Lögberg - 20.04.1950, Síða 2

Lögberg - 20.04.1950, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. APAÍL, 1950 Aðalfundur Krabbameinsfélags Reykjavíkur AÐALFUNDUR Krabbameinsfélags Reykjavíkur var haldinn þriðjudaginn 28. febrúar, 1950 í fyrstu kennslustofu Háskólans og hófst kl. 8:55 e.h. Formaður félagsins, próf. Níels Dungal, setti fundinn og kvaddi Jónas Þorbergsson útvarpsstjóra fyrir fundarstjóra og Ara K. Eyjólfson fyrir ritara. Fundarstjóri gaf síðan for- rnanni, pnóf. Níels Dungal, orðið og flutti hann skýrslu félags- stjórnarinnar fyrir síðastliðið ár og fer hér á eftir útdráttur úr skýrslu formanns. Stjórnin hélt 10 fundi á árinu. Fyrsta fundinum skipti hún með sér verkum, þannig að kosin var framkvæmdanefnd og fjárölfun- arnefnd innan hennar. Varafor- maður var kosinn Alfred Gísla- son læknir, ritari Gísli Pedersen dr. med. og gjaldkeri Gísli Sigur- björnsson forstjóri. Fræðslustarf Framkvæmdanefnd tók að sjá um fræðslustarfsemi félagins. í þá nefnd voru kosin Alfred Gís- lason læknir. Gísli Sigurbjörns- son forstjóri og frú Sigríður Magnússon. Störf þessarar nefndar voru í höfuðatriðum sem hér segir: Að gefa út lítið minnisblað um helztu einkenni og hættumerki krabbameins. Flutt voru fjögur fræðsluerindi í útvarpið um krabbamein. Gefið var út frétta- bréf um heilbrigðismál. Eitt af fyrstu verkefnum stjórnarinnar var að reyna að bæta úr ástandi því, sem ríkt hefir fyrir greiðslu fyrir vefjarannsóknir, sem nauð synlegar eru til að þekkja að um krabbamein sé að ræða. Leit- að var undirtekta Sjúkrasam- lags Reykjavíkur og Trygging- arstofnunar ríkisins um, að þess- ir aðilar tækju að sér að sjá um greiðslu á þessum rannsóknum og fekk mál þetta góðar undir- tektir hjá báðum aðilum og hjá landlækni, sem veitti stuðning sinn til þess. Félagsmerki Þá hefir félagið látið teikna félagsmerki fyrir sig og hefir Stefán Jónsson teiknari gert það. Ákveðið var að taka upp skrásetningu á krabbameins- sjúklingum á vegum félagsins. Það starf annast Þórarinn Sveins son læknir. Á síðastliðnu ári gerðist Island aðali að alþjóða- samtökum um krabbameins- rannsóknir. Var próf. Níels Dun- gal tilnefndur sem fulltrúi þess af heilbrigðismálaráðherra. Mætti hann á fundi, sem þessi alþjóðanefnd hélt í París s.l. sumar. Tvennt hefir félagið gert til þess að reyna að greiða fyrir krabbameinssjúklingum hér í Reykjavík. Dr. med. Gísli Fr. Pedersen hefir góðfúslega tekið að sér að greiða fyrir sjúkling- um, sem utan af landi koma og oft eiga ekkert sjúkrarúm víst, er þeir eru sendir hingað. Ann- að, sem félagið hefir gert, er að bjóðaheilbrigðisstjórninni að gefa Röntgendeild Landsspítal- ans nýtízku röntgenlækninga- tæki, ef byggð yrði lítilsháttar viðbót við kjallara Landsspítal- ans, til þess að koma tækjum fyrir. — Var þessi sarfiþykkt gerð á fundi félagsins 15. jan. s.l. — Heilbrigðismálaráðherra tók vel í þetta mál, en það þarf að athugast af húsameistara og endanlegt svar er ekki komið enn. Bauðst stjórnin til þess að gefa þessi tæki, sem með núverandi