Lögberg - 10.11.1949, Blaðsíða 1
-Jt&'ssr*
St° A Complele
Cleaning
Instiiution
PHONE 21374
UuiO
T rtlitví
PHONE 21374
LieA
L";.
STÍ° A Compleie
Cleaning
Institulion
62. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 10. NÓVEMBER, 1949.
NÚMER 45
ALVARLEGT og ÍHUGUN-
ARVERT MÁL
Mr. F. A. McGregor, aðaleftir-
litsmaður fyrir hönd sambands-
stjórnarinnar varðandi útilokun
einokunar eða samsæris milli
verzlunarfélaga með hækkandi
verðlag fyrir augum, hefir látið
af embætti ásamt aðstoðarmanni
sínum, og sent sambandsstjórn
aðfinslur í ellefu liðum, þar sem
því er haldið fram, að ellefu
hveitimyllufélög hafi bundist
samtökum um það sín á milli að
útiloka venjulega verzlunarsam-
keppni og skipa fyrir að eigin
vild um verðlag hveitis og
brauðs; telur Mr. McGregor
þetta athæfi hafa brotið í bága
við lög, sem eiga að útiloka
verzlunareinokun í landinu; mál
þetta hefir af skiljanlegum á-
stæðum vakið óhemju athygli
um landið þvert og endilangt,
og má búast við heitum umræð-
um um það á þingi áður en yfir
lýkur.
VILL SKIPTA KJÖRDÆMI
J. A. Simmons, Liberal þing-
maður í sambandsþinginu fyrir
Yukonkjördæmið, kvartaði yfir
því nýlega í þingi, að kjördæmi
sitt væri um of víðáttumikið, og
taldi nauðsyn á að því yrði skipt
í tvö kjördæmi; eins og nú hag-
aði til, væri ekki unnt að ná til
kjósenda með öðrum hætti en
ferðast í flugvél og váeri slíkt ó-
neitanlega dýrt spaug; vildi Mr.
Simmons, að annað kjördæmið
innilyki Yukon héruðin, en hitt
tæki yfir svæðið frá Mackenzie-
fjöllum og norður að Hudson-
flóa; kvað hann ýmsa mótfallna
skiptingu vegna þess að um-
rædd norðursvæði væru enn
eigi nógu mannmörg; á hitt bæri
þó jafnframt að líta hve stór-
auðug þau væru af margskonar
náttúrufríðindum.
Ekki er ósennilegt að áminst
uppástunga Mr. Simmons verði
tekin til alvarlegrar íhugunar
áður en næstu sambandskosn-
ingar fara fram.
FJÓRTÁN MANNA ÞING-
NEFND
I fyrri viku var sett á fót í
Ottawa fjórtán manna þing-
nefnd til að íhuga afstöðu Can-
ada til kjarnorkuframleiðslunn-
ar með hliðsjón af vörnum lands
ins; í nefndinni eiga sæti menn
úr öllum þingflokkunum.
íslendingasagnaútgáfan hefir
látið semja og gefið út mjög full-
komna nafnaskrá fyrir Islend-
ingasögurnar í heild, og er það í
fyrsta skipti, að ráðizt hefir verið
í slíkt verk. Er nafnaskrá þessi
um fjögur hundruð og fjörutíu
blaðsíður, prentuð smáu letri. 1
þessari nafnaskrá, sem Guðni
Jónsson magister hefir samið,
eru ekki aðeins öll manna- og
staðanöfn, er fyrir koma í íslend-
ingasögum, heldur er og skrá eft-
ir föðurnöfnum og skrá um alla
staði, er getið er í sögunum, en
nöfn hafa breytzt á síðan. Á ís-
lendingasagnaútgáfan hrós skil-
ið fyrir þessa nafnaskrá.
Sérprentun sagna og þátta.
