Lögberg - 17.11.1949, Blaðsíða 2

Lögberg - 17.11.1949, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 17. NÓVEMBER, 1949. Æfiminning og endurminningar um Rósu Davíðsdóttur Nordal ' I. --------------- Gullbrúðkaup í Seattle, Washington Ég var að ferðast með lestinni, frá Winnipeg til Gimli 20. febr. 1948. Aðalerindið til Gimli var að heimsækja vinfólk mitt þar, Nordalshjónin, Lárus og Rósu og dóttur þeirra Önnu. Ég hafði heimsótt þau fyrir rétt um ári síðan. Þegar ég kvaddi þau í það skipti, fanst mér ég hafa eitt- hvert hugboð um að þetta gæti vel orðið okkar Rósu síðasta kveðja. Þá voru veikindi hennar frekar að ágerast, þó enginn bil- bugur fyndist á glaðlyndi henn- ar og hugsun. Ég var að hugsa um það með- an ég var að berast nær og nær áfangastaðnum, að einu sinni enn fengi ég þó að sjá og heyra mína gömlu og kæru vinkonu. Ég var þakklátur í huga, að hug- boð mitt frá árinu áður mundi reynast markleysa ein. Þegar ég kem til Gimli kollvarpast þess- ar hugsanir og mig slær hljóð- an. Þá frétti ég að lát hennar hefði borið að daginn áður, 19. febrúar. Rósa var fædd að Kristnesi í Eyjafirði 9. nóv. 1866. Foreldrar hennar voru Davíð Kristjánsson og Sigríður Bjarnadóttir. Davíð var bróðir Þórunnar móður K. Ns. Bróður áttu þau, er Sigurð- ur nefndist, voru þau systkini öll talin vel hagorð, og voru margar hnitnar spaugvísur á lofti eftir þau. Rósa hafði því ekki langt að sækja hagmælsku, sem hún brá oft fyrir, sérstak- lega ef galsi var í gengi. Rósa fluttist með foreldrum sínum frá Kristnesi að öngulstöðum 5 ára gömul. Tveim árum síðar fluttu þau að Jódísarstöðum, þar sem hún ólst upp og taldi sér heimili þar til hún flutti vestur um haf. Rósa hlaut góða og gagnlega mentun, stundaði nám á Kvenna skólanum á Laugalandi, hjá frú Valgerði. Var skóli frú Valgerð- ar orðlagður fyrir góð og varan- leg áhrif á nemendur sína. Eftir að Rósa hafði lokið námi á Kvennaskólanum, (1890) fékkst hún aðallega við barnakenslu og sauma, þar til hún fluttist til Canada 1893. í Winnipeg kyntist Rósa eftir- lifandi manni sínum, Lárusi Nordal, og giftust þau þar 1902. Eina dóttur eignuðust þau hjón Önnu Karólínu, nú til heimilis hjá föður sínum að Gimli. Árið 1905 fluttu þau Lárus og Rósa frá Winnipeg til Vatna- byggða í Sask. Tóku þau í fyrstu heimilisréttarland nálægt Foam Lake, en seldu það síðar og keyptu annað land norðaustur frá Leslie, þar sem þau bjuggu myndarbúi til margra ára. Árið 1937 brugðu þau búi og fluttu til Gimli, þá var líkams- þróttur og heilsa Rósu mjög bil- uð. Þau eignuðust þar myndar- heimili og þar naut hún, síðustu árin, mjúkrar og ástúðlegrar hjúkrunar eiginmanns og dóttur, ásamt samúð annara vina, gam- allra og nýrra. Léttlyndi henn- ar og lífsgleði, léttu að miklum mun verk og umönnun þeirra, er henni hjúkruðu. Jafnvel eft- ir að hún varð að miklu leyti rúmföst, var hún glaðværðar- geisli á heimili sínu. Enda eign- aðist hún að Gimli marga nýja vini, sem oftast mun hafa orðið léttara í geði við heimsókn til hennar. Rósa var merk kona og vel gefin, bæði til munns og handa. Fljót var hún og hnyttin í svör- um og var mörgum hennar til- svörum á lofti haldið. Rökfim og staðföst að verja sitt málefni, ef á þurfti að halda; oftast veitti hún þeim lið, sem miður gekk, ef um glaðværa orðasennu var að ræða og var sá liðsauki ætíð sigursæll. Sárt tók hana til alls þess, er bágt átti, jafnt menn og málleysingjar, og fáum hefi ég kynnst, sem sýnt hafa meiri sam úð með dýrum en hún gerði. Og hrygg var hún í huga er hrossin þeirra voru leidd úr