Lögberg - 15.09.1949, Síða 6

Lögberg - 15.09.1949, Síða 6
6 LÖGBERG, FíMTUDAGLNN, 15. SEPTEMBER, 1949 FORRÉTTINDI Eftir GILBERT PARKER J. J. BUdfell þýddi. — Ljóöin i þeasari sögu eru þýdd af Dr. 8lg. Júl. Jóhannessyni. Djöfullinn hlær — sem í manns- mynd er kominn til þess að spotta vesa- lings skraddara, til að sá sæði fjand- skaparins á meðal sóknarfólksins, sem bjó í friði í skjóli kirkjunnar. Skraddar- inn var haldinn þremur aðalástríðum: Ágirnd, hégómagirni og trúarofsa. Char ley hafði nú snert þær allar, og skradd- arinn var allur á hjólum. Og ágirninni var gefinn byr undir báða vængi, með því að hafa fengið góðan aðstoðarmann kauplaust, en nú sá hann að það var djöfullinn í mannlíki, sem hann var far- inn að gjalda kaup. Hégómagirni hans var misboðið með fjandans háði. Trúar brögðum hans og Guði hans hafði verið misboðið á svo svívirðilegan hátt, að engin refsing gat verið nógu þung fyrir satansþjón þann, sem að slíkri óhæfu væri valdur. Hann var ávalt ofsatrúar- maður, en nú ofsatrúarmaður, sem mist hafði stjórn á sjálfum sér. Hann lét blaðið í vasa sinn og lædd- ist út úr herberginu, og að dyrunum á herbergi Charley. Hann hlustaði við dyrnar. Eftir lítinn tíma opnaði hann þær og hlustaði enn. Monsieur var stein sofandi. Louis Trudel vissi naumast hvers vegna hann hefði verið að hlusta, eða hvers vegna að hann hafði opnað dyrn- ar, og stóð og horfði á manninn í rúm- inu, sem hann gat aðeins séð móta fyr- ir í myrkrinu. Ef ásetningur hans hefði verið að granda honum þá hefði hann tekið eitthvert vopn með sér, en það gerði hann ekki; ef að hann hefir gjört það af forvitni þá sá hann manninn í fasta övefni. Hið sjúka hugmyndaflug skraddar- ans hafði svo mikið vald á honum, að hann vissi naumast hvað hann var að gjöra. Á meðan að hann stóð og horfði á manninn sofandi, með hatur í huga og hrylling í hjarta, talaði rödd til hans og sagði: „Þú skalt ekki mann deyða“. Og orðin héldu áfram að hljóma honum í eyrum. En þó kom honum ekki morð til hugar ímyndaða beðið sem til hans kom hafði og komið honum til þess að láta sér slíkan verknað til hugar koma. Hon um hafði dottið í hug að fá söfnuðinn til að hirta þennan mann á marga vegu, en aldrei hafði honum dottið morð í hug. Þegar hann lét hurðina á herbergi Charley hljóðlega aftur kom honum morðhugsunin í hug og hún festist í huga hans: „Þú skalt ekki“ hafði vakið hugsunina um „þú skalt“. Þessi hugsun lét hann ekki í friði þegar hann kom inn í herbergi sitt aftur og fór að hátta, og lagðist til svefns. Hann gat ekki sofnað. „Sýndu mér tákn frá himni, skraddari!" Það hafði verið skorað á hann sjálfan og við því gat hann ekki skellt skollaeyr- um. Það var skylda hans að svara. — Já hann varð að svara þessum trúvill- ingi, í nafni kirkjunnar, trúarinnar og Guðs. Eftir því sem hann hugsaði meira um þetta, því óskýrari varð myndin af Charley með augnaglerið hart skrúfað á auga sér. Þetta augnagler gat aldrei úr huga hans farið — það var vantrúar merkið. „Sýndu mér tákn frá himnum, skraddari!