íslendingasagnaútgáfan hefir nú
um langt skeið haft í huga að sér
prenta ýmsar af helztu Islend-
ingasögum og þáttum, til notk-
unar í skólum landsins. Leitaði
hún til nokkurra valinkunnra
MÆLIR MEÐ LÆKKUN
TEKJUSKATTS
Wilfrid Lawoix, einn af Libe-
ralþingmönnum Quebecfylkis í
sambandsþinginu, flutti þing-
ræðu á föstudaginn var, þar sem
hann beindi því til stjórnarinn-
ar, að bændur í þessu landi
greiddu í flestum tilfellum of
háan tekjuskatt; taldi hann slíkt
tvíeggjað sverð, því enn sem
fyr hvíldi velmegun þjóðarinn-
ar á jafnvægi landbúnaðarins;
það væri hin eina og sanna kjöl-
festa þjóðfélagsins.
ÞVERRANDI VIÐSKIPTI
VIÐ BRETA
Fréttir frá London þann 3. þ.
m. staðhæfa, að vörukaup Breta
héðan úr landi muni þverra stór
vægilega á næsta ári; er þess
getið að innflutningur svína-
kjöts lækki að minsta kosti um
25 af hundraði, auk þess sem
drjúgum minna verði keypt hér
af prentpappír og timbri, en við
hefir gengist fram að þessu;
reynist þetta svo er auðsætt, að
Canada verður að leita fyrir sér
annarsstaðar en í Bretlandi um
sölu afurða sinna.
RÓSTURSAMT í
COLUMBÍARÍKI
Undanfarinn hálfan mánuð
hafa sorfið að Columbíaríki póli-
tískar róstur, sem kostað hafa
nálega 700 mannslíf; mest hefir
kveðið að gauragangi þessum í
borginni Bogota, þar sem óspekt
irnar hafa nálgast raunverulegt
borgarastríð; svo miklum óhug
hefir slegið á borgarbúa, að
menn svo hundruðum skiptir
hafa tekið alt sitt sparifé úr
bönkum og reynt að koma því
úr landi.
RÝMKAÐ TIL UM
VIÐSKIPTI
Brezk og amerísk stjórnarvöld
hafa kunngert, að þau hafi á-
kveðið að rýmka til um við-
skiptasambönd við Júgóslavíu
nú þegar; geta Júgóslavar nú
fengið keyptar í Bandaríkjun-
um og Br’etlandi flugvélar til
vöru og farþegaflutninga ásamt
benzini og smurningsolíum;
sýnt þykir að innflutningsbanni
á ýmissum öðrum vörutegund-
um til Júgóslavíu verði einnig
létt af.
fræðimanna og kennara í ís-
lenzkum fræðum, svo og til
fræðslumálastjóra og voru allir
á einu máli um, að slíkrar út-
gáfu væri mikil þörf. Að þessu
athuguðu og með meðmælum
þessara manna sótti útgáfan um
leyfi fyrir pappír í þetta, en enn-
þá hefir ekkert svar borizt frá
Viðskiptanefnd og er það mjög
bagalegt fyrir útgáfuna, þar sem
hún hefir ekki heldur fengið
leyfi fyrir prentblýi og er því
nauðbeygð til að bræða upp
„satsinn“, sem haldið hefir verið
eftir vegna þessa.
Tekið upp afborgunarfyrir-
lcomulag.
Islendingasagnaútgáfan hefir
ætíð haldið þeirri braut, er mörk-
uð var fyrst er hún var stofnuð,
það er að fylgja ástæðum fólks-
ins í verðlagi og gera öllum kleift
að eignast bækur útgáfunnar á
hvaða tímum sem er. Hún hefir
nú ákveðið að verða fyrst til að
taka upp afborgunarfyrirkomu-
lag á bókum útgáfunnar, sem
mjög er vinsælt í öðrum löndum.
32 bálfarir hafa farið
fram í Reykjavík
Það e^u 15 ár liðin frá því er
Bálfarafélagið hóf baráttu fyrir
því að koma upp bálstofu í
Reykjavík, fyrir frumkvæði dr.
