólitísku
nefndinni. Af 13 málum, sem
þar eru á dagskrá, hafa aðeins
4 komið til umræðu, og tvö
þeirra þegar verið afgreidd.
Grikklandsmálið svokallaða var
rætt í 3 vikur í nefnd og síðan
3 daga á allsherjarþinginu, unz
endanlega var samþykkt að
senda nýja rannsóknarnefnd til
Grikklands. íslenzka sendinefnd
má stöðva hann án þ>ess að til
ófriðar þurfl að koma. Hið ann-
að mál, sem nú hefir verið leyst,
er það að fordæma stríðsæsing-
ar í öllum löndum og reyna að
reisa skorður við þeim. Vorum
við íslendingarnir frá öndverðu
hlynntir slíkri ákvörðun og
tókst svo heppilega til eftir
margra daga viðsjárverðar deil-
ur og þungar atlögur milli stór-
veldanna, að fullt samkomulag
náðist, og allar þjóðir lýstu van-
þóknun sinni á því athæfi að ala
á tortryggni milli þjóðanna.
Ennþá er óleyst deilumálið um
það, hvort nefnd allra þjóða
skuli starfa á milli allsherja-
þinga. Bandaríkin, og jafnvel
einnig Bretland og Frakkland
eru því fylgjandi, en Ráðstjórn-
arríkin eru því andvíg, og telja
að slík starfsemi komi í bága við
hlutverk öryggisráðsins. Af öðr-
um stór-deilumálum, sem óf-
hreyfð eða óafgreidd eru, má
nefna friðarsamninganna við
Itali, ástandið í Kóreu, afstöð-
una til Franco-Spánar og kjör
Indverjanna í Suður-Afríku.
Öll þessi mál eru hjá pólitísku
nefndinni, og er þess því langt
að bíða, að hún geti lokið störf-
um .
að efa það, að einhverjir yrðu
til þess að véfengja þá aðstöðu
okkar.
Eg vil að lokum geta þess, að
mér virðist sem stjórnmála-
mennirnir í íslenzku sendinefnd
inni fari óðum að ókyrrast og
. hugsa til heimferðar, og vil ég
því nota tækifærið til þess að
Eitt mesta vandamál þingsins
er lausn Palestínumálsins. Sér-
stök nefnd allra þjóða starfar að
því á þinginu, en eins og kunn-
ugt er, hafði aukaþing Samein-
uðu þjóðanna á s. 1. vori verið
kallað saman vegna þess máls
eins, og var þá skipuð sérstök
rannsóknarnefnd af hendi hinna
Sameinuðu þjóða. Tillögur
þeirrar nefndar liggja nú fyrir
og ganga þær annars vegar út
á það, að Palestínu skuli skipt
í tvö ríki milli Gyðinga og
Araba, en hins vegar er lagt til,
að sambandsríki Gyðinga og
Araba verði stofnsett í Palestínu.
Gyðingar heimta sitt sérstaka
ríki, en Arabar hóta ófriði,
ef skipta á landi þeirra. Málið
er geysi-vandamikið, ekki síst,
þegar þess er gætt, að um
250.000 Gyðinga eru heimilis-
lausir, í fangabúðum Evrópu,
og eiga sér hvergi athvarf. Það
er rætt um það, að flóttafólki
heimsins, sem alls mun vera um
1.300.000, verði skipt niður á öll
lönd veraldar, og er ekki ólík-
legt, að það verði að ráði. Fram-
tíð Palestínu verður samt sem
áður að ákveðast, og’ enda þótt,
að í því máli séu Bandaríkin og
Rússland sammála í aðalatrið-
um, þar sem þessi tvö stórveldi
vilja skipta landinu í tvö ríki,
>á er samkomulagið milli Gyð-
inga og Araba hvergi nærri
sjáanlegt ennþá, og loks er allt
óráðið um það hver vilji bera
ábyrgð á löggæslu í landinu á
meðan verið er að koma á friði
og knýja í framkvæmd ákvarð-
anir Sameinuðu þjóðanna. En
allt er þetta í athugun, og leiíað
verður sátia milli aðila í lengsiu
lög.
Það er auðséð að vandamálin
blasa allsstaðar við, og íslandi
er mikill vandi á höndum með
að gæta atkvæðis síns.
