Lögberg - 15.09.1949, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 15. SEPTEMBER, 1949
Ur borg og bygð
Mountain N. D.
4. sept. 1949.
Kæri Einar P. Jónsson!
Ég þakka kærlega fyrir að
setja línur mínar í Lögberg 1.
þ. m., en nú verð ég að biðja þig
fyrir eftirfarandi línur í Lög-
berg, þar sem ég minnist á minn
ingargjöf í minningu um Jó-
hannes læknir, þá er það til að
kaupa í borðsalinn í elliheimilið
að Mountain, það virðist ætla
að ganga vel, því strax er komið
dálítið í þennan sjóð.
Elliheimilið er nú nærri full-
gert og verður það stórkostlega
myndarlegt hús, þegar það er
fullgert. Elliheimilisnefndin hef
ir gert mjög mikið verk og lagt
á sig til að koma þessu stóra
heimili á laggirnar; hafi hún
þökk fyrir það mikla verk.
Allt gott að frétta frá Moun-
tain, uppskera vel í meðallagi og
flestir hafa mikið að gera, og
allir að flýta sér og ég líka.
Með þakklæti fyrir Lögberg
og allt gott.
H. B. Grímson
★
Fyrirtaks skyr fæst nú dag-
Iega hjá Mrs. Thompson, 203
Marylan^i Street, Sími 31570.
Skyrpotturinn kostar 65 cents,
en mörkin 35 cents.
★
Tilkynning.
Vinir þeirra Mr. og Mrs. J.
M. Borgfjörð í Arborg, efna til
heiðursamsætis í Arborg Hall,
sunnudaginn 25. september kl.
2 e. h., í tilefni af 60 ára brúð-
kaupsafmæli þeirra. — Allir
boðnir og velkomnir.
Frekari upplýsingar veita
Arnþór Sigurðsson í Arborg og
Mrs. S. O. Jónasson 370 Arling-
ton Street, Winnipeg.
Ef næg þátttaka fæst, fer sér-
stakur fólksflutningabíll héðan
til Arborgar vegna áminnsts at-
burðar.
Mrs. Frederickson frá Baldur,
Man., var stödd í borginni í fyrri
viku á leið austur í Ontario.
Takið eftir!
Undirritaður kaupir allar ís-
lenzkar bækur, blöð og tímarit,
sem eru heil og nýtandi. Látið
einhvern njóta íslenzku bók-
anna, sem ekki eru lengur not-
aðar á heimilunum. Spyrjist
fyrir um verð hjá
Björnssons Book Store,
702 Sargent Ave.,
Winnipeg, Man.
★
Á mánudaginn í vikunni, sem
leið, andaðist Carl Franklin
Lindal að heimili sínu í Lang
ruth, 65 ára að aldri; hann hafði
un langt skeið rekið kjötverzlun
þar í bænum; hann hafði mikið
yndi af hljómlist og gegndi söng
stjórn “og organistastarfi við lút
ersku kirkjuna í Langruth; hann
lætur eftir sig ekkju, Hólmfríði,
og fimm mannvænleg börn.
Carl var mannkostamaður
mikill og naut frábærra vin-
sælda hvar, sem leið hans lá;
útförin, sem var geysifjölmenn,
fór fram frá lútersku kirkjunni
þar í bænum á föstudaginn.
Séra Skúli Sigurgeirsson jarð-
söng.
★
Seinnipart vikunnar, sem leið',
dvaldi hér í borginni hr. Jón
Metúsalemsson frá Goodridge í
Minnesotaríkinu; hann er út-
skrifaður sem Bachelor of Sci-
ence frá Minnesotaháskóla með
búnaðarvísindi að sérgrein, og
starfar í þjónustu Bandaríkja-
stjórnar sem umsjónarmaður
með búnaði heimkominna her-
manna í umdæmi sínu.
Jón er sonur Metúsalems
Stefánssonar fyrrum búnaðar-
málastjóra íslands og konu hans
Guðnýjar óladóttur frá Höfða
á Völlum; hann er hinn mesti
efnismaður, sem gott var og gam
an að kynnast.
★
Mikið úrval af íslenzkum bók-
um nýkomið frá íslandi: Sögu-
bækur, fræðibækur, ljóðabæk-
ur, myndabækur og skemmtirit
fyrir eldri og yngri.
Sendið eftir bókalista og pant
ið þær bækur, sem ykkur lang-
ar að eignast, sem fyrst, því að-
eins fá eintök eru til af sumum
bókunum.
Björnssons Book Store,
702 Sargent Ave.,
Winnipeg, Man.
★
HAUSTBOÐ hefir kvenfélag-
ið „Eining“ í samkomuhúsi
Lundar-bæjar, sunnudaginn 25.
sept. 1949. Byrjar kl. 1.30 e. h.