Gunnlaugs heitins Claessens.
Félagið hefir nú séð árangur
af starfi sínu, því í samvinnu við
kirkjugarðsstjórn Reykjavíkur
hefir Bálfarafélaginu tekizt að
koma upp hinni myndarlegu bál-
stofu og kapellu í Fossvogi. Hafa
þegar verið brennd þar 32 lík frá
því bálstofna tók til starfa.
I skýrslu sem Bálfarafélagið
hefir nýlega gefið út um starf-
semi sína, segir formaður þess,
Björn ólafsson alþm., að félagið
hafi lagt fram nokkuð á 3ja
hundrað þús. kr. til kaupa á lík-
rennsluofnum og öðru tilheyr-
andi. Tækin eru talin þau beztu
sem nú eru fáanleg.
í skýrslunni segir ennfremur,
að verið sé að undirbúa duftreit-
inn austan við kirkjuna, en hann
verður í umsjá Bálfarafélagsis.
Duftreiturinn verður skipulagð-
ur samkvæmt tillögum Halldórs
Halldórssonar arkitekts. Öskunni
verður komið fyrir með tvenns-
konar fyrirkomulagi, annarsveg-
ar með því að grafa hana í litlum
reit, sem marmaraplata verður
síðar lögð yfir, hinsvegar með
því að strá öskunni yfir grass-
vörðinn á miðju svæðinu. Undir-
búningur að ræktun garðsins og
gróðursetningu trjáplantna er
hafinn.
Bálfarafélagið hefir frá önd-
verðu lagt áherzlu á að fá hinn
mikla útfarakostnað lækkaðan.
Hefir það nú unnist á að kirkju-
garðsstjórnin í Reykjavík hefir
gert nauðsynlegar ráðstafanir til
að geta annast útfarir að öllu
leyti, hvort sem um brennslu eða
greftrun er að ræða, fyrir sam-
tals 1200 krónur-
í þessu verði er allt innifalið,
ásamt greftrun eða brennslu,
nema húskveðja. Verður með
þessu útfararkostnaðurinn lækk-
aður um helming, því til þessa
hefir íburðarlaus útför jafnvel
kostað 2—3 þús. kr.
Aðeins húskveðja í heima hús-
um er ekki innifalin í kostnaðin-
um og verða menn að kosta hana
sjálfir, ef ekki á að sleppa henni.
Bálfarafélagið mun reyna að
gera útfarir enn ódýrari, þann-
ig að kostnaðurinn við þær verði
ekki meiri en 800—900 kr. Þetta
Geta menn nú fengið allar
bækur útgáfunnar með því að
greiða afborganir, sem nema kr.
100,00 á mánuði. Væntir útgáfan
þess, að þetta fyrirkomulag
hjálpi mörgum fróðleiksfúsum
Islending til að eignast þessa ó-
dýru og skemmtilegu útgáfu
fornrita okkar.
Eddurnar.
I undirbúningi eru nú útgáfa
Sæmundar-og Snorra- Eddu og
er ætlunin að hafa sérstakt vísna
og orðaskýringabindi með þeim,
ásamt bókmenntalegri greinar-
gerð fyrir Eddukvæðunum.
Guðni mag. Jónson, mun sjá um
útgáfu þessa flokks. Áætlað er,
að þessi flokkur komi út síðast
í næsta mánuði, ef pappírsleyfi
fæst næstu daga.
I öðru lagi er unnið að áfram-
haldi á útgáfu riddara sagnanna,
og verður næst gefin út hin fyrir-
ferðamesta þeirra, Karla-Magn-
úss saga, er verður 3—4 bindi.
Mun Bjarni Vilhjálmsson mag-
ister sjá um þá útgáfu.
Tíminn
ætti að takast ef innflutnings-
leyfi fengist fyrir vélum til þess
að smíða sérstaka gerð af líkkist-
um fyrii- brennslu.
