Lögberg - 17.02.1949, Page 1
PHONE 21374
*■- trtUTV*
\;>u>
rcw*"
!>#í ****** Complele
Cleaning
Inslilulion
62. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 17. FEBRÚAR, 1949
PHONE 21374
te>Á
-fúB A Complele
Cleaning
Inslilution
NÚMER 7
Sýnið trúnað í verki með því að fjölmenna á næsta ársþing þjóðræknisfélagsins
ÍSLENZKU SENDIHERRAHJÓNIN VÆNTANLEG TIL WINNIPEG
HON. THOR THORS
Frá þeim ánægjulegu tíðindum var skýrt hér í blaðinu 1 fyrri viku,
að sendiherra íslands í Bandaríkjunum og Canada, Hon. Thor Thors,
yrði ræðumaður á árshátíð þjóðræknisdeildarinnar “Frón” sem
haldin verður á Marlborough hótelinu hér í borginni að kveldi
þess 22. yfirstandandi mánaðar, og í för með honum yrði sendi-
herrafrúin. Svo miklum vinsældum eiga þessi merku hjón að fagna
hér um ^Llóðir- frá fyrri *heimsóAiuTn og vo^íla mikilsvægs starf í
þarfir íslendinga yfir höfuð, að kærkomnari aufúsugesti gat
naumast að garði borið.
Thor sendiherra er vitur maður og góðgjam, og mun það naumast
ofmælt að hann sé einn hinn hollráðasti stjórnmálamaður íslenzkur,
FRÚ ÁGÚSTA THORS
sem nú er uppi, eins og hinn glæsilegi starfsferill hans á vettvangi
utanríkisþjónustunnar ber svo glögg merki um.
Nýlega var hér í blaðinu skýrt svo ýtarlega frá margþættu starfi
Thors sendiherra í ritgerð eftir Sigurð meistara Skúlason, að
Lögbergi getur þar að engu leyti um bætt, þó ekki sé úr vegi að
jaínframt sé á það bent, hve almenna hrifningu ræða hans um
Mannréttindayfirlýsinguna á pingi sameinuðu þjóðanna í París
vakti meðal lesenda bláðsins.
Lögberg býður Thors Sendiherra og hina glæsilegu frú hans inni-
lega velkomin til borgarinnnar.
Fylkisþingið í Manitoba kvatt til funda
Á ÞRIÐJUDAGINN ÞANN 8. þ.m. var fylkisþingið í Manitoba
sett af fylkisstjóranum, Hon. R. F. McWilliams með venjulegri
viðhöfn að viðstöddu miklu fjölmenni; las fylkisstjóri, venju sam-
kvæmt, boðskap stjórnarinnar til þingsins; ekki er þess að vænta,
að mörg laganýmæl komi til umræðu á þingi þó sum þeirra séu
þess eðlis, að miklu skipti um
skynsamlega úrlausn þeirra, svo
sem um framkvæmd aukinna
orkustöðva til þess að koma í veg
fyrir skort raforku til iðnaðar og
almennra nota; þykir líklegt, að
til slíkra framkvæmda verði var-
ið að minsta kosti tuttugu mil-
jónum dollara á næstu árum; þá
verður og lagt fyrir þing frum-
varp til laga um nýja kjördæma-
skiftingu, sem telja má víst að
valda muni heiturn umræðum og
jafnvel nokkrum flokkadráttum;
gert er ráð fyrir því, að Winni-
pegborg bætist tvö þingsæti, og
að einhverjum sveitakjördæm-
um verði steypt saman.
Þá koma og fyrir þing tillögur
um breyting á bílvegalöggjöf-
inni, svo og uppástunga um fast-
ákveðinn vinnutíma í helztu
greinum iðnaðarins, ásamt fyrir-
huguðum breytingun á löggjöf
um mentamál og skólahald.
Afstaða stjórnarinnar varðandi
ellistyrkinn, eins og raunar áð-
ur, sýnist því miður næsta þoku-
kend.
