Lögberg - 29.07.1948, Qupperneq 3

Lögberg - 29.07.1948, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 29. ÁGÚST, 1948 19 Tveir á róðrarbát yfir Átlantshaf Voru tvo mánuði að róa frá New York til Frakklands Eftir Tom Mahoney. Enda þótt ótrúlegt sé, er það þó staðreynd, að tveir menn hafa róið yfir Atlantshaf frá New York til Frakklands, eða alls um 3250 mílur. Þeir hétu George Harbo og Frank Samuelson, tveir hraustir og hugrakkir Norð menn; sem fluttst höfðu til Bandaríkjanna og sest að í Brooklyn. Þegar þeir unnu af- reksverk sitt, var Harbo 30 ára gamall og Samuelson 26. Báðir voru þaulvanir sjómenn. Dag nokkurn árið 1894 sagði Samuelson við Harbo: “Ef ein- hver tæki upp á því að róa yfir Atlantshaf — alla leið yfir — mundi hann verða stórríkur inaður. Fólk mundi borga fyrir að fá að sjá bátinn hans”. — Þeir urðu þá þegar ásáttir um, að ef þeir gætu róið 54 mílur á dag, ættu tveir vanir sjómenn að geta gert þetta á tveimur mánuðum. Næstu tvö ár fóru í að undir- búa ferðina. Harbo, sem hafði skipstjóraréttindi, tók að sér forystuna. Bezta leiðin var að fylgja almennustu skipaleiðum, þar sem sjávarstraumar mundu leggja til mílu eða svo á klst. Auk þess mátti gera ráð fyrir að fjöldi skipa yrði á leið þeirra, en það gat komið sér vel, ef á hjálp þyrfti að halda. — Þeir teiknuðu í sameiningu átján feta opinn árabát, en í stafni og skut var komið fyrir vatnsþéttum- hólfum og vatns- geymum. Richard K. Fox, út- gefandi Police Gazette, kostaði smíði fleytunnar, og hún bar nafn hans. Með sér höfðu þeir Harbo og Samuelson 500 pund af matvælum, fimm pör af ár- um, drifakker, sextant, ljósmerki og 23 lítra af olíu. 1 stefni bátsins var komið fyrir lítilli olíuvél. í vatnsgeymunum voru 270 lítrar af vatni. Þeir höfðu engin segl meðferðis. Lagt úr höfn Tvö þúsund manns komu nið- ur að höfn til að árna þeim heilla er þeir lögðu af stað þann 6. júní árið 1896. Áætlun þeirra var á þann veg að þeir höfðu hugsað sér að róa báðir frá átta að morgni til há- degis. Ef veður leyfði, var ætlun- in að leggjast þá við drifakker og taka klukkustundar hvíld, en róa síðan enn báðir saman til klukkan fimm, taka enn klukku stundar hvíld og halda að því loknu áfram róðrinum til klukk an átta. Frá þeim tíma til átta næsta morgun voru þriggja stunda vaktir, þannig að annar maðurinn réri meðan hinn svaf. Veðrið var dásamlegt fyrstu dagana. En það var erfitt að halda logandi á eldavélinni, jafn vel þótt aðeins örlítill andvari væri. Þeir gátu lítið kaffi hitað sér og brátt kom að því, að þeir tóku þann kost að jeta eggi sín hrá. Á fjórða degi, urðu þeir varir við það að eitthvað rakst harka- lega á bátinn og sáu hvar eitt- hvað hvítt skaust framhjá hon- um. — Hákarl, sagði Harbo, og sá er ekki lítill! Hákarlinn fylgdist með bátnum í tvo daga, stund- um aðeins áralengd frá honum. Sunnudaginn 14. júní skall á þá harður austanstormur. Öld- urnar gengu yfir bátinn. Enda þótt þeir legðust af alefli á ár- ar, miðaði honum ekkert og að lokum lögðust