Lögberg - 28.10.1948, Side 3

Lögberg - 28.10.1948, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 28. OKTÓBER, 1948 3 MRS. HELGA SUMARLIÐASON MINNINGARORÐ SIGURÐUR JÓNSSON, ARNARVATNI: EPTIRMÆLI Business and Professional Cards \ Miðvikudaginn, 18. ágúst, andaðist háöldruð sómakona, Mrs. Helga Kristjánsson Suinarliðason, á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, Mr. og Mrs. Karl Frederick í Seattle, í Washington- ríki. Hún var fædd í Tungu í Dalamynni í Isafirði, 23. ágúst, 1856, og vantaði hana aðeins 5 daga til að verða 92 ára. Hún kom frá íslandi til Banda- ríkjanna árið 1885 og settist að í Norður-Dakota. Eginmaður hennar Sumarliði Sumarliðason, var úrsmiður og gullsmiður, snillingur í list sinni. Hafði hann leyst af hendi ágætisstarf í iðn sinni á íslandi, og hélt því áfram hér í landi. Þau bjuggu að Garð- ar, síðar í Miltonbæ alls 15 ár í Norður-Dakota-ríkinu. Á r i ð 1900 fluttu þau til Seattle-borg- ar, og stundaði hann einnig þar iðn sína. Eftir 10 ára dvöl þar, fluttu þau á land nálægt Olym- pia, sem er höfuðstaður Washing- ton-ríkis. Þær stundaði hann aldinarækt, og vann það verk svo vel, að jurtasnillingurinn, Luth- er Burbank lék á hann lofsorði. Þar dó Mr. Sumarliðason árið 1926. Þá flutti Helga til Seattle, og var þar í skjóli barna sinna það sem eftir var æfi. Hin langa æfileið hennar var ávaxtarík að nytsemd og gæðum. Lífið fól henni mikið starf, og oft erfitt. Hún annaðist það með lægni og dugnaði, ráðdeild og kærleiksríkri umhyggju fyrir ást vinum sínum. Heilsu gaf Guð henni allgóða þangað til aldur- inn var orðin hár. Guð gaf henni einnig glaða lund. Elska hennar til Guðs og ástvinanna, sem hann gaft henni, varpaði ljóma á alla vegferðina. Hún var frá- bærlega auðug að gæðum, „góðu hugarþeli og góðri framkomu við alla þá sem hún umgekst. Ástvinirnir gjörðu henni einnig alt til aðstoðar og yndis, sem þeim var unt að veita, og það í vaxandi mæli eftir því sem lík- amskraftar hennar dvínuðu. Síð- ustu 8 mánuðina lá hún rúmföst, en það ljós sem hafði lýst henni í hita og þunga æfistarfsins ljómaði skært til enda. Hún elskaði Krist og kirkju hans af heitu og einhuga hjarta, og hjálp- semi hennar við samferðafólkið á æfileiðinni var þrungin af þeim kærleika. Þau h j ó n i n , Sumarliði og Helga, eignuðust 7 börn. Á heim- ilinu voru einnig börn hans frá fyrra hjónabandi. Hún var öllum hópnum sönn móðir, og hún var Guði þakklát fyrir það sem hann gaf henni. Þyngsta sorg hennar á allri lífsleiðinni var barnamiss- ir. Hún misti 4 syni og eina dótt- ir, einnig stjúpson og stjúpdótt- ir. Þessi börn voru öll komin á legg, sum þeirra við nám í æðri skólum, en jafnvel þessa sáru sorg bar hún með fögru kristi- legu trúarþreki. Á lífi eru tvær dætur Mrs. Mary S. Frederick í Seattle og Mrs. Dora S. Lewis, prófessor við Hunter College í New York-borg. Á lífi er einnig stjúpsonur, sem mikið starfaði á heimilinu og var, henni ávalt eins og sonur, Árni S. Sumarliðason. Barnabörn eru 7. Böm Fredericks hjónanna eru: Karl Richard Frederick, í ábyrgð armikilli stöðu í Honolulu í Hawaian eyjum, Philip Mark Frederick starfandi læknir í Seattle-borg, “Captain” í síðasta veraldarstríðinu, Elaine Helga, gift Dr. Louis Varhaus í Chicago. Börn Árna Sumarliðasonar eru: Mrs. Kristín Simpson, gift Mr. O. Simpson, umsjónarmanni skóla í Mukileto-bæ í Washington-riki. Mrs. Phebe Congden í Doe Bay, á Orcas Island, í San Juan eyjum, Árni Leonard Sumarliðason, félagi og ráðsmaður í “Helicopt- ors Incorporated”, í Los Angeles, í California. Hann vann frábært starf í styrjöldinni síðustu, sem flugmaður í sendiförum til Þýskalands. Bamabarnabörnin eru sex: 3 drengir og 3 stúlkur. tJtför Mrs. Sumarliðason fór fram laugardaginn 21. ágúst í útfarastofu Wiggen and Sons, og í fögrum grafreit í Seattle. Þrír prestar tóku þátt í útförinni: Séra Harald S. Sigmar, sóknar- presturinn, sem stýrði athöfn- inni og flutti ræðu, Dr. Haraldur, Sigmar frá Vancouver, sem las Biblíukafla, og flutti hugvekju og bæn, og Séra Rúnólfur Mart- einsson, er flutti æfiágrip. Mr. Tani Björnson, söng íslenzka sálma, sem oft voru á vörum hinnar látnu , og í enskri þýð- ignu Panis Angelicus”. Líkmenn voru: Joe? Johannson, Pálmi Pálmason, Jón Magnússon, B. O. Johannson, K. Thorsteinson, og Hannes Kristjansson. Mikill hlýhugur fylgdi hinni góðu konu til grafar, margir þeir sem geymdu myndir af göfugri framkomu hennar. Dóttur-dóttir hennar, Elaine Vorhaus túlkaði þetta með viðeigandi orði: “fagra indæla amma”. Þannig segist hún ávalt hugsa um ömmu sína. Fjölskyldan vottar hja’rtanlegt þakklæti öllu vinafólkinu, sem lagði á kistu hinnar elskulegu móður þeirra mikið af litfögrum blómsveigum, sömuleiðis þeim sem gáfu, í miningu um hana, gjafir til elliheimilisins í Blaine, Washington og enn fremur þeim, er gáfu, í samskonar tilgangi, gjafir í organsjóð Calvary kirkj- unnar íslenzku í Seattle. Þau biðja Guð að launa og blessa alla hluttekningu í sorg þeirra og söknuði. Hjartans þakkir fyrir sam- fylgdina segjum vér allir, sem þektum þessa merku íslenzku konu. Rúnólfur Marteinsson. Fjaðrafok AGI í SKÁHOLTSSKÓLA Finnur biskup Jónsson þótti, harður við skólapilta. Eitt til marks um það er bréf, sem hann skrifaði bryta stólsins: “Þar mér er tilkynt að þú hefðir í gærdag og gærkveldi látið skólapilta fá mat áður en þeir héldu söng í kirkjunni, þá gefst þér hér með til vitundar, að það er órétt og þvert á móti skólaanord. 47. art. J>að, sem skeð er í þessu, verður svo að vera sem komið er, því að það mun vera skeð af van- visku. En hér eftir er alvarlega bannað og aldeilis fyrirboðið að þú ljúgir upp fyrir þeim spise- stofunni eða gefir þeim nokkurn mat, hvorki sýnkt né heilagt, kveld né morgun ,fyr en úti er söngur í kirkjunni”. — Er talið að biskup hafi. ætlað að skóla- piltar “mundu kunna þar við að vikna”, ef þeir fengi ekki mat, en þetta hafði öfug áhrif. KENNARASKÓLINN. Á þessu ári eru 40 ár síðan að Kennaraskólin var reistur. Var honum valinn staður svo langt utan við bæinn, að engin hætta Löng er æfi á enda runnin. Út er kveikur mikill brunninn. Feysknir stofnar falla og hverfa frjóin skógar-grunninn erfa. Verða í byljum umróts-aldar útistöður mörgum kaldar. Veðurmæddur viður skorpinn visnar mylsnu og sprekum orpinn. Gættir sauða hátt á heiði harðnaður vart á æskuskeiði. Drýgðir að búmanns-hætti hjarðar. hagkvæm not af gróðri jarðar. Kaldur starfi og karlmannlegur, kjark og hyggni þroskavegur. Hátt þar mundi og vítt tíl veggja, víðáttir til flugs sem eggja. Gott var tóm og hljóð á hjami hyggjuríku dalsins barni við sig einan um að ræðast efni brjóta að merg, svo fræðast mætti sem bezt af bókum völdum baðstofu-lesturs heima á kvöldum. Héraðsmál og áhugaefni ei voru síður tekstinn gefni. SELKIRK METAL PROÐUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeining, ný uppfynding, sparar eldiviö, heldur hita. KELLY SVEINSSON Simi 54 358. 