Lögberg - 13.07.1950, Blaðsíða 1
PHONE 21374
,0,4 un,i,e4
Cleaning
Jnslilulion
PHONE 21 374
Y.Vrt''!®
CleaTlC
««4 S'>.
A Complele
Cleaning
Instiiulion
63. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 13. JÚLÍ, 1950
NÚMER 28
Vel aS verki verið
Það hefir verið talið íslend-
ingum til hróss, að þeir væru
fróðleikshneigðir um aðra fram,
og óneitanlega hafa margir úr
þeirra hópi, vestan hafs unnið
sér frægðarorð fyrir afrek í
námi. Verður hér getið glæsi-
legs dæmis vakandi lærdóms-
hneigðar eins landa okkar.
Nýlega lauk Prófessor T. W.
Thordarson í Fargo, N. Dakota,
lögfræðisnámi, og hlaut að lokn-
um þeim prófum, sem slíkt út-
heimtir, leyfi til að reka lög-
fræðileg störf þar í ríkinu. Nú
er það að vísu engin nýlunda, að
Vestur-íslendingur lýkur lög-
fræðisprófi, og það með heiðri.
En hér stóð öðruvísi á en al-
ment gerist, og er að því skapi
frásagnarverðara.
Prófessor Thordarson hafði
lokið þriggja ára bréflegu lög-
fræðisnámi sínu við La Salle
University í tómstundum (og
vafalaust einnig hvíldarstund-
um) frá umfangsmiklu og tíma-
freku starfi sínu. En hann hefir,
eins og kunnugt er, árum saman
verið forseti deildarinnar í bréf-
legri kennslu (State Director of
Flóðsjóðurinn
Þann 15. þ. m., verður hinni
almennu fjársöfnun í flóðsjóð
Manitobafylkis opinberlega lok-
ið; upphæðin, sem safnast hef-
ir, nemur freklega sjö miljónum
dollara, og ber það glæsilegt
vitni hjartalagi og örlæti þeirra,
sem að verki hafa verið; for-
ráðamenn sjóðsins tjást þeirrar
skoðunar, að fjárhæð þessi nægi
til að bæta að fullu það tjón,
sem að hlutaðeigendur sættu
vegna flóðsins varðandi hús-
muni, rúmfatnað, föt og ýmsa
einkamuni, og má það teljast
vel að verið.
Gjafir í sjóðinn, utan Canada
bárust víðsvegar að úr Banda-
ríkjunum og Bretlandi, og einn-
ig frá Ethiopiu.
Á leið fril íslands
T. W. Thordarson. lögfræðingur
Department of Correspondence
Study) við Landbúnaðarháskóla
N. Dakota ríkis í Fargo, við á-
gætan orðstír. Hefir starf hans
á því sviði vakið víðtæka athygli
bæði innan ríkisins og utan.
Þegar þetta er í minni borið,
verður það augljóst, að það er
ekki á hverjum degi, að menn
ljúka lögfræðiprófi í hjáverk-
um frá jafn umsvifamiklum
skyldustörfum og Prófessor
Thordarson hefir með höndum.
En fróðleiksþráin er honum í
blóð borin, svo rík er hún í ætt-
inni. Hann er sonur landnáms-
hjónanna Gríms Þórðarsonar og
Ingibjargar Snæbjarnardóttur,
en Grímur var albróðir þeirra
hugvitsmannsins og bókasafnar-
ans mikla, dr. C. H. Thordarson
í Chicago og Þórðar Thordar-
son læknis í Minneota, Minn.
Þá er ekki að efa, að frú Katrín,
hin merka kona Prófessors
Thordarson, hafi hvatt hann til
stórræðanna, jafn bókhneigð og
hún er og áhugasöm um menn-
ingarmál.