Öllu íslenzku fólki 60 ára og
eldra er vinsamlega boðið og
fylgdarfólki þess og öðrum, sem
vanalega hafa verið boðnir á
haustboðin.
Góð skemmtiskrá, og veiting-
ar. Kvenfélagið óskar, að sem
flest af eldra fólkinu geti komið.
★
Á föstudágskvöldið 9. þ. m.
efndi Þjóðræknisdeildin „Brú-
in“ í Selkirk til mannfagnaðar
í samkomuhúsi Selkirksafnað-
ar, og voru hinir eldri meðlimir
byggðarinnar heiðursgestir.
Kvöldið var yndisfagurt og fjöl-
menni viðstatt. Skemmtiskráin
fór fram undir stjórn Einars
Magnússonar, forseta deildar-
innar. Ræður fluttu þeir sókn-
arpresturinn, séra Sigurður
Ólafsson, um „Fegurð fjölgandi
ára“, prýðilega fagurt og vand-
að erindi, og séra Valdimar J.
Eylands, er sagði frá ferð sinni
og dvöl á Islandi. Var einnig góð
ur rómur gerður að máli hans.
Einnig sýndi séra Valdimar
hreyfimyndir frá íslandi. Með
hljóðfæraslætti og - söng
skemmtu þær Mrs. G. Johnson,
og Mrs. Valgerður Johnson, og
Trausti ísfeld flutti kjarnort
kvæði. í samkomulok flutti Sig-
valdi Nordal þakkarávarp fyrir
hönd hinna öldruðu heiðurs-
gesta.
Veitingar voru fram bornar
að afstaðinni skemmtiskrá, og
allir virtust fara hæst ánægðir
heim.
★
Þessi ungmenni voru fermd í
Mikley, 21. ágúst s.l.
For Care-Free, Life-Long Heating Comfort-
Install an all-steel or semi-steel
GILSON FURNACE
(Graviiy or Forced Air)
Canada’s Finest Heating Line!
• Airtight, dustproof, dependable . . . Fully
guaranteed. /
• Ruggedly built for life-long service and
satisfaction.
• Definitely your Best Buy. Come in
and see for yourself!
$110 and up, INCLUDING CASING
We can now make IMMEDIATE DELIVERY
and INSTALLATION at prices that will
please you.
For details, free estimates, write or phone or
drop in and see us or a “Gilson” dealer today.
Faciory Dislribulors:
STANDARD IMP0RTIN6 & SALES (0.
• (C. A. De FEHR & SONS)
78 Princess St., Winnipeg
Phone 22 911 or 28 448
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
1
Séra Valdimar J. Eylands.
Heimili 776 Victor Street. Sími
29017. —
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12:15 e.h.
Allir œvinlega velkomnir
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnudaginn 18. sept. eftir
trínitatis. Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12 á hádegi.
íslenzk messa kl. 7 síðdegis.
Sunnudaginn 25. sept. að ís-
lenzku messunni aflokinni verð-
ur sýnd í samkomuhúsi safnað-
arins myndin „Like A Mighty
Army“.
Byrjar kl. 8.15 síðdegis.
Samskot tekin.
Allir boðnir velkomnir'-
S. ÓLAFSSON
Marus Muller Thomsen, Ken-
neth Steingrímur Carl Jonson,
Dawne Lillian Sigurgeirsson
Doreen Sigurlin Sigurgeirsson,
Florence Mabel Mercer.
Skúli Sigurgeirsson
★
Dánarfregn
Guðjón Johnson, sem legið
hefir á spítölum og sjúkrahæli
s.l. tvö ár, andaðist á St. Boni-
face spítala s.l. fimmtudag, 8.
sept., 76 ára að aldri. Hann var
fæddur í Reykjavík 17. nóvem-
ber 1872 og ólst þar upp til full-
orðins aldurs, og giftist þar fyrri
konu sinni, Gróu Julíu Magnús-
dóttur. Þau fluttust til þessa
lands árið 1910, en kona hans dó
tveimur árum seinna, árið 1912.
Hann kvæntist aftur, tveimur
árum eftir það, — eða 1914, Hall
fríði Ólafíu Johnson, sem var
ekkja með tvö börn. Hún dó
1933. En nú lifa Guðjón þrjú
börn hans af fyrra hjónabandi,
Christine í Winnápeg, Árni í
Winnipeg og Stefán í Maidstone,
Sask., og stjúpdætur hans báðar,
Mrs. McKenzie, í Vancouver og
Mrs. Frain í Winnipeg. Allan
tímann sem Guðjón bjó hér
vestra átti hann heima í Winni-
peg, nema í tíu ár, sem hann
stundaði búskap við Silver Bay.
En hér í Winnipeg var hann
mest af tímanum gæzlumaður
við íbúðarbyggingar.
