Lögberg - 06.04.1950, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 6. APRfL, 1950.
Úr borg og bygð
Herbergi með eða án húsgagna
fæst til leigu nú þegar að 639 Vz
Langside Street hér í borginni.
☆
Leiðrétting
Ein vísan í kvæði J. J. Mid-
dals til Mr. og Mrs. H. E. Magn-
ússon misprentaðist lítillega, en
svona er hún rétt:
Víða merka fregnin flaug,
fléttaði sterka ástartaug;
fremja verkið var ei spaug,
vígði klerkur saman þau.
☆
Laugardaginn 18. þ. m. lézt á
sjúkrahúsi í Regina Eggert John
son. Faðir hans var Sigurður
Jónsson ,ættaður frá Hólum í
Eyjafirði. Hann var jarðsunginn
í grafreit Þingvallasafnaðar af
séra S. S. Christopherson þann
23. þ. m. að viðstöddu mörgu
fólki. Hann skilur eftir eina
systir, eina hálfsystir, þrjá al-
bræður, fjóra tengdabræður,
eina tengdasystir og mörg skyld-
menni önnur.
☆
Viðurkenning
Hér með sendum við hjartans
þakklæti til vina okkar og ætt-
ingja, sem tóku saman höndum
og héldu okkur veglegt samsæti
í tilefni af tuttugu og fimm ára
giftingarafmæli okkar, 1. marz
s.l. Yfir öllum þeim mannfagn-
aði, sem þar var samankominn
hvíldi vorblær og einlægt vinar-
þel, var auðséð, að þar komu
allir af fúsum vilja, til að gleðj-
ast með okkur þetta kvöld. Þessi
stund varð einn af þeim fegurstu
sólskinsblettum í heiði í lífi okk-
ar, á meðal íslendinga hér í
Seattle. — Ræðurnar, sem haldn
ar voru, söngurinn og gjafirnar,
við þetta tækifæri, geymum við
í hjartkærri minningu til dag-
anna enda.
Seattle, Wash., 3. marz 1950
Mr. og Mrs. H. E. Magnússon
☆
A SILVER TEA AND
HOMECOOKING SALE
to raise funds for the Sunrise
Lutheran Camp at Húsavik,
Manitoba; the Ladies Aid and
Women’s Association of the first
Lutheran Church, Victor Street,
will hold their annual tea in the
T Eaton Assembly Hall, Thurs-
day April 13th, from 2:30 to 5
p.m. Receiving guests will be —
Mrs. A. H. Gray, president of the
Women’s Lutheran League, Mrs.
A. Stephensen, Mrs. K. G. Finn-
son, Mrs. V. J. Eylands and Mrs.
S. Olafsson, Selkirk.
— Samvinnuhugsjónin þarf
að ná til heimilanna og
verkafólk í sveitum Uð eiga
hlutdeild í húi, — segir
Ágúst á Hofi.
Ágúst Jónsson bóndi á Hofi í
Vatnsdal hefir að undanförnu
dvalið hér í bænum. Kom hann í
ritstjórnarskrifstofu Tímans í
gær og notaði einn af blaða-
mönnunum tæki færið til að
spyrja hann frétta að norðan.
Koma sér upp fjáreign á ný
Húnvetnskir bændur leggja
nú kapp á að koma sér upp fjár-
eign á ný. Fjárskiptin hafa geng-
ið vel og eru menn ánægðir með
þau og binda miklar vonir við
hinn nýja fjárstofn af Vestfjörð-
um.
Margir bændur hafa nú orðið
um 100 fjár og sumir á annað
hundrað og á tveimur stórjörð-
um, Ási og Gríms tungu er fjár-
eign komin á fimmta hundrað.
Annars telur Ágúst að á næstu
tveimur árum geti bændur ver-
ið búnir að koma upp hjá sér
þeim fjárstofni sem þeir kæra
sig um. Býst hann ekki við að
fjárbúin verði almennt eins stór
nú og þau voru áður og kemur
þar hvorttveggja til að fleiri
bændur eru nú einyrkjar en áð-
ur og hitt að margir hafa tekið
upp nautgriparækt og mjólkur-
sölu og er þá flestum ókleift að
hafa stór fjárbú jafnhliða.
General Convenors are Mrs.
A. S. Bardal and Mrs. B. Gutt-
ormson.