Ég er þess fullviss, að vinir
Thordarson prófessors og land-
ar hans almennt óska honum til
hamingju með lögfræðisprófið,
og verða mér sammála um það,
að hann hafi sýnt í verki óvenju-
lega þekkingarþrá og framsókn-
aranda að sama skapi. En vel er
meðan þeir kostir haldast í
hendur hjá íslendingum hér-
lendis.
Richard Beck
Skúli Sigfússon
Síðastliðinn þriðjudag lagði af
stað héðan úr borg flugleiðis til
íslands, Skúli Sigfússon frá
Lundar, fyrrum þingmaður St.
Georgekjördæmis í Manitoba-
þinginu; hann verður áttræður
þann 1. október næstkomandi, og
befir ekki litið ísland augum síð
an hann var 16 ára að aldri.
Skúli er fæddur að Nesi í
Norðfirði; hann á gifta dóttur á
Akureyri og margt annað ná-
xnna skyldmenna á íslandi. Lög-
berg árnar Skúla góðs brautar-
gengis.
Atvikavisur
Eftir Pálma
Við fundarhald.
Burt eru fokin friðar-mál,
fyllir hrokinn bekki.
Ýmsra lokast sjón og sál
svörtum þoku-mekki.
Tíminn líður.
Ei skal fella trega tár, —
trúi ei hrellingunni,
þó með Elli ég sé grár,
undir „kellingunni".
Úr bréfi.
Lífs við glettinn kulda-klið
klaka fléttast sinni;
samt þó rétta ræktun við
rósir spretta inni.
Lífs til enda ljúf og hlý,
liðin stendur ky'nning,
því hér rend er rúnir í
rós-hlý endurminning.
Tom Collins.
í bréfi þessu er lítið lið, —
læt um saka hitann:
Nú skal „Tommy“ taka við
til að þurka svitann!
Bræður, sem ryðja sér braut á sviði viðskiptalífsins
H ... *
Gunnsteinn Vincent Eastman,
B. A. Sc.
Þann 17. júní síðastliðinn lauk
með fyrstu ágætiseinkun prófi
í flugsiglingafræði við Toronto-
háskólann, Gunnsteinn Vincent
Eastman, glæsilegur efnismað-
ur, er lagði frábæra rækt við
nám sitt; hann er fæddur LRiver
ton 3. desember 1923, sonur frú
Maríu Erlendson og fyrra manns
hennar Gunnsteins Eastman.
Þessi ungi maður gekk í kon-
unglega loftherinn 1941, og fór
austur um haf tveimur árum
síðar; hann gerðist brátt leið-
beinandi í fluglist og tók virk-
an þátt 1 stríðssókn Bandamanna
við ágætan orðstír; hann fékk
lausn úr herþjónustu í desember
1945, og hóf þá jafnskjótt hinn
merka námsferil sinn.
Á förum á víkinga-
mót á Hjaltlandi
Einar óláfur Sveinsson pró-
fessor er á förum til Hjaltlands
í lok þessarar viku, og mun
hann sækja víkingamótið svo-
nefnda, sem háskólinn í Aber-
deen í Skotlandi og British
Council efna til í sameiningu.
Kristján Eldjárn þjóðminjavörð-
ur getur hins vegar ekki komið
því við að fara sökum anna hér
heima fyrir.
Búizt er við, að fjölmennt
verði á víkingamóti þessu. Munu
sækja það menn af Bretlands-
eyjum, úr Noregi, Svíþjóð, Dan
mörku og Færeyjum. Hefst það
7. júlí, en lýkur 20. júlí.
Á mótinu verða fluttir fyrir-
lestrar ýmsir um víkingaöld og
raktir ýmsir þættir úr sögu og
menningarlífi Hjaltlendinga og
Orkneyinga.
Mannvirki forn eru allmörg á
þessum slóðum og verða þau
skoðuð, og farið til hinna helztu
staða, er við sögu koma eða
geyma gamlar minjar. Þarna er
og margt norrænna örnefna, sem
fróðleg hafa þótt til rannsóknar,
og hljóta ekki hvað sízt að vekja
áhuga Islendinga, svo mikinn
þátt sem forfeður þeirra áttu í
víkingaferðum og baráttu um
völd og yfirráð á þessum slóð-
um til forna.