þeir við drifank- erið. Klukkan var orðin fimm um morguninn, áður en þeir gátu tekið til við róðu-rinn á ný. — Harbo reiknaðist svo til, að þá hefði hrakið um 25 mílur til baka. — Skammt frá Nýfundnalandi réru þeir Harbo og Samuelson inn í hvalatorfu. Sjórinn var spegilsléttur, og þeir félagar komu auga á að minnsta kosti 30 af þessum risaskeppnum, þar sem þær léku sér í sólskininu. Tveim dögum síðar rákust þeir á Furst Bismarck, sem var í eign North German Llovd skipa félagsins. Harbo kom þegar í stað bandaríska fánanum fyrir í skut bátsins, en gufuskipið heils- aði með fána sínum. Þýzki skip- stjórinn stöðvaði skip sitt skamt frá þeim. Eruð þið skipbrotsmenn? hróp aði hann. Nei. Á leið til Evrópu. Farþegarnir á gufuskipinu störðu steinilostnir á þá og lustu svo upp húrrahrópum, er róðrar báturinn hélt burt frá skipinu og tók stefnu í austurátt. Tuttugasta og fyrsta júní reikn aðist Harbo svo til, að þeir væru staddir 662 mílur austur af Ný- fundnalandi. Fyrsta júlí hittu þeir fyrir fiskiskipið Leader frá Lunenburg, Kanada. Þeim var boðið um borð, og borðuðu nú í fyrsta skipti á þrem vikum vel soðinn mat. Stórsjór Sjöunda júlí skall á vestan stormur. í tvo daga tókst þeim að halda bátnum upp í vindinn með drifakkerinu, en öldurnar gengu þó sífellt yfir mennina. Annar þeirra varð látlaust að standa við austur, hinn réri. Það var aðeins vatnsþéttu hólfunum að þakka, að báturinn sökk ekki. Um níuleytið að kvöldi 9. júlí sá Samuelson geysistóran sjó stefna í áttina til þeirra. Sjáðu! hrópaði hann. Andartaki seinna hvolfdi bátnum og mennirnir steyptust í sjóinn. En jafnvel svona ó- happi höfðu þeir gert ráð fyrir er þeir undirbjuggu för sína. — Báðir voru með björgunarbeíti, en þau voru fest við bátinn með þriggja metra langri líflínu; á kjölnum voru handföng. Eftir nokkurt erfiði tókst félögunum að draga sig að bátnum, en þar héldu þeir sér, þar til sjórinn Framhald á bls. 23 ''t Congralulalions io ihe Icelandic People on ihe Occasion of iheir 59ih National Celebraiion ai Gimli, August 2nd, 1948. Congraiulaiions io ihe Icelandic People on ihe Occasion of iheir 59ih Naiional Celebraiion ai Gimli, August 2nd, 1948. Vér óskum íslenzkum viðskiptavinum vorum til heilla á þjóðminningardegi þeirra á Gimli 2. ágúst 1948. Modern Laundry 309 HARGRAVE STREET WINNIPEG, MANITOBA Phone 93 177 Congralulaiions io ihe Icelandic People on the Occasion of their 59ih National Celebraiion ai Gimli, Augusi 2nd, 1948. • CENTBAL BALECy PHONE 24 GIMLI MANITOBA F. E. Scribner, M.D. gimli manitoba Congraiulaiions io ihe Icelandic People on ihe Occasion of iheir 59lh Naiional Celebraiion ai Gimli, Augusi 2nd, 1948. • Marlborough & St. Charles “Winnipeg’s Friendly Hotels” WINNIPEG MANITOBA ▲ Magnus S. Magnusson SKIPASMIÐUR GIMLI MANITOBA Geo. Simpson árnar íslendingum til allra heilla með þjóðminningardag sinn á Gimli GEO. D. SIMPSON Box Company Limited MAIN and PARTRIDGE WEST KILDONAN PHONE 54 339

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.