Einhverjir kunna að spyrja,
hvers vegna erum við Islending-
ar að taka þátt í þessu alheims-
starfi? Því er til að svara að ég
hygg, að innganga íslands í
hinar Sameinuðu þjóðir hafi
verið óhjákvæmileg og æskileg
sem síðasta sporið í sjálfstæðis-
baráttu þjóðarinnar. Vegna þátt
tökunnar í Sameinuðu þjóðun-
um er ísland nú viðurkennt af
nota
þakka ]?eim ágætt samstarf í
hvívetna. Það hefir sýnt sig, að
þótt íslenzkir stjórnmálamenn
sækist á og deili hart heima á
íslandi, þá bera þeir giftu til
þess að standa saman þegar
okkar litla land er í vanda og
verður að taka afstöðu og þola
dóm samkvæmt framkomu
þeirra á þjóðanna þingi.
Verið þið s'æl!
í miðju Atlantshafi góða að-
stöðu.
Ætt okkar og uppruni, arfur
þjóðarinnar og hugarfar, lega
landsins og nágrenni við hinar
þroskamestu lýðræðisþjóðir,
gera okkur kleift að greiða at-
kvæði eftir málavöxtum og í
anda friðsamlegs samstarfs.
Mér er ljúft og skylt að geta
þess, að ég hefi orðið þess var,
að ísland hefir þegar unnið sér’ reyna að na, ef ekki aðstöðu í
nokkurt traust og virðingu.
Nú, þegar við hverfum heim,
skiljum við því óleyst mál og
atkvæði íslands og öryggi eftir
í höndum hins skipaða fulltrúa
íslands hjá hinum sameinuðu
þjóðum, Thor Thors, sendiherra,
og þökkum honum ágæta for-
ystu nefndarinnar og gott sam-
starf.
Ræða Ásg. Ásgeirssonar
Góðir áheyrendur!
Okkar fámenna íslenzka þjóð
er að sjálfsögðu í félagi hinna
Sameinuðu þjóða. Atkvæði ís-
lenzku þjóðarinnar er jafn
þungt á metunum og atkvæði
stórþjóðanna, þegar neitunar-
valdi er ekki beitt, og jafn létt-
vægt og atkvæði allra hinna
þegar eitt stórveldi í öryggisráð-
inu kreppir hnefann og segir:
Nei! Þegar svo ber undir, leysist
bandalag hinna sameinuðu þjóða
upp í sín frumefni, neitunar-
valdið verkar eins og atóm-
sprengja.
Að öðru leyti er þing hinna
sameinuðu þjóða eins og hvert
annað þing, lýðræðisþing með
málfrelsi, atkvæðagreiðslum og
framkvæmdastjórum, sem svara
til ráðherra. Eins og nú er kom-
ið eru ekki spöruð stóru orðin
— svo að því leyti getur íslend-
ingurinn verið.eins og heima
hjá sér. Kurteisi er minni en var
hjá Guðmundi á Glæsivöllum
og kraftamir að því skapi meiri.
En hver veit nema þetta geri
gagn. Það fróar að ausa úr skál-
um reiðinnar og láta hana ekki
úldna í hjartanu, eins og meist-
ari Jón segir. Við höfum þrátt
fyrir allt séð þess glöggan vott,
að það getur borið góðan árang-
ur að sitja við sama borð og
munnhöggvast til sátta — ef svo
má segja — í stað þess að kallast
á eins og tröllskessur í þúsund
mílna fjarlægð. Það alþjóðaálit,
sem skapast við umræður og á-
lyktanir á þingi hinna samein-
uðu þjóða, mun reynast þungt á
metunum.
Bandalag hinna sameinuðu
þjóða er tilraun — von — mann-
kynsins um afl atkvæðanna í
stað vopnanna. Við skulum ekki
láta kvíðann yfirbuga okkur. —
Það er einasta öryggið að vonin
sé sterkari en kvíðinn. Þing
hinna sameinuðu þjóða og ör-
yggisráð er starfhæft þegar
stórveldin eru sammála og meiri
hluti tryggur að öðru leyti — þá
er heimurinn eitt lýðræðisríki.
Við skulum þó ekki gleyma því,
að eitt stórveldi hefir einræðis-
vald til stöðvunar, og að enn eru
margar ágætar þjóðir utan vé-
bandanna.