187 Sutherland Ave., Winntpeg. JOHN A. HILLSMAN. M.D., Ch. M. 627 Medical Arts. Bldg. Office 99 349 Home 403 288 S. O. BJERRING PHONE 87493 Canadian Stamp Co. 1 Dr. S. J. Jóhannesson RUBBER & METAL STAMPS SUITE 7 VINBORG APTS. NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 594 Agnes St. 324 Smilh Sl. Winnipeg ViOtalstlmi 3—6 eftir hádegi Phone 94 624 Office Ph. 95 668 Res. 404 319 DR. E. JOHNSON NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B. 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Barrister, Solidtor, etc. 411 Childs Bldg, Offlce hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Offlce 26 — Res. 230 WINNIPEG CANADA Krafsar hjörð af hörku og afli. Hirðirinn fram og aptur á skafli einn þar langa tíma treður. Tekur við málþing. Hljóðs hann kveður. Fast er rökum raðað niður. Raddar á víxl er mjúkur kliður, skipt um svip og skerptur rómur, skollinn yfir refsidómur. TEIBStílf JEWELLERS 447 Portage Ave. Also 123 TENTH ST. BRANOON Winnipeg Office Phone Res Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment Eigið próf, við eiginn skóla eitt hann hlaut. Og freðna sóla bar á þroskans bernsku-göngu — bar þess merki síðar löngu. Kvíðvænt er að koma við bótum kuli í æsku að hjartrótum. En heiman kom hann háþroskaður harðvítugur bardaga-maður. J>ví þá var aldar andi á hvörfum ábyrgur að lífsins störfum fram er réðist fulltýgjaður forustugjam og sterkur maður. Deildi á svik og ósið aldar, enda hlaut hann móti kaldar kveðjur þeirra, er þoldu ei vöndinn þörf, en sár, var refsihöndin. Bezt þeim minni máttar dugði. Málum vann, sem rétt hann hugði, hver sem kynni móti að mæla. Mannlund brýndi vanans þræla. Hirti ei um alfaraveginn; eigin treysti á sjón og megin. Ráðamanna andúð ýfðist. óróamaður við ei hlífðist. Leið svo fram um langa æfi. Lífsstarf aldrei sér við hæfi fann hann hér í fámenninu, fyllri geislar öðrum skinu. Minnihluta maður var hann. Merki Sannleiks djarft fram bar hann. — Minnihlutinn meiri í framtíð mun, ef kiknar ei fyrir samtíð. Beitarhúsa héraðsskólinn hefir sent í ræðustólinn rökvissasta ræðumanninn — ræðu aldrei heyrði eg þanninn. Mér er yndi enn að heyra orðlist hans mér kveða við eyra. Mælskuþráð ei merki að spurði, magnaðan svip og handaburði. Ættstofn veit eg undra-ríkan, efnivið þar getur slíkan. Af þó bæri á öllum sviðum urðu kjörin smá í sniðum. Lítil þjóð fékk léð að vanda lítið hlutverk stórum anda. — 1 ráðuneyti og þingum þjóða þeir áttu lítið sæti að bjóða! SAMVINNAN væri á því, að bæjarglaumurinn truflaði nemendur. Mönnum kann að finnast þetta undarlegt nú, þegar skólinn er svo að segja inni í miðjum bæ. HRÆÐSLUÆÐI 1 DÓMKIRKJUNNI. Steingrímur Jónsson biskup kom út í Hafnarfirði 20. maí 1825 og tók við embætti sínu. Á hvíta- sunnudag var hátíðleg embættis- gerð í dómkirkjunni í Reykja- vík í tilefni af því. Var þar sam- an kominn múgur manns og fylti kirkjuloftið sem