Lögberg - 25.05.1950, Blaðsíða 1
63. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 25. MAÍ, 1950. NÚMER 21
Nú lækkar Rauðá svo óðum að sérfræðingar telja megin hættuna um garð gengna
Smátt og smátt tekið að lækka í Rauðá
Um 10 þúsund heimili í Winnipegborg
hinni meiri, að því er borgarstjóri skýrir
frá, hafa sætt meiri og minni skemdum.
Fyrstu daga yf irstandandi
viku breyttist veðurfar hér í
fylkinu mjög til hins betra; kom
þá sólfar og sumarblíða með
hægum andvara, þó smáskúra
yrði vart annað veifið; þessi
breyting á veðráttunni gerði það
að verkum, að brátt tók að þorna
nokkuð um, og dálítið að lækka
1 Rauðá, Assiniboine og Seine-
anni; sérfræðingar virðast þeirr-
ar skoðunar, að flóðin hafi nú
náð hámarki sínu, þó enn geti
þess orðið alllangt að bíða, eink-
nm ef til stórrigninga kæmi, að
árnar nálguðust sitt eðlilega
horf; gizkað er á, að í suðurfylk-
mu séu um þrjú þúsund bænda-
býli á kafi og landið umhverfis
þau, eitthvað um sex hundruð
fermílur, ónothæft til ræktunar
i sumar; þó er þess nú getið til,
að ekki sé með öllu óhugsanlegt,
að í eitthvað af þessu landflæmi
kunni að mega sá hrjúfum korn-
tegundum, svo sem höfrum og
kyggi; með hlýnandi veðri og
haekkandi sól, stælist sá fram-
soknar- og baráttuhugur manna
hér Um sióðir, er helgaður skal
því mikla hlutverki, að hefja
þrotlaust endursköpunarstarf á
rústum hruninna halla.
Að því er borgarstjóranum í
Winnipeg, Garnet Coulter, seg-
lst frá, hafa um tíu þúsundir
heimila í borginni og útjaðra-
hverfum hennar, sætt meiri og
o^inni skemdum, en heilbrigðis-
yfirvöldin hafa lagt strangt bann
við því, að fólk flytti aftur í þau
hús, er það hafði flúið frá, fyr
en þau hafi verið grandskoðuð
°g úrskurðuð hæf til íbúðar frá
heilsufarslegu sjónarmiði; nú
er siglt héðan á alls konar kæn-
um lengst suður í St. Vital.
Vinna tvennar
aukakosningar
Nýlega eru um garð gengnar
tvennar aukakosningar til sam-
bandsþings í Ontariokjördæm-
Síðastliðinn sunnudag heim-
sótti Winnipegborg og áflæðis-
svæðin í suðurfylkinu, forsætis-
ráðherra þjóðarinnar, Louis St.
Laurent til þess að kynnast með
eigin augum viðhorfinu eins og
því þá var háttað; fanst honum
mikið til um þreklund þess
fólks og þol, er unnið hafði nótt
sem nýtan dag að flóðvörnum
hvernig sem viðraði, án þess að
berja sér eða blása í kaun; um
fjárhagslega aðstoð sambands-
stjórnar við fylkið, endurtók for-
sætisráðherra ummæli sín í
þinginu, er í þá átt hnigu, að
slík aðstoð yrði veitt á hliðstæð-
um grundvelli við aðferðina,
sem beitt var gagnvart British
Columbia fylki fyrir tve.imur ár-
um vegna áflæðis Fraser árinn-
ar; í för með St. Laurent, var
Dr. Thorbergur Thorvaldson
Sæmdur doktors-
nafnbót í lögum
Háskóli Saskatchewanfylkis
hefir, við virðulega athöfn, sæmt
hinn víðkunna vísindamann, Dr.
Thorberg Thorvaldson, doktors-
nafnbót í lögum. Dr. Thorberg-
ur hefir í meir én þrjátíu ár
gegrít prófessorsembætti í efna-
Stuart S. Garson dómsmálaráð-
herra sambandsstjórnar.
Frá því hefir áður Verið
skýrt, að sett hafi verið á laggir
nefnd manna, með það mark-
mið fyrir augum, að safna tíu
miljónum dollara í sjóð með
frjálsum samskotum, þeim til
aðstoðar á ýmsan hátt, er flóðið
hefir sorfið harðast að; frá reglu-
gerð sjóðsins hefir einnig verið
áður skýrt, svo í því efni, er þar
engu við að bæta; sjóðurinn
nemur nú þegar nálega miljón
dollara; stórfenglegasta tillagið
fram að þessu er frá T. Eaton-
félaginu og starfsfólki þess, en
sú upphæð nemur $307,034. Dr.