Sjórn Bálfarafélagsins skipa:
Björn Ólafsson alþm. formaður,
Ben Þ. Gröndal framkv.stj.,
Gunnar Einarsson prentsm.stj.,
og Ágúst Jósefsson heilbrigðis-
fulltr. Vísir, 14. sept.
Úr borg og bygð
Mr. L. S. Freeman frá Piney
var staddur í borginni á föstu-
daginn í vikunni, sem leið.
☆
Mr. Sæmundur Borgfjörð frá
Winnipeg Beach var í borginni
á mánudaginn.
☆
Þann 1. þ. m., lézt að Lundar
frú Ólöf Sigurveig Jónsdóttir,
ekkja Jóhannesar Jónssonar frá
Fossvöllum í Jökulsárhlíð, frek-
lega 78 ára að aldri, merk kona
og mikilhæf; hún var fædd á
Þjófsstöðum í Núpasveit í Norð-
ur Þingeyjarsýslu; þau Jóhann-
es og frú bjuggu um langt skeið
fyrirmyndarbúi í Siglunessveit
við Manitobavatn; sjö mannvæn
leg börn þeirra eru á lífi, en þrjú
létust í æsku.
Útför frú Ólafar fór fram frá
lútersku kirkjunni að Lundar
síðastliðinn þriðjudag. — Séra
Valdimar J. Eylands flutti hin
hinstu kveðjumál.
Vafalaust verður þessarar
gagnmerku konu frekar minst
áður en langt um líður.
_ ☆
VIÐBÓT
Til viðbótar frásögn minni um
vígslu Elliheimilisins að Moun-
tain í síðasta blaði, skal þess get-
ið að auk þess sem Dr. H. Sigmar
flutti kveðjur og heillaóskir frá
söfnuði sínum í Vancouver,
flutti hann einnig kveðjur og
árnaðaróskir frá íslenzka Elli-
heimilinu þar í borg og fram-
kvæmdanefnd þess, frá íslenzka
söfnuðinum í Seattle, og frá
fjölda einstaklinga vestur þar.
RICHARD BECK
☆
Sæmundur Sæmundsson, bú-
settur á Little Bullhead við
Winnipegvatn, andaðist þann
18. október, 68 ára að aldri.
Hann var fæddur í Nova Scotia,
sonur hjónanna Jóns Sæmunds-
sonar og konu hans Vigdísar
Emilíu Þorkelsdóttur Vernharðs
sonar frá Víðikeri í Bárðardal,
var hún systir séra Jóhanns
dómkirkjuprests Þorkelssonar.
Ásamt foreldrum sínum flutti
Sæmundur til Winnipeg barn
að aldri, en þaðan til Cypress
River og þar ólst hann upp með
þeim. Á yngri árum vann hann
í Selkirk og Winnipeg. Árið
1913 kvæntist hann Guðrúnu
Skagfield, er dó 1922, var hjóna-
band þeirra barnlaust. Þann 31.
maí 1929, kvæntist hann Miss
Lucy Lea frá Little Bullhead,
bjuggu þau þar ávalt síðan.
Syrgir hún mann sinn ásamt
börnum þeirra, sjö að tölu, sem
eru heima hjá móður sinni.
■ Systkini hins látna eru: Mrs.
John Vogen, og Ágúst, bæði bú-
sett í Selkirk.
Sæmundur var trúverðugur
maður, er leysti verk sín vel af
hendi, og vann jafnan erfiða
vinnu.
Um mörg síðari ár átti hann
að stríða við bilaða heilsu. — Út-
för hans fór fram frá kirkju Sel-
kirk safnaðar þann 23. október.
S. ÓLAFSSON
☆
Ungfrú Anna Norðdal frá
Gimli var stödd í borginni síðast
liðinn þriðjudag.