hlaði, þegar Lárus og Rósa brugðu búi og fluttu til Gimli. Rósa átti góða leikarahæfi- leika og og tók þátt í sjónleikj- um, bæði heima og hér. Hún var meðlimur í leikfélagi íslendinga í Winnipeg um aldamótin og lék þar í ýmsum leikjum, svo sem „Æfintýri á gönguför og „Nýárs nóttin“ o. fl. 1 umsögn um Nýárs nóttina, skrifað af Sig. Júl. J. í (Frh. af bls. 1) kaupsveizlu — skeyti frá sendi- ráði íslands 1 Washington, D. C. — og þar með fylgdi „Fálka- orðan“ til handa brúðguman- um. Vísi-konsúll Islands . í British Columbía, herra Hálf- dán Thorláksson, flutti ræðu og afhenti síðan heiðursmerkið — en gestir fögnuðu með því að rísa úr sætum. Herra Kolbeinn S. Thordarson hefir „represen- terað“ ísland hér síðastl. 7 ár, og Islandsstjórn veitti honum þessa viðurkenningu, sem gerir dag- inn mjög minnisstæðan, bæði hlutaðeigandi og öllum viðstödd um. Síðast ávarpaði undirrituð fyrir hönd „héraðsbúa“ — en héraðið hafði fært út takmörk sín þetta kvöld. — Tacoma — Everett — Blaine — og Vancou- ver, B. C. „voru með“ — að ó- gleymdum ýmsum langtum fjar- lægari stöðum. — í þessu ávarpi fólst einnig sórstök kveðja og þakklæti til frú Önnu frá kven- félaginu „Eining“. — Hinir mörgu vinir og venzlamenn heiðursgestanna vildu samgleðj- ast þeim og óska þeim blessun- ar. Ennfremur þakka þeim vin- áttu þeirra, gestrisni og heim- ilisprýði, ásamt því að tjá þeim aðdáun sína fyrir dugnað þeirra í að ala upp og koma til mennta níu börnum, sem komust til full- orðins ára, af ellefu sem þeim fæddust. Það vermir inn að 19 T.b. Dagskrár (1902) segir svo: „Önnu, leikur Rósa Da- víðsd. Hún leikur bezt allra, og ég efast um að nokkuð verði að henni fundið með sanngirni. Hún breytir svip, látbragði, mál- róm og augnaráði gjörsamlega“. Verður glöggt á þessari umgetn- ingu séð, hvert álit hún hafði sem leikkona á þeim árum. II. Ég hafði oft veitt því eftirtekt, að þeir, sem dánarminningar rita, hafa sett það fram, sem sérstakt hrós á stöðuglyndi og sjálfstæði hins látna, að hafa haldið sinni barnatrú til æfi- loka. Mér hefir ætíð fundist það lýsa meiri hugsun og sjálfstæði, að hafa kjark til að losa um þau bönd, sem halda okkur í viðjum átrúnaðarins um óskeikulleik orðsins. Að þakklætinu og virð- ingunni bæri fremur að beina til þeirra, sem styðja að því, að menn fái sem fyrst skilið að lífið er guð og að því ber að stefna, að öllu sem hrærist og lifir, farn ist sem bezt, þá fyrst: „Hefst saga hins frjálsa manns“. Þessa hugsun studdir þú, Rósa; þar í liggur virðing mín fyrir þér, á- samt svo mörgum fleiri mann- kostum, ríkra tilfinninga og sjálf stæðra hugsana, er þú barst í brjósti. Þú trúðir því fastlega, að sjálfsbölið mundi með þrosk- aðri hugsun og skilningi rýma til fyrir samúð og náungans kærleika. Ég minnist, að þú hélst því fram: Að enginn sviki sjálf- an sig, né guð sinn, væri hann sjálfráður að trúa því einu, sem vit hans og tilfinningar bjóða honum. Rósa mín, — ég man svo vel margar þær stundir, er við gáska full og léttlynd ungmenni, fjöl- mentum á þínu heimili. Þú varst ekki með neinn valdboðinn hús- móðursvip, að halda öllu í reiðu- skorðum, eða hvessa rannsak- andi augum á þá, sem skrikaði fótur í uppdubbuðum samkvæm isreglum. Nei, þú hafðir það heldur til, að koma ærslagangi í hópinn, ef þér fannst óþarfa hógværðar eða feimnisblær þvinga gestina. Það tók heldur ekki lengi að „Grund“ að gjöra þessa lífsglöðu unglinga að heimamönnum. Oftast var sam- einast í söng — því fáu unnir þú meir, en sönglistinni. — Ætt- jarðarsöngvarnir, — æskuljóðin þín urðu oftast fyrir valinu. Þær voru eins og teknar úr þínu hjarta, fallegu ljóðlínurnar hjarta, og sannar um fram allt hvað það er, sem við unmjm hug ástum í gamla íslenzka stofnin- um. Um það mætti flytja langt mál, — en í sem fæstum orð- um — þá eru það börn íslenzku innflytjendanna eins og þessi góðu hjón, sem hafa haldið uppi heiðri ættlandsins hér vestra svo vel má við una, og metnað- ur er í að minnast þess. Undirrituð afhenti gjöf frá vinahópnum — Album með gull áletran. 