Tea table convenors— Mrs.
W. Crow, Mrs. J. Johnson, Mrs.
W. Dalman and Mrs. S. Sigurð-
son. Home Cooking is in charge
og Mrs. S. O. Bjering and Mrs.
Gerda Ólafson, Mrs. H. Bensop,
Mrs. H. Baldwin.
☆
Helgi Steinthor Holm og
Marguerite Jessie Foster voru
gefin saman í hjónaband 15.
marz s.l. af séra B. A. Bjarnason
á heimili hans í Arborg, Man.
Brúðguminn er bóndi í Víðir-
bygð, en brúðurin er dóttir Mr.
og Mrs. Artemus Foster, Vidir,
Manitoba.
☆
Laugardaginn, fyrsta apríl,
voru þau Frederick William
Lyons og Sigríður Margret
Jones, bæði til heimilis í Win-
nipeg, gefin saman í hjónaband,
af séra Rúnólfi Marteinssyni,
D.D. að 800 Lipton St. Þau voru
aðstoðuð af Mr. og Mrs. Norman
Vestdal. — Heimili brúðhjón-
anna verður í Winnipeg.
☆
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
sinn næsta fund á heimili Mrs.
P. J. Sivertson 497 Telfer Street
á þriðjudagskvöldið þann 11. þ.
h. kl. 8.
tr
Mr. Ólafur Hallsson kaup-
maður frá Eiriksdale var stadd-
ur í borginni fyrripart vikunn-
ar ásamt frú sinni.
☆
Gefið í „Blómveigasjóð“ Kven
félagsins „Björk“, Lundar: The
Th. Backman Chapter, $10.00, í
minningu um hjartkæra systir,
Hólmfríði S. Backman, sem lézt
17. febrúar 1950, kæra vinkonu
Ingveldi Jóhannesson, lézt 11.
des. 1949, og kæra vinkonu Her-
dísi Runólfsson, lézt 13. feb. 1950.
Frá Margréti Jónasson, Lundar
$5.00, í minningu um Guðrúnu
Ólafsson. Frá Mr. og Mrs. H. B.
Hallson, Glenboro, man. $9.00, í
minningu um Sigurbjörgu Free-
man, Sigríði Mýrdal og Guð-
rúnu Ólafsson, frá Lundar
Ladies Auxiliary to the Can.
Legion.
Með innilegu þakklæti
Helga Ólafsson
☆
í fyrri viku komu hingað til
borgar þeir Laugi Thorvardson
og Björn T. Björnsson frá
Cavalier, og Reimar Johnson frá
Mountain, N. Dak.
Hrossaræktin hjá bændum í
Húnavatnssýslu hefir breytzt
síðustu árin þannig að hross eru
nú haldin líkt og sauðfé með það
fyrir augum að fella folöldin
vegna kjötsins. Menn eru nú
hættir að hafa miklar hjarðir af
hrossum til lítilla nytja. Annars
eiga margir bændur mikið af
hrossum, aðallega hryssur. Er
algengt að 60—70 hross séu á
bæ og til eru þeir, sem hafa um
100 hrossa.
Verkafólkið eigi hlutdeild í
búunum.
Annars segist Ágúst að sam-
vinnustefnan, sem reynzt hefir
bændum vel í Húnavatnssýslu
sem annars staðar og orðið þeim
lyftistöng, þurfi og geti náð til
heimilanna. Það er til dæmis
nokkuð algengt í Húnavatns-
sýslu að verkafólk eigi hlutdeild
í búi og taki mikinn hluta eða
öll verkalaun þannig. Er þetta
heilbrigður háttur, eins konar
samyrkjubúskapur í smáum stíl,
sem áreiðanlega á mikla fram-
tíð fyrir sér.
Ræktunarframkvæmdir eru
miklar í Húnavatnssýslu og hef-
ir búnaðarsambandið í sýslunni
á að skipa allgóðum vélakosti.
Nautgriparækt hefir líka farið
mikið í vöxt síðustu árin, og
selja bændur mjólkina til mjólk-
urbúsins á Blönduósi sem er eign
samvinnufélags bændanna sjálf-
ra. —Tíminn, 5. marz
Þeir B. J. Lifman frá Árborg
og Árni Brandson frá Hnausum,
voru í borginni fyrri part vik-
unnar.
