Lögberg - 20.04.1950, Page 7

Lögberg - 20.04.1950, Page 7
7 LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. APAÍL, 1950 STEFÁN FILIPPUSSON: Einn af gömlu öldinni THE STATE OPENING OF PARLIAMENT Their Majesties the King and Queen recently drove in the Irish State Coach with a Sovereign’s escort of the Household Cavalry for the State Opening of the new British Parliament. This picture shows His Royal Highness Prince Charles watching the procession on its way to the Houses of Parliament. íslendingar í Suður-Californíu Mig langar til að segja nokkuð frá merkilegum manni, sem ég kyntist á uppvaxtarárum mín- um. Þorsteinn ríki var hann alltaf kallaður og var Skaftfellingur. Talinn var hann sonur Ásgríms á Heiðarseli á Síðu, en almanna- rómur sagði hann son Erasmus- ar á Botnum í Meðallandi og kippti Þorsteini frekar í það kyn. Hann var vel á sig kominn, stilt- ur og orðvar og hið mesta prúð- menni í allri framgöngu, þótt eigi klæddist hann viðhafnar- klæðum. Aldrei var hann við kvenmann kendur og alla ævi í vinnumensku, nema ár og ár þegar hann þóttist þurfa að vera lausari við til þess að geta ráð- stafað eignum sínum, því víða stóð fé hans fótum. Menn munu nú spyrja hvernig óbreyttur vinnumaður hafi far- ið að því að safna auði, hvort hann hafi erft mikið? Nei, Þorsteinn erfði ekki neitt. Fram að 10 ára aldri var hann að einhverju leyti á sveitinni, og átti þá víst ekki sjö dagana sæla fremur en aðrir hreppsómagar. En upp úr því réðist hann smala drengur hjá Þórarni á Seljalandi í Fljótshverfi. Kom hann til Þór- arins slyppur og snauður, eins og nærri má geta. En þá þegar um vorið gaf Þórarinn honum lamb, gráa gimbur, sem varð grundvöllurinn að auði Þor- steins. Nú segir næst frá því er Þór- arinn bjóst að fara kaupstaðar- ferðina næsta sumar. Þá átti Þorsteinn reifið af henni Gránu sinni og nokkuð af upptíningi. Bað hann Þórarinn að verzla með þetta fyrir sig. Þórarinn spurði hvað hann ætti að kaupa fyrir ullina, hvort hann vildi ekki helzt fá sykur og brauð. Nei, ekki vildi Þorsteinn það, hann vildi fá munntóbak. Þórar- inn lét það eftir honum og færði honum rulluna. Ekki veit ég hvað það hefir verið mikið, varla meira en eitt pund. En það hafði glaðnað yfir Þorsteini er hann tók við tóbakinu og stakk hann því niður í rúmið sitt til fóta. Þarna geymdi hann það þangað til næsta vor. Þá fóru karlarnir í kring að verða tóbakslitlir. Vissu þeir að Þorsteinn lumaði á þessu og komu til hans og báðu hann blessaðan að selja sér, þótt ekki væri nema svo sem stutt- spönn. Þorsteinn brytjaði tóbak- ið smátt, en seldi dýrt. Hagnað- ist hann svo vel á þessu að hann gat keypt sér kind. Hélt hann svo áfram uppteknum hætti að kaupa tóbak’fyrir ullina sína og selja aftur. Smám saman jókst fjáreign hans og ullin varð svo mikil að ekki þýddi að kaupa tóbak eingöngu fyrir hana. Sá hann þá að kaffi og sykur gat líka verið góð eign í vorharðind- um. Þannig braskaði hann og jók stöðugt fjáreign sína. Þegar hann hafði aldur og þroska til, réðist hann í vinnu- mensku. Vildu allir hafa hann fyrir vinnumann, því hann var duglegur, húsbóndahollur og trúr. — Hann setti það jafnan upp að fá að hafa fé á kaupi sínu. Þótti honum það betra en peningar, því að peninga var þá ekki hægt að ávaxta. Þegar hann eignaðist nú fleira fé en hann gat haft á kaupi sínu, kom hann lömbunum fyrir í fóður og borgaði með þeim, eða þá að hanh lét lamb með lambi. Sauðfjáreign hans jókst með ári hverju. Fór hann þá að kaupa hesta og kýr, ýmist af mönnum, sem voru í basli, eða þá á upp- boðum. Leigði hann svo fé og gripi þeim er byrjuðu búskap eða áttu fáar skepnur. Var þá svo komið, að hann átti fé undir mönnum um alla Skaftafells- sýslu og allt út undir Eyjafjöll. Hann var um hríð vinnumaður hjá séra Bjarna Einarssyni frá Hrífunesi. Var prestur oft í