Lögberg - 29.07.1948, Side 4

Lögberg - 29.07.1948, Side 4
20 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 29. JÚLÍ, 1948 ÆTTMAÐURINN Eftir THOMAS DIXON JR. “Maðurinn í hinum enda göt- unnar, sem læst vera forseti, en sem i raun réttri er útlendingur, frá yfirunna ríkinu Tennessee, er að ota fram fyrirætlan Lin- colns, um að endurreisa ríkja- sambandið. Hann er búinn að mynda og setja á stofn ríkja- stjórnir í Suðurríkjunum og þingmenn og Senatorar frá þeim ríkjum koma til Washington í desember til þess að taka sæti sín á löggjafarþingi þjóðarinn- ar. Hann heldur að þeir fái þar inngöngu —”. Stonemán hló lágt og neri saman höndunum. “Fyrirætlanir mínar allar verða ekki ræddar að svo stöddu, en hér skal það nægja að segja, að ég ætla mér að tryggja fram- tíðarvöxt og velferð stjórnmála- flokks okkar og þjóðarinnar. — Aðal-atriðið sem fyrirætlanir mínar byggjast á, er að vald- nema allar þær miljónir ekra af landi sem eru eign hvítra manna í Suðurríkjunum og skifta því upp á meðal Negranna og annara sem börðust og liðu í stríðinu”. Stoneman þagnaði, sperti fram varirnar, neri saman höndunum, dróg djúpt andann inn í gegnum arnarnef áitt og valdsvipurinn stafaði frá andliti hans. “Stanton eykur máske á skemtun fólksins með því að hengja fáeina uppreisnar- menn”, hélt hann áfram. “En við verðum að snúa okkur að þarfara verki. Allir menn eiga sitt eigið verðmæti, að meðtöld- um þeim sem hér eru inni, með verðugri undantekning þess sem talar —”. Augun dönsuðu í höfðinu á Lynch. “Ef að ég hefi ekki liðið kval- ir í þessu stríði, þá veit ég ekki hver hefir gjört það?” Laun ykkar verða ekki jafn- vægi þess sem þið hafið liðið. Þau verða byggð á því, hve af- reksmiklir þið verðið í að fram- kvæma skipanir mínar. Lesið þið þetta.” Hann rétti hvorum um sig blað sem að hann hafði skrifað hinar leynilegu fyrirskipanir sínar á. — “Fáið mér blöðin aftur þegar þið hafið lesið það sem á þeim er. Þessar fyrirskipanir eru ekki fyrir eyru almennings, uns að fylling tímans er náð. Þeim má ekki einu sinni vera hvíslað inn- an þessara fjögra veggja”. Báðir mennirnir réttu Stone- man blöðin aftur samtímis. “Erum við ásáttir, herrar mínir?” “Algjörlega”, svaraði Howle. “Orð þín eru lög”, svaraði Lynch. “Þið sendið kröfur ykkar til mín um ferðakostnaðinn og leggið á stað til Suðurríkjanna innan 48 klukkustunda. Skýrslur ykkar þarf ég að fá tveimur vik- um áður en þingið kemur sam- an”. — Þegar að Lynch fór, gekk dökka konan með honum til dyra og þrýsti bréfi í hendina á hon- um. Það mátti sjá glettnisblik x auga Lynch og svip, er hann þrýsti hendinni utan um bréfið. En andlit konunnar bar svip ljónsins, þar sem það liggur fram á lappir sér. II. KAPÍTULI Elskendurnir Þegar að fyrstu vonbrigðin og óttinn út af hættu þeirri sem maður hennar var staddur í, var liðinn hjá,var eins og ný ró og friður færðist yfir frú Camer- on. — Arfleifð aldanna — arfur frá pislarvottum gamla Skotlands fór að lýsa sem leiftur liðinna ára. í hjarta sér fann hún titra lífsfyrirmynd manna óg kvenna sem með fjötra á fótum og heftar hendur, gengu með söng á vör mót dómi og dauða. — Hættan, sem Cameron læknir var stadd- ur í, hafði ekki aðeins vakið píslarvættisblóð hennar. Hún hafði líka endurvakið minning- una um fagurt æskulíf. — Hann hafði alltaf verið elskhugi henn- ar og hin síglæsta hetja drauma hennar. Hún læsti sig inni í her- bergi sínu svo klukkutímum skifti. Margrét vissi að þeim stundum var varið til bænar, og út frá þeim kom hún ávalt með gleðisvip og gleðiorð á vörum. Hún reyndi í tvo mánuði á- rangurslaust, að ná tali af manni sínum, og líka til að fá afskrift af kæruskjalinu gegn honum. Cameron læknir var settur í Capitol fangahúsið, sem áður var fullsetið. Hann var heilsuveill og hafði ekki treyst sér að fara með henni, þegar að hún fór til Richmond. Ekkert samband og ekkert orð, nema fyrir munn fangavarðarins, fékk að ganga á milli þeirra. Öll ávörp sem hún fékk frá manni sínum voru eins: “Eg elska þig ávalt! Vertu ekki óróleg. Farðu cowm & Co. Llmited Vér óskum íslenzkum viðskiptavinum vorum til heilla á þjóðminningardegi þeirra á Gimli 2. ágúst 1948. Vér leysum flest byggingarvandamál, sem að höndum kunna að bera. Vér óskum íslenzkum viðskiptavinum vorum til heilla á þjóðminningardegi þeirra á Gimli 2. ágúst 1948. T. W. Taylor Company, Limited Prenturum og bókbindurum % Stofnsett 1877 177 McDermot Ave., Winnipeg, Man. Bókband sem TAYLOR gerir er varanlegt! NOW ON DISPLAY COWIRÍ & Co. Limited ReÍH^onced QoHCfvete. £H<jutee>iá. R.eUt>fosvoed Steel TELEPHONES 26 388 - 26 389 1137 Pacific Avenue Winnipeg. Man. Congraiulalions io ihe Icelandic People on ihe Occasion of iheir 59lh Naiional Celebralion al Gimli, Augusi 2nd, 1948. • Portage Auto Parts 892 PORTAGE AVE. PHONE 71 736 Megi þjóðminningardagurinn 2, ágúál verða eftirminnilegur HAGSÝNT FÓLK SITUR JAFNAN VIÐ ÞANN ELDINN SEM BEZT BRENNUR Þess óskum við innilega öllum vorum ís- lenzku vinum. Vér höfum orðið þeirra forréttinda aðnjótandi að eiga viðskipti við íslenzka fiskimenn yfir lengsta tímabil í sögu Manitobafylkis. Þökk fyrir dreng- lund alla og vinsemd. Af þessum ástæðum er það að viðskif tavinum v o r u m fjölgar óðfluga dag frá degi. Það kaupir enginn Köttinn í sekknum sem gerir sér það að reglu að verzla í Armstrong - Gimli Fisheries Limited J. M. DAVIS, forstjóri SHOP EASY STORES LIMITED inthe LOW PRICE FIELD The Meteor brings outstanding styling and amazing comforc to the low price field. And there's wonderful ease of hand- ling in steering and brakes; plus a great, 100-hp., V-type, 8- cylxnder engine for top performance with surprising econo- my. 'Black-light' instrument illumination and aual-duct, built- in ventilation system are among the refinements that Meteor offers. Here’s comfort and richness, beauty and power . . . in seven distinctive Meteor models. *rr//e<s er/ea</ tv/rt NATIONAL MOTORS LTD. Winnipeg's Mercury. Lincoln and Meleor Dealers 276 COLONY STREET PHONE 76 061

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.