Lögberg - 27.11.1947, Síða 1

Lögberg - 27.11.1947, Síða 1
PHONE 21 374 \V«' fl\Í°r A \#11 ö VcM®’"* ÚVeA ,ndeT®TS &tO^Í Ltt«n S a Complele Cleaning Inslilulion Cl< aning Insl itulion 60. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 27. NÓVEMBER, 1947 NÚMER 47 Hér getur að líta víkingana fjóra, er fyrir íslands hönd sátu þing sameinuðu þjóðanna í New York, sem nú er í þann veginn að verða lokið. Frá vinstri til hægri: Thor Thors sendiherra íslands í Washingto n; Ásgeir Ásgeirsson, Hermann Jónasson og Ólafur Thors; hinir þrír síðarnefndu eru allir fyrrverandi for- sætisráðherrar. Afmæliskveðj a “Elli, þú ert ekki þung anda guði kærum: fögur sál er ávalt ung undir silfurhærum”. Þessar fögru og sönnu ljóðlín- ur skáldspekingsins Steingríms Thorsteinssonar hverfa mér í hug, þegar ég minnist þess, að góðvinur minn, Magnús skáld Markússon verður 89 ára gamall þ. 27. nóvember. Þær eru svo framúrskarandi rétt lýsing á honum. Hann ber í brjósti bjarg fasta guðstrú, trú á sigurmátt hins göfuga og góða í nútíð og framtíð, og sú háleita lífsskoð- un hefir létt honum gönguna á langri lífsleið, sem vitanlega hefir hvergi nærri altaf verið rósum stráð, og hefir haldið hon- um eins ungum í anda og raun ber vitni. Djúpstæð lífstrú og bjartsýni Magnúsar svipmerkja einnig ljóð hans um annað fram; en hann er og hefir um langt skeið verið “aldursforseti íslenzkra ljóðskálda vestan hafs”. Skipar hann þann sess með sæmd, því að samhliða hinum göfugu og heilbrigðu lífsskoðunum, sem ljóð hans hafa að geyma, eru þau óvenjulega áferðarfalleg um mál og ljóðform. Og það merkilega er, að Magnús hefir fram á þenn an dag haldið að fullu næmu brageyra sínu og smekkvísi sinni um orðaval og mjúkstíga með- ferð yrkisefna sinna, með þeim árangri, að eigi sér ellimörk á kvæðum hana / Magnús skáld Ivlarkússon vann sér á yngri árum frpegðarorð fyrir sigurvinningar í kapphlaup um. Hann hefir runnið skeið lífs- ins með hreysti og hetjuhug; og það, sem enn meira er um vert, hann hefir háð það kapphlaup með drengilegum góðhug til samferðamaanna á lífsleiðinni^ og að vonum vakið í brjóstum þeirra gagnkvæman hlýhug í sinn garð. Því verða þeir margir, sem hugsa hlýtt og þakklátlega til hans á 89. afmælisdegi hans, og óska þess af heilum huga, að þeir fái að hylla hann níræðan næsta ár. Heill þér, tryggi og göfug- lyndi vinur! Verði sem bjartast um þig á afmælisdaginn, því þú ert “vinur vors og blóma”, unn- andi og aðdáandi sólar og sum- ars! Richard Beck. Flutningshömlur Vegna þeirrar ákvörðunar canadísku stjórnarinnar, að tak marka til verulegra muna inn- kaup í Bandaríkjunum, hafa járnbrautaeigendur þar syðra lagt lagt ríkt á fyrir um það við umsjónarmenn sína, að fylgja því fast fram, að láta eigi járn brautirnar flytja neinar aðrar vörur til Canada en þær, sem vissa sé fengin fyrir að heimilt sé samkvæmt hinni nýju reglu- gerð. Flutningur kola og brenslu olíu, er ekki háður neinum tak- mörkunum. Sjálfstætt ríki Brezka stjórnin hefir lýst yf- ir, að þann 6. janúar næstkom- andi verði