Tékjur fylkissins eru nú að
Ánæygjulegt og virðulegt
samsæti
Síðastliðið mlánudagskvöld var
haldið veglegt samsæti á Fort
Garry hótelinu í virðingarskyni
við hinn heimsfræga landkönnuð
og rithöfund, • Dr. Vilhjálm
Stefánsson og frú hans; að sam-
sætinu stóðu þau mannfélags-
samtök íslenzk hér í borg, er
beitt hafa sér fyrir framkvæmd-
um með það fyrir augum, að
koma á fót kenslustól í íslenzku
við Manitobaháskólann. Séra
Philip M. Pétursson stýrði þess-
um glæsilega mannfagnaði; séra
Rúnaólfur Marteinsson flutti
borðbæn; að loknu borðhaldi
flutti Dr. Vilhjálmur allanga, en
frábærlega Skemtilega ræðu,
kryddaða hans kunnu fyndni; svo
mikið aðdráttarafl hafði ræða
Dr. Vilhjálms, að flestir munu
hafa minst hins fomkveðna,
“Mættum vér fá meira að heyra.”
Séra Valdimar J. Eylands
þakkaði þeim Dr. Vilhjálmi og
frú hjartanlega komuna hingað
til borgar með hlýjum og vel-
völdum orður.
Engum þeim, er samsætið
sóttu, blandaðist hugur um það,
hve mikilvægt það væri, að get-
að eignað sér slíkan afburðamann
sem Dr. Vilhjálmur er.
MISS DOLORES SWANSON
ÍSLENZK
ÍÞRÓTTADROTNING
Gimli prostakall
20 febrúar — Messa að Gimli
kl. 7:00 e.h.
27. febrúar — Messa að Húsa-
vick, kl. 2:00 e.h.
Ársfundur safnaðarins verður
haldinn að messunni afstaðinni.
Allir boðnir og velkomnir.
Skúli Sigurgeirson
Eins og vitað er, var þessi
glæsilega íþróttamær kosin
drotning fyrir Winnipeg á Cami-
val, sem hér var haldið í janúar-
mánuði í fyrra; lagði hún þá,
og leggur enn, kappsamlega
stund á hina fögru og hollu
skautaíþrótt. Miss Swanson er
dóttir þeirra góðkunnu hjóna,
Mr. og Mrs. J. W. Swanson, 184
Niagara Street hér í borginni.
Miss Swanson, sem jafnt og
þétt leggur mikla rækt við íþrótt
sína, tekur nú þátt í Ballet Swan
Lake í Carnival of the Ice Club
of Greater Winnipeg, sem geng-
ur undir nafninu “The Ebony
Chest,” sem haldið verður í
Amphitheatre Rink, Winnipeg,
23. 24. 25. og 26. yfirstandandi
mánaðar.
Af öðrum Islendingum sem
þátt taka í áminstu Camival eru:
Joyce Neillings, 720 Beverley St.
June Magnússon, 1079 Spmce St.
Donna Marie Stephenson, 1167
Grosvenor Street.
Sharon Thorvaldson, 902 Bann-
ing Street.
Barbara Thorsteinson, 540 Agnes
Street.
Dorothy Johnson, 813 Arlington
Street.
Arla May Thorkelson 1164 Dom-
inion Street.
Barbara Björnson, 1077 Spruce
Street.
Bonnie Lynn Johannesson, 639
Victor Street.
Dale Jöhannesson, 639 Victor St.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylands.
Heimili 776 Victor Street. Sími
29017. —
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h. — Sunnu-
dagaskóli kl. 12:15 e. h'. — Allir
æfinlega velkomnir.
4-
Arborg-Riverton Presiakall
20 febrúar — Arborg, ensk
messa kl. 2:00 e.h.
27. febrúar — Riverton, ensk
messa kl. 2:00 e.h.
B. A. Bjarnason
-t
Lúterska kirkjan í Selkirk
Ensk messa kl. 11:00 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12:00.