“ Hvaða tákn af himni átti hann að sýna ? Eftir lítinn tíma settist hann upp í rúmi sínu, og eftir augnablik var hann farinn að klæða sig, og eftir fimm mín- útur var hann kominn út og á leið til kirkjunnar. Þegar hann kom þangað, tók hann .verkfæri upp úr vasa sínum og skrúfaði með því lítinn járnkross af kirkjuhurðinni. Það var kross, sem páf- inn hafði sérstaklega blessað, og var fluttur til Chaudire af móður prestsins, sem nú var dáin. „Þegar ég er búinn að nota hann, þá læt ég hann aftur á sinn stað“, sagði hann um leið og hann faldi krossinn við brjóst sér og flýtti sér aftur heim til sín. Þegar hann var háttaður ískraði kuldahláturinn í honum. Hann lá vak- andi alla nóttina og horfði upp í loftið í herberginu sem hann var í. Hann fór á fætur með dagrennnigu daginn eftir og fór að hyggja að eldinum í búð sinni. XVIII. KAPÍTULI Stuldur krossins Ef Charley hefði ekki verið eins sokkinn niður í sínar eigin hugsanir og hann var, þá hefði hann orðið var við hið illa augnaráð, sem skraddarinn gaf honum, en hugur hans var sokkinn nið- ur í hugarraun, sem ekki kom Louis Trudel hið minsta við. Hin forna þrá og þorstahneigð ásótti hann á ný. Hann hafði séð dyrnar á 'veitingahúsi Joli- coeur í huga sér opnast og aftur skella allan morguninn, og vínlyktina anga alls staðar í kringum sig. Hana lagði að vitum hans, þegar gufuna lagði upp af heitu pressujárninu, þegar hann var að pressa saumana á treyjunni, sem hann var með og frá snjónum, sem sól- in var að bræða fyrir utan gluggann á búðinni. Hvað eftir annað fannst honum að hann yrði að fara burt frá verki sínu og á litla veitingahúsið, þar sem hvít- leitt áfengið var selt heimskum héraðs- mönnum. En hann barðist á móti þeirri ástríðu — þeim fortíðararfi — því langa fortíðaroki — eða var það virkilega hið eiginlega og sana eðli hans? í þeirri spurningu var falinn ómöguleikinn á að gleyma hinu fyrra lífi, — gleyma því, sem hann hafði verið, og ekki verið, ánægjustundunum, sem hann hefði get- að notið, — öllu því, sem hann hafði tapað — ævarandi fingur, sem benti honum á það. Hann var enn háður bölv- uninni, sem kvaldi hann líkamlega og andlega — ef um nokkurt andlegt líf væri að ræða! „Andlegt líf — sál!“ Setning sú kom aftur og aftur í huga hans á meðan hann var að berjast við vínlöngunina og ástríðuna til að taka n\eðalið, sem læknirinn, bróðir prestsins sendi hon- um. „Ef að hann hefði sál!“ Umhugsun- in um það, varð honum læknislyf, sem róaði huga hans. Hann gekk aftur og aftur út að glugganum á búðinni þang- að sem vatnsfatan stóð og teygaði úr henni til að slökkva þorstann. „Ef að hann hefði sál!“ Hann leit til Louis Trudel, þegjandi og úrillur sat hann við að sauma vesti. Það var eins og raki í höndunum á honum og and- litið, sem var gulleitt og veiklulegt, og benti á óumflýjanleg endalok! Orðin, sem hann hafði skrifað kveldið áður komu honum í huga: „Þess vegna, hvers vegna, skraddari? Þess vegna, hvers vegna, Guð? Sýndu mér tákn af himni, skraddari!14 Það bárust söngraddir til eyrna þeirra, eins og svar upp á spurningu hans, söngraddir og klukknahljómur frá kirkjuklukunni. Skrúðganga með merki og fána færðist nær. Það var helgidagur og safn aðarfólkið í Chaudiere vanrækti ekki skýldu sína. Fólk frá þorpinu, sem að heiman var við vinnu og feröafólk, var komið heim fyrir páskana. Allir, sem voru í skógarvinnu, við veiðar, eða að heiman voru komnir. Það