Burma gert að sjálf- stæðu ríki innan vébanda brezka ríkjasambandsins; gengur það undir nafninu Union of Burma. Mr. Churchill veitti stjórninni þungar ákúrur fyrir þessa ráð- stöfun og kvaðst bera kvíðboga fyrir því, að áður en langt um líði myndi Burma lenda í báli og blóðsúthellingum líkt og nú hagaði til í Indlandi. Kosningar í aðsígi Forustumenn stjórnarandstöð- unnar í fylkisþinginu í Alberta hafa í pólitískum skilningi skor- ið uppherör og eggjað fylgis- menn sína til atlögu gegn Socifil Credit stjórninni, því nú benii öll lyktamörk til þess að þe£s verði eigi langt að bíða ui|z Mannig forsætisráðh. rjúfi þirtg og efni til nýrra kosninga. Mr. Harper Prouse er foringi Liberala, en Mr. Roper stýrir skútu C. C. F.-sinna. Afnám dauðadóms Sjö þingmenn verkamanna- flokksins brezka og einn úr þing flokki íhaldsmanna, hafa lagt fram í þinginu frumvarp um breytingar á núgildandi hegning arlögum Breta, lútandi að af- námi dauðadóms á Bretlandi á næstu fimm árum, svo að reynsla fáist fyrir, hver áhrif slík ráð- stöfun hafi á þjóðlífið til bóta eða hins gagnstæða. Karlakórssamkoman Á mánudagskvöldið var fjöl- sótt enda á karlakórinn djúp ítök í hjörtum Winnipeg íslend- inga; hann er búinn að skemta þeim vel og lengi. Þessi sam- koma var líka til styrktar góðu málefni — arðurinn rann í sjóð Agnesar Sigurdson. Formaður kórsins, Ólafur Björnson, setti samkomuna með stuttri ræðu á tilteknum tíma, og er það góð regla, sem ekki er þó ávalt fylgt á samkomum hér. Flest lögin hafði Karlakórinn Sungið áður, en til nýlundu má telja að nú var sungið í fyrsta skipti fagurt og hljómrænt lag eftir Halldór M. Swan, verk- smiðjueigaanda við vorvísur eftir Davíð Björnsson, en söng stjórinn, Sigurbjörn Sigurdson hafði raddsett lagið. Lagið varð að tvísyngja vegna dynj andi lófataks samkomugesta. — Einsöngvari var Elmer Nordal, er heillaði áheyrendur með sinni hreimfögru og karlmannlegu rödd. Einna bezt þótti mér syngjast lagið “í rökkursölum”; blancíaðist þar fagurlega saman listræn túlkun kórsins við radd- dýpt og tónstyrk einsöngvarans. Því miður hefir flokkurinn ekki á að skipa nægilega mörgum, völdum tenór-röddum. Gunnar Erlendsson var við hljóðfærið. Að loknum söngnum var dans stiginn fram eftir nóttu með miklu fjöri. Thorhallur Arngrímsson Vekur á sér athygli Staddur var hér í borginni í byrjun vikunnar ungur íslend- ingur, er þegar hefir vakið á sér víðtæka athygli vegna list- rænna hæfileika sinna; hann heitir Thorhallur og er sonur þeirra Mr. og Mrs. Stefán Arn- grímsson, er um nokkurt skeið ráku bú í grend við bæinn Mazart í Saskatchewan-fylkinu, en nú eiga heima í Vancou^er. Thorhallur er fæddur í Regina, 25 nóvember 1928. Hann hefir gefið sig við leiklist og leikhús- stjórn ,og er útskrifaður af British Columbia Music and Drama Institute; hann hefir þegar starfað nokkuð fyrir C.B.C., og gengur þá undir nafninu Thor Arngrím. Thor- hallur er nú á leið til Toronto, þar sem hann hygst að starfa um hríð. Úr borg og bygð Nolice of Annual Meeiing Notice is hereby