TÍMINN, 25. júní.
Walier O. Samson
Þessir framtakssömu bræður
eru synir J. J. Samsonar fyrrum
lögreglumanns og frúar hans;
þeir eru fæddir í Winnipeg og
hlutu þar mentun sína. Walter
gekk ungur í þjónustu konung-
lega lögregluliðsins hér í borg-
inni, gat sér þar brátt góðan orð-
stír vegna skyldurækni og
glöggrar athugunargáfu; en af
þeim starfa varð hann að láta
vegna heilsubilunar; en fyrir
nokkrum árum hefir hann öðl-
ast fulla heilsubót; nú hefir
Walter tekist á hendur yfirum-
sjónarmannsstöðu hjá hinu
kunna gleriðnaðarfélagi, The
Pilkington Glass Company Limi
ted hér í borginni, er kostaði að
öllu leyti dvöl hans um langan
tíma í Toronto til þess að hann
gæti kynt sér sem bezt ámistan
iðnað. Herbert Stanley starfaði
í allmörg ár við Crescent Cream-
ery félagið hér í borginni;
hann hafði þá á hendi ábyrgðar-
stöðu, en stundaði jafnframt
nám af kappi á kvöldin og á öðr-
um tímum frá daglegri önn;
leiddi þetta til þess, að hann
lauk B. A. prófi við Manitoba-
háskólann og nokkrum árum
síðar meistaraprófi í efnavísind-
um við þá mentastofnun; af
þessu má ráða hvað í manninn
var spunnið; á stríðsárunum
var hann verksmiðjustjóri fyrir
stórt þureggja fyrirtæki í Saska-
toon, en nú hefir hann stofnað
og rekur fyrir eigin reikning í
Edmonton fyrirtæki svipaðrar
tegundar, sem gengur undir
nafninu General Egg Products
Limited, sem svo hefir á skömm-
um tíma fært út kvíar, að það
Herberi Stanley Samson
hefir stundum um hundrað og
fimtíu manns í þjónustu sinni;
fer þar öll framleiðsla fram á
strangvísindalegum grundvelli.
Báðir eru þessir menn dreng-
ir góðir eins og þeir eiga kyn til
og njóta almennra vinsælda
hvar, sem leið þeirra liggur.
F?ö Kóreustríðmu
Fram að þessu verður ekki
annað sagt, en að þungt sæk-
ist róðurinn af hálfu lýðræðis-
fylkinganna, sem halda uppi
varnarstríði sínu á Suður-
Kóreu. Bandaríkjaherinn, sem
kom íbúum suðurhlutans til
hjálpar, hefir átt örðuga að-
stöðu, og hvergi nærri enn, sem
komið er, ráðið yfir nægum
mannafla; hafa herskarar óvin-
anna ruðst suður á bóginn með
slíku offorsi, að erfitt hefir
reynst að hamla framrás þeirra,
og stafar það einkum af því, hve
vel þeir eru búnir af skriðdrek-
um; mannfall hefir orðið mikið
á báðar hliðar, og hafa Banda-
ríkin mist allmikið af einvalaliði
á vígstöðvunum, og ekki að því
hlaupið vegna örðugra aðflutn-
inga að fylla í skörðin, þó nú sé
verið að flytja inn í landið
margaukinn herafla, ásamt ame-
ríkum skriðdrekum og öðrum
vígbúnaði; er síðast fréttist
höfðu amerískar flugvélar kom-
ið fyrir kattarnef 170 skriðdrek-
um norðanmanna og ýmist ó-
nýtt eða náð á vald sitt fjölda
miklum af flutningabílum, en ó-
vinirnir hafa auðsjáanlega af
miklu að taka, að því er skrið-
dreka áhrærir.