Bandalag hinna sameinuðu
þjóða er enn eins og Alþingi til
forna; það vantar framkvæmda-
valdið. Islendingar hafa sigrast
á þeim veikleika, og þjóðir
heimsins hafa möguleika til þess
að stofna allsherjarríki. íslend-
ingum er skylt að leggja sitt lið
til þess, að samstarf þjóðanna
þróist í rétta átt, og vanda sitt
atkvæði svo að því skapist
virðing. Um það hefir smáþjóðin
Ræða Hermanns Jónassonar
íslendingar!
Það er ekki unt að segja frá
þinghaldi og starfi Sameinuðu
þjóðanna á fáum mínútum. —
Eg vel því þá leið að draga upp
lauslega rissaða mynd af áhrrf
um þingsins á mig.
Það er mjög áhrifamikið
augnablik að koma inn í hinn
stóra fundarsal og horfa yfir
þennan sundurleita hóp, —
fulltrúa frá flestum þjóðum
veraldar.
Við þetta þing eru tengdar
vonir álls mannkynsins um
frambúðar frið og lífshamingju.
Hugmyndin um starf og stefnu
hinna Sameinuðu þjóða er
glæsileg.
En þegar umræðumar um
málin hefjast er eins og dimmi
yfir í fundarsalnum. Eg ætla að
nefna táknræn dæmi úr þessum
umræðum — og deilumálum.
Hér eru málin og sá tilgangur,
sem liggur á bak við þau, ekki
oft klæddur diplomatiskum bún
ingi. Sú breyting hefir orðið á
þingi Sameinuðu þjóðanna síð-
an í fyrra. — Fulltrúar Rúss-
lands ásaka Bandaríkin með
næsta óvöldum orðum um að
halda uppi í blöðum og tímarit-
um stríðsæsinga skrifum, bein-
lír\is í þeim tilgangi að búa
Bandaríkin undir styrjöld við
Rússland. Nöfn margra þekktra
Bandaríkjamanna eru nefnd. —
Rússland telur þá menn þeirrar
tegundar, að þá þyrsti í nýja
styrjöld til þess að græða fjár-
muni að nýju. Stórgróði þeirra
í síðustu styrjöld sýni og sanni,
að það borgi sig fyrir kapitaliskt
þjóðfélag að koma af stað styrj-
öldum, og þetta er sagt með orð-
bragði, sem við íslenzkir stjórn-
málamenn mundum naumast
nota okkar í milli í illdeilum.
Bandaríkin og ýmsar aðrar
þjóðir, hafa sínar ákærur á
Rússa á reiðum höndum. Stríðs-
æsingaskrif í rússneskum blöð-
um eru miklu hættulegri. Þeim
svarar enginn gagnvart rúss-
neskum lesendum — þar er
hugsun fólksins einokuð. Áform
Rússlands séu auðsæ.
Rista þessar gagnkvæmu ásak
anir djúpt? — Því miður. — Þær
virðast standa djúpt. Einkenni
þess koma víða fram. Grikk-
landsdeilan: — Um hvað er hún
raunverulega? Rússar segja: —
Allur erlendur her burt úr
Grikklandi. Bandaríkin og aðrir
segja, að þá komi uppreisnar-
mönnum hjálp frá þremur lepp-
ríkjum Rússa, sem þeir svo
nefna, að norðan og landið verði
gert kommúnistiskt á móti
meiri hluta vilja þjóðarinnar.
Sameinuðu þjóðunum beri því
að hjálpa hinni löglegu kosnu
stjórn Grikklands. En bak við
sjálft form deilunnar er þetta
talað hátt og í hljóði: Rússar
vilja ná tökum í Grikklandi
vegna Austur-Miðjarðarhafs,
vegna sundanna og vegna
Suezskurðarýis. — Bandaríkin
vilja ná aðstöðunni og halda
henni í skjóli löglega kosinnar
stjómar. Átökin um Kóreu eru
svipuð Grikklandsmálinu. —
Bak við þá deilu eru sömu átök-
in raunverulega um það, hvort
Rússland eða Bandaríkin eigi að
hafa sterkari aðstöðu í þessu
máli — og auðlindaríka landi. —
Þaðan er stutt til Japan og
Kína og' sérlega stutt til aðal-
flotahafnar Rússlands. Það er
ekki hægt að verjast þessum á-
hrifum. I hverju máli mætti
rekja sama þráðinn. Stórveldin
eru að leita að tökum hvert á
öðru, eða varna því að annað'
stórveldi nái þeim með því að
þjóðlöndunum sjálfum, þá sál
og sannfæringu veraldarinnar,
því um hana er nú ekki sízt
glímt á þdssu þingi.