er, allir sem gátu komist til skrifta og til að meðtaka sakramentið í safnaðarkirkju sinni. í gær hafði safnaðarfólkið notið hóflegr- ar gleði. Kirkjan, sem var mikil og rúm- góð, hafði verið meira en troðfull, og fólkið sparibúið gekk í hópum Um göt- urnar. Nú hafði skugga verið varpað á gleði þessa góða fólks — járnkrossin- um litla, sem páfinn hafði blessað, hafði verið stolið af kirkjuhurðinni! Prestinum hafði verið sagt frá þessu meðan á messunni stóð, og áður en hann gekk upp í prédikunarstólinn minntist hann á þetta hneyksli með ein urð og alvöru. Krossinn hafði verið eign píslarvotts kirkjunnar, sem fyrir tvö hundruð árum gaf líf sitt í þjónustu meistarans á strönd Afríku. Louis Trudel heyrði það, sem prest- urinn sagði, í sæti sínu framarlega í kirkjunni, hann brosti kuldalega og sagði við sjálfan sig: „Honum verður skilað aftur á sínum tíma, en fyrst verð ur hann að inna af hendi ákveðið verk“. Louis Trudel gekk ekki til altaris þenn- an páskadag, né heldur gekk hann til skrifta, eins og hann var vanur að gjöra. Það liðu nokkrir dagar þangað til prest- urinn varð þess var, þrátt fyrir það, þó að það hefði aldrei fyrr komið fyrir í þrjátíu ár að skraddarinn vanrækti helgi skyldur sínar á páskadaginn. Fólkið braut heilann um þennan at- burð, en það gat ekki komið auga á neitt fyrst í stað. Það þóttist sannfært um að enginn óbrjálaður kaþólíki í Chaudiere mundi hafa tekið hinn helga hlut. Eftir nokkurn tíma fóru menn hljóðlega að stinga nefjum saman um að það væri ekki óhugsandi að monsieur Charley hefði stolið krossinum. Hann væri ekki kaþólskur — og hver vissi, hvaðan að hann hefði komið, hvað hann hefði verið? Ef til vill væri hann tugt- húslimur, þjófur eða morðingi! Char- ley, sem hafði sjálfur nóg til að hugsa um hélt áfram við verk sitt, án þess að láta á því bera að hann vissi um þetta hjal fólksins. Skrúðförin fór fram hjá húsunum, menn með fána með ritningartilvitnun- um á, kórþénarar með reykelsisker, maður sem hélt kristsmynd gjörðri úr tré hátt á loft, presturinn með silkihlíf yfir sér og fjöldi byggðarfólks kom á eftir og söng sálma. Fólkið kom út úr húsum sínum og kraup á kné á götunni á meðan skrúðförin fór fram hjá, og prestur leit á fólkið, hér og þar, og bless aði það með uppréttri hendi. Louis gamli reis upp af bekknum, sem hann sat á, fór í treyju utan yfir ullarskyrtuna, sem hann var í, flýtti sér fram að búðardyrunum kraup á kné, signdi sig og baðst fyrir. Svo stóð hann upp, snéri sér að Charley, sem var ýmist að horfa á skrúðförina eða á skradd- arann brosandi. Charley vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið. Hugur hans var langt í burtu frá sjón þeirri, sem fyrir augu hans bar. Var þetta ein allsherjar og ægileg skynvilla? Voru þetta trúar- brögð? Viókvæm, hjartaskerandi láta- læti dauðlegra manna? Hann brosti raunalega að þessum hugsunum sín- um — að sínu eigin sálarástandi, sem honum virtist vera afskekkt og ein- manalegt eins og holdlaus bein í her- klæðum, eitthvað sem hvergi ætti heima. Orðin, sem hann sjálfur skrifaði daginn örlagaríka, er hann dó í Cóte Dorion komu honum í huga . Hann var skyndilega vakinn upp frá þessum hugsunum, sem skrúðgangan leið í gegnum, eins og heil fylking vitna. Það var rödd Louis Trudel, skörp og skræk, sem vakti hann. „Trúir þú ekki á Guð og Guðsson?