☆
Mr. Thorsteinn Jónsson frá
Oak View, Man., var staddur í
borginni á mánudaginn var.
☆
Mr. W. J. Jóhannsson leikhús-
stjóri frá Pine Falls, Man., var
staddur í borginni í vikunni, sem
leið.
☆
K O M I Ð „Nýii söngvasafn",
' gamlir og nýir kunningjar,
tvö hundruð tuttugu og sex lög,
hundrað fjörutíu og fjórar blað-
síður. — Kostar í bandi aðeins
$6,00.
Björnssons Book Siore,
702 Sargent Ave.,
Winnipeg, Man.
Góð gjöf ísl. forn-
gripa fró Bretandi
Brezkur fiskkaupmaður,
sem hér dvaldi fyrir
síðustu aldmót,
safnaði þeim
Fyrir síðustu aldamót dvaldis
hér á landi, bæði á Austfjörðum
og Vestfjörðum, brezkur fisk-
kaupmaður Pike Word, sem
safnaði mjög íslenzkum gripum
keypti mikið af þeim og flutti
heim til sín. Arfleiddi hann síð-
en bæjarsafnið í Exeter í Devon-
shire, sem var fæðingarbær
hans, að þessu gripasafni, og
hefir það geymzt þar. Sumarið
1948 var séra Jón Auðuns dóm-
kirkjuprestur á ferðalagi, í
Bretlandi og skrásetti hann þá
safn þetta og gerði lýsingu á grip
um fyrir þjóðminjasafnið hér.
Nú hefir bæjarsafnið í Exeter
gefið gefið Þjóðminjasafninu
hér gripi þessa, og mun það mjög
íyrir tilstilli séra Jóns Auðuns.
Er gjöfin komin hingað til lands,
og sýndu þeir Krisfján Eldjárn
þjóðminjavörður og séra Jón
Auðuns fréttamönnum gripina
í hinni nýju þjóðminjasafnbygg-
íngu í gær.
Lét Kristján Eldjárn svo um
mælt, að gjöf þessi væri hin kær-
komnasta og einhver stærsta og
merkasta gripagjöf, sem safninu
hefir borizt í einu. Gripinir
munu flestir frá þrem síðustu
öldum og eru margs konar. Með-
al þeirra er útskorinn skápur
frá 17. öld, hinn merkasti grip-
ur og talinn vera frá Hólum.
Allstór róðukross úr tré er
þarna, og mun hann vera kom-
inn úr Undirfellskirkju, þeirri
er brann á 19. öld. Mikið er af
skartgripum alls konar, beltum,
sylgjum, o. fl., allmikið af silf-
urskeiðum, sem þjóðminjavörð-
ur sagði að væri ágæt viðbót við
það, sem safnið á af þeim. Með-
al munanna eru einnig skjaldar-
merki það, sem var á konungs-
húsinu gamla á Þingvöllum og
hurðir þess.
Safn þetta verður ekki sérstök
deild í þjóðminjasafninu heldur
verður sett inn í það eftir regl-
um um aðra muni þess, enda
iýlgir engin kvöð um slíkt frá
Meiri afmælisgjafir lil Betel
Mr. og Mrs. Danl. Pétursson,
Betel $4.00; Mrs. Matthildur
Borgfjörd, Betel $2.00; Mrs.
Gudrún Sigurdson, Betel $2.00;
Mrs. Guðfinna Bergson, Betel,
$5.00; Miss Elizabeth Hallgrim-
son, St. Paul, Minn., from her
family, ”in memory of my mot-
her Sigrid Hallgrimson, who
passed away the 7th of Febru-
ary this year” $50.00; Mrs. C.
Paulson Gerald, Sask. $2.00.
Safnað af Kvenfélaginu „Bald
ursbrá“ að Baldur, Man.
Kvenfélagið Baldursbrá $25.
00. Mr. og Mrs. Tryggvi John-
son $2.00; Mr. og Mrs. Jóhann
Johnson $2.00; Mr. og Mrs. Indi
Sigurdson $2.00; Mr. og Mrs. A.
B. Sigvaldason $2.00; Mr. og
Mrs. M. J. Johnson $1.00; Chris,
Tryg. Johnson $1.00; Mr. og Mrs.