En þrátt fyrir alla þá erfið-
leika, sem frelsisfylkingarnar
eiga við að glíma, leikur þó eng-
inn vafi á því, að þær á sínum
tíma gangi sigrandi af hólmi.
Vinnur sér mikinn nómsframa
Stórtjón af
völdum regns
Seinnipart fyrri viku rigndi
slík ódæmi í bænum York í
Nebrakaríkinu, að flytja varð
þaðan alt fólk, eitthvað um fjög-
ur þúsund að tölu; eignatjón
skiptir miljónum dollara.
Landskjólfti veldur
líftjóni
Landskjálfti gerði slíkan usla
í borginni Bagota í Columbiarík-
inu síðastliðinn mánudag, að
freklega hálft þriðja hundrað í-
búanna lét líf sitt, og margir
sættu auk þess ýmis konar
meiðslum; eignatjón varð einn-
ig allmikið.
Slóttur víða hafinn
Grasspretta er orðin ágæt víða
um land, og er á allmörgum bæj
um þegar byrjað að slá sáðslétt-
ur og aðra grasgefnustu hluta
túnanna. Er hvort tveggja, að
bændur eru nú víða farnir að
slá öllu fyrr en áður var siður,
en svo er grasvöxtur einnig í
bezta lagi.
Mjög margir byrja slátt í
næstu viku, og upp úr mánaða-
mótum mun sláttur verða haf-
inn um allt land.
Verði heyskapartíð góð í sum-
ar og nýting heyja því almennt
sæmileg, má vænta mikils hey-
fengs. Er þess og brýn þörf, því
margir munu ekki hafa ráð á að
kaupa eins mikinn fóðurbæti og
þeir hafa gert undanfarin ár,
sökum hækkaðs verðs.
A. P. Jóhannson
Hann var þrekinn þétt var lundin
þótti halda á reypum fast
sú var skapgerð erfðum undin
á að herða unz sátan bazt
hélt um strenginn stælta mundin
stöðugleikann aldrei brast.
Hafði æft að halda sinu
hvar á miðum sem hann dró.
Beitti sífelt sömu línu
sagður mikil aflakló
háði oft við ægi brýnu
altaf slapp þó heill af sjó.
Matti að réttu arf og ættir
unni heimalandi og þjóð,
snerust saman styrkir þættir
stál í vilja fjör í blóð.
Hlúðu að .gæfu góðar vættir
gekk hann einn á bát og hlóð.
P. G.
Helgi L. Austman
Þessi kornungi maður, sem
lokið hefir fyrsta árs verkfræði
prófi við háskóla Albertafylkis
með lofsamlegum vitnisburði,
vann tvenn námsverðlaun og
U. of A. viðurkenningarstyrk
fyrir jafnhæztu einkunn í öllum
námsgreinum; hann hlaut H. R.
Webb verðlaunin í tilefni af því,
og A. Cristoll verðlaun fyrir
hæztu einkunn í dráttlist og
teikningum; það er ánægjulegt,
er menn af íslenzkum stofni
geta sér slíkan orðstír.
Þessi efnilegi maður er sonur
þeirra Sigurjóns og Lovísu Aust-
inan, sem búsett eru að 2018 —
7th Avenue í Calgary, Alberta.
Sunrise Camp News
Leiðtoganámskeiði, sem var
undir leiðsögn séra Egils og frú
Ellen Fáfnis, með aðstoð Rev.
Ammon of the Parish and
Church School Board U. L. C. A.,
lauk þriðjudagskvöldið 11. júlí
með fjölmennri samkomu.
Eldri drengjahópur (11—14
ára) kom að morgni næsta dags.
Leiðtogar eru þar fyrir hverja
tíu drengi. — Aðalumsjón er í
höndum séra Erics Sigmars.
Guðsþjónusta verður haldin í
minningarskálanum sunnudag-
inn 16. júlí kl. 2 Standard Time,
kl. 3 Daylight Saving Time. Séra
Eric Sigmar prédikar.
Allir velkomnir.