Lögberg - 28.07.1949, Blaðsíða 1

Lögberg - 28.07.1949, Blaðsíða 1
PHOHE 21 374 •4.,rkA a A Complele Cleaning Institulion 62. ÁRGANGUR WINNIPEG. FIMTUDAGINN, 28. JÚLÍ, 1949 PHONE 21 374 te& Cleaning Institution NÚMER 30 DOROTHY KRISTJÁNSSON Miss Canada EMILY SIGURDSON Miss America Art Reykdal Minni Canada í ljóði 1. ágúst á Gimli. Verkfalli lokið Síðastliðinn mánudag lauk uppskipunarmannaverkfallinu í London, er staðið hafði yfir í röskan mánaðartíma og 15 þús- undir manna tóku þátt í; kröfur verkfallsmanna um haekkuð laun og bætt vinnuskilyrði hafa verið settar í gerðardóm. Frá þingi S.U.S.: Alyktanir um bind- indismál kirkjumál og eldvarnir í sveitum Á nýafstóðnu þingi S.U.S. var Magnús Jónsson, lögfræðingur, kosinn formaður Sambandsins í stað Jóhanns Hafstein, sem ver- ið hefur formaður í sex ár, en gaf nú ekki lengur kost á sér. Hefur Jóhann allra manna mest ilnnið að eflingu samtaka ungra Sjálfstæðis manna. Magnús Jónsson hefur áður átt sæti í Sambandsstjórn í tvö kjörtímabil. Hann var síðan um tveggja ára skeið ritstjóri „ís- lendings“ á Akureyri og formað- ur „Varðar“, félags ungra Sjálf- stæðismanna þar. Magnús tekur nú sæti í miðstjórn Sjálfstæðis- flokksins sem fulltrúi ungra Sj álf stæðismanna. Bindindismál. Þing SUS lýsir áhyggjum sín um yfir auknum drykkjuskap í landinu og hvetur sambands- stjórn til að gera allt það, sem að gagni mætti verða í barátt- unni við þetta mikla þjóðfé- lagsvandamál, meðal annars með því að finna leiðir til að hafa áhrif á almenningsálitið og hvetja til samtaka um að efla bindindisstarfsemina í landinu. Þingið álítur að leggja beri áherslu á aukna bindindisboðun meðal æskunnar og í því sam- bandi skorar það á kennara og skóla landsins að standa vörð um hagsæld og heilbrigði íslenskrar æsku. Kirkjumál. Þing S.U-S. lýsir einlægum stuðningi sínum við kirkju og kristindóm í landinu og telur þjóðarnauðsyn, að kristindóms- fræðsla sé aukin að mun í barna- og framhaldsskólum landsins. Ennfremur beinir þingið þeirri eindregnu áskorun til fræðslu- málastjórnarinnar, að framfylgt sé til fullnustu gildandi ákvæð- um um kristindóms fræðslu í skólum landsins. Bendir þingið sérstaklega á það, í þessu sam- bandi, að æskilegt sé, að sér- menntaðir menn hafi þessa fræðslu með höndum. Eldvarnir í sveitum. Þingið álítur, samkvæmt und- angenginni reynslu, að eldsvörn- um í sveitum lándsins sé mjög ábótavant, og skorar því á yfir- völd landsins að hlutast til um, að þær verði efldar, svo sem með auknum innflutningi nauðsyn- legra slökkvitækja og fræðslu um eldvamir. Mbl. 12. júlí Nostalgia By HELEN SWINBURNE I left the hills — the rooted hills that slumber And dream within an aura of enchantment While yet gay summer’s feast is richly spread: I left the woods where bird-song is the roof-tree, Where sound and silence graciously foregather In sweet tranquility; Where prairie lilies, wearing scarlet togas, Vie with the blushing rose; Where winds come through the grass, and circling time Seems of but little moment. All these I bartered for the dusty town! Of what avail to dwell upon them? Yet — An after-image, like a shifting veil, Or a pale echo from the rim of night, Haunts the secret cloister of my soul. FRÚ HÓLMFRÍÐUR DANÍELSSON BÆNDUR BYRJAÐIR l AÐ SLÁ í KJÓSINNI 5. júlí—Sláttur er nú að hefj- ast, og er grasspretta allsæmi- leg á betri túnum, og mun betri en búast mátti við, vegna þrá- látra vorkulda, sem að héldust langt framm á vor. Þeir fyrstu byrjuðu að slá nú fyrir helgina, en fleiri munu byrja nú í þessari viku. Sími hefir verið lagður á all marga bæi í vor og hefir skipti stöð verið sett upp í Eyrarkoti. Eftir er að leggja síma á 4 bæi utantil í sveitinni. Og eru það Eylífsdalur, Miðdalur, Mæra- staðir og Kiðafell. Einnig vantar síma á bæina norðan við Reyni- vallaháls og Brynjudal, en jarð- strengur hefir verið lagður um nokkurn hluta þessarar leiðar og er hafin athugun á honum. Að því loknu eí líklegt að Hvamm- ur og Hvammsvík komist í símasamband. Væri þess full þörf að sími yrði lagður lengra inn með Hvalfirði, á jafn fjöl- farinni