P. H. T. Thorlakson, sem sæti á
í sjóðsöfnunarnefndinni, hefir
tilkynt, að læknar í borginni hafi
þegar lagt sjóðnum til 15 þús-
undir dollara, og að von sé á
meiru úr þeirri átL
Viðreisnarstarfið verður lang-
vint og umfangsmikið; að því
verða allir jafnt að vinna og þar
má enginn skerast úr leik.
vísindum við Háskólann í Sask-
atchewan við mikinn orstír og
vaxandi; en nú er hann fyrir
aldurssakir leystur frá embætti
með fullum eftirlaunum; það er
ekki einasta, að Dr. Thorbergur
sé viðurkendur brautryðjandi á
vettvangi efnavísindanna, held-
ur hefir hann engu síður reynst
frábær fræðari við mentastofn-
un sína, og haft djúp og holl á-
hrif á skapgerð nemenda sinna.
Sigurður Nordal
heiðursdokf-or í
Oxford
Sigurður Nordal prófessor hef
ir verið kjörinn heiðursdoktor
við háskólann í Oxford og fer
athöfn í tilefni af því fram 16.
maí.
Nordal fór fyrir skömmu til
Bretlands til að flytja fyrirlestra
við fjóra háskóla þar í landi.
Áður hafði honum verið tilkynt,
að hann væri kjörinn heiðurs-
doktor við háskólann í Oxford,
hina f r æ g u menntastofnun
Breta. —Alþbl. 15. apríl
Haraldur Westdal
Bræður Ijúka
Inngangsorð
Grettis L. Jóhannssonar ræðis-
manns, að útvarpsræðum þeirra
séra Valdimars J. Eylands og
Einars P. Jónssonar, er talaðar
voru á plötu hjá C. B. C., og
sendar til íslands að tilmælum
íslenzka ríkisútvarpsins.
Kæru íslendingar!
Þessar raddir, sem nú berast
til yðar vegna tilmæla ríkisút-
varpsins á íslandi, koma frá
Winnipeg, og erindi þeirra er
það, að skýra fyrir yður í nokkr-
um dráttum það viðhorf, sem
skapast hefir í Winnipegborg og
suðurhluta fylkisins af völdum
áflæðis í Rauðá, Assiniboine og
Seine-ánni. Þetta er gert með
stuttum fyrirvara, en þó vonast
til að það veiti yður nolíkra
fræðslu um það vandamál, sem
íbúum fylkisins, þar á meðal eigi
allfáum Islendingum, hefir borið
að höndum.
Ræðismannsskrifstofa yðar í
Winnipeg hefir snúið sér til
Canadian Broadcasting Corpor-
ation og leitað aðstoðar hennar
um að taka það, sem hér verður
sagt á plötu og brást stofnunin
vel við þessu, og skal það hér
með að makleikum þakkað.
Platan er send ríkisútvarpinu
um hendur íslenzka sendiráðsins
í Washington.
Fyrst tekur til máls séra
um og lauk þeim báðum á þann
veg, að frambjóðendur íhalds-
flokksins gengu sigrandi af
ríólmi; í Toronto-Broadview kjör
dæmi var kosinn George Hees,
39 ára að aldri, um éitt skeið
þjóðkunnur fótboltaleikari; kjör
úæmi þetta hefir venjulegast átt
^haldsmenn á þingi, og í síðast-
liðin fimtán ár samfleytt Mr.
Church, er lézt á öndverðum síð-
astliðnum vetri; í West Hamilton
Hjördæminu náði kosningu Mrs.
^ilen Fairclough, 46 ára, en vann
þ^tta þingsæti úr höndum Libe-
hún er eina konan, sem
ram að þessu öðlast sæti í nú-
Verandi sambandsþingi; þrír
frambjóðendur af hálfu C. C. F,-
^luna og Labor-Progressive
°mmúnista), töpuðu trygging-
arfe sínu.
^ingstyrkur stjórnmálaflokk-
anna er á þessa leið: Liberalar
186, íhaldsmenn 42, S. C. F.-sinn-
ar f3, utanflokka 5, óháðir Libe-
ralar 3, en þrjú þingsæti eru auð
fem stendur; í þeim fara fram
kosningar hinn 15. júní næst-
komandi.
RÁÐHÚS WINNIPEGBORGAR
Tákn tímanna: I fyrir viku stóðu letruð á framstafn ráðhúss
Winnipegborgar þessi orð: “We’re Weary and Wet” — Við erum
þreyttir og holdvotir. —“But We’ll Win”. — Við sigrum samt.
Sveinn Wesldal
háskólaprófi
Við nýlega afstaðin háskóla-
próf í Manitoba, útskrifuðust
þeir bræðurnir Haraldur og
Sveinn Westdal með hinum á-
gætasta vitnisburði; eru þeir
góðum hæfileikum gæddir og
ástundunarsamir að sama skapi.
Páll, Haraldur, Aðalsteinn,
Njáll, h 1 a u t mentagráðuna
Master of Science; hann er
fæddur í Wynyard, Sask., 5.
nóvember 1921. Hann er kvænt-
ur Mae Gillis frá Wynyard; þau
eru búsett í Brandon, þar sem
Haraldur starfar í þjónustu sam-
bandsstjórnar.
Sveinn Nielsson Hallgrímur
Westdal, er einnig fæddur í
Wynyard, og hlaut nú í vor
mentastigið Bachelor of Agri-
culture; hann er kvæntur og á
tvo sonu; hann er eins og bróðir
hans búsettur í Brandon, og
gegnir það stöðu fyrir sambands
stjórn.