VINNUR AUKAKOSN-
INGU
Síðastliðinn mánudag fór
fram í Leedskjördæmi auka-
kosning til fylkisþingsins í On-
tario, og lauk henni á þann veg,
að frambjóðandi íhaldsflokks-
ins, Hugh Reynolds, vann sigur
mikinn yfir þingmannsefni
Liberala, Ernest Miller. C. C. F.
flokkurinn hafði engan fram-
bjóðanda í kjöri.
LÍKNARSAMLAGIÐ
Nokkuð yfir helming þess fjár,
er Líknarsamlag Winnipegborg-
ar þarfnast og setti sér að mark-
miði, hefir nú safnast, en þó
svona mikið hafi unnist á, er
auðsætt, að betur má ef duga
skal; hér verða allir að leggjast
á eitt, því í mörg horn er að líta
og það fólk margt, ungt sem
aldrað, er á aðstoð þarf að halda
yfir veturinn.
ÆGILEGT FLUGSLYS
Nýlega gerðist sá hörmulegi
atburður, að lítil orustuflugvél
frá Boliviu og stór amerísk far-
þegaflugvél rákustá í lofti ná-
lægt flugvellinum í Washing-
ton; í árekstrinum biðu fimmtíu
og þrír menn bana; þetta er tal-
ið eitt hið átakanlegasta flug-
slys í sögu Bandaríkjaþjóðar-
innar.
FUNDUR UM STJÓRN-
SKIPULAG
Að tilhlutun forsætisráðherr-
ans í Canada, Rt. Hon. Louis St.
Laurents, verður fundur hald-
inn í Ottawa þann 10. janúar
næstkomandi milli sambands-
stjórnarinnar annars vegar og
stjórna hinna einstöku fylkja
hinsvegar, til að ræða um vænt-
anlega stjórnarskrárbreytingu
varðandi réttarafstöðu fylkj-
anna. Átta fylki af tíu, hafa þeg-
ar tjáð sig hlynt þátttöku í fund-
inum; um Quebec og Newfound-
land er enn eigi að fullu vitað.
GÓÐUR GESTUR
Nýlega er komin hingað til
lands flugleiðis frá íslandi, frú
Bentína Hallgrímsson, ekkja
séra Friðriks Hallgrímssonar
dómprófasts; hún dvelur um
þessar mundir hjá dóttur sinni,
Mrs. T. N. Fawdrey, 6 West
Acres Drive, Toronto 9, Ont.
Þau séra Friðrik og frú,
dvöldu um aldarfjórðung vestan
hafs, og nutu þar sem annars-
staðar, frábærra vinsælda.
Frú Bentína á hér um slóðir
fjölda vina, sem fagna mundu
komu hennar hingað.
ALLT í GRÆNUM SJÓ
Sambandsstjórn hefir nýverið
lýst yfir því, að frá 15. desem-
ber næstkomandi að telja, megi
eigendur íbúða hækka húsaleigu
frá 20 til 25 af hundraði; hefir
þessi ráðstöfun valdið svo al-
mennum mótmælum, að segja
má að allt sé komið í grænan sjó;
verkalýðsfélög landsins hafa
undantekningarlaust mótmælt
hækkuninni, og krefjast þess að
vinnulaun verði tafarlaust hækk
uð í hliðstæðum hlutföllum.
Líklegt þykir að fylkjastjórn-
irnar skerist í leikinn og semji
löggjöf, er ákveði hámark húsa-
leigu.
Þjóðræknisdeildin BRÚIN í
Selkirk heldur fund í íslenzka
samkomuhúsinu þar í bænum á
miðvikudagskvöldið þann 16. þ.
m. kl. 8.
Félagsmenn eru áminntir að
sækja fundinn stundvíslega.
Silfurbrúðkaup
Þriðjudagskvöldið 1. nóv. var
haldið samsæti í borðsal á
Marlborough Hotel, þar sem
skyldfólk og nánustu vinir Mr.
og Mrs. Guðmundar P. Good-
man, hér í borg, söfnuðust utan
um „Munda og Beggu, til að
minnast 25 ára giftingarafmælis
þeirra.