íslenzk messa kl. 7:00 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson
Campbell forsætisráðherra
mun hærri en áður hefir gengist
við, og er áætlað, að tekjuaf-
gangur nemi nálega hálfri fimtu
miljón dollara; mestan arð hefir
stjómareinokunin á áfengum
drykkjum gefið af sér í aðra
hönd.
Þetta er fyrsta þingið, sem
Hon. D. C. Campbell hefir
stjómarfomstuna í höndum sín-
um.
Mr. Ólafur Hallson kaupmaður
frá Eriksdale og frú, hafa dvalið
í borginni í heimsókn til dætra
sinna.
-t
Mr. B. Eggertson kaupmaður
frá Vogar var staddur nokkra
daga hér í borginni ásamt frú
sinni.
LEIÐBEiNINGAR VARÐANDI STOFNUN
KENSLUSTÓLS í ÍSLENZKU
Með frekari skírskotunar til bréfsins, sem birt var
í Lögbergi þann 2. þ.m. í sambandi við aðferðir til að
koma á framfæri tillögum í sjóð háskólastóls í íslenzku,
vil ég skýra nokkru nánar þá tilhögun, sem nefndin
félzt á varðandi þá, er gerast vildu stofnendur stólsins.
Eíins og nafnið “Founders” bendir til verða stofnendur
allir þeir einstaklingar eða félög, er lagt hafa af mörkum
$1000.00 eða meir stofnuninni til fulltingis, en slíkt var
lágmark, er forstöðunefndin við byrjun söfnunar setti
fyrir því, að verða stofnandi.
Nefndinni var það þegar ljóst, að $1000.00 tillag
væri það hátt, að ýmsum gefendum reyndist örðugt að
greiða slíka upphæð í einu lagi, og þessvegna var
ákvörðun tekin í þá átt, að jafna mætti niður greiðslum
í tvö, þrjú eða jafnvel fjögur ár, að því tilskildu, að
síðasta greiðslan yrði gerð fyrir 17. júní 1952.
Þeir sem hafa í hyggju að færa sér í nyt dreifingu á
greiðslu allrar upphæðarinnar, ættu að tilgreina tölu
afborgana, ásamt þeirri dagsetningu, er upphæðirnar
skuli sendar til Manitobaháskólans.
Hér fer á eftir eyðublað, er margir gefenda hafa
stuðst við. Gjafir sem sjóð þessum berast, eru undan-
þegnar tekjuskatti samkvæmt tekjuskattslöggjöf Can-
ada, vegna þess að þær varða fræðslumál.
Eins og fyr var vikið að, munu þær ýmsu félags-
stofnanir, er beitt hafa sér fyrir framgangi þessa mikla
menningarmáls, leita fjárstuðnings af hálfu íslenzks
almennings, er forráðamenn háskólans lýsa því opin-
berlega yfir, að þeir séu við því búnir, að taka fullnaðar-
ákvarðanir um stofnun kenslustóls í íslenzku.
Ef lesendur kynnu að æskja frekari upplýsinga í
máli þessu, yrði nefndinni það kært, að verða við til-
mælum þeirra.
Virðingarfylzt,
Margrét Petursson
ritari stofnendanefndarinnar
4- 4- ♦ -f 4- 4-
---------------------- (Place)
----------------- (Date)
Séra Philip M. Pétursson
forseti þjóðræknisfélagsins, er
setur hið 30. ársþing þess í Good-
templarahúsinu á mánudaginn
þann 21. þ.m., kl. 9:30 f.h.
Mr. F. W. Crawford,
Comptroller, University of Manitoba,
Winnipeg, Manitoba.
Dear Sir:
I hereby offer to contribute the sum of One
Thousand ($1000.00) towards the fund for the
establishment of a Chair in Icelandic Language and
Literature in the University of Manitoba. I would
like to pay this amount in ----------yearly in-
stallments. A cheque for the first payment in the
amount of $-----------is herewith enclosed.
It is my understanding that if the Chair is not
established by June 17th, 1952, this money will be
returned to me.
Yours very truly,