kröggum og leitaði þá til Þor- steins um lán. Var svo komið að Þorsteinn var orðinn smeik- ur um að hann mundi ekki fá sitt hjá presti. En hann vissi að séra Bjarni átti jörð í Lundar- reykjadal í Borgarfjarðarsýslu, og fékk prest til að selja sér hana og borgaði þá í peningum það sem upp á vantaði að skuld- in hrykki fyrir jörðinni. Aldrei hafði Þorsteinn lært að draga til stafs né reikna og varð hann því að leggja öll viðskipti sín á minnið og reikna í hugan- um með eigin aðferð. Hann hafði þó í fórum sínum mikið af blaða sneplum, sem hann setti á ein- hver merki, er enginn gat botnað í nema hann sjálfur. Það var bókhald hans og hefir það senni- lega dugað honum ásamt stál- minni. Aldrei heyrðist þess get- ið að honum skjöplaðist í skuld- heimtu, né að neinn ágreiningur yrði út af því fé, sem hann átti á leigustöðum. Einu sinni kom það fyrir að ull hækkaði skyndilega í verði, komst upp í kr. 1,25 pundið að mig minnir. Urðu menn því sár- fegnir. En ekki stóð það nema árið. Næsta ár féll ullin aftur í verði. Það sárnaði Þorsteini og vildi hann ekki leggja sína ull í kaupstað, taldi víst að verðið mundi hækka aftur. Á þessu gekk í tvö eða þrjú ár. Þorsteinn safnaði ull sinni og fékk hana geymda á kirkjulofti. Svo hækk- aði ullarverðið lítilsháttar aftur og þá ætlaði Þorsteinn að selja alla sína ull. En annaðhvort hef- ir ullin verið óþvegin eða illa þur þegar hann kom henni fyr- ir til geymslu, því að þegar til átti að taka var mikið af henni fúið og ónýtt. Einu sinni réðist Þorsteinn ráðsmaður hjá ekkju, sem bjó undir Eyjafjöllum. Hann var þar ekki nema árið. Þegar hann kom aftur heim í sveit sína var hann spurður hvers vegna hann hefði ekki gifst ekkjunni og sest í bú með henni. Það sagði hann að sér hefði orðið alltof kostnað- arsamt, það væri dýrt að búa. Á manndómsárum sínum var Þorsteinn við sjóróðra á vetrar- vertíð á Eyrarbakka og reri hjá Guðmundi ísleifssyni á Háeyri. Þá var það eitt sinn að hann var að bera grútartunnur á hand- börum á móti öðrum manni. Börurnar brotnuðu og tunnan lenti á Þorsteini og fótbraut hann. Brotið greri en haltur varð hann upp frá því og ekki jafn fær til verka og áður. Einkennilegur var Þorsteinn að sumii leyti og kom það aðal- lega fram í sparsemi hans og nýtni, sem var svo mikil að hann mátti ekki sjá neitt fara til spill- is, þó ekki væri annað en skó- varp, því það var þó þvengur í því, sem mátti nota. Eina sögu tel ég rétt að setja hér til að sýna sparsemi Þorsteins: Hann var nokkur ár vinnu- maður hjá Jóni Jónssyni á Núp- stað, föður Hannesar, sem nú býr þar. Þá hafði hann margt fé á kaupi sínu, enda mátti hann hafa nær ótakmarkað ær og sauði, því allt fullorðið fé gekk þar sjálfala í fjöllunum. En fjölda fjár átti hann auk þess á leigustöðum eins og áður er sagt. Einu sinni sem oftar var hann sendur í kaupstaðarferð út á Eyrarbakka og var vel út bú- inn með nesti, brauð, smjör og ost í stórum dalli og ríflegar birgðir af hangikjöti. Þau hjón- in Jón og Valgerður fóru líka í kaupstað, en höfðu ekkert nesti með sér, því að þau ætluðu að gista á bæjum. Þau náðu Þor- ; steini á einhverjum stað, þar j sem hann hafði tjaldað. Var Jón þá eitthvað örlítið hýr af víni. Hann þekti vinnumann sinn og vissi hvað hann var sparsamur. Og til þess að hafa gaman af því, segir Jón við hann að koma nú með nestið, því að þau hjónin ætli að fá sér bita hjá honum. Þorsteinn fór undan í flæmingi og benti þeim á bæi, þar sem þau gætu fengið góðgerðir, og lauk því svo að þau fengu ekkert hjá honum. En þegar heim kom af- henti hann húsmóður sinni nest- ið nær ósnert, því sjálfur hafði hann fengið mat á bæjum á leið- ' inni, og var hinn ánægðasti með I þetta. Á frívaktinni Eitt sinn var fundið að því við bónda nokkurn, að hann hefði ekki tekið ofan í kirkjunni þeg- ar presturinn blessaði