Frank Skardal $1.00; Magnús
Skardal $1.00; Mr. og Mrs. H.
Jónasson $1.00; Mr. og Mrs. R.
E. Brydon $1.00; Mr. og Mrs. L.
W. Gordon $1.00; Miss Ninna
Johnson $L00; Mr. og Mrs. C.
Thorsteinsson $1.00; Mrs. Borga
ísberg $1.00; Mr. og Mrs. E. A.
Anderson $5.00; Mr. og Mrs.
Björn Anderson $1.00; Miss Re-
becca Anderson $1.00 Mrs. Hall-
dóra Péturson $1.00; Mrs. Borga
Reykdal $1.00; Mr. og Mrs. Ingi
Jóhannesson $1.00; Mr. og Mrs.
Allan Thorleifson $1.00; Mr. og
Mrs. Andrés Anderson $1.00;
Mr. og Mrs. S. A. Anderson
$5.00; Mr. og Mrs. K. J. Johnson
50c.; Mr. og Mrs. J. A. Sveinson
$3.00; Miss Anna Sveinson $1.00;
Mr. S. A. Sveinson $1.00; Mr. og
Mrs. Kári S. Johnson $2.00. —
Alls $67.50.
Glenboro Lutheran Ladies
Aid Glenboro, Man. $25.00.
Mrs. J. M. Borgfjörd, Leslie,
Sask. $5.00; Mr. og Mrs. J. A.
Blondahl, Cherry Point, Alta
$3.00.
Páskagjöf frá Mrs. Stefania
Sigurdson, 70-43 Juno St. Forest
Hills L. I. New York U. S. A.
3 copies Ljóðmæli séra Jónas Á.
Sigurdson. Frá H. F. Eimskipa-
félagi Islands, Reykjavík 60
Calendars. From Central Bakery
Gimli, Man. Treat of Cookies for
St. Patrick’sday March 17 1950.
Kærar þakkir fyrir allar þess-
ar gjafir.
J. J. Swanson, féhirðir
308 Avenue Bldg., Wpg.
☆
Þann 15. þ. m., lézt að heimili
sínu í Rockport, Mass., Mrs.
Anna Poole, 81 árs að aldri; hún
hafði um hríð starfrækt gesta-
heimili þar í bænum, og var
ekkja eftir William O. Poole;
hún var fædd á Dýrafirði, en
foreldrar hennar voru John og
Emma (Goodwin) Samuel. Hún
kom til Rockport árið 1888, og
lætur eftir sig son og dóttur;
einnig systur, Mrs. Emmu Don-
ald í Brookline. Hin látna var
bókelsk og fróðleiksgjörn kona
og ástrík móðir.
☆
Mr. Peter Anderson korn-
kaupmaður kom heim ásamt frú
sinni á mánudagskvöldið, eftir
nálega tveggja mánaða dvöl að
Miami, Florida.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylands.
Heimili 776 Victor Street. Sími
29017. —
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku kl. 11 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12:15 e. h.
☆
Arborg-Riverton prestakall:
9. apríl—Arborg, ensk messa
kl. 2:00 e.h.
16. apríl — Riverton, ensk
messa kl. 2:00 e.h.
B. A. Bjarnason
Messað verður í Sambands-
kirkjunni í RivertOn á sunnu-
daginn þann 9. þ. m., en í Sam-
bandskirkjunni á Lundar sunnu-
daginn þann 16. þ. m. Séra Eyj-
ólfur J. Melan prédikar; báðar
messur hefjast kl. 2 e. h.
☆
Lúíerska kirkjan í Selkirk
Messur um páskana.
Föstudaginn langa, íslenzk
messa kl. 3 síðdegis.
Páskadag: —
Ensk messa kl. 11 árd.
Altarisganga í messulok.
Enginn Sunnudagaskóli.
Islenzk hátíðamessa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson
Frú Solveig Nielson og Carl
háskólastúdent Thorsteinsson
fóru suður til Detroit, Mich. í
lok fyrri viku til fundar við
Matthías Thorsteinsson, sem
þar liggur hættulega sjúkur.
Frú Solveig er systir Matthíasar
en Carl sonur hans.
The Glenboro Lutheran Church
Choir will present the Easter
Cantata, ”Christ Victorious”, in
the Lutheran Church on Easter
Monday at 8:30 p.m. (April lOth).