mest mátti. En undir miðri prédikan Árna stiptprófasts tók alt í einu að braka hátt í bita undir framloft- inu. Heldu menn að um jarð- skjálfta væri að ræða, að bitinn væri að brotna og loftið mundi hrynja niður. Greip þá sann- kallað hræðsluæði fólkið og ruddist það með miklum ys og óhlóðum ofan af lofti og út, og tróðust margir undir. En niðri í kirkjunni brutu menn flesta glugga með höndum og fótum, stungu börnum og unglingum út um þá og skriðu sjálfir út á eftir. “Rifnuðu þá silkikjólar kaup- mannafrúnna og annar”, segir Espholin. “Stiftprófastur hætti þá að kenna með öllu og fór á brott, en þar eftir biskup. Magn-1 ús Ólafsson Bergmann (þá :í Skildinganesi) tók dreng sinn úr glugga og setti hjá hér og sat einn etfir seinast”. LESBÓK Manitoba Fisheries WINNIPBQ, MAN T. BercoiAtch, framkv.stl Verzla t helldsölu meC nýjan oe frosinn fisk. 303 OWENA STREET Skrifst.stmi 25 355 Heima 56 462 DR. A. V. JOHNSON Dentist 606 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Talslmi 95 826 Heimilis 63 893 DR. K. J. AUSTMANN SérfrœOtngur i augna, egma, nef og kverka sjúkdómum. 209 Medlcal Arts Bldg. Stofutlmi: 2.00 til 6.00 e. h. DR. ROBERT BLACK SérfrœOingur í augna, eyrna, nef og hdlssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofustmi 93 851 . Heimastmi 403 794 EYOLFSON'S DRUG PARK RIVER, N. DAK. ' islenzkur Ivfsali Fðlk getur pantaC meOul og annaC meC pðstl. Fljðt afgreiðsla. A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur llkkistur og annast um Qt- farir. Allur QtbúnaOur sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarCa og legsteina. Skrifstofu talstmi 27 324 Heimills talstmi 26 444 Geo. R. Waldren, M. D. Physician and Surgeon Cavaller, N. D. Office Phone 95. House 108. PHONE 94 981 H. J. H. PALMASON and Company Chartered Accountants 219 Mc INTYRE BLOCK Winnlpeg". Canada Phone 49 469 Radio Service SpeciaUsts ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST„ WINNIPEG Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. PHONE 96 962 WINNIPBG Dr. Charles R. Oke Tannlæknir For Appointments Phone 94 908 Office Hours 9—6 404 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING 283 PORTAGE AVB. Wlnnipeg, Man. SARGENT TAXI Phone 76 001 FOR QUICK RELIABLE SERVICE J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPG. Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalán og eldsábyrgC. bifreiCaábyrgC, o. s. frv. PHONE 97 538 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfræOingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Stmi 98 291 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 58 VICTORIA ST„ WINNIPEG Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDSON íour patronage will be appreciated CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. R. PAOE, Managing Director Wholesale Distributors of Fr^eh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Office Ph. 26 328 Res. Ph. 78 917 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH Bus. Phone 27 989 Kes. Phone 36 131 Rovaizos Flower Shop Our Speclalties WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS Mrs. S. J. Rovatzos, ProprietreaB Formerly Robinson & Co. 253 Notre Dame Ave. WINNIPEG MANITOBA

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.