Séra Valdimar Eylands flutti
fagra borðbæn á undan máltíð,
sem fram var borin fyrir tuttugu
og fjóra manns (flest skyldfólk
brúðhjónanna). Á meðan á mál-
tíðinni stóð kallaði forseti sam-
sætisins K. R. Honey, (tengda-
sonur brúðhjónanna), á Mrs.
Rósu Hermanson Vernon til að
syngja „Ég geng við hlið þér“,
nýlega þýtt af Dr. S. S. Jóhann-
essyni. Við söng hennar náði
gleðin og hlýhugurinn hámarki
sínu. Þá bað séra V. J. Eylands
sér hljóðs, ávarpaði silfurbrúð-
hjónin með blessunaróskum og
lét í ljósi ánægju sína yfir starfi
þeirra í Fyrstu lútersku kirkju.
Yfir borðum var fagur blóm-
vöndur afhentur silfurbrúðhjón-
unum frá Mrs. Gertrude Watt,
vinkonu og nágrannakonu
þeirra í mörg ár, sem voru með-
al samkomugesta. Borðið var
einnig prýtt blómum frá börn-
um brúðhjónanna.
Þar næst kallaði forseti kvelds
ins á tengdabróður brúðarinnar
Mr. C. A. Shields, sem hafði
komið frá Kamsack, Sask., með
konu sinni Agnesi. Talaði hann
nokkur orð fyrir hönd skyld-
mennanna og afnenti gjafir
þeirra, sem voru silfurborðbún-
aður á silfurbakka, einnig silfur
blómsturkarfa og smá silfurskál,
sem í voru tuttugu og fimm
silfurdollarar.
Silfurbrúðguminn stóð á fæt-
ur og þakkaði mjög innilega all-
ar þessar gjafir. Sagði hann með
al annars, að við svona tæki-
færi, áttar maður sig á að í gegn
um árin er ekki nógu oft þakkað
fyrir dýrmæta vináttu sam-
ferðafólksins. Aðrar fagrar gjaf-
ir höfðu borist silfurbrúðhjón-
unum að heimili þeirra, úr ýms-
um áttum, og til að auka á gleði
kveldsins bættust nú um þrjá-
tíu manns við gestina sem fyrir
voru, klukkan hálf níu að kveld-
inu. Var þá Mrs. Vernon beðin
á ný að syngja, „Ég geng við
hlið þér“, sem var öllum til ó-
segjanlegrar ánægju, auk þess,
sem hún söng óspart fleiri ein-
söngva og tók þátt í almennum
söng gestanna. Við hljóðfærið
var Barbara Honey, dóttir brúð-
hjónanna.
Utanbæjargestir voru: For-
eldrar brúðarinnar, Daníel og
Þóra Pétursson frá Gimli, Man.
einnig Agnes systir hennar með
manni sínum, C. A. Shields frá
Kamsack, Sask., og Eyvindur
bróðir brúðarinnar frá Árborg,
Man.
Börn brúðhjónanna eru þrjú,
Barbara, gift K. R. Honey, lög-
regluþjóni hér í borg; Roger,
sem dvelur á Englandi við
Hockey-spil, og Gilbert í heima-
húsum.
ÞINGKOSNINGAR
í BRETLANDI
Lávarður Calverley, sem ver-
ið hefir einn af áhrifamönnum
verkamannaflokksins á Bret-
landi síðan 1919, hefir lýst yfir
því, að almennar kosningar þar
í landi muni fara fram 6. júlí
næstkomandi, en um þær mund-
ir rennur út núverandi þingtíma
bil; nokkrar líkur eru þó taldar
á því, að kosningarnar verði
haldnar í júní.
Hin fullkomna nafnaskrá íslendingasagnanna komin út