söfnuðinn. Bóndinn svaraði:—Hafi nokk- urt lið verið í blessuninni, hefur hún víst komizt í gegnum hatt- inn. Eiginkonan: — Og þú leyfir þér að kalla mig óhagsýna, og samt hef ég geymt brúðarkjólinn minn í 25 ár, ef svo skyldi vilja til að ég þyrfti að nota hann aftur. ☆ Lestin var að leggja af stað þegar stöðvarþjónninn heyrði grunsamlegt brak. Hann hljóp til og sá ungan mann liggja mar- flatan á götunni og rétt hjá hon- um lágu ferðatöskur allar sund- urtættar. Ætlaði hann að ná lestinni ? spurði brautarþjónninn dreng- hnokka, sem stóð þar hjá hlæj- andi út að eyrum. —Hann náði lestinni, sagði strákur og hristist af hlátri. — En hann bara missti af henni aftur. 1 þessari ferð kom Þorsteinn víða við hjá skuldunautum sín- um að heimta inn leigur, og þeg- ar hann kom á Eyrarbakka var hann með sjóvetling fullan að þumlum af peningum. Þegar Katla gaus 1918 urðu bændur á útigangsjörðum að fækka fé sínu stórum. Kom það niður á Þorsteini sem öðrum og varð hann að fækka fé sínu meira en honum líkaði. En hug- urinn var enn við það að láta ekki af sér ganga. — Sagði hann mér síðar svo frá er ég hitti hann á Steinsmýri í Meðallandi 1929, að hann hefði reykt mest af kjötinu og fengið gott verð fyrir. Þegar Þorsteinn var nær átt- ræður — það var rétt fyrir sein- asta stríð — veiktist hann af krabbameini. Var hann þá flutt- ur að Breiðabólstað á Síðu og dó þar. En áður en hann skildi við gaf hann af eignum sínum það er nægja mætti til þess að koma upp rafstöð á læknisbú- staðnum. Ekki þykir mér ótrúlegt að Halfdanarheimtur hafi orðið á eigum hans, þar sem enginn stafur var fyrir neinu, en mikið af fénu á leigustöðum. Þorsteinn var barn sinnar aldar. Fátækt og munaðarleysi hafði hann fengið í arf. En með hyggindum, forsjálni og starfs- vilja tókst honum að hafa sig upp úr fátæktinni og verða vel efnaður. Hann var hinn dagfars- prúðasti maður, aldrei ofsakátur og aldrei afundinn. Aldrei reidd- ist hann og aldrei hrökk honum blótsyrði. Kom hann sér því alls staðar vel og átti fáa eða enga öfundarmenn. Lesbók Mbl. í nóvembermáðuði s.l. boðuðu til fundar á heimili sínu á Long Beach Californíu, þau ágætu hjón, Olive og Sumi Swanson. En tilgangurinn að þessu fund- arhaldi var sá, að fá íslendinga og innlenda vini þeirra til þess að leggja hönd á plóginn til fjár- söfnunar fyrir gamalmennahæl- ið „Stafholt“ í Blaine í Washing- ton-ríkinu. Þarna var ákveðið að hafa samkomu ekki seinna en í Marzmánuði, til ágóða þess- ari stofnun í Blaine. Nefndir voru skipaðar eða öllum gefin sín verkefni, undir góðri stjórn þeirra Swansons-hjónanna — en þau höfðu gefið vandað sjónvarp sem happadrátt á fyrirhugaðri samkomu. En hvað sem að öll- um undirbúningi líður, sem þó var bæði langur og vel af hendi leystur, sem að kom bezt í ljós á þessum mannfagnaði í Frí- múrarahöllinni á horni Oak og Washington stræta föstudags- kveldið 31. marz — en þarna voru um 500 manns. Aðdráttar- aflið var í mörgum myndum, t. d. Tombóla, Carnival, Bazar, söngur og dans og happadrættir, auk sjónvarpsins, málverk eftir Jón Thorbergsson og styttur eft- ir Nínu Sæmundson, en góðar konur okkar, íslenzkar og ame- rískar höfðu saumað, heklað og prjónað. — Freeman Goodman- son stjórnaði samkomunni af miklum skörungsskap Frú Þóra Matthíasson Rebard söng þar af sinni alkunnu snild, líka söng þar Joe Blöndal, sem að#á sín- um tíma söng með Grace Moore í Hollywood Bowl, en fyrir dans inum spiluðu þau Sylvia (Hall) og Bill Einarson — (áður Winni- peg). Veitingar voru undir stjórn Pauline Shield og Hans og Emily Einarsson Ortnor, sem að öllum gjöra gott! Þetta var allra fjöl- mennasta samkoma, sem að ís- lendingar hafa haft hér fyr eða síðar, og sýnir hvað hægt er að framkvæma þá allir eru eitt. — Frá íslandi voru þarna, Helga Gröndal og Margrét Vilhjálms- son, sem að hér stunda