1 það verður fest mynda safn frá veizlukvöldinu, því myndataka fór fram allt kvöldið — einstaklingar á söng- eða ræðupalli — brúðhjónin — börn in — barnabörnin — skyldfólk- ið — veizluborðin — og hóp- myndir smærri og stærri af öll- um viðstöddum. Hugmyndin þótti frumleg og jók á glaðværð- ina í borðsalnum, þar sem ísl. konurnar létu ekkert vanta, sem gerir ísl. kaffiveizlur vinsælar — og manni liggur við að segja frægar. — Á meðal brúðkaupsgjaf- anna mætti nefna sjónvarps- tæki — „Television set“ — sem börnin gáfu foreldrum sínum. — Kolbeinn tók til máls í sam komulok — og ávarpaði gestina með hlýjum og vel völdum orð- um er hann þakkaði kvöldið og vináttuna fyrir hönd þeirra hjónanna og fjölskyldunnar. Áður en gengið var úr kirkju, flutti Dr. H. Sigmar sérstakt á- skáldsins (H. H.): „Þá sönglist ég heyri og svanfögur hljóð, mér sorgarinnar renna frá hjarta“. Stundum leiddir þú okkur út í blómagarðinn þinn, sem þér þótti svo vænt um og hirtir af svo mikilli alúð og nærgætni. Það var fagur blettur umluktur grenitrjám á þrjá vegu, þakinn blómareitum; — raðað af list- fengri smekkvísi í runnan fram- •an við húsið. Einn blómareitur var þar, sem þér virtist alltaf vera hugljúfast að sýna, og allir gestir voru leiddir til. Ég man, það kendi móðurlegra tilfinn- inga í rödd þinni, — sem gaf til kynna að þarna væri barnið, sem mestrar umhyggju nyti, — er þú kraupst á kné og straukst mjúkum höndum blómið þitt og sagðir: „Þetta er íslenzk Fjóla, fallegasta blómið 1 garðinum mínum“. Ég er sannfærður um að í mörgum þeim unglingahjörtum, sem fylgdu þér oft í hópum á milli blómareitanna þinna á Grund, hafa tendrast kærleiks- og samúðartilfinningar, sem lifa meðan þau slá og hrærast. Stund irnar á þínu heimili verða: „Sól- skinsblettir í heiði“, — vinum þínum. Lífsfögnuðurinn varð sameiginlegur, — eins og and- rúmsloftið. Frá tryggð þinni og vináttu stafaði geislum gæfu og gleði til allra þeirra, er áttu því láni að fagna að kynnast þér og ná þinni vináttu. Þú leystir hlutverk þitt, sem móðir, eins og bezt má verða og móðurást þín og umönnun báru fagran og ávaxtaríkan ár- ángur. Umhyggju og hjúkrunarhæfi- leikar þínir gengu í ríkum mæli til dótturinnar. Fáar dætur hafa reynst for- eldrum sínum betur. Miklu var fórnað af hennar hálfu, en lífs- gleðin falst í fórninni, — trúin í verkinu. Trygglyndið og skylduræknin vinna frægan sigur yfir tilboð um, um hærri stöður og meira glaumlíf. Dóttirin brást aldrei vonum foreldranna. Þar skein hamingjusól ykkar hæst, Rósa mín. Vinirnir þínir mörgu kveðja þig klökkir, en þakklátir að hafa notið vinsemdar þinnar og samfylgdar um grýttar götur lífs ins. Þökk fyrir allt. — Vertu bless- uð góða. Elfros, 9. marz 1949 Rósm. Árnason This picture shows the new Humber Super Snipe saloon ex- hibited at the recent Earls Court Show in London. The car is in the fast-luxury class with a top-gear performance from 5mph to 80 mph and the restyled body and wings brings its appearance into line with the most modern trend. The chassis is 3% ins. longer than before and the track 2 ins. wider