Jarðarförin fór fram á mánu-
daginn, 12. sept. frá útfararstofu
Mordue Bros. Séra Philp M. Pét-
ursson flutti kveðjuorðin. Jarð-
sett var í Brookside grafreit.
Smíði Stórbrúar á Blöndu
í þann veginn að hefjast
Brúarframkvæmdir hafa tafizt í vor vegna vatnavaxta
Á þessu sumri verða byggðar
ýmsar brýr víðsvegar á landinu
og sumar þeirra stórar.
Þeirra stærst er Þjórsárbrúin,
sem er annað mesta brúarmann-
virki á landi hér, en frá því hef-
ir Vísir skýrt nýlega. En þessa
dagana er verið að hefja bygg-
ingu annarrar stórbrúar, sem er
brú yfir Blöndu í innanverðum
Langadal.
Árni Pálsson yfirverkfræð-
ingur, sem gegnt hefir störfum
vegamálastjóra að undanförnu,
hefir nýlega skýrt Vísi frá
helztu framkvæmdum í brúar-
byggingum í ár. Jafnframt gat
hann þess, 'að stórfelldir og lang
varandi vatnavextir í vor hefðu
tafið nær allar framkvæmdir á
þessu sviði um þriggja vikna
skeið eða meir. Fyrir þessar sak-
ir hefir víða ekki verið hægt að
byrja á brúarsmíði, þar sem
framkvæmdir væru annars fyrlr
nokkuru hafnar.
Eins og þegar hefir verið tek-
ið fram er Þjórsárbrúin mesta
mannvirkið á sviði brúargerða
í ár, en þar næst kemur stórbrú
yfir Blöndu á móts við Löngu-
mýri í Langadal.
72 m. löng hengibrú.
Þetta verður 72 metra löng
hengibrú af sömu gerð og Jökuls
árbrúin hjá Grímsstöðum á
Fjölum. Verður henni ætlað að
standa á steyptum stöplum og
eru framkvæmdir í þann veg-
inn að hefjast, en hins vegar er
gert ráð fyrir að brúarsmíðinni
verði ekki lokið fyrr en að ári.
Blöndubrúin nýja mun í fram
tíðinni bæta mjög úr samgöngu
þörfum innanhéraðs, en mun
einnig verða hagnýtt að ein-
hverju leyti í sambandi við Norð
urlandsleiðina, einkum að vetr-
inum, því Langidalur er miklu
snjóléttari vestan Blöndu en
austan.
Þriðja stærsta brúarbygging-
in í sumar er yfir Múlaá í Skrið-
dal á Fljótsdalshéraði. Múlaá
hefir ekki verið brúuð áður, en
hún er vatnsmikil og oft farar-
tálmi þegar vöxtur hleypur í
hana. Þetta verður *32 metra
löng brú úr járnbentri steypu.
Á smíði hennar hefir ekki ver-
ið byrjað ennþá og valda því
vatnavextir.
Væntanlega verður gerð brú
á Laxá í Lóni í Austur-Skafta
fellssýslu. Laxá er í þjóðleið,
oft vatnsmikil og getur verið
farartálmi.
Byrjað er á brúargerð yfir
Setbergsá á Skógasandi á Snæ-
fellsnesi. Skógstrendingar hafa
til þesa verið nokkuð afskekktir
um samgöngubætur, og m. a.
hafa allar ár verið þar óbrúað-
ar til þessa. Með þessari brú er
þo ráðin bót á einum versta
farartálmanum, því Setbergsá
ólgar og ryður sig til skiptis á
vetrinum og verður þá með öllu
ófær.
Verið er að hefja brúargerð
Til hinna öldnu heiðursgeála
flutt á samkomu þjóðræknisdeildarinnar „Brúin“
Selkirk, 9. september 1949.
Árstíð breytist, eins er lífsins gangur.
Ævisumri fylgir vetur langur.
En sanntrúr vinur sér ei ellimerkin,
hann sér þar bara letruð „þörfu verkin“.
Og verkið þarfa, þjóð og landi unnið
er þel og gull í aldavefinn spunnið.
og minnisvarði, gullnu letri greyptur
úr grátperlum og þreytu og svita steyptur.
En oss er Ijúft að loknu verki dagsins
að líta yfir fegurð sólarlagsins,
sem boðar frið og kyrð og hvíld þeim lúnu,
og hvílustað hinum ferðabúnu.
H. G. NORDAL
yfir Músará í Þorskafirði. Hún
er á þjóðleiðinni til Vesturlands
og ísafjarðardjúps. Hún er oft
illfær, ekki sízt á vorin og m. a.
hefir hún í allt vor verið ófær
bifreiðum vegna vatnavaxta.