nám á æðri mentastofnun. Sömuleiðis eftirtaldir námsmenn, Gunnar Sigurdson, Halldór Þorsteins- son, Alfred Olsen, Búi Snæ- björnsson, Ármann óskarsson, Gunnar Valgeirsson, Benedikt Sigurdson. — Frá Minneapolis, Ásta og Magnús Magnússon (Cambridge). Frá Lundar, Mrs. Helgi Sveinsson (áður Winni- peg), Thrúda (Backman) og Victor Thordarson, Fríða John- son og Margaret Anderson. — Á meðal þeirra íslendinga, sem hingað hafa flutt, eru frá Chicago, Mrs. Björnsson, ásamt dætrum sínum, Mrs. Gíslason og Freyju, en með þeim er Viola Barnes. Sömuleiðis er nýlega flutt hingað Mrs. S. Árnason á- samt börnum sínum. Harry (Hörður) Gunnarsson með konu sinni og fjórum börnum. Kona hans, sem er amerísk talar ís- lenzku fullum fetum. Clayton Nash, en kona hans er Signður Axelsdóttir frá Reykjavík. Hin- ar mörgu íslenzku konur, sem að giftust hermönnum á Islandi, búsettar hér taka drjúgan þátt í félagsskap okkar. Nýlega eru komin til Los Angeles ekkja Guðmundar Kamban rithöfund- ar ásamt dóttur sinni Sibil og tengdasyni Richard Kaplan og sóttu þau ungu hjónin samkom- una. Þá voru hér á ferð nýlega hin- ar ungu og glæsilegu stúlkur, Guðlaug Sigurgeirsdóttir (bisk- ups) og Víví Sigurðsdóttir frá ísafirði, — að undanförnu hafa þær stundað nám í Berkley, en eru nú á heimleið. — Á íslandi dvelur nú Valgerður Linden frá Los Angeles, en til Islandsferð- ar er ráðin frú Steinun Hayer læknir og trúboði. v Skúli G. Bjarnason WORLD'S FIRST GAS-TURBINE CAR The world’s first gas-turbine car whistled around Silverstone track near Towcester when it was recently demonstrated by Rover Motor Company of Solihull, Birmingham. Many of Britain’s leading motor experts were present to witness the test run of the car which may revolutionise the whole of the world’s motor in- dustry. The car has been given its Royal Automobile Certificate, which gives its acceleration time from 0 to 60 m.p.h. in 14 seconds. Its idling kpeed is 7,000 r.p.m. and at 85 m.p.h. compressor speed was 35,000 r.p.m. The fuel used during the test run was kerosene, and fuel consumption was very high, but it is hoped that this will be improved by 100 per cent before the car goes into production in three to four years time. The car is controlled by two pedals—the accelerator and the brake. Mrs. Catherine Wilks, wife of the Man- aging Director of the Rover Company, said that she had driven the car and it was more docile and more easy to drive than anything else she had known. This picture shows: The world’s first gas-turbine car travel- ling at speed during the demonstration at Silverstone recently. KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 50.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMUNDSSON SKÓLAVÖRÐUSTIG 17 REYKJAVIK We’re Big Spenders! L hat doesn’t mean we’re careless. It’s just that in the course of turning out those fine Tex-made cotton products you know so wcll, we have to buy a great many things from all parts of the country. We need packing cases and cardboard cartons, construction lumber, paper, potato and corn starches, coal, sulphuric acid, caustic soda, oils, lubricánts and a hundred and one other things which we buy from fellow Canadians who grow or make them. In addition to tliis the 12,500 men and women working in our plants, earn many millions of dollars a year in wages, dollars wliich are spent on foodstuffs from the farms of Canada, grains, cattle, hogs and poultry, fisli from the fishermen on both coasts and tlie Great Lakes. We are the customers of our fellow-Canadians just as they are our customers. We’re proud to have a part in Canada’s economic life by buying the goods which other Canadians grow, make or provide. DOMINION TEXTILE COMPANY LIMITED MANUFACTURERS OF PRODUCTS 1»*«°

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.