Engu skal ég um það spá, hvar
þessi leikur endar. Oft hefir
horft ófriðlega áður og ekki
komið til styrjaldar. Það, sem
mér virðist ískyggilegast, er
vonleysi þjóðanna nú þegar um
milliveg eða sáttaleið. — Svona
eru nú áhrifin, eða lauslegt riss
af þeim, þegar hinar Sameinuðu
þjóðir fara að ræða og hvísla
um málin. Þær eru ekki sam-
einaðar heldur sundraðar. — Á
þinginu hefir ekki tekist sam-
starf heldur átök. Átök um að-
stöðu í þjóðlöndum, klædd í
ýmsan búning — átök um að ná
sannfæringu þjóðanna, — til
þess að hafa sterkari aðstöðu, ef
dregur til tíðinda. En þrátt fyrir
alla galla þessarar stofnunar, er
hún þó kannske eina vonin, sem
veröldin hefir til að byggja á
framtíðarfrið — heill og ham-
ingju alls mannkyns.
Það hefir verið lærdómsríkt
að vera hér á þessu þingi, og það
er mikið vafamál ,hvort nokkur
þjóð hefir efni á að missa af þess
ari kennslustund.
Milli okkar íslenzku nefndar-
mannanna hefir verið full eining
um afstöðu til málanna.
Að lokum þakka ég hlýleg orð
formanns íslenzku nefndarinnar
og þakka honum fyrir gott sam-
starf, sem hefir verið hið á-
nægjulegasta.
Verið þið sæl!
Ræða Ólafs Thors
Eg hefi nú setið á þingi Sam-
einuðu þjóðanna í nokkrar vik-
ur. Þingsetan hefir orðið mér lær
dómsrík um margt. Eg veit t. d.
betur nú en fyrr, að fleiri hafa
gaman af að hlusta á sjálfa sig
en íslenzkir alþingismenn, að
við erum hvorki einir né einsfak-
ir um blendinn málaflutning og
ennfremur, að við erum börn í
refjum og klækjum, ef miðað er
við suma þá, sem okkur eru
stærri og þekktari. Mætti margt
segja þessu til sönnunar, en hér
er hvorki staður né stund til
þess.
Aó þessu sinni ætla ég að
leiða hjá mér að ræða hverjar
líkur muni á, að Sameinuðu
þjóðirnar eigi langt líf fyrir
höndum. Eg læt nægja að segja,
að margt bendir til að öll sú von,
sem mannkynið á sér um að
komist verði hjá þriðju og
hræðilegustu styrjöldinni, búi
nú innan veggja Sameinuðu
þjóðanna. Fari sú friðarvið-
leitni, sem þrátt fyrir allar ýf-
ingar á sér hér stað, út um þúf-
ur — og vel má vera að svo
hörmulega takist til — þá fer
friðarvonin sömu leiðina.
Um gang málanna á þessu
þingi vísa ég til þess, sem for-
maður íslenzku nefndarinnar
sagði í-frumræðunni, en í þess-
ari örstuttu orðsendingu, er mér
nú gefst færi á að koma á fram-
færi við landa mína, vildi ég
fyrst og fremst segja þetta:
Dvöl mín hér hefir í einu og
öllu staðfest þá skoðun, sem
flestir þeirra er bezt til þekktu
frá öndverðu, höfðu, að það var
rétt af íslendingum að sækja
upptöku í samkundu Sameinuðu
þjóðanna. Hvergi á smáþjóð
þess svipaðan kost að vekja á
sér alheims athygli, sem ein-
mitt hér. Hvergi annars staðar
er minnstu þjóð veraldarinnar
fenginn sami formlegi réttur,
sem hinum stærstu og voldug-
ustu. Auðviiað er raunverulegt
vald stærsta ríkisins meira en
hins smærsta. En samt sem áð-
ur: atkvæði beggja er jafn gilt.