Álftaskálará í Vatnsdal í
Húnavatnssýslu verður brúuð í
sumar, að öllu forfallalausu.
Fyrir bragðið verður akfært inn
allan Vatnsdal, allt inn að Gríms
tungu, jafnvel þótt vöxtur sé í
ánni.
Byrjað hefir verið á brúar-
smíði yfir Laxá hjá Skíðastöð-
um á Skaga. Þetta verður 20
metra brú og bætir mjög úr sam
gönguþörfum Skagabúa.
Fyrirhuguð er einnig bygging
brúar yfir Fjarðará í Ólafsfirði,
er sú á er oft illfær fram eftir
öllu vori eða jafnvel fram á mið-
sumar vegna snjóaleysinga. —
Loks verða svo byggðar fjöl-
margar smærri brýr, eftir því
sem efni og ástæður leyfa.
VÍSIR, 3. ágúst
Hve mörgum œtlaði hún
að giftast?
— Ég er að velta því fyrir
mér, hve marga menn ég geri
óhamingjusama, þegar ég gift-
ist?
— Hefurðu hugsað þér að
giftast mörgum?
★
Hei, ert það þú, Monty?
— Ég lifi í landi, þar sem ég
verð að borga 8 shillinga af
hverjum 20, sem ég vinn mér
inn, í skatt, en samt fæ ég ekk-
ert í staðinn, sagði Montgomery
marskálkur í ræðu í klúbb, þar
sem hann var heiðursgestur.
Enginn tæmir öskubakkann fyr-
ir mig, enginn tekur bréfarusl-
ið, sem ég hef ekkert við að
gera og fjarlægir það. Ég verð
sjálfur að fara með það út og
brenna því.
Síðar í ræðunni fór hann að
tala um félagslyndi. Þegar ég er
að aka með strætisvagni og hann
stansar á gatnamótum, vegna
þess, að umferðarljósið segir
svo til um, lítur kannske vagn-
stjórinn aftur til mín og segir:
— Hei, ert það þú, Monty?
Slíkan vinskap líkar mér vel
við. Meðal hermanna er hann
mjög tíður, og ef hann kæmist
einnig á meðal óbreyttra borg-
ara yrði heimurinn miklu frið-
samlegri.
★
Lilla: — Þú verður að athuga
það, að pabbi finnur einnig til
þegar hann flengir þig.
Kútur: — Já, það getur verið,
en áreiðanlega ekki á sama stað
og ég.
Magrir menn, konur
Þyngjast 5, 10, 15 pd.
Nýr þróttur, nýtt fjör, þrek
Hvllík unun, limlr styrkir, ójöfnur
sléttast, hálsin verður liCugur; llkam-
inn ekki framar veiklulegur; þúsundir
manna og kvenna hafa komist I g68
hold; þetta fólk þakkar Ostrex töflum
heálsubðt slna; vegna hins mikla nær-
ingarkrafts, er þær hafa. Engin hætta 4
offitu, magurt fólki þyngist frá 5, 10,
og 15 pd. Kynnist þessum nýja lækn-
ingalyfi! Notið Ostrex Tonic töflur, eem
styrkja líkamann. 1 öllum lyfjahúðum.
^ThAGBORG FUELÆ£/
PHONE 21331 -
Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151
Roválzos Flower Shop
Our Specialtles:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Mrs. S. J. Rovatzos, Proprietress
Formerly with Robinson & Co.
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein-
dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á
þumlimginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en
þetta getur dxegið sig saman og komið að dálitlu liði.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
Fyrir samskotalista reiknast 50 eents á þumlunginn.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
MANIT0BA BIRDS
DOUBLE CRESTED CORMORANT (Crow Duck)
(Phalacrocorax Auditus)
A large bird 25 to 36 inches. Long slender bill, abruptly
and strongly hooked at tip, no external nostrils. Skin
around eyes are bare and highly coloured. Plumage is
solid black with greenish reflections. Feathers on the
back are a dull bronze with black edges, giving sug-
gestion of overlapping scales. Has a bare face and orange
coloured gular pouch. Double crest, one over each ear,
of filamentous plumes, but these ornaments are not
always present, sometimes retained for only a short time.
Distinctions: Large size, black edgings to dull bronze
back feathers evident in all plumage. Lower line of gular
pouch cut square across the throat.
Field Marks: Size, yellow face and sides of bill. Black
feathers about base of gular pouch. ,
Nesting: In bulky nests among rocks on islands, cliffs,
on bare islands in the larger bodies of water, or almost
any inaccessible localities. Occassionally in trees.
Distribution: North America.
or Crow Duck of the prairies.
The common Cormorant
Economic Status: All fisheaters; eels, sculpins, etc.
This space contributed by
SHEA'S WINNIPEG BREWERY LTD.
M-D238