“ „Það veit Guð!“ svaraði Charley seinlega — ósjálfráð vandræða viður- kenning, handhæg setning, sem gripið var til, til þess að fullnægja stundar- hugsun. En hún sýndist hárbeitt ögrun, jafnvel illkynjuð keskni. Þannig leit Louis Trudel að minsta kosti á hana, því hann stök á fætur, greip glóandi járnið úr eldinum og réðst að Charley urrandi. Þetta kom svo flatt upp á Char ley að hann vissi ekkert hvað hann átti að gjöra. Hann var með öllu óundirbú- inn til að mæta slíkri aðför. Hann stg,rði aðeins á skraddarann, án þess að bera hönd fyrir höfuð sér, en skraddarinn stansaði svo sem fet frá honum með járnið á lofti. Louis Trudel sá að sér í tíma. Með hugboði brjálaðs manns skildist hon- um, að ef hann réðist að Charley nú, þá mundi það eyðileggja höfuðatlögu hans síöar, að þorpsbúarnir myndu þyrpast í búðina og gjöra uppþot og ergelsi, út af röngu tilræði. En svo vildi til að þetta tiltæki skraddarans bar fyr- ir augu einrar persónu annarar en mannanna í skraddarabúðinni, sú per- sóna var Rósalie Eventurel. Hún sá krossinn eldrauðan reistan til atlögu að monsieur, og vonaðist eftir að sjá hann slá skraddarann til jarðar, en í stað þess sá hún Louis snúa við og láta járnið í eldinn aftur. Hún sá einnig, að monsieur var að tala við skraddarann, en heyrði ekki hvað hann var að segja. En það, sem hann var að segja, var hvorki flókið né margbrotið, það var aðeins: „Fyrirgefðu, monsieur, ég meinti enga móðgun með því sem ég sagði, ég var aðeins að leitast við að leysa ráðgátuna á mannlega vísu. Ég býst við að ég þrái tákn frá himni! — tákn, sem ég fæ ekki öðlast“. Varir skraddarans herptust saman og hann hélt skærunum fast að hlið sér. „Það sakar ekki nú“, sagði hann stuttur í spuna. Ég hefi fengið tákn af himni, máske að þú fáir það líka!“ „Það væri æskilegt“, svaraði Char- ley hugsandi. Hann var að hugsa um hvort hann hefði unnið sjálfum sér ó- bætanlegt tjón með hinum illa völdu orð um sínum, sem gætu ollið algjörðum skilnaði við skradarann, og gjöra hon- um veruna í þorpinu alveg ómögulega. Hann hafði engá löngun til að flytja sig, og hvert gat hann farið? Það gjörði minnst til, hvort hann var skraddari eða eitthvað annað, takmark hans var nú að komast í samræmi við almenn- ingshugsunarháttinn, að verða að skyn ugu dýri, að komast sem næst lífi nátt- úrunnar, ofan halla lífsins með eins lít- ið eðlisupprunatap og unnt væri. Það var skylda hans að semja sig að hugs- unarhætti á borð við þann, sem skradd arinn átti yfir að ráða, að gjöra það, sem skraddarinn og hans líkar höfðu fundið, að sínu eigin — óþolandi trúar- bragðakerfi, og auðfengna tryggingu, sem til boða stóð með því að selja upp- runaeðli sitt á vald þessari miklu draum trúarhugsjón. Hvaða ósegjanlega ró og tálmunarlaus torg var ekki þar að finna. Hann horfði yfir götuna í áttina til litla pósthússins, og sá Rósalie Evantur el standa við gluggann, og hann fór að hugsa um hana. Rósalie var aftur á móti að hugsa um, hvað hamfarirnar, sem hún hafði séð Louis í meintu. Innan lítillar stund- ar, sá hún tólf menn koma gangandi eftir götunni og ganga