at the front and 5 ins. wider at the rear, giving more capacious body space. Three pasengers can now be seated in comfort both at the front and rear. The power unit is a 6-cylinder engine developing 100 hp at 3,400 rpm. Separate side lights have been fitted beneath the headlamps in accordance with overseas requirements and in the model shown there is a power-operated glass division behind the front seat. Business College Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commence Your Business Traininglmmediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 21 804 695 SARGENT AVE., WINNIPEG Hr. KOLBEINN THORDARSON veitir viðtöku riddarakrossi hinnar íslenzku Fálkaorðu, er hann var nýlega sæmdur; afhend- ingu orðunnar framkvæmir hr. Hálfdán Thorlákson, vararæðis- maður íslands í British Columbía. varp frá skyldfólki frú Önnu, sem er fjöldamargt í Canada. Hún og Dr. Sigmar eru bræðra- börn — sömuleiðis hún og Einar Haralds frá Vancouver — hann og kona hans voru viðstödd, einnig S. J. Sigmar og kona hans og dóttir frá Vancouver, B. C. Kolbeinn S. Thorðarson er fæddur 1872 á Hofstöðum í Hálsasveit í feorgarfjarðarsýslu. Foreldrar hans voru þau hjónin Siggeir Þórðarson og Anna Ste- fánsdóttir frá Kalmannstungu. Þau fluttu vestur um haf árið 1886 og settust að í Winnipeg. Kolbeinn á eina systir á lífi — Ólöfu konu Tryggva Arasonar í Argyle, Manitoba. Kolbeinn stundaði prentiðn alla ævi — starfrækti á eigin reikning prent smiðju hér í Seattle, sem synir hans hafa nú tekið við. Anna Thorðarson er fædd ár- ið 1872 á Einarsstöðum í Reykja dal í S. Þingeyjarsýslu. Foreldr- ar hennar voru þau hjónin Jón Sigurjónsson og Sigurlaug Gísla dóttir. Þau komu vestur í „stóra hópnum“ 1876, settust fyrst að í Nýja-íslandi en síðan í Winni- peg. — Frú Anna á tvær systur á lífi, sem voru í gullbrúðkaup- inu — þær Lára Burns og Jenny Johnson, báðar frá Winnipeg. Af barnahópnum gátu sjö set- ið gullbrúðkaup foreldra sinna — og flest barnabörnin sömu- leiðis — en þau eru fimmtán í allt. í Seattle eru búsettir tveir synir — Herman, eigandi Caslon Printing Co., kvæntur Alice Berg, frá Seattle; og Jón starfs- maður þar kvæntur Ann Leig- ton frá Boston, Mass. og ein dótt ir, Ester gift Milton Hallgríms- syni kaupm. (matvörusala). Lengst að komu þau Metta og maður hennar, H. Rhenberg, framkvæmdarstjóri í verzlunar- félagi í New York. Þar næst Louise, gift Dr. R. H. Harris í Fargo, N. D. og Agnes, gift T. C. Hendricks, búgarðeiganda (ald- inarækt o. s. frv.) nálægt Port- .land Oregon. Frá Tacoma, Wash kom elzti sonurinn Dr. Stefán, og fjölskylda hans; hann er kvæntur hjúkrunarkonu frá Prince Albert, Can. Irma Mc- Cloud. 1 þennan hóp vantðai því aðeins Dr. Harris. — Fjarstadd- ar voru tvær dætur, Margrét og Inga ásamt manni sínum, Lloyd Tyo, forstjóra (iðnaðar) í Alaska. Öll eru börnin vel menntuð. Dæturnar stunduðu skólakenslu og skrifstofustörf. Stefán stund- aði læknisnám sitt í Winnipeg, en síðar sérfræðigrein sína í Chicago. — Herman, Jón, Agnes og Metta útskrifuðust af Uni- versity of Washington. Metta hefir á þessu ári lokið meistara- prófi við Columbía University, New York, Arts Course. Með beztu óskum til þessarar ágætu fjölskyldu frá vinum þeirra fjær og nær. Seattle, 5. nóv. 1949 Vinsamlegast, Jakobína Johnson able us to serve thousands of fctmilies who would otherwise have no service at oll. Co-operation between Party Line Neighbours m e a n s better service for all con- cemed. MANITOBA TELEPHONE SYSTEM

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.