given that the annual meeting of the congrega- tion of the F i r s t Lutheran Church of Winnipeg will be held in the Church Auditorium on the Second day of December, 1947, at 8 o’clock in the evening to elect members to the Board of Trus- t tees and to the Board of Deac- ons, to authorize the sale of the premises commonly known as 776 Victor Street, in the City of Win- nipeg, in Manitoba, and present- ly occupied as the Pastor’s resi- dence, to receive reports and to consider such other matters as may properly come before it. Albert Wathne Secretary, Board of Trustees ♦ Mrs. Otto Hrappsted frá Leslie Sask. og dóttir hennar Clara, voru gestir í borginni um helgina síðustu og fóru heimleið is aftur á mánudagskveldið. — Sögðu þær alt hið bezta úr sinni bygð. ♦ Robert Dean Oddleifson og Gladys Monkman voru gefin saman í hjónaband þ. 25. okt. s.l. á heimili Mr. og Mrs. Sigurberg Oddleifson, foreldra brúðgum- ans, í Árborg, Man. Séra B. A. Bjarnason gifti. Heimili hinnav ungu hjóna verður við Loon Strails, Man. Frederick Bamford Woodard og Sólrún Anderson voru gefin saman í hjónaband af Séra B. A. Bjarnason í kirkju Bræðrasafn- aðar í Riverton þ. 8. nóv. s.l. — Foreldrar brúðurinnar eru Mr. og Mrs. Sveinbjörn Anderson í Riverton. Heimili ungu hjón- anna verður í Winnipeg. ♦ Ágætur árangur varð af fundi þjóðræknisdeildarinnar á Gimli mánudagskveldið s. 1., 24. nóv., er Mrs. H. Danielsson útskýrði nokkrar hugmyndir um stofnun íslenzku kenslu meðal barna og ungmenna. Fimm kennarar lof- uðust til að taka þátt í starf- rækslu skólans, og gert er ráð fyrir að um 70 börn innritist í skólann. Um 125 manns sóttu fundinn að börnum meðtöldum. Séra Philip M. Pétursson, vara- forseti þjóðrwknisfélagsins, sýndi nokkrar íslenzkar myndir og flutti einnig nokkur orð. Mrs. Danielson hefir tekið að sér að stofna og aðstoða íslenzku kenslu meðal barna út um bygð ir, fyrir hönd þjóðræknisfélags- ins. — Dr. Kjartan Johnson, forseti deildarinnar stýrði fund- inum. Konurnar sáu um veit- ingar, hinar rausnarlegustu, og kvöldið endaði með samsöng sem allir tóku þátt í. Kvöldið var hið skemtilegasta. Síðastliðinn sunnudag voru gefin saman í hjónaband hér í borginni Árni Gillis, sonur Mr. og Mrs. J. Ragnar Gillis, og Helga dóttir Mr. og Mrs Gústaf ísaksson; hvorttveggja hjónanna eru ættuð úr Brownbyggðinni, og þar verður framtíðarheimili þeirra. Séra Eiríkur Brynjólfs- son gifti. -♦- Þeir bræður Th. J. Gíslason og Jón Gíslason frá Brown, voru staddir í borginni í byrjun yfirstandandi viku. Charles Thorson’s Exhibit of Cartoons will be displayed at the Yule- tide tea of the' Junior Ladies Aid of the First Lutheran church on Friday Des. 5th in the church parlors. This is a good opportu-nity to see the work of this noted artist as well as to enjoy a social hour with your friends. Mr. Thorson has created scores of animated characters for the moving pictures, and has recently written and illustrated his first book for children — Keeko. This is a grand picture book, — young and old