leið eins og hún nú er orðin. Fénaðarhöld hafa verið all- góð yfirleitt hjá flestum bænd- um hér í sveit. Að vísu má þakka það hvað var mikið notað af út- lendu kjarnfóðri á þessu vori, en allþungur skattur mun það vera á sumum bændum. St. G. Fjallkona íslendingadagsins 1. ágúst á Gimli Tekur að sér sölu hrjúfra korntegunda Canadíska hveitiráðið hefir kunngert, að það taki að sér alla sölu hafra og byggs frá 1. ágúst næstkomandi að telja. Sambandsstjórn hratt í fram kvæmd áminstum ráðstöfunum eftir að þing Sléttufylkjanna þriggja höfðu afgreitt þar að lútandi löggjöf. Hveitiráðið greiðir framleið- endum til að byrja með 61% cent fyrir mæli af höfrum, en 90 cent fyrir mæli af byggi. HJALTI JÓNSSON, KONSÚLL LÁTINN Hjatli Jónsson, konsúll, and- aðist í svefni að heimili sínu Bræðarborgarstíg 8 í fyrrinótt, rúmlega áttræður. Hjalti Jónsson var fyrir löngu þjóðkunnur athafna og atorku- maður, fyrst sem sjósóknari, skip stjóri á fiskiskipum og síðar at- hafnamaður í landi, sem var stofnandi og meðstjórnandi að mörgum þjóðþrifafyrirtækjum. Hann var fæddur að Fossi í Mýrdal 15. apríl 1869 og var bú- settur hér í Reykjavík frá því um aldamót. Mbl. 6. júlí TIL BERGTHORS OG KRISTÍNAR JOHNSON í silfurbrúðkaupi þeirra 19. júlí 1949 Ungfrú Constance Jóhannesson Flytur ræðu fyrir minni Canada 1. ágúst á Gimli. Fjármálaráðherrafundi lokið í fyrri viku lauk i London fjár málafundinum, sem brezka ráðu neytið hafði kvatt til vegna þverrandi viðskipta við þær þjóðir, er hafa dollara að gjald- miðli; í fundarstörfum tóku þátt, auk brezka fjármálaráð- herrans, Sir Stafford Cripps, all ir fjármálaráðherrar hinna brezku sambandsþjóða; fyrir Canada hönd var mættur á fund inum Douglas Abbott, fjármála- ráðherra sambandsstjórnarinn- ar; vegna þverrandi kaupmáttar Breta, er búist við að vörukaup þeirra héðan úr landi lækki á næsta fjárhagsári um 250 miljón ir dollara, og verður Canada þar af leiðandi að leita fyrir sér um markaði annars staðar til að bæta upp hallann. Glatt í kvöld er hér á hjalla, hjörtu vor í eining slá; alt í kring er himinn heiður, hvergi ský um loftin blá. Aldarfjórðungs endurminning upp úr gleymskudjúpi rís þegar Bergthor tók með „Tíní“ traustu haldi á „paradís“. Þá var vor — og vor er ennþá: „Vormenn“ eru þessi hjón. — Þótt þau aldrei ísland sœju, .... er þeim sárt um gamla Frón. Verðir þess í verki og orði voru og eru — heil og öll. tslenzk trygð í eðli þeirra á ei nokkur lykkjuföll. Þegar Bergthor tók með „Tíní“ traustu haldi á „paradís“, áttu þau og þangað fluttu það sem æ í gildi rís: Góðan vilja: veikum bræðrum vandábraut að geta stytt. Glöð og einlæg góðu máli gáfu jafnan fylgi sitt. Sáttmáli afgreiddur Á fimtudaginn afgreiddi öld- ungadeild þjóðþingsins í Was- hington Atlantshafssáttmálann með 88 atkvæðum gegn 13. Um- ræður höfðu staðið lengi yfir og orðið allsnarpar með köflum. Ótal margir hlýir hugir hingað leita þessa stund, blessun flytja’ úr öllum áttum yfir þennan vinafund. — Silfur hjónin lengi leiði lands og þjóðar heilladís. Gæfan svífi æfi alla yfir þeirra „paradís". SIG. JÚL. JÓHANNESSON Séra Valdimar J. Eylands Forseti íslendingadagsins 1. á- gúst á Gimli. Andrew Daníelsson Flytur ræðu fyrir minni Islands 1. ágúst á Gimli. Bóðvar H. Jakobsson Minni Islands í ljóði 1. ágúst á Gimli. Málverk frá Finnlandi og ísland í Aarhus Einkaskeyti til Mgbl. K.Höfn, 5. júlí—Sýningardeild- ir íslands og Finnlands frá norænu listsýningunni í Kaup- mannahöfn, eru nú komnar til Aarhus og hafa sýningar á þeim verið opnaðar í Ráðhúsi borgar- innar. Viðstaddir voru Hans Heddtoft forsætisráðherra, Fagerholm for sætisráðherra Finnlands, Un- mack Larsen borgarstjóri í Aarhus og Jakob Möller sendi- herra íslands í Danmörku. Svavar Guðnason málari sá um fyrirkomulag íslenzku sýningar- innar. Góður gestur - f rá íelandi Þorkell Jóhannesson, dr. phil. prófessor í sögu við Háskóla ís- lands, kom til borgarinnar í gær ásamt frú sinni. Verður hann gestur íslendingadagsins á mánu daginn kemur og flytur ávarp og kveðjur. I

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.