hratt, og áður en þeir komu að skraddarabúðinni stönsuðu þeir og töluðu saman með áhuga. Svo tók einn þeirra sig út úr hópnum, — það var Filion Lacasse söðlasmiður. Hann stansaði við dyrn- ar á skraddarabúðinni, horfði á Charley um stund og sagði svo hranalega: „Ef að þú skilar ekki aftur krossinum, sem þú stalst af kirkjuhurðinni, þá tökum við þig, tjörgum og fiðrum, monsieur“. Charley leit upp steinhissa. Honum hafði ekki komið til hugar, að hann yrði sakaður um þann þjófnað. „Ég veit ekkert um krossinn“, sagði hann hægt. , „Þú erfeini trúvillingurinn, sem til er hér í byggðinni. Þú hefir tekið kross- inn. Hver ertu og hvað ertu að gjöra hér í Chaudiere?“ „Ég er að vinna við iðn núna“, svar- aði Charley rólega. Hann leit til Louis Trudel eins og hann vildi spyrja: „Hvernig lýst þér á?“ Louis gamli lét ekki standa á sér að svara. „Hafðu þig í burtu Filion La- casse“, hreytti hann úr sér. Komdu ekki hingað með þetta slúður. Monsieur hef- ir ekki stolið krossinum. Hvað hefir hann að gjöra með kross? — Hann er ekki kaþólskur“. „Ef hann hefir ekki stolið krossin- um, því segir hann það þá ekki, svaraði söðlasmiðurinn. En ef nú að hann skyldi hafa gjört það, hvað hefurðu þá að segja þér til réttlætis Louis? Þú þykist verá góður kaþólíki, ja svei! þegar þú leggur lag þitt við trúvilling!“ „Hvað kemur þér það við?“ urraði í skraddaranum og hann rétti út hend- ina eftir járninu, sem var í eldinum. Ég þjónaði við altarið áður en þú fæddist og ég skal segja þér að ég á eftir að sauma á þig líkklæðin, og halda áfram að vera góður kaþólíki, þegar þú ert kominn ofan í kirkjugarðinn. Burt með þig. Ætlarðu ekki að fara! sagði hann hastur, þegar Filion hreyfði sig ekki, ég skal skera á þér hérið!“ Og hann stóð upp af bekknum, sem hann sat á með skærin í hendinni. Filion leist ekki á blikuna og hafði sig í burtu ásamt félög um sínum, sem biðu hans úti á götunni, en Louis gamli setist aftur niður á bekk inn. Charley leit upp frá vinnu sinni og sagði: „Þakka þér fyrir, monsieur“. Hann sá ekki hve illilegt augnaráð Louis Trudel var, þegar hann leit til hans, en Rósalie Evanturel, sem stóð úti, sá það, og hún gekk yfir að pósthús- inu, hugsandi og óróleg. Hún tók ekki augun af skraddara- búðinni allan þann dag, og ekki heldur af efrihæðar gluggunum um kveldið. eftir að búðinni var lokað. XIX. KAPÍTULI Tákn af himni Forvitniskend æsing lét Rósalie al- drei í friði þan dag 'og rénaði ekki held- ur með kveldinu, þegar gluggahlerun- um á skraddarabúðinni var lokað, og aðeins blaktandi ljósbjarminn sást út um þá. Hún var óróleg og kvíðandi um kveldverðartímann og svaraði föður sínum, sem sat í hjólastól sínum við borðið og var óvanalega málhreifur, oft eins og hún væri úti á þekju. Damase Elvanturel var órólegur út af hvarfi krossins, hótunum Filion La- casse og félaga hans við Charley. Hann var sá eini, sem auk prestsins, Jó Portu- gais og Louis Trudel, sem hafði nokkuð saman við Charley að sælda, því fund- um þeirra bar oft saman, þegar monsie- ur va rúti á gangi á kveldin, og það var ekki ósjaldan að Charley æki honum í hjólastólnum á undan sér og talaði við hann um það, sem gerðist í þorpinu.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.