never get over chuckling at the vivid, almost human expressions on Mr. Thorson’s animal charac- ters”. — Get your copy of Keeko at the tea. ♦ Dánarfregn Mrs. Kristín Úrika Helgason, 59 ára gömul, ekkja Ólafs heit. Heuagsonar, andaðist á heimili sínu í Mikley, 12. þ. m., eftir langvarandi vanheilsu. Hún kom með foreldrum sínum, Guð mundi Guðmundssyni og Guð- rúnu ólafsdóttir frá Islandi, þá eins árs gömul, til Mikleyjar og átti þar heima til dauðadags. Tvær dætur lifa móðir sína: — Mrs. L. Jónasson og Mrs. P. H. Pálson, báðar til heimilis á Mikley, og Mrs. J. Benson, syst- ir Kristínu sál., lifir á Gimli. — Hún var jarðsungin frá kirkju Mikleyjar 18. þ. m., af séra Skúla Sigurgeirssyni. -♦■ Gifling Gefin voru saman í lútersku kirkjunni á Gimli, af séra Skúla Sigurgeirssyni, Ralph Charles Bern, U. S. Army, og María Suhr. Svaramenn voru Robert Billings og Anna, systir brúður- innar. Að giftingunni afstaðinni sátu um 65 manns veglega veizlu á Gimli Hotel. — Brúð- hjónin tóku sér ferð til Banda- ríkjanna. Heimili þeirra verður fyrst um sinn á Gimli. ♦ Þann 15. nóv. voru gefin sam- an í hjónaband í lútersku kirkj- unni í Selkirk af sóknarpresti þar, að mannfjölda viðstöddum: Wilfred Halldór Erickson, Sel- kirk, Man., og Ethel Thompson, sama staðar. Við giftinguna að- stoðuðu Victor E. S. Erickson, bróðir brúðgumans, og Alice C. Moar. Brúðgumminn er son- ur Mr. og Mrs. J. E. Erickson, Selkirk, en brúðurin er af ensk- um ættum, frá Ochre River, Man. — Vegleg veizla var setin á Star Hotel, East Selkirk. af stórum hópi aðstandenda og vinum, að giftingu afstaðinni. — Heimili ungu hjónanna verður í Selkirk. ♦ Á heimili þeirra hjóna Thor- kells og Jóhönnu Sveinson, 1588 Wolseley Ave., hér í borg, fór fram hjónavígsla síðastliðinn laugardag, 15. nóv. Brúðhjónin voru Walter George Jenkins til heimilis í Winnipeg og Mrs. Halldóra Hawes, dóttir þeirra hjóna, ekkja hermanns, er lézt í Hong Kong. — Hjónavígsluna framkvæmdi séra Rúnólfur Marteinsson. Vitnin voru Mr. John Clarke og Miss Lilian Sveinson. Veizlufólkið var all- stór hópur ættingja og sumra vina brúðhjónanna. Rausnarleg máltíð var framreidd, og mikil var gleði meðal veizlugesta. — Brúðhjónin lögðu af stað næsta dag til Victoria í British Colum- bia, og þar verður heimili þeirra. Kveði nú þeir sem það kunna Vetrar gríma vefur lönd veðra tíma blökum, þar sem hrím og hélu-bönd halda glímu-tökum. Svigna greinar svala frá, ‘særast reyni bungur; frostnum steinum stynur á stormur meina-þungur. Hlæja kveldsins hrímug tröll húmsins keldur stikla; köldum feldi felur mjöll fjalla-veldið mikla. Víða spengjast vötnin blá, , veldur þrenging hríða: Hljóma-strengir stirðna á straumum engja’ og hlíða. Ýmsra barna æsku-þrá oft á varnar strauma, þó að hjarni, hretin grá hneppi farna drauma. Og þó hriðar gremjist geð gömlum kvíða-sonum, eg mun bíða’ og brosa með betri tíðar-vonum. Þrautir greiða þúsund má, þá skal eiða muna, “meðan leiðir andinn á upp í heiðríkjuna”. Pálmi.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.