Miss Grace Huston will be
guest soloist. Others taking solo
and duet parts are: Mrs. T. E.
Oleson, Mrs. Reg. Rawlings, Jr.,
Mr. Otto Sigurdson, and Rev.
Eric Sigmar.
”Christ Victorious” by Roy
Molte, is a beautiful four-part
Cantata with numerous solo,
duet, trio and quartette parts.
Everyone in Glenboro and
district is cordially invidet to
hear this Cantata on Easter Mon
day evening. There will be no
charge, but an offering will be
taken.
☆
— Argyle Prestakall —
Föstud. langa 7. apríl.
Baldur kl. 2 e. h. (Messan fer
fram í United kirkjunni).
Glenboro kl. 7:30 e. h. (Messan
fer fram í Lútersku kirkjunni).
Pálmasunnudagur:
Glenboro kl. 7:00 e. h.
Baldur kl. 11 f. h.
Grund kl. 1:45 e. h.
Brú kl. 3:30 e. h.
Allir boðnir velkomnir.
Séra Eric H. Sigmar
JOHN J. ARKLIE
Optometrúrt and Optician
(Eyes Examined)
Phone 95 650
MITCHELL COPP LTD.
PORTAGE AT HARGRAVE
Bus. Phone 27 989—Res. Phone 38 151
Rovalzos Flower Shop
Our Speeialtles:
WEDDING CORSAGES
COLONIAL BOUQUETS
FUNERAL DESIGNS
Miss K. ChrlsUe, Proprletress
Formerly wlth Robinson & Co.
253 Notre Dame Ave.
WINNIPEG MANITOBA
6g kaupi
hæzta verði gamla Islenzka
muni, svo sern tóbaksdftair og
pontur. hornspæni, (ltskornsu:
brfkur, einkum af Auaturlandl.
3g værl þ4 æskllegrt, ef unt vsari,
jerC yrCi grein fyrir aldri mun-
inna og hverjir hefOu smlOaC þfL.
gefanda. —Tíminn, 8. marz
Páskavikan í Fyrstu lút. kirkju
Skírdagskvöld kl. 8 —
Altarisganga á íslenzku.
Föstudagskvöld kl. 7:30 —
Stainer’s Crucifixion — báðir söngflokkarnir.
Einsöngvarar: Pearl Johnson og Kerr Nilson.
Páskadag — Hálíðamessur kl. 11 og kl. 7.
TIL KYRRAHAFS STRANDABÚA
Allir íslendingar á Ströndinni eru boðnir að sækja
fyrstu ársveizlu elliheimlisins STAFHOLT í
Blaine, sunnudaginn 16. apríl n.k., sem byrjar kl.
12.30 e. h., en skemtiskráin kl. 2.30 e. h. Aðgöngu-
miðar eru til sölu hjá öllum nefndarmönnum.
Tilgangur þessarar samkomu er, byrjun á að safna fé til
að stækka heimilið, og mæta knýjandi þörf.
Nefndin skorar á alla íslendinga að gjöra nú þegar alt, sem
í þeirra valdi stendur.
Blaine, Washington, 2. apríl 1950
Starfsnefndin
HALLDÓR M. SWAN,
912 Jestie Avenue,
Winnipeg - Blmi 46 968
- RONSONS -
c
VFRKSMIÐJIIVKltÐ
Fullkomin verksmiðjudeild endurskoðun innibindur skipt-
ingu á eyddum pörtum fyrir nýja. (C class jobs expected).
SMA c n
VIÐGERÐIR 0 U C
Elna heimilaða RONSON viðgerðarstöðin í Winnipeg,
sem notar ekta Ronsons parta
verksmiðjuæfðir verkamenn.
4KLUKKUTÍMA
AFGREIÐSLA
Komið með, eða sendið ykkar Ronson til
SPECIALTY REPAIRS
290 PORTAGE AVE.
Næstn dyr við Lyceum, upp á lofti. Sími 923 895
REPAIRS TO ALL MAKES OF LIGHTERS AND RAZORS
Winnipeg — Calgary — Saskatoon — Edmonton
MAIL ORDERS WELCOMED
Kaupið
OGDEN'S
25c
PAKKA
vegna
Húnvetnskir bændur koma
sér upp fjéreign á ný