Þessir efnilegu bræður eru
synir þeirra Páls og Helgu Niels-
son Westdal, er í mörg ár ráku
búskap sunnan við Wynyard, en
nú eiga heima hér í borginni.
Valdimar J. Eylands, prestur
Fyrsta lúterska safnaðar og fyrr-
um forseti Þjóðræknisfélagsins,
en næstur honum ávarpar yður
Einar Páll Jónsson, ritstjóri Lög-
bergs.
Samúð og bænir heimaþjóðar-
innar með okkur á þessum al-
varlegu tímum er Vesturíslend-
ingum og öllum öðrum mikið
fagnaðarefni og ómetanlegur
styrkur.
Vestur-íslendingar senda
heimaþjóðinni hugheilar bless-
unaróskir og hjartfólgnar kveðj-
ur.
Grettir Leo Jóhannsson hefir
talað þessi orð.
Guð blessi ykkur öll.
Harðorðir í garð
Mr. Campbells
Capt. Fernand Viau, Liberal
þingmaður fyrir St. Boniface-
kjördæmið í sambandsþinginu,
veitist þunglega að Campbell
forsætisráðherra Manitobafylkis
fyrir hik hans í svörum varð-
andi fjárhagslega aðstoð við þau
sveitahéruð, er sorfið hafi harð-
ast að vegna áflæðisins; telur
hann þá uppástungu Mr. Camp-
bells, að nauðlíðandi fólk leiti
til bankanna um lán, bæði furu-
lega og fáránlega; bankarnir séu
því ekki vanir að lána allsleys-
ingjum peninga, en þeir, er slík
lán kynnu að geta fengið, yrði
að greiða af þeim venjulega
bankavexti, í stað þess sem fylk-
isstjórnin ætti að veita þesskon-
ar lán vaxtalaust; „hugur al-
mennings gagnvart Mr. Camp-
bell“, sagði Mr. Viau, er alt ann-
að en vingjarnlegur um þessar
mundir; maðurinn sýnist með
öllu vera sneydur þeim forustu-
hæfileikum, sem nauðsynlegir
eru þegar háska ber að höndum
og á þolrif reynir.
Þá var bæjarráðsmaður C. E.
Simonite engu mildari í garð
forsætisráðherra, og taldi hik
hans og úrræðaleysi ganga glæpi
næst gagnvart því fólki, sem
hann hefði verið kjörinn til að
þjóna.
Minnismerki um
Stephan G. Stephanson
verður afhjúpað í haust
Alþjóðarnefnd sú í Canada,
sem gengur undir nafninu
Historic Sites and Memorial
Board, hefir ákveðið, að reisa
Stephani G. Stephanssyni skáldi
minnismerki, er afhjúpað verð-
ur á verkamannadaginn næst-
komandi þann 4. september. Að
minningarathöfninni stendur
sambandsstjórn og fylkisstjórn-
in í Alberta; minnismerkið verð-
ur af þeirri gerð, sem nefnist
„Standard Monuments and
Tablets with Inscription“. Þá
hefir og verið ákveðið, að nýr
skemtigarður í fylkinu, skuli
bera nafn Stephans G. Stephans-
sonar.
Prófessor Skúli Johnson, sem
unnið hefir manna mest og bezt
að framgangi þessa máls, flytur
hálftíma ræðu um skáldið við
minningarathöfnina. Fyrir hönd
Albertastjórnar mætir Hon.
David Ure landbúnaðarráðhr. en
í kjördæmi hans liggur Marker-
villebygðin, þar sem skáldið átti
heima, en af hálfu sambands-
stjórnar sækir athöfnina pró-
fessor M. Long, yfirkennari í
sagnfræði við háskólann í Al-
berta.
Ljúka prófi við háskólann
Fleira námsfólk útskrifaðist
frá Manitoba-háskólanum í ár
en nokkru sinni áður — alls
1,551. Hér fara á eftir nöfn
þeirra íslendinga er útskrifuð-
ust.
Fólk er vinsamlega beðið að
tilkynna blaðinu, hafi einhverj-
um verið slept af listanum.
Fred Ruppel hlaut gullmeda-
líu háskólans í pharmacy, silfur-
medalíu Pharmaceutical Associ-
ation, og verðlaun forseta þess
félags.
Master of Arts:
Haraldur Victor Vidal.
Master of Science:
Paul Harold Aðalsteinn Niel
Westdal, Patrick Ólafsson.
Bachelor of Science
in Engineering
(Civil Engineering)
Ásgeir Ingvar Fjelsted,
Joseph Norman Stevens,
Orville Roy Thorsteinsson.
Bachelor of Science
in Engineering
(Electrical Engineering)
Frederick Willard Bergaman.
Bachelor of Science
in Engineering
(Mechanical Engineering)
Wilmar Herbert Finnbogason,
Thomas Dalton Johannson,
Stefán Thorsteinn Johnson,
Clifford Ásmundur Martein-
son,
(Framhald á bls. 8)