Og þegar stórveldin hafa leitt
saman hesta sína í sókn og
vörn, þá er það afl atkvæða, sem
að leikslokum ræður úrslitum.
Þá hafa íslendingar jafnt at-
kvæði þeim þjóðum, sem eru
okkur þúsund eða fimmtán
hundruð sinnum fjölmennari.
Því er veitt eftirtekt hvernig
með atkvæðið er farið — mikil
eftirtekt. I smáu og stóru fylgj-
ast smáir og stórir með því af
mestu nákvæmni. Og þegar til
lengdar lætur, fá allir — ein-
staklingar og þjóðir — sína
einkun, fá á sig orð — eða óorð.
Leppar, taglhnýtingar, smeikirr
hikandi, einarðir, sjálfstæðir, og
svo framvegis.
Sérhver sú smáþjóð, sem ber
gæfu til að grðiða atkvæði eftir
sannfæringu sinni einni, öðlast
smátt og smátt virðingu allra.
líka þeirra, sem atkvæðið er
greitt gegn í þetta skipti eða
hitt. Slíkur orðstýr verður
aldrei metinn til fjár, hvorki
beint eða óbeint. En því má
treysta, að þeiðarleg, sjálfstæð
smáþjóð, sem færir sönnur á
sjálfsvirðingu sína með því að
þora í augum alheims að fylgja
sannfæringu sinni, að undan-
genginni málefnalegri athugun,
skapar sér án alls efa virðingu
og samúð, er vel má vera að
síðar greiði götu hennar til hag-
kvæmra viðskipta.
V i ð fjórmenningarnir, s e m
höfum verið fulltrúar Islan^s á
þessu þingi S.Þ., höfum reynt að
hafa heiður, velferð og virðingu
fósturjarðarinnar að leiðarljósi.
Sjálfir erum við ekki dómbærir
um hversu okkur hefir tekizt að
þjóna því göfuga hlutverki. En
tvennt má vera okkur gleðiefni.
Við höfum alltaf verið á einu
•máli í öllum aðalefnum, og okkur
hefir víða að borizt til eyrna, að
við þykjum greiða atkvæði eftir
sannfæringu okkar sjálfra, en
ekki annara.
Auk þessa er eg nú hefi sagt,
og sem eg tel aðaltriðið, vil eg
geta þess, að persónulega tel eg
mér mikinn feng að hafa átt þess
kost að kynnast málefnum og
mönnum — þ. á. m. ýmsum
heimskunnum skörungum — hér
á þingi Sameinuðu þjóðanna. Eg
hefi með því ödlast nýja innsýn
! margt, sem miklu skiptir, og eg
geri mér vonir um að viðkynn-
ing okkar fjórmenninganna við
áhrifamenn annara þjóða, geti ef
til vill síðar orðið fsleandi til
gagns.
Að logum vil eg aðeins segja
það, að þyki einhverjum, sem eg
hefði þarfari störfum að gegna
heima en hér, svara eg því til,
að oft dvelur hugurinn við þá
örðugleika, sem framundan eru í
stjórnmála- og atvinnulífi íslend-
inga. Af því leiðir, að þættist eg
ekki eiga hér nokkurt erindi,
myndi eg löngu kominn til starfs
heima í átthögunum.
I Guðs friði!
Dyrabjöllunni var hringt og
Arthur litli 5 ára, hljóp til dyra.
— Er herra Jones heima?
— Eg er hr. Jones eða ætluðuð
þér kannske að hitta gamla hr.
Jones.
— Og svo var það skoska frú-
in sem kom inn í herraverzlun-
ina og keypti flibba handa mann
inum sínum. #
— Eg ætla að fá þennan, sagði
hún og rétti einn flibbann að
búðarmanninum.
— Aðeins einn, sagði hann.
— Auðvitað, sagði hún, hvað
haldið þér ég sé gift mörgum?
♦
Lítill Skotadrengur hafði set-
ið og tuggið tyggigúmmí í kenslu
stundinni. Kenslukonan kallaði
loksins til hans og sagði honum
að taka það út úr sér.
Þá sagði drengurinn: — Má ég
ekki láta það aftur upp í mig,
þegar tíminn er búinn, því að
bróðir minn lánaði mér það bara
fram að hádegi.