gengi kosta um krónur 60.000,00 til þess að greiða fyrir auknu öryggi í röntgenlækningum. Stjórnin hefir beðið Ólaf Bjarna son lækni, sem er í stjórn félags- ins, en dvalið hefir í London til framhaldsmenntunar, að kynna sér nýjustu rannsóknaraðferðir til að þekkja krabbamein í legi og hefir hann lofað að taka þetta að sér. Framkvæmdasljóri ráðinn Stjórnin hefir ráðið fram- kvæmdastjóra fyrir f é 1 a g i ð, Gunnar Thorarensen, og hefir hann skrifstofu á Laugavegi 26. Stjórnin hefir ákveðið að halda námskeið í næsta mánuði fyrir hjúkrunarkonur og ljósmæður um krabbamein. Á árinu hafa verið stofnuð krabbameinsfélög í Hafnarfirði og Vestmannaeyjum og krabba- meinssjóður á ísafirði. Prófessor inn tók fram að fjárhagur fé- lagsins væri eftir ástæðum góð- ur og þakkaði sérstaklega rausn- arlega gjöf frá Oddfellowstúk- unni „Þorsteini", er gaf félaginu á 15 ára afmæli sínu kr. 10.000,00. Fundarstjóri þakkaði for- manni fyrir greinargóða skýrslu. Næsta mál á dagskrá voru reikningar félagsins. Gjaldkeri félagsins, Gísli Sigurbjörnsson, las upp endurskoðaða reikninga félagsins, er voru síðan bornir undir atkvæði og samþykktir með öllum greiddum atkvæðum. Alfreð Gíslason læknir tók því næst til máls og ræddi á víð og dreif um starfsemi félagsins og meðal annars áleit hann að til mála gæti komið að félagið kostaði viðbyggingu yið rönt- „Iðunnarútgáfan" í Reykjavík hefir þegar gefið út allmargt merkra rita, og hefi ég áður get- ið sumra þeirra í umsögnum mínum um íslenzkar bækur. þakklátastir megum við íslend- ingar vestan hafs þó vera þeim, sem að útgáfufélaginu standa, fyrir hina vönduðu heildarút- gáfu þess af kvæðum Guttorms J. Guttormssonar (1947), sem Arnór Sigurjónsson bjó undir prentun og fylgdi úr hlaði með prýðisgóðri inngangsritgerð um Guttorm og kvæði hans, þar sem jafnframt er rætt af skilningi og vinsemd um Islendinga vestan hafs, þjóðræknis- og bókmennta- viðleitni þeirra. Auk kvæðasafns Guttorms og annara merkisbóka, hefir „Ið- unnarútgáfan“ hafið ú t g á f u bókaflokks, er nefnist „Sögn og saga“, og komu í fyrsta bindi þess hinir vinsælu Sagnaþætlir Þjóðólfs. Síðan hafa tvö önnur bindi bætst í hópinn, er getið skal nú nánar. I. Gísli Konráðsson: Stranda- manna saga. Jón Guðnason g a f , ú t. Iðunnarútgáfan Reykjavík, 1947. Ágætlega fór á því að gefa út í tilefni af 160 ára afmæli Gísla Konráðssonar og 70 ára ártíð hans Strandamanna sögu hans (Strendu, eins og hún er ehmig nefnd), sem er eitt af merkustu verkum þess mikilvirka fræða- þular. Þetta er annað bindi í rit- safninu „Sögn og Saga“, og út- gáfan er einnig þannig úr garði gerð, að hún er sæmandi minn- ingarrit hinum mikla góðgerða- manni íslenzkra þjóðlegra fræða, sem með henni er verð- ugur sómi sýndur. Séra Jón Guðnason (áður að Prestsbakka, nú skjalavörður á Þjóðskjalasafninu í Reykjavík), sem annast hefir útgáfuna, hefir auðsjáanlega lagt fágæta alúð við það verk, eins og skýringar hans bera vitni, og þá ekki sízt nafnaskráin, sem síðar verður vikið að. Hann ritar einnig ítarlegan og ágætan inngang um ævi Gísla Konráðssonar og fræðistörf, og fara saman í inngangsritgerðinni staðgóð og víðtæk þekking á við- fangsefninu skilningur og sam- úð. Fær enginn lesið ritgerð þessa með gaumgæfni, svo að honum verði ekki drjúgum ljós- ara en áður, hversu óvenjuleg afrek fræðistörf Gísla voru og hve mikil er skuld þjóðarinnar við hann. gendeild, yfir áðurnefnd röntgen lækningatæki, ef heilbrigðis- stjórnin brigði ekki nógu fljótt við. St j órnarkosning Næsta mál á dagskrá var stjórnarkosning. Úr stjórninni gengu Alfreð Gíslason, Ólafur Bjarnason, Katrín Thoroddsen læknar og Sveinbjörn Jónsson hæstaréttarmálaflutningsm., er voru öll endurkosin. — Vara- stjórn var endurkosin, í henni voru frú Sigríður Eiríksdóttir, próf. Jóhann Sæmundsson og Þorsteinn Scheving Thorsteins- son lyfsali. Endurskoðendur voru einnig endurkosnir þeir Ari K. Eyjólfs- son verkstjóri og Karl Jónsson læknir og til vara Benedikt Sveinsson fyrv. Alþingisforseti. Allar þessar kosningar voru í einu hljóði. Að loknum fundi voru sýndar tvær stuttar kvikmyndir, er voru fræðslumyndir um krabba- mein, sem félagið hefir keypt á árinu. Fyrri myndin var með tali á ensku máli og sú síðari án tals og skýrði próf. Níels Dungal hana. Einnig gat próf. þess, að von væri á fleiri mynd- um. — Mbl. 7. marz En svo horfið sé aftur að sjálfri Slrandamanna sögu, þá fjallar hún um tímabilið 1700— 1862, og er þar, að hætti höf- undar, eins og útgefandi bendir réttilega á, fremur um að ræða safn af sagnaþáttum en almenna eða samfellda sögu Stranda- manna á umræddu tímabili. Geysimikinn fróðleik hefir sag- an þó að geyma, bæði um veður- far, atburði og aldarfar; lífskjör almennings á þeirri tíð speglast á margan hátt í frásögnum höf- undar; en um ættfræði og per- sónusögu er sagan, eins og sagt hefir verið, „hreinasta fróðleiks- náma.“ í þeirri hlið frásagnarinn ar liggur einnig löngum megin- styrkur G í s 1 a Konráðssonar, samfara aldarháttarlýsingunni. Um langa ævi viðaði hann að sér firnum öllum af munnlegum sögum, er hann færði síðan í let- ur. „En einmitt þetta, hversu Gísli var kostgæfinn og stórvirk- ur um að færa í letur allan fróð- leik, sem hann nam af vörum manna, það gefur ritverkum hans þeirra mikla og einstaka gildi,“ eins og séra Jón segir réttilega. Ekki er heldur að efa, að margt af því.tagi, sem hann bókfesti, hefði annars glatast með öllu. Hitt sætir engri furðu, þó að missagnir hafi slæðst inn í sumar frásagnir hans eða ætt- færslur; það rýrir ekki gildi verka hans í heild sinni, enda hægurinn hjá fyrir nútíma- menn, sem aðgang eiga að betri heimildum, að bæta úr slíkum misfellum með skýringum við útgáfur verka hans, eins og séra Jón hefir gert af mikilli nær- færni að því er snertir útgáfuna af Strandamanna sögu. Mestur er þó fengurinn að nafnaskrá hans, sem tekur yfir hvorki meira né minna en 70 blaðsíður (301—370), enda er hún sannkölluð gullnáma um ættvísi og mannfræði. Vissulega er Gísli Konráðsson og ævistarf hans „eitt hinna furðulegu fyrirbæra í íslenzku þjóðlífi“, eins og útgefandi orð- ar það, og drengilega gerir hann grein fyrir Skuld þjóðarinnar við hinn óþreytandi fræðaþul og fyrir gildi verka hans í þessum orðum: „Fjársjóði lét hann eftir sig, skemmtiefni margra kynslóða, rannsóknarefni margra alda. Penni hans fór lengri vegu en gjörzt hafði áður — meðal sögu- þjóðarinnar. Og „meira þó í huga hans hvarf með honum dánum“. Það var missir. En þeg- ar rit hans eru lesin af næmum huga, þá stígur mynd hins hára þular fram og gefur efinu meiri fylld og dýpt, svo að lesandinn má finna að nokkru einnig það, sem hvarf og komst ekki í letur. Þannig verður andi hins liðna í lífi voru, tengir öld við öld, gefur oss hlutdeild í þjóðlífi þúsund ára“. Framan við bókina, sem vand- að er til um frágang, er góð heilsíðumynd af Gísla Konráðs- syni, og auk þess er hún prýdd myndum margra, sem þar koma við sögu. Ií. Þjóðlífsmyndir. Gils Guð- mundsson bjó til prentunar. Iðunnarútgáfan, Reykjavík, 1949. í þetta þriðja bindi ofannefnds ritsafns hafa verið teknar upp nokkrar merkar ritgerðir menn- ingarsögulegs efnis, sem upp- haflega komu út í Tímariti hins íslenzka Bókmenntafélags (1880 —1904), en það mun nú í tiltölu- lega fárra höndum. Gils Guðmundsson rithöfund- ur hefir búið bókina til prent- unar, og gert það af mikilli vand virkni, sem h'ans var von og vísa, enda hefir hann margsýnt það með öðrum ritum sínum, að hon um eru þjóðleg fræði bæði hug- stæð mjög og lætur vel að fást við útgáfu safnrita af því og öðru tagi. Fyrst á blaði og lengst þess- ara ritgerða er hin gagnfróðlega aldarfarslýsing séra Þorkels Bjarnasonar, „Þjóðhættir um miðbik nítjándu aldar“, hispurs- laus og fjölþætt þjóðlífsmynd, því að „þar er lýst einkar vel og greinilega húsakynnum, klæðn- aði, hreinlæti, matarhæfi, bún- aðarháttum og vinnubrögðum til sveita, sjósókn, verzlun, menn- ingarástandi, trú og hjátrú, skemmtanalífi og ýmsu fleira“, eins og segir í aðfaraorðum út- gefanda. Þá fylgja athugasemd- ir og viðaukar Ólafs hreppstjóra Sigurðssonar í Ási í Hegranesi við ritgerð séra Þorkels, enn- fremur svar hans og andsvar Ólafs. Verður þjóðháttalýsing þessi enn fjölþættari og verð- mætari sem menningarsöguleg heimild fyrir þau orðaskipti, enda voru hlutaðeigendur báðir merkis- og fróðleiksmenn, þó að séra Þorkell væri vitanlega stór- um þjóðkunnari, ekki sízt fyrir söguleg ritstörf sín í ritgerða- og bókaformi. Næst er á blaði ritgerð Sæ- mundar Eyjólfssonar búfræð- mgs, „Um minni í brúðkaups- veizlum og helztu brúðkaupssið- ir á íslandi á 16. og 17 öld“, sem einnig er hin fróðlegasta grein- argerð, enda var höfundurinn á- hugamaður mikill um þjóðleg fræði og kunni góð skil á því að rita um fræðileg efni á al- þýðlegan hátt. Hann var einnig skáldmæltur vel, eins og viki- vakinn alkunni „Nú er glatt í hverjum hól“ sýnir glöggt, og jafnframt það, hve andi þjóð- sagnanna var runninn honum í merg og bein. Jafnmerk er lýsing séra Ste- fáns Sigfússonar á íslenzku glím unni, í samnefndri ritgerð, en hann hafði á yngri árum verið slyngur íþróttamaður og glímu- maður góður, og ber ritgerðin því órækan vott, hve kunnugur hann hefir verið glímu og glímu- brögðum. Ýmsir í hópi eldri kynslóðar V e s t u r - íslendinga munu kannast við séra Stefán, því að hann fluttist vestur um haf 1901, átti síðan heima í Win- nipeg og lézt þar seint á árinu 1901. Aðrar ritgerðir eru einnig eftir hann í íslenzkum tímarit- um beggja megin hafsins. Kemur þá að síðustu ritgerð- inni í safninu, sem er hvort- tveggja í senn stórfróðleg og bráðskemmtileg, en það er hin ítarlega ritgerð Ólafs Davíðsson- ar þjóðsagnafræðings um „ís- lenzkar kynjaverur í sjó og vötnum". Kennir þar sannarlega margra grasa og kynlegra, því að höfundur hefir gengið sem UM BÆKUR Móðir mín. Pétur Ólafsson hefur séð um útgáfuna. Bókfellsútgáfan H.F. Reykjavík. 1949. 310 bls. Eins og nafnið bendir til er bók þessi safn af móðurminning- um, rituðum af sonum þeirra og dætrum. Hefst hún á grein forseta ís- lands um móður sína, Elísabetu Sveinsdóttur, konu Björns Jóns- sonar ritstjóra ísafoldar og síðar ráðherra. Fjórir ráðherrar skrifa þarna um sínar mæður: Ólafur Thors, Stefán Jóhann Stefáns- son, Ásgeir Ásgeirsson og Bjarni Ásgeirsson, allt merkilegar greinar. Móður þeirra Thors- bræðra myndi ég hafa tilhneig- ingu til að kalla „konungamóð- ur,“ þótt um margt sé hún ólík hinni frægu fornu konungamóð- ur Gunnhildi, og það þótt hún sæi tvenna tímana sem öreiga kaupmannskona og ríkasta kona landsins. Önnur ráðherramóðir var aldrei nema örsnauð kona, og kom þó syni sínum vel fram með fyrirbænum sínum og heit- um óskum; það ver Ólöf, móðir Stefáns Jóhanns Stefánssonar. Af prestum, sem hér skrifa um mæður sínar má nefna þá sr. Friðrik Friðriksson og Sr. Bjarna Jónsson dómkirkjuprest; af læknum má nefna Ingólf Gíslason föður frú Ágústu Thors í Washington. Nokkrir rithöfundar og lista- menn skrifa hér um sínar mæð- ur, sumir af mikilli list og mikl- um skilningi. Gaman er að hafa hér mynd af ömmu og fóstru Kristmanns Guðmundssonar, konu sem lifði eftir heilræðinu „bústu við því illa, það góða skaðar þig ekki.“ Þá skrifar Lárus Sigurbjörnsson skemmti- lega um kvennskörunginn, móð- ur sína Guðrúni Lárusdóttur, prests að Hólmum í Reyðarfirði. víðast á rekana um efnissöfnun- ina og orðið gott til fanga. Ann- ars er greininni ágætlega lýst í þessum orðum útgefandans: „Ritgerð þessi hafði tvenns konar markmið: Að forða frá gleymsku ýmsum áður óprent- uðum sögnum um sjóskrímsli og aðrar furðukindur hafsins, og að draga úr eða kveða niður trúna á kynjaverur þessar, með því að skýra sögurnar eftir föngum með náttúrlegum hætti. Hefir ritgerðin vafalaust orkað miklu í þá átt. Menn fóru smám sam- an að missa trúna á kynjadýrin í sjónum, þótt lífseig væri sú trú í meira lagi, Jafnvel ekki fullvíst, hvort hún er ennþá út- dauð með öllu“. Á eftir meginmálinu gerir út- gefandi gagnorða grein fyrir höfundum þáttanna, og er það góð bókarbót. Gildir hið sama um skrá hans yfir nokkur at- riðisorð, því að hún gerir les- endunum miklu hægara um vik að notfæra sér þann fjölskrúð- uga menningarsögulega fróðleik, sem er að finna innan spjalda bókarinnar. Mun hún því kær- komin þeim, er slíkum fræðum unna; er og til hennar vandað um ytri búning. Af öðrum rithöfundum má nefna: Þorstein Jónsson (Þóri Bergsson), og Eyjólf Guðmunds- son frá Hvoli. Af listamönnum: Einar Jónsson myndhöggvara frá Galtafelli og Guðmund Einarsson frá Miðdal. Af leik- konum, þær Arndísi Björnsdótt- ur og Guðrúnu Indriðadóttur. Guðrún kvartar undan því, að hún hafi ekki rithöfundarhæfi- leika til að lýsa móður sinni, en ekki varð ég þess var, að henni mistækist að lýsa henni né æsku heimili sínu. Verð ég að játa það, að þótt ég, eins og allir þeir sem í þetta safn skrifa, ætti góða móður, þá öfunda ég Guðrúnu eina af hennar móður og heimil- islífi því er hún lýsir með allri músíkinni í arf frá Guðjónssens heimilinu. Þótt margar af mæðrunum, eða flestar, væri alþýðukonur, þá virðist mér alþýðumennirnir hafa orðið nokkuð útundan í höfundavalinu hér. Finn ég ekki nema ein óbreytta húsfrú: ís- leifu ísleifsdóttur, en ekki stend- ur grein hennar um sína móður þó í neinu að baki flestra hinna. Útgefendur Bókfellsútgáfunn- ar virðast hafa gaman af sögu- fróðleik, einkum æfisögum. Ef ég man rétt, þá hófu þeir útgáfu sína með Minningum Einars Jónssonar myndhöggvara. Síðan hafa þeir gefið út safn af æfi- sögum úr tímaritinu Andvari, kallast safnið Merkir menn, og eru af því komin tvö bindi og líklega von á fleirum. Af öðrum útgáfubókum þeirra sem ég hef séð, má nefna Blaðamannabók- ina, safn af greinum blaða- manna, sem komið hefur út um nokkur ár. ☆ Almanak Ólajs S. Thor- geirssonar jyrir árið 1950. 56 ár. Winnipeg. 1950. 124 bls. í þessu almanaki, sem er hið 10. í röð þeirra, er Richard Beck hefur út gefið, eru tvær greinar eftir ritstjórann, önnur um minnis-varða íslenzkra land- nema í N. Dakota og hin um Franklin T. Thordarson skóla- sjóra (síðast í Bend, Oregon). Annars er mest af ritinu helgað landnámssögu Islendinga í Vatnabyggðum, og rita þeir J. H. Halldórsson og Ólafur O. Magnússon um það efni. Þá er hér smáerindi á fimmtíu ára af- mæli Brown-byggðar eftir Þor- stein J. Gíslason, eftirmæli eftir Ólöfu Ragnhildi Sigurbjörns- dóttur Sigurðsson, eftir mág- konu hennar Rannveigu K. G. Sigurbjömsson. Loks eru hér nokkrar smásögur skrítnar af frænda vorum Sr. Jóni Bergs- syni, föður Eiríks Garðprófasts, færðar í letur af B. J. Hornfjörð eftir sögn Jóns Þorvaldssonar. Þá eru fréttir og mannalát tekin saman af ritstjóra. —The Johns Hopkins XJniversity STEFÁN EINARSSON Minnist í erfðaskrám yðar Business College Education In these modern times Business College Education is not only desirable but almost imperative. The demand for Business College Educa- tion in industry and commerce is steadily increasing from year to year. Commetice Your Business Traininglmmediately! For Scholarships Consult THE COLUMBIA PRESS LIMITED PHONE 21 804 695 SARGENT AVE., WINNIPEG Ritsafnið „Sögn og Saga